Innlent Björgunarsveitarmenn hættir störfum í dag Björgunarsveitarmenn á höfuðborgarsvæðinu hafa hætt störfum í dag eftir að hafa haft í nógu að snúast vegna ófærðar frá því í nótt. Tekist hefur að rýma að mestu Víkurveg í Grafarvogi þar sem fjöldi bíla hefur setið fastur. Nokkrir árekstrar hafa verið í dag en lögreglunni í Reykjavík er ekki kunnugt um slys á fólki. Innlent 19.11.2006 16:42 Efnistöku hætt þar til mat á umhverfisáhrifum liggur fyrir Fyrirtækið Björgun, sem nemur jarðefni af hafsbotni til frekari vinnslu, hefur hafið forvinnu við mat á umhverfisáhrifum á Kollafjarðarsvæðinu, í Hvalfirði og Faxaflóa. Umhverfisráðherra ákvað að umhverfismat ætti að fara fram vegna efnisnáms í Kollafirði. Björgun hefur ákveðið að hætta um sinn efnistöku á fyrrgreindum svæðum þar til niðurstaða mats á umhverfisáhrifum liggur fyrir. Innlent 19.11.2006 16:20 Framlög til Félags Sameinuðu þjóðanna aukin Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, tilkynnti um aukin framlög ríkisins til Félags Sameinuðu þjóðanna á sérstakri afmælishátíð í dag. Innlent 19.11.2006 15:40 Messa felld niður vegna ófærðar Vegna ófærðar verður kvöldguðsþjónustan sem átti að vera í Lágafellskirkju í Mosfellsbæ, í kvöld klukkan átta, felld niður. Innlent 19.11.2006 15:17 Ófærð á Víkurvegi í Grafarvogi Lögreglan í Reykjavík varar vegfarendur við mikilli ófærð á Víkurvegi í Grafarvogi, sér í lagi við brúna yfir Vesturlandsveg. Fjöldi ökutækja hefur fest sig þar og hamlar það verki snjóruðningstækja. Björgunarsveitir og lögregla vinna nú að því að losa bifreiðar svo hægt sé að ryðja. Vegfarendur eru hvattir til að velja aðrar leiðir en Víkurveg. Innlent 19.11.2006 14:58 Fagnaði 101 árs afmæli sínu í gær Birna Jónsdóttir fagnaði í gær 101 árs afmæli sínu á Sauðárkróki. Meðalaldur Birnu og systra hennar, sem komust á legg, er 97 ár en það er hæsti meðalaldur fjögurra íslenskra systkina sem vitað er um. Innlent 19.11.2006 13:50 Valdimar L. Friðriksson genginn úr Samfylkingunni Valdimar Leó Friðriksson, þingmaður Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi, er genginn úr Samfylkingunni og þar með þingflokki hennar. Valdimar greindi frá þessu í þættinum Silfur Egils á Stöð 2 í dag en tilkynnti varaformanni Samfylkingarinnar í morgun að hann væri hættur í flokknum. Valdimar ætlar að starfa sem óháður þingmaður á Alþingi. Innlent 19.11.2006 13:33 Birtir uppgjör úr prófkjörsbaráttu sinni Sigríður Andersen, sem hafnaði í 10. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, hefur birt uppgjör á kostnaði við prófkjör sitt. Sigríður telur að flokkar og framboð eig að hafa sjálfdæmi um hversu mikið af upplýsingunum þau birta. Innlent 19.11.2006 13:31 Styrktartónleikar í þágu fatlaðra barna Caritas á Íslandi, góðgerðarsamtök kaþólsku kirkjunnar, efna í dag til styrktartónleika í þágu fatlaðra barna, í Kristskirkju við Landakot. Þetta er í þrettánda sinn sem Caritas efnir til styrktartónleika en í ár rennur allur ágóðinn til Greiningar- og ráðgjafastöðvar ríkisins. Innlent 19.11.2006 12:17 Sigurbjörn Einarsson biskup predikaði Kirkjugestir í Grafavogskirkju í morgun létu ekki veðrið koma í veg fyrir að þeir mættu í messu. Sigurbjörn Einarsson biskup predikaði í morgun en hann er 95 ára. Sigurbjörn sló á létta strengi í predikun sinni en Sigurbjörn hefur þótt kraftmikill predikari. Fyrir messuna voru