Bandaríkjaforseti missti stjórn á skapi sínu í símtali við Selenskíj Joe Biden Bandaríkjaforseti missti stjórn á skapi sínu þegar hann ræddi við Vólódímír Selenskíj forseta Úkraínu fyrr á árinu. Selenskíj á að hafa beðið Biden um frekari fjárstuðning og er Biden sagður hafa orðið pirraður. Erlent 31. október 2022 19:33
Leðjutímabil hafi áhrif á frammistöðu í stríðinu Íbúi í Kænugarði segir að magn sprenginga sem urðu á svæðinu í morgun sé svar Rússa við árás Úkraínumanna á Svartahafsflotann. Úkraínumenn séu enn í mikilli sókn en veðurfar hafi nú áhrif á frammistöðu beggja ríkja. Erlent 31. október 2022 13:00
Skoða hvað gerðist ef allir sæstrengirnir til Íslands rofnuðu Áhættumat hefur verið unnið vegna mögulegs tjóns á sæstrengjunum sem liggja frá Íslandi. Að sögn Guðmundar Arnars Sigmundssonar, sviðsstjóra hjá Fjarskiptastofu og forstöðumanns netöryggissveitar CERT-IS, er fjarskiptasamband Íslands við umheimin ekki í hættu eins og er. Innlent 31. október 2022 12:46
Neyðarskömmtun víða í gildi eftir umfangsmiklar loftárásir Rússa Loftvarnaflautur fóru í gang og sprengingar heyrðust víða um Úkraínu í morgun. Íbúar voru hvattir til að leita skjóls, meðal annars í Kænugarði og á að minnsta kosti tíu öðrum svæðum. Erlent 31. október 2022 11:45
Stærsti hluthafi Century Aluminum styður ekki viðskiptabann á rússneskt ál Eigandi 46 prósent hlutafjár Century Aluminum, móðurfélags Norðuráls við Grundartanga, leggst gegn því að vestræn stjórnvöld leggi viðskiptabann á rússneskt ál. Stórir álframleiðendur á heimsvísu hafa kallað eftir því að viðskipti með rússneska málma verði settar hömlur líkt og gert hefur verið með ýmsar aðrar hrávörur. Innherji 31. október 2022 10:22
Urðu að stoppa leikinn þegar loftvarnaflautur fóru að hljóma Shakhtar Donetsk spilar heimaleiki sína ekki í Úkraínu heldur í Póllandi vegna innrásar Rússa. Það fara samt fram fótboltaleikir fram í landinu. Fótbolti 31. október 2022 09:00
Úkraínumenn vakna við loftvarnaflautur og sprengingar Loftvarnaflautur ómuðu víða í Úkraínu í morgun og sprengingar hafa heyrst í Kænugarði. Fregnir herma að um hafi verið að ræða sjö til átta sprengingar en að sögn Anton Gerashchenko, ráðgjafa Úkraínuforseta, skutu Rússar um það bil 40 eldflaugum á hin ýmsu skotmörk í morgun. Erlent 31. október 2022 07:13
Hlé gert á leik í Úkraínu eftir að sírenur fóru í gang Gera þurfti hlé á leik Oleksandria og Shaktar Donetsk í úkraínsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær eftir að sírenur sem vara fólk við loftárásum fóru í gang. Fótbolti 30. október 2022 11:01
Rússar slíta sig frá kornsamkomulaginu vegna árásar við Krímskaga Yfirvöld í Rússlandi lýstu því yfir í gærkvöldi að ríkið myndi ekki langur taka þátt í samkomulagi sem hefur orðið til þess að rúm níu milljón tonn af korni hafa verið flutt frá Úkraínu frá því innrás Rússa hófst. Úkraínumenn saka Rússa um að reyna að beita hungri sem vopni. Erlent 30. október 2022 08:24
Skemmdu nýja flaggskip Rússa í drónaárás Úkraínumenn gerðu í nótt árásir á rússneska flotann í Svartahafi við Krímskaga. Notast var við dróna við árásina og þá bæði fljúgandi og siglandi dróna en Úkraínumenn eru sagðir hafa skemmt Makarov aðmírál, flaggskip svartahafsflota Rússa. Erlent 29. október 2022 14:48
