Noregur Splæsti í lúxusíbúð í miðborg Oslóar Lífið leikur við Erling Haaland þessa dagana. Á dögunum sló hann markamet ensku úrvalsdeildarinnar og í vikunni tryggði Manchester City sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Það gengur sömuleiðis vel hjá Haaland á öðrum vígstöðum. Enski boltinn 19.5.2023 23:30 Støre í sundi og Macron á Þingvöllum Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, heimsótti Sundhöll Reykjavíkur í gær og skellti sér í heita pottinn. Emmanuel Macron, forseti Frakklands, fór á Þingvelli í morgun ásamt Dúa J. Landmark og þjóðgarðsverði. Lífið 17.5.2023 10:57 Haraldur konungur lagður inn á sjúkrahús Haraldur Noregskonungur hefur verið lagður inn á Ríkissjúkrahúsið í Osló vegna sýkingar og þarf hann að gangast undir meðferð vegna þessa. Erlent 8.5.2023 07:47 „En okkur líkar við flugvélarnar ykkar“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, stakk óvænt upp kollinum í Helsinki í Finnlandi í dag þar sem hann fundaði með leiðtogum Norðurlanda. Honum var heitið auknum stuðningi frá Norðurlöndum en enn sem áður þrýsta Úkraínumenn á að fá herþotur frá Vesturlöndum. Erlent 3.5.2023 21:50 Ætla að kynna aukið framlag til Úkraínu fyrir leiðtogafundinn Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir að aukning á framlagi Íslands til Úkraínu verði kynnt fyrir leiðtogafund Evrópuráðsins, sem fram fer hér á landi seinna í mánuðinum. Hún segir að það framlag sem þegar hafi verið kynnt á þessu ári, sé til jafns á við allt framlag Íslands á síðasta ári en bætt verði frekar í. Innlent 3.5.2023 18:38 Norðurlöndin heita stuðningi við Úkraínu eins lengi og þurfi Leiðtogar Úkraínu og Norðurlandanna fimm ítrekuðu fordæmingar sínar á innrás Rússa í Úkraínu. Norðurlönd munu halda áfram stuðningi við Úkraínu í stríðinu sitt í hvoru lagi og á alþjóðavettvangi eins lengi og til þarf. Norðurlöndin heita því að styðja við enn frekari refsiaðgerðir gegn Rússum. Erlent 3.5.2023 15:45 Bein útsending: Blaðamannafundur Selenskí og norrænu ráðherranna Volodomír Selenskí, forseti Úkraínu, heldur sameiginlegan blaðamannafund með leiðtogum Norðurlandanna í Helsinki. Samkvæmt áætlun á fundurinn að hefjast klukkan 15:00 að íslenskum tíma. Erlent 3.5.2023 13:36 Freyja gerð ódauðleg með styttu í Osló Reist hefur verið stytta af vandræðarostungnum Freyju í Osló, höfuðborg Noregs. Freyja var aflífuð í ágúst á síðasta ári vegna ágengni almennings og ferðamanna þar sem hún dvaldi á smábátabryggju nærri Osló. Erlent 30.4.2023 07:46 Íslenskar og grænar lausnir kynntar Japönum Ísland mun ásamt Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð kynna grænar lausnir á heimssýningunni í Osaka í Japan árið 2025. Norðurlöndin sýna undir einum hatti á sýningunni. Búist er við að 28 milljónir manna muni heimsækja sýninguna. Viðskipti innlent 28.4.2023 13:37 Sagði einn frægasta brandara Fóstbræðra í Succession Jóhannes Haukur Jóhannesson fer með hlutverk í nýjustu seríunni af Succession, sem sýnd er á Stöð 2. Hann nýtti tækifærið í nýjasta þættinum og sagði einn þekktasta brandarann úr smiðju