Enn tapar Atlanta Þrír leikir voru á dagská í NBA deildinni í nótt. Atlanta Hawks tapaði áttunda leiknum í röð þegar liðið lá fyrir Dallas á útivelli 87-78, Minnesota lagði Washington 109-98 og San Antonio lagði granna sína í Houston 86-80. Sport 18. nóvember 2005 14:30
Skrópaði í herþjónustu Þær fregnir hafa borist frá Bandaríkjunum að körfuboltamaðurinn Vlade Divac, sem nýlega lagði skóna á hilluna og er farinn að starfa sem útsendari fyrir LA Lakers í Evrópu, hafi skrópað í herþjónustu í heimalandi sínu Serbíu og Svartfjallalandi og hefur herinn nú lagt fram kæru á hendur honum. Sport 17. nóvember 2005 06:56
Bryant og Iverson skoruðu 42 stig Átta leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Kobe Bryant hjá LA Lakers og Allen Iverson hjá Philadelphia voru í miklu stuði og leiddu lið sín til sigurs með því að skora 42 stig. Sport 17. nóvember 2005 06:45
Boston - Seattle í beinni Leikur Boston Celtics og Seattle Supersonics verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV í nótt klukkan hálf eitt. Viðureign þessara liða verður athyglisverð í ljósi þess að bæði lið hafa átt erfitt uppdráttar það sem af er og vilja eflaust hrista af sér slenið og sigra í kvöld. Sport 16. nóvember 2005 22:56
Pistons með áttunda sigurinn í röð Ellefu leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Detroit Pistons unnu áttunda leik sinn í röð í upphafi leiktíðar þegar liðið tók á móti Boston Celtics. Sport 16. nóvember 2005 16:30
Dallas - Denver í beinni Leikur Dallas Mavericks og Denver Nuggets verður sýndur í beinni útsendingu klukkan 01:30 í nótt á NBA TV. Þar verður athyglisvert að fylgjast með einvígi þeirra Dirk Nowitzki hjá Dallas og Carmelo Anthony hjá Denver. Sport 15. nóvember 2005 20:00
Utah setti vafasamt félagsmet Þrír leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Memphis vann auðveldan sigur á Los Angeles Lakers, Utah tapaði heima fyrir New York Knicks og Golden State vann auðveldan sigur á Chicago Bulls. Sport 15. nóvember 2005 13:00
Memphis - LA Lakers í beinni Leikur Memphis Grizzlies og Los Angeles Lakers verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV í nótt og hefst hann um klukkan eitt eftir miðnætti. Í gær var sýndur leikur Sacramento og New York, þar sem Larry Brown og félagar unnu sinn fyrsta sigur í deildinni í vetur. Sport 14. nóvember 2005 19:30
Borðaði Snickers í morgunmat og hneig niður í lyftu Mikil skelfing greip um sig í herbúðum Los Angeles Lakers á sunnudagsmorguninn þegar úkraínski miðherjinn Slava Medvedenko féll í yfirlið í lyftu þegar liðið var að yfirgefa hótel og var fluttur á spítala í skyndi. Sport 14. nóvember 2005 18:00
Gaf 1,2 milljónir dollara í Katrínarsjóðinn Framherjinn Kevin Garnett hjá Minnesota Timberwolves var heldur betur rausnarlegur fyrir helgina, þegar hann gaf sérstökum styrktarsjóði fórnarlamba fellibylsins Katrínar 1,2 milljónir dollara úr eigin vasa, eða um 70 milljónir íslenskra króna. Sport 14. nóvember 2005 14:27
Loksins sigur hjá New York Sex leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Lærisveinar Larry Brown í New York unnu sinn fyrsta leik í deildarkeppninni þegar þeir skelltu Sacramento Kings á útivelli, en Toronto Raptors er enn án sigurs. Sport 14. nóvember 2005 12:00
