Vísindi Þingmenn fóru inn á lokað svæði sem vísindamenn Ari Trausti Guðmundsson, þingmaður Vinstri grænna, og Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, fóru að gosstöðvunum í Fagradalsfjalli í gær þegar svæðið var lokað almenningi. Vísindamenn og fjölmiðlamenn fengu aðgang að svæðinu eftir að því var lokað vegna hættu á nýjum sprungum. Innlent 7.4.2021 14:41 Hraunpollurinn tæmdist að hluta og óvíst hvert kvikan flæddi Hraunpollurinn sem myndast hafði norður af gígnum Norðra í Geldingadölum tæmdist að hluta í nótt. Yfirborð pollsins hefur lækkað um nokkra metra en ekki er vitað með vissu hvert kvikan flæddi frá pollinum. Innlent 3.4.2021 14:05 Þrávirk efni ógna heilsu háhyrninga við Ísland Margfalt meira af þrávirkum efnum fundust í íslenskum háhyrningum sem éta bæði fisk og spendýr en þeim sem nærast aðeins á fiski í nýrri rannsókn hafvísindamanna á Íslandi, í Kanada og Danmörku. Heilsu hvalanna og afkomu stofnsins er ógnað af menguninni. Innlent 30.3.2021 09:01 Gasútstreymið „hættuleg og sterk blanda“ lífshættulegra gastegunda „Nú er orðið ljóst að gasútstreymi frá eldstöðvunum er ekkert í líkingu við það sem við höfum séð áður. Þar er einstaklega hættuleg og sterk blanda CO2 og CO, sem eru lífshættuleg gös.“ Innlent 25.3.2021 00:06 Bein útsending: Súrefnisspúandi álver - kapphlaupið um eðalskautin Guðrún Arnbjörg Sævarsdóttir, prófessor við verkfræðideild, flytur þriðjudagsfyrirlestur HR og Vísis í hádeginu i dag. Þar verður fjallað um ferli álframleiðslu, áskoranir og hið nýja kapphlaup í álbransanum. Viðskipti innlent 23.3.2021 11:31 Heiðskírt með 400 metrum á sekúndu Veðurofsinn í heiðhvolfi Júpíters, stærstu reikistjörnu sólkerfisins, hefur nú verið mældur beint í fyrsta skipti. Vindhraðinn mældist ríflega 400 metrar á sekúndu við heimskaut gasrisans og telja stjörnufræðingar veðurfyrirbrigðið einstakt í sólkerfinu. Erlent 18.3.2021 15:56 Botnvörpuveiðar taldar losa jafnmikið og flugsamgöngur Allt að milljarður tonna af koltvísýringi losnar út í höf jarðar vegna botnvörpuveiða á ári, meira en losnar frá samgöngum út í loftið. Þetta er á meðal bráðabirgðaniðurstaðna nýrrar rannsóknar á hvernig þjóðir geta barist gegn loftslagsbreytingum og hruni vistkerfa hafsins. Erlent 18.3.2021 15:09 Sóttvarnaaðgerðir ráðist ekki af veðri og vindum Stjórnvöld ættu ekki að nota árstíðarskipti og hlýnandi veðurfar sem ástæðu til að slaka á sóttvarnaaðgerðum sem eiga að hefta útbreiðslu kórónuveirufaraldursins. Sérfræðingar segja að smitvarnir yfirvalda hafi mun meiri áhrif á útbreiðslu veirunnar en veður eða loftgæði. Erlent 18.3.2021 08:02 Um helmingi meiri koltvísýringur í lofti en fyrir iðnbyltinguna Styrkur koltvísýrings í lofthjúpi jarðar var um helmingi meiri en áður en iðnbyltingin hófst í nokkra daga á fyrstu mánuðum þessa árs. Búist er við því að árið 2021 verði það fyrsta þar sem styrkurinn verður svo hár í meira en nokkra daga. Erlent 17.3.2021 11:01 Endurskapa hverfandi jöklana í kringum Höfn Tölvulíkön og drónatækni gerðu íslenskum og skoskum vísindamönnum kleift að