Ástin á götunni Notts County gerði jafntefli Notts County, lið Guðjóns Þórðarsonar í ensku 3. deildinni gerði 1-1 jafntefli við Stockport í dag. Mark County var sjálfsmark og kom strákunum hans Guðjóns yfir í leiknum á 14. mínútu en heimamenn jöfnuðu á 35. mínútu. Notts County er í 5. sæti deildarinnar með 8 stig eftir 4 umferðir og hefur ekki enn tapaði leik. Sport 13.10.2005 19:43 Edu frá í 6 mánuði Brasilíski miðjumaðurinn Edu sem gekk í raði spænska knattspyrnuliðsins Valencia frá Arsenal á dögunum meiddist alvarlega á æfingu í dag og missir fyrir vikið af nær öllu tímabilinu á Spáni. Edu sleit krossband í vinstra hné í dag og þarf nú að gangast undir uppskurð að sögn læknis félagsins. Sport 13.10.2005 19:43 Þrjú lið áfram með fullt hús Man. Utd, Tottenham og Charlton hafa unnið tvo fyrstu leiki sína í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool vann fyrsta sigurinn en Newcastle á enn eftir að skora. Tottenham vann annan leikinn í röð 2-0 og er á toppnum á markatölu og ekki gladdi það stuðningsmenn Spurs minna að sjá Edgar Davids spila sinn fyrsta leik með liðinu. Sport 13.10.2005 19:43 Man Utd lagði Aston Villa Man Utd vann 1-0 sigur á Aston Villa á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Ruud van Nistelrooy skoraði sigurmarkið á 66. mínútu eftir skalla frá Olof Mellberg varnarmanni Villa sem ætlaði að hreinsa boltann frá eftir sendingu inn í teig frá Christiano Ronaldo. Man Utd hefur nú unnið fyrstu tvo leiki sína á tímabilinu. Sport 13.10.2005 19:43 Búum okkur undir erfiðan leik Íslenska kvennalandsliðið leikur í dag sinn eina heimaleik í ár gegn Hvíta-Rússlandi. Jörundur Áki þjálfari segir andann í íslenska liðinu vera góðan. Þetta er fyrsti leikur liðsins í riðli fyrir undankeppni HM 2007 en auk Íslands og Hvíta Rússlands eru Portúgal, Svíþjóð og Tékkland í riðlinum. Sport 13.10.2005 19:43 Carvalho þarf í greindarpróf Jose Mourinho brást ókvæða við ummælum Ricardo Carvalho nýverið, þar sem hann gagnrýndi ákvarðanir þjálfarans að hafa sig á varamannabekk Chelsea um síðustu helgi. Sport 13.10.2005 19:43 Sá besti sem við gátum fengið Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea segir að miðjumaðurinn Michael Essien fullkomni Chelsea liðið og hann sé besti leikmaður í sinni stöðu sem hægt hafi verið að fá. Essien er 22 ára og kostaði Chelsea 24,4 milljónir punda sem er félagsmet. Sport 13.10.2005 19:43 Heiðar verður að vera þolinmóður Chris Coleman, knattspyrnustjóri Fulham, gaf það í skyn í viðtali í morgun að Heiðar Helguson gæti þurft að vera þolinmóður á að fá tækifæri í byrjunarliði Fulham, því hann segist nokkuð ánægður með framherja sína. Sport 13.10.2005 19:43 Houllier vill Baros, ekki Cisse Gerard Houllier, knattspyrnustjóri Lyon í Frakklandi er sagður hafa gert 8,5 milljón punda tilboð í framherjann Milan Baros hjá Liverpool og hefur játað áhuga sinn á að fá leikmanninn til liðs við frönsku meistarana. Sport 13.10.2005 19:43 Þeir ættu að reka Eriksson Fyrrum landsliðsmaðurinn Mick Channon segir að enska knattspyrnusambandið ætti að