Grindavík Gígbarmurinn brostinn og hraun rennur í norðurátt Barmur eina gígsins sem enn gýs úr milli Hagafells og Stóra-Skógfells virðist hafa brostið norðanmegin í kvöld. Innlent 7.4.2024 23:42 Hraunfossinn í nærmynd Hraunfoss rennur nú yfir gígbarminn í eina gígnum sem enn lifir í eldgosinu við Sundhnúka. Björn Steinbekk flaug dróna yfir gosið fyrr í dag og fangaði sjónarspilið í nærmynd. Innlent 7.4.2024 22:44 Hraun flæðir úr gígnum við Sundhnúka Mikið yfirfall er nú úr gígnum við Sundhnúka og tilkomumikið sjónarspil sést á vefmyndavélum. Innlent 7.4.2024 16:27 Tímaspursmál hvenær hraun fari að renna til norðurs Aðeins gýs í einum gíg við Sundhnúka. Fjarað hefur út í syðri og smærri gígnum. Sá sem enn gýs í hækkar jafnt og þétt og gnæfir um 25 metra yfir hraunbreiðunni. Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands segir það vera tímaspursmál hvenær hraun fer að renna til norðurs. Innlent 6.4.2024 10:46 Gagnrýna bæjarstjórn fyrir samráðsleysi og vilja fjölbreyttari úrræði Fyrirtæki í Grindavík kalla eftir mun fjölbreyttari úrræðum vegna stöðunnar í bænum. Algjör óvissa sé um hvort og hvenær íbúar geti snúið til baka og því ljóst að hluti fyrirtækja muni þurfa að hætta starfsemi í bænum. Bæjarstjórn er gagnrýnd fyrir samráðsleysi. Innlent 5.4.2024 20:01 Opna Bláa lónið þrátt fyrir hættu á gasmengun Bláa lónið opnar dyr sínar á ný á hádegi á morgun. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir ákvörðunin alfarið forsvarsmanna fyrirtækisins. Áfram sé hætta á gasmengun á svæðinu. Innlent 5.4.2024 14:50 „Takk Þórkatla fyrir ekki neitt“ Soffía Snædís Sveinsdóttir er fyrrverandi íbúi í Grindavík er ósátt hvernig gengur að gera upp við eigendur húsnæðis í Grindavík - hún vandar Þórkötlu ekki kveðjurnar. Innlent 5.4.2024 10:32 Þórkatla heldur Grindvíkingum í heljargreipum Í dag eru fjórar vikur liðnar frá því að opnað var fyrir umsóknir um uppkaup eigna Grindvíkinga. Frumvarpið er auðvitað ekki gallalaust og margir sitja eftir með sárt ennið og tapa öllu sínu. Enginn græðir á þessari sölu og fæstir fá til baka þær fjárfestingar sem settar hafa verið í heimilin. Skoðun 5.4.2024 09:35 Svona lítur úrslitakeppni Subway deildar karla út Lokaumferð deildarkeppni Subway deildar karla í körfubolta fór fram í kvöld og nú er orðið ljóst hvaða lið mætast í úrslitakeppni deildarinnar. Það eru Valsmenn sem standa uppi sem deildarmeistarar þetta tímabilið. Haldið ykkur fast, skemmtilegasti hluti tímabilsins er framundan. Körfubolti 4.4.2024 22:00 Af neyðarstigi á hættustig vegna eldgossins Ríkislögreglustjóri, í samráði við Lögreglustjórann á Suðurnesjum, hefur ákveðið að fara af neyðarstigi niður á hættustig Almannavarna vegna eldgossins á Reykjanesskaga. Innlent 3.4.2024 21:40 Ekkert ferðamannagos Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir að ferðamönnum verði ekki hleypt að gosstöðvunum við Sundhnúk á næstunni. Nokkur áhugi er meðal ferðamanna að komast að gosinu. Þeir hafa bókað til þess þyrluferðir og verið snúið við þegar þeir hafa reynt að komast inn á lokað svæði. Innlent 3.4.2024 21:31 Eldgosið í beinni Enn er kraftur í eldgosinu á Reykjanesskaga milli Hagafells og Stóra-Skógfells. Dregið hefur úr virkninni en þetta gos hefur þó staðið lengur en þrjú síðustu gos á undan. Innlent 3.4.2024 13:15 Otti Rafn segir af sér formennsku í Landsbjörg Otti Rafn Sigmarsson hefur tilkynnt að hann hyggist segja formlega af sér sem formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Það gerði hann á stjórnarfundi Landsbjargar í