Detroit með 5. sigurinn í röð Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í gærkvöldi og þar bar hæst að Detroit Pistons skelltu Phoenix Suns á útivelli 111-104 í frábærum leik sem sýndur var í beinni útsendingu á NBATV í nótt. Miami vann nauman útisigur á Houston 88-84 og Atlanta tapaði 5. leiknum í röð, nú gegn LA Clippers 102-95. Sport 11. nóvember 2005 13:00
Phoenix - Detroit í beinni útsendingu Það verður sannkallaður stórleikur í beinni á NBA TV í nótt, þar sem Steve Nash og félagar í Phoenix Suns taka á móti Austurdeildarmeisturum Detroit Pistons. Phoenix hefur gengið betur án Amare Stoudemire en menn þorðu að vona, en Detroit er á mikilli siglingu og er eina taplausa liðið í NBA. Sport 10. nóvember 2005 20:30
Nowitzki meiddist og Dallas tapaði Tólf leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt. Philadelphia sigraði Dallas auðveldlega 112-97 eftir að Dallas var án Dirk Nowitzki lengst af í leiknum, en hann meiddist í baki. Keith Van Horn skoraði 19 stig og hirti 13 fráköst fyrir Dallas, en Allen Iverson skoraði 25 stig fyrir Philadelphia. Sport 10. nóvember 2005 12:00
Philadelphia - Dallas í beinni Leikur Philadelphia 76ers og Dallas Mavericks verður í beinni útsendingu á NBA TV körfuboltastöðinni á Digital Ísland í kvöld. Þarna eru á ferðinni tvö skemmtileg lið, sem hafa á að skipa tveimur af betri leikmönnum heimsins, þeim Allen Iverson og Dirk Nowitzki. Sport 9. nóvember 2005 18:15
Sacramento fékk grínið borgað Skondin uppákoma varð fyrir leik Sacramento og Detroit í NBA í nótt. Í upphitun fyrir leik liðanna eru venjulega spiluð myndbrot á risaskjá fyrir ofan völlinn og þegar lið Detroit var kynnt, hafði einhverjum háðfuglinum dottið í hug að sýna myndir af brenndum bílum og ónýtum byggingum, til að gera grín af staðalmyndum um bílaborgina. Þetta fór ekki vel fyrir brjóstið á leikmönnum Detroit. Sport 9. nóvember 2005 16:00
Detroit enn taplaust Detroit Pistons heldur áfram sigurgöngu sinni í upphafi leiktíðar í NBA og í gær rúllaði liðið yfir Sacramento á útivelli 102-88. Milwaukee Bucks tapaði sínum fyrsta leik, en Los Angeles Lakers byrjar ágætlega. Sport 9. nóvember 2005 11:00
Memphis-Seattle í beinni Einn leikur verður í beinni útsendingu á NBA TV í nótt, en það er viðureign Memphis Grizzlies og Seattle Supersonics. Memphis hefur unnið tvo leiki og tapað einum, en Seattle hefur spilað tvo leiki og unnið annan þeirra. Pau Gasol er stigahæstur í liði Memphis með rúm 25 stig að meðaltali í leik, en Ray Allen hefur skorað rúmt 31 stig í leik fyrir Seattle. Leikurinn hefst klukkan eitt í nótt. Sport 8. nóvember 2005 22:00
San Antonio þurfti framlengingu í Chicago Fimm leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Meistarar San Antonio lögðu Chicago 104-95 í framlengdum leik og LA Clippers tapaði sínum fyrsta leik í vetur. Þá er Toronto enn án sigurs. Sport 8. nóvember 2005 12:30
Enn tapar New York Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Lærisveinar Larry Brown í New York eru enn án sigurs og töpuðu öðrum leik sínum í röð á heimavelli í nótt fyrir Golden State Warriors. Sacramento náði sínum fyrsta sigri gegn Phoenix og LA Lakers lögðu Denver öðru sinni á nokkrum dögum. Sport 7. nóvember 2005 13:00
