Rússland Ætluðu sér að myrða njósnara í Miami Rússneskir útsendarar ætluðu árið 2020 að ráða rússneskum manni bana í Miamiborg í Bandaríkjunum. Banatilræðið gekk ekki eftir en leiddi til þess að Bandaríkjamenn vísuðu rússneskum erindrekum og njósnurum úr landi. Erlent 19.6.2023 13:01 „Til fjandans með þá“ Vladimír Pútín, forseti Rússlands, sagði í dag að til greina kæmi að beita kjarnorkuvopnum, ef öryggi Rússlands væri ógnað. Þá sagði Pútín að Rússar myndi ekki fækka kjarnorkuvopnum sínum, sama hvurslags samkomulag Vesturlönd reyndi að gera við Rússland. Erlent 16.6.2023 22:30 Segir Selenskí vera skömm fyrir gyðinga Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir efnahag Rússlands sterkan og hafnar því að ríkið sé orðið einangrað vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Þá sagði Pútín að Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, væri ekki gyðingur. Þetta sagði forsetinn á fjárfestaráðstefnu í Pétursborg, sem gengur út á það laða erlenda fjárfesta til Rússlands. Erlent 16.6.2023 14:59 Forsetar þurftu að leita sér skjóls vegna eldflauga Háværar sprengingar heyrðust í Kænugarði í morgun eftir að Rússar skutu eldflaugum á borgina. Nokkrir forsetar Afríkuríkja eru staddir í Kænugarði, þar sem þeir munu ræða við ráðamenn um mögulegar friðarviðræður við Rússa. Því næst munu þeir fara til Pétursborgar í Rússlandi og hitta Vladimír Pútín, forseta. Erlent 16.6.2023 11:52 Rýnt í stöðuna í Úkraínu: „Maraþon en ekki spretthlaup“ Harðir bardagar hafa geisað í suður- og austurhluta Úkraínu undanfarnar daga, þar sem gagnsókn Úkraínumanna er hafin. Nokkur þorp hafa verið frelsuð úr höndum Rússa en Úkraínumenn hafa sótt tiltölulega grunnt inn í varnir Rússa en á víðu svæði. Erlent 16.6.2023 08:01 Segja að 150 börnum hafi verið rænt og þau flutt til Rússlands Yfirvöld í Úkraínu segja að 150 börnum hafi verið rænt í Starobilsk í Luhansk 8. júní síðastliðinn og flutt á tvær stofnanir í Prikuban í Karachay-Cherkess í Rússlandi. Erlent 16.6.2023 07:02 Rússar skutu eldflaugum á Kherson í dag Rússar héldu áfram loftárásum á borgir í suðurhluta Úkraínu í dag. Flugskeyti hæfðu skrifstofubyggingu miðborg Kherson sem Rússar höfðu hertekið en var stökkt á flótta þaðan í nóvember. Erlent 15.6.2023 21:17 Ástralir stöðva byggingu á nýju sendiráði Rússa Ástralska þingið hefur samþykkt lagafrumvarp sem felur í sér að framkvæmdir á nýju sendiráði Rússa í grennd við þinghúsið í áströlsku höfuðborginni Canberra séu stöðvaðar. Er þar vísað til öryggissjónarmiða. Erlent 15.6.2023 07:58 Hægri hönd téténska einræðisherrans sagður hafa særst Dmitrí Peskóv, talsmaður Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, sagði í dag að fregnir af því að rússneskur þingmaður og náinn bandamaður Ramzans Kadyrov, einræðisherra Téténíu, hefði særst í Úkraínu væru áhyggjuefni. Adam Delimkhanov, sem lýst hefur verið sem hægri hönd Kadyrov, var sagður hafa særst í árás Úkraínumanna. Erlent 14.6.2023 14:35 Kynntu fyrstu þjóðaröryggistefnu Þýskalands Olaf Scholz, kanslari Þýskalandi, opinberaði í dag nýja þjóðaröryggisstefnu ríkisstjórnar sinnar. Þetta er í fyrsta sinn sem Þjóðverjar setja sér stefnu sem þessa en er hann kynnti hana í morgun talaði Scholz um gerbreytt öryggisástand í Evrópu vegna innrásar