Toppsætið endurheimt með átta marka stórsigri Chelsea skellti armenska liðinu Noah á Stamford Bridge. 8-0 varð niðurstaðan þegar allt kom til alls. Guðmundur Þórarinsson var ónotaður varamaður hjá gestunum. Fótbolti 7. nóvember 2024 22:00
Sigrinum óvænt stolið af Sociedad eftir jöfnunarmark Orra Orri Steinn Óskarsson skoraði fyrir Real Sociedad í heimsókn til Viktoria Plzen í Tékklandi. Leiknum lauk þó með 2-1 sigri Plzen eftir óvænt sigurmark varamanns á lokamínútu venjulegs leiktíma. Fótbolti 7. nóvember 2024 22:00
Tvö mörk á tveimur mínútum tryggðu sigur Þrjú lið eru jöfn að stigum í efsta sæti Evrópudeildarinnar. Fótbolti 7. nóvember 2024 20:20
Galatasaray tók toppsætið af Tottenham Tottenham hefur unnið alla þrjá leiki sína til þessa í Evrópudeildinni í fótbolta en liðsins bíður erfið hindrun í Tyrklandi í dag. Fótbolti 7. nóvember 2024 20:00
Tvö lið með fullt hús stiga í Sambandsdeildinni Tvö lið, Legia Warsaw og Rapid Wien, eru með fullt hús stiga eftir þrjá leiki í Sambandsdeild Evrópu. Shamrock Rovers fylgir þeim eftir í þriðja sætinu. Fótbolti 7. nóvember 2024 19:59
Ákvörðun þjálfarans að kalla Mbappé ekki inn í landsliðshópinn Didier Deschamps, landsliðsþjálfari Frakklands, tilkynnti hópinn sem mun koma saman fyrir leiki gegn Ísrael og Ítalíu síðar í mánuðinum. Kylian Mbappé var ekki kallaður til, þrátt fyrir að vera heill heilsu. Fótbolti 7. nóvember 2024 18:15
„Frammistaða upp á 8,5 í þessum leik“ Arnar Bergmann Gunnlaugsson, þjálfari Víkings, var himinlifandi með frammistöðu leikmanna sinna þegar liðið lagði Borac Banja Luka að velli með tveimur mörkum gegn engu í leik liðanna í Sambandsdeild Evrópu í fótbolta karla í dag. Fótbolti 7. nóvember 2024 17:54
Sjáðu mörkin sem tryggðu Víkingi sextíu milljónir til viðbótar Víkingur Reykjavík vann 2-0 gegn Borac Banja Luka í þriðju umferð Sambandsdeildar Evrópu. Nikolaj Hansen skoraði fyrra markið eftir stoðsendingu Karls Friðleifs Gunnarssonar, sem potaði öðru markinu inn skömmu síðar. Fótbolti 7. nóvember 2024 17:43
Víkingar komnir í 750 milljónir og gætu spilað fram í febrúar Víkingar halda áfram að tryggja sér háar fjárhæðir með frábærum árangri í Sambandsdeild Evrópu. Sextíu milljónir króna bætast við með sigrinum góða á Borac í dag, sem jafnframt fer langt með að duga Víkingi til að komast áfram í umspil keppninnar. Fótbolti 7. nóvember 2024 16:32
Uppgjörið: Víkingur - Borac 2-0 | Víkingur færist skrefi nær útsláttarkeppninni með góðum sigri Víkingur vann sannfærandi 2-0 sigur þegar liðið fékk bosníska liðið Borac Banja Luka í heimsókn á Kópavgsvöllinn í þriðju umferð Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta karla í dag. Víkingar eru komnir í góða stöðu að tryggja sér sæti í 16 liða úrslitum keppninnar þegar þrjár umferðir eru eftir af deildarkeppninni. Fótbolti 7. nóvember 2024 16:23
„Þetta er liðið hans Höskuldar“ Þeir Baldur Sigurðsson og Atli Viðar Björnsson, sérfræðingar Stúkunnar, hrósuðu Höskuldi Gunnlaugssyni, fyrirliða Breiðabliks, í hástert þegar tímabilið í Bestu deild karla var gert upp í Besta sætinu, hlaðvarpi íþróttadeildar Sýnar. Íslenski boltinn 7. nóvember 2024 15:31
„Geta ekki smíðað sigurlið 1, 2 og 3 með því að kaupa inn dýra leikmenn“ Valur stendur Breiðabliki og Víkingi, bestu liðum Bestu deildar karla, langt að baki og getur ekki stytt sér leið á toppinn. Þetta sagði Baldur Sigurðsson í Besta sætinu, hlaðvarpi íþróttadeildar Sýnar, þar sem tímabilið 2024 í Bestu deild karla var gert upp. Íslenski boltinn 7. nóvember 2024 14:32
Ísland í riðli með Frökkum og Maríu Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta lenti í erfiðum riðli í næstu leiktíð Þjóðadeildarinnar en dregið var í riðla í dag. Fótbolti 7. nóvember 2024 12:40
Ragnar ráðinn til AGF Ragnar Sigurðsson hefur verið ráðinn þjálfari undir sautján ára liðs AGF í Danmörku. Fótbolti 7. nóvember 2024 12:05
„Leið eins og ég væri í einhverju sorgarferli“ Víkingar spila í dag sinn fyrsta leik eftir tapið sára í úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitilinn. Víkingar misstu báða bikarana í sumar en tímabilið er ekki búið og Víkingar eru á heimavelli í Sambandsdeildinni í dag. Fótbolti 7. nóvember 2024 11:30
