Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024) Vilja meina að ákvörðunin hafi ekki ráðið úrslitum ríkisstjórnarinnar Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um áframhaldandi hvalveiðar hafi ekki bjargað ríkisstjórnarsamstarfinu. Vissulega hafi málið verið umdeilt meðal stjórnarflokkanna, en það hafi aldrei ógnað samstarfinu. Innlent 31.8.2023 14:45 Framtíð hvalveiða Óvissa ríkir um framtíð hvalveiða á Íslandi. Enginn í heiminum veiðir langreyðar í atvinnuskyni annar en einn aðili, á Íslandi. Það segir sína sögu. Raunar er atvinnugreinin ekki til hér á landi nema sem vertíðarvinna, og það ekki á hverju ári. Skoðun 31.8.2023 14:32 Loftbrú – jákvæðar fjárfestingar í þágu barna Við Íslendingar leggjum mikla áherslu á öflugt íþróttastarf. Það stuðlar að aukinni heilsu, öflugum forvörnum auk þess sem það eflir félagslegan þroska, og er börnum og ungmennum sérstaklega jákvæð reynsla. Nær öll ungmenni hér á landi stunda einhverja íþrótt og sum jafnvel fleiri en eina. Við sjáum þau jákvæðu áhrif sem virk þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi hefur á börnin okkar, áhrif sem fylgja þeim út í lífið. Skoðun 31.8.2023 13:30 „Mjög sorglegur dagur fyrir okkar samfélag“ „Mér finnst þetta mjög sorglegur dagur fyrir okkar samfélag,“ segir Katrín Oddsdóttir, lögmaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, aðspurð um þá ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra að heimila hvalveiðar á ný. Innlent 31.8.2023 12:35 „Ekki ráðherra til að fá útrás fyrir sína villtustu drauma“ Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, segir að margar hugmyndir hafi verið lagðar fram sem ættu að leiða til færri frávika við hvalveiðar. Hvalveiðar hefjast aftur á morgun en með ítarlegum skilyrðum en Svandís þvertekur fyrir að hún sé að láta undan hótunum með því að leyfa veiðarnar aftur. Innlent 31.8.2023 12:35 Hvalveiðivertíðin hefst á morgun með hertum skilyrðum Hvalveiðar geta hafist á morgun en með hertum skilyrðum. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra ætlar að setja nýja reglugerð í dag sem ætlað er að bæta umgjörð veiða á langreyðum. Með reglugerðinni er brugðist við niðurstöðum eftirlitsskýrslu Matvælastofnunar um veiðar á langreyðum árið 2022, áliti fagráðs um velferð dýra og skýrslu starfshóps um mat á leiðum til að fækka frávikum við veiðarnar. Innlent 31.8.2023 11:54 Tökum saman á neikvæðum áhrifum snjallsíma! Flest þekkjum við þau áhrif og tæknibreytingar sem þróun snjallsíma hefur haft á líf okkar, við erum orðin vön því að hafa allar upplýsingar, bæði gagnlegar og ógagnlegar við höndina. Við þekkjum líka flest hversu auðvelt það er að ánetjast símanum og eyða miklu meira tíma en við viljum í marklausu vafri um samfélagsmiðla og vefsíður. Skoðun 31.8.2023 11:31 Vaktin: Hvalveiðar hefjast að nýju Hvalveiðar hefjast á ný á morgun. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra kynnti í dag ákvörðun sína um hvalveiðar sem verða með strangara eftirlit en áður. Innlent 31.8.2023 09:52 Dagskrá riðlast vegna seinkunar á flugi Flugi Icelandair frá Reykjavík til Egilsstaða seinkaði um eina og hálfa klukkustund í morgun. