Viðskipti Spáir 6,8 prósenta hagvexti í Rússlandi Alexei Ulyukayev, bankastjóri rússneska seðlabankans, sagði á ráðstefnu um rússnesk efnahagsmál í dag að hagvöxtur í Rússlandi verði um 6,8 prósent á þessu ári. Helsti vöxturinn er í fjárfestingarstefsemi í landinu. Viðskipti erlent 20.10.2006 13:32 OPEC dregur úr olíuframleiðslu Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði lítillega á helstu fjármálamörkuðum í dag í kjölfar þess að samtök olíuútflutningsríkja, OPEC, ákvað á fundi sínum í arabaríkinu Katar í dag að minnka olíuframleiðslu um 1,2 milljónir tunna á dag strax í næsta mánuði til að sporna gegn verðlækkunum á hráolíu. Þetta er 200.000 tunnum meira en búist var við. Viðskipti erlent 20.10.2006 12:18 Erlend lán í heimabönkum Viðskiptavinum Frjálsa fjárfestingabankans hefur frá síðustu mánaðamótum staðið til boða að greiða af erlendum lánum í gegnum heimabanka eða með greiðsluseðlum, sem eru sendir heim. Fram til þessa hefur einungis verið hægt að greiða af erlendum lánum með millifærslum inn á reikning bankans í kjölfar bréflegrar tilkynningar um að komið sé að gjalddaga. Viðskipti innlent 20.10.2006 11:47 Óbreyttir vextir hjá Íbúðalánasjóði Íbúðalánasjóður efndi til útboðs á íbúðabréfum í gær og bárust tilboð að nafnvirði 16,1 milljarða krónur. Greiningardeild Glitnis segir í Morgunkorni sínu að ákveðið hafi verið að taka tilboðum fyrir 7 milljarða krónur. Vextir Íbúðalánasjóðs eru óbreyttur eftir útboðið. Viðskipti innlent 20.10.2006 11:25 Tvö íslensk fyrirtæki meðal þeirra efstu á Europe´s 500 Tvö íslensk fyrirtæki eru meðal þeirra tíu efstu á lista samtakanna Europe's 500 yfir framsæknustu fyrirtæki í Evrópu fyrir árið 2006. Alls eru fimm íslensk fyrirtæki á listanum og hefur störfum hjá þeim fjölgað hraðast að meðaltali í þeim 25 Evrópulöndum sem listinn nær til. Innlent 20.10.2006 11:12 Lánshæfi ítalska ríkisins lækkar Alþjóðlegu matsfyrirtækin Standard & Poor´s og Fitch Ratings lækkuðu í gær lánshæfismat Ítalska ríkisins. Ástæður lækkunarinnar eru há skuldastaða hins opinbera og mikill viðskiptahalli á Ítalíu. Viðskipti erlent 20.10.2006 10:50 Stærsta útboð sögunnar Fjárfestar skráðu sig fyrir bréfum í kínverska iðnaðar- og viðskiptabankanum, sem er einn sá stærsti í Kína og í eigu ríkisins, fyrir jafnvirði 19 milljarða bandaríkjadala, eða 1.297 milljarða íslenskra króna, að markaðsvirði í almennu hlutafjárútboði í dag. Þetta er stærsta útboð sögunnar. Bankinn verður skráður á markað í Hong Kong og Kína í lok mánaðarins. Viðskipti erlent 20.10.2006 10:00 Ógilding samruna staðfest Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest ákvörðun Samkeppniseftirlitsins frá því í sumar um að ógilda samruna lyfsölu- og lyfjaskömmtunarfyrirtækjanna DAC og Lyfjavers. Samruninn var sagður myndi raska samkeppni og skaða hagsmuni almennings. Viðskipti innlent 19.10.2006 20:44 Kauphöll Íslands og OMX einu skrefi nær samruna Formleg undirritun samkomulags