Rússa í Úkraínu og sagði Rússland helstu ógnina sem Þýskaland stæði frammi fyrir. Erlent 14.6.2023 12:23 Segir Rússa hafa misst 54 skriðdreka á nokkrum dögum Vladimír Pútín, forseti Rússlands, gaf í skyn að hann myndi skipa rússneska hernum að ráðast aftur inn í norðurhluta Úkraínu. Hann hélt því fram að Úkraínumenn hefðu orðið fyrir gífurlegu mannfalli í gagnsókn þeirra, sem er nýhafin í suður- og austurhluta Úkraínu. Erlent 13.6.2023 17:15 Utanríkisráðherrar Norðurlanda funduðu á Ísafirði Utanríkisráðherrar Norðurlanda funduðu í Edinborgarhúsinu á Ísafirði í morgun. Innrás Rússa var til umræðu og ræddi Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra þá ákvörðun sína að leggja niður starfsemina í sendiráði Íslands í Moskvu sem tilkynnt var um í liðinni viku. Innlent 13.6.2023 15:33 Enn og aftur ráðist á opinbera vefi Netárásir voru gerðar í morgun á nokkra stjórnsýsluvefi, þar á meðal vef Alþingis, Stjórnarráðsins og Hæstaréttar. Forstjóri netöryggissveitarinnar CERT-IS segir sama hóp að baki árásunum og stóð að netárásum á meðan leiðtogafundur Evrópuráðsins fór fram í maí. Innlent 13.6.2023 11:28 Staðarráðnum starfsmönnum og leigunni sagt upp Fimm staðarráðnum starfsmönnum íslenska sendiráðsins í Moskvu verður sagt upp í samræmi við gildandi ráðningarsamninga. Þá er gert ráð að leigusamningum fyrir húsnæði sendiráðsins og sendiherrabústað verði sagt upp. Innlent 13.6.2023 07:54 Gerðu loftárás á heimabæ Selenskís Þrír létust og tuttugu og fimm særðust í loftárásum Rússa á úkraínska bæinn Kryvyi Rih í nótt. Erlent 13.6.2023 07:39 Segja að Rússar hafi sprengt aðra stíflu Úkraínumenn saka Rússa um að hafa sprengt aðra stíflu í landinu, í þetta sinn í Zaporizhzhia héraði. Erlent 12.6.2023 07:15 Segjast hafa endurheimt fyrstu þorpin Úkraínumenn segjast hafa endurheimt þrjú þorp í Dónetsk-héraði úr höndum Rússa. Úkraínuforseti staðfesti í gær að gagnsókn úkraínska hersins væri hafin. Erlent 11.6.2023 21:17 „Eins og að lenda á stálvegg“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði í gær að gagnsókn Úkraínumanna væri hafin. Hann gaf lítið fyrir orð Valdimír Pútín, forseta Rússlands, um að gagnsóknin hefði engum árangri skilað og bað blaðamenn þess í stað um að koma því til Pútíns að úkraínskir herforingjar væru í góðu skapi þessa dagana. Erlent 11.6.2023 08:53 Segja ákvörðunina eiga eftir að eyðileggja allt samstarf Rússlands og Íslands And-rússneskum ákvörðunum íslenskra ráðamanna verður óhjákvæmilega svarað. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem rússneska utanríkisráðuneytið birti í dag í kjölfar ákvörðunar Þórdísar Kolbrúnar Gylfadóttur, utanríkisráðherra, um að leggja niður starfsemi sendiráðs Íslands í Moskvu, senda sendiherra Rússlands á Íslandi heim og draga þar með úr diplómatískum samskiptum ríkjanna. Innlent 10.6.2023 15:17 Rússneski sendiherrann verði farinn fyrir mánaðamót Utanríkisráðherra segir enga ástæðu til að halda úti starfsemi sendiráðs í Moskvu þegar samskipti og viðskipti Íslands og Rússlands væru nánast engin og ætlar því að loka sendiráðinu. Það væri einnig hugsað í samhengi við alþjóðlegar aðgerðir til að einangra Rússa vegna innrásar þeirra í Úkraínu. Innlent 9.6.2023 19:21 Hvetur önnur ríki til að fara að fordæmi Íslendinga Dmytro