Reykjavík Leyfislausar tjaldbúðir og sundsprettur eftir lokun Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti fjölbreyttum verkefnum í gærkvöldi og nótt og var meðal annars kölluð til vegna einstaklinga sem höfðu slegið upp tjöldum í miðborginni. Innlent 26.4.2024 06:25 Grínari selur íbúð í Vesturbænum Grínistinn Jakob Birgisson og Sólveig Einarsdóttir hafa sett íbúð þeirra við Öldugötu í Vesturbænum á sölu. Jakob segist muna kveðja íbúðina og góða nágranna með trega. Lífið 25.4.2024 22:40 Útlagar spreyjaðir gylltir Útlagar, stytta Einars Jónssonar myndhöggvara, á horni Suðurgötu og Hringbrautar hefur orðið fyrir óvæntum breytingum. Einhver óprúttinn aðili hefur málað styttuna gyllta með málningu eða spreybrúsa. Innlent 25.4.2024 16:52 „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Brynjar Karl Sigurðsson er einn eftirtektarverðasti þjálfari landsins. Og um leið sá umdeildasti. Brynjar Karl þjálfar kvennalið í körfubolta – Aþenu – sem nú berst um sæti í úrvalsdeild. Innlent 25.4.2024 07:00 Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Litlu mátti muna að illa færi þegar skemmtiferðarskip lagði úr Sundahöfn í Reykjavík 26. maí árið 2023. Mikill vindhraði gerði það að verkum að stjórnendur misstu stjórn á skipinu. Um er að ræða skipið Norweigian Prima, sem siglir undir flaggi Bahamaeyja. Skipið er 140.000 tonn og um 300 metrar á lengd. Innlent 24.4.2024 17:52 Lekker hæð listakonu til sölu Listakonan Þórunn Hulda Vigfúsdóttir og eiginmaður hennar Finnur Bjarnason hafa sett fallega hæð með sérinngangi við Gnoðarvog á sölu. Húsið var byggt árið 1960. Ásett verð er 110,9 milljónir. Lífið 24.4.2024 16:01 Segir lág laun leikskólakennara mýtu Borgarfulltrúi Framsóknar segir það mýtu að leikskólakennarar séu á lágum launum. Þeir séu á sambærilegum launum og lögfræðingar hjá borginni. Innlent 24.4.2024 14:02 Hildur, Rán og Ásta fá Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar 2024 voru veitt við hátíðlega athöfn í Höfða í morgun. Einar Þorsteinsson borgarstjóri Reykjavíkurborgar afhenti verðlaun í þremur flokkum, að því er fram kemur í tilkynningu. Menning 24.4.2024 12:27 Stofnaði lífi átta manna í hættu „í ábataskyni og á ófyrirleitinn hátt“ Jóhann Jónas Ingólfsson var nýverið dæmdur til fjögurra mánaða óskilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að brot gegn lögum um brunavarnir í atvinnuhúsnæði sem hann átti. Þar lét hann útbúa búseturými án tilskilinna leyfa og án þess að gera nauðsynlegar ráðstafanir um brunavarnir. Með því var hann talinn stofna lífi þeirra sem bjuggu í rýminu í hættu. Innlent 24.4.2024 11:58 Eldur í gámi við Sundabakka Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um klukkan 11:20 í dag eftir að eldur kom upp í gámi á gámasvæði við Sundabakka í Reykjavík. Innlent 24.4.2024 11:33 Mikill reykur þegar kviknaði í einangrunarplasti Mikill reykur myndaðist á byggingarsvæði við Sigtún, á Blómavalsreitnum svo kallaða, þegar það kviknaði í einangrunarplasti í morgun. Vel gekk að slökkva eldinn en starfsmenn byggingarsvæðisins voru að mestu búin að slökkva þegar slökkvilið kom á vettvang. Innlent 24.4.2024 10:42 Suzuki mun flytja inn í höll Björgólfs Björgólfur