Skoðanakannanir Traustið ekki mælst minna í ellefu ár Traust til Seðlabanka Íslands hefur ekki mælst minna í ellefu ár. Samkvæmt nýrri könnun Maskínu ber næstum helmingur landsmanna lítið traust til bankans, eða fjörutíu og sjö prósent. Viðskipti innlent 10.11.2023 10:27 Mikill meirihluti landsmanna óánægður með ákvörðunina Sjö af hverjum tíu Íslendingum eru ósáttir við hvernig Ísland ráðstafaði atkvæði sínu í atkvæðagreiðslu um þingsályktunartillögu á þingi Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé á Gasaströndinni. Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu. Konur eru mun óánægðari en karlar. Þá er mestur stuðningur við ákvörðun Íslands hjá kjósendum Sjálfstæðisflokksins. Innlent 8.11.2023 12:30 Samfylkingin fengi jafnmarga þingmenn og ríkisstjórnin Samfylkingin fengi jafnmarga þingmenn og stjórnarflokkarnar þrír samanlagt ef gengið yrði til kosninga í dag. Innlent 1.11.2023 23:16 Stuðningur við ríkisstjórnina svipaður og við Samfylkingu Stuðningur við Samfylkinguna mælist nú nærri samanlögðu fylgi stjórnarflokkanna þriggja samkvæmt nýrri könnun. Forsætisráðherra segir fylgistap Vinstri Grænna áhyggjuefni og telur ágreininginn sem verið hefur milli stjórnarflokkanna ekki falla þjóðinni í geð. Innlent 25.10.2023 19:16 Þrír af hverjum fjórum telja íslenska laxinum stafa hætta af laxeldi Fjórtán prósent landsmanna eru jákvæð gagnvart laxeldi í opnum sjókvíum. Þetta kemur fram í skoðanakönnun Gallup um viðhorf til laxeldis í opnum sjókvíum. Þrír af hverjum fjórum telja íslenska laxastofninum stafa hætta af laxeldi í opnum sjókvíum. Níu prósent telja að frekar lítil hætta eða allt að engin stafi að villta íslenska laxinum. Viðskipti innlent 3.10.2023 14:45 Samfylkingin yfir 30 prósent í fyrsta sinn í fjórtán ár Samfylkingin er enn stærsti flokkur landsins samkvæmt könnunum. Flokkurinn mælist nú með yfir 30 prósent fylgi í fyrsta sinn í fjórtán ár. Innlent 2.10.2023 22:34 Fylgi Sjálfstæðisflokksins eykst en Samfylkingin dalar Fylgi Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar eykst nokkuð á milli mánaða samkvæmt nýrri könnun Maskínu en Samfylkingin sem hefur verið á mikilli siglingu dalar lítillega. Innlent 29.9.2023 20:09 Aldrei fleiri andvígir Borgarlínu Andstaða við Borgarlínuna hefur aukist nokkuð og samkvæmt nýrri könnun Maskínu hafa raunar aldrei fleiri verið andvígir henni. Þá hafa ekki færri verið hlynntir henni. Innlent 27.9.2023 20:43 Mikill meirihluti landsmanna studdi ekki aðgerðirnar Sjö af hverjum tíu landsmönnum studdu ekki aðgerðir tveggja mótmælenda sem hlekkjuðu sig við mastur tveggja hvalveiðiskipa í Reykjavíkurhöfn fyrr í september. Yngra fólk var frekar fylgjandi mótmælum en það eldra. Innlent 19.9.2023 13:34 Fúlum vegna göngugatna fækkar um helming Tæplega þrír af hverjum fjórum Reykvíkingum eru jákvæðir í garð göngugatna í miðborginni. Neikvæðum hefur fækkað úr tuttugu prósent borgarbúa í níu prósent á fjórum árum eða um rúman helming. Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu fyrir Reykjavíkurborg. Innlent 13.9.2023 16:33 Íslendingar frekar óánægðir með ákvörðun Svandísar Íslendingar virðast almennt óánægðir með ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um að leyfa hvalveiðar með nýjum og hertum skilyrðum. Nær 43 prósent landsmanna eru óánægð með ákvörðunina en 35 prósent eru ánægð. Um 23 prósent eru hvorki ánægð né óánægð með ákvörðunina. Þetta kemur fram í niðurstöðum Þjóðarpúls Gallup. Innlent 12.9.2023 09:51 Meirihluti landsmanna telur of marga flóttamenn fá hæli Algjör viðsnúningur hefur orðið á viðhorfi landsmanna til flóttamanna þar sem ríflega tvöfalt fleiri en áður telja þá of marga hér á landi eða um sextíu prósent. Fjármálaráðherra segir viðvörunarbjöllur hafa hringt lengi í þessum málaflokki. Innlent 5.9.2023 21:01 Framsókn tapar mestu samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Litlar breytingar urðu á fylgi stjórnmálaflokkanna milli júlí og ágúst. Mestar breytingar urðu á fylgi Framsóknarflokksins, sem fór úr 8,9 prósent í 7,5 prósent. Innlent 4.9.2023 08:48 Andstaðan eykst almennt og frekar hjá körlum Andstaða við hvalveiðar hefur aukist á Íslandi samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir Náttúruverndarsamtök Íslands. 42 prósent segjast nú mótfallin hvalveiðum, samanborið við 35 prósent í maí 2022. Innlent 28.8.2023 07:53 „Nánast engar líkur“ á áframhaldandi samstarfi stjórnarflokkanna Ríkisstjórnin hefur ekki mælst með lægra fylgi frá kosningum, samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofuna. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki mælst með minna fylgi hjá Maskínu, í 13 ár. Innlent 23.8.2023 22:08 Skiptar skoðanir í garð ferðamanna: „Þetta er orðið eins og skrímsli sums staðar“ Íslendingar hafa aldrei verið neikvæðari í garð erlendra ferðamanna en nú, samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir að þessu beri að taka alvarlega en að niðurstöðurnar komi ekki á óvart í ljósi mikillar fjölgunar ferðamanna. Innlent 17.8.2023 23:01 Hægt að mynda „hvaða stjórn sem er“ með „böggles“ Mikill meirihluti landsmanna ber nafn snakksins Bugles fram sem „Böggles.“ Minnihluti notar enskan framburð og kallar það „Bjúgels“ á meðan enn minni hluti landsmanna kallar það „Bugles.“ Þetta eru niðurstöður nýlegrar könnunar. Stjórnmálafræðingur segir stuðningsmenn allra flokka á Íslandi sammála um framburðinn. Lífið 14.8.2023 07:01 „Við erum tilbúin að taka við stjórn landsins“ Varaformaður Samfylkingarinnar segir að hægt sé að kenna Samfylkingunni um að ríkisstjórnin hangi ennþá saman. Ríkisstjórnarflokkarnir séu óttaslegnir yfir því að bíða afhroð í kosningum. Samfylkingin sé hins vegar tilbúin að taka við stjórn landsins. Innlent 2.8.2023 15:16 Heilbrigðis- og öldrunarþjónusta mikilvægust að mati Íslendinga Að mati sextíu prósent Íslendinga er heilbrigðis- og öldrunarþjónusta mikilvægasti stefnumálaflokkurinn sem stjórnmálaflokkar leggi áherslu á, samkvæmt nýrri könnun Prósentu. Innlent 1.8.2023 16:17 Sjálfstæðisflokkurinn aldrei mælst með minna fylgi Sjálfstæðisflokkurinn mælist með rétt rúmlega 16 prósent fylgi í nýrri könnun og hefur flokkurinn aldrei mælst með minna fylgi. Innlent 28.7.2023 12:28 Þrjátíu prósent kjósenda VG styðja nú Samfylkinguna Mesta