Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024) Sjálfstæðismenn afgreiða samstarfstillögu Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur tekið til afgreiðslu tillögu um stjórnarsamstarf. Óljóst er hvaða flokkar kæmu að því samstarfi. Að sama skapi er óljóst hvort samstarf Sjálfstæðisflokksins, Framsóknar og Vinstri grænna haldi áfram. Innlent 8.4.2024 21:12 Alþingi óstarfhæft vegna óvissu um stjórnarmyndun Þingstörf eru í óvissu á meðan ekki hefur verið mynduð ný ríkisstjórn í landinu. Ekkert varð af þingfundi í dag þar sem þrettán stjórnarfrumvörp voru á dagskránni vegna anna ráðherra við stjórnarmyndunarviðræður. Innlent 8.4.2024 19:21 Ríkisstjórnin dansi stóladans á meðan engin stjórni landinu Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, segir í reynd enga ríkisstjórn starfandi í landinu og á meðan eyði ráðherrarnir tíma í stólaleik sem vinni ekki fyrir hag almennings. Hún segir að það hefði verið galið að fresta ekki þingfundi í dag. Innlent 8.4.2024 18:01 Útlilokar ekki að leggja fram vantraust færi Svandís sig Inga Sæland útilokar ekki að hún haldi áfram að leggja fram vantrauststillögur á hendur Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra færi hún sig í annan ráðherrastól. Hún lagði fram vantrauststillögu í annað sinn í dag. Innlent 8.4.2024 17:16 Telur að ríkisstjórnin lifi þetta ekki af Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, kallar eftir því að Íslendingar kjósi til Alþingis þar sem ríkisstjórnin hafi engan vilja til þess að gera betri hluti fyrir þjóðina. Hann segir atburðarás síðustu daga afar áhugaverða. Innlent 8.4.2024 15:46 Hefðu lent í vandræðum án frestunar Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingkona Pírata sagði það í raun eðlilegt að Birgir Ármannsson, forseti þingsins, hefði tekið öll mál af dagskrá og slitið fundi. Ríkisstjórnin sé ekki starfhæf og ekki við hæfi að ræða mál á þingi sem ekki sé hægt að leysa. Innlent 8.4.2024 15:26 Katrín ekki lengur þingmaður Katrín Jakobsdóttir, fráfarandi forsætisráðherra, er ekki lengur þingmaður. Hún sagði af sér þingmennsku í dag með bréfi sem hún sendi forseta Alþingis. Hann hóf þingfundinn í dag á því að lesa bréfið upp. Innlent 8.4.2024 15:02 Leggur aftur fram vantrauststillögu á Svandísi Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, hefur lagt fram nýja vantrauststillögu á hendur Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra. Þingmenn flokksins krefjast þess að hún víki úr embætti þegar í stað. Innlent 8.4.2024 14:39 Kynna allt saman í einum pakka Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og utanríkisráðherra, segist ekki vita hvenær viðræðum formanna stjórnarflokkanna lýkur. Þær gangi í takt við aðstæður. Bjarni ræddi við blaðamenn að loknum fundi þingflokka á Alþingi í dag. Innlent 8.4.2024 14:20 Telja að Þórdís Kolbrún verði forsætisráðherra Fyrrverandi þingmaður Miðflokksins og fyrrverandi formaður Neytendasamtakanna spá því að Sjálfstæðisflokkurinn taki við forsætisráðuneytinu. Þá telja þeir ólíklegt að formaður flokksins geri tilkall til forsætisráðherrastólsins og líklegra að varaformaðurinn setjist í það sæti. Innlent 8.4.2024 11:16 Erfið fæðing hjá nýrri ríkisstjórn Forystufólk stjórnarflokkanna