Auglýsa eftir 150 flugliðum og 55 flugmönnum Flugfélagið Play hefur ákveðið að auglýsa eftir 150 flugliðum fyrir næsta vor, bæði í framtíðar- og sumarstörf, auk 55 flugmanna, bæði með og án reynslu. Viðskipti innlent 1. september 2022 09:53
Framkvæmdastjóri Krónunnar kaupir hlut í Festi fyrir tæplega 20 milljónir Framkvæmdastjóri Krónunnar, Ásta Sigríður Fjeldsted hefur keypt tæplega 20 milljóna króna hlut í smásölufyrirtækinu Festi en hún greiddi 208 krónur á hlut. Festi rekur verslanir Krónunnar. Viðskipti innlent 31. ágúst 2022 23:28
Reynir með yfir 80 prósenta hlut í Gavia Invest Reynir Finndal Grétarsson, stofnandi Creditinfo, er langsamlega umsvifamestur þeirra fjárfesta sem standa að baki félaginu Gavia Invest sem keypti meðal annars allan hlut fráfarandi forstjóra Sýnar og er í dag stærsti einstaki hluthafi fjölmiðla- og fjarskiptafélagsins. Innherji 31. ágúst 2022 17:06
Rúnar hættir í eigin viðskiptum hjá Arion banka Rúnar Friðriksson, sem hefur starfað í eigin viðskiptum Arion banka síðustu ár, er hættur hjá bankanum, samkvæmt heimildum Innherja. Hann sagði starfi sínu lausu í dag en það mun skýrast fljótlega hver verður fenginn til að taka við af honum innan bankans. Klinkið 31. ágúst 2022 15:02
Jón nýr í stjórn og Petrea verður stjórnarformaður Petrea Ingileif Guðmundsdóttir var í dag kjörin nýr stjórnarformaður Sýnar á hluthafafundi sem fór fram í höfuðstöðvum félagsins við Suðurlandsbraut í hádeginu í dag. Jón Skaftason kemur einn nýr inn í stjórn félagsins. Fjórir af fimm fyrri stjórnarmönnum sóttust eftir endurkjöri og hlutu allir kjör. Viðskipti innlent 31. ágúst 2022 11:51
Mesti rekstrarhagnaður í sögu fyrirtækisins Fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtækið Sýn hagnaðist um 273 milljónir króna á fyrri hluta ársins 2022. Til samanburðar nam tap félagsins 348 milljónir króna á sama tímabili í fyrra. Viðskipti innlent 31. ágúst 2022 08:50
Kostnaður Festar vegna kunnáttumanns minnkaði til muna Kostnaður Festar vegna starfa óháðs kunnáttumanns hefur dregist verulega saman frá því að smásölufélagið vakti athygli á kostnaðinum vorið 2021. Þetta kemur fram í svari Festar við fyrirspurn Innherja. Innherji 31. ágúst 2022 07:00
Íslensk félög fá meira vægi í vísitölum FTSE Íslensk fyrirtæki verða fleiri og fá meira vægi í vísitölum FTSE Russell en áður var búist við. Forstjóri Kauphallar Íslands segir að aukið vægi í vísitölunum geti þýtt meira innflæði af erlendu fjármagni inn á hlutabréfamarkaðinn. Innherji 30. ágúst 2022 08:04
Hagnaður Stefnis minnkar um 16 prósent í „mjög krefjandi“ fjárfestingarumhverfi Sjóðastýringarfyrirtækið Stefnir, sem er í eigu Arion banka, hagnaðist um 529 milljónir króna á fyrri hluta ársins og dróst hann saman tæplega 16 prósent frá sama tímabili í fyrra þegar félagið skilaði 629 milljónum í hagnað. Eignir í virkri stýringu félagsins lækkuðu um 14 milljarða frá áramótum og eru nú um 274 milljarðar. Innherji 29. ágúst 2022 18:00
Sjóðastýringarrisinn Capital minnkar við hlut sinn í ISB fyrir um 800 milljónir Sjóðir í stýringu bandaríska félagsins Captal Group, sem hefur verið einn stærsti eigandi Íslandsbanka allt frá því að hann var skráður á markað í júní í fyrra, hefur á síðustu dögum og vikum verið að minnka við hlut sinn í bankanum. Eignarhlutur sjóðastýringarrisans er nú kominn undir fimm prósent. Innherji 29. ágúst 2022 09:40
