Fimmstjörnu þjónusta Málningar- og réttingaverkstæði Toyota er gæðavottað af BSI á Íslandi samkvæmt kröfum Bílgreinasambandsins. Áhersla er á faglegar viðgerðir og starfsmenn sérmenntaðir. Auk þess fá vottuð verkstæði 5 stjörnur í flokkun Sjóvá. Kynningar 1. nóvember 2011 11:00
Loftbóludekk frá Bridgestone Fyrirtækið Betra grip ehf. rekur heildverslun að Lágmúla 9, með verkstæðistæki frá Ravaglioli og viðgerðavörur fyrir hjólbarða frá Tip Top. Fyrirtækið er jafnframt umboðs- og söluaðili fyrir Bridgestone- og Firestone-hjólbarða, sem framkvæmdastjórinn Arngrímur Þorgrímsson segir vera með þeim bestu sem völ er á. Kynningar 25. október 2011 11:00
Engar biðraðir - pantaðu tíma á netinu Vaka hefur nú opnað á nýjum stað að Smiðjuvegi 28. Nú geta viðskiptavinir valið um tvö stór og öflug dekkjaverkstæði, á Smiðjuvegi og í Skútuvogi. Kynningar 25. október 2011 11:00
Slitsterk jeppadekk fyrir íslenskar aðstæður Arctic Trucks selur slitsterk jeppadekk undir flestar gerðir jeppa og jepplinga. Fyrirtækið býður einnig upp á almenna dekkjaþjónustu. Arctic Trucks sérhæfir sig í þjónustu og lausnum fyrir jeppa- og jepplingaeigendur en býður auk þess upp á dekkjaþjónustu fyrir allar gerðir bíla. Starfsemin fer fram að Kletthálsi 3 en þar er verslun, breytingaverkstæði, almennt viðgerðaverkstæði og dekkjaþjónusta. Auk þess býður Arctic Trucks upp á ástands- og söluskoðanir á bílum, sem eru mjög vinsælar hjá þeim sem hyggja á bílakaup. Kynningar 25. október 2011 11:00
Goodyear er flaggskipið okkar Klettur - sala og þjónusta ehf. er nýlegt fyrirtæki sem byggir á gömlum grunni. Klettur er til húsa í Klettagörðum 8 við Sundahöfn og er stór heildsali á dekkjum fyrir fólksbíla, jeppa, sendibíla, vörubíla, vinnuvélar og mótorhjól auk þess að reka glæsilega dekkjaþjónustu fyrir minni fólksbíla og stærstu gerðir vörubíla. Kynningar 25. október 2011 11:00
Dekkin skipta öllu máli í umferðinni Dekkjahöllin er yfir 25 ára gamalt fjölskyldufyrirtæki með hjólbarða- og smurstöðvar í Skeifunni 5, Reykjavík og einnig á Akureyri og Egilsstöðum. Fyrirtækið hefur vaxið jafnt og þétt frá því það var stofnað á Akureyri en allt frá upphafi hefur verið lögð áhersla á snögga og góða þjónustu og að bjóða upp á mikið úrval dekkja á góðu verði. Kynningar 25. október 2011 11:00
Eina dekkjaumboðssalan á Íslandi Dekkjasalan að Dalshrauni 16 er umboðssala fyrir notuð dekk og felgur. Fyrirtækið er eina umboðssalan á Íslandi sem sérhæfir sig í dekkjum, felgum og öðru því tengdu. Kynningar 25. október 2011 11:00
Notuð dekk eru ódýr kostur Kaup á notuðum hjólbörðum hefur mörgum reynst hentugur kostur, að sögn Steinars Gunnsteinssonar hjá Vöku í Skútuvogi. „Sumum reynist erfitt að fjármagna kaup á nýjum dekkjum eins og ástandið er í þjóðfélaginu núna. Þá koma notuð dekk til bjargar,“ segir Steinar. „Einnig geta notuð dekk verið hentug fyrir þá sem aka um ágömlum bíl og vita ekki hvað hann endist lengi í viðbót,“ segir hann. „Þá þarf það ekki að liggja með mikla fjárfestingu í dekkjum þegar bíllinn gefur upp öndina.“ Kynningar 25. október 2011 11:00
Metið staðfest hjá Guinness Bílar frá íslenska fyrirtækinu Arctic Trucks settu nýtt heimsmet í hröðustu yfirferð á landi á Suðurheimskautslandinu þegar þeir keyrðu 2.308 kílómetra leið frá Novo til suðurpólsins í desember í fyrra. Kynningar 12. október 2011 11:00
Snjallar lausnir í bankaviðskiptum Íslandsbanki hefur á þessu ári lagt mikla áherslu á þróun farsímalausna í bankaviðskiptum. Í sumarbyrjun opnaði vefur sem styður við nýjustu gerðir snjallsíma en vöxtur í sölu slíkra tækja er gríðarlegur. Því er spáð að innan nokkurra ára muni umferð á netinu verða meiri í gegnum símtæki og spjaldtölvur, eins og iPad, heldur en í gegnum hefðbundnar tölvur. Kynningar 29. september 2011 11:00
Gæði í gegn Harðviðarval ehf. leitast við að bjóða viðskiptavinum sínum það nýjasta og besta í parketi. Harðviðarval er rótgróið, íslenskt fjölskyldufyrirtæki með áratuga reynslu af sölu byggingavara. Undanfarin tuttugu ár hefur fyrirtækið einblínt á gólfefni og býður meðal annars breitt úrval í parketi. Kynningar 29. september 2011 11:00
Skuldir lækkaðar um rúmlega 23 milljarða Landsbankinn greip til sérstakra úrræða fyrir skuldsett heimili í maí. Nú er orðið ljóst að þau þýða að skuldir heimila og einstaklinga við bankann munu lækka um rúmlega 23 milljarða króna. Kynningar 29. september 2011 11:00