kvöld. Innlent 2.4.2024 21:50 „Upp með hökuna og áfram gakk“ Skipstjóri fyrsta frystitogarans sem landaði í Grindavík í morgun í fyrsta sinn í fimm mánuði segir blendnar tilfinningar fylgja tímamótunum. Hann fékk ryk í augun þegar skipið sigldi að landi. Útgerðarstjóri segir tilfinninguna gríðarlega góða og gleðilegt að líf sé að færast í bæinn. Innlent 2.4.2024 21:13 Mögulega komið á jafnvægi undir Svartsengi Mögulega er komið á jafnvægi í aðstreymi kviku inn undir Svartsengi og upp úr gígum eldgossins. Þetta gætu jarðefnafræðimælingar staðfest á næstunni. Landris í Svartsengi hefur ekki mælst síðustu daga sem bendir einkum til þess að kvikan safnist síður fyrir í kvikuhólfinu undir Svartsengi en flæði frekar beint út um gosopin. Innlent 2.4.2024 13:26 Virkni enn stöðug og fátt bendir til gosloka Virkni eldgossins við Sundhnúk er enn nokkuð stöðug og segir náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands engin merki um að gosinu sé að ljúka þó slokknað hafi í einum af gígunum þremur. Fréttir 2.4.2024 12:01 Segir íbúa ekki hugsa hlutina til enda og treysta sérfræðingum í blindni Bæjarfulltrúi í Grindavík veltir fyrir sér hvort íbúar séu of fljótir á sér með uppkaupum húsnæðis og flótta úr bænum. Hann telur íbúa og bæjarstjórn vera áhorfendur að því sem sé að gerast og hlusti á sérfræðinga í blindni án þess að hugsa hlutina til enda. Innlent 1.4.2024 18:15 „Við erum með tvo trukka og þeir fara mjög hægt yfir“ Slökkvilið í Grindavík berst enn við gróðurelda við gosstöðvarnar við Sundhnjúkagíga. Slökkviliðsstjórinn segir svæðið afar torfærið og að slökkviliðstrukkar fari hægt yfir svæðið. Innlent 1.4.2024 13:42 Telja að eldgosinu sé líklega að ljúka Gervitunglamyndir frá NASA og ESA benda til þess að kvikustreymi í eldgosinu við Sundhnúk hafi dregist saman um allt að helming síðasta sólarhringinn. Mögulega þýðir það að eldgosinu lýkur fljótlega. Það hófst þann 16. mars og hafði því staðið í tvær vikur í gær. Innlent 31.3.2024 15:49 „Það er nóg búið að leggja á okkur fyrir“ Byggingatæknifræðingur úr Grindavík segir farir sínar ekki sléttar af samskiptum við Náttúruhamfaratryggingu Íslands. Hann segir tjónaskoðun ófullnægjandi og kallar eftir breytingum. Innlent 31.3.2024 13:59 Slokknað í syðsta og minnsta gígnum en enn mikil virkni Útlit er fyrir að slokknað sé í syðsta gígnum í eldgosinu við Sundhnúksgígaröðina. Það er sá minnsti. Góð og mikil virkni er þó í hinum tveimur gígunum og sérstaklega í öðrum þeirra, sem er stærstur. Innlent 31.3.2024 09:50 Skipulagssaga, slæleg vinnubrögð við tjónamat og risavaxin verkefni í orkumálum Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er í beinni útsendingu á Bylgjunni og á Vísi frá klukkan tíu til tólf alla sunnudaga. Í þættinum fær Kristján Kristjánsson til sín góða gesti og fer yfir þau málefni sem eru efst á baugi í samfélaginu hverju sinni. Innlent 31.3.2024 09:45 Sennilega þeir einu sem vilja rigningu um páskana Eldgosið norðan Grindavíkur mallar enn eins og það hefur gert síðustu daga. Mikill þurrkur er á svæðinu svo kviknað hefur í gróðri á gosstöðvunum. Slökkviliðsmenn í Grindavík eru sennilega í minnihluta fólks sem vill að það rigni um páskana. Innlent 30.3.2024 22:52 „Reynum allt til að missa þetta ekki í sömu stærð“ Slökkvilið Grindavíkur gerir nú hvað það getur til að koma í veg fyrir að gróðureldar við gosstöðvarnar á Reykjanesskaga breiði úr sér og verði jafn stórir og þeir urðu í gosinu í júlí á síðasta ári. Hjálpin kemur víða að. Innlent 29.3.2024 14:27 Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Grindavík 91-90 | Von um úrslitakeppni lifir enn í Garðabæ Stjarnan vann Grindavík í háspennuleik í næstsíðustu umferð Subway-deildar karla í körfubolta. Sigur Stjörnunnar þýðir að Garðbæingar eiga enn möguleika á að komast í úrslitakeppnina. Grindavík hafði fyrir leikinn unnið tíu leiki í röð. Körfubolti 28.3.2024 17:16 Grindvíkingar leggja niður yngri flokka Knattspyrnudeild Grindavíkur sendi frá sér yfirlýsingu síðdegis þar sem greint er frá því að ekki verði unnt að starfrækja starf yngri flokka hjá félaginu í ljósi stöðunnar í bænum. Íslenski boltinn 27.3.2024 17:05 546 Grindvíkingar vilja selja Þórkötlu húsið sitt Alls hafa 546 Grindvíkingar óskað eftir því að selja Fasteignafélaginu Þórkötlu ehf. íbúðarhúsnæði sitt. Þrátt fyrir mikinn fjölda umsókna stefnir félagið enn að því að hefja kaupin í byrjun apríl. Innlent 27.3.2024 15:04 Stálu áli í Grindavík en gómaðir af lögreglu Óprúttnir aðilar gerðu tilraun til að stela brotajárni og áli frá Vélsmiðju Grindavíkur í gærkvöldi. Ómar Davíð Ólafsson, eigandi Vélsmiðjunnar, segir að lögreglan hafi nappað þjófana þegar þeir voru komnir með tvö kör af áli inn í bílinn hjá sér. Innlent 27.3.2024 14:19 Útlit fyrir að gasmengun berist til vesturs og suðvesturs Enn er hætta á gasmengun og er útlit fyrir að mengunin berist til vesturs og suðvesturs í dag, meðal annars yfir Svartsengi, Hafnir og Grindavík. Huga þarf að loftgæðum. Virkni eldgossins er enn stöðug og hefur verið þar frá mánudegi. Enn mælist landris en það er hægara en áður. Innlent 27.3.2024 14:07 Skrapp til Grindavíkur og uppgötvaði stórtækan þjófnað Járnmottum sem voru í Grindavík og í eigu byggingafyrirtækisins Bláhæðar hefur verið stolið. Innlent 27.3.2024 11:21 « ‹ 7 8 9 10 11 12 13 14 15 … 72 ›
Gígbarmurinn brostinn og hraun rennur í norðurátt Barmur eina gígsins sem enn gýs úr milli Hagafells og Stóra-Skógfells virðist hafa brostið norðanmegin í kvöld. Innlent 7.4.2024 23:42
Hraunfossinn í nærmynd Hraunfoss rennur nú yfir gígbarminn í eina gígnum sem enn lifir í eldgosinu við Sundhnúka. Björn Steinbekk flaug dróna yfir gosið fyrr í dag og fangaði sjónarspilið í nærmynd. Innlent 7.4.2024 22:44
Hraun flæðir úr gígnum við Sundhnúka Mikið yfirfall er nú úr gígnum við Sundhnúka og tilkomumikið sjónarspil sést á vefmyndavélum. Innlent 7.4.2024 16:27
Tímaspursmál hvenær hraun fari að renna til norðurs Aðeins gýs í einum gíg við Sundhnúka. Fjarað hefur út í syðri og smærri gígnum. Sá sem enn gýs í hækkar jafnt og þétt og gnæfir um 25 metra yfir hraunbreiðunni. Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands segir það vera tímaspursmál hvenær hraun fer að renna til norðurs. Innlent 6.4.2024 10:46
Gagnrýna bæjarstjórn fyrir samráðsleysi og vilja fjölbreyttari úrræði Fyrirtæki í Grindavík kalla eftir mun fjölbreyttari úrræðum vegna stöðunnar í bænum. Algjör óvissa sé um hvort og hvenær íbúar geti snúið til baka og því ljóst að hluti fyrirtækja muni þurfa að hætta starfsemi í bænum. Bæjarstjórn er gagnrýnd fyrir samráðsleysi. Innlent 5.4.2024 20:01
Opna Bláa lónið þrátt fyrir hættu á gasmengun Bláa lónið opnar dyr sínar á ný á hádegi á morgun. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir ákvörðunin alfarið forsvarsmanna fyrirtækisins. Áfram sé hætta á gasmengun á svæðinu. Innlent 5.4.2024 14:50
„Takk Þórkatla fyrir ekki neitt“ Soffía Snædís Sveinsdóttir er fyrrverandi íbúi í Grindavík er ósátt hvernig gengur að gera upp við eigendur húsnæðis í Grindavík - hún vandar Þórkötlu ekki kveðjurnar. Innlent 5.4.2024 10:32
