Innlent RÚV mun fá algjöra yfirburði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, skrifar á heimasíðu samtakanna í gær að breyting Ríkisútvarpsins í opinbert hlutafélag muni valda því að veruleg röskun verði á íslenskum fjölmiðlamarkaði í heild. Innlent 2.11.2006 21:58 Umfjöllunin ekki svaraverð „Umfjöllun blaðsins er í raun ekki svaraverð“, segir Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri KB banka, um skrif Ekstra blaðsins um íslenskt viðskiptalíf að undanförnu. Hreiðar segir að umsvif Íslendinga í Danmörku séu orðin veruleg og hafi aukist mjög á stuttum tíma. „Það er líklega þessi snögga framganga sem veldur þessu“, ályktar Hreiðar. Innlent 2.11.2006 21:57 Hlutverk RÚV þarf að vernda "Ég er sammála Vilhjálmi um að í frumvarpinu eru ekki nægilega góðar skilgreiningar um hlutverk miðilsins, en ég tel að sterkt og sjálfstætt almannaútvarp eigi að vera til," segir Mörður Árnason sem situr í menntamálanefnd Alþingis fyrir Samfylkinguna. Innlent 2.11.2006 21:57 Heldur fundi fyrir Pólverja Efling stéttarfélag stendur fyrir kynningarfundum fyrir Pólverja í byggingariðnaði og er meiningin að kynna þeim réttindi þeirra og skyldur á íslenskum vinnumarkaði. Innlent 2.11.2006 21:57 Kaup Íslandspósts á Samskiptum umdeild Sigurður Kári Kristjánsson segir kaup Íslandspósts á prentfyrirtækinu Samskiptum óþörf og til þess fallin að þenja út starfsemi ríkisins að óþörfu. Kaupin eru hluti af framtíðaráformum Íslandspósts, segir forstjóri fyrirtækisins. Innlent 2.11.2006 21:58 Horuð hross án skjóls og fóðurs Tveimur mönnum sem eiga á annan tug hrossa á jörð í Dalabyggð hefur verið gert að bæta fóðrun hrossa sinna þar sem búfjáreftirlitsmaður og héraðsdýralæknir telja hana með öllu óviðunandi. Í bréfi til sveitarstjóra segja þeir hrossin hafa verið orðin ansi aflögð og „sérstaklega voru trippi í hópnum orðin horuð“. Sveitarstjóri hefur gefið eigendum frest fram á mánudag til úrbóta. Innlent 2.11.2006 21:58 Rauð nef fyrir gott málefni Fyrsti desember næstkomandi verður Dagur rauða nefsins. Rauð nef verða seld er nær dregur deginum og þriggja tíma söfnunarútsending verður síðan 1. desember á Stöð tvö þar sem landslið grínara mun kitla hláturtaugar landsmanna. Innlent 2.11.2006 21:57 Pólverji fær greitt að fullu Verkalýðsfélag Akraness telur að rúmlega 174 þúsund krónur vanti upp á að laun pólsks verkamanns nái þeim lágmarkslaunum eftir þriggja mánaða vinnu. Félagið hefur að undanförnu verið að aðstoða Pólverjann við að leita réttar síns hjá fyrirtækinu. Innlent 2.11.2006 21:57 Leigubílar á strætóbrautir Leigubílar í akstri með farþega fá framvegis forgang á aðra bílaumferð á götum borgarinnar. Framkvæmdaráð Reykjavíkur hefur samþykkt að leigubílum sé heimilt að aka á sérakreinum strætisvagna þar sem þær eru, til dæmis á Miklubraut í Reykjavík. Innlent 2.11.2006 21:57 Safna fé á eBay til kaupa á hval Dýraverndunarsamtökin WSPA í Bretlandi nota nú eBay-uppboðsvefinn til að safna fé til að kaupa einni langreyði líf af þeim níu sem leyft hefur verið að veiða. Þetta kemur fram á vef samtakanna sem hafa komist að því að hvalslíf kostar tæpar þrettán milljónir króna sé miðað við verð á hvalaafurðum á heimsmarkaði. Innlent 2.11.2006 21:57 Helsta baráttumálið í höfn Guðjón Guðmundsson varaþingmaður tók sæti Einars K. Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra á Alþingi á þriðjudag. Innlent 2.11.2006 21:57 Netaveiðum við Írland hætt Ríkisstjórn Írlands hefur ákveðið að taka fyrir allar reknetaveiðar á laxi við strendur landsins. Lagt er til algjört bann við reknetaveiðum á laxi frá næstu áramótum og að 30 milljónum evra verði varið til að bæta 877 sjómönnum upp þann tekjumissi sem þeir hljóta af banninu. Þetta er mikill sigur fyrir Orra Vigfússon, formann Norður-Atlantshafslaxasjóðsins (NASF), sem hefur lengi barist fyrir upptöku netanna. Innlent 2.11.2006 21:57 Sigurvin fékk verkefnastyrk Í gær var verkefnastyrkur Félagsstofnunar stúdenta afhentur. Það var Sigurvin Jónsson sem hlaut styrkinn fyrir kjörsviðsritgerð sína til embættisprófs í guðfræði. Ritgerðin ber titilinn "Jesúhefðin og hin himneska sófía: Eðli og birting spekinnar í Jakobsbréfi, Ræðuheimildinni og gyðing-kristnum bókmenntum í ljósi hellenískra og gyðinglegra spekihefða." Innlent 2.11.2006 21:57 Sjóræningjaafli af Reykjaneshrygg í eigu Landsbankans Tvisvar hefur Landsbanki Íslands veitt afurðalán út á afla sem er ólöglega veiddur. Erfitt að vita hvað verið er að fjármagna segir framkvæmdastjóri Norður-Atlantshafs fiskveiðinefndarinnar. Innlent 2.11.2006 21:58 Kona í karls stað á ljósum Tillaga um að gangbrautarljós sýni konu en ekki karl á fimm stöðum í borginni var lögð fram í mannréttindanefnd Reykjavíkurborgar á miðvikudaginn af Bryndísi Ísfold Hlöðversdóttur, fulltrúa Samfylkingarinnar í nefndinni. Innlent 2.11.2006 21:57 Kári gefur kost á sér í 3.-4. sæti Kári Páll Óskarsson gjaldkeri Ungra vinstri grænna, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3.-4. sæti í forvali VG í Reykjavík og Suðvesturkjördæmi. Innlent 2.11.2006 21:57 Kaupa tæki til snjóframleiðslu Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur samþykkt að kaupa snjóframleiðsluvélar á skíðasvæðið í Oddsskarði. Innlent 2.11.2006 21:57 Gefur kost á sér í 2. sætið Samúel Örn Erlingsson, deildarstjóri íþróttadeildar Ríkisútvarpsins, gefur kost á sér í 2. sæti á framboðslista Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar í vor. Innlent 2.11.2006 21:57 Býður sig fram í 4. til 5. sæti Anna Sigríður Guðnadóttir býður sig fram í 4. til 5. sæti á lista í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Innlent 2.11.2006 21:57 Fíkniefnasali dæmdur Rúmlega tvítugur maður var á mánudag dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir brot á fíkniefna-, tolla- og vopnalögum. Hann hafði verið handtekinn fjórum sinnum á rúmlega þremur mánuðum í kringum síðustu áramót. Innlent 2.11.2006 21:57 Beðið fyrir vegfarendum Fjöldi fólks kom saman við Óshólavita í Óshlíð á miðvikudag til að biðja fyrir vegfarendum