Kvöldfréttir Stöðvar 2 Viðbrögð Sósíalista og VG við nýrri könnun og daggæsla hjá Arion Sósíalistar mælast inni á þingi og flokkurinn fengi fjóra þingmenn samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Vinstri græn næðu ekki manni inn á þing. Fulltrúar flokkanna bregðast við könnuninni í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 14.11.2024 18:02 Brot úr leyniupptökunum í fréttatímanum Ríkislögreglustjóri hyggst kanna mál sem snertir leynilegar upptökur erlends fyrirtækis á syni Jóns Gunnarssonar. Þar kemur fram að Jón hafi samþykkt að taka sæti á lista Sjálfstæðisflokksins gegn því að fá stöðu í matvælaráðuneytinu. Fjórar umsóknir um hvalveiðileyfi hafa borist í ráðuneytið. Brot úr upptökunum verður sýnt í kvöldfréttunum. Innlent 13.11.2024 18:05 Fjöldahjálparstöðvar opnaðar vegna skriðuhættu Skriðuhætta er víða á Vestfjörðum þar sem skriður hafa fallið síðan í gærkvöld. Stór skriða féll á Ísafirði um miðjan dag og hafa leysingar valdið því að vatn er ekki drykkjarhæft. Íbúum í Hnífsdal er bent á að setja vatn á brúsa. Innlent 12.11.2024 18:07 Leynilegar upptökur og hrafnar sem tæta í sig reikninga fólks Ísraelskt njósnafyrirtæki sendi leynilegar upptökur á íslenska fjölmiðla. Jón Gunnarsson svarar fyrir málið í myndveri. Innlent 11.11.2024 18:11 Sparkað í blóðmerar og eitt ár frá rýmingu Grindavíkur Nýtt myndefni frá erlendum dýraverndunarsamtökum sýnir þegar veist er að fylfullum hryssum við blóðtöku með höggum og spörkum. Í kvöldfréttum verður rætt við íslenskan dýraverndunarsinna, sem segir myndefnið sýna ljótan veruleikann. Innlent 10.11.2024 18:01 Úrbætur í kjölfar slyss á Breiðamerkurjökli og vikulöng þrekraun Engin markviss skráning slysa og óhappa í ferðaþjónustu er fyrir hendi á Íslandi. Starfshópur leggur til að úr því verði bætt. Sérfræðingur segir aukið eftirlit og skýrari öryggisferla vænlegri lausn en boð og bönn. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 9.11.2024 18:02 Lyfjatengd andlát, rauð Bandaríki og glimmerveisla í Eldborg Lyfjatengd andlát voru sex sinnum fleiri á hverja hundrað þúsund íbúa hér á landi í fyrra en að meðaltali í Evrópu. Formaður samtaka um skaðaminnkun segir brýnt að stjórnvöld bregðist við. Innlent 8.11.2024 18:01 Flokkar í útrýmingarhættu, smánarlaun og tónlistarveisla Fylgi flokkanna er á töluverðri hreyfingu nú þegar einungis rúmar þrjár vikur eru til kosninga samkvæmt nýrri könnun Maskínu og Viðreisn á miklu flugi. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rýnt í spennandi stöðu í pólitíkinni með Ólafi Þ. Harðarsyni, prófessor í stjórnmálafræði. Innlent 7.11.2024 18:01 Söguleg endurkoma, súr kosningavaka og baráttuhugur Donald Trump verður fertugasti og sjöundi forseti Bandaríkjanna eftir sögulegan og stærri sigur en búist var við. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 heyrum við frá sigurræðu Trumps, rýnum í áhrif úrslitanna með prófessor í stjórnmálafræði og verðum í beinni frá Bandaríkjunum. Hólmfríður Gísladóttir, fréttamaður okkar, var í kosningavöku Kamölu Harris í Washington í gærkvöldi og fer yfir andrúmsloftið þar - sem hefur eflaust verið í súrara lagi. Innlent 6.11.2024 18:01 Sögulegt spennustig týnd börn og bugaðir foreldrar Sögulega spennandi forsetakosningar fara nú fram í Bandaríkjunum og nokkrar klukkustundir eru í fyrstu tölur. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 sjáum við myndir frá lokaspretti frambjóðenda og rýnum í stöðuna með Silju Báru Ómarsdóttur, sérfræðingi í bandarískum stjórnmálum. Þá verður Hólmfríður Gísladóttir, fréttamaður, í beinni útsendingu frá barátturíkinu Pensylvaníu og ræðir við kjósendur. Innlent 5.11.2024 18:01 Hræðilegt slys og sögulegar kosningar Karlmaðurinn sem lést við Tungufljót nærri Geysi í Haukadal í gær var á björgunarsveitaræfingu ásamt félögum. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við formann Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem segir að um hræðilegt slys sé að ræða. Innlent 4.11.2024 18:03 Fjölskyldan hrædd og brotin vegna sýkingarinnar á Mánagarði Amma barns af leikskólanum Mánagarði segir hræðilegt að horfa upp á veikindi barnsins, sem liggur enn á spítala vegna E.coli-hópsýkingar á leikskólanum. Foreldrar barnsins séu hræddir og bugaðir. Barn sem smitaðist fyrir fimm árum er enn að glíma við eftirköst af E.coli-sýkingu. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30 í opinni dagskrá. Innlent 3.11.2024 18:13 Fjörutíu milljóna sekt Sjúkratrygginga og hrekkjavökupartí aldarinnar Sjúkratryggingum Íslands hefur verið gert að greiða fjörutíu og eina milljón króna í stjórnvaldssekt vegna ólögmætra samninga við myndgreiningarfyrirtæki, samkvæmt nýjum úrskurði. Forstjóri Intuens, segulómunarfyrirtækis sem kærði Sjúkratryggingar, segir stofnunina mismuna fyrirtækjum og hindra eðlilega samkeppni. Innlent 2.11.2024 18:19 Veröldin hrundi þegar sonurinn greindist Foreldrar tíu mánaða stráks sem fæddist með sjaldgjæfan taugahrörnunarsjúkdóm vonast til að lyfjagjöf í Svíþjóð muni gjörbreyta lífi hans. Hann verður fyrsta íslenska barnið til að fá lyfin. Veröldin hrundi þegar þeim var tilkynnt símleiðis að sonurinn væri með sjúkdóminn. Við tók löng bið eftir að hitta lækni. Innlent 1.11.2024 18:17 Læknar í verkfall, ellefu framboð og hrekkjavaka í Vesturbæ Félagar í Læknafélagi Ísalands hafa að boða til verkfalls náist ekki samkomulag í kjaradeilu við ríkið. Verkfallsaðgerðir hefjast að óbreyttu 18. nóvember og verða aðra hverja viku fram að áramótum. Í janúar verða verkföll í hverri viku. Formaður Læknafélagsins fer yfir stöðuna í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 31.10.2024 18:19 Þjónusturof hjá fötluðum börnum og hamfaraflóð á Spáni Fjögurra ára drengir með fötlun fá ekki lögbundna þjónustu meðan verkfall kennara stendur yfir. Mæður þeirra segja rof á þjónustu hafa áhrif á þroska barnanna. Rætt verður við þær í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 30.10.2024 18:02 Kennaraverkföll og göng til Eyja Verkföll kennara í níu skólum hófust í dag. Kennarasambandið hefur sakað Samband íslenskra sveitarfélaga og sveitarfélagið Skagafjörð um tilraun til verkfallsbrota. Við ræðum við foreldra, sem eru uggandi yfir stöðunni, í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 29.10.2024 18:01 Heimsókn Úkraínuforseta og kennaraverkföll Volodimír Selenskí forseti Úkraínu fundaði með Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra á Þingvöllum síðdegis. Þakklæti var honum efst í huga og sagðist hann þakklátur íslensku þjóðinni. Farið verður yfir daginn í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 28.10.2024 17:59 Undirbúningur fyrir Norðurlandaráðsþing og úrslitaleikur í Bestu deildinni Undirbúningur fyrir Norðurlandaráðsþing er í fullum gangi og verða til að mynda víðtækar götulokanir í miðborg Reykjavíkur frá morgundeginum og fram á miðvikudag. Úkraínuforseti verður meðal gesta sem kallar á aukinn viðbúnað. Innlent 27.10.2024 18:00 Einkaskilaboð formanns Samfylkingarinnar í dreifingu Forseti Alþingis gefur ekki kost á sér í komandi kosningum. Við förum yfir kurr vegna veru Dags á lista Samfylkingarinnar, en einkaskilaboð frá formanni flokksins eru í dreifingu á netinu þar sem hún segir Dag einungis í aukahlutverki á lista þrátt fyrir að verma annað sætið. Innlent 26.10.2024 18:23 Metfjöldi manndrápsmála, æsispennandi kosningar og tónlist í beinni Maður sem sætir gæsluvarðhaldi í tengslum við andlát móður sinnar hefur áður hlotið dóm fyrir ofbeldi gegn foreldrum sínum. Aldrei hafa fleiri manndrápsmál komið upp á einu ári. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við afbrotafræðing sem segir þróunina uggvænlega og tilefni til að styðja betur við fólk sem stendur höllum fæti í samfélaginu. Þá mætir formaður Afstöðu í sett en hann viðrað áhyggjur af stöðu gerandans og gagnrýnir úrræðaleysi. Innlent 25.10.2024 18:00 Starfsfólk í áfalli vegna hópsýkingar, gjald á nikótínvörur og hjónarúm á sviði Tvö börn af leikskólanum Mánagarði í Reykjavík eru á gjörgæslu vegna E. Coli-sýkingar og á þriðja tug hafa greinst. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við leikskólastjóra sem segir alla starfsmenn skólans í áfalli vegna málsins. Innlent 24.10.2024 18:01 Barn á gjörgæslu, offframboð miðaldra karla og hjartnæmir endurfundir Eitt barn er á gjörgæslu vegna E. coli-sýkingar sem rakin er til leikskólans Mánagarðs. Alls liggja sex börn inni á Barnaspítala Hringsins og talið er að tólf séu með sýkinguna. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður fjallað um málið og rætt við sérfræðilækni sem segir flest börnin mjög ung. Innlent 23.10.2024 18:01 Sviptingar hjá Pírötum, sárir kennarar og óvenjuleg verðhækkun Línur eru farnar að skýrast í framboðsmálum flokkanna fyrir kosningar og brátt fer að verða ljóst hverjir munu berjast um sæti á Alþingi Íslendinga. Sviptingar eru á lista Pírata sem kynntu niðurstöður prófkjörs síðdegis í dag. Við verðum í beinni frá prófkjörsfögnuði Pírata og heyrum frambjóðendum. Innlent 22.10.2024 18:03 Ný könnun, frægir á þing og Íslandsmet í augsýn Samkvæmt nýrri könnun Maskínu vill þjóðin sjá formenn flokka sem ekki voru í síðustu ríkisstjórn leiða þá næstu. Við förum yfir glænýja könnun í kvöldfréttum Stöðvar 2 og ræðum við þau sem flestir vilja sjá í embættinu – og fæstir. Innlent 21.10.2024 18:03 Ásmundur og Ólöf ræða stöðuna á Stuðlum og framboðslistar Sjálfstæðisflokksins Ekkert fæst gefið upp um eldsupptök í bruna á meðferðarheimilinu Stuðlum, þar sem sautján ára piltur lést í gær. Barnamálaráðherra og forstjóri Barna- og fjölskyldustofu koma í myndver til að ræða stöðuna í málaflokknum. Innlent 20.10.2024 18:10 Stjórnlaus rasismi og spenna í Kraganum Leigubílstjóri, innflytjandi frá Afganistan, varð fyrir árás í starfi í mánuðinum. Hann segist merkja skarpa breytingu, nú sé rasisminn nær stjórnlaus og hann er hræddur fyrir hverja vakt. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 19.10.2024 18:09 Fyrstu skoðanakannanir eftir stjórnarslit og öll auglýsingapláss uppbókuð Fylgi Samfylkingarinnar, Pírata og Flokks fólksins minnkar milli mánaða á meðan Viðreisn bætir við sig töluverðu fylgi. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 rýnum við í fyrstu skoðanakannanirnar sem gerðar voru eftir að tilkynnt var um stjórnarslit. Innlent 18.10.2024 18:09 Sögulegur fundur á Bessastöðum og átakanleg saga af Stuðlum Ríkisráðsfundur hófst á Bessastöðum klukkan sex, þar sem ráðherrar Vinstri grænna biðjast formlega lausnar úr embætti. Við verðum í beinni útsendingu frá sögulegum fundi á Bessastöðum í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. Innlent 17.10.2024 18:02 Hinsti fundur ríkisstjórnar og uppstokkun hjá Play Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna fundaði í síðasta skipti nú síðdegis, þar sem tilkynnt var að forsætisráðherra og fjármálaráðherra taki við ráðuneytum fráfarandi ráðherra Vinstri grænna. Við förum yfir vendingar dagsins í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. Innlent 16.10.2024 18:26 « ‹ 1 2 3 4 5 6 … 62 ›
