82 milljarðar dala í baráttuna gegn sárafátækt Ríki heims hafa heitið Alþjóðaframfarastofnuninni jafnvirði tíu þúsund milljarða króna til að berjast gegn sárafátækt í heiminum. Framlaginu er ætlað til að styrkja grunnviði, auka hagvöxt og efla getuna til að bregðast við áföllum vegna náttúruhamfara og loftslagsbreytinga. Ísland leggur sitt af mörkum. Kynningar 23. desember 2019 11:00
Ísland styður við kyn- og frjósemisheilbrigði stúlkna og kvenna í Malaví Þann 18. desember var undirritaður samstarfssamningur milli Sendiráðs Íslands í Lilongwe fyrir hönd íslenskra stjórnvalda og Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) í Malaví. Samningurinn snýr að þriggja ára verkefni um að efla kyn- og frjósemisheilbrigði og réttindi unglingsstúlkna og kvenna í Mangochi héraði. Kynningar 19. desember 2019 13:30
Ísland áfram í efsta sæti á lista Alþjóðaefnahagsráðsins um kynjajafnrétti Ísland situr ellefta árið í röð í efsta sæti á kynjajafnréttislista Alþjóðaefnahagsráðsins, World Economic Forum. Samkvæmt nýútkominni skýrslu ráðsins mun það taka tæpa öld að ná fram fullkomnu kynjajafnrétti í heiminum ef fram fer sem horfir. Kynningar 18. desember 2019 09:00
Ísland og UNESCO gera samkomulag um Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Audrey Azoulay, aðalframkvæmdastjóri Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna UNESCO, undirrituðu í gær, samkomulag um að Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu starfi undir merkjum UNESCO sem sjálfstæð stofnun. Kynningar 17. desember 2019 09:30
Rúmlega 53 milljónum ráðstafað til alþjóðlegra mannúðarverkefna Utanríkisráðuneytið hefur falið þremur frjálsum félagasamtökum að ráðstafa rúmlega 53 milljónum króna til þriggja mannúðarverkefna, í Sýrlandi, Jemen og meðal þjóðanna sem urðu verst úti í fellibylnum Idai fyrr á árinu. Kynningar 16. desember 2019 13:15
Neyðarsöfnun vegna þurrka í Namibíu Talið er að tæplega 290 þúsund íbúar Namibíu þurfi á mataraðstoð að halda vegna gífurlegra þurrka. Söfnun er hafin á vegum Rauða krossins á Íslandi til að bregðast við neyðinni. Kynningar 13. desember 2019 14:45
Ósýnilegu börnin: Eitt af hverjum fjórum ekki skráð við fæðingu Þrátt fyrir að mikið hafi áunnist í fæðingaskráningu barna um allan heim og skráning aukist um 20 prósent á einum áratug telur UNICEF að 166 milljónir barna undir fimm ára aldri séu óskráð. Kynningar 12. desember 2019 14:30
Þróunarsamvinna: Sjö íslenskum félagasamtökum falið að ráðstafa rúmum 200 milljónum Utanríkisráðuneytið hefur gefið vilyrði fyrir styrkjum til sjö íslenskra félagasamtaka um ráðstöfun rúmlega 210 milljóna króna til verkefna á sviði þróunarsamvinnu. Kynningar 11. desember 2019 14:45
Ungt fólk í brenndepli á degi mannréttinda Í dag, á alþjóðlegum degi mannréttinda, heiðra Sameinuðu þjóðirnar ungt fólk með átaki sem hefur yfirskriftina „Ungt fólk rís upp í þágu mannréttinda.“ António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir í yfirlýsingu að samtökin fagni mikilvægu hlutverki ungs fólks við að gæða mannréttindi nýju lífi. Kynningar 10. desember 2019 12:30
Íslendingar í sjötta sæti á nýjum lífskjaralista SÞ Þrátt fyrir framfarir á heimsvísu í baráttunni gegn fátækt, hungri og sjúkdómum er ójöfnuður víða í heiminum sem setur til dæmis mark sitt á aðstæður ungu kynslóðarinnar, segir í nýrri skýrslu um lífskjaravísitölu Sameinuðu þjóðanna. Kynningar 9. desember 2019 10:15
