Rússland Lysychansk síðasta vígi Úkraínumanna í Luhansk Úkraínskir hermenn hafa hörfað frá borginni Severodonetsk í Luhansk-héraði. Nú er Lysychansk eina borgin í Luhansk sem Úkraínumenn ráða enn yfir. Erlent 25.6.2022 16:53 Rússar létu sprengjum rigna yfir Luhansk Rússar reyna nú eftir fremsta megni að ná borgunum Sieveródonetsk og Lysychansk í Luhanskhéraði á sitt vald. Þeir létu sprengjum rigna yfir borgirnar í morgun og hæfðu meðal annars efnaverksmiðju þar sem hundruð almennra borgara hafa leitað skjóls undanfarið. Erlent 25.6.2022 12:05 Rússar saka FIFA um mismunun Rússneska knattspyrnusambandið RFS og rússneska úrvalsdeildin í fótbolta hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA er sakað um mismunun eftir að FIFA gaf leikmönnum og þjálfurum leyfi til að segja samningum sínum við rússnesk félög lausum. Fótbolti 25.6.2022 11:30 Úkraínski herinn hörfar frá Sieveródonetsk Eftir margra vikna hernaðarátök hefur úkraínski herinn ákveðið að hörfa frá Sieveródonetsk í Lúhansk-héraði til að forða því að verða umkringdur af Rússum. Héraðsstjóri Lúhansk-héraðs segir ekkert þýða að að halda kyrru fyrir í borginni og því hafi úkraínska hernum verið skipað að hörfa. Erlent 24.6.2022 15:25 Vaktin: Úkraínska hernum skipað að hörfa úr Sieveródonetsk Stjórnvöld í Úkraínu hafa ákveðið að láta hersveitirnar sem barist hafa í Sieverodonetsk hörfa og segja ekkert vit í því að láta þær sæta mannfalli í langan tíma til að verja svæðið. Ríkisstjórinn segir 90 prósent allra heimila í borginni skemmd eða eyðilögð. Erlent 24.6.2022 08:26 Vaktin: íhuga að hörfa frá Lysychansk Besta öryggistrygging Úkraínu liggur í aðild að Evrópusambandinu, sem myndi gera Vladimir Pútín Rússlandsforseta erfiðara fyrir að ráðast aftur inn í landið. Þetta segir Jonathan Powell, fyrrverandi starfsmannastjóri Tony Blair og samningamaður Breta í málefnum Norður-Írlands. Erlent 23.6.2022 08:36 Telur líklegt að Rússar skrúfi fyrir gasið í vetur Forstjóri Alþjóðaorkumálastofnunarinnar telur líklegt að Rússar muni skrúfa fyrir gasleiðslurnar til Evrópu í vetur. Erlent 22.6.2022 23:30 Íslenskur fréttamaður á vegum Pútíns tók viðtal við meintan stríðsglæpamann Haukur Hauksson hefur ferðast á átakasvæði í Úkraínu í boði rússneskra stjórnvalda. Nýlega tók Haukur viðtal við Graham Phillips, annan sjálfstætt starfandi blaðamann, sem nú er sakaður um stríðsglæp. Erlent 22.6.2022 17:12 Vaktin: Ráðast að öryggisstofnunum í Lysychansk Finnar eru reiðubúnir ef Rússar ráðast gegn þeim og munu verjast ötullega, segir Timo Kivinen, yfirmaður finnska heraflans. Erlent 22.6.2022 08:17 Spá takmörkuðum landvinningum en síðan pattstöðu Samkvæmt umfjöllun New York Times telja embættismenn vestanhafs að myndin í Úkraínu sé að skýrast; Rússar muni líklega leggja undir sig meira svæða í austurhluta landsins en mæta harðri andspyrnu sífellt betur vopnaðra Úkraínumanna og ekki ná algjörum yfirráðum yfir Donbas. Erlent 21.6.2022 12:42 Stóreignir bendlaðar við Pútín virðast reknar í „samvinnufélagi“ Vísbendingar eru um að hallir, snekkjur og vínekrur sem bendlaðar hafa verið við Vladímír Pútín Rússlandsforseta tengist innbyrðis og að þær séu jafnvel reknar í einhvers konar óformlegu samvinnufélagi. Verðmæti