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar eru um borð en sumarfundur ríkisstjórnarinnar fer fram á Egilsstöðum í dag. Reiknað er með því að matvælaráðherra tilkynni um ákvörðun sína varðandi hvalveiðar á fundinum. Innlent 31.8.2023 09:09 Ætlar að tvöfalda uppbyggingu til að bregðast við niðursveiflu Framboð á nýjum íbúðum virðist vera að dragast saman þrátt fyrir að ríki og borg hafi gert með sér tímamótasamkomulag á síðasta ári um fjölgun þeirra. Innviðaráðherra segist ætla að tvöfalda uppbyggingu leiguíbúða á næstu þremur árum. Innlent 30.8.2023 21:39 Segir Vinstri græn hafa gert brotthvarf sitt að skilyrði Jón Gunnarsson, fyrrverandi dómsmálaráðherra, segir að þingmenn og ráðherrar Vinstri grænna hafi gert kröfu um það að hann viki úr ríkisstjórn gegn því að verja hann gegn vantrauststillögu sem lögð var fram á þingi í vor. Hann segist ekki ætla að vera meðsekur með Svandísi Svavarsdóttur, matvælaráðherra í hvalveiðimálinu og telur hana hafa gerst brotlega við lög. Innlent 30.8.2023 18:38 Svandís greinir frá ákvörðun um hvalveiðar á Egilsstöðum Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra ætlar að greina frá ákvörðun sinni varðandi framhald hvalveiða að loknum ríkisstjórnarfundi á morgun. Þetta staðfestir Dúi Landmark upplýsingafulltrúi í matvælaráðuneytinu. Um er að ræða sumarfund ríkisstjórnarinnar sem fer fram á Egilsstöðum. Innlent 30.8.2023 14:03 Pólitískt meðvitundarleysi ríkisstjórnar Í sumar hefur lítið heyrst frá ríkisstjórninni annað en hávær rifrildi innan úr stjórnarráðinu. Á sama tíma glímir almenningur við raunverulegan vanda. Vaxtahækkanir og verðbólga rýra ráðstöfunartekjur og óvissan um framhaldið er mikil. Skoðun 30.8.2023 07:30 Eins og óhamingjusöm hjón sem rífast alltaf úti á svölum Þingmaður Viðreisnar líkir stjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokksins, Vinstri grænna og Framsóknarflokksins við afar óhamingjusöm hjón. Ráðherrar þurfi að hætta að rífast og fara að hugsa um fólkið í landinu. Innlent 30.8.2023 06:48 Væntir þess að bankastjórar láti neytendur njóta hagræðingar Verðskrár viðskiptabankanna eru flóknar og ógagnsæjar og stofna ætti vefsíðu þar sem neytendur geta gert verðsamanburð. Þetta er meðal þess sem starfshópur um greiningu og arðsemi íslensku bankanna leggur til í nýrri skýrslu. Viðskipti innlent 29.8.2023 22:31 Ólga meðal útgerðarinnar vegna tillagna ráðherra Matvælaráðherra ætlar að hækka veiðigjald, auka gagnsæi í sjávarútvegi og leggur til auðlindaákvæði í stjórnarskrá. SFS gagnrýnir áætlanir um hækkunina. Ráðherrann veitist að meðalstórum útgerðafyrirtækjum, segir talsmaður þeirra Innlent 29.8.2023 19:01 Ýmislegt bendi til þess að bankar geti lækkað álagningu Ýmis atriði gefa vísbendingar um möguleika bankanna til aukinnar arðsemi eða lækkunar álagningar. Þetta segir í niðurstöðu starfshóps menningar- og viðskiptaráðherra í skýrslu um greiningu á gjaldtöku og arðsemi viðskiptabankanna. Neytendur 29.8.2023 17:29 Bein útsending: Landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra stendur fyrir rafrænum fundi um málefni fatlaðs fólks sem hefst núna klukkan 17. Hægt verður að fylgjast með fundinum í spilara að neðan. Innlent 29.8.2023 16:31 „Þau verða bara að tala saman“ Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, hefur ekki tekið ákvörðun um það hvort hún ætli að viðhalda veiðibanni á stórhvölum. Hún segist stefna á að taka ákvörðun sem fyrst en starfsmenn ráðuneytis hennar séu að vinna úr skýrslu sem birt var í gær um frávik við veiðar á hvölum. Innlent 29.8.2023 14:29 Verkefni af þessari stærðargráðu þurfi að vinna með faglegum hætti Formaður BHM telur mikilvægt að áform ríkisstjórnarinnar um hagræðingu í ríkisrekstri fari fram með faglegum hætti og sé studd með málefnalegum rökum Innlent 29.8.2023 13:24 Leggja til auðlindaákvæði í stjórnarskrá og fínpússun á veiðigjaldi Kvótakerfinu