Ástin á götunni Fram minnkar muninn gegn FH Fram hefur minnkað muninn gegn FH á Laugardalsvelli þar sem staðan er orðin 2-1. Það var Daði Lárusson markvörður FH sem gerði heldur klaufalegt sjálfsmark en hann náði ekki að halda boltanum eftir harðan ágang Andra Fannars Ottóssonar. Markið kom á 81. mínútu. Framarar sækja nú stíft lokamínúturnar. Sport 13.10.2005 19:37 Neftchi vann Anderlecht heima Neftchi Baku frá Azerbaijan, sem sló FH út úr Meistaradeildinni í knattspyrnu á dögunum, vann 1-0 sigur á Anderlecht frá Belgíu í kvöld í síðari leik liðanna í 2. umferð forkeppninnar. Anderlecht vann fyrri leikinn örugglega heima fyrir viku, 5-0 þannig að samanlagður sigur Belganna var aldrei í hættu og FH-banarnir eru úr leik. Sport 13.10.2005 19:37 Vítaspyrnukeppni í Laugardal Leikur Fram og FH fer í vítaspyrnukeppni en ekkert mark var skorað í framlengingu. Staðan er því 2-2 eftir vejulegan leiktíma og framlengingu og munu úrslit hennar birtast um leið og hún er afstaðin. Sport 13.10.2005 19:37 Vålerenga áfram í Meistaradeild Árni Gautur Arason og félagar í norska liðinu Vålerenga tryggðu sér í kvöld farseðilinn í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu þegar þeir lögðu Haka frá Finnlandi 1-4 á útivelli. Árni lék að venju allan leikinn í marki Vålerenga sem mætir Club Brugge frá Belgíu í næstu umferð forkeppninnar. Sport 13.10.2005 19:37 Houllier vill fá Owen Franska knattspyrnustórveldið Lyon lýsti því yfir í dag að félagið hafi mikinn áhuga á að fá enska landsliðsmanninn Michael Owen frá Real Madrid. Owen viðurkenndi í fjölmiðlum fyrr í dag að hann hafi átt í viðræðum við þrjú eða fjögur úrvalsdeildarlið á Englandi undanfarna daga. Sport 13.10.2005 19:37 Fram-FH í beinni á Vísi Leikur Fram og FH í VISA bikarkeppni karla í knattspyrnu hefst nú kl. 19:40 á Laugardalsvelli. Hægt er að fylgjast BEINT með leiknum á BOLTAVAKTINNI hér á Vísi. Sport 13.10.2005 19:37 Fram jafnaði og framlengt gegn FH Leikur Fram og FH fer í framlengingu en Daninn Bo Henriksen jafnaði metin fyrir Fram 3 mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma í bikarundanúrslitaleik liðanna á Laugardalsvelli. Allt stefndi í öruggan sigur FH sem leiddi 2-0 með mörkum frá Allan Borgvardt í fyrri hálfleik. Andri Fannar Ottósson minnkaði muninn í 2-1 á 81. mínútu. Sport 13.10.2005 19:37 Schalke deildarbikarmeistari Schalke hrósaði sigri í þýsku deildarbikarkeppninni í gær þegar liðið lagði Stuttgart 1-0 í úrslitaleik. Kevin Kuranyi, fyrrverandi leikmaður Stuttgarti, skoraði sigurmarkið á 10. mínútu. Hann fékk síðan að líta rauða spjaldið um miðjan síðari hálfleik og á lokamínútunni var svo samherja hans, Brasilíumanninum Lincoln einnig vikið af velli. Sport 13.10.2005 19:37 Ólafur Örn fékk rautt með Brann Ólafur Örn Bjarnason hjá Brann fékk rauða spjaldið á 77. mínútu þegar Tromsø og Brann gerðu 1-1 jafntefli í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Kristján Örn Sigurðsson lék allan leikinn í vörn Brann sem er í 6. sæti deildarinnar, 9 stigum á eftir toppliði Start