og þeim sem taka ákvarðanir um endurbætur vegasamgangna. Tilefnið var sú hætta sem stafar af grjóthruni úr fjallinu en sr. Skírnir Garðarsson annaðist bænastundina. Innlent 2.11.2006 21:57 Ari Edwald segir sameiningu geta verið mjög skynsamlega Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, segir að engar formlegar viðræður hafi farið fram á milli fyrirtækisins og Skjásins um sameiningu fyrirtækjanna. Innlent 2.11.2006 21:58 Segir umfjöllun Ekstra blaðsins misvísandi Í nýjustu grein Ekstra Bladet um íslenskt viðskiptalíf er ýjað að því að lettneski bankinn Lateko hafi beitt danska bankamenn blekkingum til að fá sambankalán. Bankinn er í eigu Íslendinga frá því fyrr á þessu ári og á Jón Helgi Guðmundsson, kenndur við BYKO, stóran hlut í bankanum. [GOTO AUDIO IN WORDS: satt að segja OUT WORDS: segja AT: 53'32" TO: 53'38" ITEM TIME:0'06"] [GOTO AUDIO IN WORDS: það er OUT WORDS: höfuð AT: 55'32" TO: 55'44" ITEM TIME:0'12"] Í grein sinni lýsir Ekstra Bladet hvernig bankinn á að hafa nokkru árum áður tekið þátt í að aðstoða skjólstæðing sinn, rússneskt olíufélag, við að skjóta fjármunum undan skatti. Svo er annars viðskiptamaður bankans er svo sagður eiga í dómsmáli í Bandaríkjunum vegna viðskipta þar sem fjármunir eiga að hafa runnið um bankareikning hjá Lateko. Blaðið segir bankann hafa þagað um þessi mál þegar þeir fengu danska bankann Morsö Bank til að taka þátt í veitingu sambankaláns til Lateko og er nafn Kaupþings banka í Lúxemborg sérstaklega nefnt. [GOTO AUDIO IN WORDS: þeir eru OUT WORDS: framvegis AT: 0'18" TO: 0'35" ITEM TIME:0'17"] Á vísir.is í dag var sagt, að í Ekstra Bladet, væri verið að saka Jón Helga um blekkingar. [GOTO AUDIO IN WORDS: það er OUT WORDS: fram AT: 55'07" TO: 55'20" ITEM TIME:0'13"] Jón Helgi segir að danska bankastjóranum hafi átt að vera fullkunnugt um dómsmálið í Bandaríkjunum. Þær upplýsingar sé að finna í ársreikningi Lateko bank og sjálfur hafi Jón Helgi látið ganga úr skugga að litlar líkur á að það mál myndi tapast áður en hann kom að kaupum bankans. [GOTO AUDIO IN WORDS: ég held OUT WORDS: ÚTRÁS AT: 58'47" TO: 58'58" ITEM TIME:0'11"] Í nýjustu grein Ekstra Bladet um íslenskt viðskiptalíf er ýjað að því að lettneski bankinn Lateko hafi beitt danska bankamenn blekkingum til að fá sambankalán. Bankinn er í eigu Íslendinga frá því fyrr á þessu ári og á Jón Helgi Guðmundsson, kenndur við BYKO, stóran hlut í bankanum. [GOTO AUDIO IN WORDS: satt að segja OUT WORDS: segja AT: 53'32" TO: 53'38" ITEM TIME:0'06"] [GOTO AUDIO IN WORDS: það er OUT WORDS: höfuð AT: 55'32" TO: 55'44" ITEM TIME:0'12"] Í grein sinni lýsir Ekstra Bladet hvernig bankinn á að hafa nokkru árum áður tekið þátt í að aðstoða skjólstæðing sinn, rússneskt olíufélag, við að skjóta fjármunum undan skatti. Svo er annars viðskiptamaður bankans er svo sagður eiga í dómsmáli í Bandaríkjunum vegna viðskipta þar sem fjármunir eiga að hafa runnið um bankareikning hjá Lateko. Blaðið segir bankann hafa þagað um þessi mál þegar þeir fengu