um kaup OMX á Kauphöll Íslands fór fram í gær. Umsvif OMX aukast og jókst hagnaður félagsins um þrettán prósent milli ársfjórðunga. Viðskipti innlent 19.10.2006 20:44 Saxbygg kaupir í Steni í Noregi Fjárfestingin býður upp á mikla markaðssókn. Saxbygg hefur eignast kjölfestuhlut í eignarhaldsfélagi utan um Steni sem framleiðir húsaklæðningar fyrir byggingariðnaðinn í Evrópu, Bandaríkjunum og Kanada. Félagið er með sterka stöðu á Íslandi og á hinum Norðurlöndunum, einkum á heimamarkaði í Noregi þar sem fjörutíu prósent sölunnar verða til. Viðskipti erlent 19.10.2006 20:44 Innkallanir valda samdrætti hjá Sony Japanski hátækniframleiðandinn Sony hefur lækkað afkomuspá sína á yfirstandandi rekstrarári um rúman helming og lagt til hliðar 51 milljarð jena, jafnvirði 29,5 milljarða íslenskra króna, til að bregðast við áhrifum af miklum innköllunum á rafhlöðum undir merkjum fyrirtækisins. Leikjavísir 19.10.2006 20:44 Coca-Cola hitti í mark á HM Bandaríski gosdrykkjaframleiðandinn Coca-Cola skilaði 1,46 milljarða dala hagnaði á þriðja fjórðungi ársins. Þetta svarar til tæplega 100 milljarða króna hagnaðs á tímabilinu og 14 prósenta aukningar milli ára. Viðskipti innlent 19.10.2006 20:44 Dow Jones mælist yfir 12 þúsund stigum Dow Jones hlutabréfavísitalan hækkaði um 19 stig í dag og var yfir 12 þúsund stigum við lokun markaðar í Bandaríkjunum í dag, í fyrsta sinn í sögunni. Dow Jones vísitalan mælir gengi hlutabréfa í stærstu fyrirtækjum Bandaríkjanna. Minnkandi verðbólga í Bandaríkjunum, breytingar á olíu- og bensínverði og jákvæðar afkomutölur hjá fjölmörgum fyrirtækjum eru ástæður þessa að sögn sérfræðinga á markaði. Erlent 19.10.2006 20:42 Sony-Ericsson sækir í sig veðrið Greiningardeild Landsbankans segir samkeppni hafa aukist á ný á farsímamarkaði eftir að stærstu framleiðendur farsíma skiluðu uppgjörum sínum. Hagnaður stærstu fyrirtækjanna minnkaði á milli ára en Sony-Ericsson sækir í sig veðrið. Viðskipti erlent 19.10.2006 16:47 Mikil hækkun á gengi Apple Gengi bandaríska tækniframleiðandans Apple Computers hækkaði um 6 prósent á markaði vestanhafs í dag í kjölfar þess að fyrirtækið greindi í gær frá góðri afkomu á síðasta fjórðungi ársins, sem er fjórði fjórðungur ársins í rekstrarreikningi félagsins. Góð afkoma er að þakka mikil sala á Macintoshtölvum og iPod-spilurum. Viðskipti erlent 19.10.2006 15:45 Samdráttur hjá Nokia Hagnaður finnska farsímaframleiðandans dróst saman á milli ára þrátt fyrir aukna sölu á ódýrum gerðum farsíma á nýmörkuðum í Asíu og Suður-Ameríku. Ástæðan eru verðlækkanir á flestum gerðum farsíma. Afkoman er undir væntingum greiningaraðila. Viðskipti erlent 19.10.2006 13:26 Hagnaður í skyndibitanum Hagnaður bandarísku skyndibitakeðjunnar McDonald's, sem er ein sú stærsta í heimi, nam 843,3 milljónum bandaríkjadala, eða 57,6 milljörðum íslenskra króna, á þriðja fjórðungi ársins. Þetta er 17 prósenta aukning frá sama tíma í fyrra. Helsta ástæðan