Haukur mætir Barcelona í úrslitum Barcelona vann nokkuð sannfærandi 34-30 sigur þegar liðið atti kappi við Kiel í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta karla í Lanxess-höllinni í Köln í dag. Handbolti 18. júní 2022 18:30
Haukur skoraði eitt er Kielce fór áfarm í úrslit Meistaradeildarinnar Haukur Þrastarson, Sigvaldi Guðjónsson og félagar í pólska liðinu Vive Kielce eru komnir áfram í úrslitaleik Meistaradeild Evrópu eftir tveggja marka sigur á Veszprém í Köln í dag, 35-37. Handbolti 18. júní 2022 15:30
Martröð í Montpellier: „Allt mjög þungt og erfitt“ Ólafur Andrés Guðmundsson skrifaði í gær formlega undir samning hjá svissneska félaginu Amicitia Zürich. Hann batt þar með enda á martraðardvöl hjá Montpellier í Frakklandi. Handbolti 17. júní 2022 09:00
Arnar þriðji Íslendingurinn sem skiptir til Ribe í sumar Örvhenta skyttan Arnar Birkir Hálfdánsson hefur skrifað undir samning til tveggja ára við danska úrvalsdeildarfélagið Ribe-Esbjerg. Handbolti 16. júní 2022 09:20
„Kvíði því einna mest að vera þjálfari á móti Íslandi“ Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari Þýskalands í handbolta, segist ekki útiloka heimkomu til Íslands þegar samningur hans við þýska handknattleikssambandið rennur út árið 2024. Alfreð segist þá hræddur við tilhugsunina að mæta Íslandi fram að þeim tímapunkti. Handbolti 16. júní 2022 09:01
Efnilegur hornamaður í raðir FH FH hefur samið við Arnar Stein Arnarsson, efnilegan hægri hornamann, sem spilaði áður með Víking. Arnar Steinn skrifar undir samning í Kaplakrika til þriggja ára. Frá þessu er greint á Facebook-síðu félagsins. Handbolti 15. júní 2022 18:01
Ólafur til Sviss en meistararnir voru of seinir Landsliðsmaðurinn Ólafur Guðmundsson mun leika í Sviss næsta vetur en hann hefur samið við Amicitia Zürich um að spila með liðinu. Þar með bætist enn í hóp íslensks handboltafólks hjá félaginu. Handbolti 15. júní 2022 11:30
Danmerkurmeistarinn Viktor Gísli: „Staðráðinn í að láta þetta ganga upp“ „Það var ekki verið að haga sér, það voru tekin nokkur pissustopp og rútuferð sem átti að taka tvo og hálfan tíma tók örugglega fjóra og hálfan tíma,“ sagði markvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson um heimferðina eftir að GOG varð Danmerkurmeistari í handbolta um liðna helgi. Handbolti 15. júní 2022 09:00
Grótta fær danskan leikmann fyrir komandi átök Handknattleiksdeild Gróttu hefur samið við danska handknattleiksmanninn Theis Koch Søndergård um að leika með liðinu á komandi tímabili í Olís-deild karla. Handbolti 14. júní 2022 22:31
Elvar Örn skotfastastur í Þýskalandi Íslenski landsliðsmaðurinn Elvar Örn Jónsson, leikmaður MT Melsungen, reyndist skotfastasti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta á nýliðnu tímabili. Handbolti 14. júní 2022 14:01
Ólafur Andrés yfirgefur Montpellier Ólafur Andrés Guðmundsson mun ekki leika með Montpellier í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta á næstu leiktíð. Hann er einn fjögurra leikmanna liðsins sem fær ekki áframhaldandi samning hjá félaginu. Handbolti 14. júní 2022 10:01
Sveinn þurfti að fara aftur undir hnífinn Handknattleiksmaðurinn Sveinn Jóhannsson þurfti að gangast undir aðra aðgerð á hné vegna alvarlegra meiðsla sem hann varð fyrir á æfingu með íslenska landsliðinu seint á síðasta ári. Handbolti 13. júní 2022 16:01
Glæsilegum ferli Alexanders lauk í kvöld Alexander Petersson, landsliðsmaður í handbolta, spilaði í kvöld sinn síðasta handboltaleik á löngum og glæsilegum ferli sínum. Handbolti 12. júní 2022 19:25
Viktor Gísli og félagar danskir meistarar Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar hans í GOG eru danskir meistarar í handbolta eftir nauman eins marks sigur gegn Aroni Pálmarssyni og félögum hans í Álaborg í dag, 26-27. Handbolti 12. júní 2022 16:59
