Kynferðisofbeldi Dæmdur nauðgari fær ekki áheyrn í Hæstarétti Hæstiréttur hefur hafnað beiðni karlmanns um áfrýjunarleyfi sem sakfelldur var fyrir nauðgun á tveimur dómstigum. Rétturinn telur málið ekki hafa verulega almenna þýðingu eða að meðferð málsins fyrir dómum hafi verið stórlega ábótavant. Innlent 25.5.2021 11:24 Sigurhæðir er ný þjónusta við þolendur kynbundins ofbeldis á Suðurlandi Sigurhæðir er ný starfsemi á Suðurlandi, sem er þjónusta við þolendur kynbundins ofbeldis í landshlutanum. Soroptimistaklúbbur Suðurlands er frumkvöðull að verkefninu en mikil eftirspurn er eftir þjónustu Sigurhæða, sem er gjaldfrjáls. Innlent 22.5.2021 13:04 Sýknaður af ákæru um nauðgun í Landsrétti Karlmaður var sýknaður af ákæru um nauðgun í Landsrétti í gær. Dómararnir voru þó ekki allir sammála um niðurstöðu í málinu en einn þeirra skilaði inn sératkvæði. Málinu var skotið til landsréttar eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi manninn sekan í febrúar á síðasta ári. Innlent 22.5.2021 09:43 Nauðgarinn skildi Lady Gaga eftir ólétta á götuhorni Tónlistarkonan Lady Gaga opnar sig um nauðgun sem hún varð fyrir nítján ára gömul í viðtali við Oprah Winfrey. Lífið 21.5.2021 13:30 Handtekinn í miðbænum vegna gruns um kynferðisbrot Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn á skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur í byrjun þessa mánaðar vegna gruns um kynferðisbrot. Rannsókn á málinu stendur nú yfir. Þetta staðfestir Ævar Pálmi Pálmson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar, í samtali við fréttastofu. Innlent 20.5.2021 13:32 Í fangelsi í tvö og hálft ár fyrir nauðgun Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Augustin Dufatanye í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa nauðgað konu. Hann verður þá að greiða út tæpa fimm og hálfa milljón vegna málsins, þar á meðal 1,8 milljón til konunnar í miskabætur og tæpar fjórar milljónir fyrir allan sakarkostnað. Innlent 19.5.2021 18:44 Fyrrverandi aðstoðarkona kærir Manson fyrir kynferðisofbeldi og líkamsmeiðingar Ashley Walters, fyrrverandi aðstoðarkona söngvarans Marilyn Manson, hefur kært hann fyrir kynferðisofbeldi og líkamsmeiðingar. Walters sakaði söngvarann opinberlega um ofbeldi í febrúar síðastliðnum en hefur nú kært það til lögreglu. Erlent 19.5.2021 12:54 Hvaða forsendurnar þarf til að skima eftir mögulegri hættu eða atburðarrás sem gæti leitt til ofbeldis á barni? Frétta - og vefmiðlar loga enn og aftur af mikilvægri og þarfri umræðu um kynferðisofbeldi og trúverðugleika þolenda við tilkynningar eða kærur sem lagðar eru fram í kjölfar ofbeldis. Skoðun 18.5.2021 15:01 Stór skref strax: Svona bætum við réttarstöðu þolenda MeToo-byltingin hefur valdið stórkostlegri hugarfarsbreytingu en það er stjórnmálafólks að fylgja byltingunni eftir með stórum ákvörðunum: áþreifanlegum breytingum á umgjörð og leikreglum samfélagsins í þágu þolenda. Skoðun 18.5.2021 09:00 „Samfélagsmiðlar eru frábær vettvangur fyrir byltingar en hrikalegur dómstóll“ Hildur Sverrisdóttir, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins og aðstoðarmaður ferðamála- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur áhyggjur af því að það verði að