Lífeyrissjóðir LIVE fjárfesti fyrir 1,5 milljarð í First Water og fer með sex prósenta hlut Lífeyrissjóður verslunarmanna fjárfesti fyrir 1,5 milljarða króna með beinum hætti í landeldinu First Water þegar fiskeldið kláraði stórt hlutfjárútboð í fyrra og var þá verðmetið á liðlega 25 milljarða. Stjórnarformaður sjóðsins, næst stærsti lífeyrissjóður landsins, kallar eftir því að settur verði aukinn kraft í greiningu vænlegra innviðafjárfestinga svo hægt sé að virkja sem fyrst tækifærin sem bíða á því sviði. Innherji 22.3.2024 15:55 Telja að tekjurnar fari í um 50 milljarða og verði umfram spár greinenda Samkvæmt afkomuáætlun sem stjórnendur Alvotech hafa gefið út er ráðgert að heildartekjur líftæknilyfjafélagsins geti á þessu ári orðið um 400 milljónir Bandaríkjadala, um fjórfalt meira en í fyrra, og mögulega tvöfaldast árið eftir. Þær áætlanir gætu tekið talsverðum breytingum á næstunni þegar Alvotech klárar sölusamninga í Bandaríkjunum en hin nýja tekju- og afkomuspá, sem markaðsaðilar hafa beðið eftir, er engu að síður nokkuð yfir væntingum greinenda. Innherji 21.3.2024 10:53 Gagnrýnir séríslenskt kerfi þar sem lífeyrissjóðum er leyft að móta veruleikann Hjörleifur Pálsson, sem hefur setið í stjórnum fjölmargra fyrirtækja í Kauphöllinni um árabil, fer hörðum orðum um þá þróun sem hefur orðið ofan á með tilnefningarnefndir og telur að þar hafi forsvarsmenn skráðra félaga „almennt sofið fljótandi að feigðarósi.“ Ekki sé hægt að aftengja stjórnir og hluthafa starfi nefndanna, eins og er að gerast, en þannig er búið að eftirláta völdin öllum öðrum en þeim sem hafa reynslu af rekstri og stjórnun skráðra félaga. Innherji 17.3.2024 11:23 Lífeyrissjóðir opinberra starfsmanna studdu ekki kaupréttarkerfi Regins Tvær stærstu hluthafar Regins, lífeyrissjóðirnir LSR og Brú, greiddu ekki atkvæði með tillögu stjórnar fasteignafélagsins um innleiðingu á kaupréttarkerfi fyrir lykilstjórnendur sem var kynnt fjárfestum í aðdraganda aðalfundar fyrr í vikunni. Ekki náðist nægjanlegur meirihlutastuðningur fyrir tillögunni eftir að lífeyrissjóðurinn Gildi bókaði andstöðu við kaupréttarsamningana og taldi rétt að hluthafar myndu taka afstöðu til helstu skilmála þegar slík kerfi væru tekin upp. Innherji 15.3.2024 10:19 Unnið með bönkunum í erlendri fjármögnun að hafa tekið yfir íbúðalánin Efnahagsreikningur og rekstur viðskiptabankanna hefur tekið stakkaskiptum frá 2019, þegar þeir voru í raun bara „fyrirtækjabankar“ að sögn seðlabankastjóra, og viðskiptalíkanið er orðið mun sterkara eftir að bankarnir tóku nánast yfir íbúðalán heimilanna sem hefur unnið með þeim í erlendri markaðsfjármögnun. Hann segir að hagræðið sem hafi náðst með þeirri breytingu sé komin til vera og öll rök hnígi að því að lífeyrissjóðir einblíni á að kaupa sértryggð bankanna fremur en að standa sjálfur í beinum lánveitingum. Innherji 14.3.2024 12:10 Tillaga um kaupréttarkerfi fékkst ekki samþykkt eftir andstöðu frá Gildi Áform stjórnar Regins um innleiðingu á kaupréttarkerfi fyrir lykilstjórnendur hlaut ekki samþykki nægjanlega mikils meirihluta hluthafa á aðalfundi fasteignafélagsins sem lauk fyrr í dag. Lífeyrissjóðurinn Gildi, fimmti stærsti hluthafi félagsins, hafði lagt fram bókun í aðdraganda fundarins og lagst gegn tillögu stjórnarinnar. Innherji 12.3.2024 21:31 Ekki vera Vilhjálmur! Á dögunum birti Vilhjálmur Bjarnason fyrrv. þingmaður, grein í Morgunblaðinu um lífeyrissjóði og eftirlaunakjör