fyrir aukningunni er betri sala í Evrópu og Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 19.10.2006 13:04 Saxbygg kjölfestufjárfestir í Steni Fjárfestingarfélagið Saxbygg er kjölfestufjárfestir í kaupum nokkurra fjárfesta á norska fyrirtækinu Steni sem framleiðir húsaklæðingar. Stofnað hefur verið eignarhaldsfélag, Steni Holding AS, sem er í eigu stjórnenda, starfsmanna og hóps íslenskra, norksra og finnskra fjárfesta. Innlent 19.10.2006 12:29 Hagnaður Nasdaq jókst um 70 prósent Hagnaður bandaríska hlutabréfamarkaðarins Nasdaq jókst um tæp 70 prósent á þriðja fjórðungi ársins. Hagnaðurinn nam 30,2 milljónum bandaríkjadala, um 2 milljörðum króna, en rekstrarár markaðarins einkenndist af kaupum í öðrum mörkuðum jafnt í Bandaríkjunum sem í Bretlandi og aukinni markaðshlutdeild. Viðskipti erlent 19.10.2006 12:31 Aukinn hagnaður hjá Coca Cola Bandaríski gosdrykkjaframleiðandinn Coca-Cola skilaði 1,46 milljarða dala hagnaði á þriðja fjórðungi ársins. Þetta svarar til tæplega 100 milljarða króna hagnaðar á tímabilinu. Á sama tíma í fyrra nam hagnaðurinn 1,28 milljörðum dala eða 87,4 milljörðum íslenskra króna. Helsta ástæðan fyrir auknum hagnaði er meiri sala á nýjum mörkuðum Coca-Cola í Brasilíu og í Rússlandi. Viðskipti erlent 19.10.2006 11:09 Leonard áfram í Leifsstöð Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. og eigendur skartgripaverslunarinnar Leonard ehf. hafa endurnýjað samning um rekstur verslunar í flugstöðinni með úr og skartgripi. Sævar Jónsson eigandi Leonard ehf. og Höskuldur Ásgeirsson, forstjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, undirrituðu samninginn. Viðskipti innlent 19.10.2006 10:16 Gengið frá samningum um kaup OMX á Kauphöllinni OMX og eigendur Eignarhaldsfélagsins Verðbréfaþings hafa undirritað samning um að Kauphöll Íslands og Verðbréfaskráning Íslands gangi til liðs við norrænu kauphöllina OMX. Innlent 19.10.2006 09:32 Sony sker hagnað niður um helming Japanski raftækjaframleiðandinn Sony hefur lækkað afkomuspá sína á yfirstandandi rekstrarári um rúman helming og lagt til hliðar 51 milljarð jena, jafnvirði 29,5 milljarða íslenskra króna, vegna gríðarmikilla innikallana á rafhlöðum undir merkjum fyrirtækisins á heimsvísu. Leikjavísir 19.10.2006 09:13 Grettir bætir við sig bréfum í Avion Fjárfestingarfélagið Grettir fór upp fyrir tíu prósenta hlut í Avion Group í fyrradag. Grettir hefur verið duglegur að kaupa í félaginu því, frá byrjun október hefur heildarhlutur félagsins farið úr einu prósenti í 11,5 prósent. Reikna má með að bréfin hafi verið keypt á genginu 29,5-32 krónur á hlut en hluturinn stóð í 32,6 krónum í gær. Viðskipti innlent 19.10.2006 00:23 Viðsnúningur í vaxtatekjum Samanlagðar hreinar vaxtatekjur viðskiptabankanna gætu dregist saman um 30 milljarða milli þessa árs og næsta. Frá þessu var greint í Vegvísi Landsbankans. Viðskipti innlent 19.10.2006 00:23 Enn bætist í krónubréfaútgáfuna Í dag tilkynnti