Kjaramál Sjúkraliðar samþykkja samning Sjúkraliðar sem starfa á Hjúkrunarheimilunum Eir og Skjóli í Reykjavík hafa samþykkt kjarasamning. Samningurinn var undirritaður á fimmtudag í síðustu viku en samþykktur í atkvæðagreiðslu í dag. Innlent 1.12.2005 17:09 Samið fyrir blaða- og fréttamenn Samningur Blaðamannafélags Íslands við samtök atvinnulífsins voru undirritaðir á sjöunda tímanum í kvöld. Samningurinn nær til fréttamanna og ljósmyndara á öllum helstu fjölmiðlum landsins utan Ríkisútvarpsins. Innlent 29.11.2005 18:52 Ósáttir við frumvarp um starfsmannaleigur Stjórnarandstæðingar fögnuðu frumvarpi félagsmálaráðherra um starfsmannaleigur á Alþingi, sem mælt var fyrir í dag, en töldu ekki nægilega langt gengið. Formaður vinstri - grænna sagðist ennfremur ekki sannfærður um að íslenska þjóðin þyrfti yfirhöfuð að sætta sig við slíkt fyrirbæri á íslenskum vinnumarkaði. Innlent 28.11.2005 21:28 Sjúkraliðar kjósa um verkfall Sjúkraliðar sem starfa hjá sveitarfélögunum munu greiða atkvæði um hvort hefja eigi verkfall til að knýja á um nýjan kjarasamning. Fyrri samningur rann út fyrir tæpu ári og hefur ekki enn samist. Fyrst var beðið eftir að gengið yrði frá samningi við ríkið en því lauk júní. Innlent 24.11.2005 10:38 Lögregla rannsakar fyrirtæki á Akranesi Verkalýðsfélag Akraness hefur óskað eftir lögreglurannsókn á starfsemi fyrirtækis sem er með litháíska starfsmenn í vinnu hjá sér. Innlent 22.11.2005 06:41 Allir komnir með atvinnuleyfi Allir pólsku verkamennirnir sem komu til starfa á Akranesi og í nágrenni á vegum starfsmannaleigunnar 2B eru komnir með atvinnuleyfi og ráðningarsamning við þau fyrirtæki sem þeir starfa hjá. Innlent 21.11.2005 06:21 Segja mismunun felast í eingreiðslu Sambandsstjórnarfundur Samiðnar lýsir yfir megnustu óánægju sinni með samkomulag forsendunefndar ASÍ og SA um útdeilingu á sérstakri eingreiðslu. Þetta kemur fram í ályktun sem Samiðn hefur sent frá sér. Fundarmenn telja að sú mismunun sem í eingreiðslunni felist vera einsdæmi í sögu íslenskrar verkalýðshreyfingar. Innlent 18.11.2005 16:53 Ekki allir ASÍ félagar fá eingreiðslu í desember Þeir ASÍ félagar sem skipt hafa um vinnu á árinu fá aðeins hluta af tuttugu og sex þúsund króna eingreiðslu sem kveður á um í samkomulagi ASÍ og Samtaka atvinnulífsins. Hagfræðingur ASÍ segir að í samkomulaginu felist hlutir sem til framtíðar séð geti gefið félagsmönnum mikið. Innlent 17.11.2005 23:39 Öryrkjar skora á stjórnvöld að standa við orð sín Öryrkjabandalag Íslands lýsir yfir ánægju sinni með samkomulag aðila vinnumarkaðarins við ríkisstjórn Íslands en minnir á sama tíma á að ríkisstjórnin hafi ekki enn efnt samkomulag við Öryrkjabandalagið. Innlent 16.11.2005 22:19 Stöðugleiki tryggður segir Halldór Að mati forsætisráðherra er efnahagslegur stöðugleiki tryggður og bagalegri óvissu rutt úr vegi með samkomulagi aðila vinnumarkaðarins frá í gær. Innlent 16.11.2005 20:55 Miðstjórn Samiðnar ósátt Miðstjórn Samiðnar, samband iðnfélaga, er ósátt við tillögur ríkisstjórnar og samkomulag hennar við aðila vinnumarkaðrins. Samiðn vildi frekar segja upp samningum og komast í beint samband við viðsemjendur sína. Innlent 15.11.2005 21:51 Viðbrögð vinnuveitenda og verkalýðshreyfingarinnar Viðbrögð forkólfa vinnuveitenda og verkalýðshreyfingarinnar eru jákvæð og bjartsýni ríkir sem og léttir. Ingimundur Sigurpálsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, sagði að það mikið fagnaðarefni að aðilar hafi náð saman og að ekki hafi komið til uppsagna samninga eins og útlit var fyrir á tímabili. Hann sagði það hins vegar ljóst að þessi niðurstaða verði mörgum fyritækjum nokkuð þungbær en heildarhagsmunir sem voru í húfi réttlæti tvímælalaust þessa niðurstöðu. Hann sagði aðkomu