Auglýsingar Sjóvár taldar villandi Neytendastofa ákvarðaði nýlega að framsetning auglýsinga og markaðsherferðar tryggingafélagsins Sjóvár hafi verið villandi. Auglýstar voru kaskótryggingar fyrir ökutæki. Viðskipti innlent 24. nóvember 2021 21:08
Baguette með skinku og osti komið aftur á matseðilinn hjá Icelandair Eftir þriggja ára hlé er baguette með skinku og osti loks komið aftur á matseðilinn hjá Icelandair. Þreyttir ferðalangar geta því glaðst að nýju og notið þessa sívinsæla réttar þegar þeir eru á ferðalagi með flugfélaginu. Neytendur 24. nóvember 2021 15:15
Ójafnvægið í þróun byggingarvísitölu og fasteignaverðs ekki verið meira frá bankahruni Ójafnvægið í þróun annars vegar byggingarvísitölu og hins vegar þróun fasteignaverðs hefur ekki verið meira en nú á tímum kórónuveirufaraldursins frá því rétt fyrir fall bankanna árið 2008. Frá aldamótum nemur hækkun fasteignaverðs umfram byggingarkostnað nálægt áttatíu prósentum. Innherji 23. nóvember 2021 21:02
Fjárfestingafélag í sjávarútvegi á leið í Kauphöllina Félagið Bluevest Capital Partners, sem var stofnað af Kviku banka og bresku viðskiptafélögunum Mark Holyoke, stærsta hluthafi Iceland Seafood og stjórnarmanns 2010 til 2019, og Lee Camfield, fyrrverandi framkvæmdastjóra rekstrar hjá Iceland Seafood, setur nú stefnuna á skráningu á First North hlutabréfamarkaðinn í Kauphöllina í byrjun næsta árs. Innherji 23. nóvember 2021 18:05
Hrista upp í skipulagi Icelandair Group til að bregðast við breyttri heimsmynd Breytingar hafa verið gerðar á skipulagi Icelandair Group þar sem markmiðið að vera með enn skýrari áherslu á stefnu félagsins þegar kemur að sjálfbærum vexti, stafrænni umbreytingu og áherslu á upplifun viðskiptavina. Viðskipti innlent 23. nóvember 2021 11:02
Höfnuðu tilboði frá Festi og slitu söluferlinu á Lyfju Eigendur Lyfju, stærstu apótekskeðju landsins, hættu við áform sín um að selja allt hlutafé í félaginu í síðasta mánuði eftir að þau tilboð sem bárust í söluferli sem hafði verið sett af stað reyndust talsvert undir þeim væntingum sem hluthafar höfðu gert sér um virði fyrirtækisins. Stærsti eigandi Lyfju, með 70 prósenta hlut, er framtakssjóðurinn SÍA III sem er í rekstri sjóðastýringarfyrirtækisins Stefnis. Innherji 22. nóvember 2021 10:29
FÍB gagnrýnir milljarða arðgreiðslu Sjóvár Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, gagnrýnir tryggingarfélagið Sjóvá í grein sem birt var á vefsíðu félagsins í gær. Framkvæmdastjóri FÍB segir ljóst að gríðarlegur hagnaður tryggingafélagsins sé ekki að skila sér til viðskiptavina. Viðskipti innlent 20. nóvember 2021 14:45
Flugiðnaðurinn mun meira mengandi en hann þarf að vera Tækni til orkuskipta í flugiðnaðinum verður ólíklega til staðar fyrr en eftir að minnsta kosti tvo áratugi að sögn bresks flugmálasérfræðings. Þó séu þekking og geta til staðar innan iðnaðarins til að draga allverulega úr losun lofttegunda sem eru skaðlegar fyrir umhverfið. Það skorti hins vegar pólitískan vilja til að hrinda aðgerðum til þess í framkvæmd. Innlent 20. nóvember 2021 07:00
Hagræðingaraðgerðir Regins báru ávöxt Hagræðingaraðgerðir innan Regins hafa borið árangur, að því er kemur fram í verðmati Jakobsson Capital á fasteignafélaginu. Rekstrarhagnaðarhlutfall Regins hækkaði úr 69,5 prósentum upp í 73,3 prósent milli ára en þetta er besta rekstrarhagnaðarhlutfall Regins síðan Jakobsson Capital hóf að gera verðmöt á félaginu árið 2016. Innherji 19. nóvember 2021 10:39