sjá sóma sinn í að reka landsliðsþjálfara sinn Sven-Göran Eriksson, eftir útreiðina sem liðið fékk á Parken í Kaupmannahöfn í 4-1 tapinu í vikunni. Sport 13.10.2005 19:43 Luque ekki til Newcastle Graeme Souness, knattspyrnustjóri Newcastle hefur viðurkennt að félaginu hafi enn á ný mistekist að klófesta sterkan sóknarmann og sá nýjasti er Alberto Luque hjá Deportivo la Corunia á Spáni. Sport 13.10.2005 19:43 Carvalho biður Mourinho afsökunar Ricardo Carvalho varnarmaður Chelsea hefur beðið Jose Mourinho afsökunar á ummælum sínum eftir leikinn gegn Wigan í úrvalsdeildinni um helgina. Þrátt fyrir afsökunarbeiðnina er reiknað með því að hann verði sektaður um tveggja vikna laun. Sport 13.10.2005 19:43 Jol hefur augastað á Kuyt Martin Jol, knattspyrnustjóri Tottenham, hefur mikinn augastað á landa sínum Dirk Kuyt hjá Feyenoord í Hollandi, en hann er að leita sér að sterkum framherja í stað Fredi Kanoute sem seldur var til Sevilla á Spáni í vikunni. Sport 13.10.2005 19:43 Jafnt á Ásvöllum Haukar og Víkingur Ólafsvík gerðu 2-2 jafntefli á Ásvöllum í Hafnarfirði í fyrstu deild karla í kvöld. Kristján Ómar Björnsson og Hilmar Rafn Emilsson gerðu mörk Hauka en mörk Ólafsvíkinga gerðu þeir Alexander Linta úr víti og Hermann Geir Þórisson. Sport 13.10.2005 19:43 Nakata hæstánægður Hidetoshi Nakata er genginn til liðs við Bolton frá Fiorentina á eins árs lánssamningi. Hann er viss um að enska úrvalsdeildin hennti honum vel en hann hefur leikið í sjö ár í efstu deild á Ítalíu. Sport 13.10.2005 19:42 Stærsti ósigur Breta í 25 ár Sven Göran Eriksson landsliðsþjálfari Englands var æfur út í sína menn og vandaði þeim ekki kveðjurnar á Sky sjónvarpstðinni í gærkvöld eftir 4 - 1 tap enskra fyrir Dönum á Parken í Kaupmannahöfn. Danir léku Englendinga grátt í síðari hálfleik og það tók þá aðeins sjö mínútur að skora þrjú mörk. Sport 13.10.2005 19:42 Vináttulandsleikir í gær Fjölmargir vináttulandsleikir fóru fram í gær. Króatar og Brasilíumenn gerðu jafntefli 1 - 1 í Split , Svíar lögðu Tékka 2 - 1. Holland og Þýskaland gerðu jafntefli 2 - 2 í Hollandi en heimamenn komust í 2 - 0. Sport 13.10.2005 19:42 Dramatík á Akureyri Norðfirðingurinn Jón Gunnar Eysteinsson jafnaði metin fyrir KA gegn Víkingum á síðustu mínútu á Akureyri í 1.deild karla í kvöld í leik sem lauk 1-1. Mark Víkinga gerði Andri Steinn Birgisson á upphafsmínútum leiksins. Við þessi úrslit er það ljóst að Breiðablik er komið í úrvalsdeild. Sport 13.10.2005 19:43 Ókeypis á sunnudag Ísland mætir Hvíta-Rússlandi í undankeppni HM 2007 í kvennaknattspyrnu á Laugardalsvelli á sunnudag kl. 14:00. Um er að ræða fyrsta leik liðsins í riðlinum og eina heimaleikinn á árinu. Aðgangur á leikinn er ókeypis og er fólk því hvatt til að mæta og styðja við bakið á íslenska liðinu. Sport 13.10.2005 19:42 Denilson til Vestel Manisaspor Brasilíski knattspyrnumaðurinn Denilson sem eitt sinn var álitinn einn efnilegasti leikmaður heims er genginn til liðs við nýliða Vestel Manisaspor, í tyrknesku úrvalsdeildinni að láni frá spænska liðinu Real Betis. Denilson