Fjármálafyrirtæki Seðlabankinn hækkar eiginfjárkröfu á bankanna vegna aukinnar áhættu Þrátt fyrir að fjármálakerfið hér á landi „standi traustum fótum“ þá hefur fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands ákveðið að setja hærri eiginfjárkröfu á bankanna til að auka enn frekar viðnámsþrótt þeirra vegna innlendrar þenslu og aukinnar áhættu á erlendum mörkuðum. Þá hafa fjármálaskilyrði heimila farið versnandi og útlit er fyrir að verðbólga verði „þrálát og greiðslubyrði lána þyngist.“ Innherji 15.3.2023 09:03 Bein útsending: Kynna yfirlýsingu nefndarinnar Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans mun kynna yfirlýsingu sína á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Hægt verður að fylgjast með fundinum í spilaranum að neðan. Viðskipti innlent 15.3.2023 09:01 Sitja ekki á óinnleystu tapi vegna skuldabréfa sem hafa lækkað í verði Íslensku viðskiptabankarnir fjórir sitja ekki á neinu óinnleystu tapi í bókum sínum í tengslum við mörg hundruð milljarða króna eign þeirra í skuldabréfum en ólíkt því sem átti við um Silicon Valley Bank (SVB), sem varð gjaldþrota fyrir helgi, eru slík verðbréf metin á markaðsvirði í reikningum bankanna hér á landi. Margir evrópskir bankar beita hins vegar sömu aðferð og SVB þar sem skuldabréfasafn þeirra er metið á kostnaðarverði en meðal annars vegna sterkrar lausafjárstöðu er ólíklegt að bankarnir neyðist til að selja þau bréf með afföllum, samkvæmt nýrri greiningu Moody´s. Innherji 15.3.2023 07:01 „Þetta er svona skjálfti sem ég held að gangi yfir“ Fjármálaráðherra segir eftirlit með bönkunum hafa verið eflt verulega á síðasta rúma áratug en hrun bandaríska bankans Silicon Valley sýni fram á mikilvægi þess að regluverkið um bankastarfsemi og fjármálafyrirtæki sér sterkt. Innlent 14.3.2023 21:01 Bankastjóri Arion: Ættum að njóta sömu lánskjara og önnur norræn ríki Ísland ætti á komandi árum að geta séð fram á betri fjármögnunarkjör á erlendum lánamörkuðum samhliða væntingum um að hugverkaiðnaður verði brátt ein helsta útflutningsstoð hagkerfisins, að sögn bankastjóra Arion. Fyrirliggjandi þjóðhagsspár vanmeta áætlanir um vöxt útflutningstekna og því eru líkur á að „hagvaxtarhorfur séu allt aðrar og miklu betri“. Innherji 10.3.2023 10:22 Gildi sér engin rök fyrir nýjum reglum um tilnefningarnefndir Gildi lífeyrissjóður hallast að því að nýleg lagaákvæði, sem lögfesta setu stjórnarmanns í tilnefningarnefndum banka og fela nefndunum það hlutverk að leggja mat á störf framkvæmdastjóra, þarfnist endurskoðunar. Enginn haldgóður rökstuðningur sé fyrir þessum breytingum og reynslan sýni að almennt sé óheppilegt að stjórnarmenn sitji í tilnefningarnefndum. Innherji 8.3.2023 06:58 RB sendi gögn um viðskiptavini indó á vitlausan banka Mistök urðu í gagnaafhendingu Reiknistofu bankanna (RB) sem varð til þess að gögn um fjárhagsfærslur viðskiptavina indó voru send inn í lokað tölvukerfi Kviku banka. Kvika hvorki skoðaði né rýndi í gögnin heldur var þeim tafarlaus eytt. Viðskipti innlent 7.3.2023 15:52 Seðlabankinn afnemur allar hömlur á binditíma verðtryggðra innlána Reglur sem kveða á um lágmarks binditíma á verðtryggðar innstæður í bönkunum, sem eru einkum í eigu heimilanna og nema hundruðum milljarða króna, verða afnumdar, að sögn seðlabankastjóra, en þær hafa verið í gildi frá því undir lok síðustu aldar. Breytingin gæti ýtt undir aukinn sparnað á tímum þegar verðbólgan hefur aukist hröðum skrefum og heimilin eru á ný farin að sækja í verðtryggð íbúðalán. Innherji 7.3.2023 10:55 Ekki auðveld ákvörðun framundan hjá fjölmörgum Deildarstjóri greiningar og fræðslu