Skyldur vinnuveitenda gífurlegar í erfiðum málum „Varðandi MeToo-umræðuna. Að mörgu leyti hefur regluverkið ekki mikið breyst í gegnum tíðina. Kannski hefur verið skerpt aðeins á því hvað telst einelti og hvað er ofbeldi og slíkt en fyrirtækin eru að taka þetta miklu miklu fastari tökum og miklu meira formfast og rannsaka þetta með skipulögðum hætti. Málin eru bara svo flókin, það er engin ein leið rétt.“ Innlent 24. september 2024 22:47
Stefnt að hertara eftirliti á landamærunum í nóvember Dómsmálaráðherra segir að nánara eftirlit verði fljótlega tekið upp á Schengen landamærunum í samræmi við önnur ríki samstarfsins. Þá væri til athugunar að taka upp andlitsgreiningarbúnað að ósk lögreglustjórans á Suðurnesjum. Innlent 24. september 2024 16:34
Icelandair þurfi að kannast við reglur réttarríkisins Hæstaréttarlögmaður segir samfélagið þurfa að spyrja sig áleitinna spurninga þegar kemur að kynferðisbrotamálum, og hvort líta eigi svo á að menn teljist sekir þar til annað kemur í ljós. Þar séu stórfyrirtæki á borð við Icelandair ekki undanskilin. Hann rifjar upp mál manns sem hann aðstoðaði, sem var vikið úr starfi hjá fyrirtækinu vegna ásakana, en mál hans síðan fellt niður. Innlent 24. september 2024 10:45
Hver er ábyrgð Icelandair? Kynferðislegt ofbeldi er alvarleg meinsemd sem á ekki að viðgangast. Hins vegar þarf að fara varlega þegar ásakanir eru bornar á einstaklinga sama hvers eðlis þær eru. Kynferðisbrot geta ekki verið þar undanskilin, slík mál þurfa faglega og vandaða úrvinnslu. Skoðun 24. september 2024 09:01
Forréttindi fyrir fámenna þjóð að hafa jafn öflugar flugsamgöngur Uppbygging Keflavíkurflugvallar sem tengimiðstöðvar hefur fært Íslendingum mikla hagsæld og lífsgæði og eru brottfarir í flugi frá Íslandi til Norður-Ameríku núna fleiri en frá öllum hinum Norðurlöndunum til samans. Innlent 23. september 2024 21:45
Gengi Icelandair flaug upp á við Gengi hlutabréfa Icelandair rauk upp um 6,45 prósent í dag í 612 milljóna króna viðskiptum. Gengið hefur ekki verið hærra frá 9. júní. Þá hækkaði gengi Play næstmest allra félaga í Kauphöllinni, um 3,03 prósent. Viðskipti innlent 23. september 2024 16:32
Með mörg þúsund evrur af illa fengnu fé Kona hefur hlotið sex mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundinn til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir peningaþvætti. Innlent 23. september 2024 15:57
Ein kært nauðgun og fjórar segjast hafa verið beittar ofbeldi Fimm konur sem starfa eða starfað hafa hjá Icelandair segjast hafa verið beittar ofbeldi af hálfu samstarfsmanns þeirra hjá félaginu. Ein þeirra hefur lagt fram kæru á hendur manninum, Sóloni Guðmundssyni, fyrir nauðgun. Innlent 23. september 2024 13:11
Verið að fara fram á rannsókn, ekki þöggun „Þau vilja fá að vita hvað sonur þeirra á að hafa gert,“ segir Hödd Vilhjálmsdóttir, talsmaður fjölskyldu Sólons Guðmundssonar flugmanns. Fjölskyldan sem hefur óskað eftir lögreglurannsókn á því hvernig andlát Sólons bar að. Innlent 23. september 2024 10:36
Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns Síldarleit frá Miklavatni í Fljótum lagði grunninn að Loftleiðaævintýrinu. Þrír ungir menn höfðu eftir flugnám í Kanada flutt einshreyfils flugvél heim með sér til Íslands í von um samstarf við Flugfélag Íslands. Þegar sú von brást stofnuðu þeir Loftleiðir árið 1944 og hófu eigin flugrekstur. Innlent 22. september 2024 07:17