sem marði 1-1 jafntefli með marki á 90. mínútu gegn Stefáni Gíslasyni og félögum í Lyn. Sport 13.10.2005 19:37 Evrópudraumur Newcastle úti Evrópudraumur Newcastle United er úti eftir 2-1 tap fyrir Deportivo La Coruna á heimavelli í kvöld en þetta var seinni leikur liðanna í Intertoto keppninni. Spænska liðið vann því samanlagt 4-2 þar sem enska liðið tapaði einnig þeim fyrri á Spáni 2-1. Sport 13.10.2005 19:37 FH 2-0 yfir í hálfleik gegn Fram Allan Borgvardt hefur skorað tvívegis fyrir FH sem leiðir 2-0 í hálfleik gegn Fram á Laugardalsvelli. Síðara mark Borgvardt var einkar glæsilegt og kom eftir sendingu Jóns Þorgríms Stefánssonar af hægri kanti á lokasekúndum fyrri hálfleiks. Sport 13.10.2005 19:37 Inter Milan loks að landa Figo Portúgalski knattspyrnusnillingurinn Luis Figo virðist vera búinn að ná samkomulagi við Inter Milan á Ítalíu um að ganga til liðs við félagið ef marka má spænska fjölmiðla í kvöld. Útvarpsstöðin Marca í Madrid segir að Figo muni fljúga til Mílanóborgar á morgun fimmtudag til þess að gangast undir læknisskoðun og skrifa svo undir 2 ára samning. Sport 13.10.2005 19:37 Sigurbjörn með gegn Fylki Sigurbjörn Hreiðarsson, fyrirliði Vals má leika með liði sínu gegn Fylki á morgun í undanúrslitum Vísabikarsins. Sigurbjörn var í gær úrskurðaður í bann vegna fjögurra gulra spjalda en bannið tekur hins vegar ekki gildi fyrr en á föstudag. Sigurbjörn missir því af leiknum á mánudaginn við Fram á Laugardalsvelli í Landsbakadeildinni. Sport 13.10.2005 19:37 Tottenham í skýjunum með Davids Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham Hotspurs hafa landað einum mesta hvalreka seinni ára í sögu félagsins en hollenski landsliðsmiðjumaðurinn Edgar Davids hefur gengið í raðir liðsins. Tottenham fær Davids á frjálsri sölu frá Inter Milan þar sem hann var farinn að gróa fastur við varamannabekkinn. Sport 13.10.2005 19:37 Nokkrir tæpir fyrir Fram-FH Í kvöld mætast Fram og FH í fyrri undanúrslitaleik VISA bikarsins í knattspyrnu. Ólafur Kristjánsson þjálfari Fram segir óljóst með nokkra leikmenn í Fram-liðinu vegna meiðsla. Leifur Garðarsson aðstoðarþjálfari FH notaði tækifærið á fréttamannafundi og skaut aðeins léttilega á KSÍ fyrir að hafa undanúrslitaleikina í bikarnum á Laugardalsvelli. Sport 13.10.2005 19:37 FH komið yfir gegn Fram Allan Borgvardt hefur komið FH yfir gegn Fram, 1-0, í undanúrslitaleik liðanna í VISA bikarkeppni karla í knattspyrnu. Daninn fékk sendingu inn fyrir vörn Fram og komst einn á móti Gunnari Sigurðssyni markverði á 28. mínútu. Leikurinn sem fer fram á Laugardalsvelli hófst kl. 19:40 og er í beinni útsendingu á BOLTAVAKTINNI hér á Vísi. Sport 13.10.2005 19:37 Andy Johnson áfram hjá Palace
Markamaskínan, Andy Johnson, verður áfram í herbúðum Crystal Palace þrátt fyrir að liðið hafi fallið í B deild í vor. Johnson, sem var næstmarkahæsti leikmaður Úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð skrifaði undir fimm ára samning við Palace í gær. Þar með lýkur vangaveltunum um framtíð hans í bili að minnsta kosti.
