Allir í Nató, en hver vill borga? Það liggur fyrir samþykkt meðal aðildarríkja Atlandshafsbandalagsins um að öll aðildarríkin verði búin árið 2024 að hækka útgjöld sín til hermála upp í 2 prósent af landsframleiðslu. Það gera um 71,3 milljarðar króna á ári fyrir Íslendinga miðað við landsframleiðslu þessa árs. Skoðun 21. mars 2022 07:32
Hefur ekki heyrt í foreldrunum í sextán daga Úkraínsk kona sem búsett er hér á landi segir ástandið í Maríupól verra en Vesturlandabúar geri sér grein fyrir. Íbúðin hennar var sprengd upp í vikunni og hún hefur ekki heyrt í foreldrum sínum í sextán daga. Innlent 21. mars 2022 07:01
Stríð sem breytir heimsmyndinni Stríðið í Úkraínu hefur breytt öllu. Hlutverk stjórnmálanna núna er að bregðast við breyttri heimsmynd af ábyrgð. Það þarf að ræða og mynda skilning á hvaða áhrif hin breytta staða hefur á Evrópu og á Ísland. Út frá því tökum við svo næstu skref. Skoðun 21. mars 2022 07:01
Vaktin: Segjast hafa sannanir fyrir stríðsglæpum Rússa „Það er ekki til umræðu að gefast upp, að leggja niður vopn. Við höfum þegar greint Rússum frá þessu. Í stað þess að eyða tíma í átta blaðsíðna bréfasendingar, opnið bara leið úr borginni.“ Erlent 21. mars 2022 06:33
Hóta að draga þá sem ekki gefast upp í Maríupól fyrir herdómstól Varnarmálaráðuneyti Rússlands sendi í kvöld út yfirlýsingu þar sem verjendum Maríupól var gert að leggja niður vopn og yfirgefa borgina. Þeir sem geri það ekki verði dregnir fyrir herdómstól í Rússlandi. Erlent 20. mars 2022 23:53
„Ég vona að enginn muni nokkurn tímann sjá það sem ég sá“ Aðalræðismaður Grikklands í Úkraínu varð síðasti erindreki á vegum landa Evrópusambandsins til þess að yfirgefa Maríupól, úkraínsku borgina sem Rússaher situr nú um og hefur komið hvað verst út úr átökunum í landinu. Hann segist vona að enginn verði vitni að jafn miklum hryllingi og hann fékk þar að kynnast. Erlent 20. mars 2022 23:31
Er Roman Abramovich portúgalskur gyðingur? Portúgölsk stjórnvöld rannsaka hvernig á því stendur að rússneska auðjöfrinum Roman Abramovich var veittur portúgalskur ríkisborgararéttur í fyrra. Rabbíni gyðinga í Porto hefur verið handtekinn vegna málsins. Erlent 20. mars 2022 16:31
Vaktin: Krefjast uppgjafar Maríupól Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir umsátur Rússa um Maríupól og árásir þeirra á borgina „hrylling sem verður minnst um ókomnar aldir“. Rússar hafa lagt til flóttaleiðir frá borginni á morgun. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í Úkraínu í allan dag. Erlent 20. mars 2022 16:30
Ungt fólk streymir frá Rússlandi Ungt fólk streymir frá Rússlandi í tuga þúsunda tali. Stór hluti þessa hóps er menntaður og hefur unnið í tæknigeira Rússlands. Mörg þeirra hafa farið til Armeníu. Erlent 20. mars 2022 15:44
Segja Úkraínumenn hafa stöðvað Rússa Úkraínumenn eru sagðir hafa stöðvað sókn Rússa og er útlit fyrir langvarandi átök sem einkennast af þrátefli með tilheyrandi mannfalli og eyðileggingu. Erlent 20. mars 2022 12:03
Reykjavík hefur opinn faðm Hér á Íslandi getum við boðið upp á frið, öryggi og samfélag frjálslyndra gilda sem býður fólk velkomið. Sveitarfélög á Íslandi, með Reykjavík í broddi fylkingar, eiga að opna faðminn fyrir flóttafólki sem hingað kemur. Skoðun 20. mars 2022 10:00
Segja hundruð þúsunda föst í Mariupol þar sem lík hrannist upp á götum úti Björgunaraðgerðir í úkraínsku borginni Mariupol, í suðurhluta landsins, hafa gengið afar erfiðlega vegna stöðugra átaka víðsvegar um borgina. Talið er að um 300.000 manns séu föst í borginni, sem Rússar sitja um. Erlent 19. mars 2022 23:31
Engin ákvörðun tekin um stöðu hvítrússneska ólígarksins Ekki hefur verið tekin ákvörðun um það hvort hvítrússneski ólígarkinn verði áfram á skrá yfir kjörræðismenn Íslands. Þetta segir utanríkisráðherra sem eftir helgi verður boðaður á fund með stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis vegna málsins. Innlent 19. mars 2022 21:30
Sjálfboðaliðar hafi lyft grettistaki við mótttöku flóttamanna Hátt í þrjúhundruð sjálfboðaliðar halda utan um mötuneyti, hópferðabíla, barnapössun og fleira fyrir flóttafólk frá Úkraínu. Talsmaður hópsins segir ótrúlegt að sjá kraftinn í hópnum meðan Útlendingastofnun dragi lappirnar varðandi ýmsa grunnþjónustu. Innlent 19. mars 2022 19:01
Pútín vill styrkja stöðu sína fyrir fund með Selenskí Vladimír Pútín, forseti Rússlands, er ekki tilbúinn til viðræðna við Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu. Hann vill líklega styrkja stöðu sína fyrir mögulegar viðræður. Erlent 19. mars 2022 17:01