Myndgreiningarkerfi geti hjálpað til við að stoppa af óprúttna aðila Lögreglustjórinn á Suðurnesjum telur líklegt að myndavélakerfi verði tekið upp á landamærum á næstunni sem hjálpi til við að stoppa af óprúttna aðila á leið til landsins. Hann skorar á stjórnvöld að gefa málaflokknum betri gaum. Mikið álag sé á starfsfólki embættisins sem glími jafnframt við aðstöðuleysi. Innlent 20. september 2024 19:31
Fjölskylda flugmanns Icelandair vill að lögregla rannsaki andlát hans Fjölskylda flugmanns hjá Icelandair hefur lagt fram beiðni til lögreglu um að andlát hans verði rannsakað. Flugmaðurinn féll fyrir eigin hendi eftir að mál tengd honum voru tekin fyrir innan fyrirtækisins. Fjölskylda hans telur mörgum spurningum enn ósvarað í málinu. Miklar brotalamir hafi verið á málsmeðferð innan Icelandair. Innlent 20. september 2024 18:42
Hinir grunuðu í mansalsmálinu ganga lausir Ekki var talin ástæða til þess að fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir tveimur mönnum sem grunaðir eru um að hafa ætlað sér að hagnýta tvær stúlkur sem komu til landsins í mansali. Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir þeim rann út í gær og þeir ganga því lausir. Innlent 20. september 2024 11:43
Áhyggjuefni að innri landamærin séu ekki betur tryggð Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir það áhyggjuefni að ekki hafi tekist að halda uppi öflugra eftirliti á innri landamærunum eftir að Ísland gekk í Schengen-samstarfið. Mikið álag sé á lögreglu vegna fjölda frávísunarmála á Keflavíkurflugvelli. Innlent 19. september 2024 18:11
Bæta við níunda áfangastað sínum á Spáni Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á áætlunarferðum til Valencia næsta sumar. Fyrsta flugið verður 24. maí 2025 og verður flogið á þriðjudögum og laugardögum fram til 29. september. Viðskipti innlent 19. september 2024 09:57
Flugvélarnar sem gerðu Loftleiðir að stórveldi Velgengni Loftleiða í Norður-Atlantshafsfluginu hófst fyrir alvöru með DC 6B-flugvélum. Það voru hins vegar Rolls Royce 400-skrúfuþoturnar, CL-44, eða monsarnir, sem gerðu Loftleiðir að stórveldi í íslensku efnahagslífi. Innlent 18. september 2024 19:44
Blöskrar markaðssetning á réttum: „Þetta eru eins og jólin fyrir okkur“ Bóndi lýsir yfir megnri óánægju sinni með markaðsetningu Icelandair á réttum gagnvart ferðamönnum. Réttir séu mikilvægur dagur fyrir alla bændur og því bagalegt ef ekki verður þverfótað fyrir ferðamönnum í almenningnum. Þá sé ekki síst mikilvægt að féð sé meðhöndlað af vönu fólki. Innlent 18. september 2024 08:46
Brýnt að finna þyrluflugi nýjan samastað Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra telur það brýnt að finna þyrluflugi annan samastað en á Reykjavíkurflugvelli. Á sama tíma þurfi að vinna að aðgerðum til að draga úr hávaða vegna flugs á Reykjavíkurflugvelli í nærsamfélagi flugvallarins. Innlent 17. september 2024 13:25
Fljúga til Gautaborgar næsta sumar Icelandair mun bæta Gautaborg í Svíþjóð við leiðakerfið sumarið 2025. Viðskipti innlent 17. september 2024 11:09
Samstarfið við Braathen bjó til Loftleiðaævintýrið Samstarf Loftleiðamanna við flugfélag norska skipakóngsins Ludvigs Braathen var í raun byrjunin á Loftleiðaævintýrinu, að mati barna Alfreðs Elíassonar, stofnanda Loftleiða. Þetta kom fram í þættinum Flugþjóðin. Innlent 16. september 2024 21:21