gekk til liðs við Betis eftir heimsmeistarakeppnina 1998 en aldrei staðið undir þeim væntingum sem til hans voru gerðar. Sport 13.10.2005 19:42 Morrison til Norwich Sóknarmaðurinn Clinton Morrison er genginn til liðs við Norwich í Championship deildinni frá úrvalsdeildarliði Birmingham fyrir 2 milljónir punda. Morrison taldi sig ekki fá sanngjarna meðferð frá Steve Bruce, knattspyrnustjóra Birmingham og bað um sölu. Sport 13.10.2005 19:42 Owen á leið til Liverpool? Breskir fjölmiðlar kepptust um það í morgun að greina frá því að Michael Owen væri á leið aftur til Liverpool eftir allt saman. Sport 13.10.2005 19:42 Pearce stendur með sínum manni Stuart Pearce, knattspyrnustjóri Man. City, hefur komið markverði sínum David James til varnar, en hann átti hörmulegan leik með Englandi gegn Dönum í gær og hefur þurft að þola mikil skítköst frá breskum fjölmiðlum. Sport 13.10.2005 19:42 Toppslagur í 1.deild KA og Víkingur mætast í 1.deild karla í kvöld. Víkingur er í öðru sæti á eftir Breiðablik en KA er í því þriðja sæti tveimur stigum á eftir Víking. Úrslit leiksins munu því líklega hafa mikil áhrif á það hvað lið kemst í úrvalsdeildina í haust. Þá munu Fjölnismenn taka á móti HK í botnslag í Grafarvogi og Völsungar fá Þórsara... Sport 13.10.2005 19:42 Eriksson aðvarar leikmenn sína Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englands, hefur varað leikmenn sína við því að ef þeir spila einhverntímann aftur eins og í síðari hálfleiknum gegn Dönum í gærkvöldi, geti þeir gleymt því að komast á HM næsta sumar. Sport 13.10.2005 19:42 Wembley á áætlun Þrátt fyrir áhyggjur breskra fjölmiðla undanfarið, virðist sem nýji Wembley-völlurinn í Lundúnum verði tilbúinn til notkunar fyrir úrslitaleikinn í FA bikarnum í vor. Sport 13.10.2005 19:42 Eiður, Grétar og Kári bestir Þeir Eiður Smári Guðjohnsen, Grétar Rafn Steinsson og Kári Árnason stóðu sig best í leiknum gegn Suður-Afríku að mati Fréttablaðsins en hér má finna dóm um frammistöðu allra leikmanna liðsins í 4-1 sigrinum á Laugardalsvellinum í gær. Sport 13.10.2005 19:42 Jafntefli hjá nágrönnunum Hollendingar og Þjóðverjar gerðu jafntefli í kvöld 2-2 í vináttulandsleik í Hollandi. Arjen Robben gerði bæði mörk Hollendinga og kom þeim í 2-0 en þeir Michael Ballack og Gerald Asemoah jöfnuðu fyrir Þjóðverja. Sport 13.10.2005 19:42 Danir flengdu Englendinga Danir tóku Englendinga í kennslustund í vináttuleik á Parken í Kaupmannahöfn í gærkvöld en þetta var stærsta tap enska landsliðsins í 25 ár. Englendingar binda miklar vonir við landslið sitt á HM í Þýskalandi næsta sumar, en ef marka má frammistöðu liðsins í gærkvöld þarf Sven-Göran Eriksson að lesa hressilega yfir hausamótunum á sínum mönnum. Sport 13.10.2005 19:42 Englendingar niðurlægðir á Parken Danir unnu Englendinga 4-1 í vináttulandsleik í Parken í Kaupmannahöfn. Mörk Dana gerðu Dennis Rommendahl, Jon Dahl Tomsson, Sören Larsen og Mikael Gravgaard. Mark Englendinga gerði Wayne Rooney. Danir komust í 3-0 á níu mínútna kafla í seinni hálfeik. Sport 13.10.2005 19:42 « ‹ 312 313 314 315 316 317 318 319 320 … 334 ›
