Sluppu með skrekkinn í Reynisfjöru Nokkur fjöldi ferðamanna lagði leið sína í Reynisfjöru í dag. Dæmi voru um að fólk fór óvarlega en slapp sem betur með skrekkinn. Innlent 22. nóvember 2023 17:00
Snjór út úr byssunum í Bláfjöllum Tilraun var gerð með snjóframleiðslubyssur í Bláfjöllum síðdegis í dag. Og viti menn. Snjór kom út úr byssunum. Innlent 22. nóvember 2023 16:36
Víða allhvasst, skúrir og él Veðurstofan spáir suðvestan og síðar vestanátt í dag, allhvössu eða hvössu og skúrum eða éljum, en bjartviðri austantil. Gul veðurviðvörun vegna vinds er í gildi fyrir Suðurland í dag. Veður 22. nóvember 2023 07:11
Strandaglópar ýmist öskureiðir eða sultuslakir Veður hefur leikið íbúa á suðvesturhorninu og víðar grátt í dag. Ferðamenn hafa ekki heldur farið varhluta af veðrinu, og einhverjir þeirra orðið fyrir því að flugferðum þeirra var frestað eða þær felldar niður. Þeir eru misánægðir með gang mála. Innlent 21. nóvember 2023 20:27
Fólk þurfi að passa sig í „ruddaloftinu“ „Manni bregður kannski eftir alla þessa blíðu sem er búin að vera hjá okkur,“ segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur í samtali við Reykjavík síðdegis. Innlent 21. nóvember 2023 16:38
Fjölda flugferða aflýst eða flýtt Miklum fjölda flugferða sem var á áætlun til og frá Keflavíkurflugvelli í dag hefur verið aflýst vegna veðurs. Innlent 21. nóvember 2023 13:27
Hvöss sunnanátt með rigningu og gular viðvaranir Djúp lægð vestur við Grænland þokast nú norðaustur og veldur allhvassri eða hvassri sunnanátt með rigningu og talsverðri úrkomu syðra. Gular veðurviðvaranir vegna hvassviðris eru í eða taka gildi víða á landinu. Veður 21. nóvember 2023 07:19
Gagnrýnir Veðurstofuna fyrir að hamla aðgengi að GPS-gögnum Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur gagnrýnir Veðurstofu Íslands fyrir að takmarka aðgengi almennings að GPS-gögnum sem geri mönnum kleift að fylgjast með jarðskorpuhreyfingum. Segir hann að Veðurstofunni beri skylda til að koma þessum gögnum á framfæri svo þau séu öllum aðgengileg. Innlent 20. nóvember 2023 10:40
Reikna með hviðum að 35 metrum á sekúndu Spáð er hvassri suðlæg átt í fyrramálið þar sem hviður geta náð 35 metrum á sekúndu í vindstrengjum við fjöll á austanverðu landinu. Veður 20. nóvember 2023 10:29
Hvessir í kvöld og má búast við stormi í fyrramálið Djúp lægð er nú við suðvesturhluta Grænland og mun hún nálgast Ísland smám saman í dag. Það verður því hægt vaxandi suðlæg átt á landinu fyrri parts dags og væta með köflum, en þurrt og bjart fyrir austan. Veður 20. nóvember 2023 07:08
Víða bjart norðantil Veðurstofan gerir ráð fyrir austlægri átt, þremur til tíu metrum á sekúndu, en nokkru hvassara sunnantil. Veður 17. nóvember 2023 07:16
Lítið lát á austlægu áttunum Lítið lát er á austlægu áttunum sem hafa verið viðvarandi í lengri tíma. Dálítil úrkoma er viðloðandi landið sunnan- og austanvert, en yfirleitt þurrt fyrir norðan og vestan. Veður 16. nóvember 2023 07:12
Líkur á rigningu suðvestantil síðdegis Áfram er útlit fyrir austlæga átt á landinu þar sem búast má við vindhraða víða á bilinu þrjú til tíu metra á sekúndu, en tíu til fimmtán lengst af við suðurströndina. Veður 15. nóvember 2023 07:13
Áfram austanátt og hvassara sunnantil Framundan er enn einn dagurinn með austanátt þar sem reiknað er með vindstyrkur víða fimm til þrettán metra á sekúndu, en þrettán til átján í vindstrengjum á sunnanverðu landinu. Veður 14. nóvember 2023 07:20
Austlægar áttir næstu daga Suður af landinu er nú víðáttumikil lægð sem mun halda að okkur austlægum áttum næstu daga. Yfirleitt má reikna með fimm til þrettán metrum á sekúndu en öllu hvassara með suðurströndinni. Veður 13. nóvember 2023 07:06