viðtekinni venju að fólk í samfélaginu taki refsivaldið í sínar hendur þegar dómstólar bregðast í kynferðisbrotamálum. Innlent 17.5.2021 15:42 Ertu í ofbeldisfullu sambandi? Taktu prófið Árleg forvarnarherferð Stígamóta – SJÚKÁST – um ofbeldi í nánum samböndum ungmenna er komin í loftið. Hluti af herferðinni er svokallað sambandspróf þar sem fólk fær svör við spurningum um hvort hlutir sem komi upp í samböndum séu heilbrigðir eða ekki og í versta falli ofbeldi. Innlent 17.5.2021 11:51 Sönnun í kynferðisbrotamálum II Einhverjum hitnaði í hamsi yfir því að ég tel ásakanir um nauðgun ekki, einar og sér, næga sönnun, fyrir dómi, um að hún hafi átt sér stað. Að óbreyttri stjórnarskrá verða dómstólar að líta svo á. Skoðun 17.5.2021 09:00 Skárri kostur en að rústa lífi manns með fangelsisdómi Eiríkur Tómasson fyrrverandi Hæstaréttardómari segir skárra að sekir menn sleppi við fangelsisvist en að saklaus maður endi bak við lás og slá. Dómarar eigi að hafa sannleiksreglu að leiðarljósi í því skyni að rétt sé dæmt í málum sem rati fyrir dóminn. Innlent 17.5.2021 06:00 Telja nauðsynlegt að fordæma ofbeldið en mikilvægt að gera greinarmun á alvarleika brota Þingkonurnar Helga Vala Helgadóttir og Sigríður Á. Andersen telja nauðsynlegt að gera greinarmun á alvarleika þeirra brota sem verið til umræðu í tengslum við nýjustu MeToo-bylgju á samfélagsmiðlum. Umræðan sé snúin þar sem konur hafi verið að stíga fram og greina frá óþægilegri hegðun karlmanna sem og alvarlegum ofbeldisbrotum. Innlent 16.5.2021 18:32 Bein útsending: Meintur klíkuskapur og kynferðisbrot á Sprengisandi Staða þolenda í dómskerfinu, nýtt fyrirbrigði í hagfræðinni, meintur klíkuskapur á æðsta dómstigi og stefna í ferðamennsku til framtíðar verður á dagskrá Sprengisands á Bylgjunni í dag. Kristján Kristjánsson fær til sín góða gesti. Innlent 16.5.2021 09:09 Sönnun í kynferðisbrotamálum Miklar umræður eru um þetta málefni. Sjálfur hef ég komið að tugum slíkra mála oftast fyrir brotaþola en í einhverjum tilvikum sem verjandi. Málin hafa verið á öllum dómstigum, sennilega oftast í Hæstarétti. Skoðun 15.5.2021 11:00 „Af hverju ekki bara trúa konu sem kveður mann hafa nauðgað sér?“ Hæstaréttarlögmaðurinn Einar Gautur Steingrímsson hefur gert nýjustu bylgju MeToo-byltingarinnar að viðfangsefni sínu í pistli á Facebook-síðu sinni, sem hann áætlar að verði einn af mörgum. Hann hyggst þó ræða málin út frá lagalegu sjónarhorni og reynslu sinni af málaflokknum og réttarkerfinu í heild. Innlent 14.5.2021 21:00 Ekkert rými fyrir kynferðislegt ofbeldi í samfélaginu Forsætisráðherra vonar að sögur sem hafa sprottið upp í tengslum við metoo byltinguna muni stuðla að raunverulegum samfélagsbreytingum. Rótin að vandanum sé viðhorf og menning og því þurfi að auka fræðslu og umræðu. Hún kynnti í dag aðgerðir ríkisstjórnarinnar gegn kynbundnu ofbeldi. Innlent 14.5.2021 20:00 Peningar óþokkans runnu til góðgerðarmála Móðir lét peninga sem dóttir hennar fékk fyrir kynferðislegar myndir af sér til níðings á netinu renna til SOS barnaþorpa á Íslandi. Innlent 14.5.2021 15:03 Telur það ekki mistök að hafa tekið þátt í myndbandinu Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segist ekki hafa skoðun á því