Rokkuð á rauða dreglinum Þýska fyrirsætan Heidi Klum, 39 ára, var rokkuð í Roberto Cavalli dragt sem fór henni áberandi vel þegar hún stillti sér upp á rauða dreglinum... Tíska og hönnun 6. júní 2012 13:45
Olsen-systur kvenhönnuðir ársins Hin árlegu CDFA-verðlaun, Counsel of Fashion Designers of America, fóru fram í New York á mánudagskvöldið. Tvíburasysturnar Mary-Kate og Ashley Olsen voru valdar kvenhönnuðir ársins fyrir fatamerkið sitt The Row og skutu mörgum þungavigtarmönnum í hönnunarbransanum ref fyrir rass. Tískuelítan var mætt á rauða dregilinn þar sem menn kepptust við að skarta sínu fínasta pússi. William Reid var valinn karlhönnuður ársins og leikarinn Johnny Depp var tískufyrirmynd ársins. Tíska og hönnun 6. júní 2012 11:00
Gossip Girl stjarna í Jimmy Choo skóm Gossip Girl stjarnan Leighton Meester, 26 ára, var glæsilega á rauða dreglinum klædd í blá-gráan munstraðan kjól við svarta Jimmy Choo skó... Tíska og hönnun 5. júní 2012 15:45
Styrkja hönnuði um 10 milljónir Hönnunarsjóður Auroru veitti 10 milljónir í styrki til hönnuða á fimmtudaginn var en að þessu sinni er lögð áhersla á fatahönnun... Tíska og hönnun 5. júní 2012 14:45
Rauði dregillinn í gær - hversdagleiki í dag Ofurfyrirsætan Naomi Campbell var klædd í gallapils með derhúfu þegar hún verslaði ásamt rússneska kærastanum sínum, milljónamæringnum Vladislav Doronin, á Ibiza á Spáni... Tíska og hönnun 5. júní 2012 14:15
Jessica Alba sló í gegn í hvítum kjól Leikkonan unga og glæsilega, Jessica Alba þótti ein best klædda kona MTV hátíðarinnar um helgina. Tíska og hönnun 5. júní 2012 13:00
Nostalgísk opnun Verslunin Nostalgía hefur flutt sig um set og var opnuð við Laugaveg 39 á fimmtudaginn var. Starfsfólk verslunarinnar fagnaði áfanganum með gestum og gangandi, bauð upp á léttar veitingar og naut sólargeislanna sem vermdu vanga. Tíska og hönnun 2. júní 2012 09:30
Ný bók á leiðinni Skáldsagan The Devil Wears Prada sló í gegn árið 2003 og nú geta aðdáendur bókarinnar glaðst því von er á framhaldi hennar innan skamms. Tíska og hönnun 2. júní 2012 09:30
Kennir að segja sögu með mynd „Ég er rosa spennt að getað loksins komið heim í smá sumarfrí og haldið námskeiðið í leiðinni,“ segir ljósmyndarinn Saga Sigurðardóttir sem ætlar að halda námskeið í tískuljósmyndun á Lunga-listahátíðinni í sumar. Hátíðin fer fram í á Seyðisfirði dagana 15.-22. júlí en þetta er í fyrsta sinn sem Saga heldur námskeið hér á landi. Saga er búsett í London þar sem hún hefur getið sér góðs orð sem ljósmyndari og hafa myndir eftir hana birst í helstu tískumiðlum heims á borð við Dazed and Confused, ID og Nylon. Tíska og hönnun 2. júní 2012 08:30
Gallabuxur í dag - galakjóll í gær Bandaríska leikkonan Jessica Alba, 31 árs, klæddist svörtum síðkjól frá Alexander McQueen á verðlaunahátíð Glamour Women. Leikkonan, sem var stórglæsileg með hárið tekið aftur, fór heim með viðurkenningu. Þá má sjá Jessicu klædda í gallabuxur með hatt á höfði á flugvellinum í Lundúnum daginn eftir hátíðina. Tíska og hönnun 1. júní 2012 15:45
Strigaskór úr roði Skóframleiðandinn Rayfish Footwear framleiðir sérhannaða strigaskó úr roði gaddaskötu og kostar parið rúmar 235 þúsund krónur. Tíska og hönnun 1. júní 2012 09:00
Skrautlegar neglur í sumar Ekkert lát virðist vera á skrautlegri tísku naglalakka heldur þvert á móti. Allt virðist vera leyfilegt sama hversu frumlegt það er. Tíska og hönnun 30. maí 2012 13:00
Flottasti kjóllinn á Cannes Það voru margir fagrir kjólar sem voru frumsýndir á kvikmyndahátíðinni í Cannes þetta árið. Þessi Dior-kjóll sem leikkonan Diane Kruger klæddist á lokakvöldi hátíðarinnar sló aftur á móti alla hina út. Kjóllinn er dragsíður með stífu undirpilsi og því spurning hvernig Kruger hafi gengið að setjast niður í kjólnum þegar líða tók á kvöldið. Tíska og hönnun 30. maí 2012 12:00
Nýtt andlit Material Girl Georgia May Jagger, dóttir tónlistarmannsins Micks Jagger og fyrirsætunnar Jerry Hall, er nýtt andlit fatalínunnar Material Girl sem hönnuð er af Madonnu og dóttur hennar, Lourdes Leon. Tíska og hönnun 25. maí 2012 16:00