Kuleba, utanríkisráðherra Úkraínu, sendi í dag þakkir til Þórdísar Kolbrúnu R. Gylfadóttur, utanríkisráðherra Íslands. Það gerði hann vegna ákvörðunar Íslendinga að leggja niður starfsemi í sendiráðinu í Rússlandi og krefjast þess að Rússar takmarki umsvif sín hér á landi. Erlent 9.6.2023 13:50 Forsendur gjörbreyttar og tengslin nánast engin „Staðreyndin er bara sú að forsendur fyrir því að reka starfsemi í Moskvu eru gjörbreyttar,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, sem hefur ákveðið að leggja niður starfsemi íslenska sendiráðsins í Moskvu. Starfsemi rússneska sendiráðisins hér verður takmörkuð og sendiherrann fer heim. Innlent 9.6.2023 13:16 Rússneskum manni banað af hákarli í Rauðahafi Rússneskur maður lést í gær eftir að tígrishákarl réðst á hann undan ströndum Hurghada í Egyptalandi. Hákarlinn réðst á manninn skammt frá landi og stóðu ferðamenn á bakkanum og horfðu á árásina. Erlent 9.6.2023 11:28 Loka sendiráðinu í Moskvu og takmarka umsvif Rússa hérlendis Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra hefur ákveðið að leggja niður starfsemi sendiráðs Íslands í Moskvu frá 1. ágúst næstkomandi. Þá hefur sendiherra Rússlands hér á landi verið tjáð að gert sé ráð fyrir að Rússland minnki fyrirsvar sitt þannig að sendiherra stýri ekki lengur sendiráði Rússlands í Reykjavík. Sömuleiðis hefur Rússlandi verið gert að lágmarka starfsemi sendiráðsins á Íslandi til samræmis við þessa ákvörðun. Innlent 9.6.2023 11:12 „Það er enn engin hjálp“ Fólk sem situr fast í húsum á austurbakka Dnipróár í Úkraínu segir litla hjálp berast frá Rússum. Fólk sem hefur reynt að koma öðrum til bjargar segist hafa lent í því að rússneskir hermenn taki báta þeirra. Aðrir segja að hermennirnir hjálpi ekki fólki nema þau hafi rússnesk vegabréf. Erlent 9.6.2023 10:34 Yana mótmælir ein í rigningunni innrás Rússa í heimalandið Á sama tíma og nokkrir þingmenn koma í veg fyrir áframhaldandi undanþágur á tollum á innfluttum kjúklingi frá Úkraínu, stendur Yana Hryshko frá Kyiv héraði alein í rigningunni og mótmælir fyrir utan ræðisskrifstofu Rússlands við Túngötu. Hún óskar þess heitast að stríðinu ljúki og hún komist aftur heim. Innlent 8.6.2023 20:31 Fönguðu eyðilegginguna í Kherson úr lofti Drónamyndir frá Kherson-héraði í Úkraínu, bæði vestan og austan megin við Dnipróá, sýna gífurlega eyðileggingu vegna flóða. Vatn hefur streymt yfir fjölmargar byggðir og valdið gífurlegri eyðileggingu. Erlent 8.6.2023 14:45 Hlébarðarnir sjást í fyrsta sinn á víglínunum Úkraínumenn eru sagðir hafa gert umfangsmiklar árásir gegn Rússum í Sapórisjía-héraði en þýskir skriðdrekar af gerðinni Leopard hafa sést á víglínunum í fyrsta sinn. Erlent 8.6.2023 10:43 Stór sprenging inni í stíflunni líklegasta orsökin Líklegasta ástæða þess að Kakhovka-stíflan í Kherson-héraði í Úkraínu brast, er að miklu magni sprengiefna hafi verið komið fyrir inni í stíflunni og hún sprengd. Aðrar ástæður eins og eldflaugaárás og mikið álag eru mögulegar en mun ólíklegri. Erlent 7.6.2023 11:30 Eyðilegging stíflunnar hefur alvarleg áhrif á líf fjölda fólks til framtíðar Alls hafa um fjörutíu þúsund manns þurft að yfirgefa heimili sín eftir að Kakhovka stíflan í Úkraínu brast í fyrrinótt. Erlent 7.6.2023 07:48 « ‹ 17 18 19 20 21 22 23 24 25 … 97 ›
