Innlent Funda með ESA um frestun dómsmáls Íslendingar vísa til fyrri rökstuðnings varðandi Icesave í áliti sem sent verður ESA, eftirlitsstofnun EFTA. Taki stofnunin ekki tillit til röksemdanna fer málið fyrir dóm. Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, heldur utan í næstu viku og fundar með yfirstjórn stofnunarinnar. Hann segir mikilvægt að koma sjónarmiðum Íslendinga á framfæri, ekki síst þar sem ný yfirstjórn hefur tekið við. Innlent 30.8.2011 21:47 Banna reykingar heima á vinnutíma Nefnd um starfsmannamál í sveitarfélaginu Landskrona í Svíþjóð vill að starfsmönnum þess sem vinni heima verði bannað að reykja á vinnutíma eins og öðrum starfsmönnum sveitarfélagsins. Þetta finnst íslenskum umhverfisstjóra Landskrona, Högna Hanssyni, of langt gengið. Erlent 30.8.2011 21:47 Tollar standa í vegi fyrir kjötinnflutningi Hvers konar tollar takmarka innflutning á kjöti? Fréttir af kjötskorti í verslunum hafa reglulega birst í fjölmiðlum í sumar. Í gær sagði Fréttablaðið svo frá veitingastöðum sem hafa þurft að taka rétti af matseðlum sínum vegna lítillar innlendrar framleiðslu og hárra tolla á innfluttu kjöti. Viðskipti innlent 30.8.2011 21:47 Veiddu risafiska á sjóstangmóti í Grindavík Sannkallaðir stórfiskar komu að landi á Íslandsmeistaramótinu í sjóstöng sem fór fram utan við Grindavík um helgina. Á vef Grindavíkurbæjar kemur fram að met hafi fallið í stærð ufsa og löngu á sjóstöng og jafnvel einnig í þorski. Innlent 30.8.2011 21:47 Milljarða hagsmunir í húfi Milljarðar sparast í gjaldeyri náist það markmið að draga úr innflutningi jarðefnaeldsneyta um tíu prósent árið 2020. Þá mun innlend framleiðsla skila umtalsverðu í framlegð. Orkuskipti draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Innlent 26.8.2011 21:56 20 ár frá staðfestingu á sjálfstæði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík, buðu Daliu Grybauskaitë, forseta Litháens, í heimsókn í Höfða í gærmorgun. Þá voru tuttugu ár liðin frá því að viðurkenning Íslands á sjálfstæði Eystrasaltsþjóðanna þriggja var staðfest með athöfn í Höfða. Innlent 26.8.2011 21:56 Brotið gegn eignarrétti landeigenda Brotið er gegn stjórnarskrárvörðum eignarrétti eigenda sjávarjarða verði kvótafrumvarp sjávarútvegsráðherra að lögum, að því er fram kemur í umsögn Samtaka eigenda sjávarjarða um frumvarpið. Innlent 26.8.2011 21:56 Risahótel á Fjöllum á borð Kínastjórnar Huang Nubo, eigandi Zhong Kun Investment Group, hefur samið um kaup af einkaaðilum á um sjötíu prósenta hlut af landi Grímsstaða á Fjöllum og mun eignast landið ef innanríkisráðuneytið veitir samþykki sitt. Innlent 26.8.2011 21:56 Bylgjan verið í loftinu í 25 ár „Ég hlustaði alltaf á Bylgjuna þegar hún byrjaði. Þá var ég sölumaður hjá Myllunni árið 1986 og ók með kökur og brauð um Suðurnesin á daginn. Á kvöldin var ég plötusnúður og lét mig dreyma um að verða útvarpsmaður á Bylgjunni,“ segir Ívar Guðmundsson, dagskrárstjóri Bylgjunnar. Innlent 26.8.2011 21:56 Samningi við miðstöð bjargað Ríkisstjórnin ákvað einróma á fundi sínum í gær að veita aukaframlag til Útlendingastofnunar vegna reksturs miðstöðvar fyrir hælisleitendur í Reykjanesbæ. Að óbreyttu hefði stofnunin þurft að segja upp samningi við Reykjanesbæ þar sem miðstöðin er starfrækt. Var þetta gert að tillögu innanríkisráðherra. Innlent 26.8.2011 21:56 Íslenska hagkerfið útskrifað af meðferðarheimilinu Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) samþykkti í gær sjöttu og síðustu endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands. Þar með er formlegu samstarfi við sjóðinn lokið. Í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að Ísland sé þar með fyrsta ríkið til að útskrifast frá AGS í yfirstandandifjármálakreppu. Innlent 26.8.2011 21:56 Leikfélag Akureyrar leitar á náðir bæjarins Tap á rekstri Leikfélags Akureyrar (LA) á síðasta ári nam 67 milljónum króna, samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum útreikninga. Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum á fimmtudag að greiða félaginu fyrir fram allt að 30 milljónir króna af væntanlegum framlögum næsta árs til að koma í veg fyrir að leikárið yrði stöðvað. Innlent 26.8.2011 21:56 Gosmökkurinn lækkar jafnt og þétt Gosmökkurinn úr Grímsvötnum hefur lækkað jafnt og þétt í nótt og nær nú innan við tíu kílómetra hæð, en fór í hátt í tuttugu kílómetra hæð í fyrrinótt. Innlent 23.5.2011 06:50 MP Banki þarf að greiða Byr 317 milljónir MP Banki var dæmdur til þess að greiða Byr sparisjóði rétt tæplega 317 milljónir króna í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Byr sakaði MP banka um að hafa stolið um 300 milljón króna vegna kúluláns til félags í eigu Björgólfs Guðmundssonar, Hansa ehf. Viðskipti innlent 22.3.2011 14:51 Litlir krakkar eiga ekki að þurfa að þvælast milli hverfa „Það er ekki í samræmi við þarfir lítilla krakka að þurfa að þvælast á milli hverfa til að komast í skólann," segir Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem er afar ósáttur við sameiningartillögur leik- og grunnskóla, og frístundaheimila í Reykjavík. Í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag óskaði hann eftir skoðun Katrínar Jakobsdóttur, menntamálaráðherra, á þeim tillögum sem fyrir liggja. Katrín sagði tillögurnar hafa verið sendar ráðuneytinu til umsagnar og býst hún við að umsögn verði skilað í lok vikunnar. Hún sagðist almennt telja æskilegt að skera sem minnst niður í menntakerfinu, og að í niðurskurði eigi að hlífa börnum og ungmennum. Í þessu sambandi þyrfti hins vegar að taka mið af því að Reykjavíkurborg býr við þröngan fjárhagslegan stakk. Katrín benti á að sveitarfélög hafi rúmar heimildir, lögum samkvæmt, til að sameina rekstur grunnskóla, leikskóla og frístundaheimila. Meðal þess sem ráðuneytið hefur nú til skoðunar vegna þeirra hugmynda sem fram hafa komið eru ferðir skólabarna milli hverfa, ólíkar stefnur í leikskólum sem rætt er um að sameina, og samþætting sjónarmiða hjá ólíkum skólastigum. Innlent 22.3.2011 14:28 Klúr fúkyrði um kvenkyns eftirmann ekki lögbrot Ríkissaksóknari telur að meint ummæli Helga Magnúsar Gunnarssonar, varasaksóknara í Landsdómi, um Öldu Hrönn Jóhannsdóttur, setts saksóknara efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra, varði ekki við lög. Því beri hvorki Ríkissaksóknara né lögreglustjóra höfuðborgarsvæðinu að aðhafast í máli hennar. Þetta kemur fram í úrskurði Ríkissaksóknara frá því í gær. Innlent 11.3.2011 14:18 Krónan er ávísun á haftastefnu í tíu ár Ætli Íslendingar að halda í krónuna verða þeir að reikna með lítilli einkaneyslu í skugga hafta um árabil. Seðlabankinn brást of seint við. Núverandi vaxtastigi hefði átt að vera náð fyrir ári, segir Ásgeir Jónsson hagfræðingur. Viðskipti innlent 10.12.2010 11:00 Krónan er ávísun á gjaldeyrishöft í áratug Ætli Íslendingar að halda í krónuna er ólíklegt að gjaldeyrishöft verði afnumin á næstu fimm til tíu árum. Í skugga þeirra verður að endurbyggja íslenska myntsvæðið með lágu raungengi og