danska bankann Morsö Bank til að taka þátt í veitingu sambankaláns til Lateko og er nafn Kaupþings banka í Lúxemborg sérstaklega nefnt. [GOTO AUDIO IN WORDS: þeir eru OUT WORDS: framvegis AT: 0'18" TO: 0'35" ITEM TIME:0'17"] Á vísir.is í dag var sagt, að í Ekstra Bladet, væri verið að saka Jón Helga um blekkingar. [GOTO AUDIO IN WORDS: það er OUT WORDS: fram AT: 55'07" TO: 55'20" ITEM TIME:0'13"] Jón Helgi segir að danska bankastjóranum hafi átt að vera fullkunnugt um dómsmálið í Bandaríkjunum. Þær upplýsingar sé að finna í ársreikningi Lateko bank og sjálfur hafi Jón Helgi látið ganga úr skugga að litlar líkur á að það mál myndi tapast áður en hann kom að kaupum bankans. [GOTO AUDIO IN WORDS: ég held OUT WORDS: ÚTRÁS AT: 58'47" TO: 58'58" ITEM TIME:0'11"] Jón Helgi Guðmundsson, einn eigenda lettneska bankans Lateko Bank, segir umfjöllun Ekstra blaðsins misvísandi og ruglingslega og að með greinarskrifum blaðsins sé verið að reyna að koma höggi á íslenskt viðskiptalíf. Innlent 2.11.2006 18:43 Lækkun matarskatts vinnur gegn verðbólgumarkmiðum Ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að lækka matarskatta vinnur gegn verðbólgumarkmiðum Seðlabankans. Seðlabankastjóri segir ekki raunhæft að stýrivextir verði lækkaðir í byrjun næsta árs eins og greiningardeildirnar hafa spáð og útilokar ekki að þeir verði hækkaðir í desember. Innlent 2.11.2006 18:26 Árs fangelsi fyrir fíkniefnabrot Hæstiréttur Íslands dæmdi í dag karlmann í árs fangelsi og sýknaði annan fyrir ávana- og fíkniefnabrot. Hæstiréttur staðfesti þar með dóm Héraðsdómur Reykjavíkur. Mönnunum var gefið að sök að hafa haft í sinni vörslu rúm sjötíu grömm af hassi. Innlent 2.11.2006 16:38 Norðurlönd vilja strangari loftslagsskuldbindingar Innlent 2.11.2006 15:36 Kaup á lettneskum banka gagnrýnd Í nýjustu grein Ekstra Bladet um íslenskt viðskiptalíf er ýjað að því að lettneski bankinn Lateko hafi beitt danska bankamenn blekkingum til að fá sambankalán. Bankinn er í eigu Íslendinga. Erlent 2.11.2006 14:42 Tveggja mánaða dómur fyrir þjófnað Síbrotamaður á fertugsaldri var í dag dæmdur í tveggja mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa brotist inn í tvo bíla og haft þaðan á burt ýmis verðmæti. Fram kemur í dómnum að ákærði hafi játað brot sín en hann á að baki nær samfelldan sakaferil frá árinu 1990 og hefur hlotið 24 refsidóma, aðallega fyrir auðgunarbrot. Innlent 2.11.2006 13:32 Vanhirtir hestar í Dalabyggð Héraðsdýralæknir og búfjáreftirlitsmaður Dalabyggðar segja að hross gangi eftirlits- og heylaus á bæ í Dalabyggð. Þeir segja eigandur hrossanna, sem ekki eru búsettir í sveitarfélaginu, ekki hafa sinnt ítrekuðum beiðnum þeirra um betri umhirðu Innlent 2.11.2006 13:28 Heildarlaun karla innan SGS yfir 40% hærri en kvenna Meðalheildarlaun karla sem eru félagar í einhverju aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins eru rúmlega 42 prósentum hærri en laun kvenna í sömu félögum. Þetta leiðir ný könnun sem Capacent Gallup vann í september. Innlent 2.11.2006 13:12 « ‹ 174 175 176 177 178 179 180 181 182 … 334 ›