Ætluðu sér að myrða njósnara í Miami Rússneskir útsendarar ætluðu árið 2020 að ráða rússneskum manni bana í Miamiborg í Bandaríkjunum. Banatilræðið gekk ekki eftir en leiddi til þess að Bandaríkjamenn vísuðu rússneskum erindrekum og njósnurum úr landi. Erlent 19.6.2023 13:01
„Til fjandans með þá“ Vladimír Pútín, forseti Rússlands, sagði í dag að til greina kæmi að beita kjarnorkuvopnum, ef öryggi Rússlands væri ógnað. Þá sagði Pútín að Rússar myndi ekki fækka kjarnorkuvopnum sínum, sama hvurslags samkomulag Vesturlönd reyndi að gera við Rússland. Erlent 16.6.2023 22:30
Segir Selenskí vera skömm fyrir gyðinga Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segir efnahag Rússlands sterkan og hafnar því að ríkið sé orðið einangrað vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Þá sagði Pútín að Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, væri ekki gyðingur. Þetta sagði forsetinn á fjárfestaráðstefnu í Pétursborg, sem gengur út á það laða erlenda fjárfesta til Rússlands. Erlent 16.6.2023 14:59
Forsetar þurftu að leita sér skjóls vegna eldflauga Háværar sprengingar heyrðust í Kænugarði í morgun eftir að Rússar skutu eldflaugum á borgina. Nokkrir forsetar Afríkuríkja eru staddir í Kænugarði, þar sem þeir munu ræða við ráðamenn um mögulegar friðarviðræður við Rússa. Því næst munu þeir fara til Pétursborgar í Rússlandi og hitta Vladimír Pútín, forseta. Erlent 16.6.2023 11:52
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: „Maraþon en ekki spretthlaup“ Harðir bardagar hafa geisað í suður- og austurhluta Úkraínu undanfarnar daga, þar sem gagnsókn Úkraínumanna er hafin. Nokkur þorp hafa verið frelsuð úr höndum Rússa en Úkraínumenn hafa sótt tiltölulega grunnt inn í varnir Rússa en á víðu svæði. Erlent 16.6.2023 08:01
Segja að 150 börnum hafi verið rænt og þau flutt til Rússlands Yfirvöld í Úkraínu segja að 150 börnum hafi verið rænt í Starobilsk í Luhansk 8. júní síðastliðinn og flutt á tvær stofnanir í Prikuban í Karachay-Cherkess í Rússlandi. Erlent 16.6.2023 07:02
Rússar skutu eldflaugum á Kherson í dag Rússar héldu áfram loftárásum á borgir í suðurhluta Úkraínu í dag. Flugskeyti hæfðu skrifstofubyggingu miðborg Kherson sem Rússar höfðu hertekið en var stökkt á flótta þaðan í nóvember. Erlent 15.6.2023 21:17
Ástralir stöðva byggingu á nýju sendiráði Rússa Ástralska þingið hefur samþykkt lagafrumvarp sem felur í sér að framkvæmdir á nýju sendiráði Rússa í grennd við þinghúsið í áströlsku höfuðborginni Canberra séu stöðvaðar. Er þar vísað til öryggissjónarmiða. Erlent 15.6.2023 07:58
Hægri hönd téténska einræðisherrans sagður hafa særst Dmitrí Peskóv, talsmaður Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, sagði í dag að fregnir af því að rússneskur þingmaður og náinn bandamaður Ramzans Kadyrov, einræðisherra Téténíu, hefði særst í Úkraínu væru áhyggjuefni. Adam Delimkhanov, sem lýst hefur verið sem hægri hönd Kadyrov, var sagður hafa særst í árás Úkraínumanna. Erlent 14.6.2023 14:35
Kynntu fyrstu þjóðaröryggistefnu Þýskalands Olaf Scholz, kanslari Þýskalandi, opinberaði í dag nýja þjóðaröryggisstefnu ríkisstjórnar sinnar. Þetta er í fyrsta sinn sem Þjóðverjar setja sér stefnu sem þessa en er hann kynnti hana í morgun talaði Scholz um gerbreytt öryggisástand í Evrópu vegna innrásar Rússa í Úkraínu og sagði Rússland helstu ógnina sem Þýskaland stæði frammi fyrir. Erlent 14.6.2023 12:23