haldin fjögur erindi um biskupinn. Innlent 19.11.2006 13:12 Kristinn segir ekki á döfinni að ganga úr Framsóknarflokknum Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir ekki á döfinni að segja sig úr Framsóknarflokknum. Þetta sagði Kristinn í þættinum Silfur Egils á Stöð 2. Kristinn lenti í þriðja sæti í prófkjöri Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi í fyrradag. Flokkurinn hefur nú tvo þingmenn í kjördæminu. Innlent 19.11.2006 12:57 Tónleikum aflýst vegna færðar Aflýsa þarf tónleikum Harmonikkufélags Reykjavíkur sem halda átti í Ráðhúsi Reykjavíkur klukkan þrjú í dag. Ástæðan er slæmt veður og færð. Innlent 19.11.2006 12:16 Lágmarkslaun þurfa að hækka um 40-50% Verkalýðshreyfingin þarf að sýna tennurnar í næstu kjarasamningum og fá lágmarkslaun hækkuð um 40-50%, segir formaður Verkalýðsfélags Akraness. Innlent 19.11.2006 11:59 Í fangageymslu eftir hótelferð Maður gistir í fangageymslum hjá lögreglunni á Selfossi eftir að hafa brotist inn á Hótel Selfoss í nótt. Maðurinn sem var mjög ölvaður var tekinn þar sem hann ráfaði um ganga hótelsins. Hann verður yfirheyrður í dag þegar hann vaknar. Innlent 19.11.2006 10:13 Búið að opna í Hlíðarfjalli Hlíðarfjall var opnað núna klukkan tíu og opið verður til klukkan fjögur í dag. Klukkan átta í morgun var sjö stiga frost og logn við fjallið. Flestar lyftur verða í gangi og skíðafæri er gott, troðinn og þurr snjór. Þá er búið að troða fimm kílómetra gönguhring. Aðstæður til skíða og snjóbrettaiðkunar eru með besta móti. Innlent 19.11.2006 10:17 Bláfjöll og Skálafell opna ekki í dag Óvíst er hvenær hægt verður að opna skíðasvæðið í Bláfjöllum og Skálafelli - en það er alveg ljóst að það næst ekki að opna svæðið í dag. Friðjón Axfjörð Árnason verkefnisstjóri á skíðasvæðinu sagði í samtali við fréttastofu í morgun að nokkurn tíma tæki að gera svæðin klár fyrir fyrstu opnun. Auk þess hefðu flutningar verið í gangi en starfsemi skíðadeildar Víkings hefur verið lögð niður á Hengilssvæðinu og búið að flytja lyftur þeirra upp í Bláfjöll. Innlent 19.11.2006 10:15 Hátt í 50 útköll á Akranesi Upp undir fimmtíu útköll hafa verið hjá lögreglunni á Akranesi frá því klukkan þrjú í nótt og menn hafa verið á fullu að losa bíla sem sitja fastir þvers og kruss um bæinn. Eins var lögreglan að aðstoða fólk að komast af veitingastöðum og til vinnu á sjúkrahús og dvalarheimili. Engin tjón hafa orðið svo lögreglan viti til. Innlent 19.11.2006 10:13 Sextán ára undir stýri Þrír sextán ára piltar voru teknir við akstur í umdæmi lögreglunnar í Árnessýslu í nótt og í gær. Eins og aldur þeirra segir til um voru þeir allir próflausir og einn þeirra grunaður um ölvun við akstur. Innlent 19.11.2006 10:09 Fresta þarf ferð hjá Herjólfi Fresta þarf fyrri ferð Herjólfs frá Vestmannaeyjum í dag vegna veðurs. Ferðin verður farin klukkan tólf frá Vestmannaeyjum og klukkan fjögur frá Þorlákshöfn. Seinni ferð Herjólfs í dag fellur niður. Innlent 19.11.2006 10:06 Víða ófært Á höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesi er snjóþekja og éljagangur. Hálka og skafrenningur er á Hellisheiði og í Þrengslum. Á Vesturlandi er snjóþekja, skafrenningur og éljagangur. Ófært og stórhríð er á Fróðárheiði. Innlent 19.11.2006 09:58 Ófærð og snjór á höfuðborgarsvæðinu Á milli sextíu og sjötíu björgunarsveitarmenn á höfuðborgarsvæðinu hafa sinnt yfir