Halló Neon! Sumarið er tíminn og með sumrinu koma litirnir. Nú í ár eru litirnir heldur skærari en áður hefur verið. Neon hefur ekki verið áberandi í húsmunum en nú er öldin önnur og Neon kemur sterkt inn á heimilin... Tíska og hönnun 25. maí 2012 15:15
Græða á götutísku Scott Schuman og Garance Doré halda úti tískublogginu The Sartorialist, sem hefur lengi verið eitt vinsælasta götutískubloggið á veraldarvefnum. Parið var jafnframt það fyrsta sem hafði góðar tekjur af slíku bloggi og er nú komið í hóp þeirra áhrifamestu innan tískuheimsins. Tíska og hönnun 25. maí 2012 13:30
Júniform lokar Birta Björnsdóttir, fatahönnuður sem rekið hefur verslunina Júniform í tíu farsæl ár heldur nú á vit ævintýranna þar sem hún flytur til Barcelona með fjölskylduna. Tíska og hönnun 25. maí 2012 08:00
Ljótufatakeppni á Billboard Billboard verðlaunahátíðin fór fram í Las Vegas um helgina og stjörnurnar flykktust til eyðimerkurborgarinnar af því tilefni. Adele vann flest verðlaun kvöldsins en hún var fjarri góðu gamni. Kempurnar í hljómsveitinni U2 voru valdir bestir á tónleikum og Coldplay rokksveit ársins. Rauða dreglinum var að sjálfsögðu rúllað út og óhætt að segja að klæðaburður gestanna hafi verið með fjölbreyttara móti. Það mætti halda að sumir væru mættir á ljótufatakeppni. Tíska og hönnun 24. maí 2012 10:30
Bláa Lónið bakhjarl Hönnunarmiðstöðvar Íslands Bláa Lónið og Hönnunarmiðstöð Íslands hafa gert með sér samstarfssamning og er Bláa Lónið fyrsta fyrirtækið til að gerast bakhjarl Hönnunarmiðstöðvar.. Tíska og hönnun 24. maí 2012 09:30
Stella McCartney hannar brúðarkjól Sólveigar Kára Fatahönnuðurinn Stella McCartney hannar brúðarkjól Sólveigar Káradóttur en hún gengur að eiga tónlistarmanninn Dhani Harrison í næstu viku. Harrison er sonur Bítilsins sáluga George Harrison en parið hefur verið saman í nokkur ár og býr saman í Los Angeles. Tíska og hönnun 23. maí 2012 11:00
Óvenjuleg dress Hvort sem það er Jean Paul Gaultier, Commes des Garçon, Jeremy Scott, Issey Miyake eða Thierry Mugler þá fer ekki á milli mála að þessi tískuhús eða hönnuðir fara ótroðnar slóðir þegar kemur að fatnaði. Athyglisverða hönnun þar sem hugmyndaflugið fær að njóta sín má skoða í meðfylgjandi myndasafni. Tíska og hönnun 22. maí 2012 17:00
Scarlett í Dolce&Gabbana Leikkonan Scarlett Johansson, 27 ára, var mynduð við tökur... Tíska og hönnun 22. maí 2012 13:30
Undirfataverslun opnar í Kringlunni Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar ný undirfataverslun, Boux Avenue, opnaði í Kringlunni... Tíska og hönnun 22. maí 2012 09:45
Diane Kruger skein skært á rauða dreglinum Leikkonan Diane Kruger skein skært á rauða dreglinum á frönsku kvikmyndahátíðinni í Cannes um helgina. Diane klæddist undurfögrum Vivienne Westwood kjól og var með klassíska hárgreiðslu í stíl. Örlítil rigning gerði vart við sig á meðan stjörnurnar gengu inn dregilinn en þær létu það lítið á sig fá eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Tíska og hönnun 21. maí 2012 18:00
Fallegustu kjólar vikunnar Fallegustu kjólar vikunnar ef ekki ársins hafa verið valdir af pressunni vestanhafs. Tíska og hönnun 21. maí 2012 10:45
Veldu réttu sólgleraugun fyrir sumarið Það er sá tími ársins sem fólk dregur upp sólgleraugun á ný. Tíska og hönnun 18. maí 2012 11:45
Hannar tæknileg föt Fatahönnuðurinn Nicola Formichetti hyggst hanna fatalínu undir eigin nafni. Formichetti vakti fyrst athygli sem stílisti Lady Gaga og sem yfirhönnuður tískumerkisins Mugler. Tíska og hönnun 16. maí 2012 15:00
Chanel kynnti nýjungar í Frakklandi Chanel kynnti undurfagrar nýjungar fyrir næstkomandi haust í Versailles í Frakklandi í gær. Kynningin sem var hin glæsilegasta var sótt af velunnurum merkisins, stórstjörnum í tískuheiminum, fjölmiðlum og fleiri til. Tíska og hönnun 16. maí 2012 13:00
Munstraðir kjólar vinsælir Leikkonurnar Christina Hendricks, 37 ára, og Sofia Vergara, 39 ára, eru hrifnar af síðum munstruðum sumarkjólum... Tíska og hönnun 15. maí 2012 17:30