Eurofima um útgáfu á 3 milljarða króna jöklabréfum með 10 prósenta vöxtum og á lokagjalddaga í nóvember 2008. Greiningardeild Landsbankans segir í Vegvísi í dag að Eurofima, sem er banki í eigu evrópskra járnbrautarfélaga og með höfuðstöðvar í Sviss, sé nýr útgefandi jöklabréfa. Viðskipti innlent 18.10.2006 22:21 Dow Jones í sögulegu hámarki Bandaríska hlutabréfavísitalan Dow Jones náði sögulegu hámarki þegar hún rauf 12.000 stiga múrinn á markaði í New York í Bandaríkjunum í morgun. Viðskipti erlent 18.10.2006 14:31 Líkur á vaxtahækkun í Bretlandi Miklar líkur eru sagðar á hækkun stýrivaxta í Bretlandi í nóvember. Þegar Englandsbanki ákvað að halda stýrivöxtum óbreyttum fyrr í mánuðinum í 4,75 prósentum voru sjö meðlimir peningamálanefndar fylgjandi óbreyttum vöxtum en tveir á móti. Þeir studdu 25 punkta hækkun. Viðskipti erlent 18.10.2006 12:57 Hagnaður Yahoo minnkar Hagnaður bandaríska netfyrirtækisins Yahoo á þriðja fjórðungi ársins nam 159 milljónum bandaríkjadala, jafnvirði 10,9 milljarða íslenskra króna. Þetta er 38 prósenta samdráttur á milli ára og segja forsvarsmenn fyrirtækisins afkomuna óásættanlega. Viðskipti erlent 18.10.2006 11:00 West Ham ræðir við tvo hópa um kaup Terry Brown, stjórnarformaður enska knattspyrnufélagsins West Ham, hyggst á næstu dögum ræða við tvo hópa um hugsanleg kaup á félaginu, en annar þeirra er íslenskur hópur sem Eggert Magnússon, formaður KSÍ, fer fyrir. Erlent 18.10.2006 10:59 « ‹ 113 114 115 116 117 118 119 120 121 … 223 ›
Spáir 6,8 prósenta hagvexti í Rússlandi Alexei Ulyukayev, bankastjóri rússneska seðlabankans, sagði á ráðstefnu um rússnesk efnahagsmál í dag að hagvöxtur í Rússlandi verði um 6,8 prósent á þessu ári. Helsti vöxturinn er í fjárfestingarstefsemi í landinu. Viðskipti erlent 20.10.2006 13:32
OPEC dregur úr olíuframleiðslu Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði lítillega á helstu fjármálamörkuðum í dag í kjölfar þess að samtök olíuútflutningsríkja, OPEC, ákvað á fundi sínum í arabaríkinu Katar í dag að minnka olíuframleiðslu um 1,2 milljónir tunna á dag strax í næsta mánuði til að sporna gegn verðlækkunum á hráolíu. Þetta er 200.000 tunnum meira en búist var við. Viðskipti erlent 20.10.2006 12:18
Erlend lán í heimabönkum Viðskiptavinum Frjálsa fjárfestingabankans hefur frá síðustu mánaðamótum staðið til boða að greiða af erlendum lánum í gegnum heimabanka eða með greiðsluseðlum, sem eru sendir heim. Fram til þessa hefur einungis verið hægt að greiða af erlendum lánum með millifærslum inn á reikning bankans í kjölfar bréflegrar tilkynningar um að komið sé að gjalddaga. Viðskipti innlent 20.10.2006 11:47
Óbreyttir vextir hjá Íbúðalánasjóði Íbúðalánasjóður efndi til útboðs á íbúðabréfum í gær og bárust tilboð að nafnvirði 16,1 milljarða krónur. Greiningardeild Glitnis segir í Morgunkorni sínu að ákveðið hafi verið að taka tilboðum fyrir 7 milljarða krónur. Vextir Íbúðalánasjóðs eru óbreyttur eftir útboðið. Viðskipti innlent 20.10.2006 11:25