situr enn á rökstólum um framtíð stjórnarsamstarfsins og hver verði næsti forsætisráðherra og kynna ef til vill niðurstöður sínar á reglulegum þingflokksfundum strax eftir hádegi. Reiknað er með að Katrín Jakobsdóttir segi af sér þingmennsku í dag. Innlent 8.4.2024 11:00 Reglubundnir þingflokksfundir á dagskrá klukkan 13 Þingflokksformenn stjórnarflokkanna þriggja hafa boðað til reglubundinna funda þingflokka klukkan 13 í dag. Gera má ráð fyrir að á fundunum munu formenn flokkanna fara yfir stöðuna í viðræðunum um áframhaldandi stjórnarsamstarf. Innlent 8.4.2024 08:45 Ósanngjarnt gagnvart hinum hefji Katrín baráttuna strax Prófessor í stjórnmálafræði býst ekki við að biðin eftir tilkynningu um endurskipaða ríkisstjórn dragist á langinn. Hún segir það ósanngjarnt gagnvart öðrum frambjóðendum ef forsætisráðherra myndi hefja kosningabaráttuna að fullu meðan hún situr enn í ráðherrastóli. Innlent 7.4.2024 22:30 Telur ekkert að því að sitjandi forsætisráðherra bjóði sig fram Forsætisráðherra baðst lausnar úr embætti sínu í dag til þess að bjóða sig fram til forseta Íslands. Fráfarandi forseti segir atburðarásina ekki óheppilega en ráðherra telur ríkisstjórnina ekki falla gangi hún frá borðinu. Innlent 7.4.2024 19:41 Ánægð með ákvörðun sína og hlakkar til framhaldsins Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir það hafa legið ljóst fyrir þegar hún tók ákvörðun um að bjóða sig fram í embætti forseta að það að hún væri sitjandi forsætisráðherra kæmi til með að flækja málin. Ákvörðunin sitji vel í henni og hún hlakki til komandi kosningabaráttu. Innlent 7.4.2024 15:59 „Óneitanlega óvenjulegt“ Guðni Th. Jóhannesson ræddi við formenn stjórnar- og stjórnarandstöðuflokka símleiðis og segist viss um að senn komi í ljós hverjar lyktir viðræðna stjórnarflokkanna verða og þar af leiðandi hver verður næsti forsætisráðherra Íslands. Innlent 7.4.2024 15:30 Katrín verður forsætisráðherra þangað til að ný stjórn er mynduð Fundi Guðna Th. Jóhannessonar og Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra lauk rétt í þessu og í kjölfarið ávarpaði Guðni fjölmiðla á Bessastöðum. Hann flutti yfirlýsingu þar sem hann greindi frá því að hann hefði samþykkt lausnarbeiðni Katrínar Jakobsdóttur en falið henni og ráðuneyti hennar að sitja áfram þar til ný ríkisstjórn hefur verið mynduð. Innlent 7.4.2024 14:54 Segir afsögn sína heillaspor fyrir VG Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir afsögn sína sem formanns flokksins gefa Vinstri grænum tækifæri og svigrúm til breytinga og að brottför sín úr flokknum verði heillaspor. Innlent 7.4.2024 12:10 Þjóðin geti krafist þess að nýr forsætisráðherra verði valinn í dag Prófessor í stjórnmálafræði segir þjóðina geta sett þá kröfu á leiðtoga ríkisstjórnarflokkanna að nýr forsætisráðherra verði valinn í dag. Hann telur líklegast að formaður Framsóknarflokksins taki við embættinu. Innlent 7.4.2024 12:08 Funda stíft og reyna að semja áður en Katrín biðst lausnar Leiðtogar ríkisstjórnarflokkanna halda áfram að funda um framtíð stjórnarsamstarfsins í dag. Leiðtogarnir funduðu fram á kvöld í gær eftir stíf fundahöld bróðurpart dagsins. Innlent 7.4.2024 10:34 Vaktin: Katrín situr áfram í bili Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fundaði