eitt hundrað og tuttugu verkefnum í nótt og í morgun vegna mikillar ófærðar. Bílar eru víða fastir eftir mikla ofankomu í nótt. Búið er að hreinsa flestar stærstu umferðaræðarnar en íbúðargötur eru þó margar hverjar á kafi í snjó. Innlent 19.11.2006 09:22 Starfsmenn telja uppsagnir ólöglegar Starfsmenn Flugmálastjórnar gagnrýna uppsagnir hart og telja að lög hafi verið brotin. Flugmálastjóri segir stjórnvöld vilja verja réttindi starfsmanna. Flugumferðarstjórar leita starfa í Evrópu þar sem atvinnutækifæri eru mikil. Innlent 18.11.2006 21:18 Úrsagnir úr flokknum Flokksbundnir sjálfstæðismenn hafa sagt sig úr Sjálfstæðisflokknum eftir að Árni Johnsen hlaut kosningu í annað sæti á lista flokksins í Suðurkjördæmi í nýafstöðnu prófkjöri. Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins hefur staðfest þetta. Morgunblaðið greindi frá þessu í gær. Innlent 18.11.2006 21:18 Mest kvartað yfir háu verðlagi Ferðamenn á Íslandi eru helst ósáttir við verðlag hérlendis samkvæmt könnunum sem kynntar voru á Ferðamálaráðstefnu 2006 á fimmtudag. Á það bæði við um íslenska og erlenda ferðamenn. Ferðamálastofa lét gera viðhorfskönnun meðal íslenskra ferðamanna hérlendis og Samtök ferðaþjónustunnar könnuðu álit erlendra ferðamanna á gæðum íslenskrar ferðaþjónustu. Innlent 18.11.2006 21:19 Engin lög þarf um fjármálin Sigríður Á. Andersen, frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, hefur birt upplýsingar vegna framboðs síns. Prófkjörið kostaði 3,7 milljónir króna og framlög námu 3,8 milljónum. Þau komu frá 25 félögum og 31 einstaklingi. Meðalframlag fyrirtækja var um 135.000 krónur og einstaklinga um 16.000 krónur. Innlent 18.11.2006 21:18 Ekki víst að Kristinn taki sæti á listanum Magnús Stefánsson er sigurvegari prófkjörs Framsóknar í Norðvesturkjördæmi. Kristinn H. Gunnarsson féll niður í þriðja sæti og segir bandalag hafa verið myndað gegn sér. Félagshyggju var hafnað í prófkjörinu að mati Kristins. Innlent 18.11.2006 21:18 Klofningi spáð í Framsókn Stjórnmálafræðingar telja blikur á lofti hjá Framsóknarflokknum í Norðvesturkjördæmi. Úrslit prófkjörsins eru túlkuð sem klofningur og flokksforystunni sé létt við að Kristinn H. Gunnarsson sé ekki í þingsæti. Innlent 18.11.2006 21:18 Vetrarríkið er mikið á Íslandi Vetrarríkið á landinu hefur ekki farið fram hjá neinum í byggðu bóli undanfarna daga en þess gætir líka víðar. Sjófarendur verða þess varir að óvenjulega kalt hefur verið á undanförnu eins og farþegar um borð í farþegaferjunni Herjólfi í siglingum á milli lands og Eyja. Innlent 18.11.2006 21:19 Þingmenn í efstu sætum Sjálfstæðismenn í Norðvesturkjördæmi samþykktu í gær framboðslista sinn fyrir komandi alþingiskosningar á kjördæmisþingi í Borgarnesi. Flokkurinn fékk þrjá þingmenn kjörna í síðustu kosningum, ráðherrana Sturlu Böðvarsson og Einar K. Guðfinnsson, og þingmanninn Einar Odd Kristjánsson. Þeir skipa áfram þrjú efstu sæti listans í þessari röð. Í fjórða sæti er Herdís Þórðardóttir, fiskverkandi á Akranesi, sem kemur ný inn á listann. Innlent 18.11.2006 21:18 Fræddi ljósmæður um ungbarnaeftirlit Eva Laufey Steingrímsdóttir ljósmóðir er nýkomin frá Afganistan þar sem hún fræddi hóp ljósmæðra og yfirsetukvenna um getnaðarvarnir, fæðingar og ungbarnaeftirlit. Mæðradauði í landinu er mjög hár og aðstæður frumstæðar. Innlent 18.11.2006 21:19 « ‹ 147 148 149 150 151 152 153 154 155 … 334 ›