Fóstbræðra. Horfa má á atriðið neðar í fréttinni. Jóhannes segist aldrei hafa upplifað eins einstakt tökuferli og í HBO þáttunum vinsælu. Bíó og sjónvarp 28.4.2023 07:00 Rússar svara Norðmönnum í sömu mynt Rússar hafa tilkynnt norska sendiráðinu í landinu að tíu manns úr starfsliði þeirra verði gert að yfirgefa landið á næstu dögum. Utanríkisráðuneyti Noregs segir ákvörðunina vera hefndaraðgerð eftir að Norðmenn létu fimmtán starfsmenn ráðuneytis Rússa í Noregi yfirgefa landið. Erlent 26.4.2023 11:48 Spydeberg-tvíburasysturnar létust líklegast vegna heróinofskammts Tvíburasysturnar Mille Andrea og Mina Alexandra Hjalmarsen, sem fundust látnar í Spydeberg í Noregi í janúar, létust líklegast af völdum ofskammts af heróíni. Tveir menn eru enn í haldi lögreglu vegna málsins. Erlent 24.4.2023 07:12 Ferðamaðurinn er látinn Bandarískur ferðamaður á þrítugsaldri, sem grófst undir í snjóflóði í Troms í Noregi í dag, er látinn. Tilkynning barst lögreglu á fimmta tímanum og hafði hans verið leitað síðan. Erlent 23.4.2023 22:12 Olíusjóðurinn vill ekki gera olíufélag loftslagsvænna Norski olíusjóðurinn ætlar að greiða atkvæði gegn ályktun um að breska olíufélagið BP setji sér metnaðarfyllri loftslagsmarkmið á hluthafafundi í næstu viku. Hópurinn sem stendur að ályktuninni segir sjóðinn ekki framfylgja eigin fjárfestingastefnu. Viðskipti erlent 22.4.2023 11:05 Lykilinn að lyfjum við blóðtappa að finna í blóði skógarbjarna Samkvæmt nýrri rannsókn getur blóð skógarbjarna gegnt lykilhlutverki við lyfjaþróun við blóðtappa. Birnirnir dvelja mánuðum saman í hýði án mikillar hreyfingar en hreyfingarleysi eykur á hættuna á blóðtappa hjá fólki. Erlent 18.4.2023 07:01 Gómuðu norskt línuskip á bannsvæði Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar gómuðu norskt línuskip við veiðar á bannsvæði í fiskveiðilögsögunni í fyrrinótt. Áhöfn skipsins var gert að sigla því til hafnar í Reykjavík en þangað kom það í nótt. Innlent 15.4.2023 21:04 Norðmenn vísa fimmtán rússneskum sendiráðsstarfsmönnum úr landi Norsk stjórnvöld hafa ákveðið að vísa fimmtán starfsmönnum rússneska sendiráðsins úr landi. Erlent 13.4.2023 10:37 Gísli Örn leikstýrir Frozen á öllum Norðurlöndunum Söngleikurinn Frost byggður á Disney-myndinni Frozen verður settur á svið í Þjóðleikhúsinu næsta vetur. Gísli Örn Garðarsson er með réttinn að sýningunni á öllum Norðurlöndunum. Hann mun því ekki aðeins leikstýra uppfærslu söngleiksins hérlendis heldur einnig á hinum fjórum Norðurlöndunum. Menning 13.4.2023 06:01 Kafbátaleitaræfing við Ísland umfangsmeiri en áður Árleg kafbátaleitaræfing Atlantshafsbandalagsins mun fara fram í norðanverðu Atlantshafi seinna í þessum mánuði. Æfingin kallast Dynamic Mongoose en þegar hún verður haldin verða fjölmörg herskip og kafbátar við strendur Íslands. Innlent 12.4.2023 16:00 Óhugnanlegt og erfitt að finna líkamann hrörna meðan lyf eru í boði Kona sem fær ekki lyf við taugahrörnunarsjúkdóminum SMA sökum aldurs segir stefnu íslenskra yfirvalda óskiljanlega en ljóst sé að kostnaður ráði för. Ákvörðun Norðmanna í dag