Notts County gerði jafntefli Notts County, lið Guðjóns Þórðarsonar í ensku 3. deildinni gerði 1-1 jafntefli við Stockport í dag. Mark County var sjálfsmark og kom strákunum hans Guðjóns yfir í leiknum á 14. mínútu en heimamenn jöfnuðu á 35. mínútu. Notts County er í 5. sæti deildarinnar með 8 stig eftir 4 umferðir og hefur ekki enn tapaði leik. Sport 13.10.2005 19:43
Edu frá í 6 mánuði Brasilíski miðjumaðurinn Edu sem gekk í raði spænska knattspyrnuliðsins Valencia frá Arsenal á dögunum meiddist alvarlega á æfingu í dag og missir fyrir vikið af nær öllu tímabilinu á Spáni. Edu sleit krossband í vinstra hné í dag og þarf nú að gangast undir uppskurð að sögn læknis félagsins. Sport 13.10.2005 19:43
Þrjú lið áfram með fullt hús Man. Utd, Tottenham og Charlton hafa unnið tvo fyrstu leiki sína í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool vann fyrsta sigurinn en Newcastle á enn eftir að skora. Tottenham vann annan leikinn í röð 2-0 og er á toppnum á markatölu og ekki gladdi það stuðningsmenn Spurs minna að sjá Edgar Davids spila sinn fyrsta leik með liðinu. Sport 13.10.2005 19:43
Man Utd lagði Aston Villa Man Utd vann 1-0 sigur á Aston Villa á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Ruud van Nistelrooy skoraði sigurmarkið á 66. mínútu eftir skalla frá Olof Mellberg varnarmanni Villa sem ætlaði að hreinsa boltann frá eftir sendingu inn í teig frá Christiano Ronaldo. Man Utd hefur nú unnið fyrstu tvo leiki sína á tímabilinu. Sport 13.10.2005 19:43
Búum okkur undir erfiðan leik Íslenska kvennalandsliðið leikur í dag sinn eina heimaleik í ár gegn Hvíta-Rússlandi. Jörundur Áki þjálfari segir andann í íslenska liðinu vera góðan. Þetta er fyrsti leikur liðsins í riðli fyrir undankeppni HM 2007 en auk Íslands og Hvíta Rússlands eru Portúgal, Svíþjóð og Tékkland í riðlinum. Sport 13.10.2005 19:43
Carvalho þarf í greindarpróf Jose Mourinho brást ókvæða við ummælum Ricardo Carvalho nýverið, þar sem hann gagnrýndi ákvarðanir þjálfarans að hafa sig á varamannabekk Chelsea um síðustu helgi. Sport 13.10.2005 19:43
Sá besti sem við gátum fengið Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea segir að miðjumaðurinn Michael Essien fullkomni Chelsea liðið og hann sé besti leikmaður í sinni stöðu sem hægt hafi verið að fá. Essien er 22 ára og kostaði Chelsea 24,4 milljónir punda sem er félagsmet. Sport 13.10.2005 19:43
Heiðar verður að vera þolinmóður Chris Coleman, knattspyrnustjóri Fulham, gaf það í skyn í viðtali í morgun að Heiðar Helguson gæti þurft að vera þolinmóður á að fá tækifæri í byrjunarliði Fulham, því hann segist nokkuð ánægður með framherja sína. Sport 13.10.2005 19:43
Houllier vill Baros, ekki Cisse Gerard Houllier, knattspyrnustjóri Lyon í Frakklandi er sagður hafa gert 8,5 milljón punda tilboð í framherjann Milan Baros hjá Liverpool og hefur játað áhuga sinn á að fá leikmanninn til liðs við frönsku meistarana. Sport 13.10.2005 19:43