Guðmundsson athafnamaður seldi í síðasta mánuði einbýlishús sitt að Vesturbrún 22 í Laugardalnum til sendiráðs Japans. Kaupverðið er 540 milljónir króna og var fasteignin afhent í síðasta mánuði. Lífið 24.4.2024 10:02 Þátttaka nemenda í „verkföllum“ skráð sem „óheimil fjarvist“ Þátttaka reykvískra grunnskólabarna í mótmælum á opinberum vettvangi á skólatíma skal afgreidd sem „óheimil fjarvist“ og vera skráð sem slík. Á sama tíma er eitt af leiðarljósum menntastefnu borgarinnar „barnið sem virkur þátttakandi“ þar sem virkni barna og lýðræðisleg þátttaka í leik og starfi er talin mikilvæg leiðarljós í menntastefnu. Innlent 24.4.2024 08:58 Ekki lengur smeykur við að deila kastljósinu með Katrínu Gunnar Sigvaldason doktorsnemi í stjórnmálafræði og eiginmaður Katrínar Jakobsdóttur forsetaframbjóðanda segir að sér hafi alltaf þótt gott að láta lítið á sér bera. Það hafi ekki síst verið til að vernda strákana þeirra þrjá, þá Jakob, Illuga og Ármann Áka. Gunnar segir að af einhverjum ástæðum hafi fólk mikinn áhuga á honum. Lífið 24.4.2024 07:01 Leiðin í vinnuna smám saman þrefaldast: „Þetta er eins og í einhverri bíómynd“ Breiðhyltingur segir farir sínar ekki sléttar af framkvæmdum við Breiðholtsbraut. Síðustu mánuði hefur gönguleið hennar í vinnuna smám saman þrefaldast vegna framkvæmdanna. Hún segir málið hreinlega eins og í bíómynd. Innlent 23.4.2024 19:30 „Við næðum eflaust meiri árangri ef borgarstjóri myndi væla minna“ Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, gefur lítið fyrir ummæli Einars Þorsteinssonar borgarstjóra. Í dag lögðu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins 1600 vettlinga á gólf Ráðhússins sem þau sögðu svipað marga og börn sem bíði eftir leikskólaplássi í borginni. Innlent 23.4.2024 17:56 Sjálfstæðisflokkurinn kvelji barnafólk með vettlingagjörningi Einar Þorsteinsson borgarstjóri gefur ekki mikið fyrir mótmæli borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins í ráðhúsinu í dag. Þar lögðu borgarfulltrúar flokksins 1.600 vettlinga sem þau sögðu svipað marga og þau börn sem bíði eftir leikskólaplássi í borginni. Innlent 23.4.2024 15:55 Reynslunni ríkari og opnar Wilson‘s Pizza á ný Wilson‘s Pizza mun opna aftur á Íslandi á morgun eftir níu ára fjarveru á markaði. Staðurinn verður staðsettur í Minigarðinum í Skútuvogi í Reykjavík. Viðskipti innlent 23.4.2024 14:19 Sextán hundruð vettlingar fyrir börnin sem bíða Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins kom í dag 1.600 barnavettlingum fyrir í Tjarnasal ráðhússins. Svipaður fjölda barna bíði nú eftir leikskólaplássi. Oddviti flokksins, Hildur Björnsdóttir, segir uppátækið ekki síst til þess að minna borgarstjóra á leikskólavandann. Innlent 23.4.2024 13:20 Menningarlífið iðar og HönnunarMars hefst á morgun HönnunarMars hefst með glimmeri, pompi og prakt á morgun við hátíðlega athöfn í Hafnarhúsinu klukkan 17:00. Menningarunnendur geta sótt fjöldann allan af viðburðum á næstu dögum og stendur hátíðin fram á sunnudag. Tíska og hönnun 23.4.2024 13:00 Bein útsending: Setning Barnamenningarhátíðar Barnamenningarhátíð hefst í dag, 23. apríl, og stendur yfir til 28. apríl. Hátíðin verður sett klukkan 9:45 í Hörpu í