„En við getum aldrei talað um að hann sé að gera þetta fyrir vin sinn“ Sonur Jóns Gunnarssonar sagði föður sinn ætla að afgreiða hvalveiðileyfi fyrir kosningar en að ekki mætti tala um að hann gerði það fyrir Kristján Loftsson, vin hans, á leynilegum upptökum sem voru gerðar af honum. Jón hefði tekið sæti á lista Sjálfstæðisflokksins gegn því að fá stöðu. 15.11.2024 09:06
Sprengdi sig upp fyrir utan hæstarétt Brasilíu Karlmaður sem reyndi að komast inn í hús hæstaréttar í höfuðborg Brasilíu sprengdi sig í loft upp fyrir utan bygginguna í gærkvöldi. Aðeins fimm dagar eru þar til að leiðtogar G20-ríkjanna koma saman í Ríó de Janeiro. 14.11.2024 10:05
Telur enga frétt í leyniupptökunum um hvalveiðar Verkalýðsleiðtogi af Akranesi segir ekkert fréttnæmt í leynilegum upptökum af syni Jóns Gunnarssonar þar sem hann ræddi um baktjaldamakk um hvalveiðar. Þá segist hann eiga erfitt með að sjá að Alþingi gæti bannað hvalveiðar þótt meirihluti væri fyrir því þar. 14.11.2024 09:15
Hundruð umsókna frá bændum vegna tjóns í kuldatíð í vor og sumar Tjón af völdum óvenjulegrar kuldatíðar í vor og sumar hefur verið skráð á fjórða hundrað búa, fyrst og fremst á Norðurlandi. Starfshópur á vegum ríkisstjórnarinnar á að fara yfir tjón bænda og leggja fram tillögur um stuðning við þá. 13.11.2024 14:12
Fá ekki að skrá svívirðingar um Rússa sem vörumerki Evrópskur dómstóll hafnaði umsókn úkraínska landamæraeftirlitsins um að skrá svívirðingar um rússneskt herskip sem vörumerki í dag. Svívirðingarnar hafa orðið að nokkurs konar þjóðarslagorði í Úkraínu í stríðinu gegn Rússum. 13.11.2024 13:28
Kaupmáttur á opinberum markaði minni vegna lausra samninga Enn er ósamið við um fjörutíu prósent opinbera vinnumarkaðarins á sama tíma og samningum við allflest launafólk á almennum markaði er lokið. Fyrir vikið hefur kaupmáttur fólks á opinbera markaðinum rýrnað eða staðið í stað á meðan hann hefur aukist aðeins á þeim almenna. 13.11.2024 10:21
Hvítrússnesk andófskona skýtur upp kollinum eftir langa þögn Helstu mannréttindasamtök Hvíta-Rússlands segja að María Kolesnikova, einn forsprakka mótmæla gegn Viktor Lúkasjenka forseta, hafi fengið að hitta föður sinn. Henni hafði verið meinað um að eiga í samskiptum við fjölskyldu og vini í tuttugu mánuði. 13.11.2024 09:25
Bauð leyniupptökur af spillingu í nafni ísraelsks njósnafyrirtækis Leynileg upptaka sem virðist hafa verið grundvöllur umfjöllunar um aðstoðarmann forsætisráðherra og hvalveiðar var boðin fleirum en Heimildinni í síðustu viku. Boðin voru send í nafni ísraelsks njósnafyrirtækis sem vann meðal annars fyrir Harvey Weinstein. 11.11.2024 16:54
Sakar Orbán um „ungverskt Watergate-hneyksli“ Leiðtogi ungversku stjórnarandstöðunnar sakar ríkisstjórn Viktors Orbán forsætisráðherra um að njósna um sig og aðstoðarmenn sína. Líkir hann hlerununum við Watergate-hneykslið sem felldi Richard Nixon, fyrrum Bandaríkjaforseta. 11.11.2024 11:47
Scholz tilbúinn að láta undan þrýstingi um vantraust Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, segist til í að efna til vantraustsatkvæðagreiðslu á þingi fyrr en hann hafði ætlað ef samstaða ríkir um það á meðal stjórnmálaflokkanna. Líkurnar á skyndikosningum snemma á næsta ári fara því vaxandi. 11.11.2024 10:46