Miðflokkurinn marktækt stærri en Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn heldur áfram að bæta við fylgi sitt og nýtur nú marktækt meira fylgis en Sjálfstæðisflokkurinn samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Svandís Svavarsdóttir, sem tilkynnti framboð sitt til formanns Vinstri grænna í dag, telur eðlilegt að framtíð stjórnarsamstarfsins verði rædd á landsfundi hreyfingarinnar í næstu viku. 24.9.2024 18:32
Stefnt að hertara eftirliti á landamærunum í nóvember Dómsmálaráðherra segir að nánara eftirlit verði fljótlega tekið upp á Schengen landamærunum í samræmi við önnur ríki samstarfsins. Þá væri til athugunar að taka upp andlitsgreiningarbúnað að ósk lögreglustjórans á Suðurnesjum. 24.9.2024 16:34
Bjarkey ekki undir feldi Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til formanns Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs. 24.9.2024 11:29
Svandís gefur kost á sér og vill kosningar í vor Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra hefur ákveðið að gefa kost á sér í formannssæti Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs. Núverandi formaður hefur þegar tilkynnt að hann taki ekki slaginn við Svandísi. 24.9.2024 10:26
Ógn Rússa við Norðurlönd og Eystrasaltsríki rædd í HR Norðurlönd og Eystrasaltsríkin finna mjög mikið fyrir ógninni frá Rússlandi og standa þétt saman í öryggis- og varnarmálum, að sögn Diljar Mist Einarsdóttur alþingismanns. Þessi ríki þekki það á eigin skinni að verja þurfi friðinn með kjafti og klóm. 23.9.2024 11:54
Maður margra storma íhugar stöðu sína Bjarni Benediktsson hefur í fyrsta sinn opinberlega greint frá því að hann íhugi nú stöðu sína eftir fimmtán ár í formannsstóli Sjálfstæðisflokksins. Hann geri sér grein fyrir að dagur ákvörðunar renni upp innan hálfs árs, eða fyrir landsfund flokksins sem fram fer um mánaðamótin febrúar-mars á næsta ári. Ef til vill væri kominn tími til að hleypa nýju blóði inn í forystu flokksins. 21.9.2024 08:00
Forsætisráðherra mætir fyrstur manna í Samtalið Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins mætir fyrstur manna í Samtalið hjá Heimi Má Péturssyni fréttamanni í dag. Þátturinn verður í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2/Vísi klukkan 14:00 og sýndur á Stöð 2 í kvöld klukkan 19:10. 19.9.2024 10:21
Stjórnarandstaðan notuð til uppfyllingar á Alþingi Þingmenn Vinstri grænna hafa lagt fram þingsályktun með stuðningi þingmanna Pírata og Samfylkingar um að ríkisstjórnin beiti sér fyrir alþjóðlegum viðskiptaþvingunum gagnvart Ísrael. Engin stjórnarmál voru á dagskrá Alþingis í dag. 17.9.2024 20:25
Óráðlegt að undirbúa flutning barns sem dvelur á sjúkrahúsi Sigurður Ingi Jóhannsson fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Framsóknarflokksins segir mál Yazans ekki þrengja líf ríkisstjórnarinnar. Það sé samt auðvitað þannig að hver flokkur innan hennar hafi ólíka afstöðu til málaflokksins og bakland þeirra líka. Það sé mikilvægt að fylgja lögum en líka að tekið sé tillit til þess að þarna hafi verið sérstakt tilvik sem varði dreng í viðkvæmri stöðu. 17.9.2024 12:11
Segir lögin skipta máli en líka mannúð Svandís Svavarsdóttir þingkona Vinstri grænna segir mikla spennu innan ríkisstjórnarinnar um mál Yazans en að ríkisstjórnin hafi ekki verið í hættu vegna brottvísunarinnar. Málið hafi verið rætt frá hinum ýmsu hliðum en að enda sé það ekki hlutverk ríkisstjórnar að taka ákvörðum um það hvort hann verði áfram eða ekki. 17.9.2024 11:49