um að leyfa fullorðnum að fá lyf við sjúkdóminum hljóti að hreyfa við íslenskum yfirvöldum. Það eitt að geta stöðvað sjúkdóminn, þó hún fengi enga færni til baka, væri guðsgjöf. Innlent 11.4.2023 19:32 Skemmdu sæstrenginn til Svalbarða í fyrra Rússneskur togari skemmdi fjarskiptasæstrenginn sem liggur frá Noregi til Svalbarða í janúar árið 2022. Talið er að um viljaverk sé að ræða en togarinn sigldi fram og til baka með veiðarfærin yfir strenginn. Erlent 5.4.2023 13:12 Norski olíusjóðurinn seldi stóran hluta eigna sinna í íslenskum ríkisbréfum Olíusjóður Noregs, stærsti fjárfestingasjóður í ríkiseigu í heiminum, seldi nærri helming allra skuldabréfa sem hann átti á íslenska ríkið á liðnu ári á sama tíma og hann jók talsvert við stöðu sína í skuldabréfum á bankanna hér á landi. Verðbréfaeign sjóðsins á Íslandi, sem nemur jafnvirði um 30 milljarðar króna, hélst nánast óbreytt á milli ára. Innherji 5.4.2023 07:01 Íslenskur kokkanemi vann Masterchef í Noregi Róbert Ómarsson, Íslendingur sem búsettur er í Noregi, stóð uppi sem sigurvegari í Masterchef – Unge Talenter í Noregi. Hann er á þriðja ári í kokkanáminu og starfar sem kokkanemi á Michelin-veitingastað í Osló. Lífið 3.4.2023 15:58 Stóra kosningamál Norðmanna 2025 mun snúast um ESB-aðild. Hvað gerum við? Norski „Sjálfstæðisflokkurinn“, Høyre - sem reyndar er miklu sjálfstæðari, nútímalegri og frjálslyndari, en sá íslenzki; er eins og íslenzki Sjálfstæðisflokkurinn var fram til 1990/2000 - hélt landsfund sinn 24.-26. marz sl. Skoðun 3.4.2023 08:32 Þrír látnir eftir snjóflóð í Noregi Þrír eru látnir eftir tvö aðskilin snjóflóð í norðurhluta Noregs. Þrjú stærri snjóflóð féllu í landshlutanum í dag. Erlent 31.3.2023 15:31 ISIS-systur aftur komnar til Noregs Tvær systur frá Bærum í Noregi og þrjú börn þeirra hafa verið flutt frá Sýrlandi til Noregs. Konurnar tilheyra hóp sem kallaður hefur verið „eiginkonur ISIS“ en þær gengu til liðs við hryðjuverkasamtökin á árum áður. Erlent 30.3.2023 11:06 Stórbruni í timburhúsahverfi í Suðaustur-Noregi Tugir slökkviliðsmanna börðust við mikinn eld í þremur timburhúsum í bænum Kragerø í suðaustanverðum Noregi í alla nótt. Þeir náðu loks tökum á eldinum nú í morgun og hættan á enn stærri bruna sögð liðin hjá. Erlent 26.2.2023 08:33 „Barátta Úkraínu er okkar barátta. Úkraína verður að sigra“ „Í 365 daga hefur þetta óréttlætanlega, tilefnislausa og ólögmæta innrásarstríð valdið ómældum þjáningum, dauðsföllum og eyðileggingu af stærðargráðu sem ekki hefur sést í álfunni síðan í síðari heimsstyrjöld.“ Erlent 24.2.2023 08:31 Stoltenberg lætur af embætti í október Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO hyggst láta af embætti í október líkt og stóð til. Fjölmiðlar höfðu undanfarið greint frá því að framlenging á hans samningi væri í kortunum. Erlent 12.2.2023 18:02 Arne Treholt látinn Norski njósnarinn Arne Treholt er látinn, áttatíu ára gamall. Hann lést á heimili sínu á Moskvu þar sem hann hefur verið búsettur síðustu ár. Hann lætur eftir sig son og tvö barnabörn. Erlent 12.2.2023 14:42 « ‹ 5 6 7 8 9 10 11 12 13 … 49 ›
