Grindavík Eldgosinu lokið eftir 54 daga Eldgosinu við Sundhnúksgígaröðina sem hófst þann 16. mars er nú lokið. Sérfræðingar Almannavarna flugu dróna yfir gosstöðvarnar við Sundhnúk í gærkvöldi og þá var enga virkni að sjá í gígnum. Enn er kvikusöfnun í kvikuhólfi undir Svartsengi og líklegt að annað kvikuhlaup hefjist áður en langt er um liðið. Innlent 9.5.2024 08:15 Margt bendi til þess að gosinu sé lokið Margt bendir nú til þess að eldgosinu við Sundhnúka sé lokið. Þetta kemur fram í pistli frá Eldfjalla- og náttúruvárhópi Suðurlands á Facebook. Gosórói hafi fallið stöðugt frá því snemma í morgun. Innlent 8.5.2024 20:23 Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu Niðurstöður mælinga á hraunflæði í eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni benda til þess hraunflæði fyrsta klukkutíma gossins hafi verið 1100 til 1200 rúmmetrar á sekúndu en síðan hafi dregið hratt úr, og það verið komið niður í um 100 rúmmetra eftir sex til átta klukkustundir. Áfram hafi dregið úr hraunrennsli og meðaltalið 17. til 20. mars um fimmtán rúmmetrar. Fyrri hluta apríl hafi það verið þrír til fjórir rúmmetrar og mælingarnar benda til þess að það hafi verið um eða innan við einn rúmmetri síðustu tvær vikurnar. Innlent 8.5.2024 16:37 „Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Yfirvofandi eldgoss í námunda við Grindavík hefur áhrif á þá starfsemi sem hafin var í bænum að sögn formanns bæjarráðs. Ákvörðun um hópuppsagnir bæjarstarfsmanna hafi verið erfið en fyrirsjáanleg. Innlent 8.5.2024 14:07 Gera þrjátíu til fjörutíu kaupsamninga á hverjum degi Fasteignafélagið Þórkatla hefur nú afgreitt meirihluta þeirra 766 umsóknir sem hafa borist um kaup. Allar umsóknir sem bárust í mars og þarfnast ekki nánari skoðunar hafa verið afgreiddar, eða alls 528 umsóknir. Eigendum 415 eigna í Grindavík hefur verið boðin kaupsamningur til undirritunar. Viðskipti innlent 8.5.2024 11:41 Skelfilegt að þurfa grípa til hópuppsagna Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur segir að skelfilegt sé að þurfa að grípa til hópuppsagna. Bæjarstjórn Grindavíkur ákvað á fundi í morgun að fækka störfum hjá sveitarfélaginu. Starfsmönnum fækkar um allt að 150. Hann vonar að „þetta ömurlega tímabil“ taki enda fyrr en síðar. Innlent 7.5.2024 20:23 Undirbúa hópuppsögn hjá Grindavíkurbæ Bæjarstjórn Grindavíkur ákvað á fundi sínum í morgun að laga starfsmannahald bæjarins að gjörbreyttum aðstæðum og fækka störfum hjá sveitarfélaginu. Bæjarstjóra hefur verið falið að hefja undirbúning og samráð við hagaðila í samræmi við lög um hópuppsagnir. Innlent 7.5.2024 16:34 Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Jarðvísindamennirnir Haraldur Sigurðsson og Grímur Björnsson segja nýjustu gögn Veðurstofu Íslands um hraunflæði frá Sundhnúksgígaröðinni styðja við fyrri spá þeirra um lok eldvirkni í gígaröðinni; að kvikuflæði verði lokið í eldstöðinni seinni part sumars 2024, eða nánar tiltekið um 5. júlí. Jafnframt telja þeir að landris geti haldið áfram að vissu marki án þess að nýtt gos brjótist fram og vísa til reynslunnar frá Kröflueldum. Innlent 4.5.2024 23:46 „Við reyndum eins og við gátum“ Innviðaráðherra hyggst stofna sérstaka framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur vegna jarðhræringa og áhrifa þeirra á byggð þar og samfélag. Bærinn mun ráðast í einhverjar uppsagnir vegna