verður viðhaldið og veiðigjald verður að miklu leyti óbreytt fari stjórnvöld að tillögum starfshóps sem matvælaráðherra fól að gaumgæfa stöðu sjávarútvegarins. Hópurinn leggur til að sameign þjóðarinnar á fiskveiðiauðlindinni verði lögfest í stjórnarskrá. Innlent 29.8.2023 13:16 Þingflokksformaður vill geta horft í spegil Þingflokksformenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar virðast ekki útiloka stuðning við vantrauststillögu á hendur matvælaráðherra, komi hún fram. Bæjarstjóri segir hvalveiðibannið risastórt mál í huga Sjálfstæðismanna og gerir fastlega ráð fyrir því að tillagan verði lögð fram ef athugun leiðir í ljós að stjórnsýslulög hafi verið brotin. Innlent 29.8.2023 12:21 Segist voða lítið í „ef“ spurningum Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins, segist ekki ætla að svara „ef“ spurningum um stuðning Framsóknar við Svandísi Svavarsdóttur, matvælaráðherra, komi til þess að vantrausti verði lýst yfir á hendur ráðherranum og sú tillaga mögulega studd af Sjálfstæðismönnum. Innlent 29.8.2023 12:18 Bein útsending: Starfshópar Svandísar kynna sjálfbærni í sjávarútvegi Starfshópar verkefnisins Auðlindin okkar munu kynna niðurstöður sínar er varða sjálfbærni í sjávarútvegi. Hægt verður að fylgjast með streymi af fundinum í spilaranum hér fyrir neðan. Innlent 29.8.2023 11:46 Leggja taugaóstyrkir Sjálfstæðismenn ef til vill sjálfir fram vantraust? „Sjálfstæðisflokkurinn er farinn á taugum,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar um stöðu stjórnarsamstarfsins. Tilefnið eru vangaveltur um mögulegt vantraust á Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra. Innlent 29.8.2023 11:46 DiCaprio hvetur Ísland til að banna hvalveiðar alfarið Bandaríski stórleikarinn Leonardo DiCaprio hvetur íslensk stjórnvöld til þess að banna hvalveiðar til frambúðar í færslu á samfélagsmiðlinum Instagram þar sem fleiri en sextíu milljónir manna fylgja honum. Tímabundið bann við hvalveiðum rennur út á föstudag. Erlent 29.8.2023 09:02 Elliði telur einsýnt að vantrauststillaga verði lögð fram gegn Svandísi Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, telur að vantrauststillaga verði lögð fram gegn Svandísi Svavarsdóttur á haustþingi ef Umboðsmaður Alþingis kemst að þeirri niðurstöðu að hún hafi farið gegn lögum þegar hún frestaði hvalveiðum. Innlent 29.8.2023 06:37 „Harðasta stjórnarandstaðan í landinu er inni í ríkisstjórninni“ Prófessor í stjórnmálafræði segir matvælaráðherra í mjög þröngri stöðu hvað varðar ákvörðun um hvalveiðar. Frestun á leyfi til hvalveiða rennur út á föstudag. Þá segir hann alvarlega bresti í ríkisstjórnarsamstarfinu komna í ljós. Innlent 28.8.2023 21:38 Ekki nóg að bæta bara strætó Framkvæmdastjóri félags sem stofnað var utan um samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins segir það fullreynt að efla strætó án þess að byggja borgarlínu líkt og þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur lagt til. Eðlilegt sé að uppfæra sáttmálann nú þegar fjögur ár eru síðan skrifað var undir hann. Innlent 28.8.2023 19:05 Tillögur og úrbætur til þess fallnar að hafa áhrif á árangur hvalveiða Starfshópur, sem matvælaráðherra skipaði í júní til að meta leiðir til að fækka frávikum við veiðar á langreyðum, telur mögulegt að bæta aðferðir við veiðar á stórhvölum. Hópurinn segir það þó utan verksviðs síns að meta hvort úrbætur væru til þess fallnar að færa velferð dýra við veiðar á stórhvölum í ásættanlegt horf út frá löggjöf sem um veiðarnar gilda. Innlent 28.8.2023 16:47 « ‹ 33 34 35 36 37 38 39 40 41 … 148 ›