Fjárfestar veðji á mikinn söluhagnað hjá Skeljungi Verðmatsgengi Skeljungs, samkvæmt greiningu Jakobsson Capital, hljóðar upp á 11 krónur á hlut en markaðsgengi smásölufélagsins er í dag 13,9 krónur, eða 26 prósentum hærra. Í verðmatinu er þó lögð áhersla á að verðmatsgengið segi aðeins hálfa söguna í ljósi þess að Skeljungur er í miklum breytingafasa. Innherji 18. nóvember 2021 14:31
Fara inn í næsta sumar með fimm vélar Flugfélagið Play hefur undirritað samning við alþjóðlega flugvélaleigusalann China Aircraft Leasing Company (CALC) um leigu á tveimur A320neo flugvélum. Viðskipti innlent 18. nóvember 2021 10:33
Ísland geti orðið fjármálamiðstöð norðurslóða Arion banki vinnur markvisst að því að auka umsvif sín á norðurslóðum og telja stjórnendur bankans að íslenska fjármálakerfið geti gegnt lykilhlutverki á svæðinu. „Ísland er í einstakri stöðu til að verða fjármálamiðstöð norðurslóða,“ sagði Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, á markaðsdegi bankans sem var haldinn í morgun. Innherji 17. nóvember 2021 17:50
Sló til starfsmanns við innritun og flaug beint í flugbann Ónefndur farþegi sló til starfsmanns Icelandair á sunnudaginn og var umsvifalaust settur í flugbann um óákveðinn tíma, meðan málið er til rannsóknar. Innlent 17. nóvember 2021 16:39
Nýr hugsunarháttur hefur umbylt rekstri Arion banka „Skilaboðin okkar árið 2019 voru einföld,“ sagði Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, aðstoðarbankastjóri Arion banka, á markaðsdegi bankans sem var haldinn í morgun. Ásgeir fór yfir árangurinn sem Arion banki hefur náð frá síðasta markaðsdegi bankans fyrir tveimur árum þegar stjórnendur kynntu nýja stefnu til að umbylta fyrirtækjalánabókinni. Innherji 17. nóvember 2021 14:00
Ölgerðin setur stefnuna á hlutabréfamarkað í byrjun næsta árs Stjórn Ölgerðar Egils Skallagrímssonar, stærsti drykkjarvöruframleiðandi landsins, hefur tekið ákvörðun um að hefja formlegan undirbúning að skráningu félagsins á aðalmarkað Kauphallarinnar hér á landi. Innherji 17. nóvember 2021 07:00
Faraldurinn hafi ekki jafn mikil áhrif og áður á hegðun Íslendinga Núverandi bylgja faraldurins virðist ekki hafa mikil áhrif á hegðun ferðamanna og er lítið um afbókanir þrátt fyrir uppsveiflu í fjölda smitaðra. Forstjóri Play segir það sérstaklega eiga við um Íslendinga sem voru óöruggir í sumar þegar fjórða bylgja faraldursins reið yfir en þeir eru nú rólegri og yfirvegaðri. Viðskipti innlent 16. nóvember 2021 11:45
Alþjóðaumhverfið á nýju ári Það stefnir allt í að 2021 reynist gott ár fyrir innlenda og erlenda hlutabréfamarkaði. Íslenska hlutabréfavísitalan hefur hækkað um tæp 40% frá áramótum samanborið við 19% hækkun heimsvísitölu hlutabréfa. Umræðan 16. nóvember 2021 11:00
Forstjóri Kviku: „Við erum rétt að byrja“ „Kvika hefur stækkað úr litlu félagi upp í eitt af stærstu félögum landsins. Þrátt fyrir það er markaðshlutdeild okkar lítil víða. Félagið er fjárhagslega sterkt og tækifærin til þess að auka samkeppni eru víða. Við erum rétt að byrja,“ segir Marinó Örn Tryggvason, forstjóri Kviku. Innherji 16. nóvember 2021 09:46
Föst út í vél í yfir klukkutíma vegna veðurs Vonskuveður hefur haft áhrif á flug Icelandair í dag og þurftu farþegar á leið frá Evrópu að bíða í rúman klukkutíma út í vél að lokinni lendingu vegna hvassviðris. Viðskipti innlent 13. nóvember 2021 21:48