breytinganna. Innlent 3.5.2024 11:45 Skipar framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að leggja fram á Alþingi lagafrumvarp Svandísar Svavarsdóttur innviðaráðherra um að stofnuð verði sérstök framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkurbæjar vegna jarðhræringa og áhrifa þeirra á byggð og samfélag. Svandís segir jarðhræringarnar á Reykjanesskaga vera umfangsmesta verkefni sem stjórnvöld hafi tekist á við vegna náttúruhamfara. Innlent 3.5.2024 10:51 Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Leigjendur sem þegið hafa sértækan húsnæðisstuðning vegna atburðanna í Grindavík greiða að meðaltali 13 til 22 þúsund krónum hærri leigu í hverjum mánuði en aðrir leigjendur í sambærilegu húsnæði. Á Suðurlandi er greiða Grindvíkingar að meðallagi 32 prósent hærri leigu en aðrir. Viðskipti innlent 3.5.2024 10:10 Svandís boðar til blaðamannafundar Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra hefur boðað til blaðamannafundar klukkan 10:30 í dag. Þar mun hún kynna nýtt lagafrumvarp um málefni Grindavíkur. Fundinum verður streymt beint á Vísi. Innlent 3.5.2024 09:44 „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Veitingastaður og bakarí opnuðu á ný í Grindavík í dag. Einn eigenda veitingastaðarins vill opna bæinn fyrir öllum sem vilja koma og losna við lokunarpósta sem gagnist engum. Innlent 2.5.2024 19:21 Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Veitingastaður og bakarí í Grindavík voru opnuð á ný í Grindavík í dag. Lögreglustjórinn telur viðbragðsaðila hafa ágætis tíma til að rýma bæinn komi til nýs eldgoss á svæðinu. Innlent 2.5.2024 11:11 Stutt í næsta gos komi til gosloka Enn mælist landris við Svartsengi þrátt fyrir að vísbendingar séu um að hægt hafi á því síðustu daga. Gögn benda til þess að þrýstingur sé að aukast í kvikuhólfinu undir Svartsengi. Jarðeðlisfræðingur segir bæði líkur á nýju gosi ofan í það sem er nú í gangi og goslokum, en í því tilfelli myndi líklegast brátt gjósa aftur. Innlent 1.5.2024 22:01 Guðni stal senunni í Smáranum: „Sástu forsetann þarna?“ Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson var á meðal áhorfenda á fyrsta leik Grindavíkur og Keflavíkur í undanúrslitum Subway deildar karla í körfubolta í gær. Hrifning hans á einni af flottustu körfu leiksins leyndi sér ekki og voru sérfræðingar Körfuboltakvölds yfir sig hrifnir af viðbrögðum Guðna sömuleiðis. Körfubolti 1.5.2024 08:58 Segir ekkert „dramatískt“ að frétta af eldgosinu Prófessor í jarðeðlisfræði segir ekkert „dramatískt“ að frétta af eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni við Grindavík. Innlent 30.4.2024 12:15 Aukin virkni í gosinu Eldfjallafræðingur segir merki uppi um að virkni hafi aukist í eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni í nótt. Landris í Svartsengi hafi stöðvast og kvika leiti nú beint upp á yfirborð úr dýpra kvikuhólfinu. Innlent 30.4.2024 09:40 Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Grindvíkingar hafa neyðst til að henda gríðarlegum verðmætum undanfarið vegna búferlaflutninga. Að minnsta kosti hálf búslóðin fór í ruslið hjá einum þeirra. Annar segir að enginn vilji hirða dótið og Góði hirðirinn sé sprunginn. Innlent 29.4.2024 13:01 Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Virkni eldgossins við Sundhnúksgíga er með svipuðu móti og síðustu daga. Svo virðist sem