Björgunarsveitir Fólkið sem leitað var að við Keili komið í leitirnar Kona sem leitað var að skammt frá Keili á Reykjanesskaga er kominn í leitirnar. Hún varð viðskila við samstarfsmann sinn hjá Veðurstofu Íslands, en hann fannst fyrr í dag. Innlent 2.3.2021 18:46 Þyrla Gæslunnar aðstoðar við leit að manni sunnan við Keili Björgunarsveitir af Suðurnesjum studdar þyrlu Landshelgisgæslunnar leita nú karlmanns sem varð viðskila við konu sem var með honum á ferð sunnan við Keili í dag. Konan fannst eftir leit en björgunarsveitir telja sig vita staðsetningu mannsins. Innlent 2.3.2021 17:59 Tveir lentu í snjóflóði undir hlíðum Skessuhorns Tveir menn lentu í snjóflóði sem féll í hlíðunum undir Skessuhorni í Borgarfirði í dag. Björgunarsveitir í Borgarfirði voru kallaðar út rétt fyrir klukkan fjögur í dag en mönnunum tókst að koma sér út úr flóðinu af sjálfsdáðum og hringdu á eftir aðstoð. Innlent 20.2.2021 16:27 Vélsleðaslys við Tjaldafell: Fór fram af hengju Kona slasaðist þegar vélsleði hennar fór fram af hengju við Tjaldafell norðan Skjaldbreiðar í dag. Björgunarsveitir í Árnessýslu voru kallaðar út upp úr klukkan tólf í dag vegna slyssins en konan finnur til verkja en hún var á ferðalagi ásamt hópi fólks sem kom henni í skjól í nærliggjandi skála. Innlent 20.2.2021 13:32 Bráðvantaði rafstöðvarnar í flóðinu Þrettán björgunarsveitir fengu í dag afhentar færanlegar rafstöðvar sem eiga að efla fjarskiptaöryggi þegar gerir óveður eða náttúruhamfarir verða. Björgunarsveitarmaður segir að slíkar stöðvar hefðu komið að miklum notum þegar aurskriður féllu á Seyðisfirði fyrir jól. Innlent 19.2.2021 19:37 Krefjandi að setja eigin hagsmuni til hliðar á ögurstund „Það má eiginlega segja að ég hafi verið í útkalli frá 15. desember fram til 9. janúar. Það er lengsta útkall sem ég hef farið í. Þegar ég lít til baka til þessara daga finnst mér að það hafi verið auðvelt að vera í björgunarstörfunum borið saman við það að horfa á eftir heimilinu mínu eyðileggjast í vatnselg. En björgunarmaðurinn í mér gengur sáttur frá borði“. Innlent 10.2.2021 07:00 Björgunarsveitir kallaðar út vegna konu sem datt á Grímansfelli Björgunarsveitir voru kallaðar út á öðrum tímanum í dag eftir að tilkynning barst frá göngufólki á Grímansfelli í Mosfellsdal vegna konu sem hafði dottið og slasast á fæti ofarlega í hlíðum fjallsins. Björgunarsveitarfólk úr sveitum í Mosfellsbæ og Reykjavík hefur verið sent á staðinn auk sjúkraflutningamanna frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Innlent 6.2.2021 14:36 Fór úr mjaðmarlið og beið í níutíu mínútur í kuldanum Þórður Mar Árnason má ekkert stíga í fótinn næstu sex vikurnar eftir að hafa farið úr mjaðmarlið í vélsleðaslysi á Tröllaskaga þann 15. janúar síðastliðinn. Hann þakkar fyrir að hafa ekki fengið vélsleðann ofan á sig þar sem hann rúllaði niður bratta fjallshlíð. Eða að æð hafi ekki farið í sundur í fæti hans. Þá hefði fátt komið í veg fyrir að honum hefði blætt út. Innlent 31.1.2021 19:56 Landsbjörg auglýsir útboð á þremur nýjum björgunarskipum Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur auglýst útboð á þremur nýjum björgunarskipum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Innlent 29.1.2021 08:06 Drógu vélarvana flutningaskip til Patreksfjarðar Björgunarskipið Vörður II á Patreksfirði var kallaður út laus eftir miðnætti í nótt vegna vélarvana flutningaskips utan við Tálkna sem skilur að Patreksfjörð og Tálknafjörð. Skipið er tæplega 90 metra langt. Innlent 28.1.2021 12:06 Var á þriggja metra dýpi þegar hann heyrði drunurnar í bátunum og þyrlunni Mikael Dubik var á um þriggja metra dýpi í Kleifarvatni í dag þegar hann heyrði einhverjar drunur