og var þar margt áhugavert frá greinarhöfundi en annað því miður ekki alveg rétt. Skoðun 11.3.2024 16:01 Nálgast erlenda markaði af meiri varkárni en snörp leiðrétting ekki í kortunum Hlutabréfavísitölur beggja vegna Atlantsála eru í hæstum hæðum um þessar mundir og forsvarsmenn sumra íslenskra lífeyrissjóða segjast því nálgast erlenda hlutabréfamarkaði af meiri varkárni en áður. Aðrir eru hins vegar hóflega bjartsýnir um ávöxtunarhorfur til næstu ára og sjá að „óbreyttu ekki skýr teikn á lofti um snarpa leiðréttingu“ á mörkuðum, að mati eins sjóðstjóra. Innherji 11.3.2024 13:45 Lífeyrissjóðir fái eignir Heimstaden á 15 milljarða afslætti Sjóður í eigu nokkurra lífeyrissjóða í stýringu Stefnis er sagður munu greiða 61 milljarð króna fyrir allt hlutafé í leigufélaginu Heimstaden. Fasteignamat eigna Heimstaden er tæpir 76 milljarðar króna. Viðskipti innlent 10.3.2024 13:00 LSR setti öll sín atkvæði á Guðjón í stjórnarkjörinu hjá Festi Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, stærsti hluthafinn í Festi, greiddi fráfarandi forstjóra Reita öll atkvæði sín í stjórnarkjöri smásölurisans á hitafundi sem fór fram í morgun. Djúpstæð gjá hefur myndast milli stærstu einkafjárfestanna í hluthafahópi Festar og sumra lífeyrissjóða, sem beittu sér gegn því að fulltrúi þeirra færi í stjórn, en hlutabréfaverð félagsins féll um þrjú prósent í dag og hefur ekki verið lægra á þessu ári. Innherji 6.3.2024 20:20 Lífeyrissjóðir vilja að rýmkaðar heimildir eigi við um allar óskráðar eignir Landssamtök lífeyrissjóða kalla eftir því að heimildir til þess að fjárfesta í óskráðum eignum verði rýmkaðar. Fjármála- og efnahagsráðherra er með frumvarp til umsagnar um að lífeyrissjóðir fái auknar heimildir til að fjárfesta í óskráðum fasteignafélögum á íbúðamarkaði en sjóðirnir vilja auka heimildina án tillits til kjarnareksturs. Innherji 4.3.2024 13:50 Ný nálgun á húsnæðismál Húsnæði fyrir alla. Hver hefur ekki heyrt þessa setningu hljóma? Hugsunin er falleg enda er húsnæði mannréttindamál. Hver einstaklingur á rétt á að hafa þak yfir höfuðið. Skoðun 2.3.2024 15:00 Tæplega sjötíu prósent íslenskra fanga hafa aldrei greitt í stéttarfélag eða lífeyrissjóð Tæplega sjötíu prósent íslenskra fanga hafa aldrei greitt í stéttarfélag eða lífeyrissjóð og fæstir þeirra sem ljúka afplánun taka virkan þátt á vinnumarkaði. Þetta eru helstu niðurstöður úr könnun sem Afstaða, félag fanga og annarra áhugamanna um bætt fangelsismál og betrun, gerði í íslenskum fangelsum. Skoðun 28.2.2024 07:01 Guðjón og Gylfi ætla að berjast um sæti í stjórn Festi Guðjón Auðunsson, fráfarandi forstjóri Reita fasteignafélags, og Gylfi Ólafsson, fyrrum forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, hafa boðið sig fram til stjórnar hjá Festi. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Viðskipti innlent 26.2.2024 17:07 Evrópskir fjárfestar og lífeyrissjóðir koma að kaupum á 23 milljarða hlut í Alvotech Tveimur dögum eftir að Alvotech fékk formlegt samþykki um markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir sín stærstu lyf hefur íslenska líftæknilyfjafyrirtækið gengið frá sölu á bréfum í félaginu fyrir tæplega 23 milljarða, meðal annars til evrópskra fjárfesta. Fjármunirnir verða nýttir að hluta til að styrkja framleiðslugetuna en hlutabréfaverð Alvotech hefur rokið upp í viðskiptum í Kauphöllinni í morgun. Innherji 26.2.2024 11:07 Stórir hluthafar mótfallnir eða hugsi yfir framboði Þórðar Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, stærsti hluthafinn í Festi sem er móðurfélag Krónunnar, N1 og Elko, leggst gegn því að Þórður Már Jóhannesson verði kjörinn í stjórn félagsins á ný. Fleiri lífeyrissjóðir eru sama sinnis. Viðskipti innlent 23.2.2024 12:16 Lífeyrissjóðamálið fer beint til Hæstaréttar Hæstiréttur hefur fallist á málskotsbeiðni Lífeyrissjóðs verslunarmanna í máli sjóðsfélaga á hendur sjóðnum. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi eignafærslu milli kynslóða, með mismikilli lækkun mánaðarlegra greiðslna eftir aldri, ólögmæta og málinu var skotið beint til Hæstaréttar. Innlent 21.2.2024 18:55 Fjárfestarnir sem veðjuðu á Alvotech – og eygja von um að hagnast ævintýralega Þegar ljóst varð fyrir mánuði að samþykki fyrir markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir stærstu lyf Alvotech væri nánast í höfn áttu íslenskir lífeyrissjóðir samanlagt vel undir þriggja prósenta hlut í þessu langsamlega verðmætasta fyrirtæki í Kauphöllinni – og höfðu þá engir nýir sjóðir bæst í hluthafahópinn frá því að FDA setti félaginu stólinn fyrir dyrnar tíu mánuðum áður. Risastór veðmál sumra sjóðastýringarfélaga á Alvotech, með því að halda stöðu sinni við krefjandi markaðsaðstæður og jafnvel bæta við hana, hefur skilað sjóðum þeirra nærri hundrað prósenta ávöxtun síðustu mánuði á meðan önnur mátu áhættuna of mikla og losuðu um hlut sinn, eins og greining Innherja á umfangi innlendra fagfjárfesta sem eiga bréf í Alvotech skráð hér heima leiðir í ljós. Innherji 21.2.2024 17:34 Fara tilnefningarnefndir með atkvæðisréttinn? Núverandi fyrirkomulag á starfi tilnefningarnefnda er til þess fallið að draga úr gagnsæi. Hluthafar fá ekki að vita hverjir bjóða sig fram og þess vegna er möguleiki hluthafa á að nýta atkvæðisréttinn og velja milli margra hæfra umsækjenda ekki lengur til staðar. Ég tel einsýnt að þetta fyrirkomulag þurfi að endurskoða. Umræðan 20.2.2024 13:00 Fjármálaráðuneytið hefur áfram rangt við niðurfellingu persónuafsláttar öryrkja og ellilífeyrisþega sem eru búsettir á Norðurlöndunum Það er ótrúlega lélegur málflutningur sem Fjármálaráðuneytið hefur við í þeirri vörn sem þeir reyna að setja upp til þess að réttlæta niðurfellingu persónuafsláttar öryrkja og ellilífeyrisþega sem eru búsettir á Norðurlöndum. Vegna þess að þessi niðurfelling hefur ekki áhrif á neinn annan hóp öryrkja. Þeir öryrkja og ellilífeyrisþegar sem eru búsettir innan Evrópusambandsins en utan Norðurlandanna borga ekki neinn skatt á Íslandi samkvæmt tvísköttunarsamningum þar um. Á móti borgar þetta fólk fullan skatt í því ríki sem það á heima og nýtur þar að leiðandi persónuafsláttar í því ríki eftir þeim lögum sem þar gilda. Skoðun 18.2.2024 07:30 Hafa náð samkomulagi við lífeyrissjóðina um lán Grindvíkinga Fjármála- og efnahagsráðherra hefur ritað undir samkomulag við 12 lífeyrissjóði um stuðning ríkissjóðs vegna húsnæðislána lífeyrissjóða til einstaklinga í Grindavík. Innlent 8.2.2024 11:07 Er ekki rétt að leysa húsnæðisvandann? Húsnæðisverð hér er hærra en vera þyrfti og framboð og verð sveiflast mjög mikið með alvarlegum afleiðingum fyrir fjölmarga. Mikilvægt er að greina vandann rétt og grípa til viðeigandi ráðstafana. Skoðun 3.2.2024 14:30 LIVE fórnar ekki ávöxtun í sjóði sem starfar eftir heimsmarkmiðum SÞ Lífeyrissjóður verzlunarmanna (LIVE) fjárfesti í fyrsta skipti í áhrifafjárfestingasjóði (e. impact fund) sem vinnur að heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Sérfræðingur hjá lífeyrissjóðnum segir að sjóðurinn starfi eftir sömu markmiðum um ávöxtun og hefðbundnir framtakssjóðir. Það sé því ekki verið að gera minni kröfu um ávöxtun heldur hafi verið um áhugavert tækifæri að ræða. Sjóðurinn horfi til þess að fjárfesta vaxtarfyrirtækjum í meira mæli en hefðbundnir framtakssjóðir. Innherji 19.1.2024 13:53 Telur óvíst með samruna við JBT og mælir ekki lengur með kaupum í Marel Bandaríski stórbankinn Citi ráðleggur fjárfestum ekki lengur að bæta við sig í Marel samkvæmt nýju verðmati, heldur að halda í bréfin, og telur sennilegt að íslenskir lífeyrissjóðir verði tregir til að samþykkja mögulegt tilboð John Bean Technologies (JBT) í allt hlutafé Marel. Stjórnendur JBT hafa nú aðeins þrjá daga til stefnu til að lýsa því yfir hvort félagið hyggist gera formlegt yfirtökutilboð í Marel. Innherji 16.1.2024 11:21 Hvað með Grindvíkinga? Ráðherrarnir í ríkisstjórn Íslands verða ekki sakaðir um að leiðast það að þræta og á sama tíma eru fjölmiðlar í fullri vinnu við að fjalla um sandkassaleik þeirra. Nú bíður hluti ráðherranna eftir því (og vonar) að stjórnarandstaðan leggi fram vantrauststillögu á matvælaráðherra. Svona rær ríkisstjórnin lífróður sinn. Skoðun 10.1.2024 07:02 Framkvæmdastjóri KEA vísar gagnrýni Birtu á bug: „Virtum alla samninga“ Gagnrýni lífeyrissjóðsins Birtu varðandi sölu KEA á fimm prósenta hlut í Samkaupum kemur framkvæmdastjóra KEA á óvart og segir hann að engar kvaðir hafi verið til staðar á ráðstöfun eignarhlutarins í hluthafasamkomulagi. „Við fengum mjög gott tilboð í eignarhlut sem okkur var frjálst að selja og við virtum alla samninga,“ segir Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA. Innherji 9.1.2024 14:30 Annað álit segir að lífeyrissjóðir megi fella niður vexti Í áliti Magna lögmanna, sem unnið er fyrir Verkalýðsfélag Grindavíkur, segir að lífeyrissjóðnum Gildi sé heimilt að fella niður vexti og verðbætur sem búsettir eru í Grindavík, í takmarkaðan tíma, vegna þess ástands sem skapast hefur í bænum af völdum náttúruhamfara. Innlent 9.1.2024 13:31 Lífeyrissjóðir í ruglinu Lífeyrissjóðirnir hafa fullyrt að þeim sé óheimilt að fella niður vexti og verðbætur, tímabundið í þrjá mánuði, á húsnæðislánum Grindvíkinga. Og fylgja þannig fordæmi bankanna. Skoðun 9.1.2024 13:30 Ætlar að stórauka vægi erlendra skuldabréfa sem eru „álitlegri kostur“ en áður Einn stærsti lífeyrissjóður landsins hyggst bæta verulega við sig í erlendum skuldabréfum á árinu 2024 og telur að sá eignaflokkur sé orðin „mun meira aðlaðandi“ eftir langt tímabil af lágu vaxtastigi. Á móti áformar Lífeyrissjóður verslunarmanna að minnka vægi sitt í erlendum og innlendum hlutabréfum, samkvæmt nýrri fjárfestingastefnu sjóðsins, en hins vegar er útlit fyrir að Birta lífeyrissjóður muni auka lítillega við hlutfall sitt í hlutabréfum hérlendis frá núverandi stöðu. Innherji 9.1.2024 11:53 Fyrrverandi félagar í samfloti? Við félagar í LEB - Landssambandi eldri borgara, stjórn þess og kjaranefnd í samráði við 55 félög eldra fólks um allt land, höfum gengið frá sameiginlegri stefnu í kjaramálum og kynnt hana á fjölmörgum fundum víða um land. Umfangsmesta kynningin var á málþingi í Reykjavík núna í haust með yfirskriftinni Við bíðum... ekki lengur! sem var mjög fjölsótt og streymt til þúsunda manna um allt land. Skoðun 8.1.2024 11:30 « ‹ 1 2 3 4 5 6 7 8 … 19 ›