Skelltu sér úr háloftunum niður í Hörpu Árshátíð flugfélagsins Play var haldin með glæsibrag í Silfurbergi í Hörpu síðastliðinn laugardag. Um 400 manns mættu í sínu fínasta pússi þar sem þema kvöldsins var glimmer. Lífið 16. september 2024 20:03
Ráðherrar VG fóru fram á að brottvísun Yazans yrði frestað Ráðherrar Vinstri grænna fóru fram á að mál Yazans Tamimi yrði rætt í ríkisstjórn. Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra fyrirskipað í kjölfarið að brottvísun hans frá landinu yrði frestað. Þetta herma heimildir fréttastofu. Innlent 16. september 2024 11:33
Yazan á leiðinni aftur á Landspítalann Yazan Tamimi, ellefu ára fjölfatlaður drengur frá Palestínu, var ekki fluttur af landi brott til Spánar í morgunsárið eins og til stóð. Samkvæmt heimildum fréttastofu er Yazan á leiðinni aftur á Barnaspítala Hringsins. Innlent 16. september 2024 08:22
Bæjarstjóri vill funda með ráðherra um hávaða á Kársnesi Augnablikshávaði vegna flugumferðar frá Reykjavíkurflugvelli mælist reglulega langt yfir það sem er kveðið á um í reglugerð um hávaða um mörk vegna hávaða frá flugumferð. Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri í Kópavogi hefur óskað eftir fundi með innviðaráðherra til að ræða hávaðamengun á Kársnesi vegna aukinnar flugumferðar við Reykjavíkurflugvöll. Innlent 16. september 2024 06:45
„Ég óttast að það taki ekkert við á Spáni“ „Lögregla telur það ekki vera sitt vandamál og íslensk stjórnvöld, þrátt fyrir ítrekaða hvatingu og beiðnir, hafa ekki viljað óska eftir tryggingum eða loforðum frá spænskum stjórnvöldum um hvað taki við á Spáni.Þannig að ég óttast að það taki ekkert við á Spáni.“ Innlent 16. september 2024 06:39
Yazan vakinn á sjúkrabeði og á leið úr landi Ellefu ára gamall fjölfatlaður drengur frá Palestínu var vakinn á sjúkrabeði sínu í Rjóðrinu seint í kvöld af lögreglu. Til stendur að fljúga með hann úr landi í fyrramálið ásamt fjölskyldu hans. Innlent 16. september 2024 00:42
Koma fyrstu þotunnar einn af hápunktum flugsögu Íslands Koma Gullfaxa, fyrstu þotunnar, er einn af hápunktum flugsögu Íslendinga. Í þættinum Flugþjóðin á Stöð 2 rifja fyrrverandi starfsmenn Flugfélags Íslands upp þætti úr sögu félagsins, þar á meðal daginn þegar Boeing 727-þotan lenti á Reykjavíkurflugvelli í júnímánuði 1967. Innlent 15. september 2024 07:27
Ekki króna í þrotabúi Base parking Ekki króna fékkst upp í lýstar kröfur í þrotabú Siglt í strand ehf., sem hét áður Base parking ehf.. Lýstar kröfur námu tæpum 59 milljónum króna. Viðskipti innlent 13. september 2024 11:29
Þúsundir starfsmanna Boeing hafna 25 prósent launahækkun Þúsundir starfsmanna Boeing hefja verkfallsaðgerðir í dag eftir að hafa hafnað tilboði fyrirtækisins í yfirstandandi kjaradeilum, þrátt fyrir að það hafi hljóðað upp á 25 prósenta launahækkun á fjórum árum. Erlent 13. september 2024 06:54
Kynntu rafmagnsflugvélina sem Icelandair hefur pantað Sænski flugvélaframleiðandinn Heart Aerospace kynnti í dag fyrsta tilraunaeintak þrjátíu sæta rafmagnsflugvélar. Hún gæti orðið fyrsta rafknúna flugvélin í innanlandsflugi hérlendis en Icelandair hefur skráð sig fyrir fimm eintökum. Innlent 12. september 2024 22:40