Sport 13.10.2005 19:37 Liverpool lánar Le Tallec Franski sóknarmaðurinn Anthony Le Tallec sem verið hefur hjá Liverpool í á þriðja ár hefur gengið til liðs við enska úrvalsdeildarliðið Sunderland á árslöngum lánssamningi. Le Tallec er tvítugur og var keyptur til félagsins ásamt Florent Sinama-Pongolle í stjóratíð Gerard Houllier. Sport 13.10.2005 19:37 Leikið við Kólumbíu í ágúst Íslenska landsliðið í knatttspyrnu mætir Kólumbíu í vináttulandsleik á Laugardalsvelli þann 17 ágúst n.k. Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson, landsliðsþjálfarar hafa valið hópinn sem mætir Suður Ameríkumönnunum. Sport 13.10.2005 19:37 Sveittur og kaldur með Liverpool Sigursteinn Brynjólfsson formaður Liverpool klúbbsins á Íslandi á von á því að Jerzy Dudek og Milan Baros fari frá félaginu innan skamms. Hann ætlar á Players í kvöld að horfa á seinni leik Liverpool og Kaunas frá Litháen í 2. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Sýn og hefst kl. 18:45. Sport 13.10.2005 19:37 Norðurlandamót drengjalandsliða Norðurlandamót drengjalandsliða í knattspyrnu hefst í dag , en leikið verður hér á landi. Leikið er í tveimur riðlum og taka átta þjóðir þátt í mótinu. Íslendingar mæta Dönum í fyrsta leik á KR vellinum hlukkan 14:30, en Ísland og Danmörk léku til úrslita á mótinu í Finnlandi á síðasta ári. Þá höfðu Danir sigur , 3 - 0 , en Ísland vann sigur á mótinu árið 2002. Íslendingar leika í A riðli ásamt Dönum , Írum og Norðmönnum. Í B riðli eigast við Svíar, Finnar, Færeyingar og Englendingar. Sport 13.10.2005 19:37 Ótrúlegur leikur í Glasgow í kvöld Glasgow Celtic er úr leik í forkeppni Meistaradeildar Evrópu þrátt fyrir 4-0 sigur á Artmedia frá Slóvakíu á Celtic Park í kvöld. Slóvaska liðið vann fyrri leikinn heima fyrir 5-0 og því hefði Celtic þurft að komast í sögubækurnar til að knýja fram framlengingu með því að vinna upp þann mun. Sport 13.10.2005 19:37 Helsingborg - Djurgarden Heilsingborg sigraði Djurgarden með tveimur mörkum gegn engu í uppgjöri efstu liðanna í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Kári Árnason var í byrjunarliði Djurgarden, en var tekinn af velli þegar stundarfjórðungur var til leiksloka. Sport 13.10.2005 19:37 Liverpool áfram í Meistaradeild Liverpool tryggði sér í kvöld farseðilinn í 3. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar þegar Evrópumeistararnir lögðu Kaunas frá Litháen, 2-0 í síðari leik liðanna á Anfield. Samanlagður sigur því 5-1. Steven Gerrard skoraði fyrra mark Liverpool í kvöld á 77. mínútu aðeins þremur mínútum eftir að hann kom inn á af varamannabekknum. Sport 13.10.2005 19:37 Carson og Crouch í byrjunarliðinu Sami Hyypia er fyrirliði Liverpool í kvöld þegar Evrópumeistararnir taka á móti Kaunas frá Litháen í síðari viðureign liðanna í 2. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar. Rafael Benitez setur ungstirnið Scott Carson í markið í stað Jose Reina og þá er kóngurinn á Anfield, Steven Gerrard á varamannabekknum ásamt öðrum stórjöxlum. Leikurinn hófst kl. 18:45. Sport 13.10.2005 19:37 Markalaust í hálfleik á Anfield Staðan í hálfleik í viðureign Liverpool og Kaunas í 2. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar er 0-0 en leikið er á Anfield. Leikurinn hófst kl. 18:45. Þetta er síðari leikur liðanna en Liverpool vann fyrri leikinn í Litháen 1-3. Liverpool hefur ráðið gangi leiksins í fyrri hálfleik. Sport 13.10.2005 19:37 Stubbs til Sunderland Varnarmaðurinn, Alan Stubbs er genginn til liðs við nýliða Sunderland í ensku úrvalsdeildinni en hann var leystur undan samningi við Everton í lok síðustu leiktíðar. Stubbs er 33 ára gamall og var fyrirliði Everton í fyrra sem lennti í fjórða sæti og vann sér sæti í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Sport 13.10.2005 19:37 Laudrup skoraði gegn Íslandi U17 Íslenska piltalandsliðið í knattspyrnu, 17 ára og yngri, tapaði í dag fyrir Danmörku, 4-0, á KR-velli í fyrsta leik sínum á Norðurlandamótinu sem hófst í dag. Mads Thunø Laudrup, sonur dönsku goðsagnarinnar Michael Laudrup, skoraði eitt marka danska landsliðsins í dag. Næsti leikur Íslands verður gegn Írum á morgun klukkan 14.30 á Keflavíkurvelli. Sport 13.10.2005 19:37 Newcastle á eftir Owen Komið hefur upp úr krafsinu að enska úrvalsdeildarfélagið Newcastle Utd þykir líklegast til þess að hreppa landsliðsmanninn Michael Owen hjá Real Madrid. Hefur Manchester United oftast verið nefnt í því samhengi en BBC hefur öruggar heimildir fyrir því að Man Utd hafi ekki falast eftir Owen. Sport 13.10.2005 19:37 Owen til United? Michael Owen, leikmaður Real Madrid gæti verið á leiðinni, til Manchester United eftir að Madrídarliðið keyti brasilísku framherjana Baptista og Robinho. Kaupverðið á Owen er talið vera um 12 milljónir punda. Glazer feðgar hafa fulllvissað stjórnarformann United, David Gill að nægt fjármagn sé til staðar til að styrkja liðið. Sport 13.10.2005 19:36 « ‹ 319 320 321 322 323 324 325 326 327 … 334 ›
Fram minnkar muninn gegn FH Fram hefur minnkað muninn gegn FH á Laugardalsvelli þar sem staðan er orðin 2-1. Það var Daði Lárusson markvörður FH sem gerði heldur klaufalegt sjálfsmark en hann náði ekki að halda boltanum eftir harðan ágang Andra Fannars Ottóssonar. Markið kom á 81. mínútu. Framarar sækja nú stíft lokamínúturnar. Sport 13.10.2005 19:37
Neftchi vann Anderlecht heima Neftchi Baku frá Azerbaijan, sem sló FH út úr Meistaradeildinni í knattspyrnu á dögunum, vann 1-0 sigur á Anderlecht frá Belgíu í kvöld í síðari leik liðanna í 2. umferð forkeppninnar. Anderlecht vann fyrri leikinn örugglega heima fyrir viku, 5-0 þannig að samanlagður sigur Belganna var aldrei í hættu og FH-banarnir eru úr leik. Sport 13.10.2005 19:37
Vítaspyrnukeppni í Laugardal Leikur Fram og FH fer í vítaspyrnukeppni en ekkert mark var skorað í framlengingu. Staðan er því 2-2 eftir vejulegan leiktíma og framlengingu og munu úrslit hennar birtast um leið og hún er afstaðin. Sport 13.10.2005 19:37
Vålerenga áfram í Meistaradeild Árni Gautur Arason og félagar í norska liðinu Vålerenga tryggðu sér í kvöld farseðilinn í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu þegar þeir lögðu Haka frá Finnlandi 1-4 á útivelli. Árni lék að venju allan leikinn í marki Vålerenga sem mætir Club Brugge frá Belgíu í næstu umferð forkeppninnar. Sport 13.10.2005 19:37