Össur kaupir hið bandaríska Naked Prosthetics Heilbrigðistæknifyrirtækið Össur hf. hefur gengið frá kaupum á Naked Prosthetics sem sérhæfir sig í stoðtækjum fyrir einstaklinga sem misst hafa framan af fingri eða hlut af hendi. Viðskipti innlent 29. ágúst 2022 08:03
Fjárfestar selt úr sjóðum fyrir um tólf milljarða eftir stríðsátökin í Úkraínu Fjárfestar héldu áfram að selja sig út úr íslenskum verðbréfasjóðum í júlí þrátt fyrir að hlutabréfamarkaðir hafi rétt verulega úr kútnum í liðnum mánuði. Stöðugt útflæði hefur verið úr hlutabréfasjóðum og blönduðum sjóðum eftir innrás Rússa í Úkraínu í lok febrúar en samanlagt nemur það yfir tólf milljörðum króna frá þeim tíma. Innherji 29. ágúst 2022 07:00
Hluthafar stundum „fullfljótir að taka eigið fé út úr félögum,“ segir forstjóri Brims Forstjóri og langsamlega stærsti eigandi Brims segist ekki vera fylgjandi því að nýta sterka fjárhagsstöðu sjávarútvegsrisans með því að ráðast í sérstakar aðgerðir til að greiða út umfram eigið fé félagsins til hluthafa. Skuldahlutfall Brims hefur sjaldan eða aldrei verið lægra en nú og handbært fé fyrirtækisins var um 20 milljarðar króna um mitt þetta ár. Innherji 28. ágúst 2022 17:31
Segir Reykjavíkurflugvöll gríðarlega mikilvægan varavöll millilandaflugs Yfirflugstjóri Icelandair segir gríðarlega mikilvægt að geta notað Reykjavíkurflugvöll sem varavöll millilandaflugs og kallar eftir betri innviðum á vellinum. Hann spari Icelandair hálfan milljarð króna á ári í eldsneytiskostnað og dragi verulega úr útblæstri koltvísýrings. Innlent 26. ágúst 2022 22:12
Sextán „fyrirmyndarfyrirtækjum“ veitt viðurkenning Sextán fyrirtæki hlutu í dag viðurkenningu fyrir góða stjórnarhætti og um leið nafnbótina „Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum“ við hátíðlega athöfn á Nauthóli. Viðskipti innlent 26. ágúst 2022 17:00
Tapparnir fastir við gosflöskurnar Plastflöskur þar sem skrúfutapparnir eru áfastir flöskuhálsinum munu hefja innreið sína á íslenskan markað á næstu mánuðum. Coca Cola á Íslandi stefnir að því að byrja að notast við nýju tappana í febrúar eða mars á næsta ári, en Ölgerðin stefnir á að gera slíkt hið sama á næsta ári. Neytendur 26. ágúst 2022 13:33
Fjárfestingar í hærri vöxtum og verðbólgu Á dögunum héldum við kollegi minn Björn Berg erindi um fjárfestingar á verðbólgutímum á fundi Ungra fjárfesta. Umhverfi til fjárfestinga hefur tekið heilmiklum breytingum að undanförnu vegna alls þess sem gengið hefur á, allt frá miklum vaxtahækkunum til mestu verðbólgu í áraraðir og stríðsátaka. Skoðun 26. ágúst 2022 08:01
Tímaspursmál hvenær erlendir sjóðir koma inn á skuldabréfamarkaðinn Hverfandi hlutdeild erlendra fjárfestingarsjóða á íslenskum skuldabréfamarkaði, sem hefur sjaldan eða aldrei verið minni í sögunni, er „óheppileg“ að mati seðlabankastjóra. Langtímavaxtamunur Íslands við Bandaríkin hefur lítið hækkað þrátt fyrir að ávöxtunarkrafa lengri ríkisbréfa hafi rokið upp síðustu misseri og sé í dag nálægt sex prósentum. Innherji 25. ágúst 2022 14:43
Ríkisendurskoðun vill ramma utan um óháðu kunnáttumennina Ríkisendurskoðun telur mikilvægt að settar verði skýrari reglur eða viðmið er snúa að eftirfylgni Samkeppniseftirlitsins með störfum óháðra kunnáttumanna. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í stjórnsýsluúttekt á eftirlitsstofnuninni. Innherji 25. ágúst 2022 12:22
„Svört verðbólguspá“ SÍ fór öfugt ofan í markaðinn Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hefur lækkað um rúmlega eitt prósent í dag og ávöxtunarkrafan á styttri óverðtryggð ríkisbréf hefur rokið upp eftir að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands birti ákvörðun sína um að hækka vexti um 75 punkta. Lítilleg hækkun á Marel, sem vegur þungt í vísitölunni, hefur vegið upp á móti töluverðum lækkunum hjá öðrum skráðum félögum. Innherji 24. ágúst 2022 13:18