Björgunarsveitarmenn hættir störfum í dag Björgunarsveitarmenn á höfuðborgarsvæðinu hafa hætt störfum í dag eftir að hafa haft í nógu að snúast vegna ófærðar frá því í nótt. Tekist hefur að rýma að mestu Víkurveg í Grafarvogi þar sem fjöldi bíla hefur setið fastur. Nokkrir árekstrar hafa verið í dag en lögreglunni í Reykjavík er ekki kunnugt um slys á fólki. Innlent 19.11.2006 16:42
Efnistöku hætt þar til mat á umhverfisáhrifum liggur fyrir Fyrirtækið Björgun, sem nemur jarðefni af hafsbotni til frekari vinnslu, hefur hafið forvinnu við mat á umhverfisáhrifum á Kollafjarðarsvæðinu, í Hvalfirði og Faxaflóa. Umhverfisráðherra ákvað að umhverfismat ætti að fara fram vegna efnisnáms í Kollafirði. Björgun hefur ákveðið að hætta um sinn efnistöku á fyrrgreindum svæðum þar til niðurstaða mats á umhverfisáhrifum liggur fyrir. Innlent 19.11.2006 16:20
Framlög til Félags Sameinuðu þjóðanna aukin Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra, tilkynnti um aukin framlög ríkisins til Félags Sameinuðu þjóðanna á sérstakri afmælishátíð í dag. Innlent 19.11.2006 15:40
Messa felld niður vegna ófærðar Vegna ófærðar verður kvöldguðsþjónustan sem átti að vera í Lágafellskirkju í Mosfellsbæ, í kvöld klukkan átta, felld niður. Innlent 19.11.2006 15:17
Ófærð á Víkurvegi í Grafarvogi Lögreglan í Reykjavík varar vegfarendur við mikilli ófærð á Víkurvegi í Grafarvogi, sér í lagi við brúna yfir Vesturlandsveg. Fjöldi ökutækja hefur fest sig þar og hamlar það verki snjóruðningstækja. Björgunarsveitir og lögregla vinna nú að því að losa bifreiðar svo hægt sé að ryðja. Vegfarendur eru hvattir til að velja aðrar leiðir en Víkurveg. Innlent 19.11.2006 14:58
Fagnaði 101 árs afmæli sínu í gær Birna Jónsdóttir fagnaði í gær 101 árs afmæli sínu á Sauðárkróki. Meðalaldur Birnu og systra hennar, sem komust á legg, er 97 ár en það er hæsti meðalaldur fjögurra íslenskra systkina sem vitað er um. Innlent 19.11.2006 13:50
Valdimar L. Friðriksson genginn úr Samfylkingunni Valdimar Leó Friðriksson, þingmaður Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi, er genginn úr Samfylkingunni og þar með þingflokki hennar. Valdimar greindi frá þessu í þættinum Silfur Egils á Stöð 2 í dag en tilkynnti varaformanni Samfylkingarinnar í morgun að hann væri hættur í flokknum. Valdimar ætlar að starfa sem óháður þingmaður á Alþingi. Innlent 19.11.2006 13:33
Birtir uppgjör úr prófkjörsbaráttu sinni Sigríður Andersen, sem hafnaði í 10. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, hefur birt uppgjör á kostnaði við prófkjör sitt. Sigríður telur að flokkar og framboð eig að hafa sjálfdæmi um hversu mikið af upplýsingunum þau birta. Innlent 19.11.2006 13:31
Styrktartónleikar í þágu fatlaðra barna Caritas á Íslandi, góðgerðarsamtök kaþólsku kirkjunnar, efna í dag til styrktartónleika í þágu fatlaðra barna, í Kristskirkju við Landakot. Þetta er í þrettánda sinn sem Caritas efnir til styrktartónleika en í ár rennur allur ágóðinn til Greiningar- og ráðgjafastöðvar ríkisins. Innlent 19.11.2006 12:17
Sigurbjörn Einarsson biskup predikaði Kirkjugestir í Grafavogskirkju í morgun létu ekki veðrið koma í veg fyrir að þeir mættu í messu. Sigurbjörn Einarsson biskup predikaði í morgun en hann er 95 ára. Sigurbjörn sló á létta strengi í predikun sinni en Sigurbjörn hefur þótt kraftmikill predikari. Fyrir messuna voru haldin fjögur erindi um biskupinn. Innlent 19.11.2006 13:12