RÚV mun fá algjöra yfirburði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, skrifar á heimasíðu samtakanna í gær að breyting Ríkisútvarpsins í opinbert hlutafélag muni valda því að veruleg röskun verði á íslenskum fjölmiðlamarkaði í heild. Innlent 2.11.2006 21:58
Umfjöllunin ekki svaraverð „Umfjöllun blaðsins er í raun ekki svaraverð“, segir Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri KB banka, um skrif Ekstra blaðsins um íslenskt viðskiptalíf að undanförnu. Hreiðar segir að umsvif Íslendinga í Danmörku séu orðin veruleg og hafi aukist mjög á stuttum tíma. „Það er líklega þessi snögga framganga sem veldur þessu“, ályktar Hreiðar. Innlent 2.11.2006 21:57
Hlutverk RÚV þarf að vernda "Ég er sammála Vilhjálmi um að í frumvarpinu eru ekki nægilega góðar skilgreiningar um hlutverk miðilsins, en ég tel að sterkt og sjálfstætt almannaútvarp eigi að vera til," segir Mörður Árnason sem situr í menntamálanefnd Alþingis fyrir Samfylkinguna. Innlent 2.11.2006 21:57
Heldur fundi fyrir Pólverja Efling stéttarfélag stendur fyrir kynningarfundum fyrir Pólverja í byggingariðnaði og er meiningin að kynna þeim réttindi þeirra og skyldur á íslenskum vinnumarkaði. Innlent 2.11.2006 21:57
Kaup Íslandspósts á Samskiptum umdeild Sigurður Kári Kristjánsson segir kaup Íslandspósts á prentfyrirtækinu Samskiptum óþörf og til þess fallin að þenja út starfsemi ríkisins að óþörfu. Kaupin eru hluti af framtíðaráformum Íslandspósts, segir forstjóri fyrirtækisins. Innlent 2.11.2006 21:58
Horuð hross án skjóls og fóðurs Tveimur mönnum sem eiga á annan tug hrossa á jörð í Dalabyggð hefur verið gert að bæta fóðrun hrossa sinna þar sem búfjáreftirlitsmaður og héraðsdýralæknir telja hana með öllu óviðunandi. Í bréfi til sveitarstjóra segja þeir hrossin hafa verið orðin ansi aflögð og „sérstaklega voru trippi í hópnum orðin horuð“. Sveitarstjóri hefur gefið eigendum frest fram á mánudag til úrbóta. Innlent 2.11.2006 21:58
Rauð nef fyrir gott málefni Fyrsti desember næstkomandi verður Dagur rauða nefsins. Rauð nef verða seld er nær dregur deginum og þriggja tíma söfnunarútsending verður síðan 1. desember á Stöð tvö þar sem landslið grínara mun kitla hláturtaugar landsmanna. Innlent 2.11.2006 21:57
Pólverji fær greitt að fullu Verkalýðsfélag Akraness telur að rúmlega 174 þúsund krónur vanti upp á að laun pólsks verkamanns nái þeim lágmarkslaunum eftir þriggja mánaða vinnu. Félagið hefur að undanförnu verið að aðstoða Pólverjann við að leita réttar síns hjá fyrirtækinu. Innlent 2.11.2006 21:57
Leigubílar á strætóbrautir Leigubílar í akstri með farþega fá framvegis forgang á aðra bílaumferð á götum borgarinnar. Framkvæmdaráð Reykjavíkur hefur samþykkt að leigubílum sé heimilt að aka á sérakreinum strætisvagna þar sem þær eru, til dæmis á Miklubraut í Reykjavík. Innlent 2.11.2006 21:57