Þórkatla heldur Grindvíkingum í heljargreipum Í dag eru fjórar vikur liðnar frá því að opnað var fyrir umsóknir um uppkaup eigna Grindvíkinga. Frumvarpið er auðvitað ekki gallalaust og margir sitja eftir með sárt ennið og tapa öllu sínu. Enginn græðir á þessari sölu og fæstir fá til baka þær fjárfestingar sem settar hafa verið í heimilin. Skoðun 5.4.2024 09:35
Svona lítur úrslitakeppni Subway deildar karla út Lokaumferð deildarkeppni Subway deildar karla í körfubolta fór fram í kvöld og nú er orðið ljóst hvaða lið mætast í úrslitakeppni deildarinnar. Það eru Valsmenn sem standa uppi sem deildarmeistarar þetta tímabilið. Haldið ykkur fast, skemmtilegasti hluti tímabilsins er framundan. Körfubolti 4.4.2024 22:00
Af neyðarstigi á hættustig vegna eldgossins Ríkislögreglustjóri, í samráði við Lögreglustjórann á Suðurnesjum, hefur ákveðið að fara af neyðarstigi niður á hættustig Almannavarna vegna eldgossins á Reykjanesskaga. Innlent 3.4.2024 21:40
Ekkert ferðamannagos Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir að ferðamönnum verði ekki hleypt að gosstöðvunum við Sundhnúk á næstunni. Nokkur áhugi er meðal ferðamanna að komast að gosinu. Þeir hafa bókað til þess þyrluferðir og verið snúið við þegar þeir hafa reynt að komast inn á lokað svæði. Innlent 3.4.2024 21:31
Eldgosið í beinni Enn er kraftur í eldgosinu á Reykjanesskaga milli Hagafells og Stóra-Skógfells. Dregið hefur úr virkninni en þetta gos hefur þó staðið lengur en þrjú síðustu gos á undan. Innlent 3.4.2024 13:15
Otti Rafn segir af sér formennsku í Landsbjörg Otti Rafn Sigmarsson hefur tilkynnt að hann hyggist segja formlega af sér sem formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Það gerði hann á stjórnarfundi Landsbjargar í kvöld. Innlent 2.4.2024 21:50
„Upp með hökuna og áfram gakk“ Skipstjóri fyrsta frystitogarans sem landaði í Grindavík í morgun í fyrsta sinn í fimm mánuði segir blendnar tilfinningar fylgja tímamótunum. Hann fékk ryk í augun þegar skipið sigldi að landi. Útgerðarstjóri segir tilfinninguna gríðarlega góða og gleðilegt að líf sé að færast í bæinn. Innlent 2.4.2024 21:13
Mögulega komið á jafnvægi undir Svartsengi Mögulega er komið á jafnvægi í aðstreymi kviku inn undir Svartsengi og upp úr gígum eldgossins. Þetta gætu jarðefnafræðimælingar staðfest á næstunni. Landris í Svartsengi hefur ekki mælst síðustu daga sem bendir einkum til þess að kvikan safnist síður fyrir í kvikuhólfinu undir Svartsengi en flæði frekar beint út um gosopin. Innlent 2.4.2024 13:26
Virkni enn stöðug og fátt bendir til gosloka Virkni eldgossins við Sundhnúk er enn nokkuð stöðug og segir náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands engin merki um að gosinu sé að ljúka þó slokknað hafi í einum af gígunum þremur. Fréttir 2.4.2024 12:01
Segir íbúa ekki hugsa hlutina til enda og treysta sérfræðingum í blindni Bæjarfulltrúi í Grindavík veltir fyrir sér hvort íbúar séu of fljótir á sér með uppkaupum húsnæðis og flótta úr bænum. Hann telur íbúa og bæjarstjórn vera áhorfendur að því sem sé að gerast og hlusti á sérfræðinga í blindni án þess að hugsa hlutina til enda. Innlent 1.4.2024 18:15
„Við erum með tvo trukka og þeir fara mjög hægt yfir“ Slökkvilið í Grindavík berst enn við gróðurelda við gosstöðvarnar við Sundhnjúkagíga. Slökkviliðsstjórinn segir svæðið afar torfærið og að slökkviliðstrukkar fari hægt yfir svæðið. Innlent 1.4.2024 13:42
