Nýtt eldsneyti í boði Nú þegar tæp ár er síðan að byrjað var byggja metanólverksmiðjuna við Svartsengi hefur hún formlega tekið til starfa og framleiðslan er kominn í fullan gang. Verksmiðjan er fyrsta sinnar tegundar í heiminum. Innlent 15. nóvember 2011 18:41
Tíminn til að hemja hlýnun að renna út „Við erum að stefna í ranga átt varðandi loftslagsbreytingar,“ segir Fatih Birol, aðalhagfræðingur Alþjóðlegu orkustofnunarinnar. Hann segist ekki bjartsýnn á að leiðtogar ríkja heims verði tilbúnir til að færa þær fórnir, sem þarf til að breyta um stefnu. Erlent 10. nóvember 2011 05:30
Hlýnun jarðar hamlar framförum Sameinuðu þjóðirnar hafa sent frá sér hina árlegu þróunarskýrslu, sem að venju er mikill fróðleiksbrunnur um ástand og lífskjör í löndum heims. Umhverfismál eru meginviðfangsefni skýrslunnar í ár. Guðsteinn Bjarnason kynnti sér innihald hennar. Undanfarin tuttugu ár hefur þróunarskýrslan skapað umræður og haft margvísleg áhrif víða um heim," segir Khalid Malik, sviðsstjóri þróunarskýrslusviðs Sameinuðu þjóðanna. Undanfarin tuttugu ár hefur þróunarskýrslan skapað umræður og haft margvísleg áhrif víða um heim," segir Khalid Malik, sviðsstjóri þróunarskýrslusviðs Sameinuðu þjóðanna.Hann segir útgangspunkt skýrslugerðarinnar frá upphafi hafa verið þann, að hin raunverulega auðlegð þjóðanna sé fólkið í hverju landi fyrir sig. Þjóðarframleiðsla eða þjóðartekjur séu ekki besti mælikvarðinn á lífskjör fólks, heldur hafa þættir á borð við menntun og heilsufar verið teknir inn í myndina. Erlent 6. nóvember 2011 13:37
Afbrigðilegt veðurfar hrjáir jarðarbúa næstu árin Í nýrri skýrslu frá IPCC loftslagsráði Sameinuðu þjóðanna mun afbrigðilegt veðurfar halda áfram að hrjá jarðarbúa næstu árin. Erlent 3. nóvember 2011 07:58
Gagnaverið rís á næstu vikum Gagnaver Verne Global kom til hafnar í Helguvík um helgina. Það verður sett upp á næstu vikum. Innlent 17. október 2011 03:00
Kofi Annan: Við getum öll lært af Íslendingum Kofi Annan, fyrrum aðalritari Sameinuðu þjóðanna og handhafi friðarverðlauna Nóbels, segir öryggisráð SÞ bera lagalega og siðferðislega ábyrgð á því að sjálfstætt ríki Palestínu verði stofnað. Innlent 6. október 2011 21:25
Gagnaverið tekur til starfa fyrir áramót Fyrstu einingunni í gagnaver Verne Holding á Ásbrú í Reykjanesbæ verður skipað upp í Keflavík innan tveggja vikna. Gert er ráð fyrir því að starfsemi hefjist suður með sjó á næstu mánuðum. Innlent 30. september 2011 04:00
Forsetinn fagnar áhuga kínverska auðjöfursins Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fagnar áhuga kínverska auðjöfursins Nubos á fjárfestingum á Íslandi. Sem kunnugt er vill Nubo kaupa jörð á Grímsá á Fjöllum og fjárfesta í ferðaþjónustu þar. Forseti Íslands segir þetta til marks um blómstrandi samskipti Íslands við Kína. Evrópa og Bandaríkin hafi hins vegar hundsað Ísland þegar fjármálakreppan skall sem harðast á Íslandi fyrir þremur árum. Viðskipti innlent 2. september 2011 18:30
Fundu hafstraum sem gæti breytt loftslagskenningum Uppgötvun tveggja íslenskra haffræðinga hefur vakið alþjóðlega athygli þar sem hún er talin skipta máli í samhengi við loftlagsbreytingar og hlýnun jarðar. Um er að ræða djúpstraum sem mælst hefur yfir landsgrunnshlíðinni norðan Íslands. Þessi straumur var rannsakaður fyrst og honum lýst af sérfræðingum Hafrannsóknastofnunarinnar, þeim Steingrími Jónssyni, sem jafnframt er prófessor við Háskólann á Akureyri, og Héðni Valdimarssyni. Innlent 24. ágúst 2011 06:00
