Úkraína ætlar að útvega Evrópu rafmagn Almenningur í Þýskalandi er byrjaður að undirbúa sig undir kaldan vetur vegna þess að Rússar hafa meira og minna skrúfað fyrir gasflutninga til landsins. Í Köln er hiti lækkaður í mörgum fjölbýlishúsum yfir nóttina til að spara gasið. Erlent 28. júlí 2022 21:47
Íbúar fari í kaldar sturtur til þess að spara gas Stjórnvöld í þýsku borginni Hannover hafa skrúfað fyrir heitt vatn í byggingum sem opnar eru almenningi til þess að spara gas en Þjóðverjar hafa kvartað yfir skertu flæði á gasi frá Rússlandi. Erlent 28. júlí 2022 18:43
Fimm drepnir og 25 særðir í árás Rússa á Kropyvnytskyi Fimm voru drepnir og 25 særðust í loftárás Rússa á Kropyvnytskyi fyrr í dag. Rússar halda áfram loftárásum sínum í suðri og austri Úkraínu en eru auk þess farnir að beina sjónum sínum aftur að Kænugarði í fyrsta skiptið í margar vikur. Erlent 28. júlí 2022 15:58
Bjóða Rússum skipti á körfuboltakonunni og Kaupmanni dauðans Joe Biden Bandaríkjaforseti ætlar að gera allt sem í sínu valdi stendur til þess að fá bandarísku körfuboltakonuna Brittney Griner heim og nú berast fréttir um að bandarísk yfirvöld hafi nú gert Rússum tilboð. Körfubolti 28. júlí 2022 07:30
Segir eldflaugum hafa verið skotið frá Hvíta-Rússlandi Héraðsstjórinn í Chernhiv, Viacheslav Chaus, segir eldflaugum hafa verið skotið á svæðið í morgun. Hann segir flaugarnar hafa komið frá Hvíta-Rússlandi. Erlent 28. júlí 2022 06:54
Gasverð í Evrópu hefur hækkað um tvö prósent Gasverð hefur hækkað á mörkuðum í dag eftir að Rússar skertu enn frekar gasflutninga sína til Þýskalands og annarra mið-Evrópuríkja. Erlent 27. júlí 2022 22:29
Úkraínuforseti segir 40 þúsund Rússa hafa fallið í innrásinni Úkraínuforseti segir að fjörutíu þúsund Rússneskir hermenn hafi fallið í innrásinni í Úkraínu. Her landsins hefur vaxið ásmegin eftir að hann fékk langdræg og nákvæm eldflaugakerfi frá Bandaríkjunum og Evrópuríkjum. Vonast er til að kornútflutningur geti hafist innan fárra daga. Erlent 27. júlí 2022 22:00
Skipafélög fara sér hægt við að hefja kornútflutning frá Úkraínu Skipafélög eru varkár varðandi útflutning á korni frá Úkraínu sem enn hefur ekki hafist þrátt fyrir samkomulag Rússa og Úkraínumanna fyrir milligöngu Tyrkja og Sameinuðu þjóðanna í síðustu viku. Rússar hafa í tvígang gert loftárásir á Odessa eftir að samkomulagið var undirritað og siglingaleiðir eru krökkar af tundurduflum. Erlent 27. júlí 2022 15:22
Ekki víst að Evrópa muni eiga nóg gas fyrir veturinn Á mánudag tilkynnti rússneska fyrirtækið Gazprom að flæði á gasi í gegnum Nord Stream 1 leiðsluna myndi skerðast niður í 20 prósent. Að sögn bandarískra embættismanna hefur gas minnkun Rússa verið þeirra „versti ótti.“ Umræður vegna aukinnar kjarnorkunotkunar séu á næsta leyti og ekki sé víst að Evrópa muni eiga nóg gas fyrir veturinn. Erlent 26. júlí 2022 23:41
Átök Rússlands og vesturveldanna ná út í geim Rússar hyggjast slíta sig frá samstarfinu um Alþjóðlegu geimstöðina árið 2024 og byggja upp sína eigin geimstöð. Yuri Borisov, nýr yfirmaður rússnesku geimferðastofnunarinnar Roskosmos, segir Rússar ætla að efna allar skuldbindingar sínar fram að því en þeir hafa átt í samstarfi við Bandaríkin og fleiri ríki um rekstur Alþjóðlegu geimstöðvarinnar frá árinu 1998. Erlent 26. júlí 2022 16:08