Telja að eldgosinu sé líklega að ljúka Gervitunglamyndir frá NASA og ESA benda til þess að kvikustreymi í eldgosinu við Sundhnúk hafi dregist saman um allt að helming síðasta sólarhringinn. Mögulega þýðir það að eldgosinu lýkur fljótlega. Það hófst þann 16. mars og hafði því staðið í tvær vikur í gær. Innlent 31.3.2024 15:49
„Það er nóg búið að leggja á okkur fyrir“ Byggingatæknifræðingur úr Grindavík segir farir sínar ekki sléttar af samskiptum við Náttúruhamfaratryggingu Íslands. Hann segir tjónaskoðun ófullnægjandi og kallar eftir breytingum. Innlent 31.3.2024 13:59
Slokknað í syðsta og minnsta gígnum en enn mikil virkni Útlit er fyrir að slokknað sé í syðsta gígnum í eldgosinu við Sundhnúksgígaröðina. Það er sá minnsti. Góð og mikil virkni er þó í hinum tveimur gígunum og sérstaklega í öðrum þeirra, sem er stærstur. Innlent 31.3.2024 09:50
Skipulagssaga, slæleg vinnubrögð við tjónamat og risavaxin verkefni í orkumálum Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er í beinni útsendingu á Bylgjunni og á Vísi frá klukkan tíu til tólf alla sunnudaga. Í þættinum fær Kristján Kristjánsson til sín góða gesti og fer yfir þau málefni sem eru efst á baugi í samfélaginu hverju sinni. Innlent 31.3.2024 09:45
Sennilega þeir einu sem vilja rigningu um páskana Eldgosið norðan Grindavíkur mallar enn eins og það hefur gert síðustu daga. Mikill þurrkur er á svæðinu svo kviknað hefur í gróðri á gosstöðvunum. Slökkviliðsmenn í Grindavík eru sennilega í minnihluta fólks sem vill að það rigni um páskana. Innlent 30.3.2024 22:52
„Reynum allt til að missa þetta ekki í sömu stærð“ Slökkvilið Grindavíkur gerir nú hvað það getur til að koma í veg fyrir að gróðureldar við gosstöðvarnar á Reykjanesskaga breiði úr sér og verði jafn stórir og þeir urðu í gosinu í júlí á síðasta ári. Hjálpin kemur víða að. Innlent 29.3.2024 14:27
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Grindavík 91-90 | Von um úrslitakeppni lifir enn í Garðabæ Stjarnan vann Grindavík í háspennuleik í næstsíðustu umferð Subway-deildar karla í körfubolta. Sigur Stjörnunnar þýðir að Garðbæingar eiga enn möguleika á að komast í úrslitakeppnina. Grindavík hafði fyrir leikinn unnið tíu leiki í röð. Körfubolti 28.3.2024 17:16
Grindvíkingar leggja niður yngri flokka Knattspyrnudeild Grindavíkur sendi frá sér yfirlýsingu síðdegis þar sem greint er frá því að ekki verði unnt að starfrækja starf yngri flokka hjá félaginu í ljósi stöðunnar í bænum. Íslenski boltinn 27.3.2024 17:05
546 Grindvíkingar vilja selja Þórkötlu húsið sitt Alls hafa 546 Grindvíkingar óskað eftir því að selja Fasteignafélaginu Þórkötlu ehf. íbúðarhúsnæði sitt. Þrátt fyrir mikinn fjölda umsókna stefnir félagið enn að því að hefja kaupin í byrjun apríl. Innlent 27.3.2024 15:04
Stálu áli í Grindavík en gómaðir af lögreglu Óprúttnir aðilar gerðu tilraun til að stela brotajárni og áli frá Vélsmiðju Grindavíkur í gærkvöldi. Ómar Davíð Ólafsson, eigandi Vélsmiðjunnar, segir að lögreglan hafi nappað þjófana þegar þeir voru komnir með tvö kör af áli inn í bílinn hjá sér. Innlent 27.3.2024 14:19
Útlit fyrir að gasmengun berist til vesturs og suðvesturs Enn er hætta á gasmengun og er útlit fyrir að mengunin berist til vesturs og suðvesturs í dag, meðal annars yfir Svartsengi, Hafnir og Grindavík. Huga þarf að loftgæðum. Virkni eldgossins er enn stöðug og hefur verið þar frá mánudegi. Enn mælist landris en það er hægara en áður. Innlent 27.3.2024 14:07
Skrapp til Grindavíkur og uppgötvaði stórtækan þjófnað Járnmottum sem voru í Grindavík og í eigu byggingafyrirtækisins Bláhæðar hefur verið stolið. Innlent 27.3.2024 11:21