Íslandsbanka segir það mikilvægt að fólk fresti ekki vanda sínum þegar kemur að hærri greiðslubyrði á lánum. Fastir vextir á fjölmörgum lánum munu losna á næstu mánuðum og margir gætu lent í ansi miklum vandræðum fari stýrivöxtum og verðbólgu ekki lækkandi. Neytendur 4.3.2023 09:42 Umboðsmaður spyr um hæfi Bjarna vegna Íslandsbankasölunnar Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir svörum frá Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra um hæfi hans í tengslum við sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka til félags í eigu föður Bjarna. Innlent 3.3.2023 10:11 Fólk geti grætt umtalsvert með einu símtali til bankans Verðbólga er komin yfir tíu prósent í fyrsta sinn í fjórtán ár. Markaðsaðilar spá enn einni stýrivaxtahækkuninni í næsta mánuði og útlit er fyrir að verðbólgan verði þrálát. Dósent í fjármálum segir mikilvægt að fólk sem á pening á bankareikningum kanni hvort vextir á þeirra reikningum séu þeir bestu. Einstaklingur með tíu milljónir króna á almennum veltureikningi gæti grætt hálfa milljón á ári við það eitt að færa peninginn yfir á hagstæðari bankareikning. Viðskipti innlent 27.2.2023 20:00 Verðbólguþrýstingurinn meiri og almennari en spár gerðu ráð fyrir Verðbólgan jókst annan mánuðinn í röð og er nú komin yfir tíu prósent, þvert á væntingar greiningaraðila. Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir þetta áhyggjufulla þróun og að greiningaraðila þurfi að endurskoða forsendur fyrir sínum spám. Hættan á að verðbólgan verði þrálát og vextir hækki sé að aukast jafnt og þétt. Gert er ráð fyrir annarri stýrivaxtahækkun. Viðskipti innlent 27.2.2023 15:32 Agnar kemur inn í stjórn Íslandsbanka sem fulltrúi Bankasýslunnar Agnar Tómas Möller, sem starfaði síðast sem sjóðstjóri skuldabréfa hjá Kviku eignastýringu, kemur nýr inn í stjórn Íslandsbankabanka en bankinn á núna í viðræðum um samruna við Kviku. Er hann tilnefndur af Bankasýslunni, sem heldur utan um 42,5 prósenta hlut ríkisins í Íslandsbanka, en stofnunin fer núna með þrjá stjórnarmenn í stað fjögurra áður. Innherji 22.2.2023 19:46 Ný bílalán í methæðum árið 2022 og Arion sópaði til sín hlutdeild Ný bílalán banka til heimila námu ríflega 24 milljörðum króna á árinu 2022 og hafa aldrei verið meiri á einu ári. Ekki eru enn komin fram merki um að vaxtahækkanir síðustu missera hafi haft afgerandi áhrif á eftirspurn eftir bílalánum. Innherji 22.2.2023 14:51 Enn lækkar íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 0,5 prósent milli desember og janúar. Þetta er þriðja mánuðinn í röð sem íbúðaverð lækkaði. Ekki hafa verið undirritaðir færri kaupsamningar á mánuði síðan í janúar árið 2011. Viðskipti innlent 22.2.2023 10:18 Ráðinn til starfa í Hagfræðideild Landsbankans Hjalti Óskarsson hagfræðingur hefur verið ráðinn til starfa í Hagfræðideild Landsbankans. Viðskipti innlent 21.2.2023 14:14 Guðjón hættir hjá Arion banka Guðjón Kjartansson, sem hefur verið í fyrirtækjaráðgjöf Arion um nokkurt skeið, hefur sagt upp störfum hjá bankanum. Klinkið 20.2.2023 19:01 Lækkandi lausafjárhlutföll knúðu fram aukna samkeppni um innlán Samkeppni viðskiptabanka um innlán hefur aukist í takt við lækkandi lausafjárhlutföll bankanna og hefur þessi aukna samkeppni leitt til þess að vaxtamunur hefur minnkað nokkuð. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í verðmati greiningarfyrirtækisins Jakobsson Capital á Arion banka. Innherji 20.2.2023 11:58 „Við svona rússíbanahagkerfi verður ekki unað“ Formaður Neytendasamtakanna segir vaxtahækkanir viðskiptabankanna ekki koma á óvart, enda búi Íslendingar við fákeppni í neytendamálum á ýmsum sviðum. Hann kallar eftir aukinni samkeppni og segir sveiflur í hagkerfinu óviðunandi. Neytendur 18.2.2023 15:01 Landsbankinn hækkar líka vexti Landsbankinn hefur ákveðið að hækka bæði út- og innlánavexti eftir 0,5 prósentustiga stýrivaktahækkun Seðlabankans. Hinir stóru viðskiptabankarnir tveir tilkynntu einnig vaxtahækkun í dag. Viðskipti innlent 17.2.2023 18:49 Arion hækkar sömuleiðis vextina Arion banki hefur tilkynnt um hækkun inn- og útlánsvaxta í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabankans. Vaxtabreytingarnar taka gildi næstkomandi þriðjudag, 21. febrúar. Viðskipti innlent 17.2.2023 14:31 Hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkana Seðlabankans Íslandsbanki hefur tekið af skarið og hækkað vexti í samræmi við stýrivaxtahækkun Seðlabankans, sem var kynnt 8. febrúar síðastliðinn. Yfirdráttarvextir, breytilegir vextir óverðryggða húsnæðislána, breytilegir óverðtryggðir kjörvextir og fleiri tegundir vaxta hækka um 0,5 prósentustig í byrjun næstu viku. Neytendur 17.2.2023 11:23 Innistæðueigendur leggja minnst 21 milljón af mörkum til ESG Innistæður á grænum innlánsreikningum Arion banka eru í miklum vexti. Samkvæmt nýbirtri sjálfbærniskýrslu bankans hefur safnast rúmlega 21 milljarður á grænu reikningana en til samanburðar stóðu grænu innlánin í 8 milljörðum króna í lok árs 2021. Klinkið 16.2.2023 11:32 Kvika muni sjá til lands í samrunaviðræðum við Íslandsbanka „fyrr en seinna“ Hagnaður Kviku á fjórða ársfjórðungi eftir skatt minnkaði um rúmlega milljarð króna á fjórða ársfjórðungi og nam 1.613 milljónum sem skilaði sér í arðsemi á efnislegt eigið fé upp á 15,3 prósent. Afkoman litaðist af einskiptiskostnaði en forstjóri Kviku segir rekstur fjórðungsins hafa verið þann besta á liðnu ári og hann býst við að niðurstaða muni fást í viðræðum bankans um mögulegan samruna við Íslandsbanka innan ekki of langs tíma. Innherji 16.2.2023 08:20 Björn nýr framkvæmdastjóri hjá Arion banka Björn Björnsson hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Arion banka. Hann mun hefja störf þann 6. mars næstkomandi. Viðskipti innlent 15.2.2023 16:43 Truflanir í netbönkum vegna bilunar Bilun er nú í kerfum Reiknistofu bankanna sem veldur því að truflanir eru í greiðsluaðgerðum í netbönkum. Viðskipti innlent 13.2.2023 08:30 Hækkandi álag á bankabréfin „gróf verulega“ undan gjaldeyrismarkaðinum Seðlabankastjóri segjast hafa væntingar um að gengi krónunnar hafi náð lágmarki og það muni styrkjast þegar líður á árið. Mikil hækkun vaxtaálags á skuldabréf bankanna í erlendri mynt hafði talsverð neikvæð áhrif á gjaldeyrismarkaðinn á síðustu mánuðum ársins 2022 en nú er útlit fyrir að sú staða sé að breytast til hins betra. Innherji 11.2.2023 13:59 Ljóst að bankinn hefði átt að standa sig betur í „ákveðnum þáttum“ Finnur Árnason, stjórnarformaður Íslandsbanka, segir ljóst að bankinn, sem ráðgjafi í sölunni á 22,5 prósenta hlut ríkisins í mars 2022, hefði átt að standa sig betur í „ákveðnum þáttum“. Innherji 10.2.2023 13:38 Samruni bankanna hefði „mikil samlegðaráhrif á kostnaðarhliðinni“ Bankastjóri Íslandsbanka segir að samruni við Kviku sé „áhugavert tækifæri“ og myndi meðal annars hafa „mikil samlegðaráhrif á kostnaðarhliðinni“. Verði af sameiningu bankanna er gert ráð fyrir því að viðskiptin færu fram að öllu leyti með skiptum á hlutabréfum, fremur en að hluta með greiðslu reiðufjár. Innherji 10.2.2023 10:48 Siggeir og Albert frá Landsbankanum til Arion Siggeir Vilhjálmsson og Albert Guðmann Jónsson hafa hafið störf á viðskiptabankasviði Arion banka. Viðskipti innlent 10.2.2023 09:10 « ‹ 15 16 17 18 19 20 21 22 23 … 57 ›