Vilja meina að ákvörðunin hafi ekki ráðið úrslitum ríkisstjórnarinnar Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um áframhaldandi hvalveiðar hafi ekki bjargað ríkisstjórnarsamstarfinu. Vissulega hafi málið verið umdeilt meðal stjórnarflokkanna, en það hafi aldrei ógnað samstarfinu. Innlent 31.8.2023 14:45
Framtíð hvalveiða Óvissa ríkir um framtíð hvalveiða á Íslandi. Enginn í heiminum veiðir langreyðar í atvinnuskyni annar en einn aðili, á Íslandi. Það segir sína sögu. Raunar er atvinnugreinin ekki til hér á landi nema sem vertíðarvinna, og það ekki á hverju ári. Skoðun 31.8.2023 14:32
Loftbrú – jákvæðar fjárfestingar í þágu barna Við Íslendingar leggjum mikla áherslu á öflugt íþróttastarf. Það stuðlar að aukinni heilsu, öflugum forvörnum auk þess sem það eflir félagslegan þroska, og er börnum og ungmennum sérstaklega jákvæð reynsla. Nær öll ungmenni hér á landi stunda einhverja íþrótt og sum jafnvel fleiri en eina. Við sjáum þau jákvæðu áhrif sem virk þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi hefur á börnin okkar, áhrif sem fylgja þeim út í lífið. Skoðun 31.8.2023 13:30
„Mjög sorglegur dagur fyrir okkar samfélag“ „Mér finnst þetta mjög sorglegur dagur fyrir okkar samfélag,“ segir Katrín Oddsdóttir, lögmaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, aðspurð um þá ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra að heimila hvalveiðar á ný. Innlent 31.8.2023 12:35
„Ekki ráðherra til að fá útrás fyrir sína villtustu drauma“ Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, segir að margar hugmyndir hafi verið lagðar fram sem ættu að leiða til færri frávika við hvalveiðar. Hvalveiðar hefjast aftur á morgun en með ítarlegum skilyrðum en Svandís þvertekur fyrir að hún sé að láta undan hótunum með því að leyfa veiðarnar aftur. Innlent 31.8.2023 12:35
Hvalveiðivertíðin hefst á morgun með hertum skilyrðum Hvalveiðar geta hafist á morgun en með hertum skilyrðum. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra ætlar að setja nýja reglugerð í dag sem ætlað er að bæta umgjörð veiða á langreyðum. Með reglugerðinni er brugðist við niðurstöðum eftirlitsskýrslu Matvælastofnunar um veiðar á langreyðum árið 2022, áliti fagráðs um velferð dýra og skýrslu starfshóps um mat á leiðum til að fækka frávikum við veiðarnar. Innlent 31.8.2023 11:54
Tökum saman á neikvæðum áhrifum snjallsíma! Flest þekkjum við þau áhrif og tæknibreytingar sem þróun snjallsíma hefur haft á líf okkar, við erum orðin vön því að hafa allar upplýsingar, bæði gagnlegar og ógagnlegar við höndina. Við þekkjum líka flest hversu auðvelt það er að ánetjast símanum og eyða miklu meira tíma en við viljum í marklausu vafri um samfélagsmiðla og vefsíður. Skoðun 31.8.2023 11:31
Vaktin: Hvalveiðar hefjast að nýju Hvalveiðar hefjast á ný á morgun. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra kynnti í dag ákvörðun sína um hvalveiðar sem verða með strangara eftirlit en áður. Innlent 31.8.2023 09:52
Dagskrá riðlast vegna seinkunar á flugi Flugi Icelandair frá Reykjavík til Egilsstaða seinkaði um eina og hálfa klukkustund í morgun. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar eru um borð en sumarfundur ríkisstjórnarinnar fer fram á Egilsstöðum í dag. Reiknað er með því að matvælaráðherra tilkynni um ákvörðun sína varðandi hvalveiðar á fundinum. Innlent 31.8.2023 09:09
