Villa-Boas: Ensku liðin eiga erfitt í Meistaradeildinni Pressan á Andre Villa-Boas, þjálfara Chelsea, er orðinn enn meiri eftir 2-1 tap á móti Bayer Leverkusen í Þýskalandi í kvöld en Chelsea-liðið hefur þar með tapað fjórum af síðustu sex leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni og Meistaradeildinni: Fótbolti 23. nóvember 2011 22:45
Van Persie skaut Arsenal áfram í 16 liða úrslitin - Chelsea tapaði Robin van Persie skoraði bæði mörk Arsenal í 2-1 sigri á þýska liðinu Borussia Dortmund í Meistaradeildinni í kvöld en Arsenal var eitt af þremur liðum sem komust áfram í sextán liða úrslit keppninnar. Fótbolti 23. nóvember 2011 19:15
Alex Song: Ég vona að Van Persie meiðist ekki Alex Song og félagar í Arsenal tryggðu sér sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar og sigur í sínum riðli með því að vinna 2-1 sigur á Borussia Dortmund í kvöld. Song lagði upp fyrra mark Robin van Persie en hollenski framherjinn skoraði bæði mörkin. Fótbolti 23. nóvember 2011 19:00
Michael Ballack: Chelsea á enn góða möguleika Michael Ballack fagnaði sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld ásamt félögum sínum í Bayer Leverkusen eftir dramatískan 2-1 sigur á gömlu félögum hans í Chelsea. Sigurmarkið kom í uppbótartíma leiksins en Chelsea komst yfir í byrjun seinni hálfleiks. Fótbolti 23. nóvember 2011 19:00
Í beinni: AC Milan - Barcelona Boltavakt Vísis er með beina lýsingu frá viðureign AC Milan og Barcelona í H-riðli Meistaradeildar Evrópu. Fótbolti 23. nóvember 2011 19:00
Götze verður ekki seldur í janúar Jürgen Klopp, þjálfari Dortmund, hefur ítrekað í aðdraganda leiksins gegn Arsenal að ungstirnið Mario Götze sé ekki til sölu. Fótbolti 23. nóvember 2011 16:45
Nani: Við óttumst ekki stóru liðin Jafnteflið gegn Benfica í gær gerir það að verkum að Man. Utd er ekki öruggt um sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Það sem meira er þá mun liðið væntanlega enda í öðru sæti riðilsins ef það á annað borð kemst áfram. Fótbolti 23. nóvember 2011 10:00
Spilla þýsku liðin fyrir Lundúnaliðunum? Mest spennandi leikur kvöldsins í Meistaradeildinni verður ekki í Mílanó þar sem stórliðin AC Milan og Barcelona mætast heldur í Leverkusen þar sem Chelsea og Bayer Leverkusen geta bæði tryggt sér sæti í 16 liða úrslitunum. Fótbolti 23. nóvember 2011 06:00
Mancini: Við áttum ekki skilið að tapa í kvöld Roberto Mancini, stjóri Manchester City, sá sína menn tapa 2-1 á móti Napoli í Meistaradeildinni í kvöld og gera með því nánast út um möguleika sína á því að komast áfram í sextán liða úrslit keppninnar. Napoli er nú með stigi meira en enska liðið og nægir sigur á botnliði Villarreal í lokaumferðinni til þess að komast áfram á kostnað Mancini og félaga. Fótbolti 22. nóvember 2011 22:40
Ferguson: Fengum á okkur furðuleg mörk Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, var ánægður með spilamennsku sinna manna þrátt fyrir 2-2 jafntefli á móti Benfica á Old Trafford í Meistaradeildinni í kvöld. Jafnteflið nægði Benfica til að tryggja sér sæti í sextán liða úrslitunum en United þarf að fara til Sviss og mæta Basel í hreinum úrslitaleik um sæti í sextán liða úrslitunum. Fótbolti 22. nóvember 2011 22:31