dag. Menning 23.4.2024 09:39 Biðst afsökunar á að hafa kallað skemmdarvarginn „fífl“ Kristján Berg, eigandi Fiskikóngsins, hefur beðist afsökunar á að hafa kallað manninn sem braut allar rúður verslunar verslunar Fiskikóngsins á Sogavegi í Reykjavík á dögunum „fífl“. Hann birtir afsökunarbeiðnina á samfélagsmiðlum og í heilsíðuauglýsingu í Morgunblaðinu í dag. Hann segir nú ónefnda ráðherra í ríkisstjórn vera „fífl“. Innlent 23.4.2024 07:21 Óttast mikinn skaða sem seint yrði fyrirgefinn Fastagestur Sundhallar Reykjavíkur segir að boðaðar viðgerðir á innilaug feli í sér „ófyrirgefanlegan skaða“ á hönnun Guðjóns Samúelssonar. Forstöðukona Sundhallarinnar skilur áhyggjur fastagesta en segir breytingarnar nauðsynlegar. Innlent 22.4.2024 22:21 Félag Rikka Daða selur einbýli sem áður var í eigu Rikka Daða RD 11, félag í eigu Ríkharðs Daðasonar fjárfestis hefur sett einbýlishús við Sunnuveg á sölu. Félagið festi kaup á eigninni í apríl í fyrra á 270 milljónir, sem þá var í eigu Ríkharðs og eiginkonu hans, Eddu Hermannsdóttur samskiptastjóri Íslandsbanka. Lífið 22.4.2024 20:00 Enginn í 9. bekk skildi setninguna „hjartað dælir blóði“ Eðvarð Hilmarsson, grunnskólakennari og stjórnmálafræðingur, segir meira fjármagn vanta í grunnskólakerfið. Kennarar þurfi auk þess betri viðmið svo að betri yfirsýn fáist á getu nemenda. Allt að 90 prósent nemenda í hverfaskólanum hans eru ekki með íslensku sem móðurmál. Eðvarð vill breyta ýmsu með framboði sínu til formanns Kennarafélags Reykjavíkur. Innlent 22.4.2024 11:19 Farsælar forvarnir í þágu barna í Reykjavík Forvarnir fyrirbyggja frekari vanda og auka líkurnar á farsælla lífi. Ný aðgerðaáætlun hjá Reykjavíkurborg tekst á við þá áskorun hvernig við getum stuðlað að farsælla lífi með góðum og árangursríkum forvörnum í málefnum barna. Skoðun 22.4.2024 11:01 Grátbiðja borgarstjórana um að bjarga „einstæðu listaverki Guðjóns“ Fastagestir og velunnarar Sundhallarinnar í Reykjavík biðla til borgarstjóra um að falla frá fyrirhuguðum breytingum á einni merkustu byggingu borgarinnar. Listaverki Guðjóns Samúelssonar eins og þeir komast að orði. Innlent 22.4.2024 10:24 Einn með exi á lofti og þrír handteknir vegna líkamsárásar Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynningí gærkvöldi eða nótt um einstakling með „exi á lofti“ í miðborginni. Málið var afgreitt af lögreglu, segir í yfirliti yfir verkefni næturinnar. Innlent 22.4.2024 06:14 Fíknefnaviðskipti beint fyrir framan nef lögreglu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út að slysadeild vegna einstaklings sem lét öllum illum látum í gærkvöldi eða nótt. Einstaklingurinn var að sögn lögreglu ölvaður og gerði tilraun til að ráðast á öryggisverði og lögreglu. Hann hefur verið vistaður í fangaklefa þangað til hann verður viðræðuhæfur. Innlent 21.4.2024 07:44 Stendur þétt við bak Heru Þórdís Lóa Þórhallsdóttir forseti borgarstjórnar segir lífið vera allt annað eftir hnéaðgerð. Áður gat hún ekki gengið á öðru en jafnsléttu. Hún segir fjölskylduna standa þétt að baki systur sinni Heru Björk í Eurovision. Þá hrósar hún minnihlutanum í borgarstjórn og segir samstarfið aldrei hafa gengið betur. Lífið 21.4.2024 07:01 « ‹ 36 37 38 39 40 41 42 43 44 … 334 ›