Ætlar að tvöfalda uppbyggingu til að bregðast við niðursveiflu Framboð á nýjum íbúðum virðist vera að dragast saman þrátt fyrir að ríki og borg hafi gert með sér tímamótasamkomulag á síðasta ári um fjölgun þeirra. Innviðaráðherra segist ætla að tvöfalda uppbyggingu leiguíbúða á næstu þremur árum. Innlent 30.8.2023 21:39
Segir Vinstri græn hafa gert brotthvarf sitt að skilyrði Jón Gunnarsson, fyrrverandi dómsmálaráðherra, segir að þingmenn og ráðherrar Vinstri grænna hafi gert kröfu um það að hann viki úr ríkisstjórn gegn því að verja hann gegn vantrauststillögu sem lögð var fram á þingi í vor. Hann segist ekki ætla að vera meðsekur með Svandísi Svavarsdóttur, matvælaráðherra í hvalveiðimálinu og telur hana hafa gerst brotlega við lög. Innlent 30.8.2023 18:38
Svandís greinir frá ákvörðun um hvalveiðar á Egilsstöðum Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra ætlar að greina frá ákvörðun sinni varðandi framhald hvalveiða að loknum ríkisstjórnarfundi á morgun. Þetta staðfestir Dúi Landmark upplýsingafulltrúi í matvælaráðuneytinu. Um er að ræða sumarfund ríkisstjórnarinnar sem fer fram á Egilsstöðum. Innlent 30.8.2023 14:03
Pólitískt meðvitundarleysi ríkisstjórnar Í sumar hefur lítið heyrst frá ríkisstjórninni annað en hávær rifrildi innan úr stjórnarráðinu. Á sama tíma glímir almenningur við raunverulegan vanda. Vaxtahækkanir og verðbólga rýra ráðstöfunartekjur og óvissan um framhaldið er mikil. Skoðun 30.8.2023 07:30
Eins og óhamingjusöm hjón sem rífast alltaf úti á svölum Þingmaður Viðreisnar líkir stjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokksins, Vinstri grænna og Framsóknarflokksins við afar óhamingjusöm hjón. Ráðherrar þurfi að hætta að rífast og fara að hugsa um fólkið í landinu. Innlent 30.8.2023 06:48
Væntir þess að bankastjórar láti neytendur njóta hagræðingar Verðskrár viðskiptabankanna eru flóknar og ógagnsæjar og stofna ætti vefsíðu þar sem neytendur geta gert verðsamanburð. Þetta er meðal þess sem starfshópur um greiningu og arðsemi íslensku bankanna leggur til í nýrri skýrslu. Viðskipti innlent 29.8.2023 22:31
Ólga meðal útgerðarinnar vegna tillagna ráðherra Matvælaráðherra ætlar að hækka veiðigjald, auka gagnsæi í sjávarútvegi og leggur til auðlindaákvæði í stjórnarskrá. SFS gagnrýnir áætlanir um hækkunina. Ráðherrann veitist að meðalstórum útgerðafyrirtækjum, segir talsmaður þeirra Innlent 29.8.2023 19:01
Ýmislegt bendi til þess að bankar geti lækkað álagningu Ýmis atriði gefa vísbendingar um möguleika bankanna til aukinnar arðsemi eða lækkunar álagningar. Þetta segir í niðurstöðu starfshóps menningar- og viðskiptaráðherra í skýrslu um greiningu á gjaldtöku og arðsemi viðskiptabankanna. Neytendur 29.8.2023 17:29
Bein útsending: Landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra stendur fyrir rafrænum fundi um málefni fatlaðs fólks sem hefst núna klukkan 17. Hægt verður að fylgjast með fundinum í spilara að neðan. Innlent 29.8.2023 16:31
„Þau verða bara að tala saman“ Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, hefur ekki tekið ákvörðun um það hvort hún ætli að viðhalda veiðibanni á stórhvölum. Hún segist stefna á að taka ákvörðun sem fyrst en starfsmenn ráðuneytis hennar séu að vinna úr skýrslu sem birt var í gær um frávik við veiðar á hvölum. Innlent 29.8.2023 14:29
Verkefni af þessari stærðargráðu þurfi að vinna með faglegum hætti Formaður BHM telur mikilvægt að áform ríkisstjórnarinnar um hagræðingu í ríkisrekstri fari fram með faglegum hætti og sé studd með málefnalegum rökum Innlent 29.8.2023 13:24
