Sungu fyrir farþega sem sátu fastir í vél Icelandair Hljómsveit sem var um borð í vél Icelandair á leið til Keflavíkur frá Toronto söng fyrir farþega sem voru fastir með þeim í vélinni. Flugstjórinn segir alla hafa gengið úr vélinni með bros á vör. Innlent 22. janúar 2023 21:46
Fötluð kona föst í flugvél með stífluðu klósetti Fötluð kona hefur setið föst í vél Icelandair í rúmlega tíu klukkutíma. Vinir hennar sem komust úr vélinni segja klósettin í vélinni vera stífluð og að enginn matur sé þar. Það virðist sem fáir á flugvellinum nái einhverju sambandi við Icelandair til að nálgast upplýsingar um stöðu mála. Innlent 22. janúar 2023 16:59
Flugvél hringsnerist og rakst í landgang Flugvél Icelandair snerist á staðnum á Keflavíkurflugvelli vegna hálku og vinds. Vinstri vængur vélarinnar rakst í landgang við flugstöðina. Vélin var blessunarlega tóm og engan sakaði. Innlent 22. janúar 2023 15:04
Flugi aflýst og fólk enn fast í flugvélum níu tímum eftir lendingu Icelandair hefur ákveðið að aflýsa öllu flugi sínu til Norður-Ameríku og Evrópu utan flugs til Ósló og Kaupmannahafnar sem seinkað verður fram á kvöld. Aftakaveður er á flugvellinum svo ekki er talið öruggt að fara með stigabíla að flugvélum sem eru úti á vellinum. Farþegar sex véla sitja því enn fastir. Innlent 22. janúar 2023 14:39
Hafa nú verið í vélinni í um tólf klukkustundir Farþegar í flugi Icelandair frá New York í nótt hafa nú varið um tólf klukkustundum um borð í flugvélinni, þar af sex á flugbraut í Keflavík. Einn farþeganna segir stemninguna í vélinni merkilega góða miðað við aðstæður. Innlent 22. janúar 2023 12:19
Alvotech leitar til innlendra fjárfesta eftir auknu hlutafé Rúmum einum mánuði eftir að Alvotech, verðmætasta félagið í Kauphöllinni, kláraði útgáfu á breytanlegum skuldabréfum fyrir jafnvirði um tíu milljarða króna vinnur líftæknilyfjafyrirtækið núna að því að sækja sér umtalsverða fjárhæð í aukið hlutafé til að treysta fjárhaginn. Félagið hóf markaðsþreifingar við innlenda fjárfesta fyrr í dag, samkvæmt heimildum Innherja, en stefnt er að því að klára útboðið fyrir opnun markaða á mánudag. Innherji 20. janúar 2023 16:44
Mest af loðnu fyrir norðan Rannsóknaskip Hafrannsóknarstofnunar, Árni Friðriksson, er nú við loðnuleit. Skipið lagði frá Hafnafirði í síðustu viku og hélt suður fyrir land. Fyrir um viku síðan lagði skipið lykkju á leið sína norðvestur af landinu og hélt síðan til vesturs. Forstjóri Síldarvinslunnar segir ástæðu til bjartýni. Innherji 20. janúar 2023 15:04
Tenging við rússneskan ólígarka tafði kaup Rapyd á Valitor Yfirtaka fjártæknifélagsins Rapyd á Valitor tafðist í meðförum fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands eftir að í ljós kom að einn stærsti eigandi Rapyd væri tengdur rússneskum ólígarka og samkvæmt heimildum Innherja var gerð krafa um að tengslin yrðu rofin. Einn af stofnendum Target Global lét af störfum undir lok síðasta árs. Innherji 20. janúar 2023 08:05
Mikilvægt að almenningur fái aðgang að raunatímagögnum líkt og stærri fjárfestar „Við teljum að það skipti almenna fjárfesta miklu máli, rétt eins og á við um stofnanafjárfesta, að vera með aðgang að réttum markaðsupplýsingum í rauntíma og geta þannig tekið ákvarðanir um kaup og sölu hlutabréfa á jafnræðisgrunni með öllum öðrum fjárfestum í Kauphöllinni,“ segir Hannes Árdal, framkvæmdastjóri og einn eigenda ACRO verðbréfa. Innherji 19. janúar 2023 10:53