Inter komið áfram í 16 liða úrslitin eftir sigur Lille í Moskvu Ítalska liðið Inter Milan er komið áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar þrátt fyrir að leikur liðsins í kvöld sé ekki hafinn. Lille tryggði Inter farseðilinn með því að vinna 2-0 sigur á CSKA Moskvu í dag. Fótbolti 22. nóvember 2011 19:29
Tvö mörk frá Cavani gerðu nánast út um möguleika Manchester City Edison Cavani sýndi snilli sína í Napoli í kvöld þegar hann skoraði tvö mörk og tryggði Napoli gríðarlega mikilvægan 2-1 sigur á Manchester City í næst síðustu umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Fótbolti 22. nóvember 2011 19:00
Sigurmark United kom ekki þrátt fyrir stórsókn - Benfica komið áfram Manchester United tókst ekki að tryggja sér sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar þrátt fyrir stórskotahríð að marki Benfica á Old Trafford í kvöld. Liðin gerðu 2-2 jafntefli og stigið nægði Benfica til að tryggja sér sæti í 16 liða úrslitunum. Basel tekur á móti United í lokaumferðinni í úrslitaleik um sæti í sextán liða úrslitunum. Fótbolti 22. nóvember 2011 19:00
Bayern, Benfica og Inter komin áfram í 16 liða úrslitin Bayern München, Benfica og Inter Milan tryggðu sér í kvöld sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar og Ajax er komið með níu tær í útsláttarkeppnina. Ensku liðunum Manchester United og Manchester City tókst ekki að tryggja sér áfram upp úr sínum riðlunum. Fótbolti 22. nóvember 2011 19:00
Villas-Boas: Verðum að komast aftur á sigurbraut Chelsea mætir Bayer Leverkusen í Meistaradeildinni á morgun og stjórinn, Andre Villas-Boas, segir að leikurinn sé gríðarlega mikilvægur fyrir Chelsea enda þurfi liðið sárlega að rétta úr kútnum eftir dapurt gengi upp á síðkastið. Fótbolti 22. nóvember 2011 14:30
Aguero vill verða álíka hetja og tengdapabbi hans Sergio Aguero, leikmaður Man. City, vill verða álíka mikil stjarna hjá félaginu og tengdafaðir hans, Diego Maradona, var hjá Napoli á sínum tíma. City mætir Napoli í Meistaradeildinni í kvöld á Ítalíu. Fótbolti 22. nóvember 2011 10:45
Ferguson ánægður með strákana sína Þó svo Man. Utd hafi ekki verið að spila neinn sambabolta á síðustu vikum hefur liðið verið að klára sína leiki og stjórinn, Sir Alex Ferguson, er ánægður með það hvernig liðið hefur brugðist við skellinum gegn Man. City fyrir nokkrum vikum. Fótbolti 22. nóvember 2011 09:30
Mancini býst við einkar erfiðum leik í kvöld Man. City getur tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld takist liðinu að leggja Napoli af velli. Roberto Mancini, stjóri City, býst þó við einstaklega erfiðum leik. Fótbolti 22. nóvember 2011 08:59
Manchester-liðin mega ekki tapa í kvöld Manchester City og Manchester United hafa verið í nokkrum sérflokki í ensku úrvalsdeildinni í vetur en það hefur ekki gengið eins vel hjá liðunum í Meistaradeildinni. Bæði lið eiga það nú sameiginlegt að mega ekki tapa leikjum sínum í næstsíðustu umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar í kvöld. Manchester United tekur þá á móti Benfica á Old Trafford en Manchester City heimsækir ítalska liðið Napoli. Liðin eru bæði í öruggu sæti eins og er en það gæti breyst snögglega í kvöld. Fótbolti 22. nóvember 2011 06:00