ríkisstjórnarinnar á ögurstund hafa riðið baggamuninn. Innlent 15.11.2005 20:21 Samningar í höfn - eingreiðsla í desember Launþegar fá 26 þúsund króna eingreiðslu strax og 0,65 prósenta viðbótarlaunahækkun eftir rúmt ár, samkvæmt samkomulagi sem náðist nú undir kvöld milli Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins um framhald kjarasamninga. Þá verða atvinnuleysisbætur hækkaðar verulega, samkvæmt yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, sem jafnframt kemur að lausn málsins með því létta á örorkubyrði lífeyrissjóða og fleiri aðgerðum. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir niðurstöðuna draga úr verðbólgu og auka stöðugleikann. Innlent 15.11.2005 18:13 Birtir til í viðræðum Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambands Íslands, er bjartsýnn eftir fund forsendunefndar ASÍ og Samtaka atvinnulífsins í kvöld. Hann telur góðar líkur á að samkomulag náist á milli aðila áður en frestur forsendunefndar rennur út annað kvöld. Forsendunefndin mun funda áfram á morgun og fulltrúar ASÍ funda einnig með ráðherrum ríkisstjórnarinnar á morgun. Innlent 14.11.2005 22:04 Allt kapp lagt á að bjarga kjarasamningum Allt kapp er nú lagt á að bjarga kjarasamningum á vinnumarkaði áður en ögurstund rennur upp á morgun. Fulltrúar Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins stefna á kvöldfund og ríkisstjórnin er tilbúin að funda með aðilum. Innlent 14.11.2005 20:01 Freista þess að ná samkomulagi Fulltrúar í forsendunefnd Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands komu saman til fundar klukkan tvo í dag til að fara yfir stöðuna í kjaramálum. Innlent 13.11.2005 13:48 Forystan endurkjörin Ingibjörg R. Guðmundsdóttir var endurkjörin formaður Landssambands íslenskra verslunarmanna á þingi samtakanna sem lauk í dag. Aðrir stjórnarmenn voru einnig endurkjörnir utan þess að Ágúst H. Óskarsson, formaður Verslunarmannafélags Húsavíkur gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Innlent 12.11.2005 14:32 Reyna að koma í veg fyrir uppsögn kjarasamninga Forsendunefnd samtaka launþega og vinnuveitenda kemur saman til fundar klukkan eitt í dag til að kanna hvort komast megi hjá uppsögn samninga. Innlent 12.11.2005 12:12 Aðilar vinnumarkaðarins funda Forsendunefnd aðila vinnumarkaðarins ætlar að hittast um eitt leytið í dag. Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambands Íslands, segist sæmilega bjartsýnn á gang viðræðna. Innlent 12.11.2005 00:09 Vill ekki nefna leiðir Ingimundur Sigurpálsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, getur ekki tilgreint með hvaða hætti hann vill jafna kjör opinberra starfsmanna og fólks á almennum vinnumarkaði. Innlent 11.11.2005 18:31 Málin að þokast í rétta átt Forsendunefnd Alþýðusambands Íslands hittist klukkan hálf fjögur í dag. Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambands Íslands, segir að málin séu nú að þokast í rétta átt en nefndin þurfi þann tíma sem er til stefnu til að komast að niðurstöðu. Innlent 11.11.2005 16:06 Lækkun neysluverðsvísitölu valdi ekki straumhvörfum Talsmenn verkalýðshreyfingarinnar segja að fréttir um lækkun neysluvísitölu og hjöðnun verðbólgu hafi ekki komið þeim í opna skjöldu og valdi engum straumhvörfum í viðræðum við atvinnurekendur, sem aftur á móti hafa hampað þessum tíðindum sem nýjum og óvæntum. Innlent 11.11.2005 12:13 Ræða við ríkisstjórnina um aðgerðir Forystumenn Alþýðusambands Íslands ganga á fund helstu ráðherra ríkisstjórnarinnar klukkan þrjú í dag til að ræða hvaða aðgerða ríkið geti gripið til svo ekki þurfi að segja upp kjarasamningum. Innlent 8.11.2005 12:04 ASÍ fundar með ríkisstjórn um kjaramál Fulltrúar Alþýðusambands Íslands funda með forystumönnum ríkisstjórnarinnar