tryggðin við stjórnmálaflokk er hjá kjósendum Samfylkingarinnar og sú minnsta hjá kjósendum Vinstri grænna. Þetta er niðurstaða könnunar sem Prósent framkvæmdi dagana 22. júní til 19. júlí þar sem spurt var hvaða lista kjósendur hafi kosið í síðustu kosningum og hvort þeir myndu kjósa listann aftur. Innlent 27.7.2023 15:46 Stjórnarflokkarnir sækja á og Samfylkingin dalar Stjórnarflokkarnir bæta lítillega við sig fylgi og Samfylkingin dalar samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofuna. Samanlagt fylgi stjórnarflokkanna dugar ekki til myndunar meirihluta á Alþingi. Innlent 24.7.2023 19:22 Landsmenn ósammála um ákvörðun Svandísar Landsmenn skiptast nokkuð jafnt í fylkingar þegar kemur að skoðun þeirra á ákvörðun matvælaráðherra um tímabundið bann á hvalveiðum. Samkvæmt Þjóðarpúls Gallup eru tæp fjörutíu og tvö prósent ánægð með ákvörðunina en rúmlega þrjátíu og níu prósent eru óánægð. Innlent 13.7.2023 11:33 Samfylkingin stærst og stuðningur við ríkisstjórnina á niðurleið Stuðningur við ríkisstjórnina heldur áfram að minnka samkvæmt niðurstöðum í þjóðarpúlsi Gallup. Aðeins þrjátíu og fimm prósent sögðust styðja ríkisstjórnina. Samfylkingin er stærsti flokkurinn með rúmlega tuttugu og átta prósent fylgi. Innlent 4.7.2023 09:50 Aldrei færri í hópi stuðningsmanna ríkisstjórnarinnar Einungis átján prósent svarenda segjast ánægðir með störf ríkisstjórnarinnar, samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Hlutfallið hefur aldrei verið lægra. Innlent 28.6.2023 15:01 Samfylkingin langstærsti flokkurinn og ríkisstjórnin fellur enn Samfylkingin mælist nú tæplega níu prósentustigum stærri en Sjálfstæðisflokkurinn samkvæmt nýrri Maskínukönnun. Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna hefur ekki mælst minna frá kosningum og er nú 34,2 prósent. Könnunin fór fram 1. til 22. júní. Innlent 27.6.2023 08:34 Yngra og tekjuminna fólk hlynntara borgaralaunum Í nýjum þjóðarpúlsi Gallup kemur fram að tveir af hverjum fimm eru hlynntir hugmyndinni um úthlutun borgaralauna á Íslandi. Þá sé meirihluti þeirra sem eru fylgjandi borgaralaunum undir þrítugu. Innlent 22.6.2023 11:04 Skynsamlegt fyrir stuðningsmenn hvalveiða að sýna meiri auðmýkt Almannatengill telur að hvalveiðar séu að verða pólitískara mál en áður og segir að fyrir nokkrum áratugum hefði þótt óhugsandi að meirihluti þjóðarinnar væri andvígur hvalveiðum. Ný könnun Maskínu bendir þó einmitt til þess að sú sé raunin. Hann telur að þeir sem stundi og styðji veiðarnar ættu að sýna andstæðingum veiðanna meiri auðmýkt. Innlent 1.6.2023 12:06 Fylgi Samfylkingar nærri þrefaldast frá kosningum Enn eykst fylgi Samfylkingar sem mælist nú tuttugu og sjö prósent samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Fylgið hefur nærri þrefaldast frá síðustu kosningum þegar flokkurinn hlaut 9,9 prósent atkvæða. Innlent 22.5.2023 19:29 63 prósent landsmanna andvíg því að lækka kosningaaldur í 16 ár 63 prósent landsmanna eru andvíg því að lækka kosningaaldur úr 18 árum í 16 ár en 18 prósent eru hlynnt breytingunni. 19 prósent segjast hvorki hlynnt né andvíg. Innlent 19.5.2023 10:25 « ‹ 4 5 6 7 8 9 10 11 12 … 15 ›