Kristinn segir ekki á döfinni að ganga úr Framsóknarflokknum Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir ekki á döfinni að segja sig úr Framsóknarflokknum. Þetta sagði Kristinn í þættinum Silfur Egils á Stöð 2. Kristinn lenti í þriðja sæti í prófkjöri Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi í fyrradag. Flokkurinn hefur nú tvo þingmenn í kjördæminu. Innlent 19.11.2006 12:57
Tónleikum aflýst vegna færðar Aflýsa þarf tónleikum Harmonikkufélags Reykjavíkur sem halda átti í Ráðhúsi Reykjavíkur klukkan þrjú í dag. Ástæðan er slæmt veður og færð. Innlent 19.11.2006 12:16
Lágmarkslaun þurfa að hækka um 40-50% Verkalýðshreyfingin þarf að sýna tennurnar í næstu kjarasamningum og fá lágmarkslaun hækkuð um 40-50%, segir formaður Verkalýðsfélags Akraness. Innlent 19.11.2006 11:59
Í fangageymslu eftir hótelferð Maður gistir í fangageymslum hjá lögreglunni á Selfossi eftir að hafa brotist inn á Hótel Selfoss í nótt. Maðurinn sem var mjög ölvaður var tekinn þar sem hann ráfaði um ganga hótelsins. Hann verður yfirheyrður í dag þegar hann vaknar. Innlent 19.11.2006 10:13
Búið að opna í Hlíðarfjalli Hlíðarfjall var opnað núna klukkan tíu og opið verður til klukkan fjögur í dag. Klukkan átta í morgun var sjö stiga frost og logn við fjallið. Flestar lyftur verða í gangi og skíðafæri er gott, troðinn og þurr snjór. Þá er búið að troða fimm kílómetra gönguhring. Aðstæður til skíða og snjóbrettaiðkunar eru með besta móti. Innlent 19.11.2006 10:17
Bláfjöll og Skálafell opna ekki í dag Óvíst er hvenær hægt verður að opna skíðasvæðið í Bláfjöllum og Skálafelli - en það er alveg ljóst að það næst ekki að opna svæðið í dag. Friðjón Axfjörð Árnason verkefnisstjóri á skíðasvæðinu sagði í samtali við fréttastofu í morgun að nokkurn tíma tæki að gera svæðin klár fyrir fyrstu opnun. Auk þess hefðu flutningar verið í gangi en starfsemi skíðadeildar Víkings hefur verið lögð niður á Hengilssvæðinu og búið að flytja lyftur þeirra upp í Bláfjöll. Innlent 19.11.2006 10:15
Hátt í 50 útköll á Akranesi Upp undir fimmtíu útköll hafa verið hjá lögreglunni á Akranesi frá því klukkan þrjú í nótt og menn hafa verið á fullu að losa bíla sem sitja fastir þvers og kruss um bæinn. Eins var lögreglan að aðstoða fólk að komast af veitingastöðum og til vinnu á sjúkrahús og dvalarheimili. Engin tjón hafa orðið svo lögreglan viti til. Innlent 19.11.2006 10:13
Sextán ára undir stýri Þrír sextán ára piltar voru teknir við akstur í umdæmi lögreglunnar í Árnessýslu í nótt og í gær. Eins og aldur þeirra segir til um voru þeir allir próflausir og einn þeirra grunaður um ölvun við akstur. Innlent 19.11.2006 10:09
Fresta þarf ferð hjá Herjólfi Fresta þarf fyrri ferð Herjólfs frá Vestmannaeyjum í dag vegna veðurs. Ferðin verður farin klukkan tólf frá Vestmannaeyjum og klukkan fjögur frá Þorlákshöfn. Seinni ferð Herjólfs í dag fellur niður. Innlent 19.11.2006 10:06
Víða ófært Á höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesi er snjóþekja og éljagangur. Hálka og skafrenningur er á Hellisheiði og í Þrengslum. Á Vesturlandi er snjóþekja, skafrenningur og éljagangur. Ófært og stórhríð er á Fróðárheiði. Innlent 19.11.2006 09:58