og velti vöngum yfir því hvort einhver væri kominn með bát á vatnið. Hann hafði oft áður kafað í Kleifarvatni og var yfirleitt einn á ferð. Þá skapaði bátur tiltekna hættu fyrir hann. Innlent 24.1.2021 13:58 Aðgerðum lokið við Kleifarvatn Mikill viðbúnaður var við Kleifarvatn eftir að tilkynning barst um slys upp úr klukkan 12. Talið var að manneskja hefði farið í vatnið en síðar kom í ljós að ekki væri hætta á ferðum, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Innlent 24.1.2021 12:50 Tóku höndum saman og komu sjúkrabíl í gegnum mikla ófærð Björgunarsveitarmenn frá Þórshöfn, Raufarhöfn, Húsavík auk snjómokstursmanna allt frá Þórshöfn til Akureyrar tóku á honum stóra sínum í gær þegar þeir komu sjúklingi frá Þórshöfn til Akureyri í mjög vondu veðri og mikilli ófærð. Innlent 24.1.2021 07:34 Ríkið styrkir Landsbjörgu til kaupa á björgunarskipum Ríkið styrkir Landsbjörgu um allt að 450 milljónir króna til kaupa á þremur björgunarskipum á árunum 2021-2023 samkvæmt samkomulagi sem var undirritað í dag. Auk þess var undirrituð viljayfirlýsing um kaup á sjö skipum til viðbótar á næstu tíu árum. Innlent 19.1.2021 16:45 Fjölskylda flutt með þyrlu til Reykjavíkur eftir slysið Þau þrjú sem voru í bílnum sem fór í sjóinn í Skötufirði voru flutt á sjúkrahús í Reykjavík með þyrlum Landhelgisgæslunnar nú eftir hádegi. Komið var með fólkið á Borgarspítalann á öðrum tímanum. Innlent 16.1.2021 13:05 Vegfarendur náðu fólki úr bíl sem fór í sjóinn í Skötufirði Viðbragðsaðilar voru kallaðir út vegna slyss í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi á Vestfjörðum vegna tilkynningar um bíl sem fór í sjóinn á ellefta tímanum í morgun. Þrír voru í bílnum. Innlent 16.1.2021 11:06 Gjafmildi landsmanna bjargaði starfi björgunarsveitarinnar á Flateyri Einu ári eftir að snjóflóð féllu á Flateyri er björgunarsveitin þar á bæ komin í nýtt húsnæði sem sveitin gat keypt með fé sem almenningur og fyrirtæki í landinu gáfu eftir hamfararnir. Í nýja húsnæðinu verður starfrækt heilsugæsla sem var ekki í boði fyrir ári. Innlent 14.1.2021 18:01 Beið eftir aðstoð í allt að tuttugu gráðu frosti Gönguskíðamaðurinn sem slasaðist á fæti á Langjökli síðdegis í dag var fluttur niður af jöklinum og komið um borð í sjúkrabíl í Húsafelli eftir að hafa beðið eftir aðstoð ásamt félögum sínum. Innlent 11.1.2021 23:01 Sækja slasaðan gönguskíðamann á Langjökul Björgunarsveitir á Vesturlandi voru kallaðar út um þrjúleytið í dag vegna gönguskíðamanns sem slasaðist á Langjökli. Ekki er talin hætta á ferðum að því er segir í tilkynningu frá Landsbjörg. Innlent 11.1.2021 15:53 Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út að Kerhólakambi vegna slasaðrar göngukonu Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út vegna göngukonu sem slasaðist á fæti við Kerhólakamb. Björgunarstarf fer nú fram úr lofti þar sem erfitt er að komast landleiðina vegna mikillar hálku. Innlent 10.1.2021 17:18 Tveir fluttir með þyrlu á Landspítalann Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur flutt tvo göngumenn, sem slösuðust á Móskarðshnúkum á þriðja tímanum í dag, á Landspítalann í Fossvoginn og lenti þar fyrir skömmu. Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar í samtali við fréttastofu. Innlent 10.1.2021 15:46 Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna slyss í Móskarðshnúkum Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út nú á þriðja tímanum eftir að tilkynning barst um að slys hefði orðið í Móskarðshnúkum. Innlent 10.1.2021 14:56 Farið í yfir 60 verkefni í aftakaveðri á Austurlandi Nær allar björgunarsveitir á svæðinu milli Þórshafnar og Djúpavogs hafa verið kallaðar út á einhverjum tímapunkti í dag vegna óveðurs. Voru verkefnin orðin ríflega 60 talsins á Austurlandi um klukkan 16 í dag. Aftakaveður hefur verið í landshlutanum og appelsínugular veðurviðvaranir í gildi á öllum austurhelmingi landsins. Innlent 9.1.2021 18:33 Greinanleg aukning í sölu á flugeldum Greinanleg aukning er í sölu á flugeldum í kringum nýliðin áramót að sögn formanns Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Innlent 2.1.2021 15:35 Slys á Sólheimajökli Viðbragðsaðilar á Suðurlandi voru kallaðir til í dag vegna slyss við Sólheimajökul. Innlent 2.1.2021 14:47 Nóg að gera hjá björgunarsveitum á síðasta degi 2020 Björgunarsveitir voru kallaðar þrisvar út á síðasta degi ársins 2020, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsbjörg. Innlent 1.1.2021 09:02 „Þetta ár má eiga sig“ Flugeldasala hefur verið með besta móti í ár en í dag er stærsti dagur ársins á sölustöðum björgunarsveitanna. Innlent 31.12.2020 12:15 Sér ekki fyrir sér að fólk vilji kveðja þetta ár með mínútu þögn Samdráttur hefur verið í sölu á flugeldum hjá björgunarsveitum en sala rótarskota hefur „aðeins mildað höggið“ að sögn formanns Landsbjargar. Undanfarin ár hefur umræða um neikvæð umhverfisáhrif flugelda farið vaxandi en flugeldasalan hefur jafnan verið mikilvægasti liðurinn í fjáröflun björgunarsveitanna. Innlent 28.12.2020 21:14 Fleiri útköll vegna veðurs Fleiri björgunarsveitir hafa verið kallaðar út eftir hádegi vegna veðurs. Um foktjón er að ræða í öllum tilfellum en nokkrar beiðnir um aðstoð hafa meðal annars borist í Reykjavík. Innlent 27.12.2020 14:50 Um tuttugu tilkynningar um foktjón Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út í morgun vegna veðurs í Vestmannaeyjum og Suðurnesjabæ. Gul veðurviðvörun er í gildi og hefur vindur mælst hátt í fjörutíu metrar á sekúndu. Innlent 27.12.2020 10:28 « ‹ 25 26 27 28 29 30 31 32 33 … 45 ›
Fólkið sem leitað var að við Keili komið í leitirnar Kona sem leitað var að skammt frá Keili á Reykjanesskaga er kominn í leitirnar. Hún varð viðskila við samstarfsmann sinn hjá Veðurstofu Íslands, en hann fannst fyrr í dag. Innlent 2.3.2021 18:46
Þyrla Gæslunnar aðstoðar við leit að manni sunnan við Keili Björgunarsveitir af Suðurnesjum studdar þyrlu Landshelgisgæslunnar leita nú karlmanns sem varð viðskila við konu sem var með honum á ferð sunnan við Keili í dag. Konan fannst eftir leit en björgunarsveitir telja sig vita staðsetningu mannsins. Innlent 2.3.2021 17:59
Tveir lentu í snjóflóði undir hlíðum Skessuhorns Tveir menn lentu í snjóflóði sem féll í hlíðunum undir Skessuhorni í Borgarfirði í dag. Björgunarsveitir í Borgarfirði voru kallaðar út rétt fyrir klukkan fjögur í dag en mönnunum tókst að koma sér út úr flóðinu af sjálfsdáðum og hringdu á eftir aðstoð. Innlent 20.2.2021 16:27
Vélsleðaslys við Tjaldafell: Fór fram af hengju Kona slasaðist þegar vélsleði hennar fór fram af hengju við Tjaldafell norðan Skjaldbreiðar í dag. Björgunarsveitir í Árnessýslu voru kallaðar út upp úr klukkan tólf í dag vegna slyssins en konan finnur til verkja en hún var á ferðalagi ásamt hópi fólks sem kom henni í skjól í nærliggjandi skála. Innlent 20.2.2021 13:32
Bráðvantaði rafstöðvarnar í flóðinu Þrettán björgunarsveitir fengu í dag afhentar færanlegar rafstöðvar sem eiga að efla fjarskiptaöryggi þegar gerir óveður eða náttúruhamfarir verða. Björgunarsveitarmaður segir að slíkar stöðvar hefðu komið að miklum notum þegar aurskriður féllu á Seyðisfirði fyrir jól. Innlent 19.2.2021 19:37