Houllier vill fá Owen Franska knattspyrnustórveldið Lyon lýsti því yfir í dag að félagið hafi mikinn áhuga á að fá enska landsliðsmanninn Michael Owen frá Real Madrid. Owen viðurkenndi í fjölmiðlum fyrr í dag að hann hafi átt í viðræðum við þrjú eða fjögur úrvalsdeildarlið á Englandi undanfarna daga. Sport 13.10.2005 19:37
Fram-FH í beinni á Vísi Leikur Fram og FH í VISA bikarkeppni karla í knattspyrnu hefst nú kl. 19:40 á Laugardalsvelli. Hægt er að fylgjast BEINT með leiknum á BOLTAVAKTINNI hér á Vísi. Sport 13.10.2005 19:37
Fram jafnaði og framlengt gegn FH Leikur Fram og FH fer í framlengingu en Daninn Bo Henriksen jafnaði metin fyrir Fram 3 mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma í bikarundanúrslitaleik liðanna á Laugardalsvelli. Allt stefndi í öruggan sigur FH sem leiddi 2-0 með mörkum frá Allan Borgvardt í fyrri hálfleik. Andri Fannar Ottósson minnkaði muninn í 2-1 á 81. mínútu. Sport 13.10.2005 19:37
Schalke deildarbikarmeistari Schalke hrósaði sigri í þýsku deildarbikarkeppninni í gær þegar liðið lagði Stuttgart 1-0 í úrslitaleik. Kevin Kuranyi, fyrrverandi leikmaður Stuttgarti, skoraði sigurmarkið á 10. mínútu. Hann fékk síðan að líta rauða spjaldið um miðjan síðari hálfleik og á lokamínútunni var svo samherja hans, Brasilíumanninum Lincoln einnig vikið af velli. Sport 13.10.2005 19:37
Ólafur Örn fékk rautt með Brann Ólafur Örn Bjarnason hjá Brann fékk rauða spjaldið á 77. mínútu þegar Tromsø og Brann gerðu 1-1 jafntefli í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Kristján Örn Sigurðsson lék allan leikinn í vörn Brann sem er í 6. sæti deildarinnar, 9 stigum á eftir toppliði Start sem marði 1-1 jafntefli með marki á 90. mínútu gegn Stefáni Gíslasyni og félögum í Lyn. Sport 13.10.2005 19:37
Evrópudraumur Newcastle úti Evrópudraumur Newcastle United er úti eftir 2-1 tap fyrir Deportivo La Coruna á heimavelli í kvöld en þetta var seinni leikur liðanna í Intertoto keppninni. Spænska liðið vann því samanlagt 4-2 þar sem enska liðið tapaði einnig þeim fyrri á Spáni 2-1. Sport 13.10.2005 19:37
FH 2-0 yfir í hálfleik gegn Fram Allan Borgvardt hefur skorað tvívegis fyrir FH sem leiðir 2-0 í hálfleik gegn Fram á Laugardalsvelli. Síðara mark Borgvardt var einkar glæsilegt og kom eftir sendingu Jóns Þorgríms Stefánssonar af hægri kanti á lokasekúndum fyrri hálfleiks. Sport 13.10.2005 19:37
Inter Milan loks að landa Figo Portúgalski knattspyrnusnillingurinn Luis Figo virðist vera búinn að ná samkomulagi við Inter Milan á Ítalíu um að ganga til liðs við félagið ef marka má spænska fjölmiðla í kvöld. Útvarpsstöðin Marca í Madrid segir að Figo muni fljúga til Mílanóborgar á morgun fimmtudag til þess að gangast undir læknisskoðun og skrifa svo undir 2 ára samning. Sport 13.10.2005 19:37
Sigurbjörn með gegn Fylki Sigurbjörn Hreiðarsson, fyrirliði Vals má leika með liði sínu gegn Fylki á morgun í undanúrslitum Vísabikarsins. Sigurbjörn var í gær úrskurðaður í bann vegna fjögurra gulra spjalda en bannið tekur hins vegar ekki gildi fyrr en á föstudag. Sigurbjörn missir því af leiknum á mánudaginn við Fram á Laugardalsvelli í Landsbakadeildinni. Sport 13.10.2005 19:37