Leyfislausar tjaldbúðir og sundsprettur eftir lokun Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti fjölbreyttum verkefnum í gærkvöldi og nótt og var meðal annars kölluð til vegna einstaklinga sem höfðu slegið upp tjöldum í miðborginni. Innlent 26.4.2024 06:25
Grínari selur íbúð í Vesturbænum Grínistinn Jakob Birgisson og Sólveig Einarsdóttir hafa sett íbúð þeirra við Öldugötu í Vesturbænum á sölu. Jakob segist muna kveðja íbúðina og góða nágranna með trega. Lífið 25.4.2024 22:40
Útlagar spreyjaðir gylltir Útlagar, stytta Einars Jónssonar myndhöggvara, á horni Suðurgötu og Hringbrautar hefur orðið fyrir óvæntum breytingum. Einhver óprúttinn aðili hefur málað styttuna gyllta með málningu eða spreybrúsa. Innlent 25.4.2024 16:52
„Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Brynjar Karl Sigurðsson er einn eftirtektarverðasti þjálfari landsins. Og um leið sá umdeildasti. Brynjar Karl þjálfar kvennalið í körfubolta – Aþenu – sem nú berst um sæti í úrvalsdeild. Innlent 25.4.2024 07:00
Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Litlu mátti muna að illa færi þegar skemmtiferðarskip lagði úr Sundahöfn í Reykjavík 26. maí árið 2023. Mikill vindhraði gerði það að verkum að stjórnendur misstu stjórn á skipinu. Um er að ræða skipið Norweigian Prima, sem siglir undir flaggi Bahamaeyja. Skipið er 140.000 tonn og um 300 metrar á lengd. Innlent 24.4.2024 17:52
Lekker hæð listakonu til sölu Listakonan Þórunn Hulda Vigfúsdóttir og eiginmaður hennar Finnur Bjarnason hafa sett fallega hæð með sérinngangi við Gnoðarvog á sölu. Húsið var byggt árið 1960. Ásett verð er 110,9 milljónir. Lífið 24.4.2024 16:01
Segir lág laun leikskólakennara mýtu Borgarfulltrúi Framsóknar segir það mýtu að leikskólakennarar séu á lágum launum. Þeir séu á sambærilegum launum og lögfræðingar hjá borginni. Innlent 24.4.2024 14:02
Hildur, Rán og Ásta fá Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar 2024 voru veitt við hátíðlega athöfn í Höfða í morgun. Einar Þorsteinsson borgarstjóri Reykjavíkurborgar afhenti verðlaun í þremur flokkum, að því er fram kemur í tilkynningu. Menning 24.4.2024 12:27
Stofnaði lífi átta manna í hættu „í ábataskyni og á ófyrirleitinn hátt“ Jóhann Jónas Ingólfsson var nýverið dæmdur til fjögurra mánaða óskilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að brot gegn lögum um brunavarnir í atvinnuhúsnæði sem hann átti. Þar lét hann útbúa búseturými án tilskilinna leyfa og án þess að gera nauðsynlegar ráðstafanir um brunavarnir. Með því var hann talinn stofna lífi þeirra sem bjuggu í rýminu í hættu. Innlent 24.4.2024 11:58
Eldur í gámi við Sundabakka Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um klukkan 11:20 í dag eftir að eldur kom upp í gámi á gámasvæði við Sundabakka í Reykjavík. Innlent 24.4.2024 11:33
Mikill reykur þegar kviknaði í einangrunarplasti Mikill reykur myndaðist á byggingarsvæði við Sigtún, á Blómavalsreitnum svo kallaða, þegar það kviknaði í einangrunarplasti í morgun. Vel gekk að slökkva eldinn en starfsmenn byggingarsvæðisins voru að mestu búin að slökkva þegar slökkvilið kom á vettvang. Innlent 24.4.2024 10:42