í dag eða á morgun en endanleg tímasetning fundarins hefur ekki verið ákveðin. Á fundinum verður farið yfir stöðu mála á vinnumarkaði. Innlent 8.11.2005 09:37 Allt að sex milljónir falla á ríkið Ríkið þarf að greiða á bilinu fjórar til sex milljónir króna vegna dóms Hæstaréttar um að Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli hafi verið óheimilt að hætta að greiða slökkviliðsmönnum rútugjald. Innlent 4.11.2005 16:40 Vinda verður ofan af íbúðalánaruglinu Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að vilji stjórnvöld slá á þensluna í íslensku efnahagslífi verði þau að vinda ofan af því sem hann kallar íbúðalánarugl. Hann segir ekkert vit í því að hækka vexti, það murki einfaldlega lífið úr útflutningsfyrirtækjum. Innlent 2.11.2005 22:57 ASÍ kannar portúgalska starfsmannaleigu Alþýðusambandið kannar starfsemi portúgalskrar starfsmannaleigu sem hefur hátt í eitt hundrað starfsmenn hér á landi. Þá er starfsemi íslensku starfsmannaleiganna Tveir plús einn og 2B til skoðunar. Innlent 27.10.2005 13:59 Sjúkraliðar látnir sitja á hakanum Sjúkraliðar hafa vísað launadeilu sinni við launanefnd sveitarfélaga til Ríkissáttasemjara. Formaður Sjúkraliðafélags Íslands segir ástæðuna þá að launanefndin hafi ekki gefið sér tíma til að funda með sjúkraliðum. Innlent 26.10.2005 15:17 Verkalýðsfélög kæra starfsmannaleigu Fimm verkalýðsfélög hafa sent kærur til sýslumannsins í sínu umdæmi vegna starfsmannaleigunnar 2B. Þau vilja láta reyna á lögmæti starfseminnar. Lögmaður 2B vísar því alfarið á bug að félagið starfi ekki innan ramma laga. Innlent 26.10.2005 02:57 Vonast eftir fleirum á útifund en fyrir 30 árum Vonir standa til að jafnmargir, og helst fleiri, mæti á útifundinn á kvennafrídaginn á morgun en fyrir þrjátíu árum. Erlendir fjölmiðlar sýna baráttunni hér á landi áhuga. Innlent 23.10.2005 22:55 « ‹ 143 144 145 146 147 148 149 150 151 … 153 ›
Sjúkraliðar samþykkja samning Sjúkraliðar sem starfa á Hjúkrunarheimilunum Eir og Skjóli í Reykjavík hafa samþykkt kjarasamning. Samningurinn var undirritaður á fimmtudag í síðustu viku en samþykktur í atkvæðagreiðslu í dag. Innlent 1.12.2005 17:09
Samið fyrir blaða- og fréttamenn Samningur Blaðamannafélags Íslands við samtök atvinnulífsins voru undirritaðir á sjöunda tímanum í kvöld. Samningurinn nær til fréttamanna og ljósmyndara á öllum helstu fjölmiðlum landsins utan Ríkisútvarpsins. Innlent 29.11.2005 18:52
Ósáttir við frumvarp um starfsmannaleigur Stjórnarandstæðingar fögnuðu frumvarpi félagsmálaráðherra um starfsmannaleigur á Alþingi, sem mælt var fyrir í dag, en töldu ekki nægilega langt gengið. Formaður vinstri - grænna sagðist ennfremur ekki sannfærður um að íslenska þjóðin þyrfti yfirhöfuð að sætta sig við slíkt fyrirbæri á íslenskum vinnumarkaði. Innlent 28.11.2005 21:28
Sjúkraliðar kjósa um verkfall Sjúkraliðar sem starfa hjá sveitarfélögunum munu greiða atkvæði um hvort hefja eigi verkfall til að knýja á um nýjan kjarasamning. Fyrri samningur rann út fyrir tæpu ári og hefur ekki enn samist. Fyrst var beðið eftir að gengið yrði frá samningi við ríkið en því lauk júní. Innlent 24.11.2005 10:38
Lögregla rannsakar fyrirtæki á Akranesi Verkalýðsfélag Akraness hefur óskað eftir lögreglurannsókn á starfsemi fyrirtækis sem er með litháíska starfsmenn í vinnu hjá sér. Innlent 22.11.2005 06:41
Allir komnir með atvinnuleyfi Allir pólsku verkamennirnir sem komu til starfa á Akranesi og í nágrenni á vegum starfsmannaleigunnar 2B eru komnir með atvinnuleyfi og ráðningarsamning við þau fyrirtæki sem þeir starfa hjá. Innlent 21.11.2005 06:21
