Ég átti engan þátt í ákvörðun Alonso Flavio Briatore, stjóri Renault-liðsins í Formúlu 1, vísar því á bug að hann hafi átt þátt í því að heimsmeistarinn Fernando Alonso hafi ákveðið að semja við McLaren árið 2007. Briatore er einnig umboðsmaður Alonso, en það var Briatore sem tók Alonso undir sinn verndarvæng hjá liðinu á sínum tíma og gaf honum tækifæri, sem á endanum varð til þess að Alonso varð heimsmeistari aðeins 24 ára gamall. Sport 20. desember 2005 16:45
Alonso fer til McLaren árið 2007 Þær stórfréttir bárust úr Formúlu 1 í morgun að heimsmeistarinn ungi, Fernando Alonso hjá Renault, hefur samþykkt að ganga til liðs við McLaren árið 2007 þegar samningur hans við Renault rennur út. Sport 19. desember 2005 11:45
Schumacher byrjar vel Fyrrum heimsmeistarinn Michael Schumacher er byrjaður að æfa á fullu eftir stutt frí og í gær náði hann frábærum tíma á æfingum á Jerez brautinni á Spáni. "Mér finnst ég mjög ferskur um þessar mundir og ég er ákaflega einbeittur," sagði Schumacher, sem vill eflaust gleyma síðasta ári sem fyrst og einbeita sér að því að komast á meðal þeirra bestu á ný. Sport 16. desember 2005 16:30
Ákvörðun Michelin hefur engin áhrif Forráðamenn heimsmeistara Renault segja að ákvörðun Michelin dekkjaframleiðandans að draga sig út úr Formúlu 1 eftir næsta tímabil hafi engin áhrif á áform liðsins um að verja titilinn á næsta ári. Sport 16. desember 2005 14:24
Michelin hættir eftir næsta keppnistímabil Dekkjaframleiðandinn Michelin hefur gefið það út að hann muni hætta að framleiða hjólbarða fyrir Formúlu 1 eftir tímabilið 2006, en ákvörðun þessi kemur í kjölfar þess að alþjóða aksturssambandið, FIA, ákvað á dögunum að öll dekk í keppnum frá og með árinu 2008 skuli vera frá sama framleiðandanum. Sport 14. desember 2005 16:15
Vodafone fer frá Ferrari til McLaren Fjarskiptarisinn Vodafone hefur náð samningi við McLaren-liðið í Formúlu 1 um að verða aðal styrktaraðili liðsins frá og með árinu 2007. Vodafone hefur verið hjá erkifjendunum Ferrari síðan árið 2002 og hefur skaffað ítalska liðinu um 23 milljónir punda á ári, en nú er ljóst að þeir styðja við bakið á keppinautum þeirra eitthvað fram á næsta áratug. Ekki hefur enn verið gefið upp hve hár samningurinn er. Sport 14. desember 2005 14:30
Ekkert frí hjá Schumacher í ár Fyrrum margfaldur heimsmeistari í Formúlu 1, Þjóðverjinn Michael Schumacher, sleppti að taka sitt venjubundna vetrarfrí í ár eins og hann hefur gert undanfarið og hefur þess í stað fylgst náið með prófunum á Ferrari-bílnum og segist ekki geta beðið eftir að byrja að keyra á ný. Sport 13. desember 2005 14:00
Ecclestone reddar málunum Formúlumógúllinn Bernie Ecclestone segist vera nærri samkomulagi við aðstandendur Belgíukappakstursins á Spa brautinni um að tryggja tilverurétt keppninnar, en mótshaldararnir höfðu verið í fjárhagserfiðleikum undanfarið. Skuldir mótshaldara höfðu hrannast upp í kjölfar dræmrar miðasölu. Sport 8. desember 2005 16:15