Máli ísbjarnarlistakvenna vísað frá dómi Kæru Umhverfisstofnunar á hendur tveimur listakonum sem máluðu mynd með matarlit á Langjökul á síðasta ári, hefur verið vísað frá af hálfu embætti Sýslumannsins í Borgarnesi. Innlent 28. júní 2011 13:42
Sjálfbær þróun er jafnréttisbarátta 21. aldar Sjálfbær þróun er hugtak sem mikið hefur verið fjallað um á undanförnum árum, ekki síst í kjölfar efnahagshrunsins, mikilla verðhækkana á hráefnum og vaxandi vistkreppu. Skoðun 26. maí 2011 06:00
Aukin hætta af kvikasilfri Búast má við að kvikasilfursmengun aukist um 25 prósent til ársins 2020, ef ekkert verður að gert. Hvítabirnir, hvalir og selir á norðurslóðum eru í hvað mestri hættu vegna þessa. Meðal annars er vitað að of mikið kvikasilfur getur raskað efnajafnvægi í heila hvítabjarna, sem hefur áhrif á alla hegðun dýranna. Erlent 9. maí 2011 03:00
Duglegri að búa til áhættu en draga úr henni "Efnahaglegu heilsufari heimsins verður ekki þannig lýst að það sé í góðu lagi,“ segir Joseph Stiglitz, Nóbelsverðlaunahagfræðingur. Í fyrirlestri sem hann hélt fyrir hóp blaðamanna sem boðið var á vorfund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) og Alþjóðabankans í Washington í Bandaríkjunum um miðjan apríl fór Stiglitz yfir ástandið á helstu efnahagssvæðum, velti fyrir sér orsökum fjármálakreppunnar og til hvaða ráða þyrfti að taka til þess að sagan endurtæki sig ekki. Viðskipti innlent 4. maí 2011 12:00
Kvikasilfursmengun ógnar lífríkinu í norðurhöfum Kvikasilfursmegnun í norðurhöfum ógnar nú lífríki svæðsins og það eru einkum ísbirnir, selir, hvalir og nokkrar tegundir fugla sem taldar eru í mikilli hættu vegna mengunarinnar. Erlent 4. maí 2011 07:37
Stund jarðar klukkan hálfníu í kvöld Stund jarðar verður haldin um allan heim í kvöld klukkan hálfníu. Meðan á stundinni stendur verða ljós slökkt um allan heim. Erlent 26. mars 2011 12:15
Möguleikar Íslands Við Íslendingar stöndum á krossgötum í dag, þar sem við spyrjum okkur grundvallarspurninga eins og á hverju munum við lifa og byggja landið í framtíðinni. Flestum þykir að sjálfsögðu erfitt að hafa ekki fast land undir fótum þegar kemur slíkum lykilspurningum og því mikilvægt að uppbyggileg umræða fari fram sem hjálpi okkur að gera myndina skýrari, þannig að við vitum betur hvert skal stefna. Skoðun 22. mars 2011 06:00
Samvinnustjórn á norðurslóðum Íslenska ríkisstjórnin hefur lagt fram skýra stefnu um norðurslóðir í þingsályktunartillögu sem nú er fjallað um á Alþingi. Mér þótti í senn Skoðun 2. febrúar 2011 06:00
ESB lokar fyrir viðskipti í bili Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins stöðvaði viðskipti með losunarkvóta fyrir gróðurhúsalofttegundir eftir að upp komst um ítrekaðan þjófnað tölvuþrjóta á losunarleyfum. Viðskipti erlent 22. janúar 2011 06:00
Norðurslóðir í deiglunni Loftslagsbreytingar hafa fært næsta umhverfi okkar, norðrið, nær hringiðu heimsmálanna. Hlýnun jarðar veldur því að ísþekja Norður-Íshafsins fer hraðminnkandi Skoðun 20. janúar 2011 06:15
Reyna að styrkja sambandið Hu Jintao, forseti Kína, snæddi kvöldverð með Barack Obama Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu á þriðjudagskvöld. Þeir ræddu síðan betur saman í gærmorgun og héldu blaðamannafund á eftir. Þar fengu tveir bandarískir fréttamenn og tveir kínverskir að bera fram eina spurningu hver. Loks snæddu þeir aftur kvöldverð í gær. Erlent 20. janúar 2011 06:00