með forseta Íslands og baðst lausnar. Hún mun sitja áfram í starfsstjórn. Innlent 7.4.2024 09:37 Skiptar skoðanir á útspili Katrínar Skiptar skoðanir eru á útspili Katrínar Jakobsdóttur fráfarandi forsætisráðherra í tengslum við forsetaframboð hennar. Einhverjir hlakka til að kjósa hana meðan aðrir saka hana um ábyrgðarleysi Innlent 6.4.2024 22:36 Katrín pakkar saman Katrín Jakobsdóttir fráfarandi forsætisráðherra og forsetaframbjóðandi pakkaði eigum sínum á skrifstofu forsætisráðherra fyrr í dag. Innlent 6.4.2024 20:36 „Þau eru að rífast um forsætisráðherrastólinn“ Forystumenn ríkisstjórnarflokkanna hafa fundað stíft í dag um framtíð stjórnarinnar vegna forsetaframboðs Katrínar Jakobsdóttur. Formaður flokks fólksins segir að um slag um forsætisráðherrastólinn sé að ræða. Formaður Miðflokksins furðar sig á hve óundirbúnir stjórnarflokkarnir voru undir ákvörðun Katrínar. Innlent 6.4.2024 19:41 Ákvörðun stjórnarflokkanna „alls ekki flókin“ Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði segir aðstæður sem upp eru komnar varðandi forsætisráðuneytið vera mjög óvanalegar. Þó séu fordæmi fyrir því að forsætisráðherra biðji lausnar fyrir sig án þess að biðja lausnar fyrir ráðuneyti sitt. Hann býst við að niðurstaða muni liggja fyrir áður en Katrín fer á Bessastaði. Innlent 6.4.2024 17:18 Ríkisstjórnin hafi ekki nema sólarhring til að ráða ráðum sínum Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs og fyrrverandi borgarstjóri, er hugsi yfir því að fulltrúar stjórnarflokkanna virðist telja að þeir hafi góðan tíma til að ráða ráðum sínum um áframhald stjórnarsamstarfsins. Stjórnskipaninni samkvæmt hafi þeir ekki nema sólarhringinn til að leysa úr sínum málum. Innlent 6.4.2024 14:40 Hefur litla trú á að ríkisstjórnin haldi út kjörtímabilið Leiðtogar stjórnarflokkanna hafa síðan í morgun fundað um framtíð ríkisstjórnarinnar. Formaður Flokks fólksins hefur litla trú á að ríkisstjórnin haldi út kjörtímabilið. Hún og fleiri í minnihlutanum geti hugsað sér að styðja ríkisstjórnina til að klára ákveðin mál í gegnum þingið í vor en hún vænti þess að þingkosningar verði í haust. Innlent 6.4.2024 11:58 Þórdís verði forsætisráðherra og Bjarni komi nýr inn Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, tekur eins og margir þátt í samkvæmisleiknum um það hver verði stólaskipan ríkisstjórnarinnar eftir helgi. Hún veðjar á að Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir verði forsætisráðherra og Bjarni Jónsson matvælaráðherra. Innlent 6.4.2024 07:51 Gagnrýna bæjarstjórn fyrir samráðsleysi og vilja fjölbreyttari úrræði Fyrirtæki í Grindavík kalla eftir mun fjölbreyttari úrræðum vegna stöðunnar í bænum. Algjör óvissa sé um hvort og hvenær íbúar geti snúið til baka og því ljóst að hluti fyrirtækja muni þurfa að hætta starfsemi í bænum. Bæjarstjórn er gagnrýnd fyrir samráðsleysi. Innlent 5.4.2024 20:01 Vinstri græn vilja halda samstarfinu áfram Fullur vilji er hjá Vinstri grænum að halda ríkisstjórnarsamstarfinu áfram eftir brotthvarf Katrínar Jakobsdóttur sem forsætisráðherra, að sögn Guðmundar Inga Guðbrandssonar, starfandi formanns flokksins. Hann segist ekki hafa ákveðið hvort hann sækist eftir að leysa Katrínu af hólmi. Innlent 5.4.2024 18:54 « ‹ 1 2 3 4 5 6 7 8 9 … 148 ›