endurskapa jökla í kringum Höfn í Hornafirði eins og þeir litu út fyrir fjörutíu og allt að 75 árum í nýrri stuttmynd. Á sama tíma sýna myndirnar glöggt hversu stórfelldar breytingar hafa orðið á jöklunum með áframhaldandi hnattrænni hlýnun af völdum manna. Innlent 15.3.2021 07:00 Heyrðu hljóðið í vindinum og leysitæki á Mars Hljóðupptökur úr leysimælitæki bandaríska könnunarjeppans Perseverance á Mars hafa nú verið birtar opinberlega. Á þeim má heyra gnauðandi vindinn á nágrannareikistjörnunni og hljóðið í leysigeisla sem er skotið á steina. Erlent 11.3.2021 16:29 Ætla sér að reisa geimstöð á tunglinu Rússar og Kínverjar hafa gert samkomulag um að reisa rannsóknarstöð á tunglinu. Stöðina vilja þeir nota bæði til könnunar og nýtingar tunglsins í framtíðinni. Erlent 11.3.2021 13:27 Draga til baka rannsókn á skammtatölvum vegna „mistaka“ Hópur sérfræðinga á vegum tæknirisans Microsoft hefur dregið til baka umdeilda rannsókn á svonefndum skammtatölvum sem birtist árið 2018. Mistök hafi verið gerð við rannsóknina og biðjast höfundarnir afsökunar á að hafa ekki stundað nægilega vísindaleg vinnubrögð. Erlent 10.3.2021 10:39 Fyrsta ökuferð Perseverance á rauðu reikistjörnunni Bandaríski könnunarjeppinn Perseverance notaði hjól sín í fyrsta skipti og ók stuttan spöl á reikistjörnunni Mars í gær. Enn er verið að búa tæki og tól jeppans fyrir fimmtán kílómetra langt ferðalag um yfirborð reikistjörnunnar næstu tvö árin. Erlent 5.3.2021 23:39 Ísjaki stærri en höfuðborgarsvæðið brotnaði af Suðurskautsísnum Risavaxinn borgarísjaki sem er stærri en höfuðborgarsvæðið að flatarmáli brotnaði af Brunt-íshellunni á Suðurskautslandinu á föstudag. Tæpur áratugur er liðinn frá því að breskir vísindamenn komu fyrst auga á sprungumyndun í ísnum. Erlent 1.3.2021 11:09 Bein útsending: Vísindi á mannamáli Á Stafræna Háskóladeginum situr vísinda- og fræðafólk Háskóla Íslands fyrir svörum í beinu streymi úr Hátíðasal skólans. Innlent 27.2.2021 12:00 Ísland á smáþjóðaleikunum í jarðskjálftamálum Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks gefur ekki mikið fyrir íslenska jarðskjálfta. Innlent 26.2.2021 10:16 Vedur.is hrundi þegar 70 þúsund manns vildu þangað inn í einu Árni Snorrason forstjóri Veðurstofunnar segir að þegar hafi farið fram gagngerar endurbætur á vefnum vedur.is, sem lagðist niður í morgun, og þeim sé ekki lokið. Innlent 24.2.2021 17:10 Kári hamast enn í og hundskammar heimspekinga Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir dagljóst að heimspekingar hafi ekki hundsvit á bólusetningum. Innlent 23.2.2021 09:48 NASA birtir myndband af lendingu Preseverance á Mars NASA birti í dag myndband af sögulegri lendingu vélmennisins Preseverance á Mars í síðustu viku. Myndbandið sýnir síðustu mínúturnar af, að margra mati spennuþrungnum, aðdragandanum að lendingunni og af lendingunni sjálfri þegar hjól vélmennisins, eða geimjeppans, snertu loks yfirborð plánetunnar. Erlent 22.2.2021 23:03 Langvarandi áhrif Covid-19 minnki yfirleitt með tímanum Tæp sjötíu prósent þeirra sem greindust með covid-19 