Sjáðu dramatíkina í París og öll mörkin úr Meistaradeildinni Inter vann Arsenal, Atlético Madrid sigraði Paris Saint-Germain á dramatískan hátt og öskubuskuævintýri Brest hélt áfram. Þetta og margt fleira gerðist í Meistaradeild Evrópu í gær. Öll mörk gærdagsins má sjá í fréttinni. Fótbolti 7. nóvember 2024 11:03
Gunnhildur og Erin eignuðust dreng Knattspyrnukonurnar, Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Erin McLeod, eignuðust dreng í lok október. Um er að ræða fyrsta barn þeirra hjóna. Lífið 7. nóvember 2024 09:44
Myndir: Skiltin fuku um koll fyrir leikinn mikilvæga í Kópavogi Víkingar leika afar mikilvægan leik við Borac frá Bosníu á Kópavogsvelli í dag. Veðrið verður vonandi skárra en í aðdraganda leiksins þegar til að mynda auglýsingaskjáir við völlinn fuku um koll. Fótbolti 7. nóvember 2024 09:26
Slot henti bæði Mourinho og Ancelotti úr efsta sætinu Arne Slot hefur átt algjöra draumabyrjun sem knattspyrnustjóri Liverpool og virðist nánast setja nýtt met í hverjum leik. Enski boltinn 7. nóvember 2024 09:02
Sjáðu klúðrið sem stjóri Villa kallaði „stærstu mistök“ sem hann hefur séð Aston Villa tapaði sínum fyrstu stigum í Meistaradeildinni í fótbolta í vetur þegar liðið lá 1-0 á móti belgíska félaginu Club Brugge í gærkvöldi. Enski boltinn 7. nóvember 2024 08:31
Íslensku stelpurnar gætu lent í riðli með heimsmeisturunum Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta kemst að því í hádeginu í dag hverjir verða mótherjar liðsins í Þjóðadeild kvenna á næsta ári. Fótbolti 7. nóvember 2024 08:15
Þurftu að sauma sautján spor í andlit Barcelona stráksins Barcelona vann góðan útisigur í Meistaradeildinni í fótbolta í gærkvöldi en einn leikmaður liðsins er vel merktur eftir kvöldið í Belgrad. Fótbolti 7. nóvember 2024 08:02
Gummi Tóta og félagar tilbúnir að „leggja örkinni“ á Brúnni Guðmundur Þórarinsson og félagar í liðinu Noah frá Armeníu mæta á Brúnna, Stamford Bridge, í kvöld í Sambandsdeild Evrópu og mæta þar heimamönnum í Chelsea. Liðið er nefnt eftir sögunni um örkina hans Nóa og er sagt vera tilbúið að „leggja örkinni“ í leik kvöldsins. Fótbolti 7. nóvember 2024 07:01
„Langar að svara fyrir okkur“ Ari Sigurpálsson, leikmaður Víkings, segir leikmenn liðsins vilja svara fyrir sig í dag þegar þeir mæta Borac í Sambandsdeild Evrópu. Fótbolti 6. nóvember 2024 23:31
Leikbann Kudus lengt í fimm leiki Leikbann Mohammed Kudus, leikmanns West Ham United í ensku úrvalsdeildinni, hefur verið lengt í fimm leiki eftir að hann var upprunalega dæmdur í þriggja leikja bann eftir að fá beint rautt spjald í leik gegn Tottenham Hotspur í október. Enski boltinn 6. nóvember 2024 23:03
Atlético Madríd stal sigrinum í París Atlético Madríd tryggði sér frækinn sigur á París Saint-Germain í Meistaradeild Evrópu. Eftir að lenda undir komu gestirnir frá Madríd til baka og tryggðu sér stigin þrjú með síðustu spyrnu leiksins. Fótbolti 6. nóvember 2024 22:30
Vandræði Madríd halda áfram Franski miðvallarleikmaðurinn Aurélien Tchouaméni verður frá keppni næstu fjórar vikurnar hið minnsta eftir að togna á ökkla. Hann hefur verið í lykilhlutverki hjá Evrópu- og Spánarmeisturum Real Madríd sem hafa átt erfitt uppdráttar á leiktíðinni. Fótbolti 6. nóvember 2024 20:02
Börsungar á bleiku skýi í Belgrað Barcelona gerði góða ferð til Belgrað í Serbíu þegar lærisveinar Hansi Flick sóttu Rauðu stjörnuna heim í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Fótbolti 6. nóvember 2024 19:32
Aftur skutu Skytturnar púðurskotum á Ítalíu Inter Milan lagði Arsenal 1-0 í einum af stórleikjum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu. Skytturnar hans Mikel Arteta hafa nú farið tvívegis til Ítalíu á leiktíðinni og mistekist að skora í báðum leikjum sínum þar. Fótbolti 6. nóvember 2024 19:32
Glórulaus Mings kostaði Villa Aston Villa komst ekki á topp Meistaradeildar Evrópu eftir 1-0 tap gegn Club Brugge á útivelli. Sigurmarkið kom eftir að Tyrone Mings, miðvörður Villa, fékk á sig glórulausa vítaspyrnu. Fótbolti 6. nóvember 2024 17:17