LIVE fjárfesti fyrir 1,5 milljarð í First Water og fer með sex prósenta hlut Lífeyrissjóður verslunarmanna fjárfesti fyrir 1,5 milljarða króna með beinum hætti í landeldinu First Water þegar fiskeldið kláraði stórt hlutfjárútboð í fyrra og var þá verðmetið á liðlega 25 milljarða. Stjórnarformaður sjóðsins, næst stærsti lífeyrissjóður landsins, kallar eftir því að settur verði aukinn kraft í greiningu vænlegra innviðafjárfestinga svo hægt sé að virkja sem fyrst tækifærin sem bíða á því sviði. Innherji 22.3.2024 15:55
Telja að tekjurnar fari í um 50 milljarða og verði umfram spár greinenda Samkvæmt afkomuáætlun sem stjórnendur Alvotech hafa gefið út er ráðgert að heildartekjur líftæknilyfjafélagsins geti á þessu ári orðið um 400 milljónir Bandaríkjadala, um fjórfalt meira en í fyrra, og mögulega tvöfaldast árið eftir. Þær áætlanir gætu tekið talsverðum breytingum á næstunni þegar Alvotech klárar sölusamninga í Bandaríkjunum en hin nýja tekju- og afkomuspá, sem markaðsaðilar hafa beðið eftir, er engu að síður nokkuð yfir væntingum greinenda. Innherji 21.3.2024 10:53
Gagnrýnir séríslenskt kerfi þar sem lífeyrissjóðum er leyft að móta veruleikann Hjörleifur Pálsson, sem hefur setið í stjórnum fjölmargra fyrirtækja í Kauphöllinni um árabil, fer hörðum orðum um þá þróun sem hefur orðið ofan á með tilnefningarnefndir og telur að þar hafi forsvarsmenn skráðra félaga „almennt sofið fljótandi að feigðarósi.“ Ekki sé hægt að aftengja stjórnir og hluthafa starfi nefndanna, eins og er að gerast, en þannig er búið að eftirláta völdin öllum öðrum en þeim sem hafa reynslu af rekstri og stjórnun skráðra félaga. Innherji 17.3.2024 11:23
Lífeyrissjóðir opinberra starfsmanna studdu ekki kaupréttarkerfi Regins Tvær stærstu hluthafar Regins, lífeyrissjóðirnir LSR og Brú, greiddu ekki atkvæði með tillögu stjórnar fasteignafélagsins um innleiðingu á kaupréttarkerfi fyrir lykilstjórnendur sem var kynnt fjárfestum í aðdraganda aðalfundar fyrr í vikunni. Ekki náðist nægjanlegur meirihlutastuðningur fyrir tillögunni eftir að lífeyrissjóðurinn Gildi bókaði andstöðu við kaupréttarsamningana og taldi rétt að hluthafar myndu taka afstöðu til helstu skilmála þegar slík kerfi væru tekin upp. Innherji 15.3.2024 10:19
Unnið með bönkunum í erlendri fjármögnun að hafa tekið yfir íbúðalánin Efnahagsreikningur og rekstur viðskiptabankanna hefur tekið stakkaskiptum frá 2019, þegar þeir voru í raun bara „fyrirtækjabankar“ að sögn seðlabankastjóra, og viðskiptalíkanið er orðið mun sterkara eftir að bankarnir tóku nánast yfir íbúðalán heimilanna sem hefur unnið með þeim í erlendri markaðsfjármögnun. Hann segir að hagræðið sem hafi náðst með þeirri breytingu sé komin til vera og öll rök hnígi að því að lífeyrissjóðir einblíni á að kaupa sértryggð bankanna fremur en að standa sjálfur í beinum lánveitingum. Innherji 14.3.2024 12:10
Tillaga um kaupréttarkerfi fékkst ekki samþykkt eftir andstöðu frá Gildi Áform stjórnar Regins um innleiðingu á kaupréttarkerfi fyrir lykilstjórnendur hlaut ekki samþykki nægjanlega mikils meirihluta hluthafa á aðalfundi fasteignafélagsins sem lauk fyrr í dag. Lífeyrissjóðurinn Gildi, fimmti stærsti hluthafi félagsins, hafði lagt fram bókun í aðdraganda fundarins og lagst gegn tillögu stjórnarinnar. Innherji 12.3.2024 21:31
Ekki vera Vilhjálmur! Á dögunum birti Vilhjálmur Bjarnason fyrrv. þingmaður, grein í Morgunblaðinu um lífeyrissjóði og eftirlaunakjör og var þar margt áhugavert frá greinarhöfundi en annað því miður ekki alveg rétt. Skoðun 11.3.2024 16:01