Safna fé á eBay til kaupa á hval Dýraverndunarsamtökin WSPA í Bretlandi nota nú eBay-uppboðsvefinn til að safna fé til að kaupa einni langreyði líf af þeim níu sem leyft hefur verið að veiða. Þetta kemur fram á vef samtakanna sem hafa komist að því að hvalslíf kostar tæpar þrettán milljónir króna sé miðað við verð á hvalaafurðum á heimsmarkaði. Innlent 2.11.2006 21:57
Helsta baráttumálið í höfn Guðjón Guðmundsson varaþingmaður tók sæti Einars K. Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra á Alþingi á þriðjudag. Innlent 2.11.2006 21:57
Netaveiðum við Írland hætt Ríkisstjórn Írlands hefur ákveðið að taka fyrir allar reknetaveiðar á laxi við strendur landsins. Lagt er til algjört bann við reknetaveiðum á laxi frá næstu áramótum og að 30 milljónum evra verði varið til að bæta 877 sjómönnum upp þann tekjumissi sem þeir hljóta af banninu. Þetta er mikill sigur fyrir Orra Vigfússon, formann Norður-Atlantshafslaxasjóðsins (NASF), sem hefur lengi barist fyrir upptöku netanna. Innlent 2.11.2006 21:57
Sigurvin fékk verkefnastyrk Í gær var verkefnastyrkur Félagsstofnunar stúdenta afhentur. Það var Sigurvin Jónsson sem hlaut styrkinn fyrir kjörsviðsritgerð sína til embættisprófs í guðfræði. Ritgerðin ber titilinn "Jesúhefðin og hin himneska sófía: Eðli og birting spekinnar í Jakobsbréfi, Ræðuheimildinni og gyðing-kristnum bókmenntum í ljósi hellenískra og gyðinglegra spekihefða." Innlent 2.11.2006 21:57
Sjóræningjaafli af Reykjaneshrygg í eigu Landsbankans Tvisvar hefur Landsbanki Íslands veitt afurðalán út á afla sem er ólöglega veiddur. Erfitt að vita hvað verið er að fjármagna segir framkvæmdastjóri Norður-Atlantshafs fiskveiðinefndarinnar. Innlent 2.11.2006 21:58
Kona í karls stað á ljósum Tillaga um að gangbrautarljós sýni konu en ekki karl á fimm stöðum í borginni var lögð fram í mannréttindanefnd Reykjavíkurborgar á miðvikudaginn af Bryndísi Ísfold Hlöðversdóttur, fulltrúa Samfylkingarinnar í nefndinni. Innlent 2.11.2006 21:57
Kári gefur kost á sér í 3.-4. sæti Kári Páll Óskarsson gjaldkeri Ungra vinstri grænna, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 3.-4. sæti í forvali VG í Reykjavík og Suðvesturkjördæmi. Innlent 2.11.2006 21:57
Kaupa tæki til snjóframleiðslu Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur samþykkt að kaupa snjóframleiðsluvélar á skíðasvæðið í Oddsskarði. Innlent 2.11.2006 21:57
Gefur kost á sér í 2. sætið Samúel Örn Erlingsson, deildarstjóri íþróttadeildar Ríkisútvarpsins, gefur kost á sér í 2. sæti á framboðslista Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar í vor. Innlent 2.11.2006 21:57
Býður sig fram í 4. til 5. sæti Anna Sigríður Guðnadóttir býður sig fram í 4. til 5. sæti á lista í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Innlent 2.11.2006 21:57
Fíkniefnasali dæmdur Rúmlega tvítugur maður var á mánudag dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir brot á fíkniefna-, tolla- og vopnalögum. Hann hafði verið handtekinn fjórum sinnum á rúmlega þremur mánuðum í kringum síðustu áramót. Innlent 2.11.2006 21:57