lítilli einkaneyslu, að sögn Ásgeirs Jónssonar, forstöðumanns greiningar Arion Banka. Viðskipti innlent 9.12.2010 15:15 Sveppi með sex dvd-diska „Þetta er náttúrlega bara rugl,“ segir Sverrir Þór Sverrisson, grínisti með meiru. Innlent 29.11.2010 17:04 Engin ein leið bjargar öllum Fréttaskýring: Hvað kemur fram í skýrslu sérfræðingahóps um skuldavanda heimilanna? Engin ein leið sem hægt er að fara til að greiða úr skuldavanda vegna fasteignakaupa dugir til að bjarga öllum sem eru í greiðsluvanda. Þetta er niðurstaða sérfræðingahóps stjórnvalda sem mat mismunandi leiðir til að leysa úr skuldavanda heimilanna. Innlent 10.11.2010 22:32 Íslensk kona ákærð fyrir milljóna dollara fjárkúgun Íslensk kona, Helga Ingvarsdóttir, var handtekin ásamt kærasta sínum, Vickram Bedi, í Bandaríkjunum á fimmtudag fyrir stórfellda fjárkúgun. Innlent 8.11.2010 23:39 Deilir ekki átjándu aldar sýn Hlutfall lögfræðinga frá Háskólanum í Reykjavík (HR) sem í fyrstu tilraun stóðust réttindapróf til að starfa sem héraðsdómslögmaður er í ár hærra en hlutfall útskrifaðra lögfræðinga frá lagadeild Háskóla Íslands (HÍ). Tæp 69 prósent útskrifaðra nemenda HR stóðust prófið í fyrstu tilraun á móti tæpum 65 prósentum frá HÍ. Innlent 8.11.2010 23:39 Dior notar vatn úr Ölfusinu í snyrtivörur Franska snyrti- og tískuvörufyrirtækið Christian Dior hefur samið við fyrirtækið Icelandic Water Holdings um að nota lindarvatn úr Ölfusinu í krem sem kemur á markað í kringum áramótin. Vatninu er tappað á flöskur í verksmiðju Icelandic Water Holdings við Þorlákshöfn og selt um heim allan undir merkjum Icelandic Glacial. Viðskipti innlent 8.11.2010 23:39 Fátt um svör fyrr en kröfur Íslands verða lagðar fram Evrópusambandið getur litlu svarað um viðbrögð sín við samningskröfum Íslendinga fyrr en þær kröfur hafa formlega verið lagðar fram. Innlent 8.11.2010 23:39 Afhenda lista til Alþingis Íbúar á Suðurlandi hafa nú hafið undirskriftasöfnun til að mótmæla fyrirhuguðum niðurskurði í heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Innlent 8.11.2010 23:38 Búið að semja um verðið Sala á stórum hlut í tryggingafélaginu Sjóvá er á lokastigi. Viðskipti innlent 22.10.2010 22:30 Grunaðir um framleiðslu á marijúana og amfetamíni Karlmennirnir fjórir, sem handteknir voru í fyrradag vegna rannsóknar lögreglu á framleiðslu fíkniefna, eru grunaðir um að hafa bæði framleitt amfetamín og marijúana. Innlent 22.10.2010 22:30 EES-samningurinn var versti kostur Finna Juhana Aunesluoma, sem stýrir Evrópufræðastofnun Háskólans í Helsinki, reifaði afstöðu Finna til Evrópusambandsins í gegnum árin. Finnar hefðu, ólíkt Svíum, verið hrifnir af yfirþjóðlegum þætti ESB og fljótir til að finna sinn sess í Brussel. Innlent 22.10.2010 21:38 Nýir fjárfestar koma í Ölgerðina „Það var mjög gott að klára þetta til að eyða allri óvissu og geta horft fram á við,“ segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, en fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækisins, sem staðið hefur yfir frá í fyrra, er lokið. Við þetta eignast fagfjárfestingasjóðurinn Auður 1, sem heyrir undir Auði Capital, 36 prósenta hlut ásamt meðfjárfestum og Arion banki Viðskipti innlent 22.10.2010 22:30 Við samningslok liggja kostirnir skýrt fyrir Samstaða var um að ljúka aðildarviðræðum við Evrópusambandið (ESB) og að þingmenn kysu um niðurstöðuna, í pallborði og hjá frummælendum á nýafstaðinni morgunráðstefnu samtakanna Sterkara Ísland. Innlent 22.10.2010 22:30 « ‹ 1 2 3 4 5 6 7 8 … 334 ›