Vetraráætlunin á pari við þá sem var fyrir faraldur Vetraráætlun Icelandair er nokkurn veginn á pari af því framboði sem var veturinn 2019 til 2020, fyrir heimsfaraldur. Mest er tíðni flugferða félagsins til Kaupmannahafnar, London, New York og Boston. Viðskipti innlent 24. ágúst 2022 10:16
Síminn gerir ekki ráð fyrir að frekari breytingum á söluverði Mílu Orri Hauksson, forstjóri Símans, segist gera ráð fyrir því að salan á Mílu klárist án þess að frekari breytingar verði á kaupsamningnum. Þetta kom fram í máli Orra á uppgjörsfundi Símans í morgun. Innherji 24. ágúst 2022 09:37
Útlánavöxtur í hæstu hæðum, sýnir að hagkerfið „þolir hærra vaxtastig“ Mikið útlánaskrið hjá bönkunum, einkum drifið áfram af nýjum lánum til fyrirtækja síðustu mánuði, er til marks um mikinn þrótt í hagkerfinu og ætti að treysta þá skoðun peningastefnunefndar að vextirnir þurfi að hækka enn meira, að mati hagfræðinga. Innherji 23. ágúst 2022 15:27
Kaldalón boðar frekari vöxt og eigendur Byko bætast í hluthafahópinn Fjárfestingareignir Kaldalóns jukust um 61 prósent á fyrri árshelmingi og hagnaður fasteignafélagsins, sá mesti frá upphafi, nam rúmlega 1.420 milljónum sem samsvarar 33 prósenta arðsemi á ársgrundvelli. Með samkomulagi um kaup á öllu hlutafé Hafnargarðs ehf., sem á fasteign að Köllunarklettsvegi 1 í Reykjavík sem er 12.300 fermetrar að stærð, mun fasteignafélag í eigu Norvik bætast í eigendahóp Kaldalóns og verða annar stærsti hluthafinn. Innherji 23. ágúst 2022 10:53
Munu einnig fljúga til Dulles-flugvallar Flugfélagið Play hyggst fljúga til Dulles-flugvallar í bandarísku höfuðborginni Washington DC frá og með í apríl á næsta ári. Viðskipti innlent 23. ágúst 2022 10:11
Bein útsending: Kynning á uppgjöri annars ársfjórðungs hjá Play Flugfélagið Play mun kynna uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung á opnum kynningarfundi sem hefst klukkan 8:30. Þar mun þau Birgir Jónsson forstjóri og Þóra Eggertsdóttir fjármálastjóri kynna uppgjörið og svara spurningum. Viðskipti innlent 23. ágúst 2022 07:59
Guðmundur í Brim borgar hlutfallslega minna í skatt en fólk með meðaltekjur Guðmundur Kristjánsson í Brim var með 3.622.772 kr. í launatekjur á mánuði í fyrra samkvæmt samantekt Stundarinnar, 72.523.173 kr. að meðaltali á mánuði í fjármagnstekjur og því með 76,1 m.kr. í mánaðartekjur. Eða um 913,7 m.kr. á árstekjur, álíka og 207 verkamenn á lágmarkslaunum. Skoðun 23. ágúst 2022 07:31
Rekstrartekjur fara ört vaxandi en tap nam tveimur milljörðum á öðrum ársfjórðungi Tap flugfélagsins Play nam 14,3 milljónum Bandaríkjadala, eða 2,02 milljörðum króna, á öðrum ársfjórðungi 2022. Viðskipti innlent 22. ágúst 2022 20:41
Ríflega átta þúsund hlaupa í Reykjavíkurmaraþoni Að minnsta kosti 8.200 munu hlaupa í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka sem fram fer á Menningarnótt á morgun. 88 milljónir hafa safnast í formi áheita og munu renna til hinna ýmsu góðgerðarfélaga. Innlent 19. ágúst 2022 12:00
Sjö bítast um fimm sæti í stjórn Sýnar Tilnefningarnefnd Sýnar vegna yfirvofandi stjórnarkjörs í félaginu metur það svo að þeir sjö frambjóðendur sem vilja komast í stjórn félagsins. séu allir hæfir til stjórnarsetu. Stjórnarformaður Sýnar sækist ekki eftir endurkjöri. Viðskipti innlent 19. ágúst 2022 10:52