eignanna er metið á meira en 590 milljarða íslenskra króna. Erlent 21.6.2022 11:23 Vaktin: Handtaka eigin stjórnmálamann fyrir njósnir Enn hóta Rússar því undir rós að grípa til kjarnorkuvopna en Reuters hefur eftir Vladimir Pútín Rússlandsforseta að Rússar hyggist styrkja herafla sinn með tilliti til mögulegra hernaðarógna og -áhættu. Forsetinn segir nýjar Sarmat eldflaugar Rússa, sem eru bæði langdrægar og geta borið allt að tíu kjarnorkusprengjur, verða teknar í notkun fyrir árslok. Erlent 21.6.2022 08:29 Nóbelsmedalía Muratov slegin á 13 milljarða króna Nóbelsmedalía rússneska blaðamannsins Dmitry Muratov var seld á uppboði í gær og slegin á 103,5 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði 13,5 milljarða króna. Féð mun renna til UNICEF, til að aðstoða börn sem hafa flúið heimili sín í Úkraínu. Erlent 21.6.2022 07:45 Reiknað með að Rússar hefji stórsókn Serhiy Gadai, héraðsstjóri Luhansk-héraðs í austurhluta Úkraínu segir að rússneski herinn hafi safnað nægilega miklu liði til að hefja stórsókn í héraðinu. Erlent 20.6.2022 21:47 Vaktin: Segir Rússa halda Afríku í gíslingu Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segist eiga von á því að Rússar muni auka árásir sínar á Úkraínu og jafnvel önnur Evrópulönd í vikunni, í kjölfar ákvörðunar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um að mæla með því að Úkraína fái formlega stöðu umsóknarríkis. Erlent 20.6.2022 08:23 Rússneskt herskip sigldi í tvígang inn í danska landhelgi Rússneskt herskip sigldi í tvígang inn í danska landhelgi í nótt og í morgun. Skipið var á siglingu í norðurhluta Eystrasaltsins nærri dönsku eyjunni Bornholm. Samkvæmt tilkynningu frá danska hernum var fjöldi danskra þingmanna og athafnafólks á eyjunni vegna lýðræðishátíðar sem fer þar fram um helgina. Erlent 17.6.2022 13:53 Framkvæmdastjórn ESB lýsir yfir stuðningi við aðild Úkraínu Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur lýst yfir stuðningi við að Úkraína fái formlega stöðu umsóknarríkis að Evrópusambandinu. Ákvörðun stjórnarinnar er stórt skref í baráttu Úkraínu fyrir aðild að sambandinu. Erlent 17.6.2022 11:06 Fyrrum fyrirliði Rússa gagnrýnir stríðið í Úkraínu Hinn 38 ára gamli Igor Denisov – fyrrverandi fyrirliði rússneska landsliðsins í fótbolta – hefur gagnrýnt innrás Rússa í Úkraínu og lýst stríðinu sem katastrófu. Denisov ákvað að mótmæla stríðinu opinberlega þó hann óttist að vera fangelsaður eða tekinn af lífi fyrir ummæli sín. Fótbolti 16.6.2022 14:30 Vaktin: Leiðtogar Evrópuþjóðanna vilja Úkraínu í ESB Þrír valdamestu leiðtogar Evrópusambandsins, forseti Frakklands, kanslari Þýskalands og forsætisráðherra Ítalíu mættu í heimsókn til Kænugarðs í nótt til að ræða við Volodomir Selenskí Úkraínuforseta. Erlent 16.6.2022 07:54 Dúsir í rússnesku fangelsi fram yfir mánaðamót Brittney Griner, ein skærasta stjarna WNBA-deildarinnar í Bandaríkjunum hefur verið í haldi rússneskra yfirvalda frá því í febrúar á þessu ári. Fjölmiðlar þar í landi hafa gefið út að hún verði það áfram, fram yfir mánaðarmót hið minnsta. Körfubolti 15.6.2022 16:31 Vaktin: Putin og Xi Jinping semja um frekara samstarf Rússar ákváðu í morgun að opna svokallaðan mannúðargang frá úkraínsku borginni Severodonetsk