Þeir ættu að reka Eriksson Fyrrum landsliðsmaðurinn Mick Channon segir að enska knattspyrnusambandið ætti að sjá sóma sinn í að reka landsliðsþjálfara sinn Sven-Göran Eriksson, eftir útreiðina sem liðið fékk á Parken í Kaupmannahöfn í 4-1 tapinu í vikunni. Sport 13.10.2005 19:43
Luque ekki til Newcastle Graeme Souness, knattspyrnustjóri Newcastle hefur viðurkennt að félaginu hafi enn á ný mistekist að klófesta sterkan sóknarmann og sá nýjasti er Alberto Luque hjá Deportivo la Corunia á Spáni. Sport 13.10.2005 19:43
Carvalho biður Mourinho afsökunar Ricardo Carvalho varnarmaður Chelsea hefur beðið Jose Mourinho afsökunar á ummælum sínum eftir leikinn gegn Wigan í úrvalsdeildinni um helgina. Þrátt fyrir afsökunarbeiðnina er reiknað með því að hann verði sektaður um tveggja vikna laun. Sport 13.10.2005 19:43
Jol hefur augastað á Kuyt Martin Jol, knattspyrnustjóri Tottenham, hefur mikinn augastað á landa sínum Dirk Kuyt hjá Feyenoord í Hollandi, en hann er að leita sér að sterkum framherja í stað Fredi Kanoute sem seldur var til Sevilla á Spáni í vikunni. Sport 13.10.2005 19:43
Jafnt á Ásvöllum Haukar og Víkingur Ólafsvík gerðu 2-2 jafntefli á Ásvöllum í Hafnarfirði í fyrstu deild karla í kvöld. Kristján Ómar Björnsson og Hilmar Rafn Emilsson gerðu mörk Hauka en mörk Ólafsvíkinga gerðu þeir Alexander Linta úr víti og Hermann Geir Þórisson. Sport 13.10.2005 19:43
Nakata hæstánægður Hidetoshi Nakata er genginn til liðs við Bolton frá Fiorentina á eins árs lánssamningi. Hann er viss um að enska úrvalsdeildin hennti honum vel en hann hefur leikið í sjö ár í efstu deild á Ítalíu. Sport 13.10.2005 19:42
Stærsti ósigur Breta í 25 ár Sven Göran Eriksson landsliðsþjálfari Englands var æfur út í sína menn og vandaði þeim ekki kveðjurnar á Sky sjónvarpstðinni í gærkvöld eftir 4 - 1 tap enskra fyrir Dönum á Parken í Kaupmannahöfn. Danir léku Englendinga grátt í síðari hálfleik og það tók þá aðeins sjö mínútur að skora þrjú mörk. Sport 13.10.2005 19:42
Vináttulandsleikir í gær Fjölmargir vináttulandsleikir fóru fram í gær. Króatar og Brasilíumenn gerðu jafntefli 1 - 1 í Split , Svíar lögðu Tékka 2 - 1. Holland og Þýskaland gerðu jafntefli 2 - 2 í Hollandi en heimamenn komust í 2 - 0. Sport 13.10.2005 19:42
Dramatík á Akureyri Norðfirðingurinn Jón Gunnar Eysteinsson jafnaði metin fyrir KA gegn Víkingum á síðustu mínútu á Akureyri í 1.deild karla í kvöld í leik sem lauk 1-1. Mark Víkinga gerði Andri Steinn Birgisson á upphafsmínútum leiksins. Við þessi úrslit er það ljóst að Breiðablik er komið í úrvalsdeild. Sport 13.10.2005 19:43
Ókeypis á sunnudag Ísland mætir Hvíta-Rússlandi í undankeppni HM 2007 í kvennaknattspyrnu á Laugardalsvelli á sunnudag kl. 14:00. Um er að ræða fyrsta leik liðsins í riðlinum og eina heimaleikinn á árinu. Aðgangur á leikinn er ókeypis og er fólk því hvatt til að mæta og styðja við bakið á íslenska liðinu. Sport 13.10.2005 19:42
Denilson til Vestel Manisaspor Brasilíski knattspyrnumaðurinn Denilson sem eitt sinn var álitinn einn efnilegasti leikmaður heims er genginn til liðs við nýliða Vestel Manisaspor, í tyrknesku úrvalsdeildinni að láni frá spænska liðinu Real Betis. Denilson gekk til liðs við Betis eftir heimsmeistarakeppnina 1998 en aldrei staðið undir þeim væntingum sem til hans voru gerðar. Sport 13.10.2005 19:42