Loftslagsráðstefnan í Cancún Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna í Cancún í Mexíkó í desember síðastliðnum var árangursrík að flestra mati, en þar tókst samkomulag um Skoðun 11. janúar 2011 06:00
Hamfarir ársins óvenju skæðar Náttúran hefur ekki verið jarðarbúum sérlega mild árið 2010. Rétt eins og sveiflur í veðuröfgum virðist mega rekja til hlýnunar jarðar hafa breyttir lífshættir gert mannkynið viðkvæmara fyrir náttúruhamförum. Erlent 30. desember 2010 04:00
Hlýnun jarðar, Cancun og ábyrgð Íslands Sendimenn frá fleiri en 190 löndum hafa komið saman í Cancun í Mexíkó til að ræða leiðir til að draga úr áhrifum frá hlýnun jarðar og er góð ástæða til. Árið 2010 er hið heitasta á plánetu okkar síðan mælingar hófust og í fréttunum getum við fylgst með afleiðingunum; skógareldar í Rússlandi sem kæfa íbúa Moskvu og flóð í Pakistan sem setja einn fjórða af landinu í kaf. Skoðun 2. desember 2010 05:15
Björninn unninn á Langjökli Bjargey Ólafsdóttir myndlistarmaður teiknaði fjögur þúsund fermetra stóran ísbjörn á Langjökul á föstudag. Innlent 30. nóvember 2010 13:09
Akademíur staðfesta hlýnun jarðar Þrjár af virtustu vísindaakademíum heims hafa komist að þeirri niðurstöðu að loftslagsvísindamenn hafi rétt fyrir sér þegar þeir halda því fram að hlýnun jarðar sé staðreynd og að maðurinn eigi þar stærsta þáttinn. Erlent 25. nóvember 2010 11:04
RAX á Suðurskautið með færustu vísindamönnum Frakka „Þetta boð kom í gegnum sýninguna mína um Grænland og ég er bara mjög spenntur," segir ljósmyndarinnar Ragnar Axelsson, RAX. Hann er á leiðinni á Suðurskautslandið með mörgum af færustu vísindamönnum Frakklands og Michel Rocard, fyrrverandi forsætisráðherra Frakklands. Innlent 22. nóvember 2010 11:39
Landsvirkjun telur sæstreng mögulegan Nýjustu athuganir Landsvirkjunar og fleiri aðila sýna fram á að sæstrengur til meginlands Evrópu muni líklega skila sér í gróða. Heildarkostnaður við virkjanir, flutningskerfi frá Íslandi, landsstöðvar og streng er áætlaður um 2,5 milljarðar evra, eða um 380 milljarðar íslenskra króna. Viðskipti innlent 19. nóvember 2010 07:15
Harðræði hefur hert þorskinn Með erfðafræði- og vistfræðilegum aðferðum er reynt að meta hversu vel þorskur getur staðið af sér loftslagsbreytingar. Mikilvægi hans fyrir efnahag fjölda þjóða er gríðarlegt og svo hefur það verið um aldir og eru engar fréttir fyrir Íslendinga. Þorskurinn leikur stórt hlutverk í sögu og menningu þeirra þjóða sem hann hafa nýtt. Innlent 7. nóvember 2010 06:45
Ísland í hvað minnstri hættu vegna loftslagsbreytinga Ísland er í hópi þeirra fimm þjóða sem taldar eru í hvað minnstri hættu á að fara illa út úr breytingum á veðurfari heimsins í kjölfar hlýnunar jarðar vegna gróðuhúsalofttegunda. Innlent 21. október 2010 08:00
Rio Tinto leggur 16 milljarða til viðbótar í Straumsvík Rio Tinto Alcan hefur ákveðið að verja 140 milljónum Bandaríkjadala, eða sem nemur 16 milljörðum króna, til breytinga á framleiðsluferli álversins í Straumsvík. Í stað barra verða framleiddir svonefndir boltar (sívalar stangir), sem eru verðmætari afurð. Þetta mun skapa 150 ársverk hjá álverinu. Viðskipti innlent 1. október 2010 09:08