Suzuki mun flytja inn í höll Björgólfs Björgólfur Guðmundsson athafnamaður seldi í síðasta mánuði einbýlishús sitt að Vesturbrún 22 í Laugardalnum til sendiráðs Japans. Kaupverðið er 540 milljónir króna og var fasteignin afhent í síðasta mánuði. Lífið 24.4.2024 10:02
Þátttaka nemenda í „verkföllum“ skráð sem „óheimil fjarvist“ Þátttaka reykvískra grunnskólabarna í mótmælum á opinberum vettvangi á skólatíma skal afgreidd sem „óheimil fjarvist“ og vera skráð sem slík. Á sama tíma er eitt af leiðarljósum menntastefnu borgarinnar „barnið sem virkur þátttakandi“ þar sem virkni barna og lýðræðisleg þátttaka í leik og starfi er talin mikilvæg leiðarljós í menntastefnu. Innlent 24.4.2024 08:58
Ekki lengur smeykur við að deila kastljósinu með Katrínu Gunnar Sigvaldason doktorsnemi í stjórnmálafræði og eiginmaður Katrínar Jakobsdóttur forsetaframbjóðanda segir að sér hafi alltaf þótt gott að láta lítið á sér bera. Það hafi ekki síst verið til að vernda strákana þeirra þrjá, þá Jakob, Illuga og Ármann Áka. Gunnar segir að af einhverjum ástæðum hafi fólk mikinn áhuga á honum. Lífið 24.4.2024 07:01
Leiðin í vinnuna smám saman þrefaldast: „Þetta er eins og í einhverri bíómynd“ Breiðhyltingur segir farir sínar ekki sléttar af framkvæmdum við Breiðholtsbraut. Síðustu mánuði hefur gönguleið hennar í vinnuna smám saman þrefaldast vegna framkvæmdanna. Hún segir málið hreinlega eins og í bíómynd. Innlent 23.4.2024 19:30
„Við næðum eflaust meiri árangri ef borgarstjóri myndi væla minna“ Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, gefur lítið fyrir ummæli Einars Þorsteinssonar borgarstjóra. Í dag lögðu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins 1600 vettlinga á gólf Ráðhússins sem þau sögðu svipað marga og börn sem bíði eftir leikskólaplássi í borginni. Innlent 23.4.2024 17:56
Sjálfstæðisflokkurinn kvelji barnafólk með vettlingagjörningi Einar Þorsteinsson borgarstjóri gefur ekki mikið fyrir mótmæli borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins í ráðhúsinu í dag. Þar lögðu borgarfulltrúar flokksins 1.600 vettlinga sem þau sögðu svipað marga og þau börn sem bíði eftir leikskólaplássi í borginni. Innlent 23.4.2024 15:55
Reynslunni ríkari og opnar Wilson‘s Pizza á ný Wilson‘s Pizza mun opna aftur á Íslandi á morgun eftir níu ára fjarveru á markaði. Staðurinn verður staðsettur í Minigarðinum í Skútuvogi í Reykjavík. Viðskipti innlent 23.4.2024 14:19
Sextán hundruð vettlingar fyrir börnin sem bíða Borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins kom í dag 1.600 barnavettlingum fyrir í Tjarnasal ráðhússins. Svipaður fjölda barna bíði nú eftir leikskólaplássi. Oddviti flokksins, Hildur Björnsdóttir, segir uppátækið ekki síst til þess að minna borgarstjóra á leikskólavandann. Innlent 23.4.2024 13:20
Menningarlífið iðar og HönnunarMars hefst á morgun HönnunarMars hefst með glimmeri, pompi og prakt á morgun við hátíðlega athöfn í Hafnarhúsinu klukkan 17:00. Menningarunnendur geta sótt fjöldann allan af viðburðum á næstu dögum og stendur hátíðin fram á sunnudag. Tíska og hönnun 23.4.2024 13:00
Bein útsending: Setning Barnamenningarhátíðar Barnamenningarhátíð hefst í dag, 23. apríl, og stendur yfir til 28. apríl. Hátíðin verður sett klukkan 9:45 í Hörpu í dag. Menning 23.4.2024 09:39