mögulega hafi hægt á landrisi undir Svartsengi en náttúruvársérfræðingur segir þó of snemmt að túlka þau gögn sem liggja fyrir á þessari stundu. Innlent 28.4.2024 12:46 Líklegt að það styttist í brotmörk Lögregla á Suðurnesjum fylgist grannt með stöðu mála við Grindavík, þar sem hrauntunga hóf að renna yfir varnargarð í morgun. Þá telja vísindamenn að annað eldgos gæti verið yfirvofandi á svæðinu hvað úr hverju. Innlent 27.4.2024 20:46 Hraun mjakast yfir varnargarð Hrauntunga úr eldgosinu við Sundhnúksgíga hefur teygt sig yfir varnargarð norðan við Grindavík. Hún rennur hægt og engin hætta stafar af henni enn sem komið er. Innlent 27.4.2024 13:49 Vara við því að fara gangandi að gosinu Lögreglan á Suðurnesjum varar við því að fara fótgangandi að gosstöðvum. Fram hefur komið í fréttum að líkur aukast með hverjum degi á að ný gossprungja opnist eða að nýtt eldgos hefjist. Vegna þess er fólk varað við því að fara fótgangandi. Innlent 27.4.2024 07:37 Krafturinn í gosinu gæti aukist verulega haldi kvikusöfnun áfram Eldgosið við Sundhnúk heldur áfram og er enn einn gígur skammt austan við Sundhnúk, virkur. Landris í Svartsengi hefur áfram á sama hraða og eru meiri líkur á því að kraftur eldgossins á Sundhnúksgígaröðinni aukist verulega, haldi kvikusöfnun áfram á svipuðum hraða. Innlent 26.4.2024 13:17 Samþykkja helming umsókna um sölu eigna fyrir lok vikunnar Stefnt er að því að lokið verði við að samþykkja helming umsókna Grindvíkinga um að ríkið kaupi íbúðarhúsnæði þeirra fyrir lok þessarar viku. Þegar hafa verið samþykkt kaup á 263 fasteignum í Grindavík fyrir um tuttugu milljarða króna. Viðskipti innlent 24.4.2024 15:27 Bæjarstjórn fundaði með Þórkötlu Bæjarstjórn Grindavíkur fundaði nú á föstudaginn með forsvarsfólki fasteignafélagsins Þórkötlu sem stofnað var 27. febrúar 2024 sérstaklega til að annast kaup, umsýslu og ráðstöfun húsnæðis í Grindavík. Farið var yfir verkferla og hvernig unnið væri með málefni þeirra sem óskað hafa eftir uppkaupum. Innlent 22.4.2024 18:40 Atvinnurekendur í Grindavík krefjast úrræða Hópur grindvískra atvinnurekenda segir fyrirtæki í Grindavík komin að þolmörkum og kalla eftir að úrræði sem kynnt verða fyrir þinglok verði úrræði sem miða að fyrirtækjum sem geta og vilja starfa í Grindavík, fyrirtækjum sem þurfa að flytja starfsemi sína og þeim sem sjá hvorki rekstrargrundvöll í né utan Grindavíkur og vilja uppkaup á atvinnuhúsnæði. Innlent 21.4.2024 23:16 Sameiningarviðræður á Suðurnesjum komnar á næsta stig Viðræður um sameiningu sveitarfélaga á Suðurnesjum eru komnar á næsta stig og haldnir hafa verið íbúafundir vegna málsins. Bæjarstjóri í Vogum segir endanlega ákvörðun alltaf vera íbúanna. Innlent 21.4.2024 18:21 Göngumennirnir illa haldnir þegar komið var að þeim Björgunarsveitir björguðu í gær þremur göngumönnum sem höfðu ætlað sér að labba að gosstöðvunum við Litla-Hrút en urðu örmagna á leið sinni. Einn þeirra sem fór í útkallið segir mennina hafa verið illa haldna þegar komið var að þeim. Innlent 21.4.2024 12:29 Þórkatla kom í veg fyrir áætlun fjölskyldunnar: „Þetta tekur allt saman svo fjandi langan tíma“ „Ég er föst á nýjum stað. Ég verð að geta komið fótunum undir mig og fjölskyldu mína,“ segir Birna Rún Arnarsdóttir um erfiða stöðu sem myndast hefur fyrir Grindvíkinga, meðal annars vegna fasteignafélagsins Þórkötlu. Innlent 18.4.2024 23:04 « ‹ 5 6 7 8 9 10 11 12 13 … 72 ›