Malaría: Mest um vert að ná til barnshafandi kvenna og barna Á síðasta ári sýktust 228 milljónir einstaklinga af malaríu, þar af létust rúmlega 400 þúsund, flestir í Afríku sunnan Sahara. Kynningar 6. desember 2019 14:15
UNICEF ætlar að mæta þörfum 59 milljóna barna á næsta ári Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) hefur metið neyðarþörf fyrir árið 2020. Stofnunin kveðst þurfa rúmlega 520 milljarða íslenskra króna til að mæta brýnum þörfum 59 milljóna barna í 64 þjóðríkjum víðs vegar um veröldina. Kynningar 5. desember 2019 09:45
Mannúðarþörf í heiminum aldrei meiri og fer vaxandi Á næsta ári þurfa 168 milljónir manna að reiða sig á mannúðaraðstoð og vernd, einn af hverjum 45 jarðarbúum. Kynningar 4. desember 2019 13:30
Loftslagsvandinn: 20 milljónir hrekjast burt af heimilum sínum árlega Ofsaveður og skógareldar hröktu að jafnaði rúmlega tuttugu milljónir manna burt af heimilum sínum ár hvert síðastliðinn áratug. Þessi vandi á aðeins eftir að aukast nema því aðeins að þjóðarleiðtogar bregðist skjótt við ógninni sem felst í loftslagsbreytingum, að mati góðgerðarsamtakanna Oxfam. Kynningar 3. desember 2019 14:00
Stuðningur við sameiningu fjölskyldna í Gíneu SOS Barnaþorpin á Íslandi hafa sent styrk til ungmennaheimilis samtakanna í Kankan, stærstu borgar Vestur-Afríkuríkisins Gíneu. Styrknum er ætlað að sameina fjölskyldur á nýjan leik en mörg börn í fátækum ríkjum eins og Gíneu alast upp utan fjölskyldunnar vegna örbirgðar. Kynningar 3. desember 2019 11:00
Stjórnvöld í Albaníu kalla eftir alþjóðlegum stuðningi Hópur sérfræðinga hefur unnið að samhæfingu björgunaraðgerða í Albaníu eftir stóra jarðskjálftann í síðustu viku þar sem 51 týndi lífi, þar af sjö börn. Leitar- og björgunaraðgerðum lauk á laugardagskvöld. Kynningar 2. desember 2019 14:45
Mislingar í Kongó: 5 þúsund látin þar af 4.500 börn Það sem af er ári hafa rúmlega fimm þúsund manns, þar af 4.500 börn yngri en fimm ára, látið lífið af völdum mislinga í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó. Í austurhluta landsins hefur á árinu geisað ebólufaraldur sem hefur leitt til rúmlega tvö þúsund dauðsfalla og fengið mikla alþjóðlega athygli. Kynningar 2. desember 2019 10:00
Farandfólk sendir heim gríðarlega fjármuni Um 270 milljónir einstaklinga falla undir hugtakið farandfólk í heiminum, samkvæmt nýjustu tölum frá alþjóðasamtökum Sameinuðu þjóðanna um farandfólk (IOM). Samtökin sendu frá sér yfirlitsskýrslu í gær, Global Report 2020. Kynningar 28. nóvember 2019 15:00
Íslendingur til Albaníu að samræma björgunaraðgerðir Sólveig Þorvaldsdóttir byggingaverkfræðingur er komin til Albaníu á vegum Sameinuðu þjóðanna, þar sem hún tekur þátt í því að skipuleggja og samræma björgunaraðgerðir vegna jarðskjálftans aðfaranótt þriðjudags. Kynningar 27. nóvember 2019 13:00
Sjónvarpsþættir í tilefni afmælis Barnasáttmálans RÚV og UNICEF á Íslandi hafa undirritað samkomulag sín á milli um samstarf við framleiðslu á þáttaröð í tilefni af 30 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Kynningar 26. nóvember 2019 15:00
Bæta upplýsinga- og samskiptatækni Rauða kross félaga í Afríku Sendifulltrúarnir Halldór Gíslason, starfsmaður Íslandsbanka og Egill Már Ólafson starfsmaður RB–Reiknisstofu bankanna hafa síðustu vikurnar sinnt verkefni Rauða krossins á Íslandi og Alþjóðasambands Rauða krossins (IFRC, í Sierra Leóne, sem nefnist: Brúun hins stafræna bils. Kynningar 26. nóvember 2019 10:00