Sjálfstæðismenn afgreiða samstarfstillögu Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur tekið til afgreiðslu tillögu um stjórnarsamstarf. Óljóst er hvaða flokkar kæmu að því samstarfi. Að sama skapi er óljóst hvort samstarf Sjálfstæðisflokksins, Framsóknar og Vinstri grænna haldi áfram. Innlent 8.4.2024 21:12
Alþingi óstarfhæft vegna óvissu um stjórnarmyndun Þingstörf eru í óvissu á meðan ekki hefur verið mynduð ný ríkisstjórn í landinu. Ekkert varð af þingfundi í dag þar sem þrettán stjórnarfrumvörp voru á dagskránni vegna anna ráðherra við stjórnarmyndunarviðræður. Innlent 8.4.2024 19:21
Ríkisstjórnin dansi stóladans á meðan engin stjórni landinu Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, segir í reynd enga ríkisstjórn starfandi í landinu og á meðan eyði ráðherrarnir tíma í stólaleik sem vinni ekki fyrir hag almennings. Hún segir að það hefði verið galið að fresta ekki þingfundi í dag. Innlent 8.4.2024 18:01
Útlilokar ekki að leggja fram vantraust færi Svandís sig Inga Sæland útilokar ekki að hún haldi áfram að leggja fram vantrauststillögur á hendur Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra færi hún sig í annan ráðherrastól. Hún lagði fram vantrauststillögu í annað sinn í dag. Innlent 8.4.2024 17:16
Telur að ríkisstjórnin lifi þetta ekki af Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, kallar eftir því að Íslendingar kjósi til Alþingis þar sem ríkisstjórnin hafi engan vilja til þess að gera betri hluti fyrir þjóðina. Hann segir atburðarás síðustu daga afar áhugaverða. Innlent 8.4.2024 15:46
Hefðu lent í vandræðum án frestunar Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingkona Pírata sagði það í raun eðlilegt að Birgir Ármannsson, forseti þingsins, hefði tekið öll mál af dagskrá og slitið fundi. Ríkisstjórnin sé ekki starfhæf og ekki við hæfi að ræða mál á þingi sem ekki sé hægt að leysa. Innlent 8.4.2024 15:26
Katrín ekki lengur þingmaður Katrín Jakobsdóttir, fráfarandi forsætisráðherra, er ekki lengur þingmaður. Hún sagði af sér þingmennsku í dag með bréfi sem hún sendi forseta Alþingis. Hann hóf þingfundinn í dag á því að lesa bréfið upp. Innlent 8.4.2024 15:02
Leggur aftur fram vantrauststillögu á Svandísi Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, hefur lagt fram nýja vantrauststillögu á hendur Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra. Þingmenn flokksins krefjast þess að hún víki úr embætti þegar í stað. Innlent 8.4.2024 14:39
Kynna allt saman í einum pakka Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og utanríkisráðherra, segist ekki vita hvenær viðræðum formanna stjórnarflokkanna lýkur. Þær gangi í takt við aðstæður. Bjarni ræddi við blaðamenn að loknum fundi þingflokka á Alþingi í dag. Innlent 8.4.2024 14:20
Telja að Þórdís Kolbrún verði forsætisráðherra Fyrrverandi þingmaður Miðflokksins og fyrrverandi formaður Neytendasamtakanna spá því að Sjálfstæðisflokkurinn taki við forsætisráðuneytinu. Þá telja þeir ólíklegt að formaður flokksins geri tilkall til forsætisráðherrastólsins og líklegra að varaformaðurinn setjist í það sæti. Innlent 8.4.2024 11:16
