Fjallar um eigið tilfinningalíf og krísur Tónlistarkonan Róshildur var að senda frá sér lagið Fólk í blokk (v2,3) en lagið var í dag kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM957. Tónlist 17. júní 2023 17:01
Egill Ólafs útnefndur borgarlistamaður Reykjavíkur Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, útnefndi í dag Egil Ólafsson borgarlistamann Reykjavíkur árið 2023 við hátíðlega athöfn í Höfða. Menning 17. júní 2023 16:49
„Mér finnst leiðinlegt að vera alveg svartklædd“ Tónlistarkonan Klara Elias leyfir litagleðinni að njóta sín í klæðaburði og er lítið fyrir svartar flíkur. Hún elskar að tengja tónlist og tísku þegar hún kemur fram og er bleikur jakki sem hún klæddist á stóra sviðinu í Herjólfsdal í persónulegu uppáhaldi. Klara Elias er viðmælandi vikunnar í Tískutali. Tíska og hönnun 17. júní 2023 11:30
Þorleifur Örn segist eiga Íslandsmet í vondri gagnrýni: „Það er flókið að díla við upphefð“ Þorleifur Örn Arnarsson er einn af framsæknustu leikstjórum landsins og hefur hlotið mikið lof, ekki síst utan landsteinanna. Hann var til að mynda valinn leikstjóri ársins á þýsku leiklistarverðlaununum árið 2018. Verðlaun sem þar í landi eru einungis veitt hverjum listamanni einu sinni á ævinni. Því er auðvelt að spyrja hvort takmarkinu sé ekki löngu náð? Lífið 17. júní 2023 07:00
Syrgja Gaflaraleikhúsið: „Ævistarfinu fargað“ Leikhússtjóri Gaflaraleikhússins, Björk Jakobsdóttir, segir daginn hafa verið afar erfiðan en í dag var leikhúsið tæmt. Innlent 16. júní 2023 21:01
Björk heiðursdoktor við Listaháskólann Björk Guðmundsdóttir var sæmd heiðursdoktorsnafnbót við Listaháskóla Íslands á útskrift skólans sem fram fór í Silfurbergi í Hörpu í dag. Innlent 16. júní 2023 20:40
Tæp fjórtán hundruð mótmæla mögulegri lokun Tjarnarbíós Alls hafa tæp 1.400 skrifað undir undirskriftalista þar sem kallað er eftir auknum stuðningi við Tjarnarbíó en í vikunni var greint frá því að fái leikhúsið ekki meira fjármagn og húsnæðið stækkað verði þau að skella í lás í haust. Innlent 16. júní 2023 19:00
Rúrik Gísla einn liðsmanna strákabandsins IceGuys Strákabandið IceGuys gaf út lagið Rúlletta á miðnætti sem er fyrsta lag bandsins og er sannkallaður sumarsmellur. Fjórir landsþekktir tónlistarmenn hafa þegar kynnt sveitina á samfélagsmiðlum. Lífið 16. júní 2023 13:57
Mikilvægt að finna leikhúsinu nýtt húsnæði Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar segir nauðsynlegt að finna Gaflaraleikhúsinu nýtt húsnæði en að það hafi ekki legið á lausu. Innlent 16. júní 2023 13:02
Fá ekki leyfi og gefa drauminn upp á bátinn Haraldur Þorleifsson og eiginkona hans Margrét Rut Eddudóttir hafa neyðst til þess að setja áætlanir um listamannasetur á Kjalarnesi á ís. Menning 16. júní 2023 09:49
Ætla að bregða nýju ljósi á Sinfó Hlaðvarpið Fílalag, með þeim Bergi Ebba og Snorra Helgassyni, og Sinfóníuhljómsveit Íslands munu sameina krafta sína í Eldborgarsal Hörpu í haust. Bergur Ebbi segir það mikinn heiður að fá að fíla Sinfó og ætla þeir félagar að bregða nýju ljósi á hljómsveitina. Tónlist 15. júní 2023 22:05
„Síðasta vígi sjálfstæðu senunnar“ Ef ekkert breytist verðum síðustu tveimur leikhúsum sjálfstæðra leikhúsa lokað á árinu, Tjarnarbíó og Gaflaraleikhúsinu. Formaður Samtaka sjálfstæðra leikhúsa (SL) Orri Huginn Ágústsson, segir stöðuna alvarlega en segist þó vongóður um að einhverjir komi þeim til bjargar. Innlent 15. júní 2023 21:00
Glæsilegir gestir á Grímunni Prúðbúið sviðslistafólk fjölmennti í Borgarleikhúsið í gærkvöldi þar sem Grímuverðlaunahátíðin var haldin í ár. Lífið 15. júní 2023 15:20
Glenda Jackson er látin Glenda Jackson, leikkona og fyrrverandi þingmaður breska Verkamannaflokksins er látin, 87 ára að aldri. Breska ríkisútvarpið greinir frá og segir í umfjöllun sinni að hún hafi látist á heimili sínu í London í faðmi fjölskyldu sinnar. Lífið 15. júní 2023 11:07
Óumbeðin ástarbréf eldklárra og eftirsóttra gella Fjöllistahópurinn Eldklárar og eftirsóttar gefa í dag út ljóðabókina Óumbeðin ástarbréf á Slippbarnum við gömlu höfnina í Reykjavík. Menning 15. júní 2023 09:34
Myndasagnagoðsögn látin Bandaríski myndasagnateiknarinn John Romita Sr., er látinn, 93 ára að aldri. Hann er best þekktur fyrir að hafa blásið lífi í myndasagnapersónur á borð við Wolverine, Punisher og Luke Cage. Erlent 14. júní 2023 23:58