Nálgast erlenda markaði af meiri varkárni en snörp leiðrétting ekki í kortunum Hlutabréfavísitölur beggja vegna Atlantsála eru í hæstum hæðum um þessar mundir og forsvarsmenn sumra íslenskra lífeyrissjóða segjast því nálgast erlenda hlutabréfamarkaði af meiri varkárni en áður. Aðrir eru hins vegar hóflega bjartsýnir um ávöxtunarhorfur til næstu ára og sjá að „óbreyttu ekki skýr teikn á lofti um snarpa leiðréttingu“ á mörkuðum, að mati eins sjóðstjóra. Innherji 11.3.2024 13:45
Lífeyrissjóðir fái eignir Heimstaden á 15 milljarða afslætti Sjóður í eigu nokkurra lífeyrissjóða í stýringu Stefnis er sagður munu greiða 61 milljarð króna fyrir allt hlutafé í leigufélaginu Heimstaden. Fasteignamat eigna Heimstaden er tæpir 76 milljarðar króna. Viðskipti innlent 10.3.2024 13:00
LSR setti öll sín atkvæði á Guðjón í stjórnarkjörinu hjá Festi Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, stærsti hluthafinn í Festi, greiddi fráfarandi forstjóra Reita öll atkvæði sín í stjórnarkjöri smásölurisans á hitafundi sem fór fram í morgun. Djúpstæð gjá hefur myndast milli stærstu einkafjárfestanna í hluthafahópi Festar og sumra lífeyrissjóða, sem beittu sér gegn því að fulltrúi þeirra færi í stjórn, en hlutabréfaverð félagsins féll um þrjú prósent í dag og hefur ekki verið lægra á þessu ári. Innherji 6.3.2024 20:20
Lífeyrissjóðir vilja að rýmkaðar heimildir eigi við um allar óskráðar eignir Landssamtök lífeyrissjóða kalla eftir því að heimildir til þess að fjárfesta í óskráðum eignum verði rýmkaðar. Fjármála- og efnahagsráðherra er með frumvarp til umsagnar um að lífeyrissjóðir fái auknar heimildir til að fjárfesta í óskráðum fasteignafélögum á íbúðamarkaði en sjóðirnir vilja auka heimildina án tillits til kjarnareksturs. Innherji 4.3.2024 13:50
Ný nálgun á húsnæðismál Húsnæði fyrir alla. Hver hefur ekki heyrt þessa setningu hljóma? Hugsunin er falleg enda er húsnæði mannréttindamál. Hver einstaklingur á rétt á að hafa þak yfir höfuðið. Skoðun 2.3.2024 15:00
Tæplega sjötíu prósent íslenskra fanga hafa aldrei greitt í stéttarfélag eða lífeyrissjóð Tæplega sjötíu prósent íslenskra fanga hafa aldrei greitt í stéttarfélag eða lífeyrissjóð og fæstir þeirra sem ljúka afplánun taka virkan þátt á vinnumarkaði. Þetta eru helstu niðurstöður úr könnun sem Afstaða, félag fanga og annarra áhugamanna um bætt fangelsismál og betrun, gerði í íslenskum fangelsum. Skoðun 28.2.2024 07:01
Guðjón og Gylfi ætla að berjast um sæti í stjórn Festi Guðjón Auðunsson, fráfarandi forstjóri Reita fasteignafélags, og Gylfi Ólafsson, fyrrum forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða, hafa boðið sig fram til stjórnar hjá Festi. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Viðskipti innlent 26.2.2024 17:07
Evrópskir fjárfestar og lífeyrissjóðir koma að kaupum á 23 milljarða hlut í Alvotech Tveimur dögum eftir að Alvotech fékk formlegt samþykki um markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir sín stærstu lyf hefur íslenska líftæknilyfjafyrirtækið gengið frá sölu á bréfum í félaginu fyrir tæplega 23 milljarða, meðal annars til evrópskra fjárfesta. Fjármunirnir verða nýttir að hluta til að styrkja framleiðslugetuna en hlutabréfaverð Alvotech hefur rokið upp í viðskiptum í Kauphöllinni í morgun. Innherji 26.2.2024 11:07
