Boða til upplýsingafundar á morgun Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis hefur boðað til upplýsingafundar á morgun klukkan 11 vegna faraldurs kórónuveirunnar. Innlent 4. janúar 2022 13:44
Hagskælingar fluttir í Ármúla Miklar skerðingar eru á skólastarfi Hagaskóla vegna myglu sem fannst í einni álmu skólans í vetur. Það mun vera áfram það sem eftir er skólaárs og munu níundu bekkingar skólans sækja námið í Ármúla. Innlent 4. janúar 2022 13:07
Rúmur þriðjungur beri illa skuldir sínar Umtalsverðar skammtímaskuldir hafa safnast upp hjá ferðaþjónustufyrirtækjum hér á landi eftir að kórónuveirufaraldurinn skall á og í árslok 2020 voru þær allt að 25 milljarðar króna umfram það sem eðlilegt var. Erfitt getur reynst að vinna á þessum skuldum nema með frekari lántöku eða nýju eigin fé. Viðskipti innlent 4. janúar 2022 12:15
Hvetur þingmenn sem eru á móti sóttvarnaaðgerðum til að koma með tillögur Átta liggja nú á gjörgæslu Landspítalans með deltaafbrigði kórónuveirunnar og eru sex þeirra í öndunarvél. Sjö liggja inni vegna ómíkron. Sóttvarnalæknir segir aðallega óbólusett fólk vera á gjörgæslu. Hann hvetur enn á ný þá sem eiga eftir að láta bólusetja sig að gera það. Innlent 4. janúar 2022 12:14
„Viðbúið að einhverjir skólar þurfi að loka“ Heilbrigðisráðherra segir mikilvægt að skóla og frístundastarf barna haldi áfram með sem eðlilegustum hætti. Þó sé viðbúið að einhverjir skólar muni þurfa að loka vegna fjölda starfsmanna og barna í einangrun og sóttkví. Innlent 4. janúar 2022 11:33
1.289 greindust innanlands 1.289 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 485 af þeim 1.289 sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 38 prósent. 804 voru utan sóttkvíar, eða 62 prósent. Innlent 4. janúar 2022 10:29
Sjúklingum á Covid-göngudeild fjölgar um 1.356 milli daga 28 sjúklingar liggja nú á Landspítala með COVID-19 og fjölgar þeim um þrjá milli daga. Sjúklingum á Covid-göngudeildinni fjölgar um 1.356 milli daga, fer úr 7.198 í gær og í 8.554 í dag. Innlent 4. janúar 2022 09:31
Björn Ingi segir óbólusetta útlendinga „bleika fílinn í stofunni“ „Bleiki fíllinn í stofunni“, sem ekki má tala um, er að flestir þeir sem nú veikjast alvarlega af kórónuveirunni hér á landi „eru útlendingar sem vinna hér og hafa íslenska kennitölu en gera annars lítt eða ekkert með sóttvarnaráðstafanir okkar samfélags“. Innlent 4. janúar 2022 08:05
Bandaríkjamenn setja heimsmet í greindum á sólarhring Yfir milljón manns greindust með Covid-19 í Bandaríkjunum í gær en um er að ræða nýtt heimsmet í fjölda greininga sjúkdómsins á einum degi. Þá er þetta næstum tvöföldun á fyrra meti, sem féll í Bandaríkjunum fyrir fjórum dögum, þegar 590 þúsund manns greindust með kórónuveiruna. Erlent 4. janúar 2022 07:13
Smitum fækkar í ensku úrvalsdeildinni Smitum fækkar milli vikna meðal leikmanna og starfsfólks ensku úrvalsdeildarinnar í fyrsta skipti í tvo mánuði. Enski boltinn 4. janúar 2022 07:00
Láta ekki líflátshótanir stoppa sig Franskir stjórnarþingmenn segja að líflátshótanir sem þeir hafi fengið muni ekki stöðva áform um að framvísa þurfi bólusetningavottorði til að komast um borð í lestir eða inn á veitingastaði. Erlent 3. janúar 2022 23:30
