„Við erum ógeðslega sár fyrir hönd barnanna okkar“ Foreldrar leikskólabarna sem þurfa að vera heima vegna kennaraverkfalla fjölmenntu í Ráðhús Reykjavíkur þar sem borgarstjórnarfundur hófst klukkan tólf í dag. Nokkur hópur foreldra auk barna, einkum af leikskólanum Drafnarsteini í Reykjavík, var saman kominn í Ráðhúsinu fyrir fundinn og létu í sér heyra og börnin sungu fyrir borgarfulltrúa. 5.11.2024 12:58
„Ég sé bara íhaldssemi hérna“ Stofnandi Lýðræðisflokksins hafnar því að vera bendlaður við öfgahyggju, og formaður Miðflokksins segir Sjálfstæðisflokkinn vera að færast til vinstri. Þá þykir formanni Viðreisnar fróðlegt að hlusta á málfutning flokkanna sem best megi lýsa sem „Litla- og Stóra-Miðflokki.“ 30.10.2024 22:00
Kosningapallborðið: Formenn flokka sem bítast um fylgi frá hægri Í dag er mánuður til alþingiskosninga sem fara fram þann 30. nóvember. Fréttastofa Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísis heldur áfram að fá til sín góða gesti í Kosningapallborðið og nú er komið að fyrsta pallborðinu með formönnum stjórnmálaflokka sem bjóða fram til Alþingis. 30.10.2024 11:29
Óviss hvort eiginmaðurinn sé á lífi en ætlar ekki að gefast upp Svetlana Tsíkanovskaja, leiðtogi stjórnarandstöðu Belarús, hefur ekki heyrt frá eiginmanni sínum sem hefur verið í fangelsi í heimalandinu í sex hundruð daga og veit ekki hvort hann er yfir höfuð enn á lífi. Hún hvetur Íslendinga til að halda áfram að styðja við baráttuna fyrir lýðræði í Belarús og til þess að nýta kosningaréttinn sinn sem ekki megi taka sem sjálfsögðum hlut. 29.10.2024 23:16
Aukin netöryggisógn, götulokanir og vopnuð lögregla á Íslandi næstu daga Aukin netöryggisógn beinist að Íslandi í tengslum við Norðurlandaráðsþing sem hefst á morgun. Viðbúnaðarstig lögreglu verður hækkað og verður mikill öryggisviðbúnaður og götulokanir á afmörkuðum svæðum. Úkraínuforseti verður meðal gesta sem kallar á aukinn viðbúnað. 27.10.2024 19:39
Selenskí kemur til Íslands á morgun Vólódímír Selenskí, Úkraínuforseti, er væntanlegur til Íslands á morgun. Hér mun hann meðal annars funda með Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra, taka þátt í leiðtogafundi með forsætisráðherrum Norðurlandanna og mun hann flytja sérstakt ávarp í tengslum við Norðurlandaráðsþing. 27.10.2024 15:00
Ekki beittur þrýstingi um að gefa eftir sæti Framboðslistar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík verða kynntir eftir hádegi í dag og tíðinda er einnig að vænta frá Sósíalistum og Miðflokki um skipun lista. Flestir framboðslistar þeirra flokka sem hyggjast bjóða fram til Alþingis hafa verið kynntir að hluta eða í heild, en enn á eftir að birta endanlega lista hjá nokkrum flokkum. 27.10.2024 13:40
Óheppilegt en ekki óvenjulegt Stjórnmálafræðingur segir það óheppilegt fyrir formann Samfylkingarinnar að einkaskilaboð hennar um Dag B. Eggertsson hafi verið birt opinberlega. Hins vegar sé ekki óvenjulegt að hvatt sé til þess að umdeildir frambjóðendur séu strikaðir út. 27.10.2024 13:17
Götulokanir og mikil öryggisgæsla vegna heimsóknar þjóðarleiðtoga Mikill viðbúnaður og öryggisgæsla verður í höfuðborginni á morgun þegar von er á fjölda erlendra þjóðarleiðtoga í tengslum við Norðurlandaráðsþing i Reykjavík. Samvinna í öryggis- og varnarmálum og friður og öryggi á Norðurslóðum verða í brennidepli á þinginu í ár. 27.10.2024 12:40
Sigmundur og Þorgrímur leiða í Norðausturkjördæmi Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, alþingismaður og formaður Miðflokksins og Þorgrímur Sigmundsson, verktaki skipa efstu sæti á lista Miðflokksins í Norðausturkjördæmi. Næst á lista eru Ágústa Ágústsdóttir, verktaki og ferðaþjónustubóndi og Inga Dís Sigurðardóttir, kennari og meistaranemi í náms og starfsráðgjöf. 27.10.2024 09:21