Rússland Ísland búi sig undir hörð viðbrögð af hálfu Rússa Stjórnmálafræðiprófessor telur að Ísland þurfi að vera viðbúið því að verða fyrir barðinu á refsiaðgerðum Rússa, ef Finnland og Svíþjóð sækjast eftir aðild að NATO. Velta megi fyrir sér hvort Ísland sé „veikasti hlekkurinn í varnarkeðju NATO.“ Innlent 14.4.2022 12:00 Vaktin: Taldir hafa grandað einu helsta flaggskipi rússneska sjóhersins Iryna Vereshchuk, varaforsætisráðherra Úkraínu, segir ekki mögulegt að opna nein mannúðarhlið í dag. Hún sakar Rússa um að brjóta gegn fyrirfram ákveðnum vopnahléum og að hindra för þeirra sem freista þess að komast burtu frá átakasvæðum. Erlent 13.4.2022 06:41 Stríðsvél Pútín verði ekki stöðvuð nema með því að beita fullu afli „Við höfum lært þrennt það sem af er stríðsins. Í fyrsta lagi að samningaviðræður við Pútín skila engu; hvorki viðræður fyrir né eftir innrásina hafa skilað nokkru. Friðarviðræðurnar eru komnar í öngstræti.“ Erlent 13.4.2022 10:47 Vaktin: Segir sönnunargögn um þjóðarmorð Pútíns hrannast upp Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagðist í daglegu ávarpi sínu í gærkvöldi óttast að Rússar myndu beita efnavopnum en fullyrti ekki að þau hefðu verið notuð. Fyrr í gær var því haldið fram að efnavopnasprengja hefði verið látin falla á Maríupól. Erlent 12.4.2022 06:54 „Slátrarinn í Sýrlandi“ tekur við stjórn hersins í Úkraínu Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur skipað nýjan herforingja til að taka yfir stjórn innrásarinnar í Úkraínu. Sá heitir Aleksandr Dvornikov en er gjarnan kallaður „Slátrarinn í Sýrlandi“. Herforinginn tók við stjórn innrásarinnar um helgina en hingað til hefur enginn einn herforingi haldið utan um hernaðaraðgerðir Rússa. Erlent 12.4.2022 10:50 Segja Rússa beita efnavopnum í Maríupol Úkraínsk stjórnvöld hafa sakað Rússaher um að notast við efnavopn við Maríupol, hafnarborg í suðausturhluta landsins. Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna fylgist með málinu en hefur ekki viljað staðfesta fregnir af árásinni. Erlent 11.4.2022 22:55 Vaktin: Úkraínskar hersveitir búa sig undir síðasta bardagann í Maríupól Breska varnamálaráðuneytið varar við því að Rússar muni mögulega nota fosfór-vopn í Maríupól, líkt og þeir hafa áður gert í Donetsk. Þeir segja notkun Rússa á ónákvæmum sprengjum stórauka hættuna á dauða almennra borgara. Erlent 11.4.2022 06:39 Rýnt í stöðuna: Vopnakapphlaup í austri Rússar vinna enn hörðum höndum að því að koma liðsauka til hersveita í austurhluta Úkraínu. Markmið þeirra er að ná fullum tökum á og halda Donbas-héraði en miklar efasemdir eru uppi um það hvort Rússar geti það yfir höfuð. Erlent 11.4.2022 15:01 Vaktin: „Sannleikurinn mun sigra“ Ríkissaksóknari Úkraínu segir að rúmlega tólf hundruð lík hafi fundist í nágrenni við Kænugarð eftir að Rússar drógu herlið sitt til baka. Þá eru Rússar grunaðir um að hafa framið rúmlega 5.600 stríðsglæpi í Úkraínu frá því að innrásin hófst. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í Úkraínu í dag og í kvöld. Erlent 10.4.2022 08:53 Fyrrum ráðgjafi Pútíns segir að „alvöru viðskiptabann“ myndi binda enda á stríðið „Raunverulegt innflutningsbann“ á orku frá Rússlandi gæti orðið til þess fallið að binda enda á stríðið í Úkraínu, að mati fyrrverandi efnahagsráðgjafa Vladimírs Pútín Rússlandsforseta. Erlent 10.4.2022 16:32 Segir árásina á lestarstöðina enn eitt dæmið um stríðsglæpi Rússa Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir árás rússneskra hersveita á lestarstöð í Kramatorsk vera enn eitt dæmið um þá stríðsglæpi sem Rússar hafa framið í Úkraínu og kallar hann eftir réttarhöldum. Rússar neita sök en utanríkisráðherra Úkraínu segir að um slátrun hafi verið að ræða og varnamálaráðuneyti Bretlands telur ljóst að rússneskar hersveitir hafi ráðist vísvitandi á almenna borgara. Erlent 9.4.2022 08:15 Hengdu blóðugar dúkkur á grindverk sendiráðs Rússlands Úkraínskar konur sem búa hér á landi stilltu upp blóðugum dúkum við rússneska sendiráðið í Reykjavík í dag og vilja að sendiherra Rússlands verði vísað úr landi. Utanríkisráðherra útilokar ekki að það verði gert. Innlent 8.4.2022 20:31 Finnar sparka líka rússneskum embættismönnum úr landi Stjórnvöld í Finnlandi hafa ákveðið að sparka tveimur rússneskum embættismönnum úr landi vegna innrásar Rússa inn í Úkraínu. Ísland er þar með eina ríkið á Norðurlöndum sem ekki hefur vísað rússneskum embættismönnum úr landi. Erlent 8.4.2022 13:36 39 látnir í Kramatorsk en Rússar segjast alsaklausir Að minnsta kosti 39 eru látnir og um 90 slasaðir eftir að árás var gerð á lestarstöðina í Kramatorsk, þar sem talið er að um 4.000 manns almennir borgara hafi beðið eftir að komast burtu frá Donbas. Erlent 8.4.2022 12:46 Vaktin: Evrópusambandið bætir í refsiaðgerðir Yfirvöld í Úkraínu segja Rússa nú gera árásir á Odesa frá Svartahafi. Innviðir hafi orðið fyrir skemmdum. Breska varnarmálaráðuneytið segir að svo virðist sem Rússar hafi nú alfarið yfirgefið norðurhluta landsins. Erlent 8.4.2022 06:49 Hleruðu rússneska hermenn ræða morð á íbúum Bucha Leyniþjónusta Þýskalands (BND) hleraði samskipti milli rússneskra hermanna þar sem þeir meðal annars ræddu það að skjóta almenna borgara. Talið er mögulegt að umræðurnar tengist morðum á íbúum Bucha, norður af Kænugarði. Erlent 7.4.2022 23:40 Vaktin: Sagðir eiga í töluverðum agavandræðum Meirihluti allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna greiddi atkvæði í dag um að víkja Rússum úr Mannréttindaráðinu. Utanríkisráðherra Úkraínu fagnaði niðurstöðunni en hann sagði stríðsglæpamenn ekki eiga erindi í ráð sem hafi það að markmiðið að vernda mannréttindi. Erlent 7.4.2022 06:45 Aðeins í annað sinn í sögunni sem landi er vikið úr Mannréttindaráðinu Meirihluti allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna samþykkti í dag að víkja Rússum úr Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna fyrir gróf og kerfisbundin brot á mannréttindum en 93 greiddu atkvæði með tillögunni, 24 greiddu atkvæði á móti, og 58 sátu hjá. Þetta er í annað sinn sem landi er vikið úr ráðinu vegna brota á mannréttindum og í fyrsta sinn sem land sem á sæti í Öryggisráðinu er vikið úr ráði Sameinuðu þjóðanna. Erlent 7.4.2022 16:43 Fleiri lík finnast og Lúkasjenkó vill aðkomu að viðræðunum Washington Post hefur birt sláandi frétt frá Bucha, þar sem fleiri lík finnast á hverjum degi. Ein verstu hroðaverkin sem Rússar frömdu í bænum áttu sér stað í glerverksmiðju við jaðar bæjarins. Erlent 7.4.2022 12:35 Vaktin: Tíu eldflaugar fyrir hvern rússneskan skriðdreka Yfirvöld í Úkraínu segjast hafa 4.700 mögulega stríðsglæpi Rússa til rannsóknar. Þau segja 167 úkraínsk börn hafa látið lífið frá því að innrásin hófst. Erlend ríki vinna einnig að því að safna sönnunargögnum um hroðaverk innrásarhersins, sem ráðamenn