Pato verður í liði Milan gegn Barcelona Brasilíumaðurinn Pato snéri aftur í lið AC Milan um helgina eftir tvo mánuði utan vallar vegna meiðsla. Pato snéri aftur með látum og verður væntanlega í liði Milan gegn Barcelona í Meistaradeildinni á kostnað landa síns, Robinho. Fótbolti 21. nóvember 2011 16:00
Rooney spilar líklega á morgun Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, er bjartsýnn á að Wayne Rooney geti spilað Meistaradeildarleikinn mikilvæga gegn Benfica á morgun. Rooney gat ekki æft með liðinu í morgun. Fótbolti 21. nóvember 2011 15:23
Rooney ekki með á æfingu í morgun Wayne Rooney æfði ekki með félögum sínum í Man. Utd í morgun og það vekur upp spurningar um hvort hann verði í standi til þess að spila gegn Benfica í Meistaradeildinni á morgun. Fótbolti 21. nóvember 2011 12:15
Dudek á eftirminnilegasta augnablikið í sögu Meistaradeildarinnar Jerzy Dudek, þáverandi markvörður Liverpool, átti stóran þátt í því að liðið varð Evrópumeistari árið 2005. Þá varði hann tvívegis á ótrúlegan máta í frægum úrslitaleik gegn AC Milan í Istanbul. Fótbolti 20. nóvember 2011 06:00
Forseti Barcelona vill fækka liðum í ensku úrvalsdeildinni Sandro Rosell, forseti Barcelona, er með róttækar hugmyndir um hvernig auka má vægi stórra leikja í Meistaradeild Evrópu. Enski boltinn 16. nóvember 2011 12:15
Christian Eriksen hjá Ajax: Það dreymir alla leikmenn um Barcelona Danski landsliðsmaðurinn Christian Eriksen hefur spilað afar vel með Ajax og danska landsliðinu á tímabilinu og hefur í kjölfarið verið orðaður við Barcelona sem hugsanlegur eftirmaður Xavi í framíðinni. Fótbolti 13. nóvember 2011 14:45
Guardiola: Mourinho er líklega besti þjálfari heims Pep Guardiola, þjálfari Evrópu- og Spánarmeistara Barcelona, var sigursæll leikmaður áður en hann gerðist þjálfari en hann er ekki sammála því að þjálfarar þurfi helst að hafa spilað leikinn sjálfir. Fótbolti 13. nóvember 2011 13:15
Sami Khedira: Jose Mourinho er fullkominn þjálfari Sami Khedira, miðjuleikmaður Real Madrid og þýska landsliðsins, sparar ekki hrósið til Jose Mourinho þjálfara síns hjá spænska liðinu og segist ekki getað ímyndað sér betri þjálfara en Portúgalann. Fótbolti 12. nóvember 2011 23:00
Sara Björk lagði upp sigumarkið - Malmö í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar Sara Björk Gunnarsdóttir og Þóra Björg Helgadóttir kórónuðu í kvöld frábært tímabil með sænska liðinu LdB FC Malmö þegar sænsku meistararnir komust áfram í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar. Fótbolti 10. nóvember 2011 20:03
Benzema: Jose Mourinho er búinn að breyta mér í stríðsmann Karim Benzema, franski framherjinn hjá Real Madrid, hrósar þjálfaranum Jose Mourinho í nýlegu viðtali við RTL og segir portúgalska þjálfarann hafi hjálpað sér að verða betri leikmaður á því eina og hálfa ári sem Mourinho hefur setið í þjálfarastólnum á Santiago Bernabéu. Fótbolti 8. nóvember 2011 17:30
Yaya Toure: Man. City liðið fullorðnaðist eftir kvöldið í München Yaya Toure og félagar í Manchester City hafa verið í miklum ham síðustu vikur og eru búnir að vinna átta leiki í röð síðan að liðið fór til München í lok september. Toure segir Meistaradeildarleikinn í München og atburðina eftir hann hafa verið þroskandi fyrir liðið. Enski boltinn 8. nóvember 2011 09:00