Segir Rússa hafa misst 54 skriðdreka á nokkrum dögum Vladimír Pútín, forseti Rússlands, gaf í skyn að hann myndi skipa rússneska hernum að ráðast aftur inn í norðurhluta Úkraínu. Hann hélt því fram að Úkraínumenn hefðu orðið fyrir gífurlegu mannfalli í gagnsókn þeirra, sem er nýhafin í suður- og austurhluta Úkraínu. Erlent 13.6.2023 17:15
Utanríkisráðherrar Norðurlanda funduðu á Ísafirði Utanríkisráðherrar Norðurlanda funduðu í Edinborgarhúsinu á Ísafirði í morgun. Innrás Rússa var til umræðu og ræddi Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra þá ákvörðun sína að leggja niður starfsemina í sendiráði Íslands í Moskvu sem tilkynnt var um í liðinni viku. Innlent 13.6.2023 15:33
Enn og aftur ráðist á opinbera vefi Netárásir voru gerðar í morgun á nokkra stjórnsýsluvefi, þar á meðal vef Alþingis, Stjórnarráðsins og Hæstaréttar. Forstjóri netöryggissveitarinnar CERT-IS segir sama hóp að baki árásunum og stóð að netárásum á meðan leiðtogafundur Evrópuráðsins fór fram í maí. Innlent 13.6.2023 11:28
Staðarráðnum starfsmönnum og leigunni sagt upp Fimm staðarráðnum starfsmönnum íslenska sendiráðsins í Moskvu verður sagt upp í samræmi við gildandi ráðningarsamninga. Þá er gert ráð að leigusamningum fyrir húsnæði sendiráðsins og sendiherrabústað verði sagt upp. Innlent 13.6.2023 07:54
Gerðu loftárás á heimabæ Selenskís Þrír létust og tuttugu og fimm særðust í loftárásum Rússa á úkraínska bæinn Kryvyi Rih í nótt. Erlent 13.6.2023 07:39
Segja að Rússar hafi sprengt aðra stíflu Úkraínumenn saka Rússa um að hafa sprengt aðra stíflu í landinu, í þetta sinn í Zaporizhzhia héraði. Erlent 12.6.2023 07:15
Segjast hafa endurheimt fyrstu þorpin Úkraínumenn segjast hafa endurheimt þrjú þorp í Dónetsk-héraði úr höndum Rússa. Úkraínuforseti staðfesti í gær að gagnsókn úkraínska hersins væri hafin. Erlent 11.6.2023 21:17
„Eins og að lenda á stálvegg“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði í gær að gagnsókn Úkraínumanna væri hafin. Hann gaf lítið fyrir orð Valdimír Pútín, forseta Rússlands, um að gagnsóknin hefði engum árangri skilað og bað blaðamenn þess í stað um að koma því til Pútíns að úkraínskir herforingjar væru í góðu skapi þessa dagana. Erlent 11.6.2023 08:53
Segja ákvörðunina eiga eftir að eyðileggja allt samstarf Rússlands og Íslands And-rússneskum ákvörðunum íslenskra ráðamanna verður óhjákvæmilega svarað. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem rússneska utanríkisráðuneytið birti í dag í kjölfar ákvörðunar Þórdísar Kolbrúnar Gylfadóttur, utanríkisráðherra, um að leggja niður starfsemi sendiráðs Íslands í Moskvu, senda sendiherra Rússlands á Íslandi heim og draga þar með úr diplómatískum samskiptum ríkjanna. Innlent 10.6.2023 15:17
Rússneski sendiherrann verði farinn fyrir mánaðamót Utanríkisráðherra segir enga ástæðu til að halda úti starfsemi sendiráðs í Moskvu þegar samskipti og viðskipti Íslands og Rússlands væru nánast engin og ætlar því að loka sendiráðinu. Það væri einnig hugsað í samhengi við alþjóðlegar aðgerðir til að einangra Rússa vegna innrásar þeirra í Úkraínu. Innlent 9.6.2023 19:21