Markaðurinn var „mun dramatískari“ en vaxtahækkanir og rekstur gaf tilefni til Fjöldi vaxtahækkana hjá erlendum seðlabönkum ásamt áframhaldandi hækkun vaxta Seðlabanka Íslands hafð neikvæð áhrif á verðmatsgengi margra félaga í Kauphöllinni á síðustu mánuðum ársins 2022, að sögn hlutabréfagreinenda. Eftir talsverðar verðlækkanir á hlutabréfamarkaði á síðustu misserum er hins vegar mikill meirihluti félaga talin vera vanmetin um þessar mundir, eða að meðaltali um rúmlega 16 prósent, en fasteignafélögin eru einkum sögð verulega undirverðlögð. Innherji 18. janúar 2023 11:57
Ráðin fjárfestatengill hjá Íslandsbanka Bjarney Anna Bjarnadóttir lögmaður hefur verið ráðinn fjárfestatengill hjá Íslandsbanka. Viðskipti innlent 18. janúar 2023 11:28
Telur Icelandair „verulega undirverðlagt“ og vill sjá umfangsmeira kaupréttarkerfi Bandarískt fjárfestingafélag, sem eru á meðal tíu stærsta hluthafa Icelandair, segir að miðað við núverandi verðlagningu á íslenska flugfélaginu á markaði sé það „verulega undirverðlagt“ borið saman við önnur alþjóðleg flugfélög. Það væri til bóta ef Icelandair myndi bæta úr upplýsingagjöf sinni til fjárfesta, meðal annars með tíðari afkomuspám, og þá ætti félagið að koma á fót umfangsmeira kaupréttarkerfi fyrir lykilstjórnendur þess. Innherji 17. janúar 2023 17:41
Klukkan játar sig sigraða eftir 86 ára þjónustu Síminn hefur ákveðið að leggja klukkunni, sjálfvirkri þjónustu þar sem landsmenn gátu fengið að vita hvað klukkan væri. Eftir 86 ára þjónustu hefur klukkan hætta að svara í símann og játað sig sigraða gagnvart tæknibyltingunni. Innlent 17. janúar 2023 11:58
„Íslendingar eru farnir að finna vel fyrir hækkandi verðlagi og háu vaxtastigi“ Kortavelta jókst um rúmlega eitt prósent að raunvirði í desember síðastliðinn miðað við sama mánuð 2021. Svo hægur hefur vöxtur kortaveltunnar ekki verið síðan í febrúar 2021. Ætla má að einkaneysla verði talsvert hægari á lokafjórðungi ársins 2022, eftir metvöxt á fyrstu níu mánuðunum. Viðskipti innlent 17. janúar 2023 10:27
Forstjóri Haga: Höfum aldrei séð álíka verðhækkanir frá birgjum áður Smásölurisinn Hagar, sem rekur meðal annars verslanir undir merkjum Bónus og Hagkaup ásamt Olís, segir að allt síðasta ár hafi verðhækkanir frá birgjum og framleiðendum bæði verið „nokkuð tíðar og ansi miklar.“ Forstjóri félagsins vill ekki reyna að vekja upp innstæðulausar væntingar um hvenær verð taki að lækka á ný en hefur „enga trú á að við séum að fara sjá tveggja ára tímabil af þessari stöðu.“ Innherji 17. janúar 2023 07:00
„Lággjaldaflugfélögin eru líklega að ýta eldri flugfélögum í átt að nýju viðskiptamódeli“ „Sumir ferðamenn kunna að spila þennan leik og hafa tíma og sveigjanleika. Í þeim tilfellum er mjög auðvelt að fá mjög gott verð,“ segir Birgir Jónsson forstjóri Play. Viðskipti innlent 15. janúar 2023 11:03
Vaxtaálag bankanna hríðféll um meira en hundrað punkta í vikunni Vaxtaálag á útgáfur íslensku bankanna í erlendri mynt lækkaði allverulega í þessari viku á eftirmarkaði, eða um meira en 100 punkta, samhliða kröftugum viðsnúningi á evrópskum skuldabréfamörkuðum. Með lækkandi vaxtaálagi gætu bankarnir átt kost á því að fjármagna sig á töluvert hagstæðari kjörum en þeir hafa gert á síðustu mánuðum. Innherji 15. janúar 2023 10:35
Öll vélin í hláturskasti þegar „Magnús Hlynur“ fór með öryggisávarp Yfirflugliði hjá flugfélaginu Play reynir að létta upp á stemninguna í flugferðum með því að fara með öryggisávarpið með eftirhermum af frægu fólki. Allir farþegar vélar á leið frá Tenerife til Keflavíkur voru í hláturskasti þegar hann hermdi eftir Magnúsi Hlyn fréttamanni er hann fór með ávarpið. Lífið 13. janúar 2023 15:48
