Hagnaður Kviku áttfaldast samtímis vexti á öllum tekjusviðum bankans Mikill viðsnúningur var í rekstri Kviku á þriðja ársfjórðungi þegar bankinn hagnaðist um ríflega 1,8 milljarða af áframhaldandi starfsemi, sem jafngildir um 22,4 prósenta arðsemi, og jókst hann um áttfalt á milli ára þar sem allar einingar voru um eða yfir áætlun. Eftir nokkurt tap á starfsemi Kviku í Bretlandi í fyrra hefur reksturinn núna skilað um 900 milljóna hagnaði á fyrstu níu mánuðum ársins en bankinn áformar að markaðssetja nýjan framtakssjóð í árslok sem á að fjárfesta í Bretlandi. 6.11.2024 18:16
Hlutabréfaverð Icelandair hækkar með viðsnúningi í farþegafluginu til Íslands Eftir stöðugan samdrátt í ferðum til Íslands undanfarna mánuði varð viðsnúningur í október þegar markaðurinn tók við sér og Icelandair flutti fleiri farþega til landsins en á sama tíma fyrir ári. Hlutabréfaverð Icelandair hefur hækkað skarpt eftir birtingu á nýjum farþegatölum í morgun en samdráttur í farþegaflugi til Íslands á árinu hefur haft neikvæð áhrif á einingatekjur félagsins. 6.11.2024 11:14
Norrænir eftirlitsstjórar segja brýnt að fjármálaregluverk ESB verði einfaldað Stjórnendur norrænna fjármálaeftirlitsstofnana, meðal annars Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, hafa beint því formlega til Evrópusambandsins að það verði að einfalda hið viðamikla og flókna regluverk sem kemur frá sambandinu og nær til starfsemi fjármálafyrirtækja og verðbréfamarkaða. Í sameiginlegu bréfi til sambandsins segja þeir stjórnmálamenn og almenning ætlast til þess að reglurnar séu einfaldaðar með áherslu á áhættumiðað eftirlit og minni byrðar á fyrirtæki. 5.11.2024 07:31
Telur að aukið vægi tengiflugs muni setja þrýsting á EBIT-hlutfall Icelandair Þótt sumt vinni með flugfélögunum til skamms tíma, eins og meðal annars lækkandi þotueldsneytisverð, er meiri óvissa um langtímahorfurnar vegna launahækkana og lakari samkeppnisstöðu Íslands, að mati greinanda, sem tekur nokkuð niður verðmat sitt á Icelandair. Útlit er fyrir bætta afkomu á komandi árum, einkum með nýjum og sparneytnari þotum, en aukið vægi tengiflugs þýðir að langtímamarkmið flugfélagsins um átta prósenta EBIT-hlutfall er ekki innan seilingar. 4.11.2024 15:04
Verðtryggingarmisvægi bankanna jókst um nærri hundrað milljarða Verðtryggingarmisvægi stóru viðskiptabankanna jókst um tæplega fimmtung á þriðja ársfjórðungi, langsamlega mest hjá Landsbankanum, samtímis áframhaldandi ásókn heimila í verðtryggð lán. Bankarnir hafa sögulega séð aldrei verið með eins mikla skekkju á verðtryggðum eignum og skuldum en sú staða á meðan verðbólga er að hjaðna hratt gæti sett þrýsting á vaxtatekjur þeirra. 2.11.2024 12:35
Umframfé Arion banka gæti brátt numið yfir tuttugu milljörðum Þrátt fyrir talsverðar niðurfærslur á lánum þá var hagnaður Arion banka á þriðja fjórðungi, einkum vegna sögulega sterkrar afkomu af tryggingarekstrinum, vel umfram spár greinenda og ekki útséð með að bankinn geti náð arðsemismarkmiði sínu á árinu. Með innleiðingu á nýju bankaregluverki í upphafi nýs ár er áætlað að umfram eigið fé Arion, sem er núna talið vera allt að tuttugu milljarðar, aukist um liðlega fimm milljarða til viðbótar. 31.10.2024 13:02
Vísbendingar um að mælda verðbólgan sé að „megninu til gamalt vandamál“ Undirliggjandi verðbólguþrýstingur heldur áfram að lækka og nýjasta verðbólgumælingin, sem sýndi hana fara niður í 5,1 prósent, er „heilt yfir“ nokkuð góð og ætti að þýða að peningastefnunefnd getur haldið áfram með vaxtalækkunarferlið þegar hún kemur saman í nóvember, að mati hagfræðinga Arion banka. Ef litið er á verðbólguhraðann undanfarna þrjá mánuði er hún á ársgrundvelli komin í markmið Seðlabankans sem er vísbending um að mæld verðbólga núna sé að stórum hluta „gamalt vandamál.“ 31.10.2024 10:59
Fyrirsjáanleikinn ekki „sérlega mikill“ eftir ákvörðun Hagstofunnar Ákvörðun Hagstofunnar um að skilgreina fyrirhugað kílómetragjald á öll ökutæki sem veggjald þannig að það sé tekið inn í mælingu á vísitölu neysluverðs kemur á óvart, að mati hagfræðings, og sú nálgun ólík þeim alþjóðlegu stöðlum og regluverki sem stofnunin hefur í meginatriðum fylgt í sambærilegum málum. Hann telur að með þessari niðurstöðu sé fyrirsjáanleikinn ekki „sérlega mikill“ en ávöxtunarkrafa stuttra verðtryggðra ríkisbréfa lækkaði mikið á markaði í dag. 30.10.2024 16:48
Kílómetragjaldið fer inn í vísitöluna og krafa verðtryggðra ríkisbréfa lækkar Fyrirhuguð upptaka kílómetragjalds á öll ökutæki í staðinn fyrir olíugjald verður tekið með í útreikninga á vísitöluneysluverðs, staðfestir Hagstofan, en óvissa hefur verið meðal markaðsaðila hvernig stofnunin myndi meðhöndla útfærslu á þeirri breytingu. Ávöxtunarkrafa stuttra verðtryggðra ríkisbréfa hefur lækkað skarpt í morgun þar sem nú er ljóst að mæld verðbólga verður hærri en ella í upphafi næsta árs vegna ákvörðunar Hagstofunnar. 30.10.2024 11:15
Evrópa er að segja að hún verði að fara íslensku leiðina í orkumálum Ný skýrsla um samkeppnishæfni Evrópu, sem leiddi meðal annars í ljós að sveiflukennt orkuverð er ein helsta ástæða efnahagsvanda álfunnar, undirstrikar að „íslenska leiðin“ með áherslu á langtímasamninga við stórnotendur er forsenda fjárfestinga og öflugs atvinnulífs, að mati forstjóra Landsvirkjunar. Hann telur að umræða um að grípa mögulega inn í tvíhliða samninga milli Landsvirkjunar og stórra viðskiptavina í tengslum við heimildir til endursölu, með því að kippa þeim úr sambandi eða breyta með lagasetningu, endurspegla „ótrúlega skammsýni og algjört þekkingarleysi.“ 29.10.2024 15:33