Líkur á áframhaldandi moldroki suðvestanlands Veðurstofan gerir ráð fyrir minnkandi norðaustanátt í dag, tíu til átján metrum á sekúndu í morgunsárið en fimm til þrettán metrum á sekúndu í kvöld. Búast má við dálítilli rigningu eða slydda á norðan- og austanverðu landinu en annars bjart að mestu. Veður 9. nóvember 2023 07:17
Nær öruggt að árið í ár verði það heitasta í sögunni Fátt virðist nú koma í veg fyrir að árið 2023 verði það heitasta í sögunni eða frá upphafi mælinga í það minnsta. Erlent 8. nóvember 2023 08:44
Vindasamt syðst á landinu Víðáttumikil lægð er nú suðaustur af Hvarfi á leið austur yfir Atlantshaf. Áhrifa hennar mun gæta að takmörkuðu leyti hér á landi en aðallega er það vindur sem við fáum frá henni og þá einna helst syðst á landinu, um 15 til 23 metra á sekúndu. Veður 8. nóvember 2023 07:10
Dálítil úrkoma á víð og dreif Veðurfræðingar Veðurstofunnar segja að lægðirnar eigi erfitt með að komast alveg til landsins þar sem hæð norðan við land haldi þeim að mestu frá. Samt ekki meir en svo að það hvessi af og til og þá einkum með suður- og suðausturströndinni sem og á Vestfjörðum. Veður 7. nóvember 2023 07:13
Allhvasst á Vestfjörðum Hægfara lægð rétt vestur af Skotlandi stýrir veðrinu í dag og gerir Veðurstofan ráð fyrir norðaustan kalda eða stinningskalda en allhvössu á Vestfjörðum. Veður 6. nóvember 2023 07:13
Moldrok eða sandfok í kortunum Líkur eru á moldroki eða sandfoki sunnan- og suðvestanlands í dag enda hefur rignt lítið í landshlutunum undanfarið. Gera má ráð fyrir norðaustanátt, víða allhvassri, en hvassviðri eða stormi norðvestantil. Innlent 5. nóvember 2023 08:15
Stormi spáð norðvestantil „Á Norðursjó er alldjúp lægð sem þokast norðvestur og síðar vestur og stjórnar veðrinu hjá okkur,“ segir á vef Veðurstofu Íslands um veðurspá dagsins. Þar segir að í dag verði norðaustlæg átt og víða stinningskaldi eða allhvasst. Veður 4. nóvember 2023 07:57
Áfram norðaustlæg átt og hiti að sex stigum Lægðin sem olli illviðrinu í Evrópu í gær er nú yfir Norðursjó og þokast til norðvesturs. Áttin verður því áfram norðaustlæg í dag, víða gola, kaldi eða strekkingur og dálitlar skúrir eða él. Þó má reikna með að verði léttskýjað á Suður- og Suðvesturlandi. Veður 3. nóvember 2023 07:17
Almennt rólegt veður en allhvassir vindstrengir suðaustantil Veðurstofan gerir ráð fyrir rólegu veðri hér á landi í dag, norðaustan kalda eða stinningskalda og skúrum eða éljum. Þó má reikna með þurru og björtu á Suður- og Suðvesturlandi, en suðaustantil á landinu má búast við allhvössum vindstrengjum. Veður 2. nóvember 2023 07:19
Austlæg átt og heldur hvassara við suðurströndina Veðurstofan gerir ráð fyrir austlægri átt í dag, víða fimm til þrettán metrum á sekúndu en heldur hvassara við suðurströndina. Veður 1. nóvember 2023 07:12
Bjart veður víðast hvar á landinu Veðurstofan gerir ráð fyrir austlægri átt í dag, yfirleitt fimm tíu metrum á sekúndu en tíu til fimmtán metrum syðst á landinu. Bjart veður verður í fletum landshlutum en dálitlar skúrir eða él um landið austanvert. Veður 31. október 2023 07:12
Rólegheitaveður en stöku skúrir við sjávarsíðuna Veðurstofan gerir ráð fyrir rólegheitaveðri og skýjuðu með köflum eða bjartviðri í dag. Þó má gera ráð fyrir stöku skúrum eða slydduéljum úti við sjávarsíðuna. Veður 30. október 2023 07:21
Litlar breytingar á veðrinu fram yfir helgi Vestur af Írlandi er víðáttumikil lægð sem heldur austlægum áttum að landinu. Það er því útlit fyrir litlar breytingar í veðrinu fram yfir helgi. Veður 27. október 2023 07:03
Fremur hægur vindur en hvassara með suðurströndinni Það eru litlar breytingar á veðrinu á landinu þessa dagana þar sem austlæg átt verður ríkjandi í dag og næstu daga. Hún verður yfirleitt fremur hæg en strekkingur eða allhvass vindur á köflum með suðurströndinni. Veður 26. október 2023 07:10
Víðáttumikil lægð stýrir veðrinu næstu daga Víðáttumikil lægð er nú stödd langt suður af landinu og mun hún stjórna veðrinu á landinu næstu daga. Veður 25. október 2023 07:11