Segja mögulegt að skjóta niður bandaríska gervihnetti Rússar segjast mögulega geta skotið niður gervihnetti Bandaríkjanna sem notaðir eru til að afla upplýsinga fyrir Úkraínumenn eða hjálpa þeim að öðru leyti. Erlent 28. október 2022 12:27
Segir Rússa hafa gert þrjátíu drónaárásir á tveimur dögum Volodomír Selenskí Úkraínuforseti sagði í reglulegu ávarpi sínu í nótt að Rússar hafi gert fleiri en þrjátíu árásir með drónum á Úkraínskar borgir síðustu tvo dagana. Erlent 28. október 2022 07:34
Segir næsta áratug þann hættulegasta frá seinni heimsstyrjöldinni Heimsbúar standa frammi fyrir hættulegasta áratug heimsins frá seinni heimsstyrjöldinni. Þetta sagði Vladimír Pútín, forseti Rússlands, í ræðu sem hann flutti í dag þar sem hann sakaði meðal annars Vesturlönd um að bera ábyrgð á innrás hans í Úkraínu og valda usla í heiminum. Erlent 27. október 2022 21:53
Skildu eftir sig skjöl sem varpa ljósi á vandræði Rússa Þegar hersveitir Rússa hörfuðu með hraði frá austanverðu Kharkív-héraði í Úkraínu í september, skyldu þeir ýmislegt eftir sig. Þar á meðal mikið magn þungavopna eins og skrið- og bryndreka auk stórskotaliðsvopna. Þeir skyldu þó einnig eftir sig mikið magn gagna. Erlent 27. október 2022 15:15
Treysta ekki ESB í varnarmálum Við getum ekki treyst á Evrópusambandið þegar kemur að varnarmálum. Fyrir vikið var ákveðið að sækja um aðild að NATO. Þetta kom efnislega fram í máli Pekka Haavisto, utanríkisráðherra Finnlands, fyrr í vikunni á ráðstefnu NATO-þingsins í Helsinki, höfuðborg landsins, samkvæmt frétt mbl.is. Skoðun 27. október 2022 10:01
Orkuskiptin Mannkynið hefur unnið ötullega að orkuskiptum um langt skeið. Allt frá því manninum tókst að hagnýta sér eldinn hefur orkumyndun þróast, en aldrei hraðar en nú. Skoðun 27. október 2022 08:00
Matarskortur – samvinnuverkefni þjóða Í liðnum mánuði lagði undirrituð land undir fót ásamt þremur öðrum þingmönnum. Ferð okkar var heitið á allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York. Þessi heimsókn okkar var virkilega fróðleg og upplýsandi. En meðan á heimsókninni stóð var haldinn neyðarfundur í þinginu þar sem til umræðu var ályktun aðildarríkja þar sem innlimun Rússa á fjórum héruðum í austanverðri Úkraínu var fordæmd. Þessi neyðarfundur var sá 11. frá upphafi en Sameinuðu þjóðirnar voru stofnaðar árið 1945. Hér var því um sögulegan viðburð að ræða, enda lifum við sögulega tíma. Skoðun 27. október 2022 07:00
Selenskí segir hegðun Rússa brjálæðislega Volodomír Selenskí Úkraínuforseti sakar rússneska herforingja úr innrásarliðinu um brjálæðislega hegðun þegar kemur að því að reyna að ná bænum Bakhmut á sitt vald. Erlent 27. október 2022 06:56
Fyrsta prjónlesið frá Íslandi komið í hendur hermanna í Úkraínu Íslenskir ullarsokkar hafa ratað í hendur hermanna á vígvellinum í Úkraínu. Frá því í sumar hefur staðið yfir prjónaátak og -söfnun fyrir íbúa Úkraínu, sem eiga kaldan og harðan vetur fyrir höndum. Búið er að fylla 24 stóra kassa af hlýju prjónlesi og þeim á vafalítið eftir að fjölga. Innlent 26. október 2022 11:50
Eitt fyrstu verka Sunaks að hringja til Úkraínuforseta Rishi Sunak nýr forsætisráðherra Bretlands hét forseta Úkraínu í gær áframhaldandi stuðningi Breta í baráttunni gegn innrás Rússa. Forseti Þýskalands dáðist af hughrekki Úkraínumanna í heimsókn til Kænugarðs í gær og lofaði aukinni hernaðaraðstoð. Erlent 26. október 2022 11:40