Greiningardeildir bjartsýnni á verðbólguhorfur en Hagar Bæði Íslandsbanki og Landsbankinn spá því að vísitala neysluverðs hækki í janúar, en árstaktur verðbólgunnar lækki frá því í desember. Samkvæmt spá Íslandsbanka sem birtist nú í morgunsárið mun árstaktur verðbólgunnar lækka í 9,2 prósent þegar janúarmæling Hagstofunnar verður gerð opinber. Fyrr í vikunni spáði Landsbankinn því að árstaktur verðbólgunnar lækkaði í 9,4 prósent í janúar. Innherji 13. janúar 2023 10:56
Heiðar Þór frá Icelandair til BusTravel Iceland Heiðar Þór Aðalsteinsson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra rekstrarsviðs ferðaþjónustufyrirtækisins BusTravel Iceland. Viðskipti innlent 12. janúar 2023 10:33
Willy ráðinn yfir markaðsviðskiptum Kviku banka Willy Blumenstein hefur verið ráðinn í nýja stöðu forstöðumanns markaðsviðskipta hjá Kviku banka. Hann hefur undanfarin ellefu ár farið fyrir eigin viðskiptum bankans. Klinkið 11. janúar 2023 21:08
Flugstjórinn í rétti í máli Margrétar Icelandair var heimilt að neita Margréti Friðriksdóttur um greiðslu staðlaðra skaðabóta eftir að henni var vísað úr flugvél félagsins í september á síðasta ári. Þetta er niðurstaða Samgöngustofu sem telur að ekki sé tilefni til að draga í efa ákvörðun flugstjórans um að neita Margréti um far í því skyni að tryggja öryggi flugvélarinnar. Innlent 11. janúar 2023 15:42
Halda sínu striki þrátt fyrir bilun í Bandaríkjunum Bilun í NOTAM-flugumferðarkerfinu í Bandaríkjunum hefur ekki áhrif á ferðir Icelandair og Play að svo stöddu. Bandaríkjaflug flugfélaganna tveggja eru á áætlun að svo stöddu. Innlent 11. janúar 2023 14:01
Verður forstöðumaður lögfræðideildar Festi Sölvi Davíðsson lögmaður hefur verið ráðinn forstöðumaður lögfræðideildar Festi hf. Viðskipti innlent 11. janúar 2023 09:00
Enn á að slá ryki í augu fólks Komið hefur fram að fjármálaeftirlit Seðlabankans telur Íslandsbanka hafa brotið lög við framkvæmd útboðs Íslandsbanka síðasta vor. Skoðun 11. janúar 2023 07:31
Forstjóri Play spáir einu besta ári íslenskrar ferðaþjónustu Flugfélagið Play hyggst fljúga til hátt í fjörutíu áfangastaða í sumar og bætast þrettán nýir við. Þotum verður fjölgað úr sex í tíu og spáir forstjórinn því að þetta ár verði eitt það besta frá upphafi í íslenskri ferðaþjónustu. Viðskipti innlent 10. janúar 2023 21:57
Helgi látinn fara og markmiðið að gera VÍS að „vænlegri fjárfestingakosti“ Helgi Bjarnason, sem hefur stýrt VÍS frá árinu 2017, hefur verið sagt upp störfum en stjórn tryggingafélagsins telur að „nú sé rétti tíminn til að gera breytingar á hlutverki forstjóra“. Markmiðið sé að gera VÍS að „enn vænlegri fjárfestingakosti á markaði með skýrri sýn á vöxt, þróun og fjármagnsskipan.“ Innherji 10. janúar 2023 20:25
Frekar tilkynning en sáttameðferð Fjármálaeftirlitið telur Íslandsbanka mögulega hafa brotið lög þegar ríkið seldi 22,5% hlut sinn í bankanum, en bankinn sendi frá sér tilkynningu þess efnis að sáttaferli væri hafið milli bankans og FME. Stjórnarandstæðingur segir frekar um að ræða tilkynningu um væntanleg viðurlög heldur en sáttameðferð. Innlent 10. janúar 2023 13:04
Play hefur áætlunarflug til Toronto í júní Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á flugsætum til Toronto í Kanada en áætlunarflug þangað hefst þann 22. júní. Toronto er fimmti áfangastaður Play í Norður-Ameríku. Flogið verður alla daga vikunnar á Hamilton International flugvöll. Viðskipti innlent 10. janúar 2023 11:27
Íslandsbanki kunni að hafa brotið lög við útboðið Í frummati fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna athugunar á framkvæmd Íslandsbanka hf. á útboði Bankasýslu ríkisins á 22,5 prósent eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka segir að FME telji að bankinn kunni að hafa brotið gegn lögum og reglum sem um bankann gilda. Innlent 9. janúar 2023 18:57