Viðbrögð Sósíalista og VG við nýrri könnun og daggæsla hjá Arion Sósíalistar mælast inni á þingi og flokkurinn fengi fjóra þingmenn samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Vinstri græn næðu ekki manni inn á þing. Fulltrúar flokkanna bregðast við könnuninni í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 14.11.2024 18:02
Brot úr leyniupptökunum í fréttatímanum Ríkislögreglustjóri hyggst kanna mál sem snertir leynilegar upptökur erlends fyrirtækis á syni Jóns Gunnarssonar. Þar kemur fram að Jón hafi samþykkt að taka sæti á lista Sjálfstæðisflokksins gegn því að fá stöðu í matvælaráðuneytinu. Fjórar umsóknir um hvalveiðileyfi hafa borist í ráðuneytið. Brot úr upptökunum verður sýnt í kvöldfréttunum. Innlent 13.11.2024 18:05
Fjöldahjálparstöðvar opnaðar vegna skriðuhættu Skriðuhætta er víða á Vestfjörðum þar sem skriður hafa fallið síðan í gærkvöld. Stór skriða féll á Ísafirði um miðjan dag og hafa leysingar valdið því að vatn er ekki drykkjarhæft. Íbúum í Hnífsdal er bent á að setja vatn á brúsa. Innlent 12.11.2024 18:07
Leynilegar upptökur og hrafnar sem tæta í sig reikninga fólks Ísraelskt njósnafyrirtæki sendi leynilegar upptökur á íslenska fjölmiðla. Jón Gunnarsson svarar fyrir málið í myndveri. Innlent 11.11.2024 18:11
Sparkað í blóðmerar og eitt ár frá rýmingu Grindavíkur Nýtt myndefni frá erlendum dýraverndunarsamtökum sýnir þegar veist er að fylfullum hryssum við blóðtöku með höggum og spörkum. Í kvöldfréttum verður rætt við íslenskan dýraverndunarsinna, sem segir myndefnið sýna ljótan veruleikann. Innlent 10.11.2024 18:01
Úrbætur í kjölfar slyss á Breiðamerkurjökli og vikulöng þrekraun Engin markviss skráning slysa og óhappa í ferðaþjónustu er fyrir hendi á Íslandi. Starfshópur leggur til að úr því verði bætt. Sérfræðingur segir aukið eftirlit og skýrari öryggisferla vænlegri lausn en boð og bönn. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 9.11.2024 18:02
Lyfjatengd andlát, rauð Bandaríki og glimmerveisla í Eldborg Lyfjatengd andlát voru sex sinnum fleiri á hverja hundrað þúsund íbúa hér á landi í fyrra en að meðaltali í Evrópu. Formaður samtaka um skaðaminnkun segir brýnt að stjórnvöld bregðist við. Innlent 8.11.2024 18:01
Flokkar í útrýmingarhættu, smánarlaun og tónlistarveisla Fylgi flokkanna er á töluverðri hreyfingu nú þegar einungis rúmar þrjár vikur eru til kosninga samkvæmt nýrri könnun Maskínu og Viðreisn á miklu flugi. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rýnt í spennandi stöðu í pólitíkinni með Ólafi Þ. Harðarsyni, prófessor í stjórnmálafræði. Innlent 7.11.2024 18:01
Söguleg endurkoma, súr kosningavaka og baráttuhugur Donald Trump verður fertugasti og sjöundi forseti Bandaríkjanna eftir sögulegan og stærri sigur en búist var við. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 heyrum við frá sigurræðu Trumps, rýnum í áhrif úrslitanna með prófessor í stjórnmálafræði og verðum í beinni frá Bandaríkjunum. Hólmfríður Gísladóttir, fréttamaður okkar, var í kosningavöku Kamölu Harris í Washington í gærkvöldi og fer yfir andrúmsloftið þar - sem hefur eflaust verið í súrara lagi. Innlent 6.11.2024 18:01
Sögulegt spennustig týnd börn og bugaðir foreldrar Sögulega spennandi forsetakosningar fara nú fram í Bandaríkjunum og nokkrar klukkustundir eru í fyrstu tölur. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 sjáum við myndir frá lokaspretti frambjóðenda og rýnum í stöðuna með Silju Báru Ómarsdóttur, sérfræðingi í bandarískum stjórnmálum. Þá verður Hólmfríður Gísladóttir, fréttamaður, í beinni útsendingu frá barátturíkinu Pensylvaníu og ræðir við kjósendur. Innlent 5.11.2024 18:01