Krefjandi að setja eigin hagsmuni til hliðar á ögurstund „Það má eiginlega segja að ég hafi verið í útkalli frá 15. desember fram til 9. janúar. Það er lengsta útkall sem ég hef farið í. Þegar ég lít til baka til þessara daga finnst mér að það hafi verið auðvelt að vera í björgunarstörfunum borið saman við það að horfa á eftir heimilinu mínu eyðileggjast í vatnselg. En björgunarmaðurinn í mér gengur sáttur frá borði“. Innlent 10.2.2021 07:00
Björgunarsveitir kallaðar út vegna konu sem datt á Grímansfelli Björgunarsveitir voru kallaðar út á öðrum tímanum í dag eftir að tilkynning barst frá göngufólki á Grímansfelli í Mosfellsdal vegna konu sem hafði dottið og slasast á fæti ofarlega í hlíðum fjallsins. Björgunarsveitarfólk úr sveitum í Mosfellsbæ og Reykjavík hefur verið sent á staðinn auk sjúkraflutningamanna frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Innlent 6.2.2021 14:36
Fór úr mjaðmarlið og beið í níutíu mínútur í kuldanum Þórður Mar Árnason má ekkert stíga í fótinn næstu sex vikurnar eftir að hafa farið úr mjaðmarlið í vélsleðaslysi á Tröllaskaga þann 15. janúar síðastliðinn. Hann þakkar fyrir að hafa ekki fengið vélsleðann ofan á sig þar sem hann rúllaði niður bratta fjallshlíð. Eða að æð hafi ekki farið í sundur í fæti hans. Þá hefði fátt komið í veg fyrir að honum hefði blætt út. Innlent 31.1.2021 19:56
Landsbjörg auglýsir útboð á þremur nýjum björgunarskipum Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur auglýst útboð á þremur nýjum björgunarskipum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Innlent 29.1.2021 08:06
Drógu vélarvana flutningaskip til Patreksfjarðar Björgunarskipið Vörður II á Patreksfirði var kallaður út laus eftir miðnætti í nótt vegna vélarvana flutningaskips utan við Tálkna sem skilur að Patreksfjörð og Tálknafjörð. Skipið er tæplega 90 metra langt. Innlent 28.1.2021 12:06
Var á þriggja metra dýpi þegar hann heyrði drunurnar í bátunum og þyrlunni Mikael Dubik var á um þriggja metra dýpi í Kleifarvatni í dag þegar hann heyrði einhverjar drunur og velti vöngum yfir því hvort einhver væri kominn með bát á vatnið. Hann hafði oft áður kafað í Kleifarvatni og var yfirleitt einn á ferð. Þá skapaði bátur tiltekna hættu fyrir hann. Innlent 24.1.2021 13:58
Aðgerðum lokið við Kleifarvatn Mikill viðbúnaður var við Kleifarvatn eftir að tilkynning barst um slys upp úr klukkan 12. Talið var að manneskja hefði farið í vatnið en síðar kom í ljós að ekki væri hætta á ferðum, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Innlent 24.1.2021 12:50
Tóku höndum saman og komu sjúkrabíl í gegnum mikla ófærð Björgunarsveitarmenn frá Þórshöfn, Raufarhöfn, Húsavík auk snjómokstursmanna allt frá Þórshöfn til Akureyrar tóku á honum stóra sínum í gær þegar þeir komu sjúklingi frá Þórshöfn til Akureyri í mjög vondu veðri og mikilli ófærð. Innlent 24.1.2021 07:34
Ríkið styrkir Landsbjörgu til kaupa á björgunarskipum Ríkið styrkir Landsbjörgu um allt að 450 milljónir króna til kaupa á þremur björgunarskipum á árunum 2021-2023 samkvæmt samkomulagi sem var undirritað í dag. Auk þess var undirrituð viljayfirlýsing um kaup á sjö skipum til viðbótar á næstu tíu árum. Innlent 19.1.2021 16:45
Fjölskylda flutt með þyrlu til Reykjavíkur eftir slysið Þau þrjú sem voru í bílnum sem fór í sjóinn í Skötufirði voru flutt á sjúkrahús í Reykjavík með þyrlum Landhelgisgæslunnar nú eftir hádegi. Komið var með fólkið á Borgarspítalann á öðrum tímanum. Innlent 16.1.2021 13:05
Vegfarendur náðu fólki úr bíl sem fór í sjóinn í Skötufirði Viðbragðsaðilar voru kallaðir út vegna slyss í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi á Vestfjörðum vegna tilkynningar um bíl sem fór í sjóinn á ellefta tímanum í morgun. Þrír voru í bílnum. Innlent 16.1.2021 11:06