Tvö íslensk fyrirtæki meðal þeirra efstu á Europe´s 500 Tvö íslensk fyrirtæki eru meðal þeirra tíu efstu á lista samtakanna Europe's 500 yfir framsæknustu fyrirtæki í Evrópu fyrir árið 2006. Alls eru fimm íslensk fyrirtæki á listanum og hefur störfum hjá þeim fjölgað hraðast að meðaltali í þeim 25 Evrópulöndum sem listinn nær til. Innlent 20.10.2006 11:12
Lánshæfi ítalska ríkisins lækkar Alþjóðlegu matsfyrirtækin Standard & Poor´s og Fitch Ratings lækkuðu í gær lánshæfismat Ítalska ríkisins. Ástæður lækkunarinnar eru há skuldastaða hins opinbera og mikill viðskiptahalli á Ítalíu. Viðskipti erlent 20.10.2006 10:50
Stærsta útboð sögunnar Fjárfestar skráðu sig fyrir bréfum í kínverska iðnaðar- og viðskiptabankanum, sem er einn sá stærsti í Kína og í eigu ríkisins, fyrir jafnvirði 19 milljarða bandaríkjadala, eða 1.297 milljarða íslenskra króna, að markaðsvirði í almennu hlutafjárútboði í dag. Þetta er stærsta útboð sögunnar. Bankinn verður skráður á markað í Hong Kong og Kína í lok mánaðarins. Viðskipti erlent 20.10.2006 10:00
Ógilding samruna staðfest Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest ákvörðun Samkeppniseftirlitsins frá því í sumar um að ógilda samruna lyfsölu- og lyfjaskömmtunarfyrirtækjanna DAC og Lyfjavers. Samruninn var sagður myndi raska samkeppni og skaða hagsmuni almennings. Viðskipti innlent 19.10.2006 20:44
Kauphöll Íslands og OMX einu skrefi nær samruna Formleg undirritun samkomulags um kaup OMX á Kauphöll Íslands fór fram í gær. Umsvif OMX aukast og jókst hagnaður félagsins um þrettán prósent milli ársfjórðunga. Viðskipti innlent 19.10.2006 20:44
Saxbygg kaupir í Steni í Noregi Fjárfestingin býður upp á mikla markaðssókn. Saxbygg hefur eignast kjölfestuhlut í eignarhaldsfélagi utan um Steni sem framleiðir húsaklæðningar fyrir byggingariðnaðinn í Evrópu, Bandaríkjunum og Kanada. Félagið er með sterka stöðu á Íslandi og á hinum Norðurlöndunum, einkum á heimamarkaði í Noregi þar sem fjörutíu prósent sölunnar verða til. Viðskipti erlent 19.10.2006 20:44
Innkallanir valda samdrætti hjá Sony Japanski hátækniframleiðandinn Sony hefur lækkað afkomuspá sína á yfirstandandi rekstrarári um rúman helming og lagt til hliðar 51 milljarð jena, jafnvirði 29,5 milljarða íslenskra króna, til að bregðast við áhrifum af miklum innköllunum á rafhlöðum undir merkjum fyrirtækisins. Leikjavísir 19.10.2006 20:44
Coca-Cola hitti í mark á HM Bandaríski gosdrykkjaframleiðandinn Coca-Cola skilaði 1,46 milljarða dala hagnaði á þriðja fjórðungi ársins. Þetta svarar til tæplega 100 milljarða króna hagnaðs á tímabilinu og 14 prósenta aukningar milli ára. Viðskipti innlent 19.10.2006 20:44
Dow Jones mælist yfir 12 þúsund stigum Dow Jones hlutabréfavísitalan hækkaði um 19 stig í dag og var yfir 12 þúsund stigum við lokun markaðar í Bandaríkjunum í dag, í fyrsta sinn í sögunni. Dow Jones vísitalan mælir gengi hlutabréfa í stærstu fyrirtækjum Bandaríkjanna. Minnkandi verðbólga í Bandaríkjunum, breytingar á olíu- og bensínverði og jákvæðar afkomutölur hjá fjölmörgum fyrirtækjum eru ástæður þessa að sögn sérfræðinga á markaði. Erlent 19.10.2006 20:42