Hagnaður Kviku banka sjöfaldaðist Hagnaður kviku banka sjöfaldaðist á fyrstu 9 mánuðum þessa árs. Fyrir skatta nemur hagnaður bankans tæpum 8 milljörðum króna. Til samanburðar hagnaðist Kvika um 1,3 milljarða á sama tíma í fyrra. Viðskipti innlent 10. nóvember 2021 22:07
Play bætir fjórum áfangastöðum við sumaráætlunina Flugfélagið Play hefur bætt fjórum áfangastöðum í Evrópu við áætlun sína - Lissabon í Portúgal, Prag í Tékklandi, Bologna á Ítalíu og Stuttgart í Þýskalandi. Viðskipti innlent 10. nóvember 2021 10:08
Útspil Play í Litháen grafi undan íslenskri hátæknistétt Alþýðusambandið fordæmir flugfélagið Play fyrir að opna starfsstöð í Litháen og Félag tæknifólks segir það hræðilega þróun að íslensk fyrirtæki opni starfsstöðvar erlendis til að ráða til sín ódýrara vinnuafl í hátæknistörf. Það grafi undan þróun stéttarinnar á Íslandi. Viðskipti innlent 9. nóvember 2021 21:01
Eimskip hagnast um 5,6 milljarða við krefjandi aðstæður Hagnaður Eimskips nam 36,9 milljónum evra, eða um 5,6 milljörðum króna, á fyrstu níu mánuðum ársins samanborið við 3,7 milljónir evra fyrir sama tímabil í fyrra. Þar af hagnaðist félagið um 20,7 milljónir evra á þriðja ársfjórungi 2021, eða um 3,12 milljarða íslenskra króna. Viðskipti innlent 9. nóvember 2021 16:42
Kórónuveiran lét á sér kræla eftir fjárfestadag Play í Kaupmannahöfn Fjórir hafa greinst smitaðir af kórónuveirunni eftir fjáfestadag flugfélagsins Play sem var haldinn í Kaupmannahöfn á föstudag. Um hundrað manns tóku þátt í viðburðinum en aðeins maki eins þeirra smituðu hefur þurft að fara í sóttkví til þessa. Viðskipti innlent 9. nóvember 2021 14:46
Segir Play stórhættulegt launafólki Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands, segir Play vera „stórhættulegt íslensku launafólki“. Hún hvetur launafólk og fjárfesta að sniðganga flugfélagið. Innlent 9. nóvember 2021 13:15
„Tímamót og gleðidagur“ eftir tuttugu mánaða bann Tuttugu mánaða ferðabanni til Bandaríkjanna, sem komið var á vegna kórónuveirufaraldursins, var aflétt í nótt. Forstjóri Icelandair segir afléttinguna hafa gríðarlega þýðingu fyrir félagið, sem nú sé komið í gang að fullu eftir faraldur. Viðskipti innlent 8. nóvember 2021 13:16
Íslenska flugstéttafélaginu neitað um inngöngu í Norræna flutningamannasambandið Forsvarsmenn Norræna flutningamannasambandsins (NTF) hafa neitað Íslenska flugstéttafélaginu (ÍFF) um inngöngu í sambandið á nýjan leik. Í tilkynningu frá Alþýðusambandi Íslands segir að það sé vegna „augljósra galla“ á kjarasamningi félagins við umbjóðendur sína sem starfa hjá Play. Viðskipti innlent 8. nóvember 2021 10:30
Icelandair flýgur í verkefni á Suðurskautslandinu Loftleiðir Icelandic, dótturfélag Icelandair Group, mun á næstu mánuðum sinna verkefnum á Suðurskautslandinu og nýta til þess vélar, áhafnir og annað starfsfólk frá Icelandair. Viðskipti innlent 7. nóvember 2021 12:10
Jens snýr aftur í stað Jens hjá Icelandair Jens Bjarnason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri rekstrarsviðs hjá Icelandair Group og hefur þegar hafið störf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Viðskipti innlent 6. nóvember 2021 00:05
5,5 milljarða hagnaður Regins Fasteignafélagið Reginn hagnaðist um rétt tæpa 5,5 milljarða króna, fyrir söluhagnað, matsbreytingu og afskriftir, á fyrstu níu mánuðum ársins að því er fram kemur í tilkynningu sem fylgir ársfjórðungsuppgjöri félagsins. Þetta er 17% aukning frá sama tímabili í fyrra. Viðskipti innlent 4. nóvember 2021 18:44