Gjafmildi landsmanna bjargaði starfi björgunarsveitarinnar á Flateyri Einu ári eftir að snjóflóð féllu á Flateyri er björgunarsveitin þar á bæ komin í nýtt húsnæði sem sveitin gat keypt með fé sem almenningur og fyrirtæki í landinu gáfu eftir hamfararnir. Í nýja húsnæðinu verður starfrækt heilsugæsla sem var ekki í boði fyrir ári. Innlent 14.1.2021 18:01
Beið eftir aðstoð í allt að tuttugu gráðu frosti Gönguskíðamaðurinn sem slasaðist á fæti á Langjökli síðdegis í dag var fluttur niður af jöklinum og komið um borð í sjúkrabíl í Húsafelli eftir að hafa beðið eftir aðstoð ásamt félögum sínum. Innlent 11.1.2021 23:01
Sækja slasaðan gönguskíðamann á Langjökul Björgunarsveitir á Vesturlandi voru kallaðar út um þrjúleytið í dag vegna gönguskíðamanns sem slasaðist á Langjökli. Ekki er talin hætta á ferðum að því er segir í tilkynningu frá Landsbjörg. Innlent 11.1.2021 15:53
Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út að Kerhólakambi vegna slasaðrar göngukonu Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út vegna göngukonu sem slasaðist á fæti við Kerhólakamb. Björgunarstarf fer nú fram úr lofti þar sem erfitt er að komast landleiðina vegna mikillar hálku. Innlent 10.1.2021 17:18
Tveir fluttir með þyrlu á Landspítalann Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur flutt tvo göngumenn, sem slösuðust á Móskarðshnúkum á þriðja tímanum í dag, á Landspítalann í Fossvoginn og lenti þar fyrir skömmu. Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar í samtali við fréttastofu. Innlent 10.1.2021 15:46
Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna slyss í Móskarðshnúkum Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út nú á þriðja tímanum eftir að tilkynning barst um að slys hefði orðið í Móskarðshnúkum. Innlent 10.1.2021 14:56
Farið í yfir 60 verkefni í aftakaveðri á Austurlandi Nær allar björgunarsveitir á svæðinu milli Þórshafnar og Djúpavogs hafa verið kallaðar út á einhverjum tímapunkti í dag vegna óveðurs. Voru verkefnin orðin ríflega 60 talsins á Austurlandi um klukkan 16 í dag. Aftakaveður hefur verið í landshlutanum og appelsínugular veðurviðvaranir í gildi á öllum austurhelmingi landsins. Innlent 9.1.2021 18:33
Greinanleg aukning í sölu á flugeldum Greinanleg aukning er í sölu á flugeldum í kringum nýliðin áramót að sögn formanns Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Innlent 2.1.2021 15:35
Slys á Sólheimajökli Viðbragðsaðilar á Suðurlandi voru kallaðir til í dag vegna slyss við Sólheimajökul. Innlent 2.1.2021 14:47
Nóg að gera hjá björgunarsveitum á síðasta degi 2020 Björgunarsveitir voru kallaðar þrisvar út á síðasta degi ársins 2020, að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsbjörg. Innlent 1.1.2021 09:02
„Þetta ár má eiga sig“ Flugeldasala hefur verið með besta móti í ár en í dag er stærsti dagur ársins á sölustöðum björgunarsveitanna. Innlent 31.12.2020 12:15
Sér ekki fyrir sér að fólk vilji kveðja þetta ár með mínútu þögn Samdráttur hefur verið í sölu á flugeldum hjá björgunarsveitum en sala rótarskota hefur „aðeins mildað höggið“ að sögn formanns Landsbjargar. Undanfarin ár hefur umræða um neikvæð umhverfisáhrif flugelda farið vaxandi en flugeldasalan hefur jafnan verið mikilvægasti liðurinn í fjáröflun björgunarsveitanna. Innlent 28.12.2020 21:14
Fleiri útköll vegna veðurs Fleiri björgunarsveitir hafa verið kallaðar út eftir hádegi vegna veðurs. Um foktjón er að ræða í öllum tilfellum en nokkrar beiðnir um aðstoð hafa meðal annars borist í Reykjavík. Innlent 27.12.2020 14:50
Um tuttugu tilkynningar um foktjón Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út í morgun vegna veðurs í Vestmannaeyjum og Suðurnesjabæ. Gul veðurviðvörun er í gildi og hefur vindur mælst hátt í fjörutíu metrar á sekúndu. Innlent 27.12.2020 10:28