Fimm hross týnd á fjöllum í rúma viku Fimm hross sem fældust og hlupu á fjöll hafa verið týnd í rúma viku. Hrossin týndust skammt frá Gatfelli á Uxahryggjaleið, suðvestur af Skjaldbreið, á þriðjudagsmorgun í síðustu viku. Innlent 21. júlí 2021 11:19
Hæsti hestur í heimi er allur Hesturinn Big Jake lést á dögunum tuttugu ára gamall. Hann var árið 2010 útnefndur hæsti hestur í heimi af heimsmetabók Guinness. Erlent 5. júlí 2021 17:48
Segir dóminn geta ýtt við hestamannafélögum og komið í veg fyrir slys Guðrún Rut Heiðarsdóttir knapi hafði betur í skaðabótamáli sínu gegn Vátryggingafélagi Íslands fyrr í mánuðinum eftir hestaslys sem hún lenti í fyrir rúmum fimm árum. Hún segir dóminn fordæmisgefandi og staðfesta það að hestamannafélög verði að passa betur upp á aðstæður og merkingar við skipulagðar æfingar. Innlent 22. júní 2021 22:47
Álfadís hefur kastað tuttugu folöldum Hryssan Álfadís er engin venjuleg hryssa því hún var að kasta sínu tuttugasta folaldi. Mörg af folöldum hennar hafa náð frábærum árangri á sínum ferli, meðal annars stóðhesturinn Álfaklettur, sem er hæst dæmdi kynbóta hestur í heimi. Innlent 27. maí 2021 20:03
Fylfullar hryssur geta frestað köstun Svo undarlega sem það kann að hljóma þá hafa fylfullar hryssur þann hæfileika að geta frestað köstun vegna kuldatíðar eins og vorið í vor hefur verið. Það kom þó ekki í veg fyrir að hryssan Gleði, sem Sigurður Ingi Jóhannsson ráðherra á kastaði hestfolaldi í vikunni. Innlent 13. maí 2021 19:31
Vöntun á hrossum til slátrunar Sláturfélag Suðurlands leitar nú logandi ljósi af hrossum til slátrunar til að uppfylla samning um sölu á fersku hrossakjöt til Sviss. Innlent 8. maí 2021 16:48
Nýjum sáttmála ætlað að fækka árekstrum Sérstakur sáttmáli hestafólks og fulltrúa annarra vegfarendahópa var undirritaður í félagsheimili Fáks í Víðidal í morgun. Er það gert í ljósi tíðra óhappa og slysa að undanförnu og ákváðu fulltrúar mismunandi hópar vegfarenda að taka höndum saman um sáttmála sem legið geti til grundavallar fræðslu fyrir alla hlutaðeigandi svo öryggi þeirra og annarra sé sem best tryggt. Innlent 8. maí 2021 12:50
Óttast stórslys vegna mikils ágangs á reiðstígum Hestamenn hafa áhyggjur af auknum ágangi á reiðvegum í höfuðborginni, sem geti leitt til stórslysa. Dæmi eru um að hjólreiða- og motorcrossfólk nýti sér stígana sem hefur leitt til þess að knapar veigri sér við að fara í útreiðartúra. Innlent 29. apríl 2021 20:01
Heimsmeistaramóti íslenska hestsins aflýst Alþjóðasamtök íslenska hestsins, FEIF, gáfu í morgun út tilkynningu þess efnis að heimsmeistaramóti íslenska hestsins árið 2021 hafi verið aflýst. Sport 22. apríl 2021 16:01
Tveir íslenskir hestar felldir vegna skæðrar veiru Skæð herpesveira sem herjað hefur á hesta í Evrópu hefur greinst í íslenskum hestum á að minnsta kosti fjórum búgörðum í Þýskalandi. Þurft hefur að fella tvo íslenska hesta vegna sjúkdómsins sem veiran veldur, að því er fram kemur í tilkynningu Landssamtaka íslenska hestsins í Þýskalandi. Innlent 18. apríl 2021 13:29