Erfið fæðing hjá nýrri ríkisstjórn Forystufólk stjórnarflokkanna situr enn á rökstólum um framtíð stjórnarsamstarfsins og hver verði næsti forsætisráðherra og kynna ef til vill niðurstöður sínar á reglulegum þingflokksfundum strax eftir hádegi. Reiknað er með að Katrín Jakobsdóttir segi af sér þingmennsku í dag. Innlent 8.4.2024 11:00
Reglubundnir þingflokksfundir á dagskrá klukkan 13 Þingflokksformenn stjórnarflokkanna þriggja hafa boðað til reglubundinna funda þingflokka klukkan 13 í dag. Gera má ráð fyrir að á fundunum munu formenn flokkanna fara yfir stöðuna í viðræðunum um áframhaldandi stjórnarsamstarf. Innlent 8.4.2024 08:45
Ósanngjarnt gagnvart hinum hefji Katrín baráttuna strax Prófessor í stjórnmálafræði býst ekki við að biðin eftir tilkynningu um endurskipaða ríkisstjórn dragist á langinn. Hún segir það ósanngjarnt gagnvart öðrum frambjóðendum ef forsætisráðherra myndi hefja kosningabaráttuna að fullu meðan hún situr enn í ráðherrastóli. Innlent 7.4.2024 22:30
Telur ekkert að því að sitjandi forsætisráðherra bjóði sig fram Forsætisráðherra baðst lausnar úr embætti sínu í dag til þess að bjóða sig fram til forseta Íslands. Fráfarandi forseti segir atburðarásina ekki óheppilega en ráðherra telur ríkisstjórnina ekki falla gangi hún frá borðinu. Innlent 7.4.2024 19:41
Ánægð með ákvörðun sína og hlakkar til framhaldsins Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir það hafa legið ljóst fyrir þegar hún tók ákvörðun um að bjóða sig fram í embætti forseta að það að hún væri sitjandi forsætisráðherra kæmi til með að flækja málin. Ákvörðunin sitji vel í henni og hún hlakki til komandi kosningabaráttu. Innlent 7.4.2024 15:59
„Óneitanlega óvenjulegt“ Guðni Th. Jóhannesson ræddi við formenn stjórnar- og stjórnarandstöðuflokka símleiðis og segist viss um að senn komi í ljós hverjar lyktir viðræðna stjórnarflokkanna verða og þar af leiðandi hver verður næsti forsætisráðherra Íslands. Innlent 7.4.2024 15:30
Katrín verður forsætisráðherra þangað til að ný stjórn er mynduð Fundi Guðna Th. Jóhannessonar og Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra lauk rétt í þessu og í kjölfarið ávarpaði Guðni fjölmiðla á Bessastöðum. Hann flutti yfirlýsingu þar sem hann greindi frá því að hann hefði samþykkt lausnarbeiðni Katrínar Jakobsdóttur en falið henni og ráðuneyti hennar að sitja áfram þar til ný ríkisstjórn hefur verið mynduð. Innlent 7.4.2024 14:54
Segir afsögn sína heillaspor fyrir VG Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir afsögn sína sem formanns flokksins gefa Vinstri grænum tækifæri og svigrúm til breytinga og að brottför sín úr flokknum verði heillaspor. Innlent 7.4.2024 12:10
Þjóðin geti krafist þess að nýr forsætisráðherra verði valinn í dag Prófessor í stjórnmálafræði segir þjóðina geta sett þá kröfu á leiðtoga ríkisstjórnarflokkanna að nýr forsætisráðherra verði valinn í dag. Hann telur líklegast að formaður Framsóknarflokksins taki við embættinu. Innlent 7.4.2024 12:08
Funda stíft og reyna að semja áður en Katrín biðst lausnar Leiðtogar ríkisstjórnarflokkanna halda áfram að funda um framtíð stjórnarsamstarfsins í dag. Leiðtogarnir funduðu fram á kvöld í gær eftir stíf fundahöld bróðurpart dagsins. Innlent 7.4.2024 10:34