Sprengjum rigndi í Odesa, Kharkiv og Mykolaiv í nótt Rússar hafa látið sprengjum rigna víða í Úkraínu í nótt. Fregnir hafa borist af árásum á Kharkiv, Mykolaiv og hafnarborgina Odesa. Árásir á Odessa hafa sérstaklega verið gagnrýndar en ekki liðu nema nokkrir klukkutímar frá samkomulagi um kornútflutning frá Úkraínu uns sprengjum var skotið á borgina, þvert á hið nýgerða samkomulag. Erlent 26. júlí 2022 07:38
Rússar skerða gasútflutninginn á ný Volodómír Zelenskí Úkraínuforseti sakar Rússa um að standa í Gas-stríði við Evrópu og að endurteknar lokanir á Nordstream leiðslunni séu hugsaðar til að hræða Evrópubúa og draga úr andstöðunni við stríðið í Úkraínu. Innlent 26. júlí 2022 07:09
Lavrov ferðast um Afríku til að styrkja tengslin Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússlands flaug til Kongó-Brazzaville í morgun en hann er á ferðalagi um álfuna í von um að styrkja tengslin við önnur ríki en í Evrópu. Afríkuríki hafa ekki tekið þátt í viðskiptaþvingunum gegn Rússum vegna Úkraínustríðsins og vonast Rússar til að góðvilji sé til staðar til að styrkja tengslin enn frekar. Erlent 25. júlí 2022 13:58
Stjórnarandstæðingur handtekinn í Rússlandi Rússneski stjórnmálamaðurinn Leonid Gozman var í dag handtekinn af lögregluþjónum í Moskvu. Gozman er leiðtogi stjórmálaflokksins Bandalag hægriafla. Erlent 25. júlí 2022 12:45
Eurovision verður í Bretlandi á næsta ári Söngvakeppni evrópska sjónvarpsstöðva, Eurovision, verður haldin í Bretlandi á næsta ári. Úkraína sigraði keppnina í ár og ætti því samkvæmt reglunum að halda keppnina á næsti ári en ekki er hægt að tryggja öryggi allra gesta þar vegna innrásar Rússa inn í landið. Því var ákveðið að keppnin færi fram í öðru landi. Lífið 25. júlí 2022 11:29
Vesturlönd sníði reglur sínar eftir hentugleika Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, þvertekur fyrir það að Rússar hafi valdið hungursneyð um allan heim. Hann segir Vesturlönd vera að reyna að sýna fram á að þau séu sterkari en aðrar þjóðir. Erlent 24. júlí 2022 23:04
Dularfull dauðsföll rússneskra auðmanna Tæpur tugur rússneskra milljarðamæringa hefur látist við grunsamlegar aðstæður frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu. Í sumum tilfellum hefur öll fjölskylda milljarðamæringanna verið myrt. Erlent 24. júlí 2022 14:31
Úkraínski herinn sækir fram í hernumdu héraði Úkraínuforseti segir hersveitum sínum hafa orðið ágengt í Kherson héraði „skref fyrir skref“. Erlent 24. júlí 2022 12:20
Árásirnar sýni að Rússum sé ekki treystandi Selenskí Úkraínuforseti sakar Rússa um villimennsku í kjölfar árása á hafnir Odessa, sem gerðar voru örfáum klukkutímum eftir undirritun samnings um útflutning á korni frá landinu. Erlent 24. júlí 2022 07:50
Sprengjum varpað á höfnina klukkutímum eftir undirritun samningsins Rússar vörpuðu sprengjum á höfn úkraínsku borgarinnar Odessa í dag, aðeins degi eftir að hafa skrifað undir samning við Úkraínumenn um að hleypa kornútflutningi aftur af stað þaðan. Erlent 23. júlí 2022 12:42