en þeir hafa nú náð stærstum hluta borgarinnar á sitt vald. Gangurinn á vera opinn í tólf klukkutíma en þeir sem kjósa að forða sér frá borginni þurfa þó að fara í norður, þar sem Rússar ráða ríkjum. Erlent 15.6.2022 07:13 Navalní skyndilega færður í annað hámarksöryggisfangelsi Rússnesk yfirvöld færðu Alexei Navalní, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í landinu, skyndilega úr fangelsinu þar sem hann hefur verið vistaður í hámarksöryggisfanganýlendu enn fjær Moskvu. Erlent 14.6.2022 22:23 Bandamenn deila um hvað eigi að gerast næst Sprungur virðast vera að myndast í samstöðu Vesturlanda gegn innrás Rússa í Úkraínu og eru ráðamenn sagðir deila um hvaða leiðir eigi að fara til að binda enda á átökin. Meðal þeirra spurninga sem eru til skoðunar eru hvort halda eigi áfram að einangra Rússlands og senda fleiri vopn til Úkraínu eða það hvort Úkraínumenn þurfi mögulega að sætta sig við að tapa landsvæði. Erlent 14.6.2022 10:55 Telja að fimmtán þúsund auðkýfingar muni flýja Rússland Talið er að um fimmtán þúsund auðkýfingar með auðæfi metin á yfir milljón dollara, 130 milljónir íslenskra króna, muni flýja Rússland á þessu ári. Um hundrað þúsund einstaklingar í Rússlandi eru milljónamæringar. Erlent 14.6.2022 07:59 Vaktin: Segja Pútín enn vilja meira af Úkraínu Vladimír Pútín, forseti Rússlands, vill enn ná tökum á meirihluta Úkraínu, ef ekki öllu ríkinu, þá þær áætlanir hafi misheppnast í upphafi innrásar Rússa. Þetta telja Bandaríkjamenn stöðuna en þeir segja ólíklegt að Rússar hafi burði til að ná þessum markmiðum. Erlent 14.6.2022 07:27 Vilja stöðva Rússa í Donbas Baráttan um Donbas gæti haft gífurleg áhrif á framvindu innrásar Rússa í Úkraínu. Harðir bardagar hafa geisað þar frá því innrásin hófst í febrúar en Rússar vonast til að brjóta varnir Úkraínumanna á bak aftur og Úkraínumenn reyna að draga máttinn úr hermönnum Rússlands. Erlent 13.6.2022 12:17 Vaktin: Stórskotalið Rússa tíu sinnum öflugara Úkraínumenn hafa náð að opna tvær leiðir, í gegnum Rúmeníu og Pólland, þar sem þeir flytja korn sem hefur setið í höfnum landsins síðan innrás Rússa hófst. Erlent 13.6.2022 07:45 Aðeins ein brú eftir inn í Severodonetsk Harðir bardagar hafa haldið áfram í úkraínsku borginni Severodonetsk og segir héraðsstjórinn Serhiy Haidai ljóst að Rússar séu nú að reyna að einangra borgina að fullu og ná þar yfirráðum. Volodomir Selenskí Úkraínuforseti segir að nú sé barist um hvern einasta metra í borginni. Erlent 13.6.2022 07:13 Mannréttindi og mannslíf mikilvægari en „pólitískar fantasíur gamals manns“ Á sama tíma og Rússar halda uppi hörðum stórskotaliðs- og eldflaugaárásum á óbreytta borgara í austur Úkraínu fagna þeir því að 32 ár eru liðin í dag frá stofnun rússneska sambandsríkisins. Rússneskir ríkisborgarar komu saman við rússneska sendiráðið til að mótmæla valdastjórn Pútíns í tilefni dagsins en sterkustu vopnin eru á þessum tíma orðin. Innlent 12.6.2022 21:20 Veitti innsýn í lífið í Rússlandi þessa dagana Árni Þór Sigurðsson, sendiherra Íslands í Rússlandi, segir að í Moskvu gangi lífið sinn vanagang fyrir íbúa borgarinnar. Þó sé ljóst að viðskiptaþvinganir bíti og að eftirlit með borgurum hafi verið hert. Innlent 12.6.2022 15:03 « ‹ 43 44 45 46 47 48 49 50 51 … 97 ›