Vaktin: Katrín situr áfram í bili Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fundaði með forseta Íslands og baðst lausnar. Hún mun sitja áfram í starfsstjórn. Innlent 7.4.2024 09:37
Skiptar skoðanir á útspili Katrínar Skiptar skoðanir eru á útspili Katrínar Jakobsdóttur fráfarandi forsætisráðherra í tengslum við forsetaframboð hennar. Einhverjir hlakka til að kjósa hana meðan aðrir saka hana um ábyrgðarleysi Innlent 6.4.2024 22:36
Katrín pakkar saman Katrín Jakobsdóttir fráfarandi forsætisráðherra og forsetaframbjóðandi pakkaði eigum sínum á skrifstofu forsætisráðherra fyrr í dag. Innlent 6.4.2024 20:36
„Þau eru að rífast um forsætisráðherrastólinn“ Forystumenn ríkisstjórnarflokkanna hafa fundað stíft í dag um framtíð stjórnarinnar vegna forsetaframboðs Katrínar Jakobsdóttur. Formaður flokks fólksins segir að um slag um forsætisráðherrastólinn sé að ræða. Formaður Miðflokksins furðar sig á hve óundirbúnir stjórnarflokkarnir voru undir ákvörðun Katrínar. Innlent 6.4.2024 19:41
Ákvörðun stjórnarflokkanna „alls ekki flókin“ Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði segir aðstæður sem upp eru komnar varðandi forsætisráðuneytið vera mjög óvanalegar. Þó séu fordæmi fyrir því að forsætisráðherra biðji lausnar fyrir sig án þess að biðja lausnar fyrir ráðuneyti sitt. Hann býst við að niðurstaða muni liggja fyrir áður en Katrín fer á Bessastaði. Innlent 6.4.2024 17:18
Ríkisstjórnin hafi ekki nema sólarhring til að ráða ráðum sínum Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs og fyrrverandi borgarstjóri, er hugsi yfir því að fulltrúar stjórnarflokkanna virðist telja að þeir hafi góðan tíma til að ráða ráðum sínum um áframhald stjórnarsamstarfsins. Stjórnskipaninni samkvæmt hafi þeir ekki nema sólarhringinn til að leysa úr sínum málum. Innlent 6.4.2024 14:40
Hefur litla trú á að ríkisstjórnin haldi út kjörtímabilið Leiðtogar stjórnarflokkanna hafa síðan í morgun fundað um framtíð ríkisstjórnarinnar. Formaður Flokks fólksins hefur litla trú á að ríkisstjórnin haldi út kjörtímabilið. Hún og fleiri í minnihlutanum geti hugsað sér að styðja ríkisstjórnina til að klára ákveðin mál í gegnum þingið í vor en hún vænti þess að þingkosningar verði í haust. Innlent 6.4.2024 11:58
Þórdís verði forsætisráðherra og Bjarni komi nýr inn Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, tekur eins og margir þátt í samkvæmisleiknum um það hver verði stólaskipan ríkisstjórnarinnar eftir helgi. Hún veðjar á að Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir verði forsætisráðherra og Bjarni Jónsson matvælaráðherra. Innlent 6.4.2024 07:51
Gagnrýna bæjarstjórn fyrir samráðsleysi og vilja fjölbreyttari úrræði Fyrirtæki í Grindavík kalla eftir mun fjölbreyttari úrræðum vegna stöðunnar í bænum. Algjör óvissa sé um hvort og hvenær íbúar geti snúið til baka og því ljóst að hluti fyrirtækja muni þurfa að hætta starfsemi í bænum. Bæjarstjórn er gagnrýnd fyrir samráðsleysi. Innlent 5.4.2024 20:01
Vinstri græn vilja halda samstarfinu áfram Fullur vilji er hjá Vinstri grænum að halda ríkisstjórnarsamstarfinu áfram eftir brotthvarf Katrínar Jakobsdóttur sem forsætisráðherra, að sögn Guðmundar Inga Guðbrandssonar, starfandi formanns flokksins. Hann segist ekki hafa ákveðið hvort hann sækist eftir að leysa Katrínu af hólmi. Innlent 5.4.2024 18:54