í fyrstu bylgju faraldursins hér á landi segjast hafa fundið fyrir þreytu og um helmingur hefur fundið fyrir verkjum og mæði, eftir að hafa jafnað sig af sjúkdómnum sjálfum. Langvarandi áhrif covid-19 fari þó minnkandi með tímanum. Þetta segir Sigríður Zoega, sérfræðingur í hjúkrun og dósent við Háskóla Íslands, en hún heldur utan um rannsókn um eftirköst covid-19 á Íslandi. Innlent 22.2.2021 21:01 Segir lendingu jeppans mikið afrek Þrautseigja, nýjasti jeppi bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA, lenti á Mars í gær. Rektor Háskólans í Reykjavík segir lendinguna stórmerkilegan áfanga. Innlent 19.2.2021 19:31 Perserverance lent á Mars Vélmennið Perseverance hefur lent á yfirborði Mars eftir rúmlega hálfs árs ferðalag. Ferðalagi þess til Mars lauk nú í kvöld og mun vélmennið safna upplýsingum í því skyni að komast að því hvort líf hafi einhvern tímann verið á plánetunni. Erlent 18.2.2021 21:20 Ætla að lenda á Mars í kvöld Þrautseigja, nýjasti Mars-jeppi bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA, á að lenda á Mars stuttu fyrir klukkan níu í kvöld. Hálft ár er frá því jeppanum var skotið á loft. Erlent 18.2.2021 14:01 Rannsaka virkni þess að gefa sitthvort bóluefnið í fyrri og seinni skammt Vísindamenn við Oxford-háskóla í Bretlandi ætla að rannsaka hvort það gefist eins vel að gefa fólki sitthvort bóluefnið gegn Covid-19 í fyrri og seinni sprautu bólusetningar í stað þess að gefa sama bóluefnið tvisvar líkt og nú er gert. Erlent 4.2.2021 07:13 Óttast að sjávarborð hækki hraðar en spár gera ráð fyrir Loftslagsvísindamenn við stofnun Niels Bohr við Kaupmannahafnarháskóla segjast telja að sjávarborð gæti hækkað um allt að 135 sentímetra fyrir næstu aldamót. Erlent 2.2.2021 17:24 BBC fjallar um örar breytingar á Skaftafellsjökli Árið 1989 heimsótti breski ljósmyndarinn Colin Baxter Ísland heim ásamt fjölskyldu sinni og tók ljósmynd af Skaftafellsjökli í öllu sínu veldi. Um þrjátíu árum síðar var sonur hans mættur aftur fyrir framan skriðjökulinn til að feta í fótspor föður síns en við blasti heldur breytt landslag. Erlent 1.2.2021 11:49 Fundu loðnu mjög víða við landgrunnsbrúnina Umfangsmestu loðnuleit til þessa á Íslandsmiðum lýkur í kvöld þegar rannsóknarskipið Árni Friðriksson klárar síðasta leitarlegg sinn á Víkurál, syðst á Vestfjarðamiðum, djúpt vestur af Kollsvík. Tvö rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar og sex fiskiskip frá útgerðum stefna síðan öll til lands og tvö þegar lögst að bryggju. Viðskipti innlent 30.1.2021 21:35 Sex vilja gegna embætti forstjóra Hafró Alls sóttu sex um embætti forstjóra Hafrannsóknastofnunar sem auglýst var þann 19. desember 2020. Umsóknarfrestur rann út þann 19. janúar síðastliðinn, en í hópi umsækjenda er núverandi forstjóri, Sigurður Guðjónsson. Innlent 22.1.2021 13:35 Guðmundur Felix þakkar þjóðinni og sýnir nýju handleggina „Komið þið sæl, kæru Íslendingar. Það er loksins komið að þessu,“ segir Guðmundur Felix Grétarsson „handhafi“ í kveðju til landsmanna. Innlent 22.1.2021 12:12 « ‹ 14 15 16 17 18 19 20 21 22 … 52 ›