Lysychansk síðasta vígi Úkraínumanna í Luhansk Úkraínskir hermenn hafa hörfað frá borginni Severodonetsk í Luhansk-héraði. Nú er Lysychansk eina borgin í Luhansk sem Úkraínumenn ráða enn yfir. Erlent 25.6.2022 16:53
Rússar létu sprengjum rigna yfir Luhansk Rússar reyna nú eftir fremsta megni að ná borgunum Sieveródonetsk og Lysychansk í Luhanskhéraði á sitt vald. Þeir létu sprengjum rigna yfir borgirnar í morgun og hæfðu meðal annars efnaverksmiðju þar sem hundruð almennra borgara hafa leitað skjóls undanfarið. Erlent 25.6.2022 12:05
Rússar saka FIFA um mismunun Rússneska knattspyrnusambandið RFS og rússneska úrvalsdeildin í fótbolta hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA er sakað um mismunun eftir að FIFA gaf leikmönnum og þjálfurum leyfi til að segja samningum sínum við rússnesk félög lausum. Fótbolti 25.6.2022 11:30
Úkraínski herinn hörfar frá Sieveródonetsk Eftir margra vikna hernaðarátök hefur úkraínski herinn ákveðið að hörfa frá Sieveródonetsk í Lúhansk-héraði til að forða því að verða umkringdur af Rússum. Héraðsstjóri Lúhansk-héraðs segir ekkert þýða að að halda kyrru fyrir í borginni og því hafi úkraínska hernum verið skipað að hörfa. Erlent 24.6.2022 15:25
Vaktin: Úkraínska hernum skipað að hörfa úr Sieveródonetsk Stjórnvöld í Úkraínu hafa ákveðið að láta hersveitirnar sem barist hafa í Sieverodonetsk hörfa og segja ekkert vit í því að láta þær sæta mannfalli í langan tíma til að verja svæðið. Ríkisstjórinn segir 90 prósent allra heimila í borginni skemmd eða eyðilögð. Erlent 24.6.2022 08:26
Vaktin: íhuga að hörfa frá Lysychansk Besta öryggistrygging Úkraínu liggur í aðild að Evrópusambandinu, sem myndi gera Vladimir Pútín Rússlandsforseta erfiðara fyrir að ráðast aftur inn í landið. Þetta segir Jonathan Powell, fyrrverandi starfsmannastjóri Tony Blair og samningamaður Breta í málefnum Norður-Írlands. Erlent 23.6.2022 08:36
Telur líklegt að Rússar skrúfi fyrir gasið í vetur Forstjóri Alþjóðaorkumálastofnunarinnar telur líklegt að Rússar muni skrúfa fyrir gasleiðslurnar til Evrópu í vetur. Erlent 22.6.2022 23:30
Íslenskur fréttamaður á vegum Pútíns tók viðtal við meintan stríðsglæpamann Haukur Hauksson hefur ferðast á átakasvæði í Úkraínu í boði rússneskra stjórnvalda. Nýlega tók Haukur viðtal við Graham Phillips, annan sjálfstætt starfandi blaðamann, sem nú er sakaður um stríðsglæp. Erlent 22.6.2022 17:12
Vaktin: Ráðast að öryggisstofnunum í Lysychansk Finnar eru reiðubúnir ef Rússar ráðast gegn þeim og munu verjast ötullega, segir Timo Kivinen, yfirmaður finnska heraflans. Erlent 22.6.2022 08:17
Spá takmörkuðum landvinningum en síðan pattstöðu Samkvæmt umfjöllun New York Times telja embættismenn vestanhafs að myndin í Úkraínu sé að skýrast; Rússar muni líklega leggja undir sig meira svæða í austurhluta landsins en mæta harðri andspyrnu sífellt betur vopnaðra Úkraínumanna og ekki ná algjörum yfirráðum yfir Donbas. Erlent 21.6.2022 12:42
Stóreignir bendlaðar við Pútín virðast reknar í „samvinnufélagi“ Vísbendingar eru um að hallir, snekkjur og vínekrur sem bendlaðar hafa verið við Vladímír Pútín Rússlandsforseta tengist innbyrðis og að þær séu jafnvel reknar í einhvers konar óformlegu samvinnufélagi. Verðmæti eignanna er metið á meira en 590 milljarða íslenskra króna. Erlent 21.6.2022 11:23
