Rýmingu aflétt á hluta Seyðisfjarðar Ákveðið hefur verið að lækka almannavarnastig á Seyðisfirði vegna skriðuhættu úr hættustigi á óvissustig. Þá hefur rýmingu verið aflétt á hluta bæjarins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranum á Austurlandi. Innlent 25. janúar 2021 15:39
Éljagangur á Norður- og Austurlandi og frost allt að tíu stig Norðan- og norðaustanátt í dag, víða átta til fimmtán metrar á sekúndu. Það er spáð áframhaldandi éljagangi á Norður- og Austurlandi og því eru enn líkur á samgöngutruflunum á þeim slóðum, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Ferðalangar ættu því að kynna sér færð og ástand vega áður en lagt er af stað. Innlent 25. janúar 2021 06:45
Yfir sjötíu snjóflóð á tíu dögum: „Þetta er dálítið kröftug snjóflóðahrina“ Skráð hafa verið 72 snjóflóð hjá ofanflóðavakt Veðurstofu Íslands síðustu tíu dag. Þar af hafa fallið 33 á Vestfjörðum, 27 á Norðausturlandi og níu á Norðvesturlandi þegar þetta er skrifað en snjóflóðahrina hefur staðið yfir á Vestfjörðum og á Norðurlandi síðan á mánudaginn. Ríflega tuttugu þessara snjóflóða féllu síðasta sólarhringinn. Snjóflóð féll til að mynda yfir Flateyrarveg síðdegis í dag. Innlent 24. janúar 2021 22:05
Rýmingu vegna snjóflóðahættu aflétt á Siglufirði Rýmingu vegna snjóflóðahættu hefur verið aflétt á Siglufirði. Vegfarendur eru engu að síður beðnir um að hafa varan á, einkum á svæðum þar sem snjóflóð geta fallið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra þar sem segir að ákveðið hafi verið að aflétta rýmingu húsa á sunnanverðum Siglufirði. Óvissustig vegna snjóflóðahættu á Norðurlandi er þó enn í gildi. Innlent 24. janúar 2021 17:28
Snjóflóð féll úr Skollahvilft ofan Flateyrar í nótt Snjóflóð féll úr Skollahvilft ofan Flateyrar í nótt og stöðvaðist skammt utan við veginn að íbúðarhúsinu Sólbakka. Unnið er að könnun á ummerkjum flóðsins. Innlent 24. janúar 2021 11:54
Snjóflóð féll í Skagafirði Snjóflóð féll ofan við bæinn Smiðsgerði í Skagafirði. Flóðið tók skúr sem stóð um 250 metrum ofan við bæinn. Ekki er vitað með vissu hvenær flóðið féll en talið er líklegt að það hafi fallið snemma í gær. Innlent 24. janúar 2021 10:09
Týr flutti sjúkling frá Siglufirði Áhöfnin á varðskipinu Tý var kölluð til í gær vegna sjúkraflutnings frá Siglufirði. Hvorki var hægt að flytja sjúkling landleiðina né í sjúkraflugi vegna slæms veðurs og ófærðar. Innlent 24. janúar 2021 09:31
Éljagangur fyrir norðan og óvissa fyrir sunnan Áfram verður éljagangur um landið norðanvert, þó dragi úr vindi í dag, sem á að vera norðaustan 8 til 15 m/s. Bjart verður með köflum á sunnanverðu landinu og frost víða 0 til 6 stig, samkvæmt spá Veðurstofu Íslands. Innlent 24. janúar 2021 07:51
RAX Augnablik: „Þegar hann er í sínum versta ham getur hann sprengt hús í tætlur“ „Piteraq þýðir sá sem ræðst á þig og hann verður til inni á ísnum, inni á jökli og rennur niður þrjú þúsund metra inn að austurströndinni eins og ósýnilegt stórfljót,“ segir Ragnar Axelsson. Lífið 24. janúar 2021 07:01
Varðskipið Þór heldur vestur á firði Varðskipið Þór verður til taks í samvinnu við lögregluna á Vestfjörðum og almannavarnir vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum. Varðskipið verður þar á meðan þurfa þykir. Innlent 23. janúar 2021 22:01
Hrossin troða snjó upp að kvið „Ég kemst ekki með dráttarvélina í gegnum hliðið, við getum bara hent rúllunni yfir hliðið, og þá fórum við af gjafasvæðinu sem þau eru búin að traðka niður. Þá er snjórinn bara eins og hann kemur fyrir.“ Innlent 23. janúar 2021 21:03
„Þeir standa bara þarna úti með snjó í eyrunum og snjó upp að mitti“ Dóttir Margrétar Örnu Arnardóttur sat með heilmikinn snjó í fanginu í aftursæti bíls þeirra sem varð fyrir snjóflóði á Öxnadalsheiði í gærkvöldi. Aðrir vegfarendur sem höfðu hafist handa við að moka snjóskafl á veginum stóðu í snjó upp að mitti og með snjó í eyrunum. Margrét Arna hrósar happi að ekki hafi farið verr en kveðst undrandi á því hversu margir Íslendingar hafi lagt af stað yfir heiðina á illa útbúnum bílum með engan búnað í bílnum. „Það var nú engum meint af sem betur fer,“ segir Margrét í samtali við Vísi. Innlent 23. janúar 2021 17:25
Milljarðs halli á vetrarþjónustunni samhliða ákalli eftir aukinni þjónustu G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir að þótt alltaf sé tekið mark á ábendingum frá vegfarendum um færð á vegum, þá þurfi Vegagerðin einnig að byggja ákvörðun um lokun vega á eigin upplýsingum. Þá sé um eins milljarðs halli á rekstri vetrarþjónustu á sama tíma og ákall séum aukna þjónustu. Innlent 23. janúar 2021 11:46