Sony-Ericsson sækir í sig veðrið Greiningardeild Landsbankans segir samkeppni hafa aukist á ný á farsímamarkaði eftir að stærstu framleiðendur farsíma skiluðu uppgjörum sínum. Hagnaður stærstu fyrirtækjanna minnkaði á milli ára en Sony-Ericsson sækir í sig veðrið. Viðskipti erlent 19.10.2006 16:47
Mikil hækkun á gengi Apple Gengi bandaríska tækniframleiðandans Apple Computers hækkaði um 6 prósent á markaði vestanhafs í dag í kjölfar þess að fyrirtækið greindi í gær frá góðri afkomu á síðasta fjórðungi ársins, sem er fjórði fjórðungur ársins í rekstrarreikningi félagsins. Góð afkoma er að þakka mikil sala á Macintoshtölvum og iPod-spilurum. Viðskipti erlent 19.10.2006 15:45
Samdráttur hjá Nokia Hagnaður finnska farsímaframleiðandans dróst saman á milli ára þrátt fyrir aukna sölu á ódýrum gerðum farsíma á nýmörkuðum í Asíu og Suður-Ameríku. Ástæðan eru verðlækkanir á flestum gerðum farsíma. Afkoman er undir væntingum greiningaraðila. Viðskipti erlent 19.10.2006 13:26
Hagnaður í skyndibitanum Hagnaður bandarísku skyndibitakeðjunnar McDonald's, sem er ein sú stærsta í heimi, nam 843,3 milljónum bandaríkjadala, eða 57,6 milljörðum íslenskra króna, á þriðja fjórðungi ársins. Þetta er 17 prósenta aukning frá sama tíma í fyrra. Helsta ástæðan fyrir aukningunni er betri sala í Evrópu og Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 19.10.2006 13:04
Saxbygg kjölfestufjárfestir í Steni Fjárfestingarfélagið Saxbygg er kjölfestufjárfestir í kaupum nokkurra fjárfesta á norska fyrirtækinu Steni sem framleiðir húsaklæðingar. Stofnað hefur verið eignarhaldsfélag, Steni Holding AS, sem er í eigu stjórnenda, starfsmanna og hóps íslenskra, norksra og finnskra fjárfesta. Innlent 19.10.2006 12:29
Hagnaður Nasdaq jókst um 70 prósent Hagnaður bandaríska hlutabréfamarkaðarins Nasdaq jókst um tæp 70 prósent á þriðja fjórðungi ársins. Hagnaðurinn nam 30,2 milljónum bandaríkjadala, um 2 milljörðum króna, en rekstrarár markaðarins einkenndist af kaupum í öðrum mörkuðum jafnt í Bandaríkjunum sem í Bretlandi og aukinni markaðshlutdeild. Viðskipti erlent 19.10.2006 12:31
Aukinn hagnaður hjá Coca Cola Bandaríski gosdrykkjaframleiðandinn Coca-Cola skilaði 1,46 milljarða dala hagnaði á þriðja fjórðungi ársins. Þetta svarar til tæplega 100 milljarða króna hagnaðar á tímabilinu. Á sama tíma í fyrra nam hagnaðurinn 1,28 milljörðum dala eða 87,4 milljörðum íslenskra króna. Helsta ástæðan fyrir auknum hagnaði er meiri sala á nýjum mörkuðum Coca-Cola í Brasilíu og í Rússlandi. Viðskipti erlent 19.10.2006 11:09