Traustið ekki mælst minna í ellefu ár Traust til Seðlabanka Íslands hefur ekki mælst minna í ellefu ár. Samkvæmt nýrri könnun Maskínu ber næstum helmingur landsmanna lítið traust til bankans, eða fjörutíu og sjö prósent. Viðskipti innlent 10.11.2023 10:27
Mikill meirihluti landsmanna óánægður með ákvörðunina Sjö af hverjum tíu Íslendingum eru ósáttir við hvernig Ísland ráðstafaði atkvæði sínu í atkvæðagreiðslu um þingsályktunartillögu á þingi Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé á Gasaströndinni. Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu. Konur eru mun óánægðari en karlar. Þá er mestur stuðningur við ákvörðun Íslands hjá kjósendum Sjálfstæðisflokksins. Innlent 8.11.2023 12:30
Samfylkingin fengi jafnmarga þingmenn og ríkisstjórnin Samfylkingin fengi jafnmarga þingmenn og stjórnarflokkarnar þrír samanlagt ef gengið yrði til kosninga í dag. Innlent 1.11.2023 23:16
Stuðningur við ríkisstjórnina svipaður og við Samfylkingu Stuðningur við Samfylkinguna mælist nú nærri samanlögðu fylgi stjórnarflokkanna þriggja samkvæmt nýrri könnun. Forsætisráðherra segir fylgistap Vinstri Grænna áhyggjuefni og telur ágreininginn sem verið hefur milli stjórnarflokkanna ekki falla þjóðinni í geð. Innlent 25.10.2023 19:16
Þrír af hverjum fjórum telja íslenska laxinum stafa hætta af laxeldi Fjórtán prósent landsmanna eru jákvæð gagnvart laxeldi í opnum sjókvíum. Þetta kemur fram í skoðanakönnun Gallup um viðhorf til laxeldis í opnum sjókvíum. Þrír af hverjum fjórum telja íslenska laxastofninum stafa hætta af laxeldi í opnum sjókvíum. Níu prósent telja að frekar lítil hætta eða allt að engin stafi að villta íslenska laxinum. Viðskipti innlent 3.10.2023 14:45
Samfylkingin yfir 30 prósent í fyrsta sinn í fjórtán ár Samfylkingin er enn stærsti flokkur landsins samkvæmt könnunum. Flokkurinn mælist nú með yfir 30 prósent fylgi í fyrsta sinn í fjórtán ár. Innlent 2.10.2023 22:34
Fylgi Sjálfstæðisflokksins eykst en Samfylkingin dalar Fylgi Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar eykst nokkuð á milli mánaða samkvæmt nýrri könnun Maskínu en Samfylkingin sem hefur verið á mikilli siglingu dalar lítillega. Innlent 29.9.2023 20:09
Aldrei fleiri andvígir Borgarlínu Andstaða við Borgarlínuna hefur aukist nokkuð og samkvæmt nýrri könnun Maskínu hafa raunar aldrei fleiri verið andvígir henni. Þá hafa ekki færri verið hlynntir henni. Innlent 27.9.2023 20:43
Mikill meirihluti landsmanna studdi ekki aðgerðirnar Sjö af hverjum tíu landsmönnum studdu ekki aðgerðir tveggja mótmælenda sem hlekkjuðu sig við mastur tveggja hvalveiðiskipa í Reykjavíkurhöfn fyrr í september. Yngra fólk var frekar fylgjandi mótmælum en það eldra. Innlent 19.9.2023 13:34
Fúlum vegna göngugatna fækkar um helming Tæplega þrír af hverjum fjórum Reykvíkingum eru jákvæðir í garð göngugatna í miðborginni. Neikvæðum hefur fækkað úr tuttugu prósent borgarbúa í níu prósent á fjórum árum eða um rúman helming. Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu fyrir Reykjavíkurborg. Innlent 13.9.2023 16:33
