Fimm af tólf skiluðu einungis rafrænum meðmælum Fimm af þeim tólf sem skiluðu framboðum sínum til forseta Íslands og lista yfir meðmælendur skiluðu einungis rafrænum meðmælum. Sjö frambjóðendur skiluðu bæði rafrænt og á pappír. Aldrei áður hafa svo margir skilað inn framboði til forseta Íslands. Innlent 26. apríl 2024 12:33
Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Viktor Traustason var einn þeirra sem mættu á fund landskjörstjórnar í Hörpu í dag til þess að skila inn meðmælendalistum. Hann kveðst vera búinn að safna tilskildum fjölda undirskrifta, allavega eins og hann telur þær. Innlent 26. apríl 2024 11:51
Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri Ásdís Rán Gunnarsdóttir, Ástþór Magnússon og Arnar Þór Jónsson verða gestir Pallborðsins klukkan 14 í dag, sem verður sýnt í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi. Innlent 26. apríl 2024 11:40
„Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Ásdís Rán Gunnarsdóttir mætti með undirskriftir sínar nú í morgun og var tekin tali af fréttamanni fréttastofunnar við það tækifæri. Innlent 26. apríl 2024 10:57
„Þessi ákvörðun var ekki tekin í Valhöll“ Friðjón R. Friðjónsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðismanna, hefur gengið til liðs við kosningateymi Katrínar Jakobsdóttur í komandi forsetakosningum. Sem þykja tíðindi á ýmsum bæjum. Innlent 26. apríl 2024 10:31
Dregur framboðið til baka Sigríður Hrund Pétursdóttir hefur ákveðið að draga framboð sitt til embættis forseta Íslands til baka. Henni tókst ekki að safna tilskildum fjölda meðmæla, sem skila þarf inn í dag. Innlent 26. apríl 2024 09:21
Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Tólf gengu á fund landskjörstjórnar í Hörpu í Reykjavík fyrir hádegi í dag þar sem þau skiluðu inn framboði til embættis forseta Íslands, auk lista yfir meðmælendur. Innlent 26. apríl 2024 08:26
Brautryðjandinn Baldur Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði, verður framúrskarandi forseti hljóti hann til þess stuðning þjóðarinnar þann 1. júní. Hann hefur allt sem þarf til að gegna embættinu svo sómi sé að. Hann hefur verið brautryðjandi í rannsóknum á alþjóðamálum, með áherslu á stöðu smáríkja. Hann þekkir vel til stjórnskipunar landsins og hefur um áratuga skeið verið í hringiðu pólitískrar umræðu. Hann er réttsýnn og rökfastur. Skoðun 26. apríl 2024 07:02
Framboðslistar opinberaðir eftir helgi Frambjóðendur til embættis forseta Íslands munu skila inn framboðum sínum í Hörpu á morgun. Formlegur framboðslisti mun þó ekki liggja fyrir fyrr en eftir helgi, í fyrsta lagi. Kristín Edwald, formaður landskjörsstjórnar, segir að ýmsu að huga. Innlent 25. apríl 2024 21:13
Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Útlit er fyrir að tíu verði í framboði til embættis forseta Íslands þann 1. júní næstkomandi, eftir að einn bættist í hóp þeirra sem safnað hafa lágmarksfjölda meðmæla nú síðdegis. Frambjóðendur voru á útopnu í dag, daginn áður en framboðsfrestur rennur út. Innlent 25. apríl 2024 19:13
Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Helga Þórisdóttir er komin með lágmarksfjölda í meðmælasöfnun fyrir framboð sitt til forseta Íslands. Þessu greinir hún frá í tilkynningu. Innlent 25. apríl 2024 14:50
Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Milli klukkan tíu og tólf á morgun mun Landskjörstjórn taka við framboðum til forseta Íslands. Eins og fram hefur komið þarf frambjóðandi að hafa 1500 undirskriftir til að komast áfram í kjörið. Tíminn er því naumur fyrir frambjóðendur sem ekki hafa náð þeim undirskriftafjölda. Helga Þórisdóttir er bjartsýn en Sigríður Hrund ekki. Innlent 25. apríl 2024 12:07
Katrín og Gunnar? Fyrr í vikunni birtist grein á Vísir.is eftir Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmann þar sem gerð var áhugaverð en um leið misheppnuð tilraun til þess að spyrða Katrínu Jakobsdóttur við Gunnar Thoroddsen, fyrrverandi forsætisráðherra, sem tilheyrði að sögn Sævars ákveðinni valdaelítu sem hefði talið sig „hafa óskrifaðan rétt til að velja sér embætti og störf.“ Þær ásakanir í garð Katrínar missa hins vegar algerlega marks. Skoðun 25. apríl 2024 10:01
Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir forsetaefni heldur því fram að Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra og mótframbjóðandi hennar, hafi verið að forða sér vegna þess að hún vilji ekki þurfa að bera ábyrgð á vafasömu frumvarpi Bjarkeyjar Olsen, sem nú er tekist á um á þingi. Innlent 24. apríl 2024 12:32
Áhugaverðir tímar kalla á áhugaverðan forseta Ég er hluti af framboðsherferð á Íslandi sem er að reyna að gera Snæfellsjökul að næsta forseta Íslands. Við erum teymi af umhverfisverndarsinnum, listamönnum, lögfræðingum, vísindamönnum, lögfræðingum og áhugasömum borgurum sem gera sér grein fyrir gríðarlegu mikilvægi þess að leiðtogar okkar setji réttindi náttúrunnar í forgang, sem er megin áhersla framboðsins. Skoðun 24. apríl 2024 12:31