Segja mismunun felast í eingreiðslu Sambandsstjórnarfundur Samiðnar lýsir yfir megnustu óánægju sinni með samkomulag forsendunefndar ASÍ og SA um útdeilingu á sérstakri eingreiðslu. Þetta kemur fram í ályktun sem Samiðn hefur sent frá sér. Fundarmenn telja að sú mismunun sem í eingreiðslunni felist vera einsdæmi í sögu íslenskrar verkalýðshreyfingar. Innlent 18.11.2005 16:53
Ekki allir ASÍ félagar fá eingreiðslu í desember Þeir ASÍ félagar sem skipt hafa um vinnu á árinu fá aðeins hluta af tuttugu og sex þúsund króna eingreiðslu sem kveður á um í samkomulagi ASÍ og Samtaka atvinnulífsins. Hagfræðingur ASÍ segir að í samkomulaginu felist hlutir sem til framtíðar séð geti gefið félagsmönnum mikið. Innlent 17.11.2005 23:39
Öryrkjar skora á stjórnvöld að standa við orð sín Öryrkjabandalag Íslands lýsir yfir ánægju sinni með samkomulag aðila vinnumarkaðarins við ríkisstjórn Íslands en minnir á sama tíma á að ríkisstjórnin hafi ekki enn efnt samkomulag við Öryrkjabandalagið. Innlent 16.11.2005 22:19
Stöðugleiki tryggður segir Halldór Að mati forsætisráðherra er efnahagslegur stöðugleiki tryggður og bagalegri óvissu rutt úr vegi með samkomulagi aðila vinnumarkaðarins frá í gær. Innlent 16.11.2005 20:55
Miðstjórn Samiðnar ósátt Miðstjórn Samiðnar, samband iðnfélaga, er ósátt við tillögur ríkisstjórnar og samkomulag hennar við aðila vinnumarkaðrins. Samiðn vildi frekar segja upp samningum og komast í beint samband við viðsemjendur sína. Innlent 15.11.2005 21:51
Viðbrögð vinnuveitenda og verkalýðshreyfingarinnar Viðbrögð forkólfa vinnuveitenda og verkalýðshreyfingarinnar eru jákvæð og bjartsýni ríkir sem og léttir. Ingimundur Sigurpálsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, sagði að það mikið fagnaðarefni að aðilar hafi náð saman og að ekki hafi komið til uppsagna samninga eins og útlit var fyrir á tímabili. Hann sagði það hins vegar ljóst að þessi niðurstaða verði mörgum fyritækjum nokkuð þungbær en heildarhagsmunir sem voru í húfi réttlæti tvímælalaust þessa niðurstöðu. Hann sagði aðkomu ríkisstjórnarinnar á ögurstund hafa riðið baggamuninn. Innlent 15.11.2005 20:21
Samningar í höfn - eingreiðsla í desember Launþegar fá 26 þúsund króna eingreiðslu strax og 0,65 prósenta viðbótarlaunahækkun eftir rúmt ár, samkvæmt samkomulagi sem náðist nú undir kvöld milli Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins um framhald kjarasamninga. Þá verða atvinnuleysisbætur hækkaðar verulega, samkvæmt yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, sem jafnframt kemur að lausn málsins með því létta á örorkubyrði lífeyrissjóða og fleiri aðgerðum. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir niðurstöðuna draga úr verðbólgu og auka stöðugleikann. Innlent 15.11.2005 18:13
Birtir til í viðræðum Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambands Íslands, er bjartsýnn eftir fund forsendunefndar ASÍ og Samtaka atvinnulífsins í kvöld. Hann telur góðar líkur á að samkomulag náist á milli aðila áður en frestur forsendunefndar rennur út annað kvöld. Forsendunefndin mun funda áfram á morgun og fulltrúar ASÍ funda einnig með ráðherrum ríkisstjórnarinnar á morgun. Innlent 14.11.2005 22:04
Allt kapp lagt á að bjarga kjarasamningum Allt kapp er nú lagt á að bjarga kjarasamningum á vinnumarkaði áður en ögurstund rennur upp á morgun. Fulltrúar Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins stefna á kvöldfund og ríkisstjórnin er tilbúin að funda með aðilum. Innlent 14.11.2005 20:01
Freista þess að ná samkomulagi Fulltrúar í forsendunefnd Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands komu saman til fundar klukkan tvo í dag til að fara yfir stöðuna í kjaramálum. Innlent 13.11.2005 13:48
Forystan endurkjörin Ingibjörg R. Guðmundsdóttir var endurkjörin formaður Landssambands íslenskra verslunarmanna á þingi samtakanna sem lauk í dag. Aðrir stjórnarmenn voru einnig endurkjörnir utan þess að Ágúst H. Óskarsson, formaður Verslunarmannafélags Húsavíkur gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Innlent 12.11.2005 14:32