Splæsti í lúxusíbúð í miðborg Oslóar Lífið leikur við Erling Haaland þessa dagana. Á dögunum sló hann markamet ensku úrvalsdeildarinnar og í vikunni tryggði Manchester City sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Það gengur sömuleiðis vel hjá Haaland á öðrum vígstöðum. Enski boltinn 19.5.2023 23:30
Støre í sundi og Macron á Þingvöllum Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, heimsótti Sundhöll Reykjavíkur í gær og skellti sér í heita pottinn. Emmanuel Macron, forseti Frakklands, fór á Þingvelli í morgun ásamt Dúa J. Landmark og þjóðgarðsverði. Lífið 17.5.2023 10:57
Haraldur konungur lagður inn á sjúkrahús Haraldur Noregskonungur hefur verið lagður inn á Ríkissjúkrahúsið í Osló vegna sýkingar og þarf hann að gangast undir meðferð vegna þessa. Erlent 8.5.2023 07:47
„En okkur líkar við flugvélarnar ykkar“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, stakk óvænt upp kollinum í Helsinki í Finnlandi í dag þar sem hann fundaði með leiðtogum Norðurlanda. Honum var heitið auknum stuðningi frá Norðurlöndum en enn sem áður þrýsta Úkraínumenn á að fá herþotur frá Vesturlöndum. Erlent 3.5.2023 21:50
Ætla að kynna aukið framlag til Úkraínu fyrir leiðtogafundinn Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir að aukning á framlagi Íslands til Úkraínu verði kynnt fyrir leiðtogafund Evrópuráðsins, sem fram fer hér á landi seinna í mánuðinum. Hún segir að það framlag sem þegar hafi verið kynnt á þessu ári, sé til jafns á við allt framlag Íslands á síðasta ári en bætt verði frekar í. Innlent 3.5.2023 18:38
Norðurlöndin heita stuðningi við Úkraínu eins lengi og þurfi Leiðtogar Úkraínu og Norðurlandanna fimm ítrekuðu fordæmingar sínar á innrás Rússa í Úkraínu. Norðurlönd munu halda áfram stuðningi við Úkraínu í stríðinu sitt í hvoru lagi og á alþjóðavettvangi eins lengi og til þarf. Norðurlöndin heita því að styðja við enn frekari refsiaðgerðir gegn Rússum. Erlent 3.5.2023 15:45
Bein útsending: Blaðamannafundur Selenskí og norrænu ráðherranna Volodomír Selenskí, forseti Úkraínu, heldur sameiginlegan blaðamannafund með leiðtogum Norðurlandanna í Helsinki. Samkvæmt áætlun á fundurinn að hefjast klukkan 15:00 að íslenskum tíma. Erlent 3.5.2023 13:36
Freyja gerð ódauðleg með styttu í Osló Reist hefur verið stytta af vandræðarostungnum Freyju í Osló, höfuðborg Noregs. Freyja var aflífuð í ágúst á síðasta ári vegna ágengni almennings og ferðamanna þar sem hún dvaldi á smábátabryggju nærri Osló. Erlent 30.4.2023 07:46
Íslenskar og grænar lausnir kynntar Japönum Ísland mun ásamt Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð kynna grænar lausnir á heimssýningunni í Osaka í Japan árið 2025. Norðurlöndin sýna undir einum hatti á sýningunni. Búist er við að 28 milljónir manna muni heimsækja sýninguna. Viðskipti innlent 28.4.2023 13:37
Sagði einn frægasta brandara Fóstbræðra í Succession Jóhannes Haukur Jóhannesson fer með hlutverk í nýjustu seríunni af Succession, sem sýnd er á Stöð 2. Hann nýtti tækifærið í nýjasta þættinum og sagði einn þekktasta brandarann úr smiðju Fóstbræðra. Horfa má á atriðið neðar í fréttinni. Jóhannes segist aldrei hafa upplifað eins einstakt tökuferli og í HBO þáttunum vinsælu. Bíó og sjónvarp 28.4.2023 07:00