Tottenham í skýjunum með Davids Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham Hotspurs hafa landað einum mesta hvalreka seinni ára í sögu félagsins en hollenski landsliðsmiðjumaðurinn Edgar Davids hefur gengið í raðir liðsins. Tottenham fær Davids á frjálsri sölu frá Inter Milan þar sem hann var farinn að gróa fastur við varamannabekkinn. Sport 13.10.2005 19:37
Nokkrir tæpir fyrir Fram-FH Í kvöld mætast Fram og FH í fyrri undanúrslitaleik VISA bikarsins í knattspyrnu. Ólafur Kristjánsson þjálfari Fram segir óljóst með nokkra leikmenn í Fram-liðinu vegna meiðsla. Leifur Garðarsson aðstoðarþjálfari FH notaði tækifærið á fréttamannafundi og skaut aðeins léttilega á KSÍ fyrir að hafa undanúrslitaleikina í bikarnum á Laugardalsvelli. Sport 13.10.2005 19:37
FH komið yfir gegn Fram Allan Borgvardt hefur komið FH yfir gegn Fram, 1-0, í undanúrslitaleik liðanna í VISA bikarkeppni karla í knattspyrnu. Daninn fékk sendingu inn fyrir vörn Fram og komst einn á móti Gunnari Sigurðssyni markverði á 28. mínútu. Leikurinn sem fer fram á Laugardalsvelli hófst kl. 19:40 og er í beinni útsendingu á BOLTAVAKTINNI hér á Vísi. Sport 13.10.2005 19:37
Andy Johnson áfram hjá Palace
Markamaskínan, Andy Johnson, verður áfram í herbúðum Crystal Palace þrátt fyrir að liðið hafi fallið í B deild í vor. Johnson, sem var næstmarkahæsti leikmaður Úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð skrifaði undir fimm ára samning við Palace í gær. Þar með lýkur vangaveltunum um framtíð hans í bili að minnsta kosti.
Sport 13.10.2005 19:37
Liverpool lánar Le Tallec Franski sóknarmaðurinn Anthony Le Tallec sem verið hefur hjá Liverpool í á þriðja ár hefur gengið til liðs við enska úrvalsdeildarliðið Sunderland á árslöngum lánssamningi. Le Tallec er tvítugur og var keyptur til félagsins ásamt Florent Sinama-Pongolle í stjóratíð Gerard Houllier. Sport 13.10.2005 19:37
Leikið við Kólumbíu í ágúst Íslenska landsliðið í knatttspyrnu mætir Kólumbíu í vináttulandsleik á Laugardalsvelli þann 17 ágúst n.k. Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson, landsliðsþjálfarar hafa valið hópinn sem mætir Suður Ameríkumönnunum. Sport 13.10.2005 19:37
Sveittur og kaldur með Liverpool Sigursteinn Brynjólfsson formaður Liverpool klúbbsins á Íslandi á von á því að Jerzy Dudek og Milan Baros fari frá félaginu innan skamms. Hann ætlar á Players í kvöld að horfa á seinni leik Liverpool og Kaunas frá Litháen í 2. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Sýn og hefst kl. 18:45. Sport 13.10.2005 19:37
Norðurlandamót drengjalandsliða Norðurlandamót drengjalandsliða í knattspyrnu hefst í dag , en leikið verður hér á landi. Leikið er í tveimur riðlum og taka átta þjóðir þátt í mótinu. Íslendingar mæta Dönum í fyrsta leik á KR vellinum hlukkan 14:30, en Ísland og Danmörk léku til úrslita á mótinu í Finnlandi á síðasta ári. Þá höfðu Danir sigur , 3 - 0 , en Ísland vann sigur á mótinu árið 2002. Íslendingar leika í A riðli ásamt Dönum , Írum og Norðmönnum. Í B riðli eigast við Svíar, Finnar, Færeyingar og Englendingar. Sport 13.10.2005 19:37