Seðlabankinn hækkar eiginfjárkröfu á bankanna vegna aukinnar áhættu Þrátt fyrir að fjármálakerfið hér á landi „standi traustum fótum“ þá hefur fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands ákveðið að setja hærri eiginfjárkröfu á bankanna til að auka enn frekar viðnámsþrótt þeirra vegna innlendrar þenslu og aukinnar áhættu á erlendum mörkuðum. Þá hafa fjármálaskilyrði heimila farið versnandi og útlit er fyrir að verðbólga verði „þrálát og greiðslubyrði lána þyngist.“ Innherji 15.3.2023 09:03
Bein útsending: Kynna yfirlýsingu nefndarinnar Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans mun kynna yfirlýsingu sína á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Hægt verður að fylgjast með fundinum í spilaranum að neðan. Viðskipti innlent 15.3.2023 09:01
Sitja ekki á óinnleystu tapi vegna skuldabréfa sem hafa lækkað í verði Íslensku viðskiptabankarnir fjórir sitja ekki á neinu óinnleystu tapi í bókum sínum í tengslum við mörg hundruð milljarða króna eign þeirra í skuldabréfum en ólíkt því sem átti við um Silicon Valley Bank (SVB), sem varð gjaldþrota fyrir helgi, eru slík verðbréf metin á markaðsvirði í reikningum bankanna hér á landi. Margir evrópskir bankar beita hins vegar sömu aðferð og SVB þar sem skuldabréfasafn þeirra er metið á kostnaðarverði en meðal annars vegna sterkrar lausafjárstöðu er ólíklegt að bankarnir neyðist til að selja þau bréf með afföllum, samkvæmt nýrri greiningu Moody´s. Innherji 15.3.2023 07:01
„Þetta er svona skjálfti sem ég held að gangi yfir“ Fjármálaráðherra segir eftirlit með bönkunum hafa verið eflt verulega á síðasta rúma áratug en hrun bandaríska bankans Silicon Valley sýni fram á mikilvægi þess að regluverkið um bankastarfsemi og fjármálafyrirtæki sér sterkt. Innlent 14.3.2023 21:01
Bankastjóri Arion: Ættum að njóta sömu lánskjara og önnur norræn ríki Ísland ætti á komandi árum að geta séð fram á betri fjármögnunarkjör á erlendum lánamörkuðum samhliða væntingum um að hugverkaiðnaður verði brátt ein helsta útflutningsstoð hagkerfisins, að sögn bankastjóra Arion. Fyrirliggjandi þjóðhagsspár vanmeta áætlanir um vöxt útflutningstekna og því eru líkur á að „hagvaxtarhorfur séu allt aðrar og miklu betri“. Innherji 10.3.2023 10:22
Gildi sér engin rök fyrir nýjum reglum um tilnefningarnefndir Gildi lífeyrissjóður hallast að því að nýleg lagaákvæði, sem lögfesta setu stjórnarmanns í tilnefningarnefndum banka og fela nefndunum það hlutverk að leggja mat á störf framkvæmdastjóra, þarfnist endurskoðunar. Enginn haldgóður rökstuðningur sé fyrir þessum breytingum og reynslan sýni að almennt sé óheppilegt að stjórnarmenn sitji í tilnefningarnefndum. Innherji 8.3.2023 06:58
RB sendi gögn um viðskiptavini indó á vitlausan banka Mistök urðu í gagnaafhendingu Reiknistofu bankanna (RB) sem varð til þess að gögn um fjárhagsfærslur viðskiptavina indó voru send inn í lokað tölvukerfi Kviku banka. Kvika hvorki skoðaði né rýndi í gögnin heldur var þeim tafarlaus eytt. Viðskipti innlent 7.3.2023 15:52
Seðlabankinn afnemur allar hömlur á binditíma verðtryggðra innlána Reglur sem kveða á um lágmarks binditíma á verðtryggðar innstæður í bönkunum, sem eru einkum í eigu heimilanna og nema hundruðum milljarða króna, verða afnumdar, að sögn seðlabankastjóra, en þær hafa verið í gildi frá því undir lok síðustu aldar. Breytingin gæti ýtt undir aukinn sparnað á tímum þegar verðbólgan hefur aukist hröðum skrefum og heimilin eru á ný farin að sækja í verðtryggð íbúðalán. Innherji 7.3.2023 10:55