Hræðilegt slys og sögulegar kosningar Karlmaðurinn sem lést við Tungufljót nærri Geysi í Haukadal í gær var á björgunarsveitaræfingu ásamt félögum. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við formann Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem segir að um hræðilegt slys sé að ræða. Innlent 4.11.2024 18:03
Fjölskyldan hrædd og brotin vegna sýkingarinnar á Mánagarði Amma barns af leikskólanum Mánagarði segir hræðilegt að horfa upp á veikindi barnsins, sem liggur enn á spítala vegna E.coli-hópsýkingar á leikskólanum. Foreldrar barnsins séu hræddir og bugaðir. Barn sem smitaðist fyrir fimm árum er enn að glíma við eftirköst af E.coli-sýkingu. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30 í opinni dagskrá. Innlent 3.11.2024 18:13
Fjörutíu milljóna sekt Sjúkratrygginga og hrekkjavökupartí aldarinnar Sjúkratryggingum Íslands hefur verið gert að greiða fjörutíu og eina milljón króna í stjórnvaldssekt vegna ólögmætra samninga við myndgreiningarfyrirtæki, samkvæmt nýjum úrskurði. Forstjóri Intuens, segulómunarfyrirtækis sem kærði Sjúkratryggingar, segir stofnunina mismuna fyrirtækjum og hindra eðlilega samkeppni. Innlent 2.11.2024 18:19
Veröldin hrundi þegar sonurinn greindist Foreldrar tíu mánaða stráks sem fæddist með sjaldgjæfan taugahrörnunarsjúkdóm vonast til að lyfjagjöf í Svíþjóð muni gjörbreyta lífi hans. Hann verður fyrsta íslenska barnið til að fá lyfin. Veröldin hrundi þegar þeim var tilkynnt símleiðis að sonurinn væri með sjúkdóminn. Við tók löng bið eftir að hitta lækni. Innlent 1.11.2024 18:17
Læknar í verkfall, ellefu framboð og hrekkjavaka í Vesturbæ Félagar í Læknafélagi Ísalands hafa að boða til verkfalls náist ekki samkomulag í kjaradeilu við ríkið. Verkfallsaðgerðir hefjast að óbreyttu 18. nóvember og verða aðra hverja viku fram að áramótum. Í janúar verða verkföll í hverri viku. Formaður Læknafélagsins fer yfir stöðuna í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 31.10.2024 18:19
Þjónusturof hjá fötluðum börnum og hamfaraflóð á Spáni Fjögurra ára drengir með fötlun fá ekki lögbundna þjónustu meðan verkfall kennara stendur yfir. Mæður þeirra segja rof á þjónustu hafa áhrif á þroska barnanna. Rætt verður við þær í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 30.10.2024 18:02
Kennaraverkföll og göng til Eyja Verkföll kennara í níu skólum hófust í dag. Kennarasambandið hefur sakað Samband íslenskra sveitarfélaga og sveitarfélagið Skagafjörð um tilraun til verkfallsbrota. Við ræðum við foreldra, sem eru uggandi yfir stöðunni, í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 29.10.2024 18:01
Heimsókn Úkraínuforseta og kennaraverkföll Volodimír Selenskí forseti Úkraínu fundaði með Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra á Þingvöllum síðdegis. Þakklæti var honum efst í huga og sagðist hann þakklátur íslensku þjóðinni. Farið verður yfir daginn í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 28.10.2024 17:59
Undirbúningur fyrir Norðurlandaráðsþing og úrslitaleikur í Bestu deildinni Undirbúningur fyrir Norðurlandaráðsþing er í fullum gangi og verða til að mynda víðtækar götulokanir í miðborg Reykjavíkur frá morgundeginum og fram á miðvikudag. Úkraínuforseti verður meðal gesta sem kallar á aukinn viðbúnað. Innlent 27.10.2024 18:00
Einkaskilaboð formanns Samfylkingarinnar í dreifingu Forseti Alþingis gefur ekki kost á sér í komandi kosningum. Við förum yfir kurr vegna veru Dags á lista Samfylkingarinnar, en einkaskilaboð frá formanni flokksins eru í dreifingu á netinu þar sem hún segir Dag einungis í aukahlutverki á lista þrátt fyrir að verma annað sætið. Innlent 26.10.2024 18:23