Liðsskipan liggur fyrir Nú hafa öll liðin í formúlu 1 kynnt hvaða ökumenn verða í bílstjórasætunum á næsta keppnistímabili, því í dag tilkynnti lið Red Bull að Christian Klien yrði ökumaður þeirra og nýja liðið, Scuderia Toro Rosso verður með ökumennina Vitantonio Liuzzi og Scott Speed. Sport 6. desember 2005 19:45
Raikkonen ökumaður ársins Finnski ökuþórinn Kimi Raikkonen hefur verið útnefndur besti atvinnuökumaður heimsins á árinu 2005 af tímaritinu Autosport. Raikkonen hlýtur heiður þennan þó hann hafi orðið í öðru sæti í keppni ökumanna í formúlu 1 á árinu, en hann þótti sýna góðan akstur þó bíll hans væri ekki alltaf nógu öruggur. Sport 5. desember 2005 14:15
Renault sýnir nýja bílinn 31. janúar Heimsmeistarar Renault í Formúlu 1 munu kynna nýja bílinn sinn við sérstaka athöfn í Mónakó þann 31. janúar næstkomandi, en bíllinn mun þó verða prófaður nokkru fyrr. Þá hefur Toyota ákveðið að frumsýna bílinn sinn þann 14. janúar í Cologne og Honda bíllinn, sem kallaður er RA 106, verður prufukeyrður þann 25. janúar. Sport 2. desember 2005 17:30
Seldi hlut sinn í Formula One Group Formúlumógúllinn Bernie Ecclestone og þýski bankinn BayernLB hafa selt hlut sinn í Formula One Group til handa hóps sem kallar sig CVC Capital Partners, sem á fyrir vikið 75% í Formula One Group. Ecclestone mun þó áfram gegna forstjóra stöðu í fyrirtækinu og á enn nokkurn hlut í því, en hann hefur hagnast gríðarlega á umsvifum sínum í fyrirtækinu og er mjög umdeildur. Sport 25. nóvember 2005 19:30
Framtíð Monza í hættu Svo gæti farið að ítalíukappaksturinn í Formúlu 1 fari ekki fram á Monza-brautinni á næsta keppnistímabili, því dómari hefur úrskurðað að ekki verði hægt að halda mót þar í framtíðinni nema hægt verði að draga verulega úr hávaða frá brautinni. Þetta þykir mótshöldurum áfall og segjast þeir efast um að hægt verði að ganga að kröfum íbúa. Málinu verður áfrýjað fljótlega. Sport 18. nóvember 2005 16:15
Alonso verður næsti Schumacher Flavio Briatore, stjóri Renault-liðsins í formúlu 1, segir að Fernando Alonso eigi eftir að feta í fótspor Michael Schumacher og verða sigursælasti ökumaðurinn formúlu 1. Sport 16. nóvember 2005 17:15
Nýja liðið heldur Sauber nafninu Forráðamenn BMW hafa staðfest að nýja liðið þeirra í Formúlu 1, sem hefur keppni á næsta tímabili, muni halda nafni Sauber sem það hét áður en BMW ákvað að skaffa því vélar og heiti því BMW Sauber. Sport 14. nóvember 2005 17:00
Nýtt lið sækir um þáttökurétt Nýtt keppnislið hefur nú lagt fram beiðni um að vera með í Formúlu 1 kappakstrinum á næsta ári. Það er fyrrum ökuþórinn Aguri Suzuki sem er í forsvari fyrir liðið, sem mun keppa með vélar frá Honda ef beiðni liðsins verður samþykkt. Liðið mun heita Super Aguri Formula One og yrði ellefta keppnisliðið á heimsmeistaramótinu á næsta ári ef allt fer að óskum. Sport 2. nóvember 2005 12:00
Róttækar breytingar á tímatökum Alþjóða bílasambandið samþykkti í gær að gera róttækar breytingar á tímatökum fyrir keppnir á næsta ári, þar sem keppt verður með útsláttarfyrirkomulagi. Nokkur lið eru vera mikið á móti þessum breytingum, sem eru gerðar með það fyrir augum að auka spennu og sjónvarpsáhorf. Sport 24. október 2005 17:01