Morrison til Norwich Sóknarmaðurinn Clinton Morrison er genginn til liðs við Norwich í Championship deildinni frá úrvalsdeildarliði Birmingham fyrir 2 milljónir punda. Morrison taldi sig ekki fá sanngjarna meðferð frá Steve Bruce, knattspyrnustjóra Birmingham og bað um sölu. Sport 13.10.2005 19:42
Owen á leið til Liverpool? Breskir fjölmiðlar kepptust um það í morgun að greina frá því að Michael Owen væri á leið aftur til Liverpool eftir allt saman. Sport 13.10.2005 19:42
Pearce stendur með sínum manni Stuart Pearce, knattspyrnustjóri Man. City, hefur komið markverði sínum David James til varnar, en hann átti hörmulegan leik með Englandi gegn Dönum í gær og hefur þurft að þola mikil skítköst frá breskum fjölmiðlum. Sport 13.10.2005 19:42
Toppslagur í 1.deild KA og Víkingur mætast í 1.deild karla í kvöld. Víkingur er í öðru sæti á eftir Breiðablik en KA er í því þriðja sæti tveimur stigum á eftir Víking. Úrslit leiksins munu því líklega hafa mikil áhrif á það hvað lið kemst í úrvalsdeildina í haust. Þá munu Fjölnismenn taka á móti HK í botnslag í Grafarvogi og Völsungar fá Þórsara... Sport 13.10.2005 19:42
Eriksson aðvarar leikmenn sína Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englands, hefur varað leikmenn sína við því að ef þeir spila einhverntímann aftur eins og í síðari hálfleiknum gegn Dönum í gærkvöldi, geti þeir gleymt því að komast á HM næsta sumar. Sport 13.10.2005 19:42
Wembley á áætlun Þrátt fyrir áhyggjur breskra fjölmiðla undanfarið, virðist sem nýji Wembley-völlurinn í Lundúnum verði tilbúinn til notkunar fyrir úrslitaleikinn í FA bikarnum í vor. Sport 13.10.2005 19:42
Eiður, Grétar og Kári bestir Þeir Eiður Smári Guðjohnsen, Grétar Rafn Steinsson og Kári Árnason stóðu sig best í leiknum gegn Suður-Afríku að mati Fréttablaðsins en hér má finna dóm um frammistöðu allra leikmanna liðsins í 4-1 sigrinum á Laugardalsvellinum í gær. Sport 13.10.2005 19:42
Jafntefli hjá nágrönnunum Hollendingar og Þjóðverjar gerðu jafntefli í kvöld 2-2 í vináttulandsleik í Hollandi. Arjen Robben gerði bæði mörk Hollendinga og kom þeim í 2-0 en þeir Michael Ballack og Gerald Asemoah jöfnuðu fyrir Þjóðverja. Sport 13.10.2005 19:42
Danir flengdu Englendinga Danir tóku Englendinga í kennslustund í vináttuleik á Parken í Kaupmannahöfn í gærkvöld en þetta var stærsta tap enska landsliðsins í 25 ár. Englendingar binda miklar vonir við landslið sitt á HM í Þýskalandi næsta sumar, en ef marka má frammistöðu liðsins í gærkvöld þarf Sven-Göran Eriksson að lesa hressilega yfir hausamótunum á sínum mönnum. Sport 13.10.2005 19:42
Englendingar niðurlægðir á Parken Danir unnu Englendinga 4-1 í vináttulandsleik í Parken í Kaupmannahöfn. Mörk Dana gerðu Dennis Rommendahl, Jon Dahl Tomsson, Sören Larsen og Mikael Gravgaard. Mark Englendinga gerði Wayne Rooney. Danir komust í 3-0 á níu mínútna kafla í seinni hálfeik. Sport 13.10.2005 19:42