að myndbandið „Ég trúi“ hafi verið fjarlægt eftir að sögur sem tengdust fólki í myndbandinu fóru af stað í kjölfar birtingar þess. Hún telji þó ekki mistök að hafa tekið þátt í gerð myndbandsins. Innlent 14.5.2021 11:29 Dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn leikkonu Skoski leikarinn Kevin Guthrie var í dag dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn 29 ára leikkonu. Brotið átti sér stað í lok september árið 2017 á heimili leikarans Scott Reid. Erlent 14.5.2021 10:49 Tveir úr myndbandinu viðurkenna að hafa farið yfir mörk Magnús Sigurbjörnsson og Pálmar Ragnarsson segjast ýmist hafa eða mjög líklega hafa farið yfir mörk kvenna í lífi sínu. Magnús og Pálmar voru á meðal þeirra sem stigu fram í myndbandinu „Ég trúi“ sem birt var í gær til stuðnings þolendum ofbeldis. Innlent 13.5.2021 23:47 Fjarlægja „Ég trúi“ myndbandið og ráða ráðum sínum Myndband sem ber yfirskriftina „Ég trúi“ og sett var í loftið af stjórnendum hlaðvarpsþáttarins Eigin konur hefur verið tekið tímabundið úr birtingu. Annar þáttastjórnandinn segir leiðinlegt mál hafa komið upp sem tengist einstaklingi í myndbandinu. Boðskapurinn breytist þó ekki. Trúa eigi þolendum. Innlent 13.5.2021 21:21 Ofbeldi, áreitni og einelti – að virða mörk í samskiptum Ofbeldi, áreitni og einelti snýst í grunninn um það að einhver er ekki að virða mörk annarra í samskiptum. Auðvitað getur ofbeldi og áreitni verið mjög mismunandi gróft og mismunandi ásetningur þar að baki. Skoðun 12.5.2021 16:00 Uppistandi aflýst eftir þrjá og hálfan tíma Áform Senu um að bjóða upp á uppistand með bandaríska leikaranum T.J. Miller urðu ekki öldungis langlíf. Miðarnir voru settir í sölu í morgun í um þrjár og hálfa klukkustund. Svo hætti Sena við viðburðinn, að líkindum vegna fortíðar uppistandarans. Lífið 12.5.2021 14:15 #Égtrúi: „Nú þurfum við bræður, synir og feður að tala saman“ Hlaðvarpið Eigin konur gaf út nýtt myndband í dag til stuðnings þolenda ofbeldis. Handritið gerðu þær Edda Falak og Fjóla Sigurðardóttir ásamt leikstjóra myndbandsins, Davíð Goða Þorvarðarsyni. Lífið 12.5.2021 09:54 Kominn tími til að við tölum um óþægilegu hlutina „Við þurfum að ræða þetta þó að það sé óþægilegt,“ segir Eva María Mattadóttir, annar stjórnanda hlaðvarpsins Normið. Lífið 12.5.2021 06:00 Átta sig á andlegu, fjárhagslegu og kynferðislegu ofbeldi Heimilisfriður, úrræði fyrir gerendur ofbeldis, sinnir nú næstum þrefalt fleiri viðtölum í hverjum mánuði en árið 2019. Allt að níutíu prósent gerenda eru sjálfir þolendur ofbeldis, að sögn sálfræðings Heimilisfriðar. Innlent 11.5.2021 22:00 Metoo umræða á þingi: Réttarkerfið brugðist og sönnunarbyrðin erfið Þingmenn fordæmdu nauðgunarmenningu og sögðu réttarkerfið hafa brugðist þolendum kynferðisofbeldis í umræðum um störf þingsins í dag. Innlent 11.5.2021 14:19 Vilja ræða við vini sína sem grunaðir eru um ofbeldi Kynjafræðingur, sem sagt hefur „eitraðri karlmennsku“ stríð á hendur, segist aldrei hafa fundið fyrir eins miklum vilja karlmanna til að horfast í augu við kynferðisofbeldi sem þeir hafa beitt eins og nú. Margir karlmenn hafi sett sig í samband við hann eftir nýja MeToo-bylgju sem hófst í síðustu viku. Innlent 11.5.2021 13:15 « ‹ 42 43 44 45 46 47 48 49 50 … 61 ›
