Úkraínsk íþróttakona sýnir Rússum sannleikann á Instagram reikningi Þjóðverja Rússnesk stjórnvöld gera allt til þess að þegnar þeirra fái ekki að vita sannleikann um hvað er í gangi í innrás þeirra í Úkraínu. Sport 8. mars 2022 10:31
Úkraínskt flóttafólk gisti á heimili dómsmálaráðherra Úkraínsk kona og sonur hennar gistu í nótt á heimili Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra í Kópavogi. Fólkið er á meðal þeirra sem flúið hafa heimalandið eftir innrás Rússlands. Innlent 8. mars 2022 10:24
Roland sleppir ekki símanum og vonar að leikmennirnir hans lifi þetta af Roland Eradze, fyrrverandi landsliðsmarkvörður íslenska landsliðsins í handbolta, er kominn heim til Íslands en hann þurfti að skilja við leikmenn sína úti í Úkraínu. Eradze er aðstoðarþjálfari HC Motor sem kemur frá borginni Zaporizhzhia í Úkraínu. Handbolti 8. mars 2022 08:31
Þorir ekki á flótta með níræða ömmu sína Anastasiia Komlikova ákvað að halda kyrru fyrir í Úkraínu þegar sprengjuregnið hófst aðfararnótt fimmtudagsins 24. febrúar því hún taldi víst að amma hennar myndi ekki þola ferðalagið að landamærunum. Erlent 8. mars 2022 08:00
Þú getur hjálpað úkraínskum konum Það að hafa aðeins fáeinar mínútur til að ákveða hvort betra sé að flýja heimilið sitt vegna yfirvofandi innrásar í landið sem maður býr í eða vera um kyrrt eru aðstæður sem fæst okkar tengja við. Skoðun 8. mars 2022 08:00
Vaxtahækkanir áfram á dagskrá nema stríðið vindi upp á sig Óljóst er hvort efnahagslegar afleiðingar af stríðinu í Úkraínu, einkum miklar hækkanir á hrávöruverði, muni hægja á vaxtahækkunarferli Seðlabanka Íslands þegar upp er staðið. Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka, bendir á að verðbólguhorfur hafi versnað umtalsvert og enn sé útlit fyrir að hagvöxtur verði þokkalegur á þessu ári. Innherji 8. mars 2022 07:11
Rússar hóta að skrúfa fyrir gas til Evrópu Leiðtogar Evrópuríkjanna munu funda í Frakklandi á fimmtudag til að ræða leiðir til að gera álfuna óháða olíu og gasi frá Rússlandi. Þarlendir ráðamenn hafa brugðist við hugmyndum um verslunarbann á olíu með því að hóta að hætta að selja gas til Evrópu. Erlent 8. mars 2022 06:21
Rússneskur almenningur finnur fyrir refsiaðgerðum Refsiaðgerðir gegn Rússum eru farnar að hafa áhrif á almenna borgara þar í landi. Sendiherra Íslands í Rússlandi segir fólk finna fyrir því að verðlag hafi hækkað á skömmum tíma og að vöruskortur sé byrjaður að myndast. Innlent 7. mars 2022 23:02
„Ég sofnaði á milli hríða og dreymdi að ég væri í IKEA“ „Þann 24. febrúar síðastliðinn, fyrir ellefu dögum, fæddi ég litla konu. Ég var í þrjá sólarhringa að komast upp í tíu í útvíkkun, þar af einn sólarhring uppi á spítala. Þegar ég var komin upp í tíu bað ég um mænudeifingu, sogklukku, tangir, mig langar í bjöllukeisara sagði ég. Nei, það langar þig ekki sagði ljósmóðirin.“ Menning 7. mars 2022 22:14
Segir Ísland hvorki varið fyrir innrás né hryðjuverkum Prófessor í stjórnmálafræði segir að Íslendingar verði nú að taka umræðuna um hvort sérstakar varnarsveitir hafi viðveru á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli, í ljósi stríðs í Evrópu. Ísland sé hvorki varið fyrir allsherjarinnrás né sértækum hryðjuverkaárásum. Innlent 7. mars 2022 21:35