Eldgosinu lokið eftir 54 daga Eldgosinu við Sundhnúksgígaröðina sem hófst þann 16. mars er nú lokið. Sérfræðingar Almannavarna flugu dróna yfir gosstöðvarnar við Sundhnúk í gærkvöldi og þá var enga virkni að sjá í gígnum. Enn er kvikusöfnun í kvikuhólfi undir Svartsengi og líklegt að annað kvikuhlaup hefjist áður en langt er um liðið. Innlent 9.5.2024 08:15
Margt bendi til þess að gosinu sé lokið Margt bendir nú til þess að eldgosinu við Sundhnúka sé lokið. Þetta kemur fram í pistli frá Eldfjalla- og náttúruvárhópi Suðurlands á Facebook. Gosórói hafi fallið stöðugt frá því snemma í morgun. Innlent 8.5.2024 20:23
Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu Niðurstöður mælinga á hraunflæði í eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni benda til þess hraunflæði fyrsta klukkutíma gossins hafi verið 1100 til 1200 rúmmetrar á sekúndu en síðan hafi dregið hratt úr, og það verið komið niður í um 100 rúmmetra eftir sex til átta klukkustundir. Áfram hafi dregið úr hraunrennsli og meðaltalið 17. til 20. mars um fimmtán rúmmetrar. Fyrri hluta apríl hafi það verið þrír til fjórir rúmmetrar og mælingarnar benda til þess að það hafi verið um eða innan við einn rúmmetri síðustu tvær vikurnar. Innlent 8.5.2024 16:37
„Allir að bíða eftir þessum atburði sem ekki skeður“ Yfirvofandi eldgoss í námunda við Grindavík hefur áhrif á þá starfsemi sem hafin var í bænum að sögn formanns bæjarráðs. Ákvörðun um hópuppsagnir bæjarstarfsmanna hafi verið erfið en fyrirsjáanleg. Innlent 8.5.2024 14:07
Gera þrjátíu til fjörutíu kaupsamninga á hverjum degi Fasteignafélagið Þórkatla hefur nú afgreitt meirihluta þeirra 766 umsóknir sem hafa borist um kaup. Allar umsóknir sem bárust í mars og þarfnast ekki nánari skoðunar hafa verið afgreiddar, eða alls 528 umsóknir. Eigendum 415 eigna í Grindavík hefur verið boðin kaupsamningur til undirritunar. Viðskipti innlent 8.5.2024 11:41
Skelfilegt að þurfa grípa til hópuppsagna Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur segir að skelfilegt sé að þurfa að grípa til hópuppsagna. Bæjarstjórn Grindavíkur ákvað á fundi í morgun að fækka störfum hjá sveitarfélaginu. Starfsmönnum fækkar um allt að 150. Hann vonar að „þetta ömurlega tímabil“ taki enda fyrr en síðar. Innlent 7.5.2024 20:23
Undirbúa hópuppsögn hjá Grindavíkurbæ Bæjarstjórn Grindavíkur ákvað á fundi sínum í morgun að laga starfsmannahald bæjarins að gjörbreyttum aðstæðum og fækka störfum hjá sveitarfélaginu. Bæjarstjóra hefur verið falið að hefja undirbúning og samráð við hagaðila í samræmi við lög um hópuppsagnir. Innlent 7.5.2024 16:34
Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Jarðvísindamennirnir Haraldur Sigurðsson og Grímur Björnsson segja nýjustu gögn Veðurstofu Íslands um hraunflæði frá Sundhnúksgígaröðinni styðja við fyrri spá þeirra um lok eldvirkni í gígaröðinni; að kvikuflæði verði lokið í eldstöðinni seinni part sumars 2024, eða nánar tiltekið um 5. júlí. Jafnframt telja þeir að landris geti haldið áfram að vissu marki án þess að nýtt gos brjótist fram og vísa til reynslunnar frá Kröflueldum. Innlent 4.5.2024 23:46
„Við reyndum eins og við gátum“ Innviðaráðherra hyggst stofna sérstaka framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur vegna jarðhræringa og áhrifa þeirra á byggð þar og samfélag. Bærinn mun ráðast í einhverjar uppsagnir vegna breytinganna. Innlent 3.5.2024 11:45