Íslendingar frekar óánægðir með ákvörðun Svandísar Íslendingar virðast almennt óánægðir með ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um að leyfa hvalveiðar með nýjum og hertum skilyrðum. Nær 43 prósent landsmanna eru óánægð með ákvörðunina en 35 prósent eru ánægð. Um 23 prósent eru hvorki ánægð né óánægð með ákvörðunina. Þetta kemur fram í niðurstöðum Þjóðarpúls Gallup. Innlent 12.9.2023 09:51
Meirihluti landsmanna telur of marga flóttamenn fá hæli Algjör viðsnúningur hefur orðið á viðhorfi landsmanna til flóttamanna þar sem ríflega tvöfalt fleiri en áður telja þá of marga hér á landi eða um sextíu prósent. Fjármálaráðherra segir viðvörunarbjöllur hafa hringt lengi í þessum málaflokki. Innlent 5.9.2023 21:01
Framsókn tapar mestu samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Litlar breytingar urðu á fylgi stjórnmálaflokkanna milli júlí og ágúst. Mestar breytingar urðu á fylgi Framsóknarflokksins, sem fór úr 8,9 prósent í 7,5 prósent. Innlent 4.9.2023 08:48
Andstaðan eykst almennt og frekar hjá körlum Andstaða við hvalveiðar hefur aukist á Íslandi samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir Náttúruverndarsamtök Íslands. 42 prósent segjast nú mótfallin hvalveiðum, samanborið við 35 prósent í maí 2022. Innlent 28.8.2023 07:53
„Nánast engar líkur“ á áframhaldandi samstarfi stjórnarflokkanna Ríkisstjórnin hefur ekki mælst með lægra fylgi frá kosningum, samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofuna. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ekki mælst með minna fylgi hjá Maskínu, í 13 ár. Innlent 23.8.2023 22:08
Skiptar skoðanir í garð ferðamanna: „Þetta er orðið eins og skrímsli sums staðar“ Íslendingar hafa aldrei verið neikvæðari í garð erlendra ferðamanna en nú, samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir að þessu beri að taka alvarlega en að niðurstöðurnar komi ekki á óvart í ljósi mikillar fjölgunar ferðamanna. Innlent 17.8.2023 23:01
Hægt að mynda „hvaða stjórn sem er“ með „böggles“ Mikill meirihluti landsmanna ber nafn snakksins Bugles fram sem „Böggles.“ Minnihluti notar enskan framburð og kallar það „Bjúgels“ á meðan enn minni hluti landsmanna kallar það „Bugles.“ Þetta eru niðurstöður nýlegrar könnunar. Stjórnmálafræðingur segir stuðningsmenn allra flokka á Íslandi sammála um framburðinn. Lífið 14.8.2023 07:01
„Við erum tilbúin að taka við stjórn landsins“ Varaformaður Samfylkingarinnar segir að hægt sé að kenna Samfylkingunni um að ríkisstjórnin hangi ennþá saman. Ríkisstjórnarflokkarnir séu óttaslegnir yfir því að bíða afhroð í kosningum. Samfylkingin sé hins vegar tilbúin að taka við stjórn landsins. Innlent 2.8.2023 15:16
Heilbrigðis- og öldrunarþjónusta mikilvægust að mati Íslendinga Að mati sextíu prósent Íslendinga er heilbrigðis- og öldrunarþjónusta mikilvægasti stefnumálaflokkurinn sem stjórnmálaflokkar leggi áherslu á, samkvæmt nýrri könnun Prósentu. Innlent 1.8.2023 16:17
Sjálfstæðisflokkurinn aldrei mælst með minna fylgi Sjálfstæðisflokkurinn mælist með rétt rúmlega 16 prósent fylgi í nýrri könnun og hefur flokkurinn aldrei mælst með minna fylgi. Innlent 28.7.2023 12:28