Ómar endaði næst markahæstur og Bjarki Már þriðji Lokaumferð þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta fór fram í dag þar sem heil umferð var spiluð á sama tíma. Ómar Ingi Magnússon endar sem næst markahæsti leikmaður deildarinnar og Bjarki Már Elísson þriðji. Handbolti 12. júní 2022 15:11
ÍR-ingar komnir með eitt glæsilegasta íþróttahús á landinu ÍR-ingar leggja nú lokahönd á nýtt íþróttahús í Breiðholtinu en íþróttasvæði ÍR-inga er að verða eitt það glæsilegasta á landinu. Handbolti 12. júní 2022 11:00
Guðjón Valur fær rós í hnappagatið Guðjón Valur Sigurðsson, þjálfari Gummersbach, er þjálfari ársins í þýsku B-deildinni í handbolta karla. Handbolti 11. júní 2022 20:01
Aron Dagur og Orri Freyr meistarar í Noregi Elverum varð í kvöld norskur meistari í handbolta karla en liðið tryggði sér titilinn með 34-28 sigri sínum gegn Arendal. Handbolti 11. júní 2022 19:50
Ómar Ingi og Bjarki Már geta báðir orðið markakóngar á sunnudag Stórskyttan Ómar Ingi Magnússon og hornamaðurinn Bjarki Már Elísson eiga báðir góða möguleika á að verða markakóngar þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta. Ómar Ingi var markakóngur á síðustu leiktíð og gæti þar með skráð sig í einkar fámennan hóp. Handbolti 10. júní 2022 11:30
Krefjast aðgerða eftir að klósett voru nefnd eftir forseta IHF Egypska handknattleikssambandið hefur sent erindi til þarlendra stjórnvalda og ríkissaksóknara vegna mikillar móðgunar sem sambandið telur Hassan Moustafa, forseta alþjóðahandboltasambandsins (IHF), hafa orðið fyrir. Handbolti 10. júní 2022 11:01
Ómar Ingi með stórleik fyrir nýkrýnda meistara Ómar Ingi Magnússon fór á kostum þegar lið hans, Magdeburg, vann Leipzig, 36-31, í næstsíðustu umferð þýsku efstu deildarinnar í handbolta karla í dag. Handbolti 9. júní 2022 18:47
Elverum mistókst að tryggja sér norska meistaratitilinn á heimavelli Elverum tapaði leik þrjú í úrslitaeinvígi norska handboltans á heimavelli gegn Arendal, 25-30. Handbolti 8. júní 2022 22:00
Bjarki skoraði níu í jafntefli Það voru 16 íslensk mörk í fimm leikjum í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Bjarki Már var með langflest þeirra. Handbolti 8. júní 2022 18:30
Sunna Guðrún frá Akureyri til Sviss Sunna Guðrún Pétursdóttir hefur samið við handknattleiksfélagið GC Amicitia Zürich í Sviss. Markvörðurinn fer þangað frá KA/Þór þar sem hún hefur verið undanfarin tvö tímabil. Handbolti 8. júní 2022 16:01
Lilja heim í Val en Ásdís áfram úti Handboltakonan Lilja Ágústsdóttir er komin heim til Vals frá Lugi í Lundi í Svíþjóð eftir stutt stopp. Hún fór út til Svíþjóðar í janúar. Handbolti 8. júní 2022 15:16
Úkraínsku meistararnir gætu tekið þátt í þýsku B-deildinni Úkraínsku meistararnir í handbolta, Motor Zaporozhye, gætu tekið þátt í þýsku B-deildinni á næsta tímabili, án þess þó að taka þátt í deildarkeppninni sjálfri. Handbolti 8. júní 2022 07:00
„Rosalega bjart framundan hjá okkur ÍR-ingum“ Bjarni Fritzson skrifaði í dag undir þriggja ára samning við handknattleiksdeild ÍR og mun því þjálfa liðið næstu árin í Olís-deild karla í handbolta. Hann segir verkefnið sem framundan er spennandi. Handbolti 7. júní 2022 19:45
Kiril Lazarov leggur skóna á hilluna Norður-makedónski handboltamaðurinn Kiril Lazarov hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna frægu, 42 ára að aldri. Handbolti 7. júní 2022 19:01
Aðalsteinn og lærisveinar hans svissneskir meistarar Aðalsteinn Eyjólfsson og lærisveinar hans í Kadetten Schaffhausen tryggðu sér í dag svissneska meistaratitilinn í handbolta er liðið vann þriggja marka sigur gegn Pfadi Winterthur, 29-26. Handbolti 7. júní 2022 17:37
Bjarni tekur aftur við ÍR Bjarni Fritzson hefur tekið við sem þjálfari karlaliðs félagsins og skrifað undir þriggja ára samning. ÍR-ingar greindu frá þessu í dag. Handbolti 7. júní 2022 09:30