Ótrúlegur leikur í Glasgow í kvöld Glasgow Celtic er úr leik í forkeppni Meistaradeildar Evrópu þrátt fyrir 4-0 sigur á Artmedia frá Slóvakíu á Celtic Park í kvöld. Slóvaska liðið vann fyrri leikinn heima fyrir 5-0 og því hefði Celtic þurft að komast í sögubækurnar til að knýja fram framlengingu með því að vinna upp þann mun. Sport 13.10.2005 19:37
Helsingborg - Djurgarden Heilsingborg sigraði Djurgarden með tveimur mörkum gegn engu í uppgjöri efstu liðanna í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Kári Árnason var í byrjunarliði Djurgarden, en var tekinn af velli þegar stundarfjórðungur var til leiksloka. Sport 13.10.2005 19:37
Liverpool áfram í Meistaradeild Liverpool tryggði sér í kvöld farseðilinn í 3. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar þegar Evrópumeistararnir lögðu Kaunas frá Litháen, 2-0 í síðari leik liðanna á Anfield. Samanlagður sigur því 5-1. Steven Gerrard skoraði fyrra mark Liverpool í kvöld á 77. mínútu aðeins þremur mínútum eftir að hann kom inn á af varamannabekknum. Sport 13.10.2005 19:37
Carson og Crouch í byrjunarliðinu Sami Hyypia er fyrirliði Liverpool í kvöld þegar Evrópumeistararnir taka á móti Kaunas frá Litháen í síðari viðureign liðanna í 2. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar. Rafael Benitez setur ungstirnið Scott Carson í markið í stað Jose Reina og þá er kóngurinn á Anfield, Steven Gerrard á varamannabekknum ásamt öðrum stórjöxlum. Leikurinn hófst kl. 18:45. Sport 13.10.2005 19:37
Markalaust í hálfleik á Anfield Staðan í hálfleik í viðureign Liverpool og Kaunas í 2. umferð forkeppni Meistaradeildarinnar er 0-0 en leikið er á Anfield. Leikurinn hófst kl. 18:45. Þetta er síðari leikur liðanna en Liverpool vann fyrri leikinn í Litháen 1-3. Liverpool hefur ráðið gangi leiksins í fyrri hálfleik. Sport 13.10.2005 19:37
Stubbs til Sunderland Varnarmaðurinn, Alan Stubbs er genginn til liðs við nýliða Sunderland í ensku úrvalsdeildinni en hann var leystur undan samningi við Everton í lok síðustu leiktíðar. Stubbs er 33 ára gamall og var fyrirliði Everton í fyrra sem lennti í fjórða sæti og vann sér sæti í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Sport 13.10.2005 19:37
Laudrup skoraði gegn Íslandi U17 Íslenska piltalandsliðið í knattspyrnu, 17 ára og yngri, tapaði í dag fyrir Danmörku, 4-0, á KR-velli í fyrsta leik sínum á Norðurlandamótinu sem hófst í dag. Mads Thunø Laudrup, sonur dönsku goðsagnarinnar Michael Laudrup, skoraði eitt marka danska landsliðsins í dag. Næsti leikur Íslands verður gegn Írum á morgun klukkan 14.30 á Keflavíkurvelli. Sport 13.10.2005 19:37
Newcastle á eftir Owen Komið hefur upp úr krafsinu að enska úrvalsdeildarfélagið Newcastle Utd þykir líklegast til þess að hreppa landsliðsmanninn Michael Owen hjá Real Madrid. Hefur Manchester United oftast verið nefnt í því samhengi en BBC hefur öruggar heimildir fyrir því að Man Utd hafi ekki falast eftir Owen. Sport 13.10.2005 19:37
Owen til United? Michael Owen, leikmaður Real Madrid gæti verið á leiðinni, til Manchester United eftir að Madrídarliðið keyti brasilísku framherjana Baptista og Robinho. Kaupverðið á Owen er talið vera um 12 milljónir punda. Glazer feðgar hafa fulllvissað stjórnarformann United, David Gill að nægt fjármagn sé til staðar til að styrkja liðið. Sport 13.10.2005 19:36