Ófærð og snjór á höfuðborgarsvæðinu Á milli sextíu og sjötíu björgunarsveitarmenn á höfuðborgarsvæðinu hafa sinnt yfir eitt hundrað og tuttugu verkefnum í nótt og í morgun vegna mikillar ófærðar. Bílar eru víða fastir eftir mikla ofankomu í nótt. Búið er að hreinsa flestar stærstu umferðaræðarnar en íbúðargötur eru þó margar hverjar á kafi í snjó. Innlent 19.11.2006 09:22
Starfsmenn telja uppsagnir ólöglegar Starfsmenn Flugmálastjórnar gagnrýna uppsagnir hart og telja að lög hafi verið brotin. Flugmálastjóri segir stjórnvöld vilja verja réttindi starfsmanna. Flugumferðarstjórar leita starfa í Evrópu þar sem atvinnutækifæri eru mikil. Innlent 18.11.2006 21:18
Úrsagnir úr flokknum Flokksbundnir sjálfstæðismenn hafa sagt sig úr Sjálfstæðisflokknum eftir að Árni Johnsen hlaut kosningu í annað sæti á lista flokksins í Suðurkjördæmi í nýafstöðnu prófkjöri. Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins hefur staðfest þetta. Morgunblaðið greindi frá þessu í gær. Innlent 18.11.2006 21:18
Mest kvartað yfir háu verðlagi Ferðamenn á Íslandi eru helst ósáttir við verðlag hérlendis samkvæmt könnunum sem kynntar voru á Ferðamálaráðstefnu 2006 á fimmtudag. Á það bæði við um íslenska og erlenda ferðamenn. Ferðamálastofa lét gera viðhorfskönnun meðal íslenskra ferðamanna hérlendis og Samtök ferðaþjónustunnar könnuðu álit erlendra ferðamanna á gæðum íslenskrar ferðaþjónustu. Innlent 18.11.2006 21:19
Engin lög þarf um fjármálin Sigríður Á. Andersen, frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, hefur birt upplýsingar vegna framboðs síns. Prófkjörið kostaði 3,7 milljónir króna og framlög námu 3,8 milljónum. Þau komu frá 25 félögum og 31 einstaklingi. Meðalframlag fyrirtækja var um 135.000 krónur og einstaklinga um 16.000 krónur. Innlent 18.11.2006 21:18
Ekki víst að Kristinn taki sæti á listanum Magnús Stefánsson er sigurvegari prófkjörs Framsóknar í Norðvesturkjördæmi. Kristinn H. Gunnarsson féll niður í þriðja sæti og segir bandalag hafa verið myndað gegn sér. Félagshyggju var hafnað í prófkjörinu að mati Kristins. Innlent 18.11.2006 21:18
Klofningi spáð í Framsókn Stjórnmálafræðingar telja blikur á lofti hjá Framsóknarflokknum í Norðvesturkjördæmi. Úrslit prófkjörsins eru túlkuð sem klofningur og flokksforystunni sé létt við að Kristinn H. Gunnarsson sé ekki í þingsæti. Innlent 18.11.2006 21:18
Vetrarríkið er mikið á Íslandi Vetrarríkið á landinu hefur ekki farið fram hjá neinum í byggðu bóli undanfarna daga en þess gætir líka víðar. Sjófarendur verða þess varir að óvenjulega kalt hefur verið á undanförnu eins og farþegar um borð í farþegaferjunni Herjólfi í siglingum á milli lands og Eyja. Innlent 18.11.2006 21:19
Þingmenn í efstu sætum Sjálfstæðismenn í Norðvesturkjördæmi samþykktu í gær framboðslista sinn fyrir komandi alþingiskosningar á kjördæmisþingi í Borgarnesi. Flokkurinn fékk þrjá þingmenn kjörna í síðustu kosningum, ráðherrana Sturlu Böðvarsson og Einar K. Guðfinnsson, og þingmanninn Einar Odd Kristjánsson. Þeir skipa áfram þrjú efstu sæti listans í þessari röð. Í fjórða sæti er Herdís Þórðardóttir, fiskverkandi á Akranesi, sem kemur ný inn á listann. Innlent 18.11.2006 21:18
Fræddi ljósmæður um ungbarnaeftirlit Eva Laufey Steingrímsdóttir ljósmóðir er nýkomin frá Afganistan þar sem hún fræddi hóp ljósmæðra og yfirsetukvenna um getnaðarvarnir, fæðingar og ungbarnaeftirlit. Mæðradauði í landinu er mjög hár og aðstæður frumstæðar. Innlent 18.11.2006 21:19