Biðst afsökunar á að hafa kallað skemmdarvarginn „fífl“ Kristján Berg, eigandi Fiskikóngsins, hefur beðist afsökunar á að hafa kallað manninn sem braut allar rúður verslunar verslunar Fiskikóngsins á Sogavegi í Reykjavík á dögunum „fífl“. Hann birtir afsökunarbeiðnina á samfélagsmiðlum og í heilsíðuauglýsingu í Morgunblaðinu í dag. Hann segir nú ónefnda ráðherra í ríkisstjórn vera „fífl“. Innlent 23.4.2024 07:21
Óttast mikinn skaða sem seint yrði fyrirgefinn Fastagestur Sundhallar Reykjavíkur segir að boðaðar viðgerðir á innilaug feli í sér „ófyrirgefanlegan skaða“ á hönnun Guðjóns Samúelssonar. Forstöðukona Sundhallarinnar skilur áhyggjur fastagesta en segir breytingarnar nauðsynlegar. Innlent 22.4.2024 22:21
Félag Rikka Daða selur einbýli sem áður var í eigu Rikka Daða RD 11, félag í eigu Ríkharðs Daðasonar fjárfestis hefur sett einbýlishús við Sunnuveg á sölu. Félagið festi kaup á eigninni í apríl í fyrra á 270 milljónir, sem þá var í eigu Ríkharðs og eiginkonu hans, Eddu Hermannsdóttur samskiptastjóri Íslandsbanka. Lífið 22.4.2024 20:00
Enginn í 9. bekk skildi setninguna „hjartað dælir blóði“ Eðvarð Hilmarsson, grunnskólakennari og stjórnmálafræðingur, segir meira fjármagn vanta í grunnskólakerfið. Kennarar þurfi auk þess betri viðmið svo að betri yfirsýn fáist á getu nemenda. Allt að 90 prósent nemenda í hverfaskólanum hans eru ekki með íslensku sem móðurmál. Eðvarð vill breyta ýmsu með framboði sínu til formanns Kennarafélags Reykjavíkur. Innlent 22.4.2024 11:19
Farsælar forvarnir í þágu barna í Reykjavík Forvarnir fyrirbyggja frekari vanda og auka líkurnar á farsælla lífi. Ný aðgerðaáætlun hjá Reykjavíkurborg tekst á við þá áskorun hvernig við getum stuðlað að farsælla lífi með góðum og árangursríkum forvörnum í málefnum barna. Skoðun 22.4.2024 11:01
Grátbiðja borgarstjórana um að bjarga „einstæðu listaverki Guðjóns“ Fastagestir og velunnarar Sundhallarinnar í Reykjavík biðla til borgarstjóra um að falla frá fyrirhuguðum breytingum á einni merkustu byggingu borgarinnar. Listaverki Guðjóns Samúelssonar eins og þeir komast að orði. Innlent 22.4.2024 10:24
Einn með exi á lofti og þrír handteknir vegna líkamsárásar Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynningí gærkvöldi eða nótt um einstakling með „exi á lofti“ í miðborginni. Málið var afgreitt af lögreglu, segir í yfirliti yfir verkefni næturinnar. Innlent 22.4.2024 06:14
Fíknefnaviðskipti beint fyrir framan nef lögreglu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út að slysadeild vegna einstaklings sem lét öllum illum látum í gærkvöldi eða nótt. Einstaklingurinn var að sögn lögreglu ölvaður og gerði tilraun til að ráðast á öryggisverði og lögreglu. Hann hefur verið vistaður í fangaklefa þangað til hann verður viðræðuhæfur. Innlent 21.4.2024 07:44
Stendur þétt við bak Heru Þórdís Lóa Þórhallsdóttir forseti borgarstjórnar segir lífið vera allt annað eftir hnéaðgerð. Áður gat hún ekki gengið á öðru en jafnsléttu. Hún segir fjölskylduna standa þétt að baki systur sinni Heru Björk í Eurovision. Þá hrósar hún minnihlutanum í borgarstjórn og segir samstarfið aldrei hafa gengið betur. Lífið 21.4.2024 07:01