Gagnsókn í Kherson og vopnahlé kemur ekki til greina Minnst þrjú eru látin eftir að þrettán flugskeytum var skotið á herstöð úkraínska hersins og lestarstöðina í Kirovohrad í morgun. Úkraínuforseti segir vopnahlé ekki koma til greina og enn er hart barist um borgina Kherson. Erlent 23. júlí 2022 09:32
Verð á korni lækkar í það sem var fyrir stríð Eftir að samningar náðust um útflutning á Úkraínsku korni hefur verð á korni í heiminum lækkað snarlega og hefur ekki verið jafn lágt síðan fyrir innrás Rússa í Úkraínu. Erlent 23. júlí 2022 08:53
Segir Rússa ræna börnum frá Úkraínu Toria Nuland, starfsmaður utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna, segir Rússa ræna börnum frá Úkraínu og láti rússneskar fjölskyldur ættleiða þau. Hún segir Rússa hafa alls rænt allt að þúsund börnum. Erlent 22. júlí 2022 23:35
Guterres segir samninginn það mikilvægasta sem hann hafi gert hjá SÞ Fulltrúar Úkraínu, Rússlands, Tyrklands og Sameinuðu þjóðanna (SÞ) hafa undirritað samning sem mun greiða fyrir langþráðum útflutningi á korni frá Úkraínu. Samningurinn gerir Úkraínu kleift að flytja út um 20 milljón tonn af korni sem hafa lengi verið föst í höfnum landsins. Erlent 22. júlí 2022 15:22
Skrifa undir samning um útflutning korns frá Úkraínu Rússland, Úkraína, Tyrkland og Sameinuðu þjóðirnar munu í dag skrifa undir samning í Istanbúl sem gerir Úkraínu kleift að halda áfram kornútflutningi sínum. Rússar hafa haldið skipum Úkraínu föstum í höfnum Svartahafs undanfarna mánuði sem hefur ógnað fæðuöryggi um allan heim. Erlent 22. júlí 2022 10:44
Rússar sakaðir um stórtækan stuld á stáli Forstjóri stærstu stálframleiðslu Úkraínu fullyrðir að Rússar séu að stela stáli frá verksmiðjum og af hafnarsvæðum í Úkraínu. Erlent 22. júlí 2022 08:07
Senda dróna, fallbyssur og eldflaugar til Úkraínu Ben Wallace, varnarmálaráðherra Bretlands, opinberaði í morgun að Bretar ætli að senda mikið magn vopna til Úkraínu á komandi vikum. Þar á meðal skotfæri, dróna, fallbyssur og eldflaugar til að granda skriðdrekum. Erlent 21. júlí 2022 13:47
Rússar skrúfa frá gasinu Rússar hófu gasútflutning með þeirra stærstu gasleiðslu, Nordstream, á ný í morgun eftir tíu daga hlé. Óttast var að Rússar myndu skrúfa fyrir gasstreymið fyrir fullt og allt en Þjóðverjar reiða sig að miklu leyti á gasleiðsluna. Erlent 21. júlí 2022 10:06
Ekkert bendi til þess að Pútín sé illa haldinn Ekkert bendir til þess að Vladimír Pútín Rússlandsforseti sé við bága heilsu. Þetta segir forstjóri CIA, leyniþjónustu Bandaríkjanna en sögusagnir hafa verið um að forsetinn sé langt leiddur af alvarlegum sjúkdómi, mögulega krabbameini. Erlent 21. júlí 2022 07:31
Rússar vilja meira en Donbas Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, lýsti því yfir í morgun að markmið Rússa í Úkraínu hefðu breyst. Markmiðið væri ekki lengur að „frelsa“ Donetsk og Luhansk. Heldur beindu Rússar sjónum sínum nú einnig að Kherson- og Zaporozhye-héruðum í suðurhluta Úkraínu, auk annara svæða í landinu. Erlent 20. júlí 2022 14:28