Heimila örvunarskammt fyrir tólf til fimmtán ára Matvæla- og lyfjastofnun Bandaríkjanna hefur heimilað notkun á bóluefni Pfizer sem örvunarskammt fyrir börn á aldrinum tólf til fimmtán ára, og lækkað tímann sem þarf að líða frá annari bólusetningu til þeirra þeirra þriðju úr sex mánuðum í fimm. Erlent 3. janúar 2022 22:27
Ekki komið á hreint hvort bólusett verði í skólum Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, segist skilja þau sjónarmið sem búi að baki gagnrýni á fyrirætlanir um að bólusetja börn á aldrinum fimm til ellefu ára í skólum sínum. Umboðsmaður barna hefur kallað eftir breyttu fyrirkomulagi. Innlent 3. janúar 2022 21:38
Verulegur hluti sjálfstæðismanna efast um réttmæti aðgerða Sjaldan ef nokkurn tíma hefur ríkt eins mikil óeining á þingi um réttmæti harðra samkomutakmarkana. Flestir þingmenn sem eru á móti þeim tilheyra flokki Sjálfstæðismanna og Viðreisnarmenn hallast í sömu átt. Innlent 3. janúar 2022 21:01
Yfir 400 starfsmenn skóla og frístundar í borginni í sóttkví eða einangrun Ríflega fjögur hundruð starfsmenn grunn- og leikskóla og frístundastarfs í Reykjavík eru með kórónuveiruna eða í sóttkví. Skólastarf kemur því til með að raskast næstu daga en áhersla er lögð á að yngstu börnin komist í skólann. Innlent 3. janúar 2022 20:09
„Það væri ábyrgðarleysi að reyna ekki að halda skólastarfi gangandi“ Mennta- og barnamálaráðherra segir afar mikilvægt að hægt sé að halda skólastarfi sem eðlilegustu þrátt fyrir mikla útbreiðslu kórónuveirunnar í samfélaginu. Hann mun funda daglega með nýjum samráðsvettvangi um stöðu skólamála í landinu og viðurkennir að margar áskoranir séu fram undan í málaflokknum. Innlent 3. janúar 2022 18:10
Tryggjum öruggt starfsumhverfi í framhaldsskólum Félag framhaldsskólakennara leggur áherslu á að það að umsnúa staðkennslu yfir í fjarkennslu er algert neyðarbrauð, mun frekar þarf að tryggja nemendum góðan aðgang að kennsluefni og verkefnum sem þeir geta nýtt sér ef þeir missa tímabundið af staðkennslu. Skoðun 3. janúar 2022 17:30
Foreldrar beðnir um að hætta að senda börn með kvef á leikskóla Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins beinir þeim tilmælum til foreldra að senda ekki börn í leik- og grunnskóla með kvefeinkenni nema þau hafi farið í PCR-sýnatöku. Skipulagsdagur var í dag hjá starfsfólki grunn-, leik- og tónlistarskóla á höfuðborgarsvæðinu, auk frístundaheimila þar sem gripið var til ráðstafana í ljósi stöðu kórónuveirufaraldursins. Innlent 3. janúar 2022 17:16
„Með Covid-19“ en ekki lengur „vegna Covid-19“ Landspítalinn uppfærði í dag orðalag sitt í daglegum tilkynningum um stöðuna á spítalanum. Áður kom þar fram hve margir sjúklingar lægju inni „vegna“ Covid-19 en í dag var orðalaginu breytt í „með“ Covid-19. Tvö börn liggja inni á barnadeild Landspítalans með Covid-19. Innlent 3. janúar 2022 15:15
Starfsemi Vesturbæjarlaugar lömuð vegna faraldursins Vesturbæjarlaug lokar klukkan tvö í dag vegna mönnunarvanda. Innlent 3. janúar 2022 13:56