Dæmdur nauðgari fær ekki áheyrn í Hæstarétti Hæstiréttur hefur hafnað beiðni karlmanns um áfrýjunarleyfi sem sakfelldur var fyrir nauðgun á tveimur dómstigum. Rétturinn telur málið ekki hafa verulega almenna þýðingu eða að meðferð málsins fyrir dómum hafi verið stórlega ábótavant. Innlent 25.5.2021 11:24
Sigurhæðir er ný þjónusta við þolendur kynbundins ofbeldis á Suðurlandi Sigurhæðir er ný starfsemi á Suðurlandi, sem er þjónusta við þolendur kynbundins ofbeldis í landshlutanum. Soroptimistaklúbbur Suðurlands er frumkvöðull að verkefninu en mikil eftirspurn er eftir þjónustu Sigurhæða, sem er gjaldfrjáls. Innlent 22.5.2021 13:04
Sýknaður af ákæru um nauðgun í Landsrétti Karlmaður var sýknaður af ákæru um nauðgun í Landsrétti í gær. Dómararnir voru þó ekki allir sammála um niðurstöðu í málinu en einn þeirra skilaði inn sératkvæði. Málinu var skotið til landsréttar eftir að Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi manninn sekan í febrúar á síðasta ári. Innlent 22.5.2021 09:43
Nauðgarinn skildi Lady Gaga eftir ólétta á götuhorni Tónlistarkonan Lady Gaga opnar sig um nauðgun sem hún varð fyrir nítján ára gömul í viðtali við Oprah Winfrey. Lífið 21.5.2021 13:30
Handtekinn í miðbænum vegna gruns um kynferðisbrot Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn á skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur í byrjun þessa mánaðar vegna gruns um kynferðisbrot. Rannsókn á málinu stendur nú yfir. Þetta staðfestir Ævar Pálmi Pálmson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglunnar, í samtali við fréttastofu. Innlent 20.5.2021 13:32
Í fangelsi í tvö og hálft ár fyrir nauðgun Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Augustin Dufatanye í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa nauðgað konu. Hann verður þá að greiða út tæpa fimm og hálfa milljón vegna málsins, þar á meðal 1,8 milljón til konunnar í miskabætur og tæpar fjórar milljónir fyrir allan sakarkostnað. Innlent 19.5.2021 18:44
Fyrrverandi aðstoðarkona kærir Manson fyrir kynferðisofbeldi og líkamsmeiðingar Ashley Walters, fyrrverandi aðstoðarkona söngvarans Marilyn Manson, hefur kært hann fyrir kynferðisofbeldi og líkamsmeiðingar. Walters sakaði söngvarann opinberlega um ofbeldi í febrúar síðastliðnum en hefur nú kært það til lögreglu. Erlent 19.5.2021 12:54
Hvaða forsendurnar þarf til að skima eftir mögulegri hættu eða atburðarrás sem gæti leitt til ofbeldis á barni? Frétta - og vefmiðlar loga enn og aftur af mikilvægri og þarfri umræðu um kynferðisofbeldi og trúverðugleika þolenda við tilkynningar eða kærur sem lagðar eru fram í kjölfar ofbeldis. Skoðun 18.5.2021 15:01
Stór skref strax: Svona bætum við réttarstöðu þolenda MeToo-byltingin hefur valdið stórkostlegri hugarfarsbreytingu en það er stjórnmálafólks að fylgja byltingunni eftir með stórum ákvörðunum: áþreifanlegum breytingum á umgjörð og leikreglum samfélagsins í þágu þolenda. Skoðun 18.5.2021 09:00
„Samfélagsmiðlar eru frábær vettvangur fyrir byltingar en hrikalegur dómstóll“ Hildur Sverrisdóttir, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins og aðstoðarmaður ferðamála- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur áhyggjur af því að það verði að viðtekinni venju að fólk í samfélaginu taki refsivaldið í sínar hendur þegar dómstólar bregðast í kynferðisbrotamálum. Innlent 17.5.2021 15:42