Funda með ESA um frestun dómsmáls Íslendingar vísa til fyrri rökstuðnings varðandi Icesave í áliti sem sent verður ESA, eftirlitsstofnun EFTA. Taki stofnunin ekki tillit til röksemdanna fer málið fyrir dóm. Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, heldur utan í næstu viku og fundar með yfirstjórn stofnunarinnar. Hann segir mikilvægt að koma sjónarmiðum Íslendinga á framfæri, ekki síst þar sem ný yfirstjórn hefur tekið við. Innlent 30.8.2011 21:47
Banna reykingar heima á vinnutíma Nefnd um starfsmannamál í sveitarfélaginu Landskrona í Svíþjóð vill að starfsmönnum þess sem vinni heima verði bannað að reykja á vinnutíma eins og öðrum starfsmönnum sveitarfélagsins. Þetta finnst íslenskum umhverfisstjóra Landskrona, Högna Hanssyni, of langt gengið. Erlent 30.8.2011 21:47
Tollar standa í vegi fyrir kjötinnflutningi Hvers konar tollar takmarka innflutning á kjöti? Fréttir af kjötskorti í verslunum hafa reglulega birst í fjölmiðlum í sumar. Í gær sagði Fréttablaðið svo frá veitingastöðum sem hafa þurft að taka rétti af matseðlum sínum vegna lítillar innlendrar framleiðslu og hárra tolla á innfluttu kjöti. Viðskipti innlent 30.8.2011 21:47
Veiddu risafiska á sjóstangmóti í Grindavík Sannkallaðir stórfiskar komu að landi á Íslandsmeistaramótinu í sjóstöng sem fór fram utan við Grindavík um helgina. Á vef Grindavíkurbæjar kemur fram að met hafi fallið í stærð ufsa og löngu á sjóstöng og jafnvel einnig í þorski. Innlent 30.8.2011 21:47
Milljarða hagsmunir í húfi Milljarðar sparast í gjaldeyri náist það markmið að draga úr innflutningi jarðefnaeldsneyta um tíu prósent árið 2020. Þá mun innlend framleiðsla skila umtalsverðu í framlegð. Orkuskipti draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Innlent 26.8.2011 21:56
20 ár frá staðfestingu á sjálfstæði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Jón Gnarr, borgarstjóri í Reykjavík, buðu Daliu Grybauskaitë, forseta Litháens, í heimsókn í Höfða í gærmorgun. Þá voru tuttugu ár liðin frá því að viðurkenning Íslands á sjálfstæði Eystrasaltsþjóðanna þriggja var staðfest með athöfn í Höfða. Innlent 26.8.2011 21:56
Brotið gegn eignarrétti landeigenda Brotið er gegn stjórnarskrárvörðum eignarrétti eigenda sjávarjarða verði kvótafrumvarp sjávarútvegsráðherra að lögum, að því er fram kemur í umsögn Samtaka eigenda sjávarjarða um frumvarpið. Innlent 26.8.2011 21:56
Risahótel á Fjöllum á borð Kínastjórnar Huang Nubo, eigandi Zhong Kun Investment Group, hefur samið um kaup af einkaaðilum á um sjötíu prósenta hlut af landi Grímsstaða á Fjöllum og mun eignast landið ef innanríkisráðuneytið veitir samþykki sitt. Innlent 26.8.2011 21:56
Bylgjan verið í loftinu í 25 ár „Ég hlustaði alltaf á Bylgjuna þegar hún byrjaði. Þá var ég sölumaður hjá Myllunni árið 1986 og ók með kökur og brauð um Suðurnesin á daginn. Á kvöldin var ég plötusnúður og lét mig dreyma um að verða útvarpsmaður á Bylgjunni,“ segir Ívar Guðmundsson, dagskrárstjóri Bylgjunnar. Innlent 26.8.2011 21:56
Samningi við miðstöð bjargað Ríkisstjórnin ákvað einróma á fundi sínum í gær að veita aukaframlag til Útlendingastofnunar vegna reksturs miðstöðvar fyrir hælisleitendur í Reykjanesbæ. Að óbreyttu hefði stofnunin þurft að segja upp samningi við Reykjanesbæ þar sem miðstöðin er starfrækt. Var þetta gert að tillögu innanríkisráðherra. Innlent 26.8.2011 21:56