í Rússlandi segja ýmist hafa verið skipulögð af Vesturlöndum eða nasistum. Erlent 6.4.2022 06:35 „Mun aldrei nást friður eða vopnahlé ef við erum bara í einhverjum kór“ Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, segir mikilvægt að átta sig á því hvernig almenningur í Rússlandi hugsi. Stríðið í Úkraínu muni ekki hafa einfalda skyndilausn og tíst sem hann hafi sent frá sér séu ekki til marks um nokkurskonar stuðning hans við Vladimír Pútín, forseta Rússlands. Innlent 6.4.2022 20:46 Bandaríkin beina spjótum sínum að dætrum Pútíns Bandaríkin, ásamt öðrum G7-ríkjum og Evrópusambandinu, hafa tilkynnt um hertar refsiaðgerðir gegn Rússum, meðal annars vegna hryllingsins í Bucha. Bandaríkin segjast munu sjá til þess að hinir seku verði sóttir til saka og eru refsiaðgerðirnar liður í því. Bandaríkin hafa til að mynda ákveðið að beita fullorðnar dætur Pútíns refsiaðgerðum. Erlent 6.4.2022 15:25 Vladimír Sjírínovskí látinn af völdum Covid-19 Rússneski stjórnmálamaðurinn og öfgaþjóðernissinninn Vladimír Sjírínovskí er látinn, 75 ára að aldri. Hann lést af völdum Covid-19 og hafði legið inni á sjúkrahúsi vegna veikindanna um margra vikna skeið. Erlent 6.4.2022 11:13 Vaktin: Undanhaldi Rússa frá Kænugarði að ljúka Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kemur til með að ávarpa öryggisráð Sameinuð þjóðanna í dag en þetta er í fyrsta sinn sem hann ávarpar ráðið frá því að innrás Rússa hófst í febrúar. Erlent 5.4.2022 06:32 Úkraínuforseti vill Rússa út úr öryggisráðinu og draga þá fyrir stríðsglæpadómstól Forseti Úkraínu hvetur til þess að Rússar verði reknir úr öryggisráði Sameinuðu þjóðanna fyrir stríðsglæpi og Evrópusambandið ætlar að banna innflutning á kolum frá Rússlandi og skipum þaðan að koma til evrópskra hafna. Innlent 5.4.2022 21:30 Vilja til Rússlands en flykkjast til Íslands í sumar Ísland er orðið eftirsóttasta laxveiðilandið nú þegar erfitt er að komast til Rússlands að veiða. Það stefnir allt í gott laxveiðisumar í ár. Innlent 5.4.2022 21:01 Segir hryllinginn í Bucha aðeins eitt dæmi af mörgum og krefst aðgerða Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kom saman til fundar í New York í dag en Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, ávarpaði meðal annars ráðið í gegnum fjarfundarbúnað. Hann lýsti hryllingnum í Bucha, og víðar, kallaði eftir alvöru aðgerðum og gagnrýndi viðbrögð alþjóðasamfélagsins við stríðsglæpum Rússa. Erlent 5.4.2022 15:52 Útilokar ekki að vísa starfsmönnum sendiráðs Rússa úr landi Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra segist reikna með frekari viðskiptaþvingunum í garð Rússlands eftir nýleg tíðindi af fjöldamorðum Rússa í úkraínskum bæjum, þar á meðal Bucha. Innlent 5.4.2022 13:55 Sindri þekkti bæjarstjórann sem Rússar skutu: Þetta hefðu getað verið við Íslenskur maður sem flúði Kænugarð segir mikla heppni að hann hafi ekki verið fluttur inn í hús sem hann var að byggja í bænum Motishin. Hann þekkti bæjarstjórann þar vel sem fannst í gær látin ásamt eiginmanni sínum og syni. Þau höfðu verið skotin af Rússum. Erlent 5.4.2022 12:01 Danir sparka fimmtán rússneskum embættismönnum úr landi Dönsk stjórnvöld hafa ákveðið að vísa fimmtán rússneskum embættismönnum úr landi. Jeppe Kofod, utanríkisráðherra Danmerkur, greindi frá því í morgun að utanríkismálanefnd landsins hafi komist að þessari niðurstöðu. Erlent 5.4.2022 09:04 « ‹ 48 49 50 51 52 53 54 55 56 … 97 ›