Vaktin: Handtaka eigin stjórnmálamann fyrir njósnir Enn hóta Rússar því undir rós að grípa til kjarnorkuvopna en Reuters hefur eftir Vladimir Pútín Rússlandsforseta að Rússar hyggist styrkja herafla sinn með tilliti til mögulegra hernaðarógna og -áhættu. Forsetinn segir nýjar Sarmat eldflaugar Rússa, sem eru bæði langdrægar og geta borið allt að tíu kjarnorkusprengjur, verða teknar í notkun fyrir árslok. Erlent 21.6.2022 08:29
Nóbelsmedalía Muratov slegin á 13 milljarða króna Nóbelsmedalía rússneska blaðamannsins Dmitry Muratov var seld á uppboði í gær og slegin á 103,5 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði 13,5 milljarða króna. Féð mun renna til UNICEF, til að aðstoða börn sem hafa flúið heimili sín í Úkraínu. Erlent 21.6.2022 07:45
Reiknað með að Rússar hefji stórsókn Serhiy Gadai, héraðsstjóri Luhansk-héraðs í austurhluta Úkraínu segir að rússneski herinn hafi safnað nægilega miklu liði til að hefja stórsókn í héraðinu. Erlent 20.6.2022 21:47
Vaktin: Segir Rússa halda Afríku í gíslingu Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segist eiga von á því að Rússar muni auka árásir sínar á Úkraínu og jafnvel önnur Evrópulönd í vikunni, í kjölfar ákvörðunar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um að mæla með því að Úkraína fái formlega stöðu umsóknarríkis. Erlent 20.6.2022 08:23
Rússneskt herskip sigldi í tvígang inn í danska landhelgi Rússneskt herskip sigldi í tvígang inn í danska landhelgi í nótt og í morgun. Skipið var á siglingu í norðurhluta Eystrasaltsins nærri dönsku eyjunni Bornholm. Samkvæmt tilkynningu frá danska hernum var fjöldi danskra þingmanna og athafnafólks á eyjunni vegna lýðræðishátíðar sem fer þar fram um helgina. Erlent 17.6.2022 13:53
Framkvæmdastjórn ESB lýsir yfir stuðningi við aðild Úkraínu Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur lýst yfir stuðningi við að Úkraína fái formlega stöðu umsóknarríkis að Evrópusambandinu. Ákvörðun stjórnarinnar er stórt skref í baráttu Úkraínu fyrir aðild að sambandinu. Erlent 17.6.2022 11:06
Fyrrum fyrirliði Rússa gagnrýnir stríðið í Úkraínu Hinn 38 ára gamli Igor Denisov – fyrrverandi fyrirliði rússneska landsliðsins í fótbolta – hefur gagnrýnt innrás Rússa í Úkraínu og lýst stríðinu sem katastrófu. Denisov ákvað að mótmæla stríðinu opinberlega þó hann óttist að vera fangelsaður eða tekinn af lífi fyrir ummæli sín. Fótbolti 16.6.2022 14:30
Vaktin: Leiðtogar Evrópuþjóðanna vilja Úkraínu í ESB Þrír valdamestu leiðtogar Evrópusambandsins, forseti Frakklands, kanslari Þýskalands og forsætisráðherra Ítalíu mættu í heimsókn til Kænugarðs í nótt til að ræða við Volodomir Selenskí Úkraínuforseta. Erlent 16.6.2022 07:54
Dúsir í rússnesku fangelsi fram yfir mánaðamót Brittney Griner, ein skærasta stjarna WNBA-deildarinnar í Bandaríkjunum hefur verið í haldi rússneskra yfirvalda frá því í febrúar á þessu ári. Fjölmiðlar þar í landi hafa gefið út að hún verði það áfram, fram yfir mánaðarmót hið minnsta. Körfubolti 15.6.2022 16:31