Beðið fyrir vegfarendum Fjöldi fólks kom saman við Óshólavita í Óshlíð á miðvikudag til að biðja fyrir vegfarendum og þeim sem taka ákvarðanir um endurbætur vegasamgangna. Tilefnið var sú hætta sem stafar af grjóthruni úr fjallinu en sr. Skírnir Garðarsson annaðist bænastundina. Innlent 2.11.2006 21:57
Ari Edwald segir sameiningu geta verið mjög skynsamlega Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, segir að engar formlegar viðræður hafi farið fram á milli fyrirtækisins og Skjásins um sameiningu fyrirtækjanna. Innlent 2.11.2006 21:58
Segir umfjöllun Ekstra blaðsins misvísandi Í nýjustu grein Ekstra Bladet um íslenskt viðskiptalíf er ýjað að því að lettneski bankinn Lateko hafi beitt danska bankamenn blekkingum til að fá sambankalán. Bankinn er í eigu Íslendinga frá því fyrr á þessu ári og á Jón Helgi Guðmundsson, kenndur við BYKO, stóran hlut í bankanum. [GOTO AUDIO IN WORDS: satt að segja OUT WORDS: segja AT: 53'32" TO: 53'38" ITEM TIME:0'06"] [GOTO AUDIO IN WORDS: það er OUT WORDS: höfuð AT: 55'32" TO: 55'44" ITEM TIME:0'12"] Í grein sinni lýsir Ekstra Bladet hvernig bankinn á að hafa nokkru árum áður tekið þátt í að aðstoða skjólstæðing sinn, rússneskt olíufélag, við að skjóta fjármunum undan skatti. Svo er annars viðskiptamaður bankans er svo sagður eiga í dómsmáli í Bandaríkjunum vegna viðskipta þar sem fjármunir eiga að hafa runnið um bankareikning hjá Lateko. Blaðið segir bankann hafa þagað um þessi mál þegar þeir fengu danska bankann Morsö Bank til að taka þátt í veitingu sambankaláns til Lateko og er nafn Kaupþings banka í Lúxemborg sérstaklega nefnt. [GOTO AUDIO IN WORDS: þeir eru OUT WORDS: framvegis AT: 0'18" TO: 0'35" ITEM TIME:0'17"] Á vísir.is í dag var sagt, að í Ekstra Bladet, væri verið að saka Jón Helga um blekkingar. [GOTO AUDIO IN WORDS: það er OUT WORDS: fram AT: 55'07" TO: 55'20" ITEM TIME:0'13"] Jón Helgi segir að danska bankastjóranum hafi átt að vera fullkunnugt um dómsmálið í Bandaríkjunum. Þær upplýsingar sé að finna í ársreikningi Lateko bank og sjálfur hafi Jón Helgi látið ganga úr skugga að litlar líkur á að það mál myndi tapast áður en hann kom að kaupum bankans. [GOTO AUDIO IN WORDS: ég held OUT WORDS: ÚTRÁS AT: 58'47" TO: 58'58" ITEM TIME:0'11"] Í nýjustu grein Ekstra Bladet um íslenskt viðskiptalíf er ýjað að því að lettneski bankinn Lateko hafi beitt danska bankamenn blekkingum til að fá sambankalán. Bankinn er í eigu Íslendinga frá því fyrr á þessu ári og á Jón Helgi Guðmundsson, kenndur við BYKO, stóran hlut í bankanum. [GOTO AUDIO IN WORDS: satt að segja OUT WORDS: segja AT: 53'32" TO: 53'38" ITEM TIME:0'06"] [GOTO AUDIO IN WORDS: það er OUT WORDS: höfuð AT: 55'32" TO: 55'44" ITEM TIME:0'12"] Í grein sinni lýsir Ekstra Bladet hvernig bankinn á að hafa nokkru árum áður tekið þátt í að aðstoða skjólstæðing sinn, rússneskt olíufélag, við að skjóta fjármunum undan skatti. Svo er annars viðskiptamaður bankans er svo sagður eiga í dómsmáli í Bandaríkjunum vegna viðskipta þar sem fjármunir eiga að hafa runnið um bankareikning hjá Lateko. Blaðið