Milwaukee lagði Miami Milwaukee Bucks hefur byrjað vel í NBA deildinni í vetur og í nótt vann liðið þriðja leik sinn í röð þegar það skellti Miami á heimavelli sínum 105-100. Michael Redd og Bobby Simmons skoruðu báðir 23 stig fyrir Milwaukee og T.J. Ford 13 stigum og 11 stoðsendingum. Dwayne Wade var atkvæðamestur í liði Miami með 21 stig, 9 stoðsendingar og 7 fráköst. Ellefu aðrir leikir voru á dagskrá í nótt. Sport 6. nóvember 2005 14:00
Philadelphia bíður erfitt verkefni Lið Philadelphia 76ers hefur enn ekki unnið leik í deildarkeppni NBA það sem af er tímabili, en í kvöld sækir liðið Indiana heim í leik sem verður annar tveggja í beinni útsendingu á NBATV. Hinn leikurinn er viðureign LA Clippers og Minnesota Timberwolves. Sport 5. nóvember 2005 21:45
Hamilton tryggði Detroit sigur í lokin Tíu leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í gærkvöldi og þar bar hæst sigurkarfa Rip Hamilton á lokasekúndunni gegn Boston í æsispennandi leik sem sýndur var beint á NBA TV á Digital Ísland. Sport 5. nóvember 2005 18:45
Tveir leikir í beinni Það verða tveir leikir í beinni útsendingu á NBA TV stöðinni á Digital Ísland í nótt. Fyrri leikurinn er viðureign Detroit Pistons og Boston Celtics, en síðari leikurinn er rimma Golden State Warriors og Utah Jazz. en þar eru á ferðinni lið sem ekki hafa sést mikið á skjánum hérlendis. Veislan byrjar fljótlega upp úr miðnætti. Sport 4. nóvember 2005 23:45
O´Neal verður frá í 2-4 vikur Shaquille O´Neal verður frá keppni í tvær til fjórar vikur með Miami Heat, eftir að hafa snúið sig illa á ökkla í leiknum við Indiana síðustu nótt. Þetta staðfestu læknar liðsins í dag. O´Neal hafði byrjað tímabilið nokkuð rólega og var aðeins með 15 stig og 6 fráköst að meðaltali í fyrstu tveimur leikjunum. Sport 4. nóvember 2005 20:00
Hann er "úr hverfinu" Vandræðagemlingurinn Ron Artest hjá Indiana Pacers hitti David Stern, framkvæmdastjóra NBA deildarinnar að máli fyrir leik Indiana og Miami í nótt og ekki var annað að sjá en að vel færi á með þeim. Stern dæmdi Artest sem kunnugt er í 73 leikja bann í fyrra fyrir slagsmál. Sport 4. nóvember 2005 19:00
Stórleikur Bryant dugði ekki gegn Suns Phoenix Suns lagði Los Angeles Lakers á útivelli í síðari leik kvöldsins í NBA í nótt 122-112. Phoenix hafði yfirburði í leiknum í gærkvöld, en liðið var þó næstum búið að glutra niður 17 stiga forystu í fjórða leikhluta eins og tveimur kvöldum áður gegn Dallas. Sport 4. nóvember 2005 18:00
Númer Miller hengt upp í mars Reggie Miller fær treyju sína hengda upp í rjáfur á heimavelli Indiana Pacers þann 31. mars næstkomandi í virðingarskyni fyrir farsælan feril hans, en Miller lék öll átján ár sín í deildinni með félaginu. Sport 4. nóvember 2005 17:15
Indiana vann í Miami Lið Indiana Pacers minnir rækilega á sig í upphafi leiktíðar í NBA og í nótt vann það góðan 105-102 útisigur á Miami Heat. Jermaine O'Neal skoraði 27 stig og hirti 9 fráköst fyrir Indiana, en nafni hans Shaquille O´Neal þurfti að fara meiddur af leikvelli í síðari hálfleiknum með snúinn ökkla og missir væntanlega af næsta leik Miami. Sport 4. nóvember 2005 11:00
Flautukarfa Bryant tryggði Lakers sigur Fjórtán leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt. Kobe Bryant tryggði Los Angeles Lakers sinn fyrsta sigur á tímabilinu með flautukörfu í framlengingu gegn Denver og LeBron James fór mikinn hjá Cleveland gegn New Orleans Hornets. Þá átti Michael Redd stórleik þegar Milwaukee vann annan sigurinn í röð á tveimur dögum. Sport 3. nóvember 2005 15:30