Stórir hluthafar mótfallnir eða hugsi yfir framboði Þórðar Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, stærsti hluthafinn í Festi sem er móðurfélag Krónunnar, N1 og Elko, leggst gegn því að Þórður Már Jóhannesson verði kjörinn í stjórn félagsins á ný. Fleiri lífeyrissjóðir eru sama sinnis. Viðskipti innlent 23.2.2024 12:16
Lífeyrissjóðamálið fer beint til Hæstaréttar Hæstiréttur hefur fallist á málskotsbeiðni Lífeyrissjóðs verslunarmanna í máli sjóðsfélaga á hendur sjóðnum. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi eignafærslu milli kynslóða, með mismikilli lækkun mánaðarlegra greiðslna eftir aldri, ólögmæta og málinu var skotið beint til Hæstaréttar. Innlent 21.2.2024 18:55
Fjárfestarnir sem veðjuðu á Alvotech – og eygja von um að hagnast ævintýralega Þegar ljóst varð fyrir mánuði að samþykki fyrir markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir stærstu lyf Alvotech væri nánast í höfn áttu íslenskir lífeyrissjóðir samanlagt vel undir þriggja prósenta hlut í þessu langsamlega verðmætasta fyrirtæki í Kauphöllinni – og höfðu þá engir nýir sjóðir bæst í hluthafahópinn frá því að FDA setti félaginu stólinn fyrir dyrnar tíu mánuðum áður. Risastór veðmál sumra sjóðastýringarfélaga á Alvotech, með því að halda stöðu sinni við krefjandi markaðsaðstæður og jafnvel bæta við hana, hefur skilað sjóðum þeirra nærri hundrað prósenta ávöxtun síðustu mánuði á meðan önnur mátu áhættuna of mikla og losuðu um hlut sinn, eins og greining Innherja á umfangi innlendra fagfjárfesta sem eiga bréf í Alvotech skráð hér heima leiðir í ljós. Innherji 21.2.2024 17:34
Fara tilnefningarnefndir með atkvæðisréttinn? Núverandi fyrirkomulag á starfi tilnefningarnefnda er til þess fallið að draga úr gagnsæi. Hluthafar fá ekki að vita hverjir bjóða sig fram og þess vegna er möguleiki hluthafa á að nýta atkvæðisréttinn og velja milli margra hæfra umsækjenda ekki lengur til staðar. Ég tel einsýnt að þetta fyrirkomulag þurfi að endurskoða. Umræðan 20.2.2024 13:00
Fjármálaráðuneytið hefur áfram rangt við niðurfellingu persónuafsláttar öryrkja og ellilífeyrisþega sem eru búsettir á Norðurlöndunum Það er ótrúlega lélegur málflutningur sem Fjármálaráðuneytið hefur við í þeirri vörn sem þeir reyna að setja upp til þess að réttlæta niðurfellingu persónuafsláttar öryrkja og ellilífeyrisþega sem eru búsettir á Norðurlöndum. Vegna þess að þessi niðurfelling hefur ekki áhrif á neinn annan hóp öryrkja. Þeir öryrkja og ellilífeyrisþegar sem eru búsettir innan Evrópusambandsins en utan Norðurlandanna borga ekki neinn skatt á Íslandi samkvæmt tvísköttunarsamningum þar um. Á móti borgar þetta fólk fullan skatt í því ríki sem það á heima og nýtur þar að leiðandi persónuafsláttar í því ríki eftir þeim lögum sem þar gilda. Skoðun 18.2.2024 07:30
Hafa náð samkomulagi við lífeyrissjóðina um lán Grindvíkinga Fjármála- og efnahagsráðherra hefur ritað undir samkomulag við 12 lífeyrissjóði um stuðning ríkissjóðs vegna húsnæðislána lífeyrissjóða til einstaklinga í Grindavík. Innlent 8.2.2024 11:07
Er ekki rétt að leysa húsnæðisvandann? Húsnæðisverð hér er hærra en vera þyrfti og framboð og verð sveiflast mjög mikið með alvarlegum afleiðingum fyrir fjölmarga. Mikilvægt er að greina vandann rétt og grípa til viðeigandi ráðstafana. Skoðun 3.2.2024 14:30