Leggja til auðlindaákvæði í stjórnarskrá og fínpússun á veiðigjaldi Kvótakerfinu verður viðhaldið og veiðigjald verður að miklu leyti óbreytt fari stjórnvöld að tillögum starfshóps sem matvælaráðherra fól að gaumgæfa stöðu sjávarútvegarins. Hópurinn leggur til að sameign þjóðarinnar á fiskveiðiauðlindinni verði lögfest í stjórnarskrá. Innlent 29.8.2023 13:16
Þingflokksformaður vill geta horft í spegil Þingflokksformenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar virðast ekki útiloka stuðning við vantrauststillögu á hendur matvælaráðherra, komi hún fram. Bæjarstjóri segir hvalveiðibannið risastórt mál í huga Sjálfstæðismanna og gerir fastlega ráð fyrir því að tillagan verði lögð fram ef athugun leiðir í ljós að stjórnsýslulög hafi verið brotin. Innlent 29.8.2023 12:21
Segist voða lítið í „ef“ spurningum Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins, segist ekki ætla að svara „ef“ spurningum um stuðning Framsóknar við Svandísi Svavarsdóttur, matvælaráðherra, komi til þess að vantrausti verði lýst yfir á hendur ráðherranum og sú tillaga mögulega studd af Sjálfstæðismönnum. Innlent 29.8.2023 12:18
Bein útsending: Starfshópar Svandísar kynna sjálfbærni í sjávarútvegi Starfshópar verkefnisins Auðlindin okkar munu kynna niðurstöður sínar er varða sjálfbærni í sjávarútvegi. Hægt verður að fylgjast með streymi af fundinum í spilaranum hér fyrir neðan. Innlent 29.8.2023 11:46
Leggja taugaóstyrkir Sjálfstæðismenn ef til vill sjálfir fram vantraust? „Sjálfstæðisflokkurinn er farinn á taugum,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar um stöðu stjórnarsamstarfsins. Tilefnið eru vangaveltur um mögulegt vantraust á Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra. Innlent 29.8.2023 11:46
DiCaprio hvetur Ísland til að banna hvalveiðar alfarið Bandaríski stórleikarinn Leonardo DiCaprio hvetur íslensk stjórnvöld til þess að banna hvalveiðar til frambúðar í færslu á samfélagsmiðlinum Instagram þar sem fleiri en sextíu milljónir manna fylgja honum. Tímabundið bann við hvalveiðum rennur út á föstudag. Erlent 29.8.2023 09:02
Elliði telur einsýnt að vantrauststillaga verði lögð fram gegn Svandísi Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, telur að vantrauststillaga verði lögð fram gegn Svandísi Svavarsdóttur á haustþingi ef Umboðsmaður Alþingis kemst að þeirri niðurstöðu að hún hafi farið gegn lögum þegar hún frestaði hvalveiðum. Innlent 29.8.2023 06:37
„Harðasta stjórnarandstaðan í landinu er inni í ríkisstjórninni“ Prófessor í stjórnmálafræði segir matvælaráðherra í mjög þröngri stöðu hvað varðar ákvörðun um hvalveiðar. Frestun á leyfi til hvalveiða rennur út á föstudag. Þá segir hann alvarlega bresti í ríkisstjórnarsamstarfinu komna í ljós. Innlent 28.8.2023 21:38
Ekki nóg að bæta bara strætó Framkvæmdastjóri félags sem stofnað var utan um samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins segir það fullreynt að efla strætó án þess að byggja borgarlínu líkt og þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur lagt til. Eðlilegt sé að uppfæra sáttmálann nú þegar fjögur ár eru síðan skrifað var undir hann. Innlent 28.8.2023 19:05
Tillögur og úrbætur til þess fallnar að hafa áhrif á árangur hvalveiða Starfshópur, sem matvælaráðherra skipaði í júní til að meta leiðir til að fækka frávikum við veiðar á langreyðum, telur mögulegt að bæta aðferðir við veiðar á stórhvölum. Hópurinn segir það þó utan verksviðs síns að meta hvort úrbætur væru til þess fallnar að færa velferð dýra við veiðar á stórhvölum í ásættanlegt horf út frá löggjöf sem um veiðarnar gilda. Innlent 28.8.2023 16:47