Ertu í ofbeldisfullu sambandi? Taktu prófið Árleg forvarnarherferð Stígamóta – SJÚKÁST – um ofbeldi í nánum samböndum ungmenna er komin í loftið. Hluti af herferðinni er svokallað sambandspróf þar sem fólk fær svör við spurningum um hvort hlutir sem komi upp í samböndum séu heilbrigðir eða ekki og í versta falli ofbeldi. Innlent 17.5.2021 11:51
Sönnun í kynferðisbrotamálum II Einhverjum hitnaði í hamsi yfir því að ég tel ásakanir um nauðgun ekki, einar og sér, næga sönnun, fyrir dómi, um að hún hafi átt sér stað. Að óbreyttri stjórnarskrá verða dómstólar að líta svo á. Skoðun 17.5.2021 09:00
Skárri kostur en að rústa lífi manns með fangelsisdómi Eiríkur Tómasson fyrrverandi Hæstaréttardómari segir skárra að sekir menn sleppi við fangelsisvist en að saklaus maður endi bak við lás og slá. Dómarar eigi að hafa sannleiksreglu að leiðarljósi í því skyni að rétt sé dæmt í málum sem rati fyrir dóminn. Innlent 17.5.2021 06:00
Telja nauðsynlegt að fordæma ofbeldið en mikilvægt að gera greinarmun á alvarleika brota Þingkonurnar Helga Vala Helgadóttir og Sigríður Á. Andersen telja nauðsynlegt að gera greinarmun á alvarleika þeirra brota sem verið til umræðu í tengslum við nýjustu MeToo-bylgju á samfélagsmiðlum. Umræðan sé snúin þar sem konur hafi verið að stíga fram og greina frá óþægilegri hegðun karlmanna sem og alvarlegum ofbeldisbrotum. Innlent 16.5.2021 18:32
Bein útsending: Meintur klíkuskapur og kynferðisbrot á Sprengisandi Staða þolenda í dómskerfinu, nýtt fyrirbrigði í hagfræðinni, meintur klíkuskapur á æðsta dómstigi og stefna í ferðamennsku til framtíðar verður á dagskrá Sprengisands á Bylgjunni í dag. Kristján Kristjánsson fær til sín góða gesti. Innlent 16.5.2021 09:09
Sönnun í kynferðisbrotamálum Miklar umræður eru um þetta málefni. Sjálfur hef ég komið að tugum slíkra mála oftast fyrir brotaþola en í einhverjum tilvikum sem verjandi. Málin hafa verið á öllum dómstigum, sennilega oftast í Hæstarétti. Skoðun 15.5.2021 11:00
„Af hverju ekki bara trúa konu sem kveður mann hafa nauðgað sér?“ Hæstaréttarlögmaðurinn Einar Gautur Steingrímsson hefur gert nýjustu bylgju MeToo-byltingarinnar að viðfangsefni sínu í pistli á Facebook-síðu sinni, sem hann áætlar að verði einn af mörgum. Hann hyggst þó ræða málin út frá lagalegu sjónarhorni og reynslu sinni af málaflokknum og réttarkerfinu í heild. Innlent 14.5.2021 21:00
Ekkert rými fyrir kynferðislegt ofbeldi í samfélaginu Forsætisráðherra vonar að sögur sem hafa sprottið upp í tengslum við metoo byltinguna muni stuðla að raunverulegum samfélagsbreytingum. Rótin að vandanum sé viðhorf og menning og því þurfi að auka fræðslu og umræðu. Hún kynnti í dag aðgerðir ríkisstjórnarinnar gegn kynbundnu ofbeldi. Innlent 14.5.2021 20:00
Peningar óþokkans runnu til góðgerðarmála Móðir lét peninga sem dóttir hennar fékk fyrir kynferðislegar myndir af sér til níðings á netinu renna til SOS barnaþorpa á Íslandi. Innlent 14.5.2021 15:03