LIVE fórnar ekki ávöxtun í sjóði sem starfar eftir heimsmarkmiðum SÞ Lífeyrissjóður verzlunarmanna (LIVE) fjárfesti í fyrsta skipti í áhrifafjárfestingasjóði (e. impact fund) sem vinnur að heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Sérfræðingur hjá lífeyrissjóðnum segir að sjóðurinn starfi eftir sömu markmiðum um ávöxtun og hefðbundnir framtakssjóðir. Það sé því ekki verið að gera minni kröfu um ávöxtun heldur hafi verið um áhugavert tækifæri að ræða. Sjóðurinn horfi til þess að fjárfesta vaxtarfyrirtækjum í meira mæli en hefðbundnir framtakssjóðir. Innherji 19.1.2024 13:53
Telur óvíst með samruna við JBT og mælir ekki lengur með kaupum í Marel Bandaríski stórbankinn Citi ráðleggur fjárfestum ekki lengur að bæta við sig í Marel samkvæmt nýju verðmati, heldur að halda í bréfin, og telur sennilegt að íslenskir lífeyrissjóðir verði tregir til að samþykkja mögulegt tilboð John Bean Technologies (JBT) í allt hlutafé Marel. Stjórnendur JBT hafa nú aðeins þrjá daga til stefnu til að lýsa því yfir hvort félagið hyggist gera formlegt yfirtökutilboð í Marel. Innherji 16.1.2024 11:21
Hvað með Grindvíkinga? Ráðherrarnir í ríkisstjórn Íslands verða ekki sakaðir um að leiðast það að þræta og á sama tíma eru fjölmiðlar í fullri vinnu við að fjalla um sandkassaleik þeirra. Nú bíður hluti ráðherranna eftir því (og vonar) að stjórnarandstaðan leggi fram vantrauststillögu á matvælaráðherra. Svona rær ríkisstjórnin lífróður sinn. Skoðun 10.1.2024 07:02
Framkvæmdastjóri KEA vísar gagnrýni Birtu á bug: „Virtum alla samninga“ Gagnrýni lífeyrissjóðsins Birtu varðandi sölu KEA á fimm prósenta hlut í Samkaupum kemur framkvæmdastjóra KEA á óvart og segir hann að engar kvaðir hafi verið til staðar á ráðstöfun eignarhlutarins í hluthafasamkomulagi. „Við fengum mjög gott tilboð í eignarhlut sem okkur var frjálst að selja og við virtum alla samninga,“ segir Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA. Innherji 9.1.2024 14:30
Annað álit segir að lífeyrissjóðir megi fella niður vexti Í áliti Magna lögmanna, sem unnið er fyrir Verkalýðsfélag Grindavíkur, segir að lífeyrissjóðnum Gildi sé heimilt að fella niður vexti og verðbætur sem búsettir eru í Grindavík, í takmarkaðan tíma, vegna þess ástands sem skapast hefur í bænum af völdum náttúruhamfara. Innlent 9.1.2024 13:31
Lífeyrissjóðir í ruglinu Lífeyrissjóðirnir hafa fullyrt að þeim sé óheimilt að fella niður vexti og verðbætur, tímabundið í þrjá mánuði, á húsnæðislánum Grindvíkinga. Og fylgja þannig fordæmi bankanna. Skoðun 9.1.2024 13:30
Ætlar að stórauka vægi erlendra skuldabréfa sem eru „álitlegri kostur“ en áður Einn stærsti lífeyrissjóður landsins hyggst bæta verulega við sig í erlendum skuldabréfum á árinu 2024 og telur að sá eignaflokkur sé orðin „mun meira aðlaðandi“ eftir langt tímabil af lágu vaxtastigi. Á móti áformar Lífeyrissjóður verslunarmanna að minnka vægi sitt í erlendum og innlendum hlutabréfum, samkvæmt nýrri fjárfestingastefnu sjóðsins, en hins vegar er útlit fyrir að Birta lífeyrissjóður muni auka lítillega við hlutfall sitt í hlutabréfum hérlendis frá núverandi stöðu. Innherji 9.1.2024 11:53
Fyrrverandi félagar í samfloti? Við félagar í LEB - Landssambandi eldri borgara, stjórn þess og kjaranefnd í samráði við 55 félög eldra fólks um allt land, höfum gengið frá sameiginlegri stefnu í kjaramálum og kynnt hana á fjölmörgum fundum víða um land. Umfangsmesta kynningin var á málþingi í Reykjavík núna í haust með yfirskriftinni Við bíðum... ekki lengur! sem var mjög fjölsótt og streymt til þúsunda manna um allt land. Skoðun 8.1.2024 11:30