Skipar framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að leggja fram á Alþingi lagafrumvarp Svandísar Svavarsdóttur innviðaráðherra um að stofnuð verði sérstök framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkurbæjar vegna jarðhræringa og áhrifa þeirra á byggð og samfélag. Svandís segir jarðhræringarnar á Reykjanesskaga vera umfangsmesta verkefni sem stjórnvöld hafi tekist á við vegna náttúruhamfara. Innlent 3.5.2024 10:51
Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Leigjendur sem þegið hafa sértækan húsnæðisstuðning vegna atburðanna í Grindavík greiða að meðaltali 13 til 22 þúsund krónum hærri leigu í hverjum mánuði en aðrir leigjendur í sambærilegu húsnæði. Á Suðurlandi er greiða Grindvíkingar að meðallagi 32 prósent hærri leigu en aðrir. Viðskipti innlent 3.5.2024 10:10
Svandís boðar til blaðamannafundar Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra hefur boðað til blaðamannafundar klukkan 10:30 í dag. Þar mun hún kynna nýtt lagafrumvarp um málefni Grindavíkur. Fundinum verður streymt beint á Vísi. Innlent 3.5.2024 09:44
„Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Veitingastaður og bakarí opnuðu á ný í Grindavík í dag. Einn eigenda veitingastaðarins vill opna bæinn fyrir öllum sem vilja koma og losna við lokunarpósta sem gagnist engum. Innlent 2.5.2024 19:21
Bakarí og veitingastaður opna í Grindavík á ný Veitingastaður og bakarí í Grindavík voru opnuð á ný í Grindavík í dag. Lögreglustjórinn telur viðbragðsaðila hafa ágætis tíma til að rýma bæinn komi til nýs eldgoss á svæðinu. Innlent 2.5.2024 11:11
Stutt í næsta gos komi til gosloka Enn mælist landris við Svartsengi þrátt fyrir að vísbendingar séu um að hægt hafi á því síðustu daga. Gögn benda til þess að þrýstingur sé að aukast í kvikuhólfinu undir Svartsengi. Jarðeðlisfræðingur segir bæði líkur á nýju gosi ofan í það sem er nú í gangi og goslokum, en í því tilfelli myndi líklegast brátt gjósa aftur. Innlent 1.5.2024 22:01
Guðni stal senunni í Smáranum: „Sástu forsetann þarna?“ Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson var á meðal áhorfenda á fyrsta leik Grindavíkur og Keflavíkur í undanúrslitum Subway deildar karla í körfubolta í gær. Hrifning hans á einni af flottustu körfu leiksins leyndi sér ekki og voru sérfræðingar Körfuboltakvölds yfir sig hrifnir af viðbrögðum Guðna sömuleiðis. Körfubolti 1.5.2024 08:58
Segir ekkert „dramatískt“ að frétta af eldgosinu Prófessor í jarðeðlisfræði segir ekkert „dramatískt“ að frétta af eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni við Grindavík. Innlent 30.4.2024 12:15
Aukin virkni í gosinu Eldfjallafræðingur segir merki uppi um að virkni hafi aukist í eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni í nótt. Landris í Svartsengi hafi stöðvast og kvika leiti nú beint upp á yfirborð úr dýpra kvikuhólfinu. Innlent 30.4.2024 09:40
Helmingurinn af búslóðinni í ruslið Grindvíkingar hafa neyðst til að henda gríðarlegum verðmætum undanfarið vegna búferlaflutninga. Að minnsta kosti hálf búslóðin fór í ruslið hjá einum þeirra. Annar segir að enginn vilji hirða dótið og Góði hirðirinn sé sprunginn. Innlent 29.4.2024 13:01
Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Virkni eldgossins við Sundhnúksgíga er með svipuðu móti og síðustu daga. Svo virðist sem mögulega hafi hægt á landrisi undir Svartsengi en náttúruvársérfræðingur segir þó of snemmt að túlka þau gögn sem liggja fyrir á þessari stundu. Innlent 28.4.2024 12:46
Líklegt að það styttist í brotmörk Lögregla á Suðurnesjum fylgist grannt með stöðu mála við Grindavík, þar sem hrauntunga hóf að renna yfir varnargarð í morgun. Þá telja vísindamenn að annað eldgos gæti verið yfirvofandi á svæðinu hvað úr hverju. Innlent 27.4.2024 20:46
Hraun mjakast yfir varnargarð Hrauntunga úr eldgosinu við Sundhnúksgíga hefur teygt sig yfir varnargarð norðan við Grindavík. Hún rennur hægt og engin hætta stafar af henni enn sem komið er. Innlent 27.4.2024 13:49
Vara við því að fara gangandi að gosinu Lögreglan á Suðurnesjum varar við því að fara fótgangandi að gosstöðvum. Fram hefur komið í fréttum að líkur aukast með hverjum degi á að ný gossprungja opnist eða að nýtt eldgos hefjist. Vegna þess er fólk varað við því að fara fótgangandi. Innlent 27.4.2024 07:37
Krafturinn í gosinu gæti aukist verulega haldi kvikusöfnun áfram Eldgosið við Sundhnúk heldur áfram og er enn einn gígur skammt austan við Sundhnúk, virkur. Landris í Svartsengi hefur áfram á sama hraða og eru meiri líkur á því að kraftur eldgossins á Sundhnúksgígaröðinni aukist verulega, haldi kvikusöfnun áfram á svipuðum hraða. Innlent 26.4.2024 13:17
Samþykkja helming umsókna um sölu eigna fyrir lok vikunnar Stefnt er að því að lokið verði við að samþykkja helming umsókna Grindvíkinga um að ríkið kaupi íbúðarhúsnæði þeirra fyrir lok þessarar viku. Þegar hafa verið samþykkt kaup á 263 fasteignum í Grindavík fyrir um tuttugu milljarða króna. Viðskipti innlent 24.4.2024 15:27
Bæjarstjórn fundaði með Þórkötlu Bæjarstjórn Grindavíkur fundaði nú á föstudaginn með forsvarsfólki fasteignafélagsins Þórkötlu sem stofnað var 27. febrúar 2024 sérstaklega til að annast kaup, umsýslu og ráðstöfun húsnæðis í Grindavík. Farið var yfir verkferla og hvernig unnið væri með málefni þeirra sem óskað hafa eftir uppkaupum. Innlent 22.4.2024 18:40
Atvinnurekendur í Grindavík krefjast úrræða Hópur grindvískra atvinnurekenda segir fyrirtæki í Grindavík komin að þolmörkum og kalla eftir að úrræði sem kynnt verða fyrir þinglok verði úrræði sem miða að fyrirtækjum sem geta og vilja starfa í Grindavík, fyrirtækjum sem þurfa að flytja starfsemi sína og þeim sem sjá hvorki rekstrargrundvöll í né utan Grindavíkur og vilja uppkaup á atvinnuhúsnæði. Innlent 21.4.2024 23:16
Sameiningarviðræður á Suðurnesjum komnar á næsta stig Viðræður um sameiningu sveitarfélaga á Suðurnesjum eru komnar á næsta stig og haldnir hafa verið íbúafundir vegna málsins. Bæjarstjóri í Vogum segir endanlega ákvörðun alltaf vera íbúanna. Innlent 21.4.2024 18:21
Göngumennirnir illa haldnir þegar komið var að þeim Björgunarsveitir björguðu í gær þremur göngumönnum sem höfðu ætlað sér að labba að gosstöðvunum við Litla-Hrút en urðu örmagna á leið sinni. Einn þeirra sem fór í útkallið segir mennina hafa verið illa haldna þegar komið var að þeim. Innlent 21.4.2024 12:29
Þórkatla kom í veg fyrir áætlun fjölskyldunnar: „Þetta tekur allt saman svo fjandi langan tíma“ „Ég er föst á nýjum stað. Ég verð að geta komið fótunum undir mig og fjölskyldu mína,“ segir Birna Rún Arnarsdóttir um erfiða stöðu sem myndast hefur fyrir Grindvíkinga, meðal annars vegna fasteignafélagsins Þórkötlu. Innlent 18.4.2024 23:04