Telur það ekki mistök að hafa tekið þátt í myndbandinu Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segist ekki hafa skoðun á því að myndbandið „Ég trúi“ hafi verið fjarlægt eftir að sögur sem tengdust fólki í myndbandinu fóru af stað í kjölfar birtingar þess. Hún telji þó ekki mistök að hafa tekið þátt í gerð myndbandsins. Innlent 14.5.2021 11:29
Dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn leikkonu Skoski leikarinn Kevin Guthrie var í dag dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn 29 ára leikkonu. Brotið átti sér stað í lok september árið 2017 á heimili leikarans Scott Reid. Erlent 14.5.2021 10:49
Tveir úr myndbandinu viðurkenna að hafa farið yfir mörk Magnús Sigurbjörnsson og Pálmar Ragnarsson segjast ýmist hafa eða mjög líklega hafa farið yfir mörk kvenna í lífi sínu. Magnús og Pálmar voru á meðal þeirra sem stigu fram í myndbandinu „Ég trúi“ sem birt var í gær til stuðnings þolendum ofbeldis. Innlent 13.5.2021 23:47
Fjarlægja „Ég trúi“ myndbandið og ráða ráðum sínum Myndband sem ber yfirskriftina „Ég trúi“ og sett var í loftið af stjórnendum hlaðvarpsþáttarins Eigin konur hefur verið tekið tímabundið úr birtingu. Annar þáttastjórnandinn segir leiðinlegt mál hafa komið upp sem tengist einstaklingi í myndbandinu. Boðskapurinn breytist þó ekki. Trúa eigi þolendum. Innlent 13.5.2021 21:21
Ofbeldi, áreitni og einelti – að virða mörk í samskiptum Ofbeldi, áreitni og einelti snýst í grunninn um það að einhver er ekki að virða mörk annarra í samskiptum. Auðvitað getur ofbeldi og áreitni verið mjög mismunandi gróft og mismunandi ásetningur þar að baki. Skoðun 12.5.2021 16:00
Uppistandi aflýst eftir þrjá og hálfan tíma Áform Senu um að bjóða upp á uppistand með bandaríska leikaranum T.J. Miller urðu ekki öldungis langlíf. Miðarnir voru settir í sölu í morgun í um þrjár og hálfa klukkustund. Svo hætti Sena við viðburðinn, að líkindum vegna fortíðar uppistandarans. Lífið 12.5.2021 14:15
#Égtrúi: „Nú þurfum við bræður, synir og feður að tala saman“ Hlaðvarpið Eigin konur gaf út nýtt myndband í dag til stuðnings þolenda ofbeldis. Handritið gerðu þær Edda Falak og Fjóla Sigurðardóttir ásamt leikstjóra myndbandsins, Davíð Goða Þorvarðarsyni. Lífið 12.5.2021 09:54
Kominn tími til að við tölum um óþægilegu hlutina „Við þurfum að ræða þetta þó að það sé óþægilegt,“ segir Eva María Mattadóttir, annar stjórnanda hlaðvarpsins Normið. Lífið 12.5.2021 06:00
Átta sig á andlegu, fjárhagslegu og kynferðislegu ofbeldi Heimilisfriður, úrræði fyrir gerendur ofbeldis, sinnir nú næstum þrefalt fleiri viðtölum í hverjum mánuði en árið 2019. Allt að níutíu prósent gerenda eru sjálfir þolendur ofbeldis, að sögn sálfræðings Heimilisfriðar. Innlent 11.5.2021 22:00
Metoo umræða á þingi: Réttarkerfið brugðist og sönnunarbyrðin erfið Þingmenn fordæmdu nauðgunarmenningu og sögðu réttarkerfið hafa brugðist þolendum kynferðisofbeldis í umræðum um störf þingsins í dag. Innlent 11.5.2021 14:19
Vilja ræða við vini sína sem grunaðir eru um ofbeldi Kynjafræðingur, sem sagt hefur „eitraðri karlmennsku“ stríð á hendur, segist aldrei hafa fundið fyrir eins miklum vilja karlmanna til að horfast í augu við kynferðisofbeldi sem þeir hafa beitt eins og nú. Margir karlmenn hafi sett sig í samband við hann eftir nýja MeToo-bylgju sem hófst í síðustu viku. Innlent 11.5.2021 13:15