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Vegnar vel á víglínunum en þurfa mikla aðstoð Úkraínumönnum hefur vegnað ágætlega á víglínunum síðustu vikur en árásir Rússa á innviði og borgaraleg skotmörk hafa kostað sitt. Ráðamenn í Úkraínu og Vesturlöndum segja ríkið þurfa mikla fjárhagslega aðstoð á komandi árum. Erlent 26. október 2022 11:07
Hvetja þá sem hafa flúið til að halda sig erlendis út veturinn Stjórnvöld í Úkraínu hafa biðlað til þeirra Úkraínumanna sem hafa flúið land frá því að Rússar hófu innrás sína í febrúar síðastliðnum, um að snúa ekki aftur fyrr en í vor. Orkuinnviðir landsins ráði einfaldlega ekki við mannfjöldann. Erlent 26. október 2022 07:12
Rússar búa sig undir árás á Kherson Rússneskar hersveitir í Kherson héraði búa sig nú undir mikinn bardaga við úkraínska herinn að sögn úkraínsks embættismanns. Erlent 26. október 2022 06:52
Setti bókstafinn Z á bílinn og fékk hálfa milljón í sekt Manni í Þýskalandi hefur verið gert að greiða fjögur þúsund evrur, eða rúmar 570 þúsund krónur, í sekt fyrir að hafa sett bókstafinn Z á bílinn sinn. Merkið hefur verið notað til marks um stuðning við innrás Rússa í Úkraínu. Maðurinn hefur áfrýjað. Erlent 25. október 2022 23:28
Nýr kafli í samskiptum Bretlands og Úkraínu Vólódímír Selenksí Úkraínuforseti segir nýjan kafla í samskiptum Bretlands og Úkraínu vera að hefjast. Hann tekur vel á móti nýkjörnum kollega sínum. Erlent 25. október 2022 22:14
„Kokkur Pútins“ ræddi við hann og gagnrýndi leiðtoga hersins Rússneski auðjöfurinn Yevgeny Prigozhin, sem gengið hefur undir nafninu „kokkur Pútíns“, ræddi nýverið við Vladimír Pútin, forseta Rússlands, og gagnrýndi það hvernig haldið hefði verið á spöðunum varðandi innrás Rússa í Úkraínu. Gagnrýnin beindist mest að leiðtogum rússneska hersins en Prigozhin og aðrir hafa gagnrýnt herinn opinberlega að undanförnu. Erlent 25. október 2022 10:28
Vilja að öryggisráðið ræði staðlausar áhyggjur af„skítugri sprengju“ Rússnesk yfirvöld hafa ekki gefist upp á að halda því fram að Úkraínumenn ætli sér að sprengja geislavirka sprengju, þrátt fyrir verulegar efasemdir vestrænna ríkja. Þeir vilja að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna taki málið fyrir. Erlent 25. október 2022 07:28
Segir fáránlegt að vopn Rússa séu á þrotum Fyrrverandi forseti Rússlands segir fáránlegt að miðlar lýsi því yfir að birgðir Rússa klárist hratt. Vopnaframleiðsla gangi vonum framar. Erlent 24. október 2022 22:13
Taka í notkun húsnæði fyrir allt að hundrað karlmenn á flótta Vonir standa til að í þessari viku verði húsnæði tekið í notkun sem gæti hýst allt að hundrað karlmenn sem koma til landsins einir á ferð í leit að vernd. Þetta segir aðgerðastjóri yfir móttöku flóttafólks. Mikið kapp sé lagt á að leysa fjöldahjálparstöð af hólmi og til skoðunar er að taka fleiri hús á leigu. Hann segir að allt sé hægt „hið ómögulega taki bara aðeins lengri tíma.“ Innlent 24. október 2022 14:39
Halda undankeppni sína fyrir Eurovision í sprengjubyrgi Úkraínska sjónvarpsstöðin UA:PBC hefur tilkynnt að Vidbir, söngvakeppnin þar sem framlag Úkraínumanna fyrir Eurovision er valið, verði haldin í sprengjubyrgi í Kænugarði laugardagskvöldið 17. desember. Lífið 24. október 2022 13:10