FIFA opnar sérstakan félagaskiptaglugga fyrir leikmenn í Rússlandi og Úkraínu Vegna innrásar Rússa í Úkraínu mun Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, opna sérstakan félagaskiptaglugga fyrir leikmenn sem spila í Rússlandi og Úkraínu. Það sama verður gert fyrir þjálfara og aðra sem starfa hjá félögunum. Fótbolti 7. mars 2022 21:01
Olíuverð komið langt yfir afkomuspá Verð á þotueldsneyti er komið yfir það sem forsvarsmenn Icelandair gerðu ráð fyrir í afkomuspá. Þá verður félagið varnarlaust gagnvart sveiflum á eldsneytisverði þann 1. júlí. Viðskipti innlent 7. mars 2022 20:59
Vaktin: Telja að Rússar muni brátt reyna að stöðva vopnasendingar til Úkraínu „Ef hann verður ekki stöðvaður í Úkraínu mun hann ekki láta staðar numið þar,“ sagði Gitanas Nauseda, forseti Litháen, við utanríkisráðherra Bandaríkjanna þegar þeir funduðu í dag um innrás Rússa í Úkraínu. „Árás á einn er árás á alla,“ var svar Antony Blinken. Erlent 7. mars 2022 19:50
Vill að úkraínskt flóttafólk fái atvinnuleyfi við komuna til landsins Þingmaður Pírata segir nauðsynlegt að flóttafólk frá Úkraínu fái atvinnuleyfi við komuna til landsins. Hann segir stjórnvöld vísa fólki leið sem feli í sér minni réttindi en það eigi rétt á. Búist er við að tvö til fimm þúsund úkraínskir flóttamenn muni leita hingað til lands á næstunni. Innlent 7. mars 2022 19:33
Safna fyrir fatlað fólk í Úkraínu Þroskahjálp, Átak - félag fólks með þroskahömlun, TABÚ og Öryrkjabandalag Íslands hafa sett af stað söfnun fyrir fatlað fólk í Úkraínu. Þau segja fatlað fólk sérstaklega berskjaldað í stríðsátökum og stöðu þess í Úkraínu grafalvarlega. Innlent 7. mars 2022 17:58
Ragnar Kjartansson og Kári Stefánsson á friðartónleikum Boðað hefur verið til friðartónleika í Hallgrímskirkju klukkan 18 á morgun vegna innrásar Rússlands í Úkraínu. Margir af fremstu listamönnum þjóðarinnar koma fram. Tónleikarnir verða í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi. Lífið 7. mars 2022 16:19
Heiðraði óttaleysi og mótstöðu Úkraínu á sýningu Balenciaga „Stríðið í Úkraínu hefur vakið upp gamlan sársauka frá fyrri áföllum sem ég hef gengið um með mér síðan 1993 þegar hið sama gerðist í heimalandi mínu og ég gerðist hinn eilífi hælisleitandi. Hinn eilífi, vegna þess að þetta býr inni í þér,“ skrifaði yfirhönnuður Balenciaga á hvert einasta sæti gesta á haust og vetrar sýningu tískurisans í París á dögunum. Tíska og hönnun 7. mars 2022 15:13
Afleiðingar stríðs á foreldralaus börn Stríðið í Úkraínu hefur orðið til þess að mannréttindi milljóna úkraínskra barna eru virt að vettugi. SOS Barnaþorpin hafa verið til staðar fyrir munaðarlaus og yfirgefin börn í Úkraínu síðan 2003 og það sem við sjáum á vettvangi nú er skelfilegt. Skoðun 7. mars 2022 14:01
Skattaskjól í boði rússneskra stjórnvalda: Refsiaðgerðir sniðgengnar Í eftirfarandi umfjöllun verður ekki fjallað um að með samkomulaginu kennt við Búdapest árið 1994 viðurkenna Rússar að Úkraína sé sjálfstætt fullvalda ríki með sín eigin landamæri. Innherji 7. mars 2022 13:39