Fremstir í gólfefnum í 76 ár Reynsla á gólfefnamarkaði og fjöldamörg vel heppnuð verkefni bæði í heimahúsum, stofnunum og fyrirtækjum er til marks um áherslu á þau gæði sem Egill Árnason ehf. býður upp á. Það er einmitt þetta sem myndar sérstöðu á þessum. Kynningar 29. september 2011 11:00
Óverðtryggð íbúðalán með föstum vöxtum Arion banki hefur frá miðjum september boðið viðskiptavinum sínum þá nýjung að geta tekið óverðtryggð íbúðalán til 25 eða 40 ára með föstum vöxtum í fimm ár. Fram til þessa hafa flest húsnæðislán verið verðtryggð og hefur takmarkað framboð af óverðtryggðum lánum oft verið gagnrýnt. Kynningar 29. september 2011 11:00
Látlaust eldist oftast best Þegar gólfefni eru keypt er fjárfest til framtíðar. Hjá Birgisson í Ármúla 8 er boðið upp á úrvalsvörur frá virtum framleiðendum. Kynningar 29. september 2011 11:00
Straumurinn liggur í MP banka Starfsfólk MP banka er önnum kafið við að taka á móti nýjum viðskiptavinum þessa dagana segir Sigríður Einarsdóttir, útibússtjóri MP banka í Ármúla. Kynningar 29. september 2011 11:00
Eikin alltaf vinsælust á íslensk gólf Þorgeir Björnsson, framkvæmdastjóri verslananna Stepp og Parket og gólf, segir Íslendinga varkára þegar kemur að gólfefnavali. Eikarparket haldi jafnan vinsældum sínum. Kynningar 29. september 2011 11:00
Rómantísk, íslensk haustbirta Haustið er rómantískur tími, þegar daginn fer að stytta og hugguleg útiljós kallast á við tilkomumikið sólsetrið. Hjá Prodomo, sýningarsal S. Guðjónsson í Auðbrekku, fást íslensk útiljós í ætt við eldgos. Kynningar 14. september 2011 11:00
Breyting til batnaðar Nýr Toyota Yaris var kynntur fyrir blaðamönnum í Kaupmannahöfn á dögunum. Um er að ræða þriðju týpuna frá því að Yaris var settur á markað árið 1998. Toyota hefur í heildina tekist mjög vel til. Kynningar 14. september 2011 11:00
Fagmennskan í fyrirrúmi Fastus í Síðumúla 16 þjónar fyrirtækjum í hótel- og veitingageira ásamt mötuneytum og atvinnueldhúsum. Stór þáttur í starfsemi Fastus er ráðgjöf og hönnun í samstarfi við arkitekta og veitingamenn. Kynningar 14. september 2011 11:00
Lýsingarhönnun er ódýr og áhrifarík lausn Verslunin Pfaff, Grensásvegi 13, hefur í sinni þjónustu lýsingarhönnuðinn Einar Svein Magnússon, sem býður viðskiptavinum upp á ráðgjöf um lýsingu og lýsingarhönnun. Kynningar 14. september 2011 11:00
Katla í garðinum heima Íslenskir ljósahönnuðir hafa látið ljós sitt skína eftir bankahrunið 2008, en þá hækkuðu innflutt ljós mjög í verði. Íslensk útiljós eru í senn falleg og hagstæður kostur. Mikið er lagt upp úr gæðum og góðu úrvali, eins og sjá má í sýningarsal Prodomo þar sem íslensk ljós eru fyrirferðarmikil þessa dagana. Kynningar 14. september 2011 11:00
Fjölbreytileg tæki Fyrirtækið Einar Farestveit & Co. hf. hefur fyrir löngu skapað sér nafn hérlendis fyrir sölu á vönduðum eldunartækjum. Verslunarstjórinn Þráinn Bj. Farestveit er öllum hnútum kunnugur um nýjungar þess. Kynningar 14. september 2011 10:30
Minni orka og meiri ró Það nýjasta í Ormsson er stílfögur AEG-eldhústækjalína sem fellur vel inn í alrými heimilisins. Hljóðlát tæki og sparneytin á orku. Kynningar 14. september 2011 10:00
Heildarútlit í eldhúsið Rönning heimilistæki starfrækir þrjár verslanir á landinu, í Skútuvogi í Reykjavík, á Akureyri og á Reyðarfirði. Hjá Rönning er áhersla lögð á heildarþjónustu við viðskiptavini. Kynningar 14. september 2011 09:30
Frumkvæði og umhyggja fyrir viðskiptavinum Vodafone leggur sig fram um að veita góða þjónustu á fyrirtækjamarkaðnum enda samkeppnin hörð. Á meðal viðskiptavina Vodafone eru mörg af stærstu fyrirtækjum landsins og sveitarfélög. Kynningar 31. ágúst 2011 11:00
Fjárfest í menntun Rannsóknir hafa sýnt að þeir vinnustaðir sem sinna endurmenntun starfsmanna eru eftirsóknarverðir og þar er starfsánægjan meiri. Hæfara starfsfólk skilar sér einnig í hagkvæmari rekstri," segir Hildur Elín Vignir, framkvæmdastjóri Iðunnar. Iðan er endurmenntunarfyrirtæki í iðnaði. Markmið hennar er að bæta hæfni fyrirtækja og starfsmanna í bíliðnaði, bygginga- og mannvirkjaiðnaði, matvæla- og veitingageirum, málm- og véltækniiðnaði, upplýsinga- og fjölmiðlagreinum og hársnyrtiiðninni. Kynningar 31. ágúst 2011 11:00