Vaktin: Putin og Xi Jinping semja um frekara samstarf Rússar ákváðu í morgun að opna svokallaðan mannúðargang frá úkraínsku borginni Severodonetsk en þeir hafa nú náð stærstum hluta borgarinnar á sitt vald. Gangurinn á vera opinn í tólf klukkutíma en þeir sem kjósa að forða sér frá borginni þurfa þó að fara í norður, þar sem Rússar ráða ríkjum. Erlent 15.6.2022 07:13
Navalní skyndilega færður í annað hámarksöryggisfangelsi Rússnesk yfirvöld færðu Alexei Navalní, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í landinu, skyndilega úr fangelsinu þar sem hann hefur verið vistaður í hámarksöryggisfanganýlendu enn fjær Moskvu. Erlent 14.6.2022 22:23
Bandamenn deila um hvað eigi að gerast næst Sprungur virðast vera að myndast í samstöðu Vesturlanda gegn innrás Rússa í Úkraínu og eru ráðamenn sagðir deila um hvaða leiðir eigi að fara til að binda enda á átökin. Meðal þeirra spurninga sem eru til skoðunar eru hvort halda eigi áfram að einangra Rússlands og senda fleiri vopn til Úkraínu eða það hvort Úkraínumenn þurfi mögulega að sætta sig við að tapa landsvæði. Erlent 14.6.2022 10:55
Telja að fimmtán þúsund auðkýfingar muni flýja Rússland Talið er að um fimmtán þúsund auðkýfingar með auðæfi metin á yfir milljón dollara, 130 milljónir íslenskra króna, muni flýja Rússland á þessu ári. Um hundrað þúsund einstaklingar í Rússlandi eru milljónamæringar. Erlent 14.6.2022 07:59
Vaktin: Segja Pútín enn vilja meira af Úkraínu Vladimír Pútín, forseti Rússlands, vill enn ná tökum á meirihluta Úkraínu, ef ekki öllu ríkinu, þá þær áætlanir hafi misheppnast í upphafi innrásar Rússa. Þetta telja Bandaríkjamenn stöðuna en þeir segja ólíklegt að Rússar hafi burði til að ná þessum markmiðum. Erlent 14.6.2022 07:27
Vilja stöðva Rússa í Donbas Baráttan um Donbas gæti haft gífurleg áhrif á framvindu innrásar Rússa í Úkraínu. Harðir bardagar hafa geisað þar frá því innrásin hófst í febrúar en Rússar vonast til að brjóta varnir Úkraínumanna á bak aftur og Úkraínumenn reyna að draga máttinn úr hermönnum Rússlands. Erlent 13.6.2022 12:17
Vaktin: Stórskotalið Rússa tíu sinnum öflugara Úkraínumenn hafa náð að opna tvær leiðir, í gegnum Rúmeníu og Pólland, þar sem þeir flytja korn sem hefur setið í höfnum landsins síðan innrás Rússa hófst. Erlent 13.6.2022 07:45
Aðeins ein brú eftir inn í Severodonetsk Harðir bardagar hafa haldið áfram í úkraínsku borginni Severodonetsk og segir héraðsstjórinn Serhiy Haidai ljóst að Rússar séu nú að reyna að einangra borgina að fullu og ná þar yfirráðum. Volodomir Selenskí Úkraínuforseti segir að nú sé barist um hvern einasta metra í borginni. Erlent 13.6.2022 07:13
Mannréttindi og mannslíf mikilvægari en „pólitískar fantasíur gamals manns“ Á sama tíma og Rússar halda uppi hörðum stórskotaliðs- og eldflaugaárásum á óbreytta borgara í austur Úkraínu fagna þeir því að 32 ár eru liðin í dag frá stofnun rússneska sambandsríkisins. Rússneskir ríkisborgarar komu saman við rússneska sendiráðið til að mótmæla valdastjórn Pútíns í tilefni dagsins en sterkustu vopnin eru á þessum tíma orðin. Innlent 12.6.2022 21:20
Veitti innsýn í lífið í Rússlandi þessa dagana Árni Þór Sigurðsson, sendiherra Íslands í Rússlandi, segir að í Moskvu gangi lífið sinn vanagang fyrir íbúa borgarinnar. Þó sé ljóst að viðskiptaþvinganir bíti og að eftirlit með borgurum hafi verið hert. Innlent 12.6.2022 15:03