Metfjöldi manndrápsmála, æsispennandi kosningar og tónlist í beinni Maður sem sætir gæsluvarðhaldi í tengslum við andlát móður sinnar hefur áður hlotið dóm fyrir ofbeldi gegn foreldrum sínum. Aldrei hafa fleiri manndrápsmál komið upp á einu ári. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við afbrotafræðing sem segir þróunina uggvænlega og tilefni til að styðja betur við fólk sem stendur höllum fæti í samfélaginu. Þá mætir formaður Afstöðu í sett en hann viðrað áhyggjur af stöðu gerandans og gagnrýnir úrræðaleysi. Innlent 25.10.2024 18:00
Starfsfólk í áfalli vegna hópsýkingar, gjald á nikótínvörur og hjónarúm á sviði Tvö börn af leikskólanum Mánagarði í Reykjavík eru á gjörgæslu vegna E. Coli-sýkingar og á þriðja tug hafa greinst. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við leikskólastjóra sem segir alla starfsmenn skólans í áfalli vegna málsins. Innlent 24.10.2024 18:01
Barn á gjörgæslu, offframboð miðaldra karla og hjartnæmir endurfundir Eitt barn er á gjörgæslu vegna E. coli-sýkingar sem rakin er til leikskólans Mánagarðs. Alls liggja sex börn inni á Barnaspítala Hringsins og talið er að tólf séu með sýkinguna. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður fjallað um málið og rætt við sérfræðilækni sem segir flest börnin mjög ung. Innlent 23.10.2024 18:01
Sviptingar hjá Pírötum, sárir kennarar og óvenjuleg verðhækkun Línur eru farnar að skýrast í framboðsmálum flokkanna fyrir kosningar og brátt fer að verða ljóst hverjir munu berjast um sæti á Alþingi Íslendinga. Sviptingar eru á lista Pírata sem kynntu niðurstöður prófkjörs síðdegis í dag. Við verðum í beinni frá prófkjörsfögnuði Pírata og heyrum frambjóðendum. Innlent 22.10.2024 18:03
Ný könnun, frægir á þing og Íslandsmet í augsýn Samkvæmt nýrri könnun Maskínu vill þjóðin sjá formenn flokka sem ekki voru í síðustu ríkisstjórn leiða þá næstu. Við förum yfir glænýja könnun í kvöldfréttum Stöðvar 2 og ræðum við þau sem flestir vilja sjá í embættinu – og fæstir. Innlent 21.10.2024 18:03
Ásmundur og Ólöf ræða stöðuna á Stuðlum og framboðslistar Sjálfstæðisflokksins Ekkert fæst gefið upp um eldsupptök í bruna á meðferðarheimilinu Stuðlum, þar sem sautján ára piltur lést í gær. Barnamálaráðherra og forstjóri Barna- og fjölskyldustofu koma í myndver til að ræða stöðuna í málaflokknum. Innlent 20.10.2024 18:10
Stjórnlaus rasismi og spenna í Kraganum Leigubílstjóri, innflytjandi frá Afganistan, varð fyrir árás í starfi í mánuðinum. Hann segist merkja skarpa breytingu, nú sé rasisminn nær stjórnlaus og hann er hræddur fyrir hverja vakt. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 19.10.2024 18:09
Fyrstu skoðanakannanir eftir stjórnarslit og öll auglýsingapláss uppbókuð Fylgi Samfylkingarinnar, Pírata og Flokks fólksins minnkar milli mánaða á meðan Viðreisn bætir við sig töluverðu fylgi. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 rýnum við í fyrstu skoðanakannanirnar sem gerðar voru eftir að tilkynnt var um stjórnarslit. Innlent 18.10.2024 18:09
Sögulegur fundur á Bessastöðum og átakanleg saga af Stuðlum Ríkisráðsfundur hófst á Bessastöðum klukkan sex, þar sem ráðherrar Vinstri grænna biðjast formlega lausnar úr embætti. Við verðum í beinni útsendingu frá sögulegum fundi á Bessastöðum í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. Innlent 17.10.2024 18:02
Hinsti fundur ríkisstjórnar og uppstokkun hjá Play Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna fundaði í síðasta skipti nú síðdegis, þar sem tilkynnt var að forsætisráðherra og fjármálaráðherra taki við ráðuneytum fráfarandi ráðherra Vinstri grænna. Við förum yfir vendingar dagsins í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. Innlent 16.10.2024 18:26