Ekki auðveld ákvörðun framundan hjá fjölmörgum Deildarstjóri greiningar og fræðslu Íslandsbanka segir það mikilvægt að fólk fresti ekki vanda sínum þegar kemur að hærri greiðslubyrði á lánum. Fastir vextir á fjölmörgum lánum munu losna á næstu mánuðum og margir gætu lent í ansi miklum vandræðum fari stýrivöxtum og verðbólgu ekki lækkandi. Neytendur 4.3.2023 09:42
Umboðsmaður spyr um hæfi Bjarna vegna Íslandsbankasölunnar Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir svörum frá Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra um hæfi hans í tengslum við sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka til félags í eigu föður Bjarna. Innlent 3.3.2023 10:11
Fólk geti grætt umtalsvert með einu símtali til bankans Verðbólga er komin yfir tíu prósent í fyrsta sinn í fjórtán ár. Markaðsaðilar spá enn einni stýrivaxtahækkuninni í næsta mánuði og útlit er fyrir að verðbólgan verði þrálát. Dósent í fjármálum segir mikilvægt að fólk sem á pening á bankareikningum kanni hvort vextir á þeirra reikningum séu þeir bestu. Einstaklingur með tíu milljónir króna á almennum veltureikningi gæti grætt hálfa milljón á ári við það eitt að færa peninginn yfir á hagstæðari bankareikning. Viðskipti innlent 27.2.2023 20:00
Verðbólguþrýstingurinn meiri og almennari en spár gerðu ráð fyrir Verðbólgan jókst annan mánuðinn í röð og er nú komin yfir tíu prósent, þvert á væntingar greiningaraðila. Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir þetta áhyggjufulla þróun og að greiningaraðila þurfi að endurskoða forsendur fyrir sínum spám. Hættan á að verðbólgan verði þrálát og vextir hækki sé að aukast jafnt og þétt. Gert er ráð fyrir annarri stýrivaxtahækkun. Viðskipti innlent 27.2.2023 15:32
Agnar kemur inn í stjórn Íslandsbanka sem fulltrúi Bankasýslunnar Agnar Tómas Möller, sem starfaði síðast sem sjóðstjóri skuldabréfa hjá Kviku eignastýringu, kemur nýr inn í stjórn Íslandsbankabanka en bankinn á núna í viðræðum um samruna við Kviku. Er hann tilnefndur af Bankasýslunni, sem heldur utan um 42,5 prósenta hlut ríkisins í Íslandsbanka, en stofnunin fer núna með þrjá stjórnarmenn í stað fjögurra áður. Innherji 22.2.2023 19:46
Ný bílalán í methæðum árið 2022 og Arion sópaði til sín hlutdeild Ný bílalán banka til heimila námu ríflega 24 milljörðum króna á árinu 2022 og hafa aldrei verið meiri á einu ári. Ekki eru enn komin fram merki um að vaxtahækkanir síðustu missera hafi haft afgerandi áhrif á eftirspurn eftir bílalánum. Innherji 22.2.2023 14:51
Enn lækkar íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 0,5 prósent milli desember og janúar. Þetta er þriðja mánuðinn í röð sem íbúðaverð lækkaði. Ekki hafa verið undirritaðir færri kaupsamningar á mánuði síðan í janúar árið 2011. Viðskipti innlent 22.2.2023 10:18
Ráðinn til starfa í Hagfræðideild Landsbankans Hjalti Óskarsson hagfræðingur hefur verið ráðinn til starfa í Hagfræðideild Landsbankans. Viðskipti innlent 21.2.2023 14:14
Guðjón hættir hjá Arion banka Guðjón Kjartansson, sem hefur verið í fyrirtækjaráðgjöf Arion um nokkurt skeið, hefur sagt upp störfum hjá bankanum. Klinkið 20.2.2023 19:01
Lækkandi lausafjárhlutföll knúðu fram aukna samkeppni um innlán Samkeppni viðskiptabanka um innlán hefur aukist í takt við lækkandi lausafjárhlutföll bankanna og hefur þessi aukna samkeppni leitt til þess að vaxtamunur hefur minnkað nokkuð. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í verðmati greiningarfyrirtækisins Jakobsson Capital á Arion banka. Innherji 20.2.2023 11:58
„Við svona rússíbanahagkerfi verður ekki unað“ Formaður Neytendasamtakanna segir vaxtahækkanir viðskiptabankanna ekki koma á óvart, enda búi Íslendingar við fákeppni í neytendamálum á ýmsum sviðum. Hann kallar eftir aukinni samkeppni og segir sveiflur í hagkerfinu óviðunandi. Neytendur 18.2.2023 15:01