Rússar svara Norðmönnum í sömu mynt Rússar hafa tilkynnt norska sendiráðinu í landinu að tíu manns úr starfsliði þeirra verði gert að yfirgefa landið á næstu dögum. Utanríkisráðuneyti Noregs segir ákvörðunina vera hefndaraðgerð eftir að Norðmenn létu fimmtán starfsmenn ráðuneytis Rússa í Noregi yfirgefa landið. Erlent 26.4.2023 11:48
Spydeberg-tvíburasysturnar létust líklegast vegna heróinofskammts Tvíburasysturnar Mille Andrea og Mina Alexandra Hjalmarsen, sem fundust látnar í Spydeberg í Noregi í janúar, létust líklegast af völdum ofskammts af heróíni. Tveir menn eru enn í haldi lögreglu vegna málsins. Erlent 24.4.2023 07:12
Ferðamaðurinn er látinn Bandarískur ferðamaður á þrítugsaldri, sem grófst undir í snjóflóði í Troms í Noregi í dag, er látinn. Tilkynning barst lögreglu á fimmta tímanum og hafði hans verið leitað síðan. Erlent 23.4.2023 22:12
Olíusjóðurinn vill ekki gera olíufélag loftslagsvænna Norski olíusjóðurinn ætlar að greiða atkvæði gegn ályktun um að breska olíufélagið BP setji sér metnaðarfyllri loftslagsmarkmið á hluthafafundi í næstu viku. Hópurinn sem stendur að ályktuninni segir sjóðinn ekki framfylgja eigin fjárfestingastefnu. Viðskipti erlent 22.4.2023 11:05
Lykilinn að lyfjum við blóðtappa að finna í blóði skógarbjarna Samkvæmt nýrri rannsókn getur blóð skógarbjarna gegnt lykilhlutverki við lyfjaþróun við blóðtappa. Birnirnir dvelja mánuðum saman í hýði án mikillar hreyfingar en hreyfingarleysi eykur á hættuna á blóðtappa hjá fólki. Erlent 18.4.2023 07:01
Gómuðu norskt línuskip á bannsvæði Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar gómuðu norskt línuskip við veiðar á bannsvæði í fiskveiðilögsögunni í fyrrinótt. Áhöfn skipsins var gert að sigla því til hafnar í Reykjavík en þangað kom það í nótt. Innlent 15.4.2023 21:04
Norðmenn vísa fimmtán rússneskum sendiráðsstarfsmönnum úr landi Norsk stjórnvöld hafa ákveðið að vísa fimmtán starfsmönnum rússneska sendiráðsins úr landi. Erlent 13.4.2023 10:37
Gísli Örn leikstýrir Frozen á öllum Norðurlöndunum Söngleikurinn Frost byggður á Disney-myndinni Frozen verður settur á svið í Þjóðleikhúsinu næsta vetur. Gísli Örn Garðarsson er með réttinn að sýningunni á öllum Norðurlöndunum. Hann mun því ekki aðeins leikstýra uppfærslu söngleiksins hérlendis heldur einnig á hinum fjórum Norðurlöndunum. Menning 13.4.2023 06:01
Kafbátaleitaræfing við Ísland umfangsmeiri en áður Árleg kafbátaleitaræfing Atlantshafsbandalagsins mun fara fram í norðanverðu Atlantshafi seinna í þessum mánuði. Æfingin kallast Dynamic Mongoose en þegar hún verður haldin verða fjölmörg herskip og kafbátar við strendur Íslands. Innlent 12.4.2023 16:00
Óhugnanlegt og erfitt að finna líkamann hrörna meðan lyf eru í boði Kona sem fær ekki lyf við taugahrörnunarsjúkdóminum SMA sökum aldurs segir stefnu íslenskra yfirvalda óskiljanlega en ljóst sé að kostnaður ráði för. Ákvörðun Norðmanna í dag um að leyfa fullorðnum að fá lyf við sjúkdóminum hljóti að hreyfa við íslenskum yfirvöldum. Það eitt að geta stöðvað sjúkdóminn, þó hún fengi enga færni til baka, væri guðsgjöf. Innlent 11.4.2023 19:32