Alls konar fabúleringar um vinskapinn við Bjarna Ben „Við skulum átta okkur á því að það er auðvitað unnið að fjöldamörgum málum og forsætisráðherrann kemur nú ekkert að þeim öllum,“ sagði Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, í Pallborðinu í gær. Innlent 24. apríl 2024 11:15
Það vantar vanan og áreiðanlegan mann í verkið Undanfarin ár hafa erlendar valdastofnanir í sífellt ríkari mæli seilst til áhrifa á Íslandi. Áhrifin eru nú þegar víðtæk á löggjöf og það er deginum ljósara að hagsmunir annarra en þeirra sem í landinu búa stjórna þar mestu. Skoðun 24. apríl 2024 07:30
Ekki lengur smeykur við að deila kastljósinu með Katrínu Gunnar Sigvaldason doktorsnemi í stjórnmálafræði og eiginmaður Katrínar Jakobsdóttur forsetaframbjóðanda segir að sér hafi alltaf þótt gott að láta lítið á sér bera. Það hafi ekki síst verið til að vernda strákana þeirra þrjá, þá Jakob, Illuga og Ármann Áka. Gunnar segir að af einhverjum ástæðum hafi fólk mikinn áhuga á honum. Lífið 24. apríl 2024 07:01
Fannst hennar tími vera kominn Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, segir að henni hafi fundist hennar tími kominn í íslenskum stjórnmálum. Hún vill enn gera gagn til góðs og telur sig geta gert það í embætti forseta. Innlent 23. apríl 2024 21:30
Össur segir Jóni Gnarr að „hætta að væla“ Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi þingmaður og utanríkisráðherra fer ófögrum orðum um orðræðu Jóns Gnarr um framboð Katrínar Jakobsdóttur til forseta. Jóni hefur verið tíðrætt um að honum finnist óvenjulegt að sitjandi forsætisráðherra skuli bjóða sig fram og hefur kallað framboð hennar „steikt og absúrd.“ Innlent 23. apríl 2024 17:35
Halla Hrund fjórfaldar fylgi sitt á milli kannanna Halla Hrund Logadóttir mælist með sextán prósent fylgi í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Í fyrri Þjóðarpúlsi mældist hún aðeins með fjögur prósent fylgi. Katrín Jakobsdóttir mælist með mest fylgi og bætir lítillega við sig, fer úr 30 í 31 prósent. Innlent 23. apríl 2024 14:07
Hefur allt sem þarf Fyrstu kynni mín af Höllu Tómasdóttur voru í tengslum við vinnustað þar sem hún kom einn dag og ræddi við hópinn. Þessi dagur breytti svolítið lífi mínu því þarna uppgötvaði ég í raun hvernig ég get tekið stjórn á eigin lífi. Skoðun 23. apríl 2024 13:31
Svona var Pallborðið með Höllu, Katrínu og Steinunni Ólínu Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, Halla Tómasdóttir athafnakona og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona verða gestir Pallborðsins í dag, sem hefst klukkan 15. Innlent 23. apríl 2024 12:34
Helga Þórisdóttir og fjöregg íslenskrar þjóðar Forseti Íslands, eini þjóðkjörni fulltrúi landsmanna, gegnir grundvallarhlutverki vegna þeirrar ábyrgðar og valds, sem embættinu fylgir. Þeir sem lesið hafa þjóðsögur og ævintýri vita að brothættra fjöreggja sinna þarf hver vel að gæta, ella verða fjörbrot. Skoðun 23. apríl 2024 11:01
Segja baráttuna bara rétt að hefjast Þær Helga Þórisdóttir og Ásdís Rán Gunnarsdóttir, forsetaframbjóðendur, segja kosningabaráttuna rétt að byrja og þær muni láta ljós þeirra skína. Ásdís er nýbúin að safna nægilega mörgum undirskriftum og Helga segist á lokametrunum með það. Innlent 22. apríl 2024 22:47
Katrín og Baldur takast enn á um forystuna Flestir ætla að kjósa Katrínu Jakobsdóttur og Baldur Þórhallsson samkvæmt fimm skoðanakönnunum sem birtar hafa verið síðast liðinn hálfan mánuð. Halla Hrund Logadóttir er farin að narta í hælana á Jóni Gnarr í þriðja sætinu. Innlent 22. apríl 2024 19:41
Katrín, Halla og Steinunn Ólína mætast í Pallborðinu Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar heldur áfram að bjóða til sín forsetaframbjóðendum í Pallborðið, sem sýnt er í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi. Innlent 22. apríl 2024 19:00
Halla telur langt í að fólk sé búið að ákveða sig Halla Tómasdóttir forsetaframbjóðandi var á ferð um Suðurnes þegar Vísir náði í hana. Hún var að ganga inn á kosningafund á Hótel Keflavík. Hún sagði viðtökurnar á Suðurnesjum slíkar að ef væri miðað við þær væri hún með miklu meira fylgi en menn almennt ætla. Innlent 22. apríl 2024 17:18
Ásdís Rán búin að safna undirskriftum Ásdís Rán Gunnarsdóttir, einnig þekkt sem Ísdrottningin, hefur safnað tilskildum fjölda undirskrifta til þess að geta formlega boðið sig fram til forseta. Innlent 22. apríl 2024 15:47
Katrín og Gunnar Það var áhugavert að fylgjast með því þegar Katrín Jakobsdóttir baðst lausnar sem forsætisráðherra til þess að fara í forsetaslaginn. Ég hafði nokkru áður skrifað grein á visi.is þar sem ég fjallað um stöðuna hjá Vinstri grænum og afleiðinganna sem núverandi stjórnarsamstarf hefur haft á fylgi flokksins. Skoðun 22. apríl 2024 15:30