Þingmenn fóru inn á lokað svæði sem vísindamenn Ari Trausti Guðmundsson, þingmaður Vinstri grænna, og Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, fóru að gosstöðvunum í Fagradalsfjalli í gær þegar svæðið var lokað almenningi. Vísindamenn og fjölmiðlamenn fengu aðgang að svæðinu eftir að því var lokað vegna hættu á nýjum sprungum. Innlent 7.4.2021 14:41
Hraunpollurinn tæmdist að hluta og óvíst hvert kvikan flæddi Hraunpollurinn sem myndast hafði norður af gígnum Norðra í Geldingadölum tæmdist að hluta í nótt. Yfirborð pollsins hefur lækkað um nokkra metra en ekki er vitað með vissu hvert kvikan flæddi frá pollinum. Innlent 3.4.2021 14:05
Þrávirk efni ógna heilsu háhyrninga við Ísland Margfalt meira af þrávirkum efnum fundust í íslenskum háhyrningum sem éta bæði fisk og spendýr en þeim sem nærast aðeins á fiski í nýrri rannsókn hafvísindamanna á Íslandi, í Kanada og Danmörku. Heilsu hvalanna og afkomu stofnsins er ógnað af menguninni. Innlent 30.3.2021 09:01
Gasútstreymið „hættuleg og sterk blanda“ lífshættulegra gastegunda „Nú er orðið ljóst að gasútstreymi frá eldstöðvunum er ekkert í líkingu við það sem við höfum séð áður. Þar er einstaklega hættuleg og sterk blanda CO2 og CO, sem eru lífshættuleg gös.“ Innlent 25.3.2021 00:06
Bein útsending: Súrefnisspúandi álver - kapphlaupið um eðalskautin Guðrún Arnbjörg Sævarsdóttir, prófessor við verkfræðideild, flytur þriðjudagsfyrirlestur HR og Vísis í hádeginu i dag. Þar verður fjallað um ferli álframleiðslu, áskoranir og hið nýja kapphlaup í álbransanum. Viðskipti innlent 23.3.2021 11:31
Heiðskírt með 400 metrum á sekúndu Veðurofsinn í heiðhvolfi Júpíters, stærstu reikistjörnu sólkerfisins, hefur nú verið mældur beint í fyrsta skipti. Vindhraðinn mældist ríflega 400 metrar á sekúndu við heimskaut gasrisans og telja stjörnufræðingar veðurfyrirbrigðið einstakt í sólkerfinu. Erlent 18.3.2021 15:56
Botnvörpuveiðar taldar losa jafnmikið og flugsamgöngur Allt að milljarður tonna af koltvísýringi losnar út í höf jarðar vegna botnvörpuveiða á ári, meira en losnar frá samgöngum út í loftið. Þetta er á meðal bráðabirgðaniðurstaðna nýrrar rannsóknar á hvernig þjóðir geta barist gegn loftslagsbreytingum og hruni vistkerfa hafsins. Erlent 18.3.2021 15:09
Sóttvarnaaðgerðir ráðist ekki af veðri og vindum Stjórnvöld ættu ekki að nota árstíðarskipti og hlýnandi veðurfar sem ástæðu til að slaka á sóttvarnaaðgerðum sem eiga að hefta útbreiðslu kórónuveirufaraldursins. Sérfræðingar segja að smitvarnir yfirvalda hafi mun meiri áhrif á útbreiðslu veirunnar en veður eða loftgæði. Erlent 18.3.2021 08:02
Um helmingi meiri koltvísýringur í lofti en fyrir iðnbyltinguna Styrkur koltvísýrings í lofthjúpi jarðar var um helmingi meiri en áður en iðnbyltingin hófst í nokkra daga á fyrstu mánuðum þessa árs. Búist er við því að árið 2021 verði það fyrsta þar sem styrkurinn verður svo hár í meira en nokkra daga. Erlent 17.3.2021 11:01