Skemmdu sæstrenginn til Svalbarða í fyrra Rússneskur togari skemmdi fjarskiptasæstrenginn sem liggur frá Noregi til Svalbarða í janúar árið 2022. Talið er að um viljaverk sé að ræða en togarinn sigldi fram og til baka með veiðarfærin yfir strenginn. Erlent 5.4.2023 13:12
Norski olíusjóðurinn seldi stóran hluta eigna sinna í íslenskum ríkisbréfum Olíusjóður Noregs, stærsti fjárfestingasjóður í ríkiseigu í heiminum, seldi nærri helming allra skuldabréfa sem hann átti á íslenska ríkið á liðnu ári á sama tíma og hann jók talsvert við stöðu sína í skuldabréfum á bankanna hér á landi. Verðbréfaeign sjóðsins á Íslandi, sem nemur jafnvirði um 30 milljarðar króna, hélst nánast óbreytt á milli ára. Innherji 5.4.2023 07:01
Íslenskur kokkanemi vann Masterchef í Noregi Róbert Ómarsson, Íslendingur sem búsettur er í Noregi, stóð uppi sem sigurvegari í Masterchef – Unge Talenter í Noregi. Hann er á þriðja ári í kokkanáminu og starfar sem kokkanemi á Michelin-veitingastað í Osló. Lífið 3.4.2023 15:58
Stóra kosningamál Norðmanna 2025 mun snúast um ESB-aðild. Hvað gerum við? Norski „Sjálfstæðisflokkurinn“, Høyre - sem reyndar er miklu sjálfstæðari, nútímalegri og frjálslyndari, en sá íslenzki; er eins og íslenzki Sjálfstæðisflokkurinn var fram til 1990/2000 - hélt landsfund sinn 24.-26. marz sl. Skoðun 3.4.2023 08:32
Þrír látnir eftir snjóflóð í Noregi Þrír eru látnir eftir tvö aðskilin snjóflóð í norðurhluta Noregs. Þrjú stærri snjóflóð féllu í landshlutanum í dag. Erlent 31.3.2023 15:31
ISIS-systur aftur komnar til Noregs Tvær systur frá Bærum í Noregi og þrjú börn þeirra hafa verið flutt frá Sýrlandi til Noregs. Konurnar tilheyra hóp sem kallaður hefur verið „eiginkonur ISIS“ en þær gengu til liðs við hryðjuverkasamtökin á árum áður. Erlent 30.3.2023 11:06
Stórbruni í timburhúsahverfi í Suðaustur-Noregi Tugir slökkviliðsmanna börðust við mikinn eld í þremur timburhúsum í bænum Kragerø í suðaustanverðum Noregi í alla nótt. Þeir náðu loks tökum á eldinum nú í morgun og hættan á enn stærri bruna sögð liðin hjá. Erlent 26.2.2023 08:33
„Barátta Úkraínu er okkar barátta. Úkraína verður að sigra“ „Í 365 daga hefur þetta óréttlætanlega, tilefnislausa og ólögmæta innrásarstríð valdið ómældum þjáningum, dauðsföllum og eyðileggingu af stærðargráðu sem ekki hefur sést í álfunni síðan í síðari heimsstyrjöld.“ Erlent 24.2.2023 08:31
Stoltenberg lætur af embætti í október Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO hyggst láta af embætti í október líkt og stóð til. Fjölmiðlar höfðu undanfarið greint frá því að framlenging á hans samningi væri í kortunum. Erlent 12.2.2023 18:02
Arne Treholt látinn Norski njósnarinn Arne Treholt er látinn, áttatíu ára gamall. Hann lést á heimili sínu á Moskvu þar sem hann hefur verið búsettur síðustu ár. Hann lætur eftir sig son og tvö barnabörn. Erlent 12.2.2023 14:42