Landsbankinn hækkar líka vexti Landsbankinn hefur ákveðið að hækka bæði út- og innlánavexti eftir 0,5 prósentustiga stýrivaktahækkun Seðlabankans. Hinir stóru viðskiptabankarnir tveir tilkynntu einnig vaxtahækkun í dag. Viðskipti innlent 17.2.2023 18:49
Arion hækkar sömuleiðis vextina Arion banki hefur tilkynnt um hækkun inn- og útlánsvaxta í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabankans. Vaxtabreytingarnar taka gildi næstkomandi þriðjudag, 21. febrúar. Viðskipti innlent 17.2.2023 14:31
Hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkana Seðlabankans Íslandsbanki hefur tekið af skarið og hækkað vexti í samræmi við stýrivaxtahækkun Seðlabankans, sem var kynnt 8. febrúar síðastliðinn. Yfirdráttarvextir, breytilegir vextir óverðryggða húsnæðislána, breytilegir óverðtryggðir kjörvextir og fleiri tegundir vaxta hækka um 0,5 prósentustig í byrjun næstu viku. Neytendur 17.2.2023 11:23
Innistæðueigendur leggja minnst 21 milljón af mörkum til ESG Innistæður á grænum innlánsreikningum Arion banka eru í miklum vexti. Samkvæmt nýbirtri sjálfbærniskýrslu bankans hefur safnast rúmlega 21 milljarður á grænu reikningana en til samanburðar stóðu grænu innlánin í 8 milljörðum króna í lok árs 2021. Klinkið 16.2.2023 11:32
Kvika muni sjá til lands í samrunaviðræðum við Íslandsbanka „fyrr en seinna“ Hagnaður Kviku á fjórða ársfjórðungi eftir skatt minnkaði um rúmlega milljarð króna á fjórða ársfjórðungi og nam 1.613 milljónum sem skilaði sér í arðsemi á efnislegt eigið fé upp á 15,3 prósent. Afkoman litaðist af einskiptiskostnaði en forstjóri Kviku segir rekstur fjórðungsins hafa verið þann besta á liðnu ári og hann býst við að niðurstaða muni fást í viðræðum bankans um mögulegan samruna við Íslandsbanka innan ekki of langs tíma. Innherji 16.2.2023 08:20
Björn nýr framkvæmdastjóri hjá Arion banka Björn Björnsson hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Arion banka. Hann mun hefja störf þann 6. mars næstkomandi. Viðskipti innlent 15.2.2023 16:43
Truflanir í netbönkum vegna bilunar Bilun er nú í kerfum Reiknistofu bankanna sem veldur því að truflanir eru í greiðsluaðgerðum í netbönkum. Viðskipti innlent 13.2.2023 08:30
Hækkandi álag á bankabréfin „gróf verulega“ undan gjaldeyrismarkaðinum Seðlabankastjóri segjast hafa væntingar um að gengi krónunnar hafi náð lágmarki og það muni styrkjast þegar líður á árið. Mikil hækkun vaxtaálags á skuldabréf bankanna í erlendri mynt hafði talsverð neikvæð áhrif á gjaldeyrismarkaðinn á síðustu mánuðum ársins 2022 en nú er útlit fyrir að sú staða sé að breytast til hins betra. Innherji 11.2.2023 13:59
Ljóst að bankinn hefði átt að standa sig betur í „ákveðnum þáttum“ Finnur Árnason, stjórnarformaður Íslandsbanka, segir ljóst að bankinn, sem ráðgjafi í sölunni á 22,5 prósenta hlut ríkisins í mars 2022, hefði átt að standa sig betur í „ákveðnum þáttum“. Innherji 10.2.2023 13:38
Samruni bankanna hefði „mikil samlegðaráhrif á kostnaðarhliðinni“ Bankastjóri Íslandsbanka segir að samruni við Kviku sé „áhugavert tækifæri“ og myndi meðal annars hafa „mikil samlegðaráhrif á kostnaðarhliðinni“. Verði af sameiningu bankanna er gert ráð fyrir því að viðskiptin færu fram að öllu leyti með skiptum á hlutabréfum, fremur en að hluta með greiðslu reiðufjár. Innherji 10.2.2023 10:48
Siggeir og Albert frá Landsbankanum til Arion Siggeir Vilhjálmsson og Albert Guðmann Jónsson hafa hafið störf á viðskiptabankasviði Arion banka. Viðskipti innlent 10.2.2023 09:10