Mikil ánægja með einu hestasundlaug landsins Mikil eftirspurn er eftir því að komast með hesta í einu hestasundlaug landsins þar sem hestarnir fá þjálfun og endurhæfingu í lauginni. Eftir sundsprettinn fara hestarnir í sérstakan þurrkklefa og fá verðlaun fyrir frammistöðu sína í lauginni. Innlent 17. apríl 2021 20:04
Vísan sem þjóðskáldið sendi Þykkvbæingum Vísa sem Matthías Jochumsson orti um Þykkvbæinga lýsti þeim sem hrossætum sem svæfu á hundaþúfum. Sagan segir að þjóðskáldið hafi haft óbeit á alræmdu hrossakjötsáti íbúanna í Þykkvabæ en Matthías var prestur í Odda á Rangárvöllum á árunum 1880 til 1886. Lífið 28. mars 2021 08:02
Þykkvbæingar alræmdir fyrir að éta annarra manna hross Þjóðskáldið Matthías Jochumsson, þá prestur í Odda á Rangárvöllum, hafði lítið álit á Þykkvbæingum og kallaði þá hrossætur sem svæfu á hundaþúfum. Lífið 21. mars 2021 21:42
Fer á milli hesthúsa og skiptir faxi á hestum Sautján ára stelpa í Mosfellsbænum hefur meira en nóg að gera að fara á milli hesthúsa og skipta faxi á hestum. Hún segir að hestunum líki mjög vel við slíkt dekur en það tekur hana um fjörutíu og fimm mínútur að skipta faxinu með tilheyrandi föndri. Innlent 14. mars 2021 07:04
Fékk árs bann fyrir að fara bak á dauðum hesti Írski knapinn Rob James hefur verið dæmdur í tólf mánaða bann eftir að myndband af honum sitja á dauðum hesti fór í dreifingu. Sport 11. mars 2021 16:00
Tíu hross drepist úr hestaherpesveiru eftir hópsmit á Spáni Matvælastofnun áminnir þá sem hafa tengsl við hestamennsku erlendis eða taka á móti einstaklingum að utan í tengslum við hestamennsku innanlands að fara varlega, sinna sóttvörnum og fara að reglum um innflutning búnaðar. Innlent 9. mars 2021 20:20
Allt gert til að verjast alvarlegum hrossasjúkdómi á Íslandi Mjög alvarlegur hrossasjúkdómur hefur komið fram í Evrópu, sem valdið hefur dauða fjölda hrossa og miklum veikindum. Allt verður gert til að verjast því að sjúkdómurinn, sem er herpesveira, berist til Íslands. Innlent 6. mars 2021 12:44
Fluttu í Skaftárhrepp til að gera veiðidelluna að vinnu Þau Jón Hrafn Karlsson og Linda Ösp Gunnarsdóttir ásamt börnum fluttu af Suðurnesjum fyrir sex árum austur í Meðalland að bænum Syðri-Steinsmýri. Hvorugt þeirra átti rætur í Skaftárhrepp. Lífið 5. mars 2021 23:08
Íslenskir hestar streyma úr landi Árið 2020 voru 2.320 hross flutt út frá Íslandi en eftirspurn eftir íslenska hestinum erlendis hefur vaxið hratt. Þetta kemur fram á vef Íslandsstofu. Árið 2019 voru flutt út 1.509 hross frá Íslandi og nemur því aukningin milli ára 53 prósentum. Innlent 22. febrúar 2021 15:17
Varalitur er staðalbúnaður í hesthúsinu og á hestbaki Varalitur og helst mikið af honum er staðalbúnaður hjá Katrínu Stefánsdóttur, 75 ára hestakonu í Þorlákshöfn en hún segist aldrei fara út í hesthús eða á hestbak nema með varalit. Innlent 14. febrúar 2021 20:11