Reyna að koma í veg fyrir uppsögn kjarasamninga Forsendunefnd samtaka launþega og vinnuveitenda kemur saman til fundar klukkan eitt í dag til að kanna hvort komast megi hjá uppsögn samninga. Innlent 12.11.2005 12:12
Aðilar vinnumarkaðarins funda Forsendunefnd aðila vinnumarkaðarins ætlar að hittast um eitt leytið í dag. Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambands Íslands, segist sæmilega bjartsýnn á gang viðræðna. Innlent 12.11.2005 00:09
Vill ekki nefna leiðir Ingimundur Sigurpálsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, getur ekki tilgreint með hvaða hætti hann vill jafna kjör opinberra starfsmanna og fólks á almennum vinnumarkaði. Innlent 11.11.2005 18:31
Málin að þokast í rétta átt Forsendunefnd Alþýðusambands Íslands hittist klukkan hálf fjögur í dag. Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambands Íslands, segir að málin séu nú að þokast í rétta átt en nefndin þurfi þann tíma sem er til stefnu til að komast að niðurstöðu. Innlent 11.11.2005 16:06
Lækkun neysluverðsvísitölu valdi ekki straumhvörfum Talsmenn verkalýðshreyfingarinnar segja að fréttir um lækkun neysluvísitölu og hjöðnun verðbólgu hafi ekki komið þeim í opna skjöldu og valdi engum straumhvörfum í viðræðum við atvinnurekendur, sem aftur á móti hafa hampað þessum tíðindum sem nýjum og óvæntum. Innlent 11.11.2005 12:13
Ræða við ríkisstjórnina um aðgerðir Forystumenn Alþýðusambands Íslands ganga á fund helstu ráðherra ríkisstjórnarinnar klukkan þrjú í dag til að ræða hvaða aðgerða ríkið geti gripið til svo ekki þurfi að segja upp kjarasamningum. Innlent 8.11.2005 12:04
ASÍ fundar með ríkisstjórn um kjaramál Fulltrúar Alþýðusambands Íslands funda með forystumönnum ríkisstjórnarinnar í dag eða á morgun en endanleg tímasetning fundarins hefur ekki verið ákveðin. Á fundinum verður farið yfir stöðu mála á vinnumarkaði. Innlent 8.11.2005 09:37
Allt að sex milljónir falla á ríkið Ríkið þarf að greiða á bilinu fjórar til sex milljónir króna vegna dóms Hæstaréttar um að Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli hafi verið óheimilt að hætta að greiða slökkviliðsmönnum rútugjald. Innlent 4.11.2005 16:40
Vinda verður ofan af íbúðalánaruglinu Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að vilji stjórnvöld slá á þensluna í íslensku efnahagslífi verði þau að vinda ofan af því sem hann kallar íbúðalánarugl. Hann segir ekkert vit í því að hækka vexti, það murki einfaldlega lífið úr útflutningsfyrirtækjum. Innlent 2.11.2005 22:57
ASÍ kannar portúgalska starfsmannaleigu Alþýðusambandið kannar starfsemi portúgalskrar starfsmannaleigu sem hefur hátt í eitt hundrað starfsmenn hér á landi. Þá er starfsemi íslensku starfsmannaleiganna Tveir plús einn og 2B til skoðunar. Innlent 27.10.2005 13:59
Sjúkraliðar látnir sitja á hakanum Sjúkraliðar hafa vísað launadeilu sinni við launanefnd sveitarfélaga til Ríkissáttasemjara. Formaður Sjúkraliðafélags Íslands segir ástæðuna þá að launanefndin hafi ekki gefið sér tíma til að funda með sjúkraliðum. Innlent 26.10.2005 15:17
Verkalýðsfélög kæra starfsmannaleigu Fimm verkalýðsfélög hafa sent kærur til sýslumannsins í sínu umdæmi vegna starfsmannaleigunnar 2B. Þau vilja láta reyna á lögmæti starfseminnar. Lögmaður 2B vísar því alfarið á bug að félagið starfi ekki innan ramma laga. Innlent 26.10.2005 02:57
Vonast eftir fleirum á útifund en fyrir 30 árum Vonir standa til að jafnmargir, og helst fleiri, mæti á útifundinn á kvennafrídaginn á morgun en fyrir þrjátíu árum. Erlendir fjölmiðlar sýna baráttunni hér á landi áhuga. Innlent 23.10.2005 22:55