Endurskapa hverfandi jöklana í kringum Höfn Tölvulíkön og drónatækni gerðu íslenskum og skoskum vísindamönnum kleift að endurskapa jökla í kringum Höfn í Hornafirði eins og þeir litu út fyrir fjörutíu og allt að 75 árum í nýrri stuttmynd. Á sama tíma sýna myndirnar glöggt hversu stórfelldar breytingar hafa orðið á jöklunum með áframhaldandi hnattrænni hlýnun af völdum manna. Innlent 15.3.2021 07:00
Heyrðu hljóðið í vindinum og leysitæki á Mars Hljóðupptökur úr leysimælitæki bandaríska könnunarjeppans Perseverance á Mars hafa nú verið birtar opinberlega. Á þeim má heyra gnauðandi vindinn á nágrannareikistjörnunni og hljóðið í leysigeisla sem er skotið á steina. Erlent 11.3.2021 16:29
Ætla sér að reisa geimstöð á tunglinu Rússar og Kínverjar hafa gert samkomulag um að reisa rannsóknarstöð á tunglinu. Stöðina vilja þeir nota bæði til könnunar og nýtingar tunglsins í framtíðinni. Erlent 11.3.2021 13:27
Draga til baka rannsókn á skammtatölvum vegna „mistaka“ Hópur sérfræðinga á vegum tæknirisans Microsoft hefur dregið til baka umdeilda rannsókn á svonefndum skammtatölvum sem birtist árið 2018. Mistök hafi verið gerð við rannsóknina og biðjast höfundarnir afsökunar á að hafa ekki stundað nægilega vísindaleg vinnubrögð. Erlent 10.3.2021 10:39
Fyrsta ökuferð Perseverance á rauðu reikistjörnunni Bandaríski könnunarjeppinn Perseverance notaði hjól sín í fyrsta skipti og ók stuttan spöl á reikistjörnunni Mars í gær. Enn er verið að búa tæki og tól jeppans fyrir fimmtán kílómetra langt ferðalag um yfirborð reikistjörnunnar næstu tvö árin. Erlent 5.3.2021 23:39
Ísjaki stærri en höfuðborgarsvæðið brotnaði af Suðurskautsísnum Risavaxinn borgarísjaki sem er stærri en höfuðborgarsvæðið að flatarmáli brotnaði af Brunt-íshellunni á Suðurskautslandinu á föstudag. Tæpur áratugur er liðinn frá því að breskir vísindamenn komu fyrst auga á sprungumyndun í ísnum. Erlent 1.3.2021 11:09
Bein útsending: Vísindi á mannamáli Á Stafræna Háskóladeginum situr vísinda- og fræðafólk Háskóla Íslands fyrir svörum í beinu streymi úr Hátíðasal skólans. Innlent 27.2.2021 12:00
Ísland á smáþjóðaleikunum í jarðskjálftamálum Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks gefur ekki mikið fyrir íslenska jarðskjálfta. Innlent 26.2.2021 10:16
Vedur.is hrundi þegar 70 þúsund manns vildu þangað inn í einu Árni Snorrason forstjóri Veðurstofunnar segir að þegar hafi farið fram gagngerar endurbætur á vefnum vedur.is, sem lagðist niður í morgun, og þeim sé ekki lokið. Innlent 24.2.2021 17:10
Kári hamast enn í og hundskammar heimspekinga Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir dagljóst að heimspekingar hafi ekki hundsvit á bólusetningum. Innlent 23.2.2021 09:48
NASA birtir myndband af lendingu Preseverance á Mars NASA birti í dag myndband af sögulegri lendingu vélmennisins Preseverance á Mars í síðustu viku. Myndbandið sýnir síðustu mínúturnar af, að margra mati spennuþrungnum, aðdragandanum að lendingunni og af lendingunni sjálfri þegar hjól vélmennisins, eða geimjeppans, snertu loks yfirborð plánetunnar. Erlent 22.2.2021 23:03