Íslendingar jákvæðastir þjóða gagnvart hinsegin fólki Umburðarlyndi gagnvart hinsegin fólk hefur aukist nánast í öllum heimshlutum á síðasta áratug, samkvæmt niðurstöðum könnunar sem birt var í dag. Íslendingar eru jákvæðastir þjóða gagnvart hinsegin fólki en könnunin náði til 167 þjóða og var unnin af fræðastofnuninni Legatum Institute í Bretlandi. Tadsíkistan er í neðsta sæti listans. Kynningar 25. nóvember 2019 16:15
Kynbundið ofbeldi á vinnustöðum í brennidepli Ljósaganga UN Women hefst klukkan 17 í dag við styttu Ingólfs Arnarsonar á Arnarhóli, á alþjóðlegum baráttudegi Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi. Ljósagangan markar upphaf sextán daga átaks gegn kynbundu ofbeldi en því lýkur á alþjóðlega mannréttindadeginum, 10. desember. Kynningar 25. nóvember 2019 11:30
Metnaðarfullt verkefni gegn kynferðislegri misneytingu barna í Tógó að hefjast Utanríkisráðuneytið styrkir SOS Barnaþorpin á Íslandi um 36 milljónir króna til að fullfjármagna metnaðarfullt verkefni sem ber yfirskriftina „Gegn kynferðislegri misneytingu á börnum í Tógó.“ Kynningar 22. nóvember 2019 16:15
Líkamlegar refsingar hafa alltaf alvarlegar afleiðingar Flengingar barna, eða aðrar líkamlegar refsingar, tíðkast enn víða í veröldinni þrjátíu árum eftir að Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna leit dagsins ljós. Aðeins átta Afríkuríki af rúmlega fimmtíu hafa lögbundið bann við líkamlegum refsingum barna en slík háttsemi er enn lögleg í öllum ríkjum Bandaríkjanna, að New Jersey og Iowa undanskildum. Kynningar 22. nóvember 2019 14:15
Rúmlega 40% einstaklinga á hrakhólum vegna átaka eru börn Að minnsta kosti sautján milljónir barna yngri en átján ára voru á hrakhólum í eigin landi vegna átaka og ofbeldis víðs vegar um heiminn um síðustu áramót, að því er fram kemur í úttekt eftirlitsstofnunarinnar Internal Displacement Monitoring Centre (IDMC) sem gefin var út í dag. Kynningar 21. nóvember 2019 14:39
Stór hluti þróunarsamvinnuverkefna í þágu barna Í alþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands fer stór hluti beint og óbeint í verkefni sem tengjast börnum og réttindum þeirra. Alþjóðadagur barna er í dag, 20. nóvember, og þess er jafnframt minnst að þrjátíu ár eru liðin frá samþykkt Barnasáttmálans á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Kynningar 20. nóvember 2019 16:45
Sameinuðu þjóðirnar beina sjónum að börnum án foreldra Í vikunni var samþykkt ályktun hjá Sameinuðu þjóðunum um réttindi foreldralausra barna. Ályktunin felur í sér að aðildarríkin, Ísland þar með talið, skuldbinda sig til þess að styðja þennan "berskjaldaða þjóðfélagshóp“ eins og segir í frétt frá SOS Barnaþorpunum. Kynningar 20. nóvember 2019 15:00
Klósett er munaður þeirra efnameiri í heiminum Hreint neysluvatn, viðunandi salernisaðstaða og hreinlæti eru samofnir þættir í verkefnum sem unnin eru fyrir ísenskt þróunarfé í samstarfslöndum Íslendinga, Malaví og Úganda. Í Mósambík hafa Íslendingar verið í samstarfi við UNICEF um stórt verkefni á þessu sviði. Kynningar 19. nóvember 2019 12:45
Afmæli Barnasáttmálans: Miklar framfarir en nýjar ógnir Enn er þörf á brýnum umbótum í þágu fátæskustu barna þrátt fyrir sögulegar framfarir undanfarinna áratuga. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) sem kom út í dag í tilefni af þrjátíu ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Kynningar 18. nóvember 2019 16:00