Vaktin: Pútín sagður búinn að sætta sig við að geta ekki velt Selenskí úr sessi Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur kallað eftir raunverulegum og sanngjörnum friðarviðræðum. Úkraínumenn hafa ítrekað að forgangskröfur þeirra séu varanlegt vopnahlé og brotthvarf Rússa frá Úkraínu. Erlent 19. mars 2022 16:20
„Vonandi ber rússnesku þjóðinni gæfa til að losa sig við illmennin í Kreml“ Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, sagðist í yfirlitsræðu hans á flokksþingi Framsóknarþingsins í dag, vona að rússnesku þjóðinni bæri sú gæfa að losa sig við illmennin í Kreml, líkt og hann orðaði það, sem stjórnuðu Rússlandi. Innlent 19. mars 2022 13:46
Segir Pútín óttast frelsi og lýðræði í Úkraínu Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, segir Vladimír Pútín, forseta Rússlands, hafa ráðist inn í Úkraínu, því frjáls og lýðræðisleg Úkraína væri ógn gagnvart alræðisstjórn hans í Rússlandi. Erlent 19. mars 2022 13:41
Segir utanríkisstefnu Íslands notaða til að skýla auðkýfingum frá efnahagsþvingunum Þingmaður Pírata segir að svo virðist sem utanríkisstefna Íslands hafi verið notuð til þess að skýla hvítrússneskum auðkýfingum frá mikilvægum efnahagsþvingunum. Þingmaðurinn hefur óskað eftir opnum fundi með utanríkisráðherra í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis. Innlent 19. mars 2022 13:12
Betur má ef duga skal – Um nám barna með annað upprunamál en íslensku Síðustu vikur höfum við orðið vör við það hversu heimsmyndin er hverful. Í einu vetfangi hefur þjóð í Evrópu mátt þola innrás nágranna og afleiðingarnar þær að milljónir eru á flótta frá heimilum sínum, stór hluti þess hóps börn. Skoðun 19. mars 2022 11:00
Skutu ofurhljóðfrárri eldflaug í fyrsta sinn í átökum Rússar segjast hafa skotið ofurhljóðfrárri eldflaug á vopnageymslu í vesturhluta Úkraínu í nótt. Þetta er í fyrsta sinn sem Rússar segjast hafa notað slíkt vopn í átökum en eldflaugar þessar eru hannaðar til að ferðast á margföldum hljóðhraða og komast hjá eldflaugavörnum. Erlent 19. mars 2022 09:29
Middlesbrough mun gefa allan ágóðan af bikarleiknum til Úkraínu Allur söluágóði af heimaleik enska B-deildarfélagsins Middlesbrough gegn Chelsea í átta liða úrslitum FA-bikarsins verður gefinn til mannúðaraðstoðar í Úkraínu. Enski boltinn 19. mars 2022 08:01
„Það er kominn tími til að hittast, tími til að tala“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kallar eftir raunverulegum og sanngjörnum friðarviðræðum, án tafar. „Það er kominn tími til að hittast, tími til að tala. Það er kominn tími til að endurheimta landyfirráð Úkraínu og réttlæti henni til handa.“ Erlent 19. mars 2022 07:07
Einkaþota óligarka á meðal hátt í hundrað kyrrsettra véla Viðskiptaráðuneyti Bandaríkjanna hefur kyrrsett hátt í hundrað flugvélar með tengsl við Rússland. Þeirra á meðal er flugvél í eigu óligarkans og milljarðamæringsins Rómans Abramóvítsj. Erlent 18. mars 2022 23:31
Segir nauðsynlegt að tala ekki aðeins um flóttafólk, heldur líka við það Biskup Íslands segir kirkjuna taka flóttafólki frá Úkraínu fagnandi. Hún segir nauðsynlegt að tala ekki aðeins um flóttafólk, heldur við það. Innlent 18. mars 2022 22:16
Gerir undanþágu svo flóttafólk geti tekið gæludýr sín með til Íslands Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur ákveðið að veita undanþágu frá gildandi banni við innflutningi gæludýra frá Úkraínu að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Innlent 18. mars 2022 21:45
Hafa mætt miklum hlýhug hér á landi eftir langt ferðalag frá Úkraínu Mæðgur sem flúðu stríðsátökin segjast hafa mætt miklum hlýhug hér á landi. Móðirin vonast til að dóttir sín komist sem fyrst í skóla og hún í vinnu en hún fari aftur heim um leið og stríðinu lýkur. Innlent 18. mars 2022 21:01
Börnin og mæðurnar sem urðu eftir í Póllandi nú á leið til Íslands Þær úkraínsku konur og börn þeirra sem voru skilin eftir á flugvellinum í Varsjá, höfuðborg Póllands, í fyrrakvöld eru nú komin upp í flugvél á leið til landsins. Innlent 18. mars 2022 19:52
Vísbendingar um að Rússar ætli að beita efnavopnum í Úkraínu Margt bendir til að Rússar séu byrjaðir að örvænta í innrás sinni í Úkraínu og að þeir séu að undirbúa notkun efnavopna með ásökunum um að slík vopn sé að finna í Úkraínu. Fyrrverandi utanríkisráðherra Rússlands segir Úkraínumenn nú þegar í gagnsókn á sumum stöðum og Putin eigi ekki möguleika á að vinna stríðið. Erlent 18. mars 2022 19:20
Vaktin: Sprengingar heyrast frá flugvellinum í Lviv Joe Biden Bandaríkjaforseti og Xi Jinping, forseti Kína, munu ræðast við í síma í dag. Biden er sagður munu vara Xi við því að aðstoða Rússa efnahags- og hernaðarlega og á sama tíma reyna að fá skýrari mynd af afstöðu og fyrirætlunum Kína. Erlent 18. mars 2022 16:45