Arnar Jónsson hlaut heiðursverðlaun Grímunnar Leikarinn Arnar Jónsson hlaut heiðursverðlaun Grímunnar við hátíðlega athöfn í kvöld. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands veitti honum verðlaunin. Menning 14. júní 2023 23:20
Beyoncé kennt um aukna verðbólgu Verðbólga mældist 9,7 prósent í maí í Svíþjóð, sem er töluvert meira en spáð hafði verið. Verðhækkun hótelgistingar og veitinga leiddi verðlagshækkanir og koma stjórstjörnunnar Beyoncé gæti skýrt hækkunina. Lífið 14. júní 2023 22:44
Grímuverðlaunum dreift jafnt í kvöld Grímuverðlaunin voru veitt í tuttugasta og fyrsta skiptið í kvöld. Óhætt er að segja að verðlaunum hafi verið dreift nokkuð jafnt milli tilnefndra sýninga í kvöld. Menning 14. júní 2023 22:38
Jón Sigurpálsson er látinn Myndlistarmaðurinn og menningarfrumkvöðullinn Jón Sigurpálsson er látinn, 68 ára að aldri. Innlent 14. júní 2023 18:06
Söngvari Rammstein gæti átt fimm ára fangelsi yfir höfði sér Saksóknari í Berlín hefur opnað rannsókn á hendur Till Lindemann, söngvara Rammstein, fyrir kynferðisbrot. Tugir kvenna hafa stigið fram á undanförnum vikum og sakað Lindemann og starfslið hans um kerfisbundna tælingu og byrlun. Erlent 14. júní 2023 14:56
„Talar um hvernig allt er breytt á einu augnabliki“ „Úr varð þetta lag um skilnað og sambandsslit sem endaði svo persónulegt að það eiginlega kom ekki til greina að neinn annar myndi syngja það en ég sjálf,“ segir tónlistarkonan Klara Elias um lagið Nýjan stað, sem hún var að senda frá sér. Blaðamaður tók púlsinn á Klöru. Tónlist 14. júní 2023 10:00
Sviðið selt undan Gaflaraleikhúsinu Húsnæði Gaflaraleikhússins í Hafnarfirði var nýlega selt til þess að rýma fyrir stækkun hótels í nágrenninu. Leikhússtjórinn segir miður hvernig komið er fyrir sviðslistum á Íslandi og segist ekki myndi vilja vera ungur sviðslistamaður í dag. Menning 14. júní 2023 08:00
„Nú er þetta fyrsta hótelið á Íslandi sem er með Michelin-stjörnu“ Veitingastaðirnir Dill og Óx fá að halda sínum Michelin-stjörnum og á verðlaunahátíð Michelin í Finnlandi í gærkvöldi fékk veitingastaðurinn Moss í Bláa lóninu stjörnuna eftirsóttu í fyrsta sinn. Viðskipti innlent 13. júní 2023 22:53
Cormac McCarthy er látinn Cormac McCarthy, einn virtasti skáldsagnahöfundur Bandaríkjanna, er látinn 89 ára að aldri. Menning 13. júní 2023 20:04
„Miðað við hvað það þarf lítið til er fáránlegt að við þurfum að loka“ Sara Martí Guðmundsdóttir, leikhússtýra Tjarnarbíós, segir að þrátt fyrir metsöluár og mikla velgengni þá dugi styrkir ekki fyrir rekstri leikhússins. Að öllu óbreyttu mun Tjarnarbíó loka fyrir fullt og allt í september ef ekki kemur til aðstoðar Reykjavíkurborgar eða ríkisins. Innlent 13. júní 2023 17:19
Hæstánægður með stjörnuna og bauð stjörnukokkum upp á íslenskan rófurétt í Turku Einn eigenda veitingastaðarins Óx er himinlifandi með að staðurinn hafi haldið Michelinstjörnunni sinni þrátt fyrir flutninga á síðasta ári. Hann er nýlentur á Íslandi eftir að hafa sótt Michelin-verðlaunaafhendingu í Finnlandi en þar bauð hann, ásamt matreiðslufólki Óx, stjörnukokkum að gæða sér á íslenskum rófurétti. Viðskipti innlent 13. júní 2023 13:02
Bítlarnir gefa út síðasta lag sitt með hjálp gervigreindar Paul McCartney hefur greint frá því að gervigreind hafi hjálpað eftirlifandi meðlimum Bítlanna við gerð síðasta lags hljómsveitarinnar sem kemur út á þessu ári. Erlent 13. júní 2023 13:01
Frumsýnir tónlistarmyndband: „Ég er að syngja um söguna mína“ Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á nýju tónlistarmyndbandi Herberts Guðmundssonar við lagið Ástarbál. Með laginu er Herbert að segja sögu sína en hann segist þakklátur fyrir jákvæð viðbrögð við tónlistinni sinni. Tónlist 13. júní 2023 12:48
„Slaufaðir“ Greifarnir hundfúlir með sögulega samantekt á RÚV Liðsmenn Greifanna eru allt annað en sáttir með að hafa verið hundsaðir í þáttunum Popp- og rokksaga Íslands á RÚV. Þeir líta svo á að þeim hafi verið slaufað enda ekkert fjallað um sviðsljós sveitarinnar á því tímabili sem var til umfjöllunar í þætti fyrir tímabilið 1986 til 1992. Lífið 13. júní 2023 10:51