Bókstafurinn sem táknar stuðning við innrás Rússa Tákn sem birst hefur á myndum af stríðsvélum Rússa í Úkraínu og virðist upphaflega átt að þjóna þeim tilgangi að aðgreina stríðsgögnin hefur öðlast nýtt líf. Bókstafurinn Z er orðið tákn þeirra sem styðja Rússa og innrásina í Úkraínu. Erlent 7. mars 2022 13:30
Fyrrverandi leikmaður Arsenal genginn í úkraínska herinn Ekkert vantar upp á ættjarðarástina hjá úkraínsku íþróttafólki sem hefur gengið til liðs við herinn þar í landi til að reyna að halda aftur af Rússum sem réðust inn í Úkraínu fyrir tólf dögum. Fótbolti 7. mars 2022 13:01
Ísland á lista Rússa yfir óvinveittar þjóðir Ísland má finna á nýsamþykktum lista rússneskra stjórnvalda yfir ríki sem hafa beitt rússneska ríkinu, fyrirtækjum eða borgurum óvinveittum þvingunum. Innlent 7. mars 2022 12:22
Shevchenko beygði af: „Get ekki horft á það sem er að gerast í landinu mínu án þess að gráta“ Andriy Shevchenko, frægasti fótboltamaður Úkraínu, hefur miklar áhyggjur af fjölskyldumeðlimum sínum sem eru enn í heimalandinu. Fótbolti 7. mars 2022 12:01
Tvítugur rússneskur fimleikamaður á palli með stríðsáróður á brjóstkassanum Rússneskir og hvít-rússneskir fimleikamenn mega frá og með deginum í dag ekki keppa lengur á mótum á vegum Alþjóðafimleikasambandsins. Þetta kemur auðvitað til vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Sport 7. mars 2022 11:30
Gylfi Þór leiðir teymið sem aðstoðar flóttafólk frá Úkraínu Gylfi Þór Þorsteinsson, forstöðumaður farsóttarhúsanna, hefur verið ráðinn til þess að stýra því stóra verkefni að skipuleggja komu flóttafólks frá Úkraínu til landsins. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Innlent 7. mars 2022 11:20
Flugfélögin leiða lækkanir á eldrauðum markaði Það hefur verið rautt að litast um í kauphöllinni í morgun. Flugfélögin tvö, Icelandair og Play hafa lækkað mest. Viðskipti innlent 7. mars 2022 10:21
Íslensk öryggismál ekki á neinum tímamótum vegna Úkraínustríðsins Vegna Úkraínustríðsins hafa dúkkað upp skoðanir um að þess vegna þurfi að hyggja að nýju að hernaðarlegu öryggi Íslands. Umræða um öryggismál er af hinu góða en þarf að byggja á réttum forsendum. Þá kann hún að valda fólki óþörfu áhyggjum með tali um ógn við Ísland í tengslum við innrásina í Úkraínu og harmleikinn þar. Umræðan 7. mars 2022 09:57
Rússar sem vilja frið og litlir karlar í Kreml Undanfarna daga hefur mér orðið hugsað til samtals sem ég átti á bekk í sólríkum garði í litlu þorpi skammt frá Moskvu í ágúst 1991, nokkrum mánuðum áður en Sovétríkin liðu undir lok. Skoðun 7. mars 2022 09:30
Sergej Bubka: Úkraína mun vinna Fyrrum heimsmeistari og heimsmethafi í stangarstökki styður þjóð sína á samfélagsmiðlum og er sannfærður um að Úkraína standi uppi sem sigurvegari en verði ekki „þurrkuð“ út af Rússum. Sport 7. mars 2022 09:30
Innrásin muni hafa hamfarakennd áhrif á framboð og verð matvæla Innrás Rússlands í Úkraínu mun hafa hamfarakennd áhrif á framboð og verð matvæla á heimsvísu að mati framkvæmdastjóra eins stærsta áburðarframleiðanda heimsins. Viðskipti erlent 7. mars 2022 09:00