Sannfærður um að smitaðir finnist í kennslustofunum Skólastjóri Melaskóla segir starfsfólk skólanna mjög útsett fyrir því að smitast af kórónuveirunni og geta lítið varið sig. Þrátt fyrir að stefnt sé að óbreyttu skólastarfi á morgun þá geti staðan breyst hratt. Innlent 3. janúar 2022 13:36
Elstu bekkir í Laugarnesskóla verða heima Sigríður Heiða Bragadóttir, skólastjóri í Laugarnesskóla sem er fyrir nemendur í 1. bekk og upp í 6. bekk, hefur ákveðið að nemendur í elstu tveimur árgöngunum mæti ekki í skólann þessa vikuna. Endurskoða á stöðuna í lok viku. Ástæðan er forföll kennara vegna kórónuveirufaraldursins. Yngri krakkar fá forgang í skólann. Innlent 3. janúar 2022 12:54
Ættum að draga okkur inn í skel til að halda atvinnulífinu gangandi Allar hugmyndir um að veita atvinnurekendum vald til að kalla fólk í sóttkví í vinnu hafa verið slegnar út af borðinu. Almannavarnir reyna nú að finna nýjar lausnir til að geta haldið atvinnulífinu á floti næstu vikur á meðan metfjöldi Íslendinga er í einangrun og sóttkví. Innlent 3. janúar 2022 12:41
Búa sig undir að taka á móti fjölda erlendra verkamanna Hundrað herbergi bætast við farsóttarhúsin í dag þegar tekið verður yfir restina af Icelandair Hotel Natura við Reykjavíkurflugvöll. Í kringum hundrað einstaklingar eru á biðlista eftir að komast í einangrun á farsóttarhúsi. Reiknar forstöðumaður með að tæma fyrirliggjandi lista en að fleiri sæki í húsin eftir sýnatöku í dag. Innlent 3. janúar 2022 12:21
„Við getum ekki tekið fólk með valdi og bólusett það“ Sóttvarnalæknir segir ekkert við ástandið í faraldrinum gefa ástæðu til að ráðast í afléttingar. Hlutfall óbólusettra á meðal alvarlega veikra er mjög hátt. Innlent 3. janúar 2022 12:02
795 greindust innanlands í gær 795 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. 374 af þeim 795 sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 47 prósent. 421 voru utan sóttkvíar, eða 53 prósent. Innlent 3. janúar 2022 10:51
Forstjóri Landspítalans fékk Covid: „Veiran er alveg á fullri ferð“ Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Landspítalans, greindist með Covid-19 fyrir jól. Hún segir að í kringum 200 starfsmenn spítalans séu nú fjarri vinnu vegna kórónuveirunnar og að stöðugt bætist í fjöldann enda sé veiran „á fullri ferð“ í samfélaginu. Heilbrigðisstarfsfólk fari ekki varhluta af því. Innlent 3. janúar 2022 10:36
Óbólusetti fíllinn í herberginu Óbólusett fólk er aðalástæðan fyrir núverandi álagi á heilbrigðiskerfið, sem síðan leiðir til harkalegra smitvarna og tilheyrandi tekjutaps í mörgum atvinnugreinum. Að ekki sé talað um stórfellt rask í lífi tugþúsunda einstaklinga. Skoðun 3. janúar 2022 10:31
Covid-19-sjúklingum á Landspítala fjölgar milli daga 25 sjúklingar liggja nú inni á Landspítala vegna Covid-19 og fjölgar um þrjá milli daga. Fjórtán þeirra eru bólusettir og ellefu óbólusettir. Innlent 3. janúar 2022 09:54
Íhugar að skikka borgarstarfsmenn til að þiggja örvunarskammt Eric Adams, borgarstjóri New York, sagðist í gær vera að íhuga að skylda starfsmenn borgarinnar til að þiggja örvunarskammt af bóluefnunum gegn Covid-19. Opinberir starfsmenn í New York hafa þegar verið skikkaðir til að þiggja bólusetningu. Erlent 3. janúar 2022 07:45