Þrjátíu prósent kjósenda VG styðja nú Samfylkinguna Mesta tryggðin við stjórnmálaflokk er hjá kjósendum Samfylkingarinnar og sú minnsta hjá kjósendum Vinstri grænna. Þetta er niðurstaða könnunar sem Prósent framkvæmdi dagana 22. júní til 19. júlí þar sem spurt var hvaða lista kjósendur hafi kosið í síðustu kosningum og hvort þeir myndu kjósa listann aftur. Innlent 27.7.2023 15:46
Stjórnarflokkarnir sækja á og Samfylkingin dalar Stjórnarflokkarnir bæta lítillega við sig fylgi og Samfylkingin dalar samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofuna. Samanlagt fylgi stjórnarflokkanna dugar ekki til myndunar meirihluta á Alþingi. Innlent 24.7.2023 19:22
Landsmenn ósammála um ákvörðun Svandísar Landsmenn skiptast nokkuð jafnt í fylkingar þegar kemur að skoðun þeirra á ákvörðun matvælaráðherra um tímabundið bann á hvalveiðum. Samkvæmt Þjóðarpúls Gallup eru tæp fjörutíu og tvö prósent ánægð með ákvörðunina en rúmlega þrjátíu og níu prósent eru óánægð. Innlent 13.7.2023 11:33
Samfylkingin stærst og stuðningur við ríkisstjórnina á niðurleið Stuðningur við ríkisstjórnina heldur áfram að minnka samkvæmt niðurstöðum í þjóðarpúlsi Gallup. Aðeins þrjátíu og fimm prósent sögðust styðja ríkisstjórnina. Samfylkingin er stærsti flokkurinn með rúmlega tuttugu og átta prósent fylgi. Innlent 4.7.2023 09:50
Aldrei færri í hópi stuðningsmanna ríkisstjórnarinnar Einungis átján prósent svarenda segjast ánægðir með störf ríkisstjórnarinnar, samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Hlutfallið hefur aldrei verið lægra. Innlent 28.6.2023 15:01
Samfylkingin langstærsti flokkurinn og ríkisstjórnin fellur enn Samfylkingin mælist nú tæplega níu prósentustigum stærri en Sjálfstæðisflokkurinn samkvæmt nýrri Maskínukönnun. Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna hefur ekki mælst minna frá kosningum og er nú 34,2 prósent. Könnunin fór fram 1. til 22. júní. Innlent 27.6.2023 08:34
Yngra og tekjuminna fólk hlynntara borgaralaunum Í nýjum þjóðarpúlsi Gallup kemur fram að tveir af hverjum fimm eru hlynntir hugmyndinni um úthlutun borgaralauna á Íslandi. Þá sé meirihluti þeirra sem eru fylgjandi borgaralaunum undir þrítugu. Innlent 22.6.2023 11:04
Skynsamlegt fyrir stuðningsmenn hvalveiða að sýna meiri auðmýkt Almannatengill telur að hvalveiðar séu að verða pólitískara mál en áður og segir að fyrir nokkrum áratugum hefði þótt óhugsandi að meirihluti þjóðarinnar væri andvígur hvalveiðum. Ný könnun Maskínu bendir þó einmitt til þess að sú sé raunin. Hann telur að þeir sem stundi og styðji veiðarnar ættu að sýna andstæðingum veiðanna meiri auðmýkt. Innlent 1.6.2023 12:06
Fylgi Samfylkingar nærri þrefaldast frá kosningum Enn eykst fylgi Samfylkingar sem mælist nú tuttugu og sjö prósent samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Fylgið hefur nærri þrefaldast frá síðustu kosningum þegar flokkurinn hlaut 9,9 prósent atkvæða. Innlent 22.5.2023 19:29
63 prósent landsmanna andvíg því að lækka kosningaaldur í 16 ár 63 prósent landsmanna eru andvíg því að lækka kosningaaldur úr 18 árum í 16 ár en 18 prósent eru hlynnt breytingunni. 19 prósent segjast hvorki hlynnt né andvíg. Innlent 19.5.2023 10:25