Langvarandi áhrif Covid-19 minnki yfirleitt með tímanum Tæp sjötíu prósent þeirra sem greindust með covid-19 í fyrstu bylgju faraldursins hér á landi segjast hafa fundið fyrir þreytu og um helmingur hefur fundið fyrir verkjum og mæði, eftir að hafa jafnað sig af sjúkdómnum sjálfum. Langvarandi áhrif covid-19 fari þó minnkandi með tímanum. Þetta segir Sigríður Zoega, sérfræðingur í hjúkrun og dósent við Háskóla Íslands, en hún heldur utan um rannsókn um eftirköst covid-19 á Íslandi. Innlent 22.2.2021 21:01
Segir lendingu jeppans mikið afrek Þrautseigja, nýjasti jeppi bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA, lenti á Mars í gær. Rektor Háskólans í Reykjavík segir lendinguna stórmerkilegan áfanga. Innlent 19.2.2021 19:31
Perserverance lent á Mars Vélmennið Perseverance hefur lent á yfirborði Mars eftir rúmlega hálfs árs ferðalag. Ferðalagi þess til Mars lauk nú í kvöld og mun vélmennið safna upplýsingum í því skyni að komast að því hvort líf hafi einhvern tímann verið á plánetunni. Erlent 18.2.2021 21:20
Ætla að lenda á Mars í kvöld Þrautseigja, nýjasti Mars-jeppi bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA, á að lenda á Mars stuttu fyrir klukkan níu í kvöld. Hálft ár er frá því jeppanum var skotið á loft. Erlent 18.2.2021 14:01
Rannsaka virkni þess að gefa sitthvort bóluefnið í fyrri og seinni skammt Vísindamenn við Oxford-háskóla í Bretlandi ætla að rannsaka hvort það gefist eins vel að gefa fólki sitthvort bóluefnið gegn Covid-19 í fyrri og seinni sprautu bólusetningar í stað þess að gefa sama bóluefnið tvisvar líkt og nú er gert. Erlent 4.2.2021 07:13
Óttast að sjávarborð hækki hraðar en spár gera ráð fyrir Loftslagsvísindamenn við stofnun Niels Bohr við Kaupmannahafnarháskóla segjast telja að sjávarborð gæti hækkað um allt að 135 sentímetra fyrir næstu aldamót. Erlent 2.2.2021 17:24
BBC fjallar um örar breytingar á Skaftafellsjökli Árið 1989 heimsótti breski ljósmyndarinn Colin Baxter Ísland heim ásamt fjölskyldu sinni og tók ljósmynd af Skaftafellsjökli í öllu sínu veldi. Um þrjátíu árum síðar var sonur hans mættur aftur fyrir framan skriðjökulinn til að feta í fótspor föður síns en við blasti heldur breytt landslag. Erlent 1.2.2021 11:49
Fundu loðnu mjög víða við landgrunnsbrúnina Umfangsmestu loðnuleit til þessa á Íslandsmiðum lýkur í kvöld þegar rannsóknarskipið Árni Friðriksson klárar síðasta leitarlegg sinn á Víkurál, syðst á Vestfjarðamiðum, djúpt vestur af Kollsvík. Tvö rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar og sex fiskiskip frá útgerðum stefna síðan öll til lands og tvö þegar lögst að bryggju. Viðskipti innlent 30.1.2021 21:35
Sex vilja gegna embætti forstjóra Hafró Alls sóttu sex um embætti forstjóra Hafrannsóknastofnunar sem auglýst var þann 19. desember 2020. Umsóknarfrestur rann út þann 19. janúar síðastliðinn, en í hópi umsækjenda er núverandi forstjóri, Sigurður Guðjónsson. Innlent 22.1.2021 13:35
Guðmundur Felix þakkar þjóðinni og sýnir nýju handleggina „Komið þið sæl, kæru Íslendingar. Það er loksins komið að þessu,“ segir Guðmundur Felix Grétarsson „handhafi“ í kveðju til landsmanna. Innlent 22.1.2021 12:12