Leonard áfram í Leifsstöð Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. og eigendur skartgripaverslunarinnar Leonard ehf. hafa endurnýjað samning um rekstur verslunar í flugstöðinni með úr og skartgripi. Sævar Jónsson eigandi Leonard ehf. og Höskuldur Ásgeirsson, forstjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, undirrituðu samninginn. Viðskipti innlent 19.10.2006 10:16
Gengið frá samningum um kaup OMX á Kauphöllinni OMX og eigendur Eignarhaldsfélagsins Verðbréfaþings hafa undirritað samning um að Kauphöll Íslands og Verðbréfaskráning Íslands gangi til liðs við norrænu kauphöllina OMX. Innlent 19.10.2006 09:32
Sony sker hagnað niður um helming Japanski raftækjaframleiðandinn Sony hefur lækkað afkomuspá sína á yfirstandandi rekstrarári um rúman helming og lagt til hliðar 51 milljarð jena, jafnvirði 29,5 milljarða íslenskra króna, vegna gríðarmikilla innikallana á rafhlöðum undir merkjum fyrirtækisins á heimsvísu. Leikjavísir 19.10.2006 09:13
Grettir bætir við sig bréfum í Avion Fjárfestingarfélagið Grettir fór upp fyrir tíu prósenta hlut í Avion Group í fyrradag. Grettir hefur verið duglegur að kaupa í félaginu því, frá byrjun október hefur heildarhlutur félagsins farið úr einu prósenti í 11,5 prósent. Reikna má með að bréfin hafi verið keypt á genginu 29,5-32 krónur á hlut en hluturinn stóð í 32,6 krónum í gær. Viðskipti innlent 19.10.2006 00:23
Viðsnúningur í vaxtatekjum Samanlagðar hreinar vaxtatekjur viðskiptabankanna gætu dregist saman um 30 milljarða milli þessa árs og næsta. Frá þessu var greint í Vegvísi Landsbankans. Viðskipti innlent 19.10.2006 00:23
Enn bætist í krónubréfaútgáfuna Í dag tilkynnti Eurofima um útgáfu á 3 milljarða króna jöklabréfum með 10 prósenta vöxtum og á lokagjalddaga í nóvember 2008. Greiningardeild Landsbankans segir í Vegvísi í dag að Eurofima, sem er banki í eigu evrópskra járnbrautarfélaga og með höfuðstöðvar í Sviss, sé nýr útgefandi jöklabréfa. Viðskipti innlent 18.10.2006 22:21
Dow Jones í sögulegu hámarki Bandaríska hlutabréfavísitalan Dow Jones náði sögulegu hámarki þegar hún rauf 12.000 stiga múrinn á markaði í New York í Bandaríkjunum í morgun. Viðskipti erlent 18.10.2006 14:31
Líkur á vaxtahækkun í Bretlandi Miklar líkur eru sagðar á hækkun stýrivaxta í Bretlandi í nóvember. Þegar Englandsbanki ákvað að halda stýrivöxtum óbreyttum fyrr í mánuðinum í 4,75 prósentum voru sjö meðlimir peningamálanefndar fylgjandi óbreyttum vöxtum en tveir á móti. Þeir studdu 25 punkta hækkun. Viðskipti erlent 18.10.2006 12:57
Hagnaður Yahoo minnkar Hagnaður bandaríska netfyrirtækisins Yahoo á þriðja fjórðungi ársins nam 159 milljónum bandaríkjadala, jafnvirði 10,9 milljarða íslenskra króna. Þetta er 38 prósenta samdráttur á milli ára og segja forsvarsmenn fyrirtækisins afkomuna óásættanlega. Viðskipti erlent 18.10.2006 11:00
West Ham ræðir við tvo hópa um kaup Terry Brown, stjórnarformaður enska knattspyrnufélagsins West Ham, hyggst á næstu dögum ræða við tvo hópa um hugsanleg kaup á félaginu, en annar þeirra er íslenskur hópur sem Eggert Magnússon, formaður KSÍ, fer fyrir. Erlent 18.10.2006 10:59