Íslenska hagkerfið útskrifað af meðferðarheimilinu Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) samþykkti í gær sjöttu og síðustu endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands. Þar með er formlegu samstarfi við sjóðinn lokið. Í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að Ísland sé þar með fyrsta ríkið til að útskrifast frá AGS í yfirstandandifjármálakreppu. Innlent 26.8.2011 21:56
Leikfélag Akureyrar leitar á náðir bæjarins Tap á rekstri Leikfélags Akureyrar (LA) á síðasta ári nam 67 milljónum króna, samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum útreikninga. Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum á fimmtudag að greiða félaginu fyrir fram allt að 30 milljónir króna af væntanlegum framlögum næsta árs til að koma í veg fyrir að leikárið yrði stöðvað. Innlent 26.8.2011 21:56
Gosmökkurinn lækkar jafnt og þétt Gosmökkurinn úr Grímsvötnum hefur lækkað jafnt og þétt í nótt og nær nú innan við tíu kílómetra hæð, en fór í hátt í tuttugu kílómetra hæð í fyrrinótt. Innlent 23.5.2011 06:50
MP Banki þarf að greiða Byr 317 milljónir MP Banki var dæmdur til þess að greiða Byr sparisjóði rétt tæplega 317 milljónir króna í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Byr sakaði MP banka um að hafa stolið um 300 milljón króna vegna kúluláns til félags í eigu Björgólfs Guðmundssonar, Hansa ehf. Viðskipti innlent 22.3.2011 14:51
Litlir krakkar eiga ekki að þurfa að þvælast milli hverfa „Það er ekki í samræmi við þarfir lítilla krakka að þurfa að þvælast á milli hverfa til að komast í skólann," segir Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem er afar ósáttur við sameiningartillögur leik- og grunnskóla, og frístundaheimila í Reykjavík. Í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag óskaði hann eftir skoðun Katrínar Jakobsdóttur, menntamálaráðherra, á þeim tillögum sem fyrir liggja. Katrín sagði tillögurnar hafa verið sendar ráðuneytinu til umsagnar og býst hún við að umsögn verði skilað í lok vikunnar. Hún sagðist almennt telja æskilegt að skera sem minnst niður í menntakerfinu, og að í niðurskurði eigi að hlífa börnum og ungmennum. Í þessu sambandi þyrfti hins vegar að taka mið af því að Reykjavíkurborg býr við þröngan fjárhagslegan stakk. Katrín benti á að sveitarfélög hafi rúmar heimildir, lögum samkvæmt, til að sameina rekstur grunnskóla, leikskóla og frístundaheimila. Meðal þess sem ráðuneytið hefur nú til skoðunar vegna þeirra hugmynda sem fram hafa komið eru ferðir skólabarna milli hverfa, ólíkar stefnur í leikskólum sem rætt er um að sameina, og samþætting sjónarmiða hjá ólíkum skólastigum. Innlent 22.3.2011 14:28
Klúr fúkyrði um kvenkyns eftirmann ekki lögbrot Ríkissaksóknari telur að meint ummæli Helga Magnúsar Gunnarssonar, varasaksóknara í Landsdómi, um Öldu Hrönn Jóhannsdóttur, setts saksóknara efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra, varði ekki við lög. Því beri hvorki Ríkissaksóknara né lögreglustjóra höfuðborgarsvæðinu að aðhafast í máli hennar. Þetta kemur fram í úrskurði Ríkissaksóknara frá því í gær. Innlent 11.3.2011 14:18
Krónan er ávísun á haftastefnu í tíu ár Ætli Íslendingar að halda í krónuna verða þeir að reikna með lítilli einkaneyslu í skugga hafta um árabil. Seðlabankinn brást of seint við. Núverandi vaxtastigi hefði átt að vera náð fyrir ári, segir Ásgeir Jónsson hagfræðingur. Viðskipti innlent 10.12.2010 11:00
Krónan er ávísun á gjaldeyrishöft í áratug Ætli Íslendingar að halda í krónuna er ólíklegt að gjaldeyrishöft verði afnumin á næstu fimm til tíu árum. Í skugga þeirra verður að endurbyggja íslenska myntsvæðið með lágu raungengi og lítilli einkaneyslu, að sögn Ásgeirs Jónssonar, forstöðumanns greiningar Arion Banka. Viðskipti innlent 9.12.2010 15:15
Sveppi með sex dvd-diska „Þetta er náttúrlega bara rugl,“ segir Sverrir Þór Sverrisson, grínisti með meiru. Innlent 29.11.2010 17:04
Engin ein leið bjargar öllum Fréttaskýring: Hvað kemur fram í skýrslu sérfræðingahóps um skuldavanda heimilanna? Engin ein leið sem hægt er að fara til að greiða úr skuldavanda vegna fasteignakaupa dugir til að bjarga öllum sem eru í greiðsluvanda. Þetta er niðurstaða sérfræðingahóps stjórnvalda sem mat mismunandi leiðir til að leysa úr skuldavanda heimilanna. Innlent 10.11.2010 22:32
Íslensk kona ákærð fyrir milljóna dollara fjárkúgun Íslensk kona, Helga Ingvarsdóttir, var handtekin ásamt kærasta sínum, Vickram Bedi, í Bandaríkjunum á fimmtudag fyrir stórfellda fjárkúgun. Innlent 8.11.2010 23:39
Deilir ekki átjándu aldar sýn Hlutfall lögfræðinga frá Háskólanum í Reykjavík (HR) sem í fyrstu tilraun stóðust réttindapróf til að starfa sem héraðsdómslögmaður er í ár hærra en hlutfall útskrifaðra lögfræðinga frá lagadeild Háskóla Íslands (HÍ). Tæp 69 prósent útskrifaðra nemenda HR stóðust prófið í fyrstu tilraun á móti tæpum 65 prósentum frá HÍ. Innlent 8.11.2010 23:39
Dior notar vatn úr Ölfusinu í snyrtivörur Franska snyrti- og tískuvörufyrirtækið Christian Dior hefur samið við fyrirtækið Icelandic Water Holdings um að nota lindarvatn úr Ölfusinu í krem sem kemur á markað í kringum áramótin. Vatninu er tappað á flöskur í verksmiðju Icelandic Water Holdings við Þorlákshöfn og selt um heim allan undir merkjum Icelandic Glacial. Viðskipti innlent 8.11.2010 23:39
Fátt um svör fyrr en kröfur Íslands verða lagðar fram Evrópusambandið getur litlu svarað um viðbrögð sín við samningskröfum Íslendinga fyrr en þær kröfur hafa formlega verið lagðar fram. Innlent 8.11.2010 23:39
Afhenda lista til Alþingis Íbúar á Suðurlandi hafa nú hafið undirskriftasöfnun til að mótmæla fyrirhuguðum niðurskurði í heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni. Innlent 8.11.2010 23:38
Búið að semja um verðið Sala á stórum hlut í tryggingafélaginu Sjóvá er á lokastigi. Viðskipti innlent 22.10.2010 22:30
Grunaðir um framleiðslu á marijúana og amfetamíni Karlmennirnir fjórir, sem handteknir voru í fyrradag vegna rannsóknar lögreglu á framleiðslu fíkniefna, eru grunaðir um að hafa bæði framleitt amfetamín og marijúana. Innlent 22.10.2010 22:30
EES-samningurinn var versti kostur Finna Juhana Aunesluoma, sem stýrir Evrópufræðastofnun Háskólans í Helsinki, reifaði afstöðu Finna til Evrópusambandsins í gegnum árin. Finnar hefðu, ólíkt Svíum, verið hrifnir af yfirþjóðlegum þætti ESB og fljótir til að finna sinn sess í Brussel. Innlent 22.10.2010 21:38
Nýir fjárfestar koma í Ölgerðina „Það var mjög gott að klára þetta til að eyða allri óvissu og geta horft fram á við,“ segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, en fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækisins, sem staðið hefur yfir frá í fyrra, er lokið. Við þetta eignast fagfjárfestingasjóðurinn Auður 1, sem heyrir undir Auði Capital, 36 prósenta hlut ásamt meðfjárfestum og Arion banki Viðskipti innlent 22.10.2010 22:30
Við samningslok liggja kostirnir skýrt fyrir Samstaða var um að ljúka aðildarviðræðum við Evrópusambandið (ESB) og að þingmenn kysu um niðurstöðuna, í pallborði og hjá frummælendum á nýafstaðinni morgunráðstefnu samtakanna Sterkara Ísland. Innlent 22.10.2010 22:30