Rýmingar vegna snjóflóðahættu á Ísafirði Ákveðið hefur verið að rýma hús á Ísafirði vegna snjóflóðahættu. Í tilkynningu frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra segir að um reit níu sé að ræða og á honum sé atvinnuhúsnæði sem tryggt hafi verið að væru mannlaus í gærkvöldi. Innlent 23. janúar 2021 09:52
Ekkert ferðaveður fyrir norðan Akstursskilyrði á norðanverðu landinu eru víða slæm og ekki ferðaveður. Fjallvegir eru ófærir eða lokaðir víða á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austurlandi og var Öxnadalsheiðinni til að mynda lokað í gærkvöldi vegna snjóflóða. Innlent 23. janúar 2021 09:31
Áfram hættustig á Siglufirði Óvissustig verður áfram á öllu Norðurlandi og hættustig á Siglufirði vegna snjóflóðahættu. Afleitt verður hefur verið fyrir norðan í dag, hvöss norðanátt með snjókomu eða éljum. Innlent 22. janúar 2021 18:58
Óvissustig vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum Veðurstofa Íslands hefur lýst yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum, en nokkur minni snjóflóð hafa verið að falla á svæðinu. Ekkert þeirra hefur þó náð niður á veg. Innlent 22. janúar 2021 18:16
„Það er ekki hægt að ætla neinu nútímasamfélagi að lifa við þetta“ Bæjarstjóri Fjallabyggðar segir Siglfirðinga orðna langþreytta á lokunum með tilheyrandi raski á atvinnustarfsemi. Það sé allt of algengt að íbúar verði innlyksa dögum saman vegna ófærðar. Eina lausnin séu jarðgöng. Innlent 22. janúar 2021 12:11
Snjóflóð féll fyrir ofan veginn um Eyrarhlíð Í morgun féll lítið snjóflóð á varnarþil fyrir ofan veginn um Eyrarhlíð sem liggur á milli Ísafjarðar og Hnífsdals. Innlent 22. janúar 2021 11:26
Gular viðvaranir vegna norðanhríðar: Skafrenningur, lítið skyggni og snjóflóðahætta Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir vegna norðanhríðar á norður- og austurhluta landsins. Viðvaranirnar taka gildi klukkan níu nú fyrir hádegi og gilda til miðnættis annað kvöld. Þær gilda í eftirfarandi landshlutum: Innlent 22. janúar 2021 07:15
Rýming áfram í gildi og samgöngur takmarkaðar vegna snjóflóðahættu Rýming verður áfram í gildi á Siglufirði í dag og verður hún endurmetin síðdegis á morgun. Þetta staðfestir Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavörnum, í samtali við fréttastofu. Innlent 21. janúar 2021 17:46
Líklega altjón á skíðasvæðinu á Siglufirði Elías Pétursson, bæjarstjóri Fjallabyggðar, fundaði með forsvarsmönnum skíðasvæðisins á Siglufirði í morgun. Snjóflóð skall á skíðaskálann í gærmorgun og hreif skálann af grunni sínum. Elías segir í samtali við fréttastofu að líklega sé um altjón á skíðasvæðinu að ræða. Skíðalyftan hafi þó sloppið fyrir horn. Innlent 21. janúar 2021 14:14
Níu fjölskyldur á Siglufirði mega ekki snúa aftur heim strax Ástandið er óbreytt á Norðurlandi hvað snjóflóðahættu varðar og því mun rýming níu húsa á Siglufirði vara áfram, í það minnsta um stundarsakir. Innlent 21. janúar 2021 12:35
Köldu norðlægu áttirnar ekkert að gefa eftir Köldu norðlægu áttirnar með ofankomu fyrir norðan og austan eru ekkert að fara að gefa eftir næstu daga. Einna helst er að sjá að hiti nái að skríða yfir frostmark syðst á landinu. Veður 21. janúar 2021 07:41
Skíðaskáli Siglfirðinga færðist úr stað í snjóflóði Snjóflóð féll á skíðasvæðinu á Siglufirði, sennilega í morgun. Egill Rögnvaldsson svæðisstjóri skíðasvæðisins segir í samtali við fréttastofu að erfitt sé að átta sig á umfangi flóðsins en mikill skafrenningur er á svæðinu og þurftu menn frá að hverfa. Innlent 20. janúar 2021 11:54
Kuldinn bítur í kinnar í stífri norðanáttinni Það verður í grófum dráttum sama veður út vikuna og er hann lagstur í ákveðna norðanátt eins og það er orðað í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Innlent 20. janúar 2021 07:05
Óvissustig vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu á Norðurlandi Veðurstofa Íslands hefur lýst yfir óvissustigi vegna hugsanlegrar snjóflóðahættu á Norðurlandi. Nokkur snjóflóð hafa fallið í dag utan þéttbýlis og hefur Ólafsfjarðarmúla og Siglufjarðarvegi verið lokað. Innlent 19. janúar 2021 21:56
„Í vikulokin ætti að hafa bætt vel í snjóinn norðan- og austanlands“ Í dag og á morgun er útlit fyrir norðlæga átt á landinu með strekkingi eða allhvössum vindi víða, jafnvel hvassari á stöku stað í vindstrengjum við fjöll að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Innlent 19. janúar 2021 07:21
Norðanáttin ríkjandi á landinu næstu daga Það verður norðaustan kaldi eða stinningskaldi á landinu í dag og mun norðanáttin vera ríkjandi á landinu næstu daga að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Innlent 18. janúar 2021 06:51
Norðanátt sem ríkir fram að næstu helgi Í dag verður vestlæg eða breytileg átt á landinu. Víðast hvar verður hún hæg en þó allt að 13 metrar á sekúndu austast á landinu, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands. Innlent 17. janúar 2021 07:31