Hvetur önnur ríki til að fara að fordæmi Íslendinga Dmytro Kuleba, utanríkisráðherra Úkraínu, sendi í dag þakkir til Þórdísar Kolbrúnu R. Gylfadóttur, utanríkisráðherra Íslands. Það gerði hann vegna ákvörðunar Íslendinga að leggja niður starfsemi í sendiráðinu í Rússlandi og krefjast þess að Rússar takmarki umsvif sín hér á landi. Erlent 9.6.2023 13:50
Forsendur gjörbreyttar og tengslin nánast engin „Staðreyndin er bara sú að forsendur fyrir því að reka starfsemi í Moskvu eru gjörbreyttar,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, sem hefur ákveðið að leggja niður starfsemi íslenska sendiráðsins í Moskvu. Starfsemi rússneska sendiráðisins hér verður takmörkuð og sendiherrann fer heim. Innlent 9.6.2023 13:16
Rússneskum manni banað af hákarli í Rauðahafi Rússneskur maður lést í gær eftir að tígrishákarl réðst á hann undan ströndum Hurghada í Egyptalandi. Hákarlinn réðst á manninn skammt frá landi og stóðu ferðamenn á bakkanum og horfðu á árásina. Erlent 9.6.2023 11:28
Loka sendiráðinu í Moskvu og takmarka umsvif Rússa hérlendis Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra hefur ákveðið að leggja niður starfsemi sendiráðs Íslands í Moskvu frá 1. ágúst næstkomandi. Þá hefur sendiherra Rússlands hér á landi verið tjáð að gert sé ráð fyrir að Rússland minnki fyrirsvar sitt þannig að sendiherra stýri ekki lengur sendiráði Rússlands í Reykjavík. Sömuleiðis hefur Rússlandi verið gert að lágmarka starfsemi sendiráðsins á Íslandi til samræmis við þessa ákvörðun. Innlent 9.6.2023 11:12
„Það er enn engin hjálp“ Fólk sem situr fast í húsum á austurbakka Dnipróár í Úkraínu segir litla hjálp berast frá Rússum. Fólk sem hefur reynt að koma öðrum til bjargar segist hafa lent í því að rússneskir hermenn taki báta þeirra. Aðrir segja að hermennirnir hjálpi ekki fólki nema þau hafi rússnesk vegabréf. Erlent 9.6.2023 10:34
Yana mótmælir ein í rigningunni innrás Rússa í heimalandið Á sama tíma og nokkrir þingmenn koma í veg fyrir áframhaldandi undanþágur á tollum á innfluttum kjúklingi frá Úkraínu, stendur Yana Hryshko frá Kyiv héraði alein í rigningunni og mótmælir fyrir utan ræðisskrifstofu Rússlands við Túngötu. Hún óskar þess heitast að stríðinu ljúki og hún komist aftur heim. Innlent 8.6.2023 20:31
Fönguðu eyðilegginguna í Kherson úr lofti Drónamyndir frá Kherson-héraði í Úkraínu, bæði vestan og austan megin við Dnipróá, sýna gífurlega eyðileggingu vegna flóða. Vatn hefur streymt yfir fjölmargar byggðir og valdið gífurlegri eyðileggingu. Erlent 8.6.2023 14:45
Hlébarðarnir sjást í fyrsta sinn á víglínunum Úkraínumenn eru sagðir hafa gert umfangsmiklar árásir gegn Rússum í Sapórisjía-héraði en þýskir skriðdrekar af gerðinni Leopard hafa sést á víglínunum í fyrsta sinn. Erlent 8.6.2023 10:43
Stór sprenging inni í stíflunni líklegasta orsökin Líklegasta ástæða þess að Kakhovka-stíflan í Kherson-héraði í Úkraínu brast, er að miklu magni sprengiefna hafi verið komið fyrir inni í stíflunni og hún sprengd. Aðrar ástæður eins og eldflaugaárás og mikið álag eru mögulegar en mun ólíklegri. Erlent 7.6.2023 11:30
Eyðilegging stíflunnar hefur alvarleg áhrif á líf fjölda fólks til framtíðar Alls hafa um fjörutíu þúsund manns þurft að yfirgefa heimili sín eftir að Kakhovka stíflan í Úkraínu brast í fyrrinótt. Erlent 7.6.2023 07:48