Ísland búi sig undir hörð viðbrögð af hálfu Rússa Stjórnmálafræðiprófessor telur að Ísland þurfi að vera viðbúið því að verða fyrir barðinu á refsiaðgerðum Rússa, ef Finnland og Svíþjóð sækjast eftir aðild að NATO. Velta megi fyrir sér hvort Ísland sé „veikasti hlekkurinn í varnarkeðju NATO.“ Innlent 14.4.2022 12:00
Vaktin: Taldir hafa grandað einu helsta flaggskipi rússneska sjóhersins Iryna Vereshchuk, varaforsætisráðherra Úkraínu, segir ekki mögulegt að opna nein mannúðarhlið í dag. Hún sakar Rússa um að brjóta gegn fyrirfram ákveðnum vopnahléum og að hindra för þeirra sem freista þess að komast burtu frá átakasvæðum. Erlent 13.4.2022 06:41
Stríðsvél Pútín verði ekki stöðvuð nema með því að beita fullu afli „Við höfum lært þrennt það sem af er stríðsins. Í fyrsta lagi að samningaviðræður við Pútín skila engu; hvorki viðræður fyrir né eftir innrásina hafa skilað nokkru. Friðarviðræðurnar eru komnar í öngstræti.“ Erlent 13.4.2022 10:47
Vaktin: Segir sönnunargögn um þjóðarmorð Pútíns hrannast upp Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagðist í daglegu ávarpi sínu í gærkvöldi óttast að Rússar myndu beita efnavopnum en fullyrti ekki að þau hefðu verið notuð. Fyrr í gær var því haldið fram að efnavopnasprengja hefði verið látin falla á Maríupól. Erlent 12.4.2022 06:54
„Slátrarinn í Sýrlandi“ tekur við stjórn hersins í Úkraínu Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur skipað nýjan herforingja til að taka yfir stjórn innrásarinnar í Úkraínu. Sá heitir Aleksandr Dvornikov en er gjarnan kallaður „Slátrarinn í Sýrlandi“. Herforinginn tók við stjórn innrásarinnar um helgina en hingað til hefur enginn einn herforingi haldið utan um hernaðaraðgerðir Rússa. Erlent 12.4.2022 10:50
Segja Rússa beita efnavopnum í Maríupol Úkraínsk stjórnvöld hafa sakað Rússaher um að notast við efnavopn við Maríupol, hafnarborg í suðausturhluta landsins. Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna fylgist með málinu en hefur ekki viljað staðfesta fregnir af árásinni. Erlent 11.4.2022 22:55
Vaktin: Úkraínskar hersveitir búa sig undir síðasta bardagann í Maríupól Breska varnamálaráðuneytið varar við því að Rússar muni mögulega nota fosfór-vopn í Maríupól, líkt og þeir hafa áður gert í Donetsk. Þeir segja notkun Rússa á ónákvæmum sprengjum stórauka hættuna á dauða almennra borgara. Erlent 11.4.2022 06:39
Rýnt í stöðuna: Vopnakapphlaup í austri Rússar vinna enn hörðum höndum að því að koma liðsauka til hersveita í austurhluta Úkraínu. Markmið þeirra er að ná fullum tökum á og halda Donbas-héraði en miklar efasemdir eru uppi um það hvort Rússar geti það yfir höfuð. Erlent 11.4.2022 15:01
Vaktin: „Sannleikurinn mun sigra“ Ríkissaksóknari Úkraínu segir að rúmlega tólf hundruð lík hafi fundist í nágrenni við Kænugarð eftir að Rússar drógu herlið sitt til baka. Þá eru Rússar grunaðir um að hafa framið rúmlega 5.600 stríðsglæpi í Úkraínu frá því að innrásin hófst. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í Úkraínu í dag og í kvöld. Erlent 10.4.2022 08:53
Fyrrum ráðgjafi Pútíns segir að „alvöru viðskiptabann“ myndi binda enda á stríðið „Raunverulegt innflutningsbann“ á orku frá Rússlandi gæti orðið til þess fallið að binda enda á stríðið í Úkraínu, að mati fyrrverandi efnahagsráðgjafa Vladimírs Pútín Rússlandsforseta. Erlent 10.4.2022 16:32