Felldu tvo íslenska hesta eftir slys á flugvelli í Belgíu Fella þurfti tvo íslenska hesta eftir að gámur sem þeir voru fluttir í féll af palli á flugvelli í Belgíu rétt fyrir jólin. Icelandair Cargo hefur stöðvað frekari flutning á hrossum til stærstu dreifimiðstöðvar fyrirtækisins í Evrópu um óákveðinn tíma. Innlent 12. janúar 2021 13:12
Hestar háma í sig jólatré í Þorlákshöfn Sex hestar í Þorlákshöfn lifa sældarlífi þessa dagana því þeir fá að éta jólatré út í gerðinu sínu, sem þeir gera með bestu lyst. Innlent 11. janúar 2021 20:04
Norska smalakonan segist vera kölluð trans-Íslendingur „Mig langaði bara að búa hérna, einhvernveginn. Ég hef alltaf verið mjög hrifin af landinu. Fólk er oft að gera grín að mér, segir að ég sé trans-Íslendingur. Ég er bara fædd í vitlausu landi,“ segir hin norska Silje Dahlen Alviniussen og hlær, nýkomin úr sex daga fjárleitum að Fjallabaki þriðja árið í röð. Lífið 10. janúar 2021 06:13
Fyrsti kvenkyns járningamaðurinn á Íslandi Fyrsti kvenkyns járningamaðurinn á Íslandi hefur meira en nóg að gera en hún járnar að jafnaði átta hesta á dag. Konan, sem er frá Svíþjóð segist vera heilluð af íslenska hestinum. Innlent 3. janúar 2021 20:07
Telur bændur hafa rekið fé á hálendið allt frá landnámi „Sagan segir að menn hafi byrjað að reka bara um landnám,“ svarar fjallkóngurinn á Landmannaafrétti, Kristinn Guðnason, þegar við veltum því upp hversu rótgróinn þáttur fjárleitir á hálendinu er í þjóðmenningu Íslendinga. Innlent 2. janúar 2021 06:26
Jakob Svavar knapi ársins 2020 Viðurkenningar fyrir knapa ársins og keppnishestabú ársins voru veittar sigurvegurum í hverjum flokki í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal um helgina. Sport 20. desember 2020 08:01
RAX Augnablik: Folaldið sem dansaði í Sandey „Ég fer oft til Færeyja og árið 1989 fór ég í enn eina ferðina og fór út í Sandey. Ég frétti af manni þar, Jónasi Madsen, sem að spilaði á munnhörpu fyrir kindurnar sínar og hestana. Mig langaði að sjá hvernig þetta færi fram,“ Menning 13. desember 2020 07:00
Fór hálf sjokkeruð til baka í geðshræringu „Tíu eða ellefu ára varð ég kúskur sem þýddi að ég fékk náðarsamlegast að þræla mér út launalaust allan daginn að moka skít, teyma undir, leggja á, kenna smákrökkum og lóðsa ferðamenn um Rauðhóla. Ég dýrkaði þetta auðvitað,“ segir listakonan Rán Flygering. Menning 5. desember 2020 08:01
Sprenging í útflutningi á íslenskum hestum Sjaldan eða aldrei hafa eins margir íslenskir hestar verið seldir úr landi eins og það sem af er árinu 2020. Vinsælir stóðhestar eru meðal hesta, sem hafa verið seldir eins og Kveikur frá Stangarlæk og Styrkur frá Leysingjastöðum. Innlent 28. nóvember 2020 19:45
Greiðir tíu milljónir vegna saknæmrar sölu á stóðhesti Guðmundur Friðrik Björgvinsson, einn færasti knapi Íslands og landsliðsmaður í íþróttinni, hefur verið dæmdur til að greiða rúmlega tíu milljónir króna í skaðabætur fyrir svik við sölu á stóðhestinum Byl til Noregs. Viðskipti innlent 3. nóvember 2020 11:32