segir bankann hafa þagað um þessi mál þegar þeir fengu danska bankann Morsö Bank til að taka þátt í veitingu sambankaláns til Lateko og er nafn Kaupþings banka í Lúxemborg sérstaklega nefnt. [GOTO AUDIO IN WORDS: þeir eru OUT WORDS: framvegis AT: 0'18" TO: 0'35" ITEM TIME:0'17"] Á vísir.is í dag var sagt, að í Ekstra Bladet, væri verið að saka Jón Helga um blekkingar. [GOTO AUDIO IN WORDS: það er OUT WORDS: fram AT: 55'07" TO: 55'20" ITEM TIME:0'13"] Jón Helgi segir að danska bankastjóranum hafi átt að vera fullkunnugt um dómsmálið í Bandaríkjunum. Þær upplýsingar sé að finna í ársreikningi Lateko bank og sjálfur hafi Jón Helgi látið ganga úr skugga að litlar líkur á að það mál myndi tapast áður en hann kom að kaupum bankans. [GOTO AUDIO IN WORDS: ég held OUT WORDS: ÚTRÁS AT: 58'47" TO: 58'58" ITEM TIME:0'11"] Jón Helgi Guðmundsson, einn eigenda lettneska bankans Lateko Bank, segir umfjöllun Ekstra blaðsins misvísandi og ruglingslega og að með greinarskrifum blaðsins sé verið að reyna að koma höggi á íslenskt viðskiptalíf. Innlent 2.11.2006 18:43
Lækkun matarskatts vinnur gegn verðbólgumarkmiðum Ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að lækka matarskatta vinnur gegn verðbólgumarkmiðum Seðlabankans. Seðlabankastjóri segir ekki raunhæft að stýrivextir verði lækkaðir í byrjun næsta árs eins og greiningardeildirnar hafa spáð og útilokar ekki að þeir verði hækkaðir í desember. Innlent 2.11.2006 18:26
Árs fangelsi fyrir fíkniefnabrot Hæstiréttur Íslands dæmdi í dag karlmann í árs fangelsi og sýknaði annan fyrir ávana- og fíkniefnabrot. Hæstiréttur staðfesti þar með dóm Héraðsdómur Reykjavíkur. Mönnunum var gefið að sök að hafa haft í sinni vörslu rúm sjötíu grömm af hassi. Innlent 2.11.2006 16:38
Kaup á lettneskum banka gagnrýnd Í nýjustu grein Ekstra Bladet um íslenskt viðskiptalíf er ýjað að því að lettneski bankinn Lateko hafi beitt danska bankamenn blekkingum til að fá sambankalán. Bankinn er í eigu Íslendinga. Erlent 2.11.2006 14:42
Tveggja mánaða dómur fyrir þjófnað Síbrotamaður á fertugsaldri var í dag dæmdur í tveggja mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa brotist inn í tvo bíla og haft þaðan á burt ýmis verðmæti. Fram kemur í dómnum að ákærði hafi játað brot sín en hann á að baki nær samfelldan sakaferil frá árinu 1990 og hefur hlotið 24 refsidóma, aðallega fyrir auðgunarbrot. Innlent 2.11.2006 13:32
Vanhirtir hestar í Dalabyggð Héraðsdýralæknir og búfjáreftirlitsmaður Dalabyggðar segja að hross gangi eftirlits- og heylaus á bæ í Dalabyggð. Þeir segja eigandur hrossanna, sem ekki eru búsettir í sveitarfélaginu, ekki hafa sinnt ítrekuðum beiðnum þeirra um betri umhirðu Innlent 2.11.2006 13:28
Heildarlaun karla innan SGS yfir 40% hærri en kvenna Meðalheildarlaun karla sem eru félagar í einhverju aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins eru rúmlega 42 prósentum hærri en laun kvenna í sömu félögum. Þetta leiðir ný könnun sem Capacent Gallup vann í september. Innlent 2.11.2006 13:12