Segir árásina á lestarstöðina enn eitt dæmið um stríðsglæpi Rússa Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir árás rússneskra hersveita á lestarstöð í Kramatorsk vera enn eitt dæmið um þá stríðsglæpi sem Rússar hafa framið í Úkraínu og kallar hann eftir réttarhöldum. Rússar neita sök en utanríkisráðherra Úkraínu segir að um slátrun hafi verið að ræða og varnamálaráðuneyti Bretlands telur ljóst að rússneskar hersveitir hafi ráðist vísvitandi á almenna borgara. Erlent 9.4.2022 08:15
Hengdu blóðugar dúkkur á grindverk sendiráðs Rússlands Úkraínskar konur sem búa hér á landi stilltu upp blóðugum dúkum við rússneska sendiráðið í Reykjavík í dag og vilja að sendiherra Rússlands verði vísað úr landi. Utanríkisráðherra útilokar ekki að það verði gert. Innlent 8.4.2022 20:31
Finnar sparka líka rússneskum embættismönnum úr landi Stjórnvöld í Finnlandi hafa ákveðið að sparka tveimur rússneskum embættismönnum úr landi vegna innrásar Rússa inn í Úkraínu. Ísland er þar með eina ríkið á Norðurlöndum sem ekki hefur vísað rússneskum embættismönnum úr landi. Erlent 8.4.2022 13:36
39 látnir í Kramatorsk en Rússar segjast alsaklausir Að minnsta kosti 39 eru látnir og um 90 slasaðir eftir að árás var gerð á lestarstöðina í Kramatorsk, þar sem talið er að um 4.000 manns almennir borgara hafi beðið eftir að komast burtu frá Donbas. Erlent 8.4.2022 12:46
Vaktin: Evrópusambandið bætir í refsiaðgerðir Yfirvöld í Úkraínu segja Rússa nú gera árásir á Odesa frá Svartahafi. Innviðir hafi orðið fyrir skemmdum. Breska varnarmálaráðuneytið segir að svo virðist sem Rússar hafi nú alfarið yfirgefið norðurhluta landsins. Erlent 8.4.2022 06:49
Hleruðu rússneska hermenn ræða morð á íbúum Bucha Leyniþjónusta Þýskalands (BND) hleraði samskipti milli rússneskra hermanna þar sem þeir meðal annars ræddu það að skjóta almenna borgara. Talið er mögulegt að umræðurnar tengist morðum á íbúum Bucha, norður af Kænugarði. Erlent 7.4.2022 23:40
Vaktin: Sagðir eiga í töluverðum agavandræðum Meirihluti allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna greiddi atkvæði í dag um að víkja Rússum úr Mannréttindaráðinu. Utanríkisráðherra Úkraínu fagnaði niðurstöðunni en hann sagði stríðsglæpamenn ekki eiga erindi í ráð sem hafi það að markmiðið að vernda mannréttindi. Erlent 7.4.2022 06:45
Aðeins í annað sinn í sögunni sem landi er vikið úr Mannréttindaráðinu Meirihluti allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna samþykkti í dag að víkja Rússum úr Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna fyrir gróf og kerfisbundin brot á mannréttindum en 93 greiddu atkvæði með tillögunni, 24 greiddu atkvæði á móti, og 58 sátu hjá. Þetta er í annað sinn sem landi er vikið úr ráðinu vegna brota á mannréttindum og í fyrsta sinn sem land sem á sæti í Öryggisráðinu er vikið úr ráði Sameinuðu þjóðanna. Erlent 7.4.2022 16:43
Fleiri lík finnast og Lúkasjenkó vill aðkomu að viðræðunum Washington Post hefur birt sláandi frétt frá Bucha, þar sem fleiri lík finnast á hverjum degi. Ein verstu hroðaverkin sem Rússar frömdu í bænum áttu sér stað í glerverksmiðju við jaðar bæjarins. Erlent 7.4.2022 12:35
Vaktin: Tíu eldflaugar fyrir hvern rússneskan skriðdreka Yfirvöld í Úkraínu segjast hafa 4.700 mögulega stríðsglæpi Rússa til rannsóknar. Þau segja 167 úkraínsk börn hafa látið lífið frá því að innrásin hófst. Erlend ríki vinna einnig að því að safna sönnunargögnum um hroðaverk innrásarhersins, sem ráðamenn í Rússlandi segja ýmist hafa verið skipulögð af Vesturlöndum eða nasistum. Erlent 6.4.2022 06:35
„Mun aldrei nást friður eða vopnahlé ef við erum bara í einhverjum kór“ Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, segir mikilvægt að átta sig á því hvernig almenningur í Rússlandi hugsi. Stríðið í Úkraínu muni ekki hafa einfalda skyndilausn og tíst sem hann hafi sent frá sér séu ekki til marks um nokkurskonar stuðning hans við Vladimír Pútín, forseta Rússlands. Innlent 6.4.2022 20:46
Bandaríkin beina spjótum sínum að dætrum Pútíns Bandaríkin, ásamt öðrum G7-ríkjum og Evrópusambandinu, hafa tilkynnt um hertar refsiaðgerðir gegn Rússum, meðal annars vegna hryllingsins í Bucha. Bandaríkin segjast munu sjá til þess að hinir seku verði sóttir til saka og eru refsiaðgerðirnar liður í því. Bandaríkin hafa til að mynda ákveðið að beita fullorðnar dætur Pútíns refsiaðgerðum. Erlent 6.4.2022 15:25
Vladimír Sjírínovskí látinn af völdum Covid-19 Rússneski stjórnmálamaðurinn og öfgaþjóðernissinninn Vladimír Sjírínovskí er látinn, 75 ára að aldri. Hann lést af völdum Covid-19 og hafði legið inni á sjúkrahúsi vegna veikindanna um margra vikna skeið. Erlent 6.4.2022 11:13
Vaktin: Undanhaldi Rússa frá Kænugarði að ljúka Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kemur til með að ávarpa öryggisráð Sameinuð þjóðanna í dag en þetta er í fyrsta sinn sem hann ávarpar ráðið frá því að innrás Rússa hófst í febrúar. Erlent 5.4.2022 06:32
Úkraínuforseti vill Rússa út úr öryggisráðinu og draga þá fyrir stríðsglæpadómstól Forseti Úkraínu hvetur til þess að Rússar verði reknir úr öryggisráði Sameinuðu þjóðanna fyrir stríðsglæpi og Evrópusambandið ætlar að banna innflutning á kolum frá Rússlandi og skipum þaðan að koma til evrópskra hafna. Innlent 5.4.2022 21:30
Vilja til Rússlands en flykkjast til Íslands í sumar Ísland er orðið eftirsóttasta laxveiðilandið nú þegar erfitt er að komast til Rússlands að veiða. Það stefnir allt í gott laxveiðisumar í ár. Innlent 5.4.2022 21:01
Segir hryllinginn í Bucha aðeins eitt dæmi af mörgum og krefst aðgerða Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kom saman til fundar í New York í dag en Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, ávarpaði meðal annars ráðið í gegnum fjarfundarbúnað. Hann lýsti hryllingnum í Bucha, og víðar, kallaði eftir alvöru aðgerðum og gagnrýndi viðbrögð alþjóðasamfélagsins við stríðsglæpum Rússa. Erlent 5.4.2022 15:52
Útilokar ekki að vísa starfsmönnum sendiráðs Rússa úr landi Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra segist reikna með frekari viðskiptaþvingunum í garð Rússlands eftir nýleg tíðindi af fjöldamorðum Rússa í úkraínskum bæjum, þar á meðal Bucha. Innlent 5.4.2022 13:55
Sindri þekkti bæjarstjórann sem Rússar skutu: Þetta hefðu getað verið við Íslenskur maður sem flúði Kænugarð segir mikla heppni að hann hafi ekki verið fluttur inn í hús sem hann var að byggja í bænum Motishin. Hann þekkti bæjarstjórann þar vel sem fannst í gær látin ásamt eiginmanni sínum og syni. Þau höfðu verið skotin af Rússum. Erlent 5.4.2022 12:01
Danir sparka fimmtán rússneskum embættismönnum úr landi Dönsk stjórnvöld hafa ákveðið að vísa fimmtán rússneskum embættismönnum úr landi. Jeppe Kofod, utanríkisráðherra